Tíminn - 05.08.1939, Síða 2

Tíminn - 05.08.1939, Síða 2
358 TlMUYiy, laiigardagmm 5. ágiist 1939 90. hlað ‘gtmirm Lauyardaginn 5. ágúst Innflutnmgurínn og gjaldeyrísmálín Þegar þjóöstjórnin var mynd- uð síðastliðið vor varð, auk annars, samkomulag um það milli stuðningsflokka hennar, að innflutningurinn skyldi vera gefinn frjáls á nokkxum vöru- tegundum eða kornvörum, kaffi, sykri, kolum og salti. í raun og veru var þetta ekki nema formsatriði og engin breyting frá því, sem áður var, því að innflutningur hafði ekk- ert verið takmarkaður að ráði á þessum vörum, þar sem þær voru taldir til brýnustu nauð- synja. Pramsóknarflokkurinn féllst á þessa formsbreytingu til að sýna þá skoðun sína í verki, að flokkurinn liti á innflutn- ingshöftin sem neyðarráðstöfun og teldi rétt, að þeim yrði ekki beitt lengur en þörf krefði. Fyrir nokkru síðan er búið að gefa innflutning þessara vara frjálsan, að undanskildu kaffi og sykri. Ástæðan til þess, að innflutningurinn á kaffi og sykri hefir ekki verið gefinn frjáls, er sú, að sökum sölu sjávarafurðanna verður að kaupa þessar vörur aðallega frá tveim löndum, Brazilíu og Cuba, og það verður tæpast tryggt öðruvísi en með þeim móti, að gjaldeyris- og innflutnings- nefnd fylgist með innflutningn- um. Innflutningur á þessum vötum frá framangreindum um löndum hefir hinsvegar verið leyfður hindrunarlaust og má því segja, að raunverulega sé þar um frjálsan innflutning að ræða. Samkomulagi því, sem varð um þetta atriði, þegar þjóð- stjórnin var mynduð, hefir því verið fullnægt og þurfa engin klögumál að vera yfir efndum þess. Hins vegar má vera, að einhverjir hafi ekki áður gert sér ljóst, að hér var raunveru- lega ekki um annað en forms- breytingu að ræða, þar sem inn- flutningur þessara vara hafði verið sama og frjáls áður og auk þess fást flestar þessar vörur ekki innfluttar, nema gegn yf- irfærsluábyrgð bankanna og því á þeirra valdi, að halda inn- flutningi þeirra í skefjum, ef þörf krefur. Um gjaldeyrismálin í heild er það að segja, að horfurnar hafa sjaldan verið ískyggilegri, sökum hinnar tregu síldveiðar norðan- lands. Jafnvel þótt svo færi, að sæmilega aflaðist úr þessu, er tæpast hægt að gera sér von um meira en meðalveiði, en það mun hvergi nærri hrökkva til þess að ná jafn hagstæðum verzlunarjöfnuði og í fyrra. Fari hinsvegar svo, að síldveiðin bregðist að verulegu leyti, verð- ur ástandið hið uggvænlegasta í þessum efnum. Það lýsir alveg ótrúlegu skiln- ingsleysi og áhugaleysi fyrir fjárhagslegri afkomu þjóðar- innar, að heyrast skulu raddir um það, þegar horfurnar eru með slíkum tíætti, að gera eigi nú frekari tilslakanir á inn- flutningshöftunum og leyfa aukinn innflutning. Miklum meira hluta þjóðar- innar er það áreiðanlega ljóst, að fari svo, að síldveiðarnar bregðist að meira eða minna leyti, verður óhjákvæmilegt að herða á höftunum og þjóðin sýni þá fórnfýsi, að spara sér margt, sem hún leyfir sér nú. Annars er fjárhagslegt frelsi þjóðarinn- ar í fullkomnum voða. Það voru áreiðanlega vonir manna í öllum helztu stjórn- málaflokkum landsins, þegar þjóðstjórnin var mynduð, að hún yrði þess megnug að sam- eina þjóðina til öflugri átaka við erfiðleikana og gæti, ef þörf krefði, framkvæmt ýmsar ráð- stafanir í nauðvarnarskyni, sem væru einum eða tveimur flokk- um ofvaxnar. Takist henni ekki að sanna þessa trú manna í verki, ef t. d. síldveiðarnar bregðast, hefir henni mistekizt hlutverk sitt og verður hún þá að taka afleiðingunum af því. Þeir menn, sem heimta aukinn innflutning á sama tíma og Hamband Islaiiflls og Danmerknr 3. Utanríklsmálin. VANRÆKSLAN DÝRARI. Það má segja, að afkoma þjóðarinnar byggist einkum á tvennu: Nægilega mikilli fram- leiðslu og sölumöguleikum fyrir hana erlendis. Framleiðsla og náttúruauð- æfi landsins eru það fábreytt, að þjóðin þarfnast mikils innflutn- ings til að halda uppi þróttmiklu menningar- og athafnalífi. Margar lífsnauðsynjar er ekki hægt að framleiða hér og efni- vörurnar til bygginga og ann- arra verklegra framkvæmda eru ekki 'til í landinu. Þessar vörur verður því að kaupa erlendis. En til þess að geta keypt þær þurfum við að geta selt jafn- mikið — og helzt meira — af ísl. framleiðsluvörum erlendis. Vegna þessarar aðstöðu hljóta viðskiptamálin jafnan að vera ein allra þýðingarmestu mál þjóðarinnar. Afkoma okkar byggist beinlínis á því, hvað miklar vörur við getum selt til útlanda, hversu hagkvæm sú sala er fyrir okkur og hversu hagkvæmum kaupum við náum á þeim vörum, sem flytja þarf til landsins. Þegar menn gera sér fulla grein fyrir þessum staðreyndum hlýtur þeim að verða ljóst, hversu þýðingarmikið það er, að íslendingar annist utanrík- ismál sín sjálfir, en láti þau ekki vera háð vilja og geðþótta annarrar þjóðar. Hinir íslenzku sendimenn og ræðismenn gætu unnið við- skiptamálum þjóðarinnar ómet- anlegt gagn og myndu líka á- reiðanlega gera það. Með tölum verður það ekki sannað, en það er eigi að síður jafnvíst, að þjóðin hefir tapað miklum fjár- munum, sökum þess að hún hefir ekki haft slíka fulltrúa á undan- förnum árum. Þótt það eigi svo að heita, að Danir annist utan- ríkismál okkar, hafa þeir verið fullkomlega gagnslausir fyrir okkur á þessu sviði. Til þess hefir þá skort þekkingu og áhuga, og auk þess er utanríkismálaþjón- usta þeirra með þeim hætti, að henni er ekki ætlað — nema að litlu leyti — að fást við viðskipta mál. Við höfum því orðið að ann- ast öll viðskiptamál okkar sjálfir og gera alla viðskiptasamninga við aðrar þjóðir á eigin spýtur. Myndi það áreiðanlega hafa orð- ið til margháttaðs styrks, ef not- ið hefði aðstoðar okkar eigin horfurnar i gjaldeyrismálum verða ískyggilegri, stuðla vissu- lega að því, að starf stjórnar- innar mistakist. sendi- og ræðismanna í þessum málum. Það er oft rætt um nauðsyn þess, að afla íslenzkum vörum markaðar erlendis. Við getum áreiðanlega ekki tryggt okkur betri aðstöðu til að afla okkur markaða og hagkvæmari við- skipta erlendis en þá, að taka utanríkismálin í okkar eigin hendur. Verkefni sendimanna okkar erlendis verður fyrst og fremst í því fólgið, að vinna að aukinni sölu íslenzkra afurða erlendis og bættum viðskiptum okkar þar. Slíkur erindisrekstur mun vitan- lega kosta okkur nokkurt fé, en þessi mál eru það þýðingarmikil fyrir daglegt líf þjóðarinnar og framfarabaráttu hennar, að vanrækslan og hirffuleysið á þessu sviffi myndi verffa okkur langtum dýrara. Fátt er okkur æskilegra og gagnlegra, en bætt viðskiptaleg aðstaða okkar við aðrar þjóðir. Hinsvegar er fátt hættulegra lífsafkomu og fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnay, en óhag- stæð viðskipti við útlönd. Þetta hefir okkur mátt vera ljóst á undanförnum árum og ætti ekki að vera það síður nú, ef menn gera sér grein fyrir hinu ríkjandi ástandi í viðskipta-og gjaldeyr- ismálunum. Það er alveg rétt, aff utanríkis- málin munu kosta okkur nokkur útgjöld, ef viff tökum þau í okk- ar hendur. En hinu má jafn- framt slá föstu, aff sú vanræksla sem sambandslögin hafa neytt okkur til aff sýna þessum málum undanfarin ár, er og verffur okk- ur langtum dýrari. TRÚIN Á GETULEYSIÐ! Þeirri mótbáru er stundum hreyft, að við eigum ekki völ á hæfum mönnum til þess að ann- ast utanríkismálin fyrir okkur. Sú mótbára er engin nýjung. í hvert skipti, sem við höfum stig- ið nýtt skref í sjálfstæðisbarátt- unni og ætlað að taka ný mál í okkar hendur, hafa afturhalds- og kyrrstöðumennirnir sagt: Við höfum ekki hæfa menn til að gegna þessum málum! Þegar þjóðin byrjaði að taka verzlun- ina af Dönum var það algengt viðkvæði: Við eigum ekki hæfa verzlunarmenn! Þegar stjórnin var flutt inn í landið, heyrðist líka sagt: Við eigum ekki menn, sem geta verið ráðherrar! Þann- ig mættí lengi telja. Framfarir þjóðarinnar á und- anförnum árum hafa sýnt, að þjóðin hefir jafnan átt hæfum mönnum á að skipa á næstum hvaða sviði, sem verið hefir.Ekk- ert hefir borið glæsilegra merki um hinn mikia lífsmátt hennar og getu til þess að vera sjálfstæð og fara ein með öll mál sín. Það er beinlínis risið gegn reynslunni og reynt að setja óverðskuldaðan blett á manndóm þjóðarinnar, þegar því er haldið fram, að hún eigi ekki hæfa menn til að ann- ast utanríkismálin. Ekkert væri hættulegra fyrir frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar en að sú falsskoðun festi rætur, því færi þjóðin að trúa á getu- leysi sitt í þessum efnum, væri þess skammt að bíða, að hún færi að telja sig getulausa á fleiri sviðum, og þá er orðið skammt til þess hugsunarháttar, sem drepur kjarkinn og sjálf- stæðishvötina. Ef trúin á getuleysi þjóðar- þegnanna til að annast vanda- söm störf verður til þess að tefja fyrir því, að íslendingar taki utanríkismálin í sínar hendur, munu þeir verða marg- ir — innan lands og utan —, sem fara að örvænta um sjálf- stæði þjóðarinnar í framtíðinni. Raunverulega er slík trú á getu- leysið ekkert annað en trú á það, að þjóðin geti ekki verið sjálfstæð og farið með öll mál sín. Þess vegna verður umfram allt, að kveða þessa trú á getu- leysið niður. Hún er bæði hættu- leg og í fullkominni mótsögn við sögu þjóðarinnar siðustu áratugina. VERND DANA. í sambandi við utanríkismálin er því stundum haldið fram, að sambandið við Dani muni veita okkur nokkra vernd gegn yfir- gangssemi stórveldanna. Þessi fullyrðing heyrist sjaldn- ast rökstudd. Eins og málum er nú háttað í heiminum, virðast stórveldin ekki líkleg til að taka meira tillit til Danmerkur en íslands. Á þeirra mælikvarða eru Danir kotþjóð alveg eins og við. Mótmæli Dana gegn yfir- gangi stórveldanna á íslandi myndu ekki hafa meiri þýðingu en mótmæli okkar. Danir geta ekki veitt okkur neina hernað- arlega hjálp. Hvidbjörnen væri aðeins öllu þægilegri skotspónn fyrir herskip og flugvélar stór- veldanna en litli Óðinn okkar! Aðstöðu og legu Danmerkur er hinsvegar þannig háttað, að hún hefir öllu meiri líkur til að dragast inn í deilur stórveld- anna en ísland. Undir slíkum kringumstæðum gæti náið stjórnarfarslegt samband við Danmörku orðið okkur til margvíslegra óþæginda. í viðskiptamálunum njótum við heldur ekki neins teljandi stuðnings Dana eða getum not- ið. Það hefir reynslan sannað okkur greinilega á undanförn- um árum. Sú fullyrðing, að okkur sé vernd og styrkur að stjórnar- farslegu sambandi við Dani og því, að þeir fari með utanrík- ismál okkar, virðist því alger- lega sögð út í bláinn og ekki hafa við neitt raunverulegt að styðjast. AÐ VERZLA MEÐ FRELSIÐ. Þær raddir, sem heyrast um það, að við eigum að biðja Dani að fara áfram með utanríkis- mál okkar, gegn einhverjum fríðindum hér á landi, eru í fullkomnu ósamræmi við metn- að og tilfinningu sjálfstæðra þjóða. Skoðun þessara manna bygg- ist á því, að þetta gæti sparað okkur nokkur útgjöld. Hér að framan hafa verið leidd rök að því, að sú van- ræksla, sem hlytist af slíkum sparnaði, myndi verða okkur dýrari. En þótt alveg sé gengið fram hjá þeirri staðreynd og því slegið föstu, að um raunveru- legan aukakostnað sé að ræða, hljóta þeir, sem vilja að þjóðin sé frjáls og sjálfstæð, að kom- ast samt að þeirri sömu niður- stöðu, að hún eigi að taka utan- ríkismálin í sínar hendur. Því er þannig varið, bæði með frelsi einstaklinga og þjóða, að því fylgja ekki aðeins hlunn- indi, heldur jafnframt skyldur, sem oft krefjast verulegra fórna. Það er einkenni margra, að vilja losna við þær skyldur, sem frelsinu fylgja. Menn vilja njóta hlunnindanna, en losna við erf- iðleikana. Reynslan er oftast sú, að losi menn sig við skyldurnar og erf- iðleikana, missa þeir hlunnind- in fljótlega á eftir. Það er verzlun, sem jafnan hefnir sín, þegar einstaklingar eða þjóðir kaupa sig undan ýms- um þeim skyldum og erfiðleik- um, sem frelsinu fylgja, gegn því að afsala sér einhverju af rétti sínum í staðinn. Gamli sáttmáli fjallaði um slíka verzlun. Hann ætti að vera íslenzku þjóðinni nægilega lær- dómsríkt dæmi. Þegar þjóð er’byrjuð á slíkri verzlun með frelsi sitt, jafnvel þótt í litlum stíl sé, er þess sjald- an langt að bíða, að þessi verzl- un færist í aukana. Þjóðarþegn- ar hugsa sem svo: Látum við þetta og þetta af hendi, er raun- ar skiptir okkur ekki miklu máli, getum við losnað við þennan og þennan kostnað. Þannig gengur koll af kolli. Andvaraleysi þjóð- arinnar fyrir sjálfstæðinu eykst stöðugt og verzlun heldur áfram, unz frelsið er selt til fullnustu. Hver þjóð, sem vill vera sjálf- stæð, forðast því eftir megni alla verzlun með frelsi sitt, í hversu smáum stíl, sem er. Hún veit, að allt slíkt veikir dáð hennar og frelsisvilja. Hún kýs heldur erfiðleikana og kostnað- inn, sem af frelsinu leiðir. Fari svo, að íslendingar feli 0nnur athugasemd í tilefni af athugasemd minni hér í blaðinu 11. f. m„ um skipakaup Eimskipafélagsins, hafa formaður og ritari félags- ins ritað langa grein í Morgun- blaðið 19. f. m„ sem þeir nefna svar til mín. í framannefndri smágrein í Tímanum 11. f. m. sýndi ég fram á, að stjórn Eimskipafélagsins hefði ekki uppfyllt það skilyrði, sem sett var fyrir stuðningi ráðuneytisins, í bréfi 3. nóv. f. á. Stjórn félagsins hafði til- kynnt ráðuneytinu að félagið gæti fengið lán erlendis til kaupa á skipinu, en aldrei gert grein fyrir því á hvern hátt fé- lagið ætlaffi aff yfirfæra vexti og afborganir af þeim stóru lánum. Ekki hefir stjórn félags- ins heldur leitaff til gjaldeyris- og innflutningsnefndar eftir innflutnings- og gjaldeyrisleyfi vegna skipakaupanna, sem þó var um getið í margnefndu bréfi ráðuneytisins frá 3. nóv„ að þyrfti að gera, og sem stjórn fé- lagsins var að lögum skylt að gera áður en samið var um kaup á skipinu. ' Þrátt fyrir þetta nýja langa „svar“ formanns og ritara E. í. í Morgunblaðinu 29. júlí, stend- ur það óhaggað, að stjórn Eim- skipafélagsins hefir enn ekki fullnægt því skilyrði um gjald- eyrishlið málsins, sem sett var í ráðuneytisbréfinu 3. nóv. sl. P. t. Reykjavík, 4. ágúst ý939. Skúli Guffmundsson. Dönum áfram utanríkismál sín, verður það eingöngu sökum þess, að þá vantar þennan skilning sjálfstæðra þjóða. Þeir ættu ekki viljann til að leggja á sig byrðar fyrir frelsið — þennan vilja, sem er langtum betrri vörn gegn þeim hættum, er að sjálf- stæði þjóðarinnar steðjar, en mikið góðæri. Þeir gerðu sér ekki nægilega ljósa þá hættu, sem felst 1 verzluninni með frelsið, og gleymdu þeirri reynslu sinni og annarra, að slík verzlun leið- ir oftast til ósjálfstæðis og und- irokunar. Framh. Þ. Þ. Skrifstofa Framsóknarflokksins í Reykjavík er á Lindargötu 1D Framsóknarmenn utan af landi, sem koma til Reykjavíkur, ættu alltaf að koma á skrifstofuna, þegar þeir geta komið því við. Það er nauðsynlegt fyrir flokksstarfsemina, og skrifstof- unni er mjög mikils virði að hafa samband við sem flesta flokksmenn utan af landi. Úr sögu knattspyrnunnar Enginn íþrótt nýtur jafnmik- illa vinsælda í heiminum og safnar jafn mörgum áhorfend- um og knattspyrnan. íslendingar eru engir eftirbát- ar í þeim efnum. Dag eftir dag þyrpast þúsundir Reykvíkinga út á íþróttavöll til að horfa á knattspyrnuleiki þar. í flestum kaupstöðum og kauptúnum landsins og þéttbýlli sveitum er knattspyrnan iðkuð. Hún er tví- mælalaust útbreiddasta og vin- sælasta íþróttin hér á landi. YFIRVÖLDIN Knattleikir háfa andvíg verið iðkaðir hjá KNATTLEIKiUM.fjestum þj5gum frá alda öðli, en með mjög ólíkum hætti. Það er getið um þá hjá Grikkjum og Rómverjum. En Bretland virðist þó hafa verið móðurland þeirra um langt skeið. Þeir voru fyrr á öldum mjög ólíkir knattspyrnunni nú og höfðu oft alvarleg meiðsli og dauðsföll í för með sér. Ýmsir Bretakonungar bönnuðu því leikina og margir forystumenn kirkjunnar unnu gegn þeim, þar sem þeir drægju úr kirkjusókn. í Skotlandi féllu leikirnir þó al- drei niður og meðal almennings í Bretlandi voru þeir alltaf iðk- aðir talsvert, þrátt fyrir öll bönn. Leikirnir taka líka smám saman á sig mildara form og 1583 eru settar fyrstu knattspyrnuregl- urnar, sem kunnugt er um. Sam- kvæmt þeim má ekki taka knött- inn með höndum, rangstæður maður má ekki skora mark, og dómararnir skulu vera þrír. FORGANGA Það er ekki fyrr en SKÓLANS á 19. öld, sem I ETON blómatíð knatt- spyrnunnar hefst í Englandi. Hún er þá tekin upp á her- manna- og menntaskólanum. Sérstaklega hefir hinn frægi Etonskóli forystuna í þessum efnum. Skólinn í Rugby hélt hins vegar uppi einskonar samkeppni með því að iðka aðra tegund knattleiks, þar sem leyfilegt var að nota jafnt hendur og fætur. Þessi knattleikur er enn iðkaður vlða, en hefir þó algerlega lotið í lægra haldi fyrir knattspyrn- unni. Árið 1871 voru settar í Eng- landi reglur um knattspyrnu, sem gilda að mestu leyti enn þann dag í dag. Þar var m. a. slegið föstu, að leikmenn skyldu vera ellefu. Næsta ár fór fram fyrsta knattspyrnukeppnin milli landsliða Breta og Skota og lauk henni með 0:0 mörkum. Sama ár byrjaði hin fræga „cup“-keppni, er haldizt hefir til þessa og þykir merkilegasti íþróttavið- burður ársins í Bretlandi. Til gamans má geta þess, að í fyrstu keppninni milli landsliða Englendinga og Skota, skiptu Englendingar liðinu þannig: 7 framherjar, einn framvörður, tveir bakverðir, einn markvörð- ur. Skotar skiptu liði sinu þann- ig: Framherjar sex, framverðir tveir, bakverðir tveir, markvörð- ur einn. KNATTSPYRNANVinsældir knatt- VERÐUR AT- spyrnunnar urðu VINNU6REIN fijótlega, svo mikl- ar, að menn fóru að stunda hana sem atvinnu. Árið 1885 var stofn- að fyrsta atvinnufélagið í Eng- landi. Öll helztu knattspyrnufé- lög Englands stunda nú knatt- spyrnuna sem atvinnugrein. - Beztu mennirnir ganga kaupum og sölum og þekkjast þess dæmi, að knattspyrnumaður hafi verið keyptur fyrir 200 þús. kr. Sjálfir fá knattspyrnumennirnir ekki nema lítinn hluta kaupverðsins, meginhlutinn fer til félagsins, er selur hann. Atvinnuknatt- spyrnumenn verða að leggja á sig ótrúlega þjálfun og fyrr meir máttu kjör þeirra teljast hin bágbornustu, því fæstir höfðu að neinu föstu að hverfa, þegar ald- urinn færðist yfir þá, og félagið hafði orðið betri mönnum á að skipa í þeirra stað. Nú gera fé- lögin orðið mikið til þess að tryggja þeim viðunandi störf, þegar þeir hætta keppninni. Auk atvinnufélaganna er vitanlega til fjöldi knattspyrnufélaga í Englandi, því meginþorri ungra manna þar iðkar knattspyrnu að meira eða minna leyti. Sérstak- lega er hún mikið stunduð í skólum. Frá Englandi breiddist knatt- spyrnan fljótt til mgeinlandsins og hefir farið tvo seinustu mannsaldrana sigurför um allan heiminn. Einkum náði hún fljótt útbreiðslu í Mið-Evrópu og á Norðurlöndum. Um talsvert langt skeið áttu Danír einna bezta knattspyrnumenn á meg- inlandinu. í allmörgum löndum hefir knattspyrnan verið stunduð sem atvinnugrein á síðari árum. Næst ensku félögunum hafa austurrísku atvinnufélögin hlot- ið mikla frægð. líkamleg 0G Knattspyrna bygg- ANDLEG ist ekki á líkams- IÞR0TT hreysti, nema að hálfu leyti. Rökrétt og hröð hugsun hefir kannske ennþá meira að segja. Umfram allt verður að gæta þess að hafa gott samstarf við samherj- ana. Þess vegna er knatt- spyrna engu síður talin andleg iþrótt en líkamleg íþrótt og vin- sældir hennar byggjast ekki sízt á því, að hún er talin hafa betri uppeldisleg áhrif en flestar aðr- ar íþróttir. Það þykir talsvert fara eftir skapgerð þjóðanna, hversu góð- um árangri þær ná í knattspyrn- unni. Reynslan þykir hafa sýnt, að knattspyrnan sé vel við hæfi Mið-Evrópuþjóðanna, Suður- Ameríkumanna og Skota. N0KKRAR Um alllangt skeið KNATTSPYRNU-hefir starfað Al- REGLUR þjöðasamb. knatt- spyrnumanna með aðsetri 1 Pa- rís. Samkvæmt reglum þess, skal lengd knattspyrnuvallarins vera frá 90—120 m. og breidd frá 45— 90 m. Þyngd knattarins skal vera frá 370—430 gr. og ummál 69— 71 cm. Markið skal vera 7.32 m. langt og 2.44 m. hátt. Tvær reglur þykja einkum hafa sett svip sinn á knattspyrn- una. Önnur er sú, að enginn leik- maður má taka knöttinn hönd- um, nema markmaður innan vítateigs. Hin er sú, að rangstæð- ur leikmaður má ekki skora mark. Hefir hún tvímælalaust þau áhrif, að meiri áherzla er lögð á samleik en ella, því annars myndi meiri áherzla vera lögð á „löng skot“. í flestum löndum er óleyfilegt að láta varamann koma í stað- inn fyrir leikmann, sem meiðist. í millilandakeppni má þó vara- maður koma í staðinn fyrir meiddan markvörð. Knattspyrnan er iðkuð með mjög mismunandi móti. Sumir leggja áherzlu á „löng skot“, aðrir á „stutt skot“; sumir leggja áherzlu á að láta knöttinn fylgja sem mest vellinum, en aðrir að halda honum sem mest í loftinu. Er tæpast hægt að segja að nein ákveðin tízka sé ráðandi í þess- um efnum, heldur fer þetta að- allega eftir vilja knattspyrnu- mannanna sjálfra, og þó sér- staklega þjálfaranna. Ab.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.