Tíminn - 31.08.1939, Qupperneq 4

Tíminn - 31.08.1939, Qupperneq 4
400 TÍMIM, fimmtndagiim 31. ágást 1939 100. blað Yfir landamærin 1. Árni frá Múla heldur áfram óráðsruglinu um launalækkun og skattalækkun hjá ríkinu. Öllum sæmi- lega greindum mönnum mun ljóst, að það er raunverulega enginn lækkun heildarlaunanna að lækka laun hjá ríkinu og lækka síðan ríkisskattana, sem því svarar. Skattalækkunin þýðir ekki annað en launahækkun hjá þeim, sem skattana greiða. Afleiðing þessara ráðstafana yrði því sú, að sú launa- lækkun, sem yrði hjá ríkinu, kæmi fram sem launahækkun hjá öðrum launaþegum og þýddi því aukið mis- rétti og ranglæti í launamálum, þar sem laun ýmsra einkafyrirtækja og hálfopinberra stofnana eru nú þegar miklu hærri en hjá ríkinu. Þetta hlýtur Árna að vera ljóst, en hann hefir há- launaða húsbændur í Pisksölusamlag- inu og er það mannlegt að þeir vilji láta Árna skrifa um lækkun skattanna. En hversu margar og langar greinar, sem Árni skrifar, mun það ekki hagga þeim vilja míkils þorra þjóðarinnar, að lækka eigi háu launin allsstaðar og það verður ekki gert öðruvísi en með sköttum. 2. Árni lepur upp þá marghröktu Gróusögu, að atvinnufyrirtækin beri sig ekki vegna skatta. Það er furðu- legt, að maður, sem á sæti á þingi, skuli gera sig uppvísan að slíkri ósann- sögli, því ekki verður honum ætlað slíkt þekkingarleysi, að hann viti ekki, að ríkisskattar leggist aðeins á hreinan arð atvinnufyrirtækja og eignir þeirra umfram skuldir. 3. Fullkomið ósamræmi kemur fram i frásögnum Vísis og Mbl. um Rauðku- málið. Mbl. tekur afstöðu á móti brölti kommúnista og æsingafundinum á Siglufirði, en Vísir ber blak af þeim á allan hátt. Samt þykist blaðið vera hreint af öllu samneyti við kommún- ista og læzt fyllast heilagri reiði, ef minnst er á samstarf íhaldsmanna og kommúnista á Norðfirði og í Hafnar- firði. 4. Blað, sem nefnist „Frjáls verzlun", getur talizt áreiðanlegt, ef menn reyna að leggja þann skilning í skrif þess, að þau séu alltaf í mótsögn við sann- leikann. Þannig segir blaðið nýlega, „að enginn maður muni hafa verið þjóðinni óþarfari en núv. viðskipta- málaráðherra með stefnu sinni í verzl- un og fjármálum undanfarið". Blaðið á hér við, að takmarkaður hefir verið innflutningur til landsins á undan- förnum árum, en það er einmitt sú stefna, sem reynzt hefir fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar gagnlegust á undanfömum árum. x+y. DÆCDJDJiŒl í Bofors í Svíþjóð er stœrsta vopna- verlcsmiðjan á Norðurlöndum. Hún hefir um 6000 starfsmenn og eru 400 þeirra lœrðir verkfrœðingar. Hversu stórkostlega framleiðsla verk- smiðjunnar hefir aukizt á síðari árum má marka á því, að 1933 nam sala hennar 24,5 milj. kr., en 1937 166 milj. kr.. Á síðastliðnu ári ókst framleiðsla hennar þó hlutfallslega mest. Fjöl- mörg ríki skipta við Bofors verksmiðj- una. Um tíma átti þýzki vopnahöldurinn Krupp talsvert mikið í Boforsverk- smiðjunni, en hann varð að selja þessa eign sína fyrir fjórum árum, sökum nýrra laga, sem þá voru sett í Svíþjóð. Eignir hans voru keyptar af Axel Wenner-Gren óg ýmsum sænskum fjáraflamönnum. Axel Wenner-Gren hefir nýlega gengizt fyrir að byggð yrði herflugvélaverksmiðja við Troll- hdttan og er hún tekin til starfa. Er henni œtlað að geta framleitt nóg af varnarflugvélum handa Norðurlöndum. * * * í ýmsum greinum stendur Bofors- <JR BÆNUM SíffsumarmótiS viff Þrastalund. Samkoma Framsóknarmanna í Ár- nessýslu og í Reykjavík við Þrastalund á sunnudaginn verður sett klukkan 1. Eins og áður hefir verið auglýst fara þar fram ræðuhöld, söngur, glíma, reip- tog og loks dans í Þrastalundi. Allar veitingar, sem fólk æskir fást í Þrasta- lundi. — Héðan úr Reykjavik verður farið bæði á laugardagskvöld kl. 6 og á sunnudagsmorgun kl. 10. Hægt verð- ur að sjá þeim fyrir ódýru fari, sem láta vita um þátttöku sína í dag eða á morgun. Á móti slíkum pöntunum er tekið á afgreiðslu Tímans og í síma 2353. Jafnframt þarf fólk að taka fram, hvort það ætlar á laugardagskvöldið eða að sunnudagsmorgni. Þeim, sem jafnhliða skemmtuninni ætla að huga að berjum, er ráðlegra að fara á laug- ardaginn. Á laugardagskvöldið verður ýmiskonar gleðskapur eystra, varðeld- ur og fleira, ef veður leyfir. Félagrsdómurtnn tekur til starfa að nýju á mánu- daginn kemur og tekur þá meðal ann- ars deilumál Hafnfirðinga til dóms- úrskurðar. Umferffaleiffbeiningar. í næstu viku verður efnt til allum- fangsmikilla umferðarleiðbeininga og umferðarkennslu með líkum brag og gert var í fyrra sumar, meðal annars í samvinnu við barnaskólastofnanir bæjarins. í mörgum greinum verður þessari starfsemi hagað svipað og í fyrra, en þó ýms nýmæli upptekin. Eitt af þeim er að í Rafskinnu Gunn- ars Bachmanns verða sýndar leiðbein- ingamyndir um umferð. Kjötverfflagsnefnd auglýsti í fyrradag verðlækkun á kindakjöti. Nemur hún 20 aurum á hverju kílógrammi. Kjöt það, sem bor- izt hefir á markaðinn síðan sumar- slátrunin hófst að þessu sinni, þykir góð vara og dilkamir holdmiklir eftir því, sem um er að gera um þetta leyti sumars. Gestir f bænum. Jóhann Skaptason sýslumaður á Patreksfirði, Jón Emil Guðjónsson kennari frá Kýrunnarstöðum, Sveinn Sæmundsson á Hvanneyri, Þorsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði. Framsóknarf ólk! Fjölmennið á síðsumarssamkomuna í Þrastalundi. Upplýsingar um sam- komuna fáið þið á afgreiðslu Tímans eða í síma 2353. Farið austur verður mjög ódýrt. verksmiðjan í allra fremstu röð. Það er jafnvel talið, að hún framleiði öeztu loftvarnarfallbyssur heimsins. Þœr geta sent sjálfkrafa 120—150 skot- um á minútu. Verksmiðjan hefir einn- ig hlotið mikla frœgð fyrir tvíhleypta fallbyssutegund, sem skýtur sjálfkrafa 400 skotum á mínútu. Einna mesta furðu liefir þó vakið fallbyssutegund, sem œtluð er til varnar gegn skrið- drekum. Hún getur skotið í gegnum 3 cm. þykka stálplötu, sem er í 1000 m. fjarlœgð. Skrifstofa Framsóknarflokksins í Reykjavík er á Lindargötu 1D Framsóknarmenn utan af landi, sem koma til Reykja- víkur, ættu alltaf að koma á skrifstofuna, þegar þeir geta komið því við. Það er nauðsynlegt fyrir flokks- starfsemina, og skrifstof- unni er mjög mikils virði að hafa samband við sem flesta flokksmenn utan af landi. Sumarstarisemí Barnavinafélagsins (Framh. af 3. siðu) annarsstaðar en á götunni, þar sem bæði er óhollusta og hætta af umferðinni. Á dagheimilun- um læra börnin að umgangast hvert annað kurteislega, þau eru látin leika sér saman, læra saman og reynt að vekja áhuga þeirra fyrir vinnu og góðri hegð- un. Margir foreldrar finna og virða þau góðu áhrif, sem vera barnanna á þessum uppeldis- stofnunum hefir á þau, bæði andlega og- lílcamlega, og vilja hafa þau þar sem lengst. Mikið vantar þó enn á það, að almennur skilningur sé á starf- semi „Sumargjafar“ og barna- heimilanna og sérstaklega vant- ar þó félagið fjármagn til frek- ari framkvæmda, t. d. til þess að reisa eina „borgina" í viðbót, þar sem þau börn, sem enn leika sér í rykinu á götunni, gætu fengið athvarf og aðhlynningu góðra manna. „Sumargjöf“ hefir nú fengið í þjónustu sína unga stúlku, ungfrú Bryndísi Zoéga, sem hefir lært rekstur dagheim- ila og barnaheimila erlendis, og má vænta góðs af starfi hennar í framtíðinni. Bæjarbúar mega áreiðanlega vera „Sumargjöf“ þakklátir íyrir starf hennar og ættu að styðja það meira en gert hefir verið hingað til. í borg eins og Reykjavík, er mikil þörf á stofnunum, sem dagheimilum „Sumargjafar“, til þess að ann- ast börnin, sem enga leikvelli hafa og enga umsjá manna, sem hefir tíma eða getu til að beina hugum þeirra að því, sem gott er og gagnlegt. E. B. Herstyrkur Póllands (Framh. af 1. síðu) komnar varnarfallbyssur gegn skriðdrekum og í Póllandi. Full- víst þykir, að hin innlenda fram- leiðsla muni íullnægja þörfum hersins á styrjaldartímum, ef undanskildir eru skriðdrekar og flugvélar. Hergagnaverksmiðjurnar eru aðallega í Mið- og Suður-Pól- landi og munu því ekki falla í hendur innrásarhersins fyrr en heita má að vörn pólska hersins sé orðin vonlaus. í landinu er nóg af kolum, olíu og öllum hráefnum til iðnaðar- ins, öðrum en járni. Verður að flytja inn talsvert af járnmálmi, og yrði að flytja hann frá Rúm- eníu, ef Þjóðverjar hindruðu flutninga um Danzig og pólska ganginn. Eins og sjá má af framan- greindu, er pólski herinn að mörgu leyti öflugur og vel settur og ekki þarf að efast um einingu og samhug meðal þjóðarinnar, þar sem öllum er ljóst, að frelsi hennar er í húfi og langvar- andi undirokun hefir kennt henni að meta frelsið. En hins er líka að gæta, að þýzki herinn er enn öflugri og sameiginleg landamæri Þýzkalands og Pól- lands exu 1800 km. löng. Þess vegna er hætt við því, að Þjóð- verjum heppnist fljótt að mynda skörð í varnarlínu pólska hers- ins. 214 William McLeod Raine: heyrði ég skot frá kofanum og þessi Barnett kom þjótandi þaðan út, eins og óður maður. — Með riffil? — Já, með riffil. Klárinn hans Steve prjónaði, og satt að segja fældust öll hrossin. Baggahesturinn þaut af stað og klárinn minn reif af mér taumana og geystist gegn um runnana á brekku- brúninni. — Svo þú tókst alls ekki þátt í skot- hríðinni? — Jú. Það gerði ég sannarlega. Ég skaut á þennan náunga, undir eins og ég gat komið skammbyssunni minni við. Það var áður en klárinn varð vitlaus. — Hæfðir þú hann? — Wagner læknir segir að ég hafi ekki hæft hann, þar sem hann hafi fengið kúluna aftan frá. — En þú sást Barnett skjóta á Steve? — Já, herra. Skot hans lyfti Steve bókstaflega úr hnakknum. — Skaut Steve nokkuð sjálfur? — Hann hafði ekkert ráðrúm til þess, skotið hæfði hann áður en hann kom því við. — Hvað skeði svo? — Spurðu mig ekki að því, sagði Peters ólundarlega. — Eins og ég sagði varð klárinn minn vitlaus, ég datt af baki, stakkst á höfuðið niður í lækinn Flóttamaðurinn frá Texas 215 og vissi ekki neitt um neitt góða stund. Þegar ég raknaði við aftur, hélt ég upp með læknum og mætti þessum Bar- nett, þar sem hann kom niður með læknum. Ég skaut á hann aftur og hann henti rifflinum. Við fórum svo þangað, sem Steve lá og okkur kom saman um, að ég yrði að hraða mér til bæjar, sem mest ég mætti, til að sækja hjálp handa Steve. — Hvers vegna tókst þú ekki þennan mann með þér? — Einhver þurfti að líta eftir Steve og það var nú það, sem mestu máli skipti. Ég varð einhvernvegin viss um að hann myndi ekki gera Steve neitt illt meir, og að hann myndi bíða hjá honum og hjúkra honum þangað til við kæmum. Það varð annaðhvort að hrökkva eða stökkva, ég hafði engan tíma tíl að vera smámunasamur. — Dug breytti rétt, sagði húsbóndi hans ákveðinn. Peters leit þakklátum augum til hans. — Það kann að vera, að ég hafi far- ið asnalega að, en þetta kom mér nú svona fyrir sjónir. Auðvitað vissi ég að ég tapaöi tveim þrem þúsundum doll- ara, við að taka náungann ekki með mér. — Þú tapar því ekki öllu, Dug. Ef nokkur verðlaun verða greidd, skalt þú Skíp brennur Seint á mánudagskvöldið kom eldur upp í vélskipinu Unni frá Akureyri, sem þá var statt út af Rauðunúpum á leið austur fyrir Melrakkasléttu. Eldurinn kom upp í vélarúm- inu og reyndu skipverjar að kæfa hann, en fengu ekki ráðið við hann. Forðuðu þeir sér þá í nótabátunum, en skipið eyði- lagðist. Skipverjum var bjargað úr nótabátunum um borð í vél- skipið Stellu, en björgunarskipið Sæbjörg, sem kvatt var á vett- vang um nóttina, flutti þá til Siglufjarðar á þriðjudaginn. Skipið, sem brann, var 36 smá- lestir að stærð, eign Karls Frið- rikssonar og Jakobs Jónssonar á Akureyri. Sítrónusaga Vísís Vísir birtir í gær einhverjar tröllasögur um það, að talsvert lægra verð sé nú á sítrónum en síðastliöið voi' og þakkar hann það „frílistanum“. Sannleikur- inn er hinsvegar þessi: Síðastliðinn vetur setti verð- lagsnefndin hámarksálagningu á sítrónur, en fyrirmæli nefnd- arinnar giltu aðeins tiltekinn tíma, þar sem tæpast var gert ráð fyrir stöðugum innflutningi á þessari vöru. í vor fengu kaupmenn að flytja inn sítrónur. Verðlags- nefndin fylgdist þá með verð- laginu, en þótti að athuguðu máli rétt að leyfa kaupmönnum hina háu álagningu, sem þeir höfðu þá, þar sem sítrónurnar voru mikið skemmdar og þeir urðu fyrir talsverðu tapi vegna þess. Kaupmönnum var vel kunnugt um þessa athugun nefndarinnar, Kaupmenn hafa nýlega feng- ið sítrónur aftur og er nú eng- um skemmdum til að dreifa. Máttu þeir því telja víst, að verðlagsnefnd myndi nú beita sömu fyrirmælum og síðastlið- inn vetur, og hefir þeim því þótt æskilegra að verða fyrri til og hafa álagninguna svipaða því, sem nefndin fyrirskipaði þá. Síðan hefir þótt hentugt að búa þá sögu til, að verðlækkunin, sem orðið hefir frá því í vor, sé frílistanum að þakka! Hefir þá verið gefin skýring á tröllasögu Vísis um verðlækkun vegna „frílistans". Tvær athugasemdir. “~~“GAML BÍÓ*”—°—°~~ Söngur móðurínnar Áhrifamikil og hrífandi fögur söngmynd. Aðalhlutvekin leika og syngja: BENJAMINO GIGLI og MARIA CEBOTARI. °—°—■ NÝJA BÍÓ-~ Tvífarinn Dr. Clítterhouse Óvenju spennandi og sér- | kennileg sakamálakvik- | mynd frá Wamer Bros. Aðalhlutv. leika: Edward G. Robinson, Claire Trevor, Humphrey Bogart o. fl. | Börn, yngri en 16 ára, fá j ekki aðgang. Vöruaígreiðsla Raítækj aeinkasölunnar verður lokuð eftir hádegi fimmtudag og föstud. í þessari viku sökum vörutalningar Raftækjaeínkasala ríkisins. Garðyrkjumaður seni er vanur gróðurhúsaræktun óskast frá miðjum október næstkomandi. Umsóknir ásamt kaupkröfu og meðmælum sendist Tímanum auðkennt »Garðyrkjumaður«. Lærið að synda! Sundnámskeið í Sundhöllinni hefjast að nýju mánudaginn 4. sept. Þátttakendur gefi sig fram í dag og á morgun kl. 9—11 f. hád. og 2—4 e. hád. Upp- lýsingar á sömu tímum í síma 4059. Sundhöll Reykjavikur. Allt á sama stað. Hefí opnað 1. fl. hús fyrír bílasmurníngu. Allar iegundir bíla smurðir. Allt á sama stað. í 83. tölublaði Tímans þ. á. í „krossgötu“-klausu er rætt um laxgengd í ám í Þistilfirði. í henni segir: „Gekk þá (fyrir fimm árum) alls enginn lax í sumar þeirra, s. s. Svalbarðsá, Sandá og Hölkná, en lítilsháttar í aðrar t.d. Laxá og Hafralónsá." í öllum þessum ám, nema Laxá, hefir laxveiði verið stunduð ár- lega, mest með ádrætti, þar til Fiskiræktar- og veiðifélag Þistil- fjarðar var stofnað. í Svalbarðsá hefir veiðin verið nokkuð árviss og við Sandá var enskur stang- 1 arveiðimaður eitt sumar og veiddi rúma 100 laxa. Það er rétt, að hér var byrjað á laxaklaki fyrir fimm árum í mjög smáum stíl, en aukið mik- ið síðan, og í fyrrasumar varð vart við smálax í Laxá, þar sem ekki hefir verið lax vart í manna minnum. í sumar hafa ekki sést nema örfáir laxar enn, og er það að vonum, því að sökum hinna langvarandi þurka er áin ekki nema eins og lítill lækur að vatnsmagni. Nú í sumar hefir nokkuð verið stunduð stanga- veiði í öllum ánum, nema Laxá. Laxárdal í ágúst 1939. Eggert Ólafsson. í 76. tbl. Tímans, 4. júlí þ. á„ er sagt frá aðalfundi Vatnafé- lags Rangæinga í fréttapistli „Á krossgötum." Er þar sagt, meðal annars: „Tvær eða þrjár jarðir við Markarfljót, sem taldar eru í nokkurri hættu vegna þessara framkvæmda, hefir ríkið keypt, auk þess sem það hefir heimild til þess að kaupa jörðina Tjarn- ir í Austur-Landeyjum." Ríkið hefir þegar keypt þrjár ' jarðir hér í hreppi, sem settar eru í hættu með fyrirhleðslunni, sem eru Brúnir, Tjarnir I. og Tjarnir II. Um það, að ríkið hafi heimild til að kaupa jörð í Aust- ur-Landeyjum er mér ókunnugt H.f. Egill Vilhjálmsson Laugavegi 118 — Sími 1717. TOIMATAR verða seldir mcð lækkulSu verði næslu dag’a. HÚSMÆÐIJR, íioliA yður þessa verðlækkun og kaupið t o m a t a . Ráðskonu vantar viff heimavistarbarnaskólann í Hveragerði í Ölfusi frá 1. október n. k. Skrifleg tilboff sendist til Guffjóns A. Signrðssonar, Gufu- dal í Ölfusi, sem fyrst. VtMMÍð ötullcfia ftjrir Tímunn. og þar er engin jörð, er heitir Tjarnir. Þetta bið ég, að sé leið- rétt. Tjörnum undir Eyjafjöllum, 11. júlí 1939. Einar Jónsson. Tíminn leiðréttir að sjálfsögðu góðfúslega þessar tvær frásagn- arskekkjur og biður velvirðingar á þeim. Stafar hin fyrri af mis- sögn heimildarmanns, en sú síð- ari af vöntun á kunnleika á hreppamörkum þar eystra. Er blaðið þakklátt þeim, er á skekkjurnar hafa bent. Núðfn austur um land til Sigluf jarffar laugardag 2. sept. kl. 9 síffd. Pantaffir farsefflar óskast sótt- ir og flutningi skilaff á morgun.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.