Tíminn - 17.08.1939, Qupperneq 4
376
TtMBVIV, fímmtndaglnm 17. ágiist 1939
94. blað
Yfir landamærin
1. Árni frá Múla lætur mikið af úr-
ræðum Sjálfstæðisflokksins í atvinnu-
og fjármálum. Árni ætti ekki að gera
sig og flokkinn hlægilegan með slíku
raupi. Allir vita, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefir ekki bent á nein fær úrræði
i þeim efnum á undanförnum árum.
Til þess liggur m. a. sú einfalda ástæða,
að forystumenn flokksins hafa ekki
getað komið sér saman um neina
ákveðna stefnu í þeim málum, sökum
hagsmunaágreinings framleiðenda og
kaupmannna í flokknum, eins og
greinilega kom fram í vetur, þegar
Árni og sjö kaupmannaliðar aðrir
greiddu atkvæði á móti gengislækkun-
inni.
2. Er hægt að komast öllu lengra I
falsí en þegar Árni frá Múla segir, að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki barizt
fyrir auknum fólksfjölda í Reykjavík.
Hverjir hafa heimtað aukið fjármagn
þangað? Spekúlantarnir í Sjálfstæðis-
flokknum. Hverjir hafa beitzt fyrir hin-
um miklu húsbyggingum þar og heimt-
að til þess aukinn innflutning? Sömu
msnn. Hverjir hafa talað í bæjar-
stjórninni gegn tillögu J. J. um byggða-
leyfi? Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins. Hverjir hafa heimtað helmingi
meira atvinnubótafé úr ríkissjóði?
Reykjavíkurþingmenn Sjálfstæðis-
flokksins. Þannig mætti telja nær ó-
endanlega. _______ _____
3. Mbl. segir í gærmorgun um sam-
bandsmálið: „Öll tortryggni gagnvart
flokknum eða einstaklingum veikir og
sundrar og getur haft illar afleiðingar".
Höfundur þessarar Mbl.-greinar hefir
sennilega ekki lesið grein, sem Sigurður
Kristjánsson alþm. skrifaði um þetta
mál í Þjóðina í vetur, en þar eru
Framsóknarflokknum bornar hinar
ómaklegustu getgátur. Sú grein getur
verið til viðvörunar um það, hvernig
ekki eigi að skrifa um sambandsmálið,
ef það er ekki beinlínis tilætlunin að
vekja um málið deilur og rifrildi.
x—y.
Á tlmum franska skáldsins Voltaire
var hinn mesti fjandskapur milli
Breta og Frakka. Einu sinni var Vol-
taire á gangi á fjölfarinni götu í
London og varð þá fyrir aðsúg manna,
sem voru sérstaklega fjandsamlegir
Frökkum og létu sumir sér þau orð
um munn fara, að réttast vceri að
stytta honum aldur. Voltaire lét sem
ekkert vœri, en þegar honum fundust
samt horfurnar orðnar mjög ískyggi-
legar snéri hann sér að mönnunum,
sem veittu honum eftirför og voru þá
orðnir mjög fjölmennir, og hrópaði:
„Heiðursmenn! Þið viljið hengja mig,
sökum þess að ég er franskur. En hafa
ekki örlögin refsað mér nógu mikið
með því að láta mig ekki vera Eng-
lending."
Þessi fyndni Voltaire hafði svo góð
áhrif að hann slapp óskaddaður og
munaði minnstu að hann yrði ekki
borinn burt á gullstól.
* * *
Sá atburður gerðist nýlega á veit-
ingahúsi í Paris að kœrustupör ein
veðjuðu um það, að þau gætu kysst
hvort annaö 10 þús. kossa á 10 klst.
Þessi athöfn fór fram nokkrum dögum
síðar að viðstöddum tilheyrandi vott-
um. Fyrsta klukkutimann kysstust þau
yflr 2000 kossa, annan 1150, þriðja 775
og á fjórða tímanum gáfust þau upp.
Stúlkunni lá við yfirliði og pilturinn
hafði fengið varakrampa.
* * *
Það hefir munað minnstu að mað-
ur nokkur í Budapest, John Kolvec
að nafni, hafi ekki verið kviksettur
þrisvar sinnum. Tvívegis hefir hann
verið kistulagður en vaknaði aftur til
tTR BÆMCTI
Skemmtiför.
Félag ungra Framsóknarmanna í
Reykjavík efnir til skemmtiferðar í
Þjórsárdal um næstu helgi, ef veður
leyfir. Verður lagt af stað á laugar-
dag. Eystra verða meöal annars skoð-
aðar bæjarrústirnar, sem grafnar hafa
verið úr jörðu. Þátttöku þarf að til-
kynna sem fyrst í síma 2353.
Gjöf til Alþingis.
Frá Wilhelm Jörgensen, úrsmiði í
Kaupmannahöfn, sem fæddur er hér í
Reykjavík og dvaldi hér sín bernskuár,
hefir Alþingi borizt stundaklukka að
gjöf, dýrgripur hinn mesti, sem vottur
þess hlýleika, er Jörgensen ber til
landsins, þar sem hann fæddist.
Klukka þessi er tæpur metri á hæð og
svipuð á breidd, úr rauðum marmara
og prýdd logagylltum bronsemyndum.
Hún er talin vera frá 18. öld, og er
smíðuð í Frakklandi. Mun hún áður
hafa verið í höllinni Chambord. Þess-
ari klukku verður nú komið fyrir í
salarkynnum Alþingis, og mun hún þar
sóma sér hið bezta.
Páll ísólfsson,
tónskáld, hefir verið ráðinn orgel-
leikari í dómkirkjunni.
Íþróttahátíð
hefir íþróttaráð Reykjavíkur ákveðið
að halda síðasta sunnudag í þessum
mánuði, hinn 27. ágúst. Munu stjórn-
ir íþróttafélaganna í bænum og
íþróttamenn, sem komnir eru yfir fer-
tugt keppa í boðhlaupi, þenna dag.
Keppa félagsstjórnirnar um nýstárlega
bók með útskornum kápusDjöldum úr
tré, er stórstúkan hefir gefið til þess.
Eru í henni hundrað blöð, á að skrá-
setja í hana sigurvegarana meðan bók-
in endist, en að hundrað árum liðnum
fellur hún í eign þjóðminjasafnsins.
Gömlu íþróttamennirnir keppa á sama
hátt um stóran útskorinn skjöld, sem
síðan á að festa á minni skildi með
nöfnum sigurvegaranna, en að hundrað
árum liðnum verður hann fullsettur
op- gengur þá til þjóðminjasafnsins.
Báða gripina hefir Marteinn Guð-
mundsson listamaður skorið út.
Arandorra Star,
enskt skemmtiferðaskip var hér í
gær. Voru með því hátt á þriðja
hundrað farþegar, flest Englendingar.
Fóru sumir þeirra austur yfir fjall, að
Þingvöllum, Grýtu, Gullfossi og Geysi.
Skipið fór héðan til Noregs.
Meistaramót í. S. í.
hefst að lokinni íþróttahátíðinni og
j stendur yfir dagana 28.—31. ágúst. Að
venju verður keppt í öllum hinum
helztu íþróttagreinum.
Kristinn Ármannsson
menntaskólakennari var fulltrúi ís-
lands á alþjóðafundi menntaskóla-
kennara, er háður var í Kaupmanna-
höfn nýlega. Slíkir fundir eru árlega
haldnir og eitt árið í hverju landi.
Fundur þessi var háður í Kristjáns-
borgarhöll. Aðalviðfangsefni hans og
umræðuefni var áhrif kennslu og
námsgreina á hugarfar nemendanna.
Lúffrasveit Reykjavíkur
lék á Austurvelli í gærkvöldi nokkur
lög undir stjórn A. Klahn.
Jón Magnússon,
cand. fil, hefir verið löggiltur skjala-
þýðandi og dómtúikur úr sænsku.
lífsins á seinustu stundu. f þriðja sinn,
þegar hann var talinn dáinn, var hann
til vonar og vara látinn liggja i rúmi
sínu í þrjú dœgur, og sagan endurtók
sig: Hann vaknaði til lífsins aftur á
þriðja dœgri.
* * *
Nýlega hefir ítalskur fugla/rœðingur
látið rannsaka flughraða svölunnar
m. a. með þeim hœtti, að flytja eina
ungamóðir 126 km. frá hreiðrinu. Hún
flaug þessa vegalengd á 43 % mínútu
eða sem svarar 174 km. á klukkutíma.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
borgara, sem veit um afbrot eða
yfirtroðslur af þessu tagi, að
kæra slíkt, alveg eins og hvern
annan þjófnað og lögbrot. Og
hart er það fyrir lögregluna, þar
sem hún er starfandi, að láta
svona látlaus og síendurtekin
lagabrot eiga sér stað.
* * * *
Sjálfsagt er athugandi, og
eftirlitið trúlega mjög erfitt án
þess, hvort ekki sé rétt að banna
eða takmarka rétt manna til að
skjóta sjófugla. Fáum færir það
verulegar tekjur, að minsta kosti
þeim, sem ekki fara út fyrir
ramma laganna. Og sjálfsagt
gætu flestir fundið sér arðvæn-
legri starfa um vor- og sumar-
tímann heldur en að elta fugla
á bátum í fjörðum inni og með
ströndum fram. í þessu sam-
bandi rifjast upp sú slysahætta,
sem þessu fylgir, og er skemmst
að minnast, að fjórir menn
drukknuðu eða fórust á annan
hátt við fuglaveiðar á sjó úti
'síðastliðið ár.
Samband fslands
o«' IBaiiinorkiii*.
(Framh. af 2. síðu)
manns. Maðurinn, sem ekki
vinnur, og maðurinn, sem í
skjóli rangra þjóðskipulags-
hátta vill njóta hárra launa til
persónulegrar eyðslu, eru að
grafa undan frelsi þjóðarinnar.
Iðjuleysið og eyðslan eru verstu
tálsnörur frelsisins, og þessu
hvorutveggju fylgir líka marg-
vísleg siðferðileg spilling. Þess
vegna verður fátæk þjóð eins og
íslendingar að gera strangar
kröfur til allra þegna sinna um
vinnusemi og sparnað. í þeim
efnum hefir skapazt geigvænlegt
ástand seinustu áratugina og
það er sannarlega hryggilegt að
heyra um það raddir, að við höf-
um ekki efni á því að fara sjálfir
með utanríkismálin, meðan lítill
hluti þjóðarinnar eyðir marg-
faldri þeirri upphæð til alls
óþarfrar — og iðulega siðspill-
andi — persónulegrar eyðslu.
Þ. Þ.
Ógnaröldin á Spáni
(Framh. af 1. síðu)
orsakað það, að viðreisnin á at-
vinnulífi og fjárhagi landsins
eftir eyðileggingu borgarastyrj-
aldarinnar, hefir orðið að setja
á hakanum og er því fullkomið
vandræðaástand ríkjandi í þeim
efnum.
Skrif stof a
Framsóknarflokksins
í Reykjavík ,
er á Lindargötu ID
Framsóknarmenn utan af landi, sem
koma til Reykjavíkur, ættu alltaf að
koma á skrifstofuna, þegar þeir geta
komið því við. Það er nauðsynlegt
fyrir flokksstarfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði að hafa
samband við sem flesta flokksmenn
utan af landi.
Heimilið.
(Framh. af 3. síöu)
og hagnýta ýmsa nýbreytni á
starfssviði sínu, ef vel væri á
haldið. Til þess, að vel mætti
takast, þyrftu þessar hvíldarvik-
ur að fara fram á skipulegan
hátt, ná til húsmæðranna al-
mennt og vera árlegur þáttur í
lífi þeirra. Um fyrirkomulag
þeirra mætti ef til vill hafa
nokkra hliðsjón af bændanám-
skeiðum. En þótt ekki bresti
samtök og stjórn um þessi mál,
mun einn erfiður þröskuldur í
vegi: Hvaða líkur eru til þess,
að þorri húsmæðra, eldri og
yngri, geti hagnýtt árlega náms-
og skemmtidvöl í vikutíma á
skólasetrum landsins, jafnvel
þótt kostnaðarlaus væri? Eiga
þær yfirleitt heimangengt, þótt
ekki sé til lengri fjarvistar en
þetta?
Því miður mun það miklum
vafa undirorpið, að húsmæður
gætu hagnýtt slíka dvöl sem
þessa, og í mörgum tilfellum
raunar vitað, að þær gætu það
alls ekki, ef þeim er á enga lund
séð fyrir aðstoð, sem erfiðast
eiga um heimanför. Ef frá er
tekin eðlileg samhjálp ná-
grannafólks innan sveitar, sé
ég eina leið til úrlausnar i þessu
efni. Hvort hún er framkvæm-
anleg, eða aðeins svííandi
draumsjón, veltur að öllu leyti á
því, hverjir eru sterkastir eðlis-
þættir í fari íslendinga. í kaup-
stöðum landsins er allmikið af
myndarlegum stúlkum, sem af
einum eða öðrum ástæðum eru,
að minnsta kosti vissa tíma árs,
engum störfum bundnar. Margt
þessara stúlkna eru dætur vel
efnaðs fólks og sinna sumar,
kannske flestar, skólanámi að
vetrinum. Og nú vil ég varpa
þessari spurningu fram:
Væri óhugsandi, að einhver
góður og þróttmikill félagsskap-
ur, sem hefði atorkuríku for-
ystufólki á að skipa, til dæmis
samband kvenfélaganna, því
væri málið nákomnast, gæti
komið af stað hreyfingu um það
meðal þessara ungu stúlkna að
rétta sveitakonunum hjálpar-
hönd, svo að þær gætu einstöku
sinnum fengið einhver frí frá
sinni vinnu á borð við það, sem
svo ótal margir aðrir fá, er þess
hafa þó minni þörf? Og væri
þetta ekki ein hin áhrifamesta
leið til þess að eyða fávíslegum
kala og togstreitu milli sveita
og kaupstaða? Yrði þetta hinum
ungu stúlkum sjálfum ekki
reglulegt æfintýri, gæfi það
þeim ekki nýja gleði, nýja þekk-
ingu á öðrum stéttum þjóðfé-
lagsins, jafnvel nýja lífsskoðun?
Ef leggja má til grundvallar
erlenda reynslu, er líklegast, að
hér megi vel takast, ef einu
sinni er unnt að koma af stað
hreyfingu í þessa átt. Hér er
ekki rúm til að bera fram mörg
rök því áliti til stuðnings. Við
hitt verður látið sitja að benda
á, að þess eru mýmörg dæmi er-
lendis, þar sem svipuð hreyfing
hefir rutt sér til rúms og hér
hefir verið drepið á, að ungar
stúlkur, oft dætur stóriðjuhölda,
embættismanna og ríkisbubba,
hafa beinlínis strokið að heim-
an til þess að gerast um stund
svínahirðar, hænsnahirðar eða
eldastúlkur einhvers staðar úti
á landsbyggðinni, ef foreldrarn-
ir hafa litið á þetta sem niður-
lægingu og óhæfu og viljað
banna þeim frelsi og sjálfræði í
þessum efnum.
Annar þröskuldur yrði senni-
lega í vegi þessarar fram-
kvæmdar. Þeir, sem ættu að
verða hjálparinnar aðnjótandi,
myndu sumir hverjir vantreysta
ókunnugum og lítt lífsreyndum
stúlkum til beirra verka, sem
þær þyrftu að leysa af hendi. Á
því myndi áreiðanlega bera fyrst
í stað. En hitt þykist ég þó gerla
sjá, að mikill þorri stúlkna, sem
á annað borð gæfu sig fram til
slíks, sem hér hefir verið rætt
um, muni búa yfir þeim þrótti,
þeirri atorku, líkamlegri oj and-
legri, sem þyrfti til að yfirstíga
þau vandkvæði, sem þær yrðu
vissulega að glíma við. Jóh.
Tónlístarskólínn
tekur til starfa 15. sept. n. k. og
á sama tíma hefst I. Blocflautu-
námskeiff skólans.
Umsóknir sendist fyrir 1. sept.
til Páls ísólfssonar skólastjóra,
sem veitir allar nánari upplýs-
ingar.
TÓNLISTARFÉLAGIÐ.
100 William McLeod Raine: Flóttamaðurinn frá Texas 191
— En þér er annars kannske alveg
sama um þetta.
— Ég hlusta.
— Þú trúir aðeins því, sem þú villt
trúa. Þú ert þrjózkur kjáni. En einu
ættir þá þó að trúa: Clem var ekki á
skemmtiferðalagi til Sjömílnakofans,
hann átti brýnt erindi.
— Hvað var það?
— Hann sagði það ekki berum orðum,
en hann er einn af þeim mönnum, sem
eiga erfitt með að halda nokkru fylli-
lega leyndu. Hann eirir ekki nema
hann sé að gorta. Hann sagðist ekki
hafa i hyggju að bíða eftir því að lögin
ynnu á þér, heldur gæti endirinn kom-
ið þegar minnát vonum varði.
— Hvað hefir hann í hyggju, spurði
Glint hranalega.
— Ég gizka aðeins á það, en ég skal
segja þér hvað hann sagði, svo þú getir
sjálfur leitt getum að því. Hann sagði
að þú myndir halda að Missouri-áin
hefði flætt yfir land þitt.
Taylor vissi að skeyti hans hafði
hæft og Prescott svall móður að baki
þessum grimmilegu en ákveðnu augum
og hörðu, veðurbörðu andlitinu.
Það var sonur hans, sem kvað upp
úr með óttann.
— Guð komi til! Ef hann sprengdi
stífluna! Hann hefir ef til vill þegar
gert það, bætti hann við og bar ótt á.
Stráknum datt það sama í hug og
föður hans, að hver sá, sem staddur
væri fyrir neðan Vox-gljúfrin, er það
bæri að höndum, myndi drukkna.
— Nei, sagði Taylor.
— Nei? Við hvað átt þú, spurði Clint.
— Ég á við, að hann hafi ekki gert
það ennþá. Hann hefir fyrst þurft að
fara heim til að hyggja að sárinu.
— Hvaða sári? Særði Steve hann?
— Nei, sagði Taylor og brosti sínu
bitra brosi.
— Það er ein sagan enn, sem þú
munt ekki trúa. Ég skaut á hann.
— Þú? Hvers vegna?
— Við skulum alveg sleppa því, það
þýðir hvort sem er ekkert að tala um
það. Ég er þegar orðinn nógu mikill
lygari, eftir því sem þú heldúr. En
hvaða bellibrögð, sem Oakland svo hefir
haft í huga, þá er þeim frestað. Þú
getur treyst því, ef þessi Dean hefir
ekki tekið til framkvæmda upp á eigin
reikning, en það virtíst ekki vera
meiningin.
— Þetta er það flóknasta, sem ég hefi
heyrt á æfi minni, sagði Bob og gretti
sig, — nema þetta sé allt saman þvað-
ur úr þér. Clem skýtur á þig og Steve,
síðan skýtur þú á Clem, en áður hafið
þið verið mestu mátar, og hann hefir
“GAMLA BÍÓ—”***11—”
ireíða-
stjórínn
Fyrirtaks mynd.
Aðalhlutverk leika:
SPENCER TRACY,
LUISE RAINER,
sem allir muna eftir úr
myndunum ,,Sjómannalíf“
og „Gott land“.
“0‘*.°-*0— NÝJA BÍÓ—
MILJÓÁ
í BOÐI
(I’ll give a million!)
Bráðsmellin a m e r í s k
skemmtimynd frá Fox, er
sýnir á frumlega fyndinn
hátt sögu um miljónamær-
ing, sem leiddist auðæfin
go gerðist flakkari.
Aðalhlutv. leika:
WARMER BAXTER,
MARJORIE WEAVER
og
PETER LORRE.
Bændur!
Munið að hafa ávalt itin ágætu
Sjaf nar- júgursmyrsl
við Iiendina.
Fást hjá haupfélögum og' kanpmöniinni
uin land allt.
Byrgðír í Reykjavík hjá
Samband ísl. samvínnuíélaga
Sími 1080.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
f heildsölu hjá
Samband f si. sam vinnuf élaga
Sími 1080.
rrr.— -
COMMAIN vmoiNU aoAHEmia^ fDER
/ 20 Slk. fiigf f Pakkínn f ffj 1 Ivþstar '|yKR.|*50^^ [TmgM Á‘&ÍÍJ)j' 1/ ÍJl
Fást / ölfum ver. WfttXmKkm — rr
„Dettifoss(<
fer á laugardagskvöld 19. ágúst
vestur og norffur.
Aukahöfn: Húsavík.
c ftusiorsir. ó simi 5552.Opió J
Annast kaup og sölu verffbréfa.
ÞÉR ættuff að reyna kolin og
koksið frá
M.s. Dronning
Alexandrine
fer mánudaginn 21. þ. m. kl. 6
síffd. til Kaupmannahafnar (um
Vestmannaeyjar og Thorshavn).
Þar eff allt farþegarúm er upp-
tekiff meff skipinu, verffa þeir,
sem fengiff hafa loforð fyrir fari,
aff sækja farseffla í dag og í síff-
asta lagi fyrir hádegi á morgun.
Annars verffa farseðlamir seldir
öffrum.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sími 3025.
Kolaverzlnn
Sigurðar Olafssonar.
Símar 1360 og 1933.
Vinni& ötullega fyrir
Títnann.