Tíminn - 05.08.1939, Side 3

Tíminn - 05.08.1939, Side 3
90. blað TÍMIM, langardaginn 5. ágást 1939 359 ÍÞRÓTTIR íslandsmótið. Víkingrur—Fram Fjórði leikur íslandsmótsins fór fram síðastliðinn miðviku- dag og kepptu þá Fram og Vík- ingur. í fyrri hálfleik var leikurinn nokkuð jafn, en knötturinn var þó öllu oftar á vallarhelmingi Fram. Hálfleiknum lauk með sigri Víkings 1:0. í seini hálfleik sóttu Framar- ar sig og áttu þeir meira í leikn- um þennan hálfleik. Var sam- leikur þeirra oft góður og hraði mikill. í þessum hálfleik settu þeir tvö mörk, en Víkingur ekk- ert. Leiknum lauk því með sigri Fram 2:1. Leikurinn var ekki harður og allgóður með köflum. Báðum félögunum hefir farið talsvert fram í meðferð knattarins og samleik síðan í fyrra. Framför sína má Fram áreiðanlega þakka utanförinni að verulegu leyti, því bæði fékk liðið þá góða aðstöðu til æfinga og sá marga góða knattspyrnuleiki. Valur—K. R. Síðasti leikur íslandsmótsins fór fram á fimmtudagskvöldið og kepptu þá Valur og K. R. — Nokkur vindur var og mun hann hafa skemmt leikinn nokkuð, enda var hann heldur ó- skemmtilegur. Úrslit urðu þau, að félögin urðu jöfn, 2:2. Skor- aði K. R. seinna mark sitt úr vítaspyrnu á seinustu mínútu leiksins. Úrslit mótsins hafa því orðið þau, að Fram hefir fengið flest stig og unnið með því sæmdar- heitið „bezta knattspyrnufélag íslands“. Stigafjöldi, unnin og töpuð mörk, hefir orðið sem hér segir: Stig Mörk + ~^~ Fram ............... 4 5 6 K. R................ 3 7 5 Víkingur ........... 3 3 3 Valur .............. 2 3 4 Valur hefir því orðið lægstur, en hann hefir verið íslands- meistari nokkur undanfarin ár og vann Reykj avíkurmótið í vor. Þótt úrslitin hafi orðið þessi, er vafasamt að telja eitt félagið öðru betra eins og sakir standa. Leikirnir virtust yfirleitt benda til þess, að félögin séu mjög jöfn. Valur og K. R. virðast hafa staðið í stað, en þau hafa verið beztu félögin undanfarið. Hins- vegar eru Fram og Víkingur í greinilegri framför og virðist ekki ólíklega spáð, að Víkingur verði Fram skæðastur í keppn- inni um meistaratignina næst. Þetta er í 9. sinn, sem Fram vinnur íslandsmótið, auk þess, sem félagið hefir hlotið hana tvisvar, án keppni. Seinast vann Fram íslandsmótið 1925. K. R. hefir unnið mótið 9 sinnum, Valur 6 sinnum og Víkingur tvisvar. Héraðsmótið að Sælingstlalslaug. Ungmennasamband Dala- manna hélt sitt árlega héraðs- mót að Sælingsdalslaug 23. júlí s. 1. Eins og undanfarin ár voru ýmsir íþróttakappleikir stærsta skemmtiatriði mótsins, og fara úrslit þeirra hér á eftir: 1. í 100 m. sundi — frjálsri aðferð — varð fyrstur EinaT Kristjánsson frá U. m. f. „Unn- ur djúpúðga“, á 1 mín. 19,6 sek. Annar varð Ástvaldur Magnús- son frá U. m. f. ,,Stjarnan“, á 1 mín. 31,9 sek. Þriðji varð Bene- dikt Benediktsson frá sama fé- lagi, á 1 mín. 32 sek. 2. í 1000 m. sundi — frjálri aðferð — varð fyrstur Einar Kristjánsson frá U. m. f. „Unn- ur djúpúðga“, á 18 mín. 7.5 sek. Annar varð Benedikt Benedikts- son frá U. m. f. „Stjarnan“, á 19 mín. 4.7 sek. Þriðji varð Guð- mundur Halldórsson frá sama félagi, á 20 mín. 21 sek. 3. í 100 metra hlaupi varð fyrstur Haraldur Þórðarson, á 12.1 sek. Hann er í U. m. f. „Stjarnan“. Annar varð Ástvald- ur Magnússon frá sama félagi, á 12,4 sek., og þriðji maður í 100 m. hlaupi varð Ketilbjörn Magn- ússon, frá U. m. f. „Stjarnan“, á 12.5 sek. 4. í 4 km. hlaupi varð fyrstur A N N A L L GuUbrúðkaup. Anna Kristófersdóttir og Jón- as Jónsson á Syðri-Reykjum í Miðfirði áttu 50 ára hjúskapar- afmæli fimmtudaginn 27. júlí síðastliðinn. Þann dag fengu þau heimsókn karla og kvenna frá nálega öllum bæjum í Miðfirði og allmargra úr nærsveitunum. Var þar saman komið alls um 150 manns, og má af því marka vin- sældir þessara merkishjóna. Eft- ir að sóknarprestur hafði flutt ræðu, voru veitingar fram born- ar í samkomuhúsi sveitarinnar, sem er á Reykjum. Undir borðum voru margar ræður fluttar, en 18 manna karlakór undir stjórn séra Jóhanns Briem, skemmti með söng. Stóð mannfagnaður þessi fram yfir miðnætti og skemmti fólk sér hið bezta. — Brúðhj ónunum bárust heilla- skeyti og gjafir frá sveitungum þeirra og afkomendum. Þau hjón, Anna og Jónas, bjuggu á ýmsum stöðum í Mið- firði öll sín búskaparár, og eru nú hjá syni sínum á Syðri- Reykjum. Þau eru enn við all- góða heilsu þrátt fyrir háan ald- ur og mikla vinnu. Börn þeirra eru: Guðrún, húsfreyja á Haugi, gift Halldóri Jóhannssyni. Björn, bifreiðarstjóri á Hvammstanga. Jón, bóndi á Ytri-Reykjum. Gunnar, bóndi á Syðri-Reykj- um. Elínborg, húsfreyja á Syðri- Völlum, gift Steinbirni Jóns- syni. Þegar Jónas og Anna giftust, 27. júlí 1889, voru einnig gefin saman í hjónaband Björn bróð- ir Jónasar, og Ásgerður Bjarna- dóttir. Þau hófu búskap í Núps- dalstungu í Miðfirði. Björn and- aðist í fyrravor, en ekkja hans, Ásgerður, býr enn í Núpsdals- tungu. Haraldur Þórðarson frá U. m. f. „Stjarnan", á 13 mín. 47.5 sek. Annar varð Evart Sigurvinsson frá sama félagi, á 13 mín. 53.9 sek. Þriðji maður varð Magnús Sigurjónsson frá U. m. f. „Unn- ur djúpúðga", á 14 mín. 8 sek. 5. í langstökki varð hlutskarp- astur Ástvaldur Magnússon frá U. m. f. „Stjarnan", stökklengd 5.51 m. 6. í hástökki stökk hæst Ást- valdur Magnússon frá U. m. f. „Stjarnan", stökkhæð 1.50 m. Að öðru leyti fór samkoman fram sem hér segir: Jón Emil Guðjónsson kennari mælti fyr- ir minni héraðsins, en Frið- finnur Guðjónsson leikari skemmti með fjörugum gaman- sögum og upplestTi. Af hálfu Breiðfirðingafélagsins í Reykja- vík, sem heimsótti mótið, flutti snjallt ávarp Guðmundur Jó- hannsson, formaður félagsins. Höfðu um fimmtíu manns úr Breiðfirðingafélaginu í Reykja- vík komið í þremur stórum bíl- um, kvöldið áður en mótið hófst, og gist í tjöldum um nóttina á staðnum. Þótti heimsókn Breið- firðinga bera vott um sterkan hlýhug til héraðsins, enda mátti segja að umhverfið og veður- blíðan fagnaði komu þeirra, þar sem var sólgylltur faðmur Sæl- ingsdalsins. Heimsókn þessara manna úr Breiðfirðingafélaginu setti hinn ánægjulegasta svip á samkom- una, og veitti kunningjum og vinum kærkomið tækifæri til að eiga saman gleðiríka stund. — Samkomuna sótti nokkuð á fjórða hundrað manns, en vín- nautnar varð alls ekki vart, enda fram tekið í auglýsingum að á- fengisnautn væri þar bönnuð. Austur að Laugarvatni alla þriðjudaga kl. 5 e. h. alla fimmtudaga kl. 5 e. h. alla laugardaga kl. 3 e. h. Frá Laugarvatni: alla sunnudaga kl. 7,30 e. h. alla miðvikudaga kl. 10 f. h. alla föstudaga kl. 10 f. h. Til Geysis í Haukadal alla virka daga. BIFREIÐASTÖÐIN GEYSIR Sími 1633. IJ pvalspitgepðip Jónasar Jónssonar Samband ungra Framsóknarmanna gefur á þessu ári út nýtt bindi af ritgerðasafni Jónasar Jónssonar og verð- ur það álíka stórt og það, er kom í fyrra vetur, Merkir Hraðferðír B. S. A. Alla daga nema mánudaga um Akranes og Borgarnes. — M.s. Laxfoss annast sjóleiðina. Afgreiffslan f Reykjavík á Bifreiðastöð íslands, sími 1540. Blfreiðastöð Akureyrar. samtíðarmenn. Verð þess verður og hið sama, fimm krón- ur óbundið, en 7.50 í snotru shirtingsbandi. Verður band- ið þrennskonar, brúnt, grænt og rautt. Eins og kunnugt er og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, verða í hinu nýja bindi greinar frá æskuárum Jónasar og birtust flestar þeirra í Skinfaxa, ungmenna- félagsblaðinu, á sínum tíma. Þessar greinar voru þá und- anfari almennrar æskulýðsvakningar í landinu og jafn- framt túlkun á þeim skoðunum, sem ungt fólk ól í brjósti, en ekki höfðu áður fallið í einn farveg. Útsölu á bókunum og áskriftasöfnun verður hagað á sama hátt og áður, þannig að bókaútgáfan hefir um- boðsmenn í öllum sveitum og kauptúnum, sem taka á móti áskriftum og áskriftagjaldi, ef borgað er fyrirfram. En ef menn óska þess geta þeir sent pöntun sína til Jóns Helgasonar, pósthólf 961, Reykjavík, eða hringt í síma 2353. Einnig munu áskriftarlistar liggja frammi á af- greiðslu Tímans í Reykjavík. „Merkir .samtíðamenn“ var gefin út í upplagi er nam 2100 eintökum og seldist þó með öllu á hálfu ári. Þótt upplag bindisins, sem kemur út í haust, verði nokkru stærra, má eiga það víst, að það selzt alveg upp á mjög skömmum tíma. Þess vegna þurfa menn að gerast áskrif- endur hið allra fyrsta. Bókaútgáfa S. U. F. heitir jafnframt á umboðsmenn sína til dugnaðar í starfi fyrir sambandið og málefni þess og væntir þess, að áskriftalistarnir verði sendir út- gáfunni svo fljótt, sem tími og ástæður til áskriftasöfn- unarinnar leyfa. 5 S9 Mest og bezt fyrir krónuna, með því að nota þvotta- duftið Perla ACCUMULATOREN-FABRIK, DR. TH. S0NNENCHEIN. Bændur! Munlð að hafa ávalt hln ágætu Sjafnar-júg'ursmyrsl við liendina. Fást hjá kaupfélög’um og kaupmönnum um land allt. Byrgdír í Reykjavík hjá Samband ísl. samvínnuíélaga ]\ý bók eftir Wodehouse Ráð undír rifi hverju Þýtt af Guðm. Finnhogasyni. Skemmtileg bók og fyrsta bókin, sem þýdd hefir ver- ið' á íslenzku eftir þennan heimsfræga höfund. — Simi 1080. Sigurður Olason & Egíll Sigurgeirsson Málflutningsskrifstofa Austurstræti 3. Sími 1712. Áætlunarferðir að K ir k jubæja r klaustri: Frá Reykjavík á þriðjudög- um. — Til Reykjavíkur á föstu- dögum. Kostar heft kr. 4.00, ib. 6.50. — — Fæst í öllum bókaverzlunum. Kopar keyptur í Landssmiðjunni. Afgreiðsla í Reykjavík: á B. S. í. Innheimtumenn! Vinnið ötullega að innheimtu og útbreiðslu Tímans í ykkar sveit. Svarið fljótt bréfum frá nnheimtu blaðsins í Reykjavlk, ig gerið skil til hennar svo fljótt .iem möguleikar leyfa. Tíminn er ódýrasta blaðið, sem gefið er út á íslandi. Allir Framsóknar- menn eiga að kaupa, lesa og borga Tímann. 176 Wllliam McLeodRaine: Walsh lá með lokuð augun og átti erfitt um andardrátt. Það var ekki mik- ið hægt að gera honum til hjálpar, en Taylor gerði það, sem hægt var. XVIII. KAFLI. Myrkar hugsanir sóttu á Taylor, þar sem hann beið með hestinn við hlið þess særða. Hann baðaði andlit sýslu- mannsins, en kleif þess í milli upp á bakkann, til þess að ganga úr skugga um, að Oakland væri ekki að læðast að þeim til þess að fullkomna verk sitt. Jafnframt gætti hann að því, hvort ekki sæi til hjálparmannanna. Hann var stöðugt að hugsa um hvað hann ætti nú að taka til bragðs. Hann fékk ýmsar hugmyndir og gerði áætl- anir, en hætti við þær jafnharðan. Einkum varð honum hugsað til Molly. Það var eins og hnífstunga að hugsa til þess, að nú væri hún glötuð honum fyrir fullt og allt. Hún myndi halda að hann hefði beðið í Sjömílnakofanum eftir tækifæri til að drepa vin hennar. Hún myndi hata hann af öllu hjarta. Það yrði henni nauðsynleg hugsvölun, þar sem hann hefði ennþá einu sinni reynst þorpari. Rökkrið var að byrja að síga yfir, er hann kom auga á litla lest, sem nálg- aðist Sjömilnakofann frá Quarter Circle Flóttamaðurinn frá Texas 173 — Hlustaðu nú á mig, sagði Taylor biðjandi. — Þú verður að ná í hest og ríða til bæjar eftir hjálp, sem hraðast að þú mátt. Hættu að hugsa um hver hafi gert þetta. Ég verð hér hjá honum á meðan, hitt verður þú að sjá um sjálfur. Peters var tortrygginn, en hann sá engin ráð vænni. Hann var sannfærður um að fanginn ætlaði ekki neitt að gera sýslumanninum meira. — Hvers vegna getur þú ekki farið sjálfur til bæjar eftir hjálp, spurði hann. Taylor glotti háðslega. — Menn halda að ég sé Webb Barnett, kærður fyrir bankarán í Texas. Ég myndi kunna illa við mig á bænum. —Jæja þá, sagði Peters samþykkjandi. — Ég skal sjá hvort ég næ í hest. En ef þú gerir Steve nokkurt mein--------- — Vertu nú ekki flón. Hvers vegna ætti ég að gera honum mein? Farðu bara að koma þér af stað. — Get ég nokkuð gert fyrir þig, Steve, áður en ég fer, spurði kúrekinn blíðlega. Walsh hristi höfuðið veiklulega. Taylor stóð á lækjarbakkanum og horfði á Peters ná hesti sínum og stíga á bak. Hestarnir voru þarna allir saman á lækjarbakkanum, svo sem hundrað metra frá kofanum. Þegar Peters var kominn af stað til bæjar, lötruðu hinir hestarnir á eftir honum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.