Tíminn - 09.09.1939, Qupperneq 4
416
104. hlað
TtMlM, laMgarðagiiin 9. sept. 1939
Yfir landamæría
1. Kommúnistar segja, að J. J. sé illa
við að menn geti orðið langskólagengn-
ir. Fremur er þetta líkt öíugmælum.
Allir helztu leiðtogar kommúnista i
Reykjavík hafa gefizt upp við háskóla-
nám, sennilega fyrir skort á greind og
elju. J. J. hefir aftur á móti unnið
meira en allir kommúnistar í landinu
að bæta menntaskólann í Reykjavík,
koma á fót menntaskóla á Akureyri og
byggingu yfir háskóla íslands.
2. Kommúnistablaðið ráðleggur pólsku
stjórninni 1 gær að koma á lýðræði í
landinu. Hvers vegna gefur það ekki
Stalin samskonar heilræði?
3. Kommúnistablaðið segir í gær,
þegar það er að reyna að afsaka samn-
ing Rússa við Þjóðverja, sem kom
styrjöldinni af stað: „Englandi og
Frakklandi stóð eftir þýzk-rússneska
sáttmálann sem áður, opið að gera
traust varnarbandalag við Sovétríkin,
því í ekki-árásarsáttmálanum var ekk-
ert, sem hindraði slíkt". í kommún-
istablaðinu 25. f. m. er skýrt frá því,
að 4. gr. sáttmálans sé svohljóðandi:
„Hvorugur samningsaðili má tala þátt
í neinu ríkjasambandi, er beint eða
óbeint er stefnt gegn öðrum aðilanum."
Geta menn nokkuð markað málafærslu
kommúnistablaðsins á þessu tvennu,
sem birzt hefir í blaðinu með hálfs-
mánaðar millibili.
4. Kommúnistablaðið hefir sérstaka
kvennasíðu í gær og er aðaltilgangur
hennar sá, að reyna að æsa kvenfólkið
gegn ríkisstjórninni! Þar segir m. a.:
„Það mætti líka benda á, að svo vitað
sé, hefir ekki verið gerð ein einasta
ráðstöfun til að verja fólkið í bæjum
á íslandi gegn gaseitrun, sprengjuárás
né öðrum þeim ógnum, sem styrjöld
leiðir nú yfir þjóðirnar." Er þetta lítið
dæmi af mörgum, sem sýnir hversu
langt kommúnistablaðið gengur í til-
raunum sínum til lýðæsinga.
5. Kommúnistablaðið birtir í fyrradag
langt ávarp, sem það eignar kommún-
istaflokknum í Berlín, en hann er löngu
hættur að vera til. í þessu ávarpi segir,
að „ekki-árásarsamningurinn milli So-
vétstjórnarinnar og Hitlersstjórnarinn-
ar sé sigur fyrir friðarstefnu Sovét-
stjórnarinnar". Þýzkur verkalýður er
nú þegar farinn að færa þessum „sigri
friðarstefnu Sovétríkjanna" blóðfómir
sínar, svo þess vegna er það meira en
ótrúlegt, að nokkur þýzkur verkamað-
ur muni rita undir þetta plagg. Sann-
leikurinn mun líka sá, að þetta er
heimaframleiðsla Alþjóðasambands
kommúnista í Moskva, sem það hefir
dreift út til kommúnistaflokkanna í
þeim tilgangi að reyna að réttlæta
samning Stalins við þýzka nazismann.
Er það ný sönnun fyrir undirlægju-
hætti íslenzku kommúnistanna við
Moskvavaldið, hversu hátíðlega þeir
taka þessari heimaframleiðslu Alþjóða-
sambandsins og látast trúa því, að hún
sé verk þýzkra kommúnista!
x+y.
Fímm pýzk skíp
(Framh. af 1. siðu)
og fleira, og Hamm, sem er
stærst, 5800 smálestir brúttó, er
var á leið til Ástralíu með ýmsar
þýzkar iðnaðarvörur og stykkja-
vörur, glervörur, vefnaðarvörur,
kemiskar vörur og fleira. Saman-
lögð brúttó smálestatala þessara
þýzku skipa er 17.500. Nettó eru
þau 10907 smálestir að stærð.
Loks liggur norska vöruflutn-
ingaskipið Sirehei einnig á ytri
höfninni, en það hefir eingöngu
járngrýti innan borðs og var á
leið til Englands frá Nýfundna-
landi.
tJR BÆMM
Fiðluhljómleikar Telmányis
í Gamla Bíó í fyrrakvöld vöktu al-
mennan fögnuð og óblandna hrifningu
allra áheyrenda, enda er hann einn
hinn allra snjallasti erlendra hljóm-
listarmanna, er hingað hafa komið, og
heimsfrægur listamaður. Frú Telmá-
nyi lék undir fiðluleik manns síns. —
Munu þeir, sem í Gamla Bíó voru á
fimmtudagskvöldið, vera Tónlistarfé-
laginu þakklátir fyrir að hafa átt þátt
í þvi, að þessir óvanalegu gestir komu
hingað til lands.
Kappleikur
í knattspyrnu var háður í gærkvöldi
milli starfsmanna í ísafoldarprent-
smiðju og í Edduhúsi við Lindargötu.
Sigruðu Eddumenn með 2:0.
Skólavist á Jakobsberg.
Samband samvinnufélaganna sænsku
veitir 1—2 ungum, íslenzkum sam-
vinnumönnum ókeypis vetrardvöl í
skólanum í Jakobsberg í vetur, svo sem
var síðastliðið skólaár. Umsóknir um
skólavist þessa á að senda skólastjór-
anum á Jakobsberg, en afrit sendist
til Sambands íslenzkra samvinnufélaga.
Skólinn hefur starfsemi sína 1. nóvem-
ber.
Kvöldskóli K. F. U. M.
Kristilegt félag ungra manna starf-
rækir í vetur sem endra nær kvöldskóla
og hefst kennsla 1. október. Námsgrein-
arnar eru íslenzka, enska, danska,
kristin fræði, reikningur og bókfærsla.
Ennfremur er stúlkum veitt tilsögn í
handavinnu og í framhaldsdeild er
kennd þýzka. Kvöldskóli K. F. U. M.
hefir starfað í seytján vetur. Skóla-
stjóri er nú Sigurður Skúlason magist-
er. —
Handavinnunámskeið
Heimilisiðnaðarfélagsins.
Heimilisiðnaðarfélag íslands efnir til
handavinnunámskeiða í vetur hér í
bænum, líkt og verið hefir að undan-
förnu. Námskeiðin standa i tvo mánuði.
Eru þau í tvennu lagi, klukkan 2—6
fyrir ungar stúlkur og á kvöldin kl. 8
—10 fyrir húsmæður. Kennslunní verð-
ur hagað svipað og undanfarna vetur
og gefur Guðrún Pétursdóttir allar
fyllri upplýsingar. Fyrsta námskeiðið
á að hefjast 6. október.
Innbrot
hefir verið framið í skóverzlun Þórð-
ar Péturssonar í Bankastræti og hnupl-
að þar skófatnaði. Verknaður þessi var
framinn á föstudagsnóttina.
Kvikmyndahúsin.
Nýja Bíó hefir sýnt þessa viku enska
stórmynd, sem byggist á æfisögu
Victoriu miklu Englandsdrottningar. Er
myndin mjög vel leikin og fróðleg, þótt
ekki sé hún að öilu leytl sögulega rétt.
— Gamla Bíó sýnir ameríska mynd,
Ástmey ræningjans. Aðalhlutverkin
leika Jeanette McDonald og Nelson
Eddy. Ber söngur þeirra myndina uppi,
en efni hennar er ekki mikilvægt.
Frá styrjöldfnni.
(Framh. af 1. síðu)
flytja enskt herlið frá Englandi
til Frakklands. Þjóðverjar flytja
stöðugt herlið til vesturlanda-
mæranna.
Á SJÓNUM virðast Englend-
ingar hafa alger yfirráð. Þýzk
kaupför leita til hafna í hlut-
lausum löndum og virðast sigl-
ingar til Þýzkalands fullkom-
lega stöðvaðar.
ÞJÓÐVERJAR virðast hafa
hafið ótakmarkaðan kafbáta-
hernað líkt og í heimsstyrjöld-
inni. Hafa þýzkir kafbátar þeg-
ar grandað þremur enskum
kaupförum. Ensk herskip eru að
elta kafbátana uppi og þykir
víst, að þau hafi a. m. k. sökkt
tveimur.
Húsmæðradeild
Kvcnnaskólans.
Vegna forfalla geta 2 stúlkur
komist að á fögra mánaða nám-
skeiðið, sem hefst 1. október n. k.
FORSTÖÐUKONAN.
Jarðhítamálið
í Bískupstungum
Framh. af 2. síðu)
ingum, sem hreppurinn kann að
byggja þarna í framtíðinni.
Eftir eru þá 10y4 sek.l. eða rúm-
lega % hlutar hversins. Og það
er þetta, sem selt var.
Þá hefir því verið mjög á-
kveðið haldið fram, að þessi
jarðhiti hafi verið seldur fyrir
„smánarverð“. Það getur vel
verið, að 18 þús. krónur hafi
verið of lágt verð fyrir jörðina
og hverinn; ég ætla ekki að
leggja neinn fullnaðardóm á
það. En það mun láta nærri, að
jarðhitinn hafi verið seldur fyr-
ir 13000—13500 krónur, eða ná-
lægt 1300 kr. hver sek.l. Með
sama verði ætti jarðhitinn á
Syðri-Reykjum að vera 46—52
þús. kr. virði, og jarðhitinn í
Laugarási 130 þús. krónur. Þá
jörð keypti Grímsneslæknishér-
að fyrir 11 þús. kr. fyrir 18 árum,
með kúgildum og öllum húsum,
og þótti geypiverð. Ég hygg að
nærri láti, að hver sek.l. hafi þá
verið seldur þar fyrir 60—70 kr.
Ef ríkið keypti allan jarð-
hita hér í sveitinni, án nokk-
urs lands, og lagt væri til grund-
vallar þetta margumrædda
„smánarverð", gæti ég trúað, að
hann myndi kosta nærri y2 mil-
jón króna. Hvað kos.tar jarðhit-
inn á öllu landinu með sama
verði?
Framhald.
ENSKAR FLUGVÉLAR hafa
gert aðra árás á þýzk herskipa-
lægi við Kílarskurðinn og telja
Bretar að þrjú þýzk herskip hafi
eyðilagzt að meira og minna leyti
í þessum árásum. Þá halda Bret-
ar áf'ram að varpa flugmiðum
yfir Þýzkalarid. Þeir hafa enn
ekki orðið fyrir neinu tjóni í
þessum flugferðum.
SUÐUR-AFRÍKA OG ÍRAK
hafa lýst Þýzkalandi stríð á
hendur. írak er ekki sambands-
ríki Bretlands, en náin sam-
vinna hefir verið milli þessara
ríkja. í írak eru miklar olíu-
námur, sem eru mjög mikils-
verðar fyrir Breta.
MEÐAL ARABA virðast Eng-
lendingar eiga vaxandi fylgi að
fagna.
FORRÁÐAMENN TÉKKA er-
lendis, m. a. Benes fyrv. forseti
og Jan Masaryk fyrv, sendiherra
í London, hafa lýst fullu fylgi
sínu við bandamenn og mynda
tékkneskir flóttamenn víða sér-
stakar herdeildir.
DANIR eru hættir fiskiveiðum
í Norðursjó, sökum ótta við tund-
urdufl. í gær rakst danskt fiski-
skip á tundurdufl skammt frá
Esbjerg og sökk það á svip-
stundu. Skipshöfninni varð ekki
bjargað.
230 William McLeod Raine:
inni frá Teatherhead. Ég stanzaði hjá
Mumper og keypti fáeina vindilstubba.
Þér hefir sést yfir eitthvað smávegis,
Clem, eftir því sem ég heyrði þar.
— Hvað átt þú við?
— Það er í sambandi við piltinn, sem
þú hittir á klárnum þínum. Hvers vegna
tókst þú hann ekki meðan þú hafðir
hann á milli handanna? Eða er svo
komið fyrir þér, að þrjú þúsund doll-
arar geti ekki vakið neinn áhuga hjá
þér?
Oakland settist upp í rúminu.
— Hvern andskotann áttu við, lags-
maður?
— Það hefði verið búhnykkur hjá þér
að afhenda Walsh þennan Webb Bar-
nett og krefjast verðlaunanna, en mér
skilst að þú hafir verið á annarri skoð-
un.
— Barnett! Hver er hann?
— Náunginn, sem rændi bankann í
Texas. Þar bjóða þeir í hann þrjú þús-
und dollara. Vissir þú ekki að þessi vin-
ur þinn, hrossaþjófurinn, var Barnett?
Það var ómögulegt að sjá á augum
Deans hvað honum bjó í huga. Oak-
Inad gat sér þess til, að Dean væri að
hæða hann, en hann gat ekki vitað
það með vissu.
— Ég veit það ekki ennþá, sagði
Flóttamaðurinn frá Texas 231
hann. — Hvernig veizt þú, að hann er
Barnett?
— Steve náði honum, en svo tókst
honum að sleppa, eftir því sem Owen
Martin fulltrúi Steves segir. Nú eru
nokkrir löggæzlumenn á hælum hon-
um.
Oakland bölvaði heitt og innilega.
Fyrst hafði hann látið þennan náunga
kjafta sig frá þrjú þúsund dollurum,
síðan leika á sig og hræða sig að lokum
burt með valdi. Það var mjög sennilegt
að einhver af sporhundunum næði
þessum Barnett og heimtaði launin,
þrjú þúsund dollara, sem Clem hafði
svo að segja haft í vasanum í nokkrar
klukkustundir, ef hann hefði bara vit-
að af því.
XXV. KAFLI.
Taylor dvaldi hjá vinnumönnunum á
Quarter Circle XY. Þeir voru sjaldnast
allir við í einu. Jörðin sjálf var geysi
stór, og auk þess var víðáttumikið svæði
leigt af Indíánum. Kúrekarnir urðu því
að fara langar leiðir og sumir þeirra
voru stundum burtu dögum saman.
í hálfan annan dag dvöldu þeir á
bænum Owen Martin og aðstoðarmaður
hans, Spike Malloy. Þeir settust til
borðs með Dug Peters, Buck Timmings
og fanganum.
NÝJA BÍÓ'
‘*****GAML BÍÓ—
Ástmey
ræníngjans
Gullfalleg og hrífandi
stórmynd, eftir óperu Puc-
cinis „The girl of the gol-
den West“.
Aðalhlutverk leikur og
syngur:
JEANETTE MC DONALD
og
NELSON EDDY.
Víctoría míkla
Englands-
drottning
Söguleg stórmynd, sem
er mikilfengleg lýsing á
hinni löngu og viðburða-
ríku stjórnaræfi Viktoríu ^
drottningar, og jafnframt Í
lýsir hún einhverri aðdá- i
unarverðustu ástarsögu i
veraldarinnar.
Jarðræktin
gengur með
jötunafli
ef notuð er
tr aktorolí an Jötunn V. 0.
frá
Olíuverzlun Islands h.f.
Daga og nætur
Daga og nætur sigla síld-
veiðiskipin og leita að hinum
dýrmæta fiski, síldinni. Stund-
um finna þau „torfur“, stórar
og þéttar. Daga og nætur hugsa
menn um, hvernig þeir geti kom-
ið sem bezt ár sinni fyrir borð
um afkomu sína.
Menn leggja að sér á margvís-
legan hátt, með líkamlegri
vinnu og andlegri áreynslu, allt
í þeirri góðu trú og með þeim
lofsverða hugsunarhætti, að á-
rangurinn megi verða sem glæsi-
legastur á allan hátt. Aö sjálf-
sögðu gengur þetta allt á ýmsa
vegu,stundum heldur illa, stund-
um í meðallagi, stundum vel,
jafnvei ágætlega. En allur þessi
árangur lýtur einu sameigin-
legu og sígildu lögmáli, að: „Eigi
er minni vandi að gæta fengins
fjár, en afla þess“. Og nú kom-
um við að kjarna þessa máls.
Allt of margir dugnaðar- og
drengskaparmenn eyða veruleg-
um hluta af árangri áhættu-
samrar og erfiðrar atvinnu í
nautn áfengra drykkja, sjálfum
sér til likams- og sálartjóns,
skyldmennum sínum og öðrum
vinum til óendanlegs hugarang-
urs og sorgar, og allt of oft til
varanlegs efnahags- og sálar-
tjóns. Er jafnvel ekki dæma-
laust, að vitað sé um ennþá
hræðilegri afleiðingar hins sí-
vaxandi drykkjuskapar meðal
þjóðar vorrar.
Nú eru alvörutímar. Þér ís-
lenzkir sjómenn, sem eruð bjarg-
vættur þjóðarinnar á öllum
tímum, en þó helzt á hættutím-
um, sem þeim, er vér nú lifum
á. Einmitt þér, ættuð, vegna
karlmennsku yðar og dreng-
skapar, að taka upp baráttu
gegn hinni ríkjandi tízku, þeirri
auvirðilegu en hættulegu tízku,
að fínt þyki og virðulegt, að
neyta áfengis við meira eða
minna hátíðleg tækifæri, bæði í
einkalífi og við opinber tæki-
færi. Þvílík reginheimska að
halda, að menn geti aðeins
verið glaðir og skemmt sér vel
með því að hafa áfengi um hönd.
Allir hugsandi og eftirtökusam-
ir menn vita mæta vel, hvers-
konar „skemmtanir" það eru
og hvernig þær enda, og gaman
væri við hentugt tækifæri, að
segja frá nokkrum „leikþáttum”
á sumum þessara „skemmtana“,
og að nefna nöfn sumra helztu
„leikendanna".
Ef til vill fækkar bráðlega
þessum „skemmtunum", þannig
að umtalað tækifæri til þess að
ræða þær nákvæmar, komi ekki,
og væri það bezt og gagnlegast.
Umfram allt: ákveðið og
sterkt almenningsálit gegn á-
fengisnautninni. Þorst.
itofnþing
Stofnþing óháðs verklýðssambands, Landssambands ís-
lenzkra stéttarfélaga, verður sett í Reykjavík 11. nóvember n. k.
Til stofnþingsins boðar stjórn Bandalags stéttarfélaganna í
umboði eftirtaldra stofnfélaga:
Sveinafélags múrara, Reykjavík.
Félags járniðnaðarmanna, Rvík.
Sveinafélags veggfóðrara, Rvík.
Verklýðsfélags Borgarness.
Sjómannafélags Akureyrar.
Verkamannafél. Hlífar, Hafnarfirði.
Verkakvennafél. Brynju, Siglufirði.
Sveinafélags skipasmiða, Reykjavík.
Félags bifvélavirkja, Reykjavík.
A. S. B., Reykjavík.
Verklýðsfélags Norðfjarðar.
Félags blikksmiða, Reykjavík.
Verkmannafél. Þróttar, Siglufirði.
Sveinafélags húsgagnasmiða, Rvík.
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar, Reykjavík.
Reykjavík, 7. september 1939.
í stjórn Bandalags stéttarfélaganna
Ingólfur Einarsson. Hermann Guðmundss. Guðjón Benediktss.
Héðinn Valdimarsson. Guðmundur Ó. Guðmundsson.
Ólafur H. Guðmundsson. Helgi Sigurðsson.
I. s. I.
K. R. K.
KnaUspyrnukappleikír
með hraðkeppnííyrírkomulagí
FRAM-VALUR-K. R. - VÍKINGIR
verða háðir á fþróttavellinum á 11101*^1111
(suiind.) kl. 2 milli gamalreyndra knatt-
spyrniimanna úr öllum félöguiium.
Einstök keppni! Góð hlátursstnnd!
Allir út á vÖll!
Til auglýsenda.
Tíminn er gefinn út í fleiri eintökum
en nokkurt annað blað á íslandi. Gildi
almennra auglýsinga er í hlutfalli við
þann fjölda manna, er les þœr. Tíminn er
öruggasta boðleiðin til flestra neytend-
anna í landinu. — Þeir, sem vilja kynna
vörur sínar sem flestum, auglýsa þœr
þess vegna í Tímanum