Tíminn - 27.07.1939, Side 4
344
TÍMINIV, fimmtndagiim 27. jjúlí 1939
86. blað
Yfir landamærin
1. Kommúnistablaðið segir í dag:
„Skjaldborgin (þ. e. Alþýðuflokkur-
inn) telur sér ekki lengur fært að
halda uppi flokki af eigin ramleik.
Þegar henni er orðið þetta ljóst, skýtur
hún máli sínu undir erlendan dóm-
stól, óminnug þess, að íslendingar vilja
engar utanstefnur hafa.“ Þetta virðist
sannarlega nokkuð mannalega látið,
þar sem það er vitanlegt að Kommún-
istaflokkurinn er eini hérlendi flokk-
urinn, sem stendur undir erlendri yf-
irstjórn, foringjar hans hafa iðulega
látið „stefna" sér til Moskva til að fá
þar fyrirskipanir og það stendur prent-
fest í blaði þeirra, að þeir hafa rekið
menn úr flokk sínum eftir beinum
fyrirskipunum þaðan. Kommúnistar
hafa því hér bætt við sig nýju meti í
falsi og hræsni.
2. Kommúnistablaðið er sífelt að tala
um harðstjórnina á íslandi og frelsið
í Rússlandi. Mætti biðja það að svara
tveim fyrirspurnum: Hvað myndi Stal-
in láta gera við blað, sem kallaði
hann og félaga hans samvizkulausa
glæpamenn og öðrum slíkum nöfnum?
Myndi Stalin leyfa starfsemi flokks,
sem gerði sitt ítrasta til að eyðileggja
þær framkvæmdir, sem stjórn hans
hefði á oddinum?
3. Morgunblaðið japlar upp í morg-
un hinar gömlu slúðursögur sínar um
undirbúningsleysi fyrv. ríkisstjórnar
vegna yfirvofandi stríðshættu. Það er
óþarft að elta einu sinni enn ólar við
þessar Gróusögur blaðsins, enda nægi-
legt að benda á það, að þær ráðstaf-
anir, sem blaðið eignar núv. ríkis-
stjórn, eru fyrst og fremst fyrv. ríkis-
stjórn að þakka. X—Y.
Stœrsta hús veraldar, Empire
State Building í New York, ber
sig ekki.
Alls starfa nú í húsinu um
12000 manns daglega, en samt
standa fjölmörg herbergi auö,
einkum á efstu hœðunum. Þaö
tekur talsverðan tíma aö fara
þangað upp meö lyftunni og fólk
segir, að því finnist það komið
of langt frá borginni, þegar það
er lcomið þangað. Þótt leigan sé
há fyrir neðstu hœðirnar — t. d.
er leigan fyrir neðstu hœðina 20
millj. kr. á ári — svarar það ekki
nauðsynlegum vöxtum og eig-
endurnir stórtapa. Slíkur ský-
skafi verður því tœplega byggður
fyrst um sinn.
Empire State Building er 102
hœðir og hefir 8600 lierbergi.
Það er 350 m. hátt og er bœði
hœsta og stœrsta bygging ver-
aldar. Það var byggt á 8 mánuð-
um og er það talið met í bygg-
ingum.
* * *
Andúðin gegn svertingjum er
enn mjög sterk í Bandaríkjun-
um. Fyrir ári síðan giftist ame-
rísk milljónamœr, Laura Dees-
Gould, bilstjóranum sínum, sem
var svertingi. Hann var vel
menntur, fríður sýnum og kurt-
eis í framkomu. En vinir og
vandamenn hennar gátu ekki
þolað hann, vegna þess að hann
var svertingi, og neituðu allri
umgengni við Dees-Gould eftir
giftinguna. Þau fóru síðan í
ferðalag um Bandaríkin, en
?nörg helztu gistihúsin, er Dees-
Gould hafði dvalið á áður, neit-
uðu henni nú um gistingu, þar
sem hún var í fylgd með svert-
ingja. Dees-Gould tók þetta svo
sárt, að hún framdi sjálfsmorð.
tTR BÆTVUM
Slátrunin.
í dag hefst slátrun lamba hér í
bænum og Borgarnesi, en á Siglufirði
mun hún hafa byrjað fyrir 2—3 dögum.
Slátrunin byrjar hér nær mánuði fyrr
en í fyrra.
Hjónaband.
Síðastl. mánudag voru gefin saman
á Siglufirði ungfrú Þóra Sigurðardótt-
ir, Nýlendugötu 27 hér í bæ, og Júlíus
Kemp sjómaður á Kötlu.
51. sundmet
sitt setti Jónas Halldórsson sund-
kappi í sundhöllinni í gær. Hann synti
50' m., frjáls aðferð, á 27,6 sek., en
gamla metið, sem hann átti, var 27.8
sek.
FerÖafélagið.
Ferðafélag íslands efnir til hinnar
árlegu Fjallabaksfarar sinnar um
næstu helgi. Ferðalag þetta stendur í
sjö daga. — Einnig efnir félagið um
helgina til Borgarfjarðarfarar um
Hvalfjörð, Surtshelli og Kaldadal. Lagt
verður af stað kl. 4 á laugardaginn og
komið hingað á sunnudagskvöld. Gist
verður í Reykholti.
Slys.
Á fyrsta, kappleik íslandsmótsins,
sem fór fram í gærkveldi milli K. R.
op' Fram meiddist einn kappliðsmað-
urinn, Jörgensen úr Fram, svo alvar-
lega á höfði, að flytja varð hann á
Landspítalann og liggur hann þar.
Slysið vildi þannig til, að þrír kapp-
liðsmenn hlupu saman og féll Jörgen-
sen. Úrslit leiksins urðu þau að K. R.
vann með 5:2.
í kvöld
fer fram á íþróttavellinum annar
kappleikur íslandsmótsins milli Vík-
ings og Vals.
Frá Versölum
til Miinchen.
(Framh. af 1. síðu)
afstöðu Norðurlanda. Þau myndu
halda fast við hlutleysi sitt og
láta ekki draga sig inn í deilur
stórveldanna. Þar sem þjóða-
bandalagið hefði sýnt sig einskis
megnugt í þessum málum, hefðu
Norðurlönd lýst því yfir, að þau
álitu sig ekki lengur bundin af
ákvæðum þjóðabandalagssátt-
málans um refsiaðgerðir eða
annað það, sem gæti dregið þau
inn í deilur stórveldanna.
Áheyrendur, sem voru margir,
þökkuðu Mowinckel fyrir erind-
ið með löngu lóíataki og að sein-
ustu sagði Ólafur Thors atvinnu-
málaráðherra nokkur orð og
þakkaöi ræðumanninum í nafni
áheyrendanna.
Atlmgun á mjólkur-
stöðinni i Reykjavík.
(Framh. af 1. síðu)
til útflutnings og aðejns 10%
eru notuð heima fyrir.“
„Hvaða verð fá danskir bænd-
ur fyrir mjóikurlítrann?"
„Það má fullyrða,“ svarar pró-
fessorinn, „að árið sem leið hafi
þeir fengið sem næst 11—12
aura netto“.
Blaðamaður lætur í ljósi þá
skoðun, að lágt verð myndi það
þykja hér á landi, og prófessor-
inn svarar því til, að þetta sé
lika lágt mjólkurverð og svari
ekki kostnaði eins og sakir
standa nú hjá dönskum bænd-
um, ef þeir hefðu ekki annað
við að styðjast jafnframt mjólk-
urframleiðslunni, sem bætti það
að nokkru upp, sem sé svína-
ræktina. En hún er að lang-
mestu leyti byggð á notkun
undanrennunnar til fóðurs.
í þessu sambandi getur pró-
fessorinn þess, að útflutningur
danskra landbúnaðarafurða
nemi árlega yfir 700 milj. kr.
Lætur blaðamaður það álit í
ljósi, að það sé álitlegur skild-
ingur, þegar jafnframt sé tekið
tillit til þess fólksfjölda, sem að
landbúnaðinum vinni.
„Já“, svarar prófessorinn með
áherzlu, og heldur áfram: „en
danskir bændur trúa á jarð-
ræktina, og danska moldin er
eina hráefnið, sem þeir eiga og
frjómagni hennar verða þeir að
breyta í allskonar seljanlegar af-
urðir svo sem smjör, ost, kjöt,
egg o. fl.“
„Er um nokkrar sérstakar ný-
ungar að ræða í mjólkuriðnaði
yðar, er miði að bættri afkomu
mjólkurframleiðslunnar?"
„Já, þar er sérstaklega tvennt,
sem vér erum að vinna að í
þessu augnamiði. Annarsvegar
sameiningu fleiri mjólkurbúa í
eitt stórt, þar sem því verður
við komlð, og lækka þannig
reksturskostnaðinn við vinnsl-
una, og hinsvegar að skipuleggja
mjólkursöluna í bæjunum og
draga þannig úr hinum óeðli-
lega háa sölukostnaði, sem nú
er. Vonum vér að eitthvað vinn-
ist á í rétta átt með þessu.“
Um leið og blaðamaður kveð-
ur próf. Kjærgard-Jensen varp-
ar hann fram þeirri spurningu,
hvernig honum lítist á sig hér á
landi.
„Ég hefi lesið og heyrt mikið
um ísland áður,“ svarar hann,
„en hér er sjón sögu ríkari, því
allt sem ég hefi séð síðan ég
kom til landsins hefir farið
langt fram úr vonum minum og
hugmyndum þeim, sem ég gerði
mér um það. Mig langar til að
sjá miklu meira af landinu en
mér verður unnt á þessum
stutta tíma, því að við förum
héðan aftur á mánudag. Ég
vona fastlega, að geta komið
hingað aftur fljótlega, því að
hér er allt, liggur mér við að
segja, sem augað gleður.
Það eina sem amar að, er það,
að ég get aldrei komizt í rúmið
á sæmilegum tíma fyrir kvöld-
dýrðinni“.
Blaðamaðurinn þakkar fyrir
samtalið og lætur í ljós þá ósk,
að þeir félagar megi sem fyrst
aftur koma. — Þeir eru að öllu
svo, að þeir munu hér jafnan
aufúsugestir. X.
Vtnnið ötullefia ft/rir
Tímann.
r
Sígurður Olason &
Egíll Sígurgeírsson
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 3. Sími 1712.
Nú hlakka ég til að fá kaffi-
sopa með Freyjukaffibætis-
dufti, þvi þá veit ég að kaff-
ið hressir mig
Hafið þér athugað það, að
Freyju-kaffibætisðuft inni-
heldur ekkert vatn, og er
því 15% ódýrara en kaffi-
bætir í stöngum
REYNIÐ FREYJU-DUFT
M.s. Dronning
Alexandríne
fer mánudaginn 31. þ. m. kl. 6
síðdegis til Kaupmannahafnar
(um Vestmannaeyjar og Thors-
havn).
Þar eð allt farþegarúm er upp-
tekið með skipinu, verða þeir,
sem fengið hafa loforð fyrir fari
að sækja farseðla í dag og í síð-
asta lagi fyrir hádegi á morgun.
Annars verða farseðlarnir seldir
öðrum.
Skipaafgrelðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sími 3025.
't0~°—0—1>~ NÝJA BÍÓ—
/Ivfiiitýri
bankastjórans.
Fyndin og fjörug ensk
gamanmynd frá LONDON
FILM.
Aðalhlutverkin leika bezti
skopleikari Englands:
JACK HULBERT
og hin fagra
PATRICA ELLIS.
Aukamynd:
ÚLFARNIR ÞRÍR OG
GRÍSARNIR.
Litmýnd eftir Walt Disney.
Norræna félagið. K. F. U. M.
Naiiittöng'
heldur Karlakór K. F. U. M. frá Stokkhólmi (70 manns), föstu-
daginn 4. ágúst kl. 19,30 stundvíslega, í Gamla Bíó.
Aögöngumiðar í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.
Félagsmenn Norræna félagsins og K. F. U. M. hafa for-
gangsrétt um kaup á aðgöngumiðunum til 1. ágúst.
SARATOGA.
Afar spennandi og fram-
úrskarandi skemmtileg
amerísk talmynd, er gerist
í öllum frægustu kapp-
reiðabæjum Bandaríkj-
anna, og þó sérstaklega
þeim lang frægasta, SARA
TOGA. — Aðalhlutv. leika:
JEAN HARLOW
CLARK GABLE,
FRANK MORGAN og
LYONEL BARRYMORE.
Aukamynd:
KAPPRÓÐUR
Félagsmenn sömu félaga og karlakóranna hafa aðgang að
samsætinu sem kórnum verður haldið á Hótel Borg á eftir sam-
söngnum. Aðgöngumiðar að því á sama stað.
VmOIMIA CIGAREXIUR
ZU Slk
Pákkínn
Koslcir
KR.I-50
ólfum verzfun um.
Réyhíd
t. S. I.
K. R. R.
Knattspyrnnitiót íslands
í kvöld kl. 8,30 keppa VALUR og VlKINGUR.
Líndemann dæmír.
Sjáið alla Þýzkalandsfarana.
158 William McLeod Raine:
í eldinum. Þið megið lifa og láta fyrir
mér.
Flannigan, fór'oft fram að dyrunum
og eitt sinn sagði hann við húsbónda
sinn:
— Það eru þríx menn hérna niður með
læknum og stefna hingað.
Oakland stóð upp og gekk líka til
dyranna.
— Tveir menn með einn baggahest,
leiðrétti hann.
— Þeir virðast ætla hingað, sagði sá
brúneygi. — Við ættum líklega að skjóta
okkur undan, þar til þeir eru komnir
hjá.
— Það er regla þín, Ed, sagði Oak-
land og glotti. Þú forðar þér ef þú ert
í vafa. En ég er ekki á þeirri skoðun.
Við urðum á undan hingað, og hér fer
vel um okkur. Við skulum að minnsta
kosti sjá hverjir þetta eru, áður en við
forðum okkur.
Hann gekk að hnakk sínum og tók
sjónauka upp úr töskunni.
Taylor hallaði sér aftur á bak í stóln-
um. Hann hafði ekki einu sinni litið út
um gluggann.
— Ég get sagt ykkur hver annar þeirra
er, sagði hann rólega. — Það er Steve
Walsh, sýslumaður. Hann er að leita að
fanga, sem hann týndi í gærkveldi og
klappaði á kollinn á honum að skilnaði.
Flóttamaðurinn frá Texas 159y
11
— Rétt, sagði Oakland, er hann hafði 5
um stund horft í sjónaukann. — Ég
kannast ekki við hinn, það er ekki
Prescott.
Taylor stóð upp af stólnum:
— Mér er líklega bezt að hypja mig,
sagði hann fljótt.
— Eg er ekki viss um það, sagði Oak-
land lágt og lyngdi augunum. — Vertu
rólegur Taylor, ef þú nefnir þig svo.
Brjóttu ekki af þér tærnar, ekkert ligg-
ur á.
— Walsh verður kominn hingað eftir
tuttugu mínútur.
— Ef til vill og ef til vill ekki. Rödd
Oaklands líktist urri og svipurinn var
refslegur. — Það er rétt eins og ættli að
líða yfir þig, lagsmaður. Kanntu sæmi-
lega að fara með riffil?
Taylor leit snöggt framan í Oakland,
því að hann þurfti ekki að láta segja
sér, hvað hann ætlaðist fyrir. Á heimili
Prescotts hafði hann heyrt talað um
hótanir Oaklands við sýslumanninn.
Oakland ættlaði að nota hann til hefnd-
anna. Hann átti að skjóta eftir skipun
og bera svo sjálfur ábyrgðina. Hinir
tveir myndu svo, ef nauðsyn krefði, segja
fallega frá því, hvað þeir hefðu orðið
undrandi yfir framferði fangans. Það
gæti vel verið að þeir dræpu hann á
eftir, svona af réttlætiskennd, og líka
Ályktanir fulltrúa-
fumlar
norrænu félaganna.
(Framh. af 1. siðu)
vinna íslandi raunverulegt
gagn.
Fulltrúarnir fóru héðan með
„Stavangerfjord" kl. 9 í gær-
kvöldi. Fór skipið héðan til Ak-
ureyrar. Er það væntanlegt
þangað um fimmleyti og mun
dvelja þar til miðnættis. Þá
heldur það áleiðis til Oslo.
Tillögurnar, sem samþykktar
voru á fundinum, fara hér á
eftir:
Samvinna íslands
og hinna norðurlandanna.
Fulltrúafundurinn hefir rætt
málið um samvinnu íslands og
hinna Norðurlandanna og telur
æskilegt að þessi samvinna
verði aukin svo sem framast er
unnt.
Fundurinn, sem hefir með á-
nægju veitt eftirtekt þeim á-
huga fyrir norrænni samvinnu
í menningarmálum, er kennslu-
málaráðherrar Norðurlanda létu
í ljós, fer þess á leit við stjórnir
félaganna, að þær rannsaki,
hvort tiltök munu á að stofna
til árlegs námskeiðs í íslenzkri
tungu og bókmenntum við há-
skólann í Reykjavík og koma á
fót kennaraembættum í sömu
greinum i hinum norrænu lönd-
unum, þar sem slík embætti
hafa enn eigi verið stofnuð.
Æskilegt er, að hafizt verði
handa svo fljótt sem unnt er um
öflun styrkja handa stúdentum,
er stunda nám í norrænum mál-
um, og öðrum æskumönnum til
námsdvalar á íslandi, og til
gagnkvæmra skipta á bók-
menntum og fyrirlesurum.
Ennfremur telur fulltrúa-
fundurinn æskilegt, að aukin
verði kynningarstarfsemi varð-
andi ísland í blöðum, útvarpi
og kvikmyndum og að meiri per-
sónuleg kynni komist á milli ís-
lands og hinna norrænu land-
anna.
Æskulýðsstarfsemi.
Fulltrúafundurinn telur æski-
legt, að félögin hefji einbeitta
starfsemi í því skyni að fylkja
æskunni um norræna samvinnu
frekar en orðið er.
Fulltrúafundurinn fer þess á
leit við félögin, að þau hefjist
handa um hagkvæma lausn á
þessu máli svo fljótt sem auðið
er, m. a. með því að leita sam-
vinnu við þau æskulýðsfélög,
sem nú eru starfandi. Fundur-
inn leggur til, að hvert félag
skipi sérstaka æskulýðsnefnd til
að stjórna starfinu.
Félögin skulu jafnan skýra
hvert öðru frá starfsemi sinni á
þessu sviði, ef til vill með því að
halda sameiginlega fundi, þar
sem rædd yrðu hin ýmsu sjón-
armið varðandi framkvæmd
málsins.
Kennaraskipti.
Fulltrúafundur norrænu fé-
laganna mælir eindregið með
tillögu þeirri, er fram kom og
fékk góðar undirtektir á fundi
kennslumálaráðherra Norður-
landa í Kaupmannahöfn vetur-
inn 1938, að auka með ríkis-
styrk skipti á kennurum milli
norrænu landanna til efíingar
gagnkvæms náms kennaranna
og sérstaklega til eflingar
fræðslu í sögu og máli þeirra
eigin þjóða í hinum norrænu
löndunum.
Umferðalistsýningar í skólum.
Fulltrúafundurinn leggur til,
að hvert félag kynni sér hvað
gert hefir verið í hinum lönd-
unum um umferðasýningar á
listaverkum í skólunum, — í því
skyni að efla til norrænnar
samvinnu á1 þessu sviði.