Tíminn - 27.06.1939, Síða 4

Tíminn - 27.06.1939, Síða 4
292 Tjmgngs jirlðjndaglim 27. jání 1939 73. blað tR B/EIVUM Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjavík efndi til skemmtiferðar að Kleifarvatni og í Krísuvík um helg- ina. Var farið úr Reykjavík á laugar- dagskvöld og slegið tjöldum við Kleif- arvatn sunnan vert. Á sunnudag voru hverirnir skoðaðir og gengið niður á Krísuvíkurberg. Þátttakendur voru 24. Forsætisráðherra efndi til samsætis í Oddfellowhús- inu á' sunnudagskvöld í tilefni af bisk- upsvígslunni. Sátu það um 200 manns, þar á meðal dr. Jón biskup Helgason, Sigurgeir biskup Sigurðsson, prestar, sem í bænum eru staddur, og marglr fleiri. Voru margar ræður fluttar í hófinu. Stórstúkuþingið var sett hér i bænum í dag. Hófst það með guðsþjónustu í dómkirkjunni kl. 1%. Séra Magnús Guðmundsson í Ólafsvík predikaði, en séra Friðrik A. Friðriksson í Húsavík þjónaði fyrir alt- ari. Að messu lokinni var þingið sett í Góðtemplarahúsinu. Búizt er við, að þingið standi fram yfir hádegi á föstu- dag, en þá er fyrirhugað að slíta því. Á þinginu verður samin starfsáætlun og fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, kosnir embættismenn stúkunnar og gerðar ályktanir varðandi áfengismál. Þingið sækja að þessu sinni á annað hundrað manns. Hefir stúkumeðlimum fjölgað afar mikið seinustu árin og tala þeirra meira en tvöfaldazt síðan 1935. Eru nú fleiri menn í stúkum hér á landi heldur en nokkru sinni fyrr, að fráteknum árunum 1927—28, eða nokk- uð á tíunda þúsund manns. í barna- og unglingastúkum munu nú vera um 4550 meðlimum, en nær 4900 manns í hinum stúkunum. Prófessor H. Nilsson-Ehle, fyrverandi forstjóri fyrir tilrauna- stöðínni í Svalöf í Svíþjóð, flytur nokkra fyrirlestra á vegum Háskóla íslands og verður þeim háttað sem hér segir: 1. Sænskar jurtakynbætur í þágu landbúnaðarins. Vinnuaðferðir og árangur. Nýja Bíó, þriðjudaginn 27. þ. m. kl. 17.—19. — 2. Kynbætur á skóg- artrjám, einkum fyrir aukningu á litn- ingafjölda. Nýja Bíó, miðvikudaginn 28. þ. m. kl. 19. — 3. Rannsóknir við- víkjandi röntgenkynbrigðum í kornteg- undum. Rannsóknastofa háskólans við Barónsstíg, fimmtudaginn 29. þ. m. kl. 11 f. h. — Aðgangur að fyrirlestrum þessum er ókeypis og heimill öllum. Það skal tekið fram, að tveir fyrstu fyrirlestrarnir eiga einkum erindi til almennings, en þriðji fyrirlesturinn er um sérstakar rannsóknir, sem eiga að- allega erindi til lífeðlisfræðinga og sér- fræðinga í ræktunartilraunum. Engeyjarsund var þreytt síðastliðinn laugardag og voru þátttakendur þrír, Haukur Ein- arsson, Pétur Eiríksson og Vigfús Sig- urjónsson. Lagt var af stað frá Engey kl. 6 og synt að steinbryggjunni. Vegalengdin er 2600 metrar. Pétur Ei- riksson tók forystuna strax, en Haukur var aldrei yfir 10 metra á eftir honum, þegar lengst var, og stundum því nær samsíða. Synti Pétur skriðsund, en Haukur bringusund. Náðu þeir báðir miklu betri árangri heldur en nokkru sinni hefir náðst, í Engeyjarsundi. Afrek Hauks, sem synti bringusund alla leið, er sérlega gott. Varð Pétur 53,35 mín., Haukur 53,46 mín. og Vigfús 67 mín. Er timi Vigfúsar einnig mjög góð- ur, þegar tekið er tillit til þess, að hann er aðeins 18 ára. Áður hefir Pétur náð beztum tíma af þeim, er Engeyjar- sund hafa þreytt, 63 mín. árið 1937. Gestir í bænum. Árni Jóhannsson gjaldkeri á Akur- eyri og frú hans, Eiríkur Brynjóifsson ráðsmaður í Kristneshæli og frú hans, Jónas Kristjánsson mjólkursamlags- stjóri á Akureyri, Björn Magnússon prófastur á Borg, Björn O. Björnsson prestur á Höskuldsstöðum, Eiríkur J. Eiríksson prestur að Núpi í Dýrafirði, Friðrik A. Friðriksson prestur í Húsa- vík, Einar Guðnason prestur i Reyk- holti, Gunnar Árnason prestur að Æsustöðum í Langadal, Sigurjón Guð- jónsson prestur í Saurbæ á Hvalfjarð- arströnd, Valgeir Helgason prestur að Ásum í Skaftártungu, Gísli Skúlason prestur að Stóra-Hrauni í Árnessýslu. Hátiðaliöldin á Hvanneyri. (Framh. a/ 1. síðu) íslands 1000 krónum til smíða- verkstæðisins og Hvanneyring- ur 500 krónum. Búnaðarsamband Borgar- fjarðar, og hlutaðeigandi sýslu- félög bæði, gáfu skólanum út- skorinn ræðustól úr eik. Gamlir nemendur og kennar- ar gáfu málmsteypu af brjóst- líkneski, sem Ríkarður Jónsson hefir gert af Halldóri Vilhjálms- syni. Á sunnudaginn hófst almenn samkoma að Hvanneyri og var mjög fjölsótt, enda hið ágætasta veður. Var mikill fjöldi fólks úr héraðinu öllu og auk þess víða vegu að af landinu. Er talið, að þar hafi verið saman komið nær eitt þúsund manns. Klukkan 11 árdegis hófst guðsþjónusta og prédikaði séra Eiríkur Albertsson á Hesti. Að guðsþjónustunni lokinni var matarhlé, en eftir hádegi hóf- ust ræðuhöld, söngur og fim- leikasýning. Fluttu ræður Run- ólfur Sveinsson skólastjóri, Bjarni Ásgeirsson alþingismað- ur, Pétur Ottesen alþingismaður, Guðmundur Jónsson frá Torfa- læk, Jón Hannesson bóndi í Deildartungu, Pálmi Einarsson ráðunautur, Steingrímur Stein- þórsson búnaðarmálastjóri og Hermann Jónasson forsætisráð- herra. Á milli ræðanna söng karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Jóns Halldórssonar. Helgi Hjörvar las upp kvæði, sem Jón Magnússon hefir ort í tilefni af afmæli bændaskólans, en við það kvæði hefir Sigurður Þórðarson samið lag. Að loknum ræðuhöldum söng karlakórinn enn allmörg lög. Þessu næst sýndi úrvalsflokk- ur karla úr Glímufélaginu Ár- mann leikfimi undir stjórn Jóns Þorsteinssonar. Klukkan 6 hófst dans og var hann stiginn til klukkan 1 um nóttina. Brezk-rássneski samnlngurinn. (Framh. af 1. síðu) irleitt forðast að minnast á Rússa, en farið þeim mun harð- ari orðum um stefnu Breta í al- þjóðamálum. í Póllandi er almennur ótti við það, að samningar Breta og Rússa mistakist, og niðurstaðan verði samkomulag milli Rússa og Þjóðverja, sem ef til vill kunni m. a. að fjalla um sundurlimun Póllands milli þessara rikja. En Rússar hafa til skamms tíma talið sig eiga tilkall til nokkurs hluta Póllands. Rússar hafa aðallega látið í veðri vaka, að samningar þeirra og Breta hafi hingað til strand- að á afstöðunni til Finnlands og Eystrasaltsríkjanna svonefndu. Rússar vilja heita þeim í samn- ingunum samskonar stuðningi og Póllandi, en þau hafa ein- dregið óskað þess, að slíkt yrði ekki gert, því það væri brot á hlutleysi þeirra og drægi þau inn í átök stórveldanna. Einkum Prestastefnan Hin árlega prestastefna hófst í gær kl. 1 e. hád. með guðsþjón- ustu í dómkirkjunni. Séra Jakob Einarsson prófastur þjónaði fyr- ir altari, en séra Benjamín Kristjánsson prédikaði. Kl. 4 e. h. komu prestar aftur saman í hátíðasal menntaskól- ans og flutti hinn nýi biskup þar setningarræðuna. Lét hann m. a. svo ummælt: „Ég vil gera allt, sem í mínu valdi stendur til þess, að gera skyldu mína og vera kirkjunni og guði trúr. Um leið og ég þakka próföstum og prestum landsins fyrir það traust, sem þeir sýndu mér, vil ég leggja á- herzlu á, að við stöndum fast saman. Framtíðarstarfið krefst sameiginlegra sterkra átaka. Það er trú mín, að prestastétt- in standi fast um mál sín, og sú trú var það, sem kom mér til að taka að mér þetta vandasama starf. Vér hefjum nýtt starfs- tímabil í kirkju íslands, hefjum það í nafni drottins Jesú Krists og biðjum guð föður að vera í verki með oss.“----- Biskup minntist tveggja presta, sem látist höfðu síðan seinasta prestastefna var hald- in, séra Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði og séra Jóns Þorvalds- sonar að Stað, ennfremur Sig- fúsar Einarssonar tónskálds og þriggja prestsekkna. Tveir prestar voru vígðir á ár- inu: Guðmundur Helgason að Staðastað og Sigurbjörn Einars- son að Breiðabólstað á Skógar- strönd. Prófastar voru skipaðir: Guðbrandur Björnsson í Skaga- fjarðarpófastsdæmi, Þorsteinn Jóhannsson í N.-ísafjarðarpró- fastsdæmi, Björn Magnússon í Mýraprófastsdæmi og Jón Þor- varðarson í Skaftafellsprófasts- dæmi. Þá gat biskup ýmsra annara kirkjulegra tíðinda, svo sem Hraungerðismótsins, kirkjubygg- inga, lausnarbeiðni Jóns Helga- sonar biskups o. s. frv. Hann gat þess, að nú væru 12 prestaköll óveitt og væri það áhyggjuefni að ekki skyldu fást menn í þau. Þegar biskup hafði lokið ræðu sinni, flutti Friðrik prófastur Hallgrímsson erindi um fram- tíðarstarf kirkjunnar fyrir æsku- lýðinn. Verður það aðalviðfangs- efni prestastefnunnar. Um kvöldið voru flutt tvö er- indi. Séra Gunnar Árnason flutti erindi í dómkirkjunni kl. 8.15 um Krist og daglega lífið og séra Sigurjón Guðjónsson flutti er- indi í' fríkirkjunni kl. 9.15 um finnsku kirkjuna. Prestastefnan heldur áfram í dag og á morgun og lýkur með samverustund presta í Oddfell- owhöllinni annað kvöld. hefi'r finnska stjórnin andmælt þessu kröftuglega. Bretar hafa hinsvegar ekki viljað hafa þessi ákvæði í samningum, án sam- þykkis hlutaðeigandi ríkja, en lýst sig fúsa til að hjálpa þeim, ef þau þyrftu á aðsto'ð að halda og óskuðu hennar. Þetta atriði virðist því þannig vaxið, að ó- þarft sé að láta stranda á því. E.s. Mjyra fer héðan fimtudaginn 29. júní kl. 7 s. d. til Bergen um Vest- mannaeyjar og Thorshavn. Flutningi veitt móttaka til há- degis á fimtudag. Farseðlar sæk- ist fyrir kl. 6 á miðvikudag, annars seldir öðrum. P. SMITH & CO. »Gull£oss« fer á miðvikudagskvöld 28. júní til Vestfjarða og Breiðafjarðar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi sama dag. "~°**,"GAMLA EÍó**0-0-*0*"** Skólastiilka giftist Hrífandi þýzk skemmti- I mynd, er gerist í Wien. Aðalhlutverkin leika: Gusti Huber, Hans Moser o. fl. Aukamynd: BJÖRGUN ÚR SJÁVARHÁSKA. o—0—°* NÝJA BÍÓ>°~°~°-“I> Síðasti maður um borð Stórfengleg og afar spenn- andi amerísk kvikmynd, er lýsir hinu viðburðaríka og hættulega starfi manna í strandgæzluflota Banda- ríkjanna. Aðalhlutverkin leika: Victor McLaglen, Preston Foster og Ida Lupino. I. O. G. T. I. O. G. T. Storstiikuþingið hefst þriffjudaginn 27. júní með messu í dómkirkjunni kl. 1% e. h. Fulltrúar og aðrir templarar mæti í Templarahúsinu kl. 1 og verð- ur þaðan gengið í kirkju. Ræðu flytur síra Magnús Guðmundsson frá Ólafsvík, en fyrir altari þjónar séra Friðrik A. Friðriksson frá Húsavík. »Dctti£oss« fer á fimtudagskvöld 29. júní um Vestmannaeyjar til Grimsby og Hamborgar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi sama dag. Að lokinni messu verður þingið sett, kjörbréf rannsökuð og stig veitt. Félagar, sem ætla að fá stórstúkustig, hafi með sér skír- teini frá stúku sinni um rétt þeirra til stigsins. Unglingaregluþmgið verður sett viðvikudaginn 28. júní klukkan 10 árdegis. Jónas Kristjánsson læknir flytur erindi. Söngfélag I.O.G.T. syng- ALLTAF " S A M A TÓBAKIÐ í BRISTOL Bankastræti 6. - Sími: 4335. - REYKJAVÍK. Þetta þjóðíræga neftóbak, sem er selt á snyritlegum flöskum, er sent gegn póstkröfu um land allt. ur — Allir templarar velkomnir. Fulltrúar beðnir að afhenda kjörbréf sín til skrifstofu stórstúk- unnar, sem fyrst. Skrifstofu Stórstúku íslands, 25. júní 1939. Friðrik A. Brekkan. Steindór Björnsson. Jóh. Ögm. Oddson. Skríistofur vorar verða lokaðar á morgun (miðvikudag). Sölusamband íslenzkra 0 Sígurður Olason & fiskfiramleidenda. Egíll Sígurgeírsson Máliluiningsskrifstofa Austurstræti 3. — Sími 1712 Estneska stjórnarblaðið „Paee- vale“ hefir líka látið svo um- mælt, að tæpast sé hægt að líta öðruvísi á þetta en „sem tylli- ástæðu Rússa til að komast hjá nánu bandalagi við Breta og Frakka". 2O°|0 3O°|0 45°|0 S T A R Mjólkursamlagi Eyfirdinga alltaf fyrirlíggfjandi Á krossgötum. í heildsölu. (Framh. af 1. síðu) horf, að láta hvern einstakling færa sem mestan arö, í stað þess að áður var lögð áherzla á að hafa fjöldann sem mestan. — Elztu menn hér um Samband ísl.samvínnufélaga Sími 1080. 106 William McLeod Raine: ræninginn hefði gefist svo fljótt upp. Ef hann léti fara með sig til Texas aft- ur, væri úti um hann. Hún hafði í- myndað sér, að hann mundi heldur berjast, en sætta sig við slík örlög. En þetta kom ekki málinu við þessa stund- ina, hún varð að berjast fyrir hann, úr því að hann hafði ekki barist sjálfur. Steve gekk um gólf í næsta herbergi og var að búa allt undir nóttina. Hún heyrði óminn af samtali. Nú var glugg- inn opnaður og hún heyrði braka í rúminu, er sýslumaðurinn lagðist út af. Eftir það var allt hljótt. Molly afklæddi sig hljóðlega, fór í samfesting og flúnelskyrtu og dróg flókaskó á fætur sér. Hún dróg upp beittan vasahníf, úr skúffu í dragkistu sinni. Síðan leit hún órólega á armbandsúrið sitt. Hún varð að bíða unz allir væru gengnir til náða. Hálfri stundu síðar læddist hún út úr herbergi sínu og niður stigann. Hún opnaði útidyrnar og gekk yfir til hest- hússins. Buck Timmings myndi sofa uppi á hesthúsloftinu, en það var ó- sennilegt að hún vekti hann, því að hann var frægur fyrir hvað hann svaf fast. Blesótti klárinn var á þriðja bás og beizli hans hékk á veggnum fyrir aftan hann. Molly þorði ekki að kveikja á Flóttamaðurinn frá Texas 107 Ijóskeri og lagði því við hann í myrkr- inu. Því næst þreifaði hún uppi ábreiðu og hnakk. Hún var oft búin að stanza, til þess að hlusta eftir, hvort Buck væri ekki vaknaður, áður en hún var búin að leggja við hestinn. Þegar hún teymdi klárinn að runn- unum að húsabaki, brakaði svo mikið í snjónum undir hófum hans, að hún skalf af ótta. Hún sá engin ljós, hvorki í skálanum né íbúðarhúsinu, en henni fannst að skuggarnir í kring hreyfðust og horft væri á hana þaðan. Hún batt klárinn með rennihnút við grænt tré. Síðan læddist hún að trénu, undir glugganum á herbergi Bobs. Nú voru liðin mörg ár, síðan hún hafði klifið það, en í fyrri daga hafði hún oft not- að tréð sem stiga, að glugganum. Síðan höfðu verið höggnar greinar af trénu, en hún hélt samt að sér mundi takast að ná gluggakistunni. Tréð var bolstutt og limmikið. Hún varpaði kaðli yfir lægstu greinina og las sig upp hann með handafli og síðan hljóðlega grein af grein. Loks skreið hún eftir grein, sem lá í áttina til gluggans. Hún rétti varlega fram hnéð og aðra hendina eftir gluggakistunni. Andartaki síðar sat hún þar saman- hnipruð og hélt niðri í sér andanum, hlustandi, gegn um opinn gluggann. slóðir muna ekki annað vor jafngott og þetta, nema ef vera kynni árin 1879 eða 1880. Talið er að gróður sé að minnsta kosti þrem vikum fyrr á ferð- inni en venjulega. Á einum bæ hér í sveitinni, Hofi, var sáðslétta slegin 30. maí og mun slíkt með öllu eins dæmi á Norðurlandi, að tún séu slegin í sjöttu viku sumars. í garða var sett á tíma- bilinu 14.—20. maí. Er um mikla aukn- ingu á garðlöndum að ræða í ár og sér- staklega færist kartöflurækt í aukana. Kopar keyptur í Landssmiðjunni. Til anglýsenda! Timinn er gefinn út i fleiri eintökum en nokk- urt annað blað á íslandi. Gildi almennra auglýs- inga er í hlutfalli við þann fjölda manna er les þær. Timinn er öruggasta boðleiðin til flestra neyt- endanna í landlnu. — Þeir, sem vilja kynna vör- ur sinar sem flestum auglýsa þær þessvegna í Timanum — keppa annað kvöld kl 8,30 stundvíslega Nota landarnír síðasta tækífærid til að sigra? Allir verða að sjá 0 nrslitaleikiiiu! 0

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.