Tíminn - 21.09.1939, Blaðsíða 2
434
TÓHiVIV. fimmtmlaginn 21. sept. 1939
109. blað
Tyenmkonar
trnarbrögð
‘gtmmn
Fimtudaginn 21. sept.
Fjármálastjórn og
irammístaða flokka
Stjórnmálaritstjóri Vísis, Árni
frá Múla, hafði um sinn verið
eins og manneskja, látið alvöru
tímanna hafa vit íyrir sér og
hvatt til samheldni um að leysa
þann vanda, sem að höndum
ber.
En í síðustu blöðum er engu
líkara en að hinn gamli Adam
hafi verið „klappaður upp“ af
sínum þakklátu en minna
þroskuðu áheyrendum.
Og þykist nú Árni frá Múla
vera þess um kominn að deila á
Framsóknarflokkinn fyrir fjár-
málastjórn hans á undanförn-
um árum, og leyfir sér jafn-
framt að vitna til „yfirburða",
sem leiðtogar Sjálfstæðisflokks-
ins eigi að búa yfir og hafi sýnt
um þessi mál.
Kemur það að litlu haldi fyr-
ir málstað Árna, þótt Jón Þor-
láksson gæti borgað dálítið af
skuldum landsins í ári þegar
tolltekjur ríkissjóðs fóru 100%
fram úr áætlun! Hitt skal viður-
kennt, að af Sjálfstæðismönn-
um var Jóni heitnum Þorláks-
syni bezt treystandi, og þó fór
svo fyrir honum, að tekjuhalli
var bæði seinni árin sem hann
fór með fjármálastjórnina.
Annars hendir það engan
mann með dómgreind, að ætla
sér að bera saman stjórnartíð
J. Þorl., sem átti sér stað i al-
mesta góðæri sem yfir landið
hefir gengið, og undanfarin ár,
þegar rönd hefir orðið að reisa
við halla þeim, sem skapaðist í
stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins
og Bændaflokksins, og jafn-
framt hefir yfirgengið markaðs-
tapið fyrir saltfiskinn, en ofan á
bættist röð aflatregðuára!
Árni frá Múla veit það vel, að
fjármálastjórn Eysteins Jóns-
sonar hefir verið svo fasthent,
að þjóðin hlustar ekki á söngl
hans um þessi mál. Enda ekki til
þess ætlazt, þar eð Vísir fer
skammt út fyrir þröngan hring
verzlunarfólksins í Reykjavík og
þeirra, sem áhuga hafa fyrir
vinnukonuauglýsingum.
En til þess að hjálpa Árna frá
Múla að átta sig á því, hve hjá-
róma hann er og hve falskt hann
syngur, þá er rétt að drepa á
nokkrar staðreyndir.
Síðasta árið, sem bræðings-
stjórnin fór með völd, árið 1934,
var hallinn á ríkisbúskapnum
1.4 milj., en verzlunarjöfnuður
óhagstæffur um 3.8 miljónir.
En síðasta árið sem Eysteinn
Jónsson fór með fjármálastjórn,
árið 1938, var tekjuafgangur
ríkissjóðs 1.7 miljónir, en verzl-
unarjöfnuðurinn hagstæffur um
8.6 miljónir. Mismunurinn er
mikill: Annarsvegar halli upp á
5,2 milj. Hinsvegar tekjuafgang-
ur upp á 10.3 milj. Raunveru-
legur mismunur þessara ára því
15.5 milj.
Þar að auki er þannig skilið
við, að góð afkoma ríkissjóðs er
vís árið, sem er að líða og ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins getur
rólegur unað við sitt. Er það ólik
aðkoma þeirri, sem var þegar
Eysteinn Jónsson tók við 1934.
Og þessi endaskipti á hlutun-
um eiga sér stað á sama tíma-
bilinu (1935—38), sem útflutn-
ingsverðmætið fyrir saltfisk
lækkar að meðaltali um 20 milj-
ónir króna á ári, miðað við það
sem átt hafði sér stað næstu 10
árin á undan!
En jafnhliða er lagt fram
jafnmikið fé á þessum þrem ár-
um til hverskonar tækja til þess
að bæta afkomumöguleikana,
eins og á tíu ára tímabilinu
næsta á undan.
Og allt tekst þetta þannig,
að skuldirnar við útlönd hækka
ekki, nema um lán það sem tekið
var til Sogsvirkjunarinnar.
Árni frá Múla væri nú viss
að halda því fram, að þetta
hefði allt orðið enn betra, ef
„hans flokkur“ hefði farið með
völd á þessum „erfiðu“ árum.
Það reyni ekki á kappann fyrr
en á hólminn sé komið!
Hugsast gæti, svona í fljótu
bragði, að einhverjir fengjust til
að trúa slíku. En því er ekki til
að dreifa. Og sönnunin er furðu
nærtæk og alveg óyggjandi.
Nægilegt væri í því efni að vísa
til fjármálatillaga Sjálfstæðis-
flokksins en það eru ennþá nær-
tækari rök.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
sem sé stjórnað. Reykjavíkur-
bæ, ríkasta bæjarfélagi lands-
ins, þar sem þriðjungur þjóðar-
innar býr og mestar tekjur falla
til af starfrækslu hins opinbera.
Og þetta hefir flokkurinn gert
einn og sjálfur, án nokkurrar
bræðings-íhlutunar annarra
flokka, og hann hefir haft þessa
stjórn frá fyrstu tíð, og því ekki
þurft að „bæta um“ eftir aðra.
Og hvernig hefir Sjálfstæðis-
flokknum svo farnast um þessa
fjármálastjórn?
í skemmstu máli á þá lund, að
hryggilegt er til að vita. Skuld
bæjarins við Landsbankann
mun vera komin á fjórðu miljón,
og óþægilega farið að styttast í
lánstraustinu þar. Sjúkrasam-
laginu skuldar bærinn stórfé, og
vátryggingarfélaginu Albingiu
mörg hundruð þúsund og ó-
greiddir reikningar liggja í
í haugum.
Sem sagt, fjármálastjórn bæj-
arins er að lenda í fullkomið
öngþveiti.
Væri nær fyrir þann flokk,
sem einn ber ábyrgð á fjárhags-
afkomu Reykjavíkurbæjar, að
hlýða á og taka til greina þær
tillögur, sem Framsóknarmenn
árum saman hafa borið fram til
bjargar í þessum málum, held-
ur en að eyða orku sinni í ann-
an eins munnsöfnuð og þann
sem stjórnmálaritstjóri Vísis
hefir verið með undanfarna
daga um Framsóknarmenn og
stjórn þeirra á ríkisfjárhag og
atvinnumálum þjóðarinnar.
En gott dæmi um hugkvæmni
Árna frá Múla, þegar til bjarg-
ráðanna kemur, er sú. tillaga
hans, að leggja nú niður inn-
flutningsnefndina, þá stofnun,
sem mestu hefir bjargað um að
halda fjárhag þjóðarinnar á
réttum kili og aldrei hefir verið
meiri þörf en nú, þegar vissa er
fyrir að verðlag allt á aðfluttri
vöru fer stórhækkandi, afurða-
birgðir, sem til eru í landinu að
miklu leyti bundnar fyrirfram-
samningum og þá með fyrir-
stríðsverðlagi, en allt óvíst um
markaði og verðlag á útflutn-
ingsvöru okkar í framtíð.
Nýlega er með góðu samkomu-
lagi allra flokka búið að skipa
útflutningsnefnd, til þess að
hafa hönd í bagga með afurða-
sölunni til annarra landa, og
mætti verða að því hin mesta
gagnsemi, en þó því aðeins að
jafnframt sé af innflutnings-
Veikin þekkist.
í fyrrahaust fann Ásgeir
Einarsson dýralæknir, að sjúk-
dómur sá, sem á vísindamáli er
kallaður paratuberculosis, var í
sauðfé i Breiðdalsvík. Þá undan-
farið höfðu borizt kvartanir
um, að fé þar dragist upp og
dræpist úr einhverjum kvilla,
sem bændur þar þekktu eigi.
Svipaðar kvartanir bárust víð-
ar að, t. d. frá Hólum í Hjalta-
dal og frá Hæli í Gnúpverja-
hreppi og hafði rannsóknarstofa
háskólans tekið að rannsaka
sjúkdóminn.
Sjúkdómur þessi hafði til
þessa verið óþekktur hér á landi
og var strax augljóst mál, að
hann hafði borizt til landsins
með karakúlfénu.
Effli veikinnar og
sjúkdómslýsing:
Hér verður aðeins lauslega
rætt um eðli þessarar veiki og
sjúkdómseinkenni, þar eð Guð-
mundur Gíslason, læknir, er nú
að rita ítarlegan bækling um
þessa veiki, sem mun verða
sendur til allra bænda á þeim
svæðum, þar sem garnaveikinn-
ar hefir orðið vart.
Baktería orsakar sjúkdóminn.
Hin svokallaða Johnes-veiki
er all algengur og vel þekktur
sjúkdómur í nautgripum er-
lendis t. d. í Bretlandi, en er
mun sjaldgæfari í sauðfé. Þótt
sama bakteríutegund orsaki
sjúkdóminn bæði i nautgripum
og sauðfé, þá álíta ýmsir er-
lendir vísindamenn, að nokkur
annar bakteríustofn orsaki veik-
ina í sauðfé en í nautgripum og
Oft má á götum Reykjavíkur
líta hóp karla og kenna, sem
flytja smáræður, syngja sálma
og leika á hljóðfæri. Ræður þessa
fólks eru sjaldan bornar uppi
af djúpri speki eða orðsins list.
Þær eru ákaflega einföld og
frómleg játning þess, að þetta
fólk hafi fundið Jesú, að Jesú
hafi lifað og dáið fyrir syndir
mannanna, að hver, sem vilji,
megi koma til hans og öðlast ei-
lífa sælu þessa heims og annars.
Yfir þessum samkomum hvílir
enginn ljómi. Þær hafa ekkert
það við sig, sem dregur vegfar-
endur að í lotningu og hrifningu.
Þvert á móti virðist flestum tal
þessa fólks bera vott um órök-
vísan og barnalegan hugsanafer-
il og barnalega trú. Hitt dylst
ekki, að því er þetta fullkomin
og heilög alvara. Það trúir því,
eins og hverri annarri staðreynd,
nefnd höfð sterk tök á því að
hemja nú innflutninginn, svo
aðeins verði keyptar brýnar
nauðsynjar, og þá í hlutfalli við
fjárhagsgetu. Mætti svo tiltak-
ast, meðan allar aðrar þjóðir
herða að sér og sýna hina mestu
sjálfsafneitun, og margar þeirra
verða að fórna lífi og limum, að
við legðum okkur það fram um
hverskonar sjálfsafneitun, að
viðskiptahagur okkar við aðrar
þjóðir færi fremur batnandi en
versnandi, ekki meiri skilamenn
en við höfum verið á undanförn-
um árum.
En tillaga Árna frá Múla er
að sleppa nú beizlinu fram af
innflutningnum, byrgja niður
innflutningsnefnd og selja hvaða
stríðsspekulant sem væri sjálf-
dæmi um það, hvaða vörur
reiddar yrðu til landsins, fyrir
það óvissa og að því er allt bend-
ir til mjög svo takmarkaða út-
flutningsverðmæti sem til fellst!
En fjármálastjórn flokks síns
á höfuðstað landsins hefir Árni
vísast aldrei hugsað út í. Þess
vegna álpast hann nú út í það
að láta hafa sig til að fara að
„kveða“ um fjármálastjórn og
frammistöðu flokka.
Vilji hann halda því áfram,
stendur ekki á Framsóknar-
mönnum. En ætla mætti að ann-
að væri þarfara, eins og á stend-
ur.
séu líkur fyrir því að nautgripir
sýkist ekki af sauðfé undir
venjulegum náttúruskilyrðum.
Engin vissa er þó fyrir þessu.
Veikin lýsir sér sem langvinn
uppdráttarsýki. Virðist féð
ganga lengi með sjúkdóminn
áður en það drepst, oftast
meira en árlangt. Sér fyrst lengi
vel ekkert á ytra útliti kindar-
innar, þótt hún gangi með veik-
ina. Síðan fer hún að megrast,
verður úfin í háralagi og ó-
hreystileg. Að lokum verður
kindin holdlaus með öllu og
drepst. Oft fá kindur skitu-
köst meðan þær ganga með
þessa veiki.
Séu innýfli úr garnaveikri
kind skoðuð, eftir að veikin er
komin á all hátt stig, sézt að
garnmörseitlarnir eru sumir
bólgnir og brúnleitir á lit og
stærri eða minni kaflar af
görnunum, einkum mjógirninu,
eru bólgnir. Þessir spilltu garna-
kaflar eru oft mjög þverhrukk-
óttir á að líta og þarmavegg-
irnir mjög þykkir. Þessar garn-
ir er ómögulegt að rekja, án þess
að þær slitni ótal sinnum.
Sjúkdómur þessi er með öllu
ólæknandi, en enginn veit með
vissu, hvort skepnum getur
batnað aftur, eftir að þær hafa
tekið þessa veiki. En víst er um,
að þeim batnar ekki eftir að
veikin hefir komizt á hátt stig.
Þessi sjúkdómur er ekki talinn
drepa mörg prósent af sauðfé
erlendis, en er talinn skæðari í
nautgripum. Hér er reynslan sú,
að féð okkar er mjög næmt fyr-
ir þessum sjúkdómi. Á þeim bæj-
um, sem veikin kom fyrst á, þ. e.
5 árum áður en rannsókn hófst
að til sé eilíft líf og eilíf sæla og
að eina leiðin, til að hljóta þetta
hnoss sé, að lauga sig í blóði
lambsins. Og það á enga ósk
heitari en þá, að aðrir megi fara
að dæmi þess, frelsast frá hinum
syndum spillta heimi og njóta
þeirrar sælu, sem það sjálft nýt-
ur.
Þótt þessi málflutningur virð-
ist furðulegur frá sjónarhóli
rökrænnar skynsemi, þá felst
þar þó meira að baki heldur en
virðast kann í fljótu bragði.
Þarna er að verki afl, sem með
öllum mönnum býr og það er
hamingjuþráin. Þráin — sem
öllu lifandi er ásköpuð — að láta
sér líða vel. Og sú þrá er nátengd
voninni um það, að lifa eilíflega.
Hvatir þessa fólks eru því af
eðlilegum og heilbrigðum rótum
runnar, þótt ofvaxið sé skynsem-
inni að firina, hvernig það hefir
öðlazt sína bjargföstu vissu.
En hér er einnig til annar
flokkur manna, sem í vissum
skilningi má vel nefna trúflokk.
Það eru kommúnistar. Þeir eru
að vísu gersamleg andstaða
hinna. Heimur þeirra er skyn-
heimurinn og utan hans er ekk-
ert til í þeirra augum. Þeir neita
tilveru annars lífs af jafnmikilli
sannfæringu og þeir fyrrnefndu
játa hana. Þeir segja: Stað-
reyndirnar einar viðurkennum
við. Við neitum tilveru þess, sem
ekki verður skynjað, mælt eða
vegið. Nú væri sízt ástæða til að
fordæma slíka lífsskoðun, því
að það er einkamál manna, hvort
þeir játa eða neita yfirskilvitleg-
um fyrirbærum. En þá verður
þess jafnframt að krefjast af
slíkum mönnum, að staðreynd-
irnar séu þeim heilagar, að þeir
trúi augum og eyrum. Reynslan
sýnir, að þessu er þveröfugt far-
ið. Þeir virða augljósar stað-
reyndir svo lítils, að þeir trúa
þvert ofan í þær. Og trú sína
gegn staðreyndum verja þeir
með ofstækisfullum og heiftúð-
ugum vaðli, .fjandsamlegum
skynsemi hvers heilvita manns.
Þeir hafa flækt sig í kennisetn-
ingum, sem Karl Marx er aðal-
höfundur að. Hann og fylgjend-
ur hans héldu því fram, að þró-
un þjóðfélagsins færi eftir viss-
um lögmálum, sem væru jafn
ófrávíkjanleg og til dæmis fall-
lögmálið. Og þeir þóttust í höf-
síðastliðinn vetur, var helming-
ur til tveir þriðju hlutar fjársins
dautt eða sjúkt af völdum þess-
arar veiki.
Lyf er þekkt, kallað „johnin“,
sem hægt er að nota til þess að
ganga úr skugga um hvort
skepna sé sýkt af þessari veiki.
Er það gert með svokallaðri húð-
prófun, sem framkvæmd er á
svipaðan hátt og þegar gerð er
berklaprófun á mönnum og
skepnum.
Sýkingin:
Garnaveikin er smitandi.
Bakteríur berast niður af sýkt-
um kindum með saurnum og
komist þær lifandi ofan í aðra
kind, getur sú kind sýkzt.
Sýklar þessir mynda ekki
spora og geta því ekki lifað mjög
lengi utan sjúklingsins Samt sem
áður eru þeir nokkuð lífseigir í
dimmu og raka, en þola sólskin
mjög skamma stund.
Reynsla okkar er sú, að lang-
mest sýkingarhætta sé í húsum
inni. Þegar sjúkar kindur eru í
húsi og fjármaðurinn gengur á
sömu skóm í króm, görðum og
heystæðum, þá ber hann sýkl-
ana á skóm sínum beint i heyið.
Sömuleiðis eru vatnsílát, sem fé
getur sparkað í, mjög hættuleg.
Það er ómögulegt um það að
segja með vissu, hvort fé geti
sýkzt í högum. Allt bendir til
þess að möguleiki sé fyrir haga-
smitun, einkum á túnum, í
kringum fjárhús, í þröngum
girðingarhólfum og nátthögum
og við girðingar, þar sem fé
liggur hópum saman. Aftur á
móti hlýtur hagasmitun út um
víðavang að vera næstum ó-
hugsanleg. Hvert sýkingartil-
felli hér á landi má rekja til
smitana í húsum.
Ráffstafanir af hálfu
ríkisvaldsins:
Strax og ríkisstjórnin fékk
vitneskju um þennan sjúkdóm í
uðdráttum hafa fundið þau lög-
mál. Samkvæmt kenningum
þeirra, átti alræði öreiganna að
taka við af auðvaldsskipulaginu
og þetta átti að fara fram með
byltingu. Þeir sögðu ennfremur,
að byltingin myndi hefjast, þar
sem tækniþróun auðvaldsskipu-
lagsins væri komin lengst. En
í jafnverulegu atriði rættist spá-
dómur þeirra ekki, því að eina
ríkið, sem reynt hefir að koma
á hjá sér marxistisku skipulagi
er Rússland. Þegar byltingin fór
þar fram, stóðu Rússar langt að
baki flestöllum þjóðum álfunnar
um framleiðsluháttu. Þrátt fyrir
það hafa kommúnistar hér og
annarsstaðar trúað því, aö
skipulag Rússa væri skipulag
framtíðarinnar og trú þeirra á
hinar marxistisku kenningar,
hefir smám saman færzt yfir í
það, að vera trú á Rússa. Lenin
og síðan Stalin, eru í þeirra aug-
urn hinn óskeikuli dómari. Trú
þeirra á þessa menn og verk
þeirra er jafn óbifanleg eins og
trú þeirra, sem nefndir voru í
upphafi, á almáttugan guð og
verk hans. Fyrirskipanir Stalins
eru þeim guðleg opinberun og
sá, sem rengir þær, er í þeirra
augum fífl. Þeir trúa því einnig,
að upp af skipulagi Rússa hafi
hafizt ný „heimsmenning", sem
aldrei hafi átt sinn líka í sög-
unni, og öll skáld og allir iista-
menn, sem ekki þekktu þá
menningu og urðu snortnir af
henni, séu lítils- eða einskisvirði.
Jafnframt því, að kommúnist-
ar hafa trúað á Rússa og allar
þeirra athafnir, hafa þeir fyrir-
litið flesta aðra. Rithöfundar
þeirra hér heima hafa talið sig
þess umkomna, að knésetja bæði
Breta og Frakka og heimska þá
fyrir flestar þeirra aðferðir. Og
Þjóðverjar hafa verið þeim í-
mynd hins vonda sjálfs, klædd
holdi og blóði.
Hinu hafa þeir enga athygli
veitt, að Rússar hafa ár frá ári
hvarflað frá því skipulagi, sem
þar var fyrst eftir byltinguna.
Þeim reyndist það um megn, að
taka kenningar marxista í þjón-
ustu veruleikans. Sæluríki
verkalýðsins, þar sem allir áttu
að sitja við sama borð, er fyrir
löngu undir lok liðið, hafi nokk-
urntíma tekizt að skapa það.
Þeir hafa í öllum aðalatriðum á
ný samið sig að hinu borgara-
lega skipulagi. Til dæmis áttu
launagreiðslur að vera sem jafn-
astar, svo að verkamaðurinn
bæri hið sama úr býtum og aðr-
ir. Það er nú viðurkennt, að
launagreiðslur eru þar fyrir
löngu komnar í sama horf og
fyrrahaust í byrjun nóvember-
mánaðar ritaði landbúnaðar-
ráðherra mér bréf þess efnis, að
mér væri falið að hafa yfirum-
sjón með því að fá rannsakaða
útbreiðslu þessara veiki hér á
landi, með aðstoð rannsóknar-
stofu háskólans og dýralækna
þeirra, sem gætu sinnt þessum
rannsóknum, og gera svo tillög-
ur til ríkisstjórnarinnar um,
hvað helst væri hægt að gera,
til þess að reyna að hindra
frekari útbreiðslu veikinnar og
vinna að útrýmingu hennar.
Þaff sem gert var síffastl. vetur:
Var þegar hafizt handa að
rannsaka útbreiðslu veikinnar.
Eitt fyrsta verkið var að reyna
að ganga úr skugga um, hve ein-
hlít rannsókn þessi reyndist, til
þess að ná úr sýkta fénu.
Reynslan var fyrst mjög glæsi-
leg eins og áður hefir verið skýrt
frá í blöðum, t. d. í Stóru-Más-
tungu, þar sem í einu húsi, sem
sextíu ær voru í, sem höfðu ver-
ið í því húsi frá því þær voru
lömb. Helmingur þeirra reynd-
ust veikar við rannsóknina. Var
þeim öllum slátrað og sáust
sjúkdómseinkenni í görnum
þeirra flestra. Hinar ærnar í
húsinu voru látnar lifa í rúman
mánuð þar á eftir. Voru þær þá
rannsakaðar aftur. Við þá rann-
sókn reyndust þær allar heil-
brigðar. Var þeim þá slátrað, til
þess að ganga úr skugga um,
hvort findust sjúkdómsein-
kenni í görnum nokkurra þeirra.
Sá ekkert á innýflum þeirra.
Síðar kom þó í ljós, að mjög
veikar kindur gátu sloppið í
gegn við rannsókn, án þess að
það kæmi í ljós, að þær væru
sjúkar. Oftast eru þær þó svo
aðfram komnar, að augljóst er
að þær eru ekki heilbrigðar, og
er þá hægt að lóga þeim. Samt
hefir það komið fyrir, að ær
hafa drepizt úr þessari veiki
með öðrum þjóðum. Yfirstétt-
inni átti gersamlega að útrýma.
Það hefir tekizt þannig, að nú
situr þar að völdum yfirstétt,
sem á fáa sína líka um harð-
stjórn, kúgun og grimmd. Þetta
virðist þó hafa kostað hina nýju
herra nokkur átök, því að það
er staðreynd, að flestallir hinir
gömlu bolshevikaforingjar hafa
annaðhvort verið drepnir eða
gerðir útlægir. Kommúnistar
hér og annarsstaðar hafa að
vísu reynt að skýra þetta svo,
að þeir hafi allt í einu tekið upp
á því, að gerast svikarar við sina
fyrri stefnu og hafi ætlað sér
að leggja öll sín fyrri verk í rúst-
ir. Þeim var meðal annars gefið
það að sök, að þeir hafi viljað
gerast vinveittir Þjóðverjum og
þá var slíkt nefnt landráð! Öll-
um öðrum en kommúnistum var
það lj óst, að það voru gömlu for-
ingjarnir, sem vildu halda við
upphaflegu stefnunni og ákær-
urnar á þá voru tylliákærur, til
að réttlæta það, að þeim væri
rutt úr vegi. Það er einnig öll-
um öðrum ljóst, að nú hafa
Rússar með Stalin í fararbroddi
stokkið yfir lýðræðisskipulagið
og beint yfir í faðm fasismans.
Þeir atburðir, sem hafa gerzt
nú undanfarið, sanna það svo
áþreifanlega, að fleiri vitna þarf
ekki við. í stað þess, að gömlu
foringjarnir vildu vingast við
Þjóðverja, er það Stalin og
fylgjendur hans, sem gera við þá
vináttusamning, gefa þeim
frjálsar hendur, til að sölsa und-
ir sig verndarlítil lönd í kring-
um sig — auðvitað gegn hæfi-
legri þóknun. Þeir hafa einnig
samið frið við Japani, sem voru
miklir vinir Þjóðverja, en erki-
fjendur Rússa. Þeir hafa tregð-
ast við að semja við Breta, sem
vildu vernda smáríkin gegn á-
rásum fasismans. Og nú hafa
þeir fyllt mælinn með því að
ráðast með her inn í Pólland.
Öll stóru orðin um íjandskap
þeirra í garð ofbeldisins og bar-
áttu þeirra gegn stríði og fas-
isma eru nú að engu orðin.
Spilaborgin er hrunin til grunna.
í stað þess að berjast við fas-
ismann, hafa þeir tekið hönd-
um saman við hann. í stað þess,
að vernda lýðveldið, hafa þeir
neitað að ganga í bandalag við
þær þjóðir, sem af fullri alvöru
vildu verja það. í stað þess, að
halda verndarhendi yfir smá-
þjóðunum, hafa þeir frá upp-
hafi látið aðfarir Þjóðverja af-
skiptalausar. í stað þess, að stilla
til friðar, hafa þeir á hinn
ódrengilegasta hátt brugðizt
stuttu eftir rannsóknina, en sem
betur fer eru þau dæmi ekki
mörg.
Tillögur mínar til ríkisstjórn-
arinnar voru þær, að féð á þeim
stöðum, þar sem veikinnar hefði
orðið vart og á svæðum þar í
kring yrði rannsakað, og á þann
hátt yrði reynt að komast út
fyrir alla útbreiðslu þessarar
veiki, og allt það fé, sem sjúkt
reyndist yrði skilyrðislaust
drepið strax.
Yrði á þennan hátt fyrst og
fremst reynt að stemma stigu
fyrir frekari útbreiðslu veikinn-
ar, unnið að því að draga úr
því tjóni, sem hlýzt af hinum
vaxandi fjárdauða af völdum
hennar og síðast væri þetta stórt
spor í áttina að útrýmingu veik-
innar. Ef reynslan sýndi svo að
nokkuð yrði ágengt í því efni,
væri sjálfsagt að taka þetta eins
föstum tökum og unnt væri og
gera allar skynsamlegar ráð-
stafanir, til þess að vinna að út-
rýmingu veikinnar, þótt það
tæki ef til vill nokkur ár.
Alls voru rannsakaðar síðastl.
vetur 29,690 kindur. Alls var
slátrað 1375 kindum vegna þess-
arar veiki. Voru þær flestar
veikar, en þó var nokkrum slátr-
að vegna tilrauna. Um 170 veik-
ar kindur voru látnar lifa og
einangraðar í. girðingarhólfum í
sumar, vegna þess að vor var
komið þegar þær voru rannsak-
aðar.
Útbreiðsla veikinnar reyndist
mun meiri en gert var ráð fyrir
í fyrstu.
Veikin hefir breiðst út frá
fimm stöðum, þar sem karakúl-
hrútar voru. Frá Hæli í Gnúp-
verjahreppi, frá Hólum í Hjalta-
dal, frá Krossavík í Vopnafirði,
frá Útnyrðingsstöðum á Héraði
og Selnesi í Breiðadalsvík. Hún
er lang mest útbreidd á Austur-
landi. Svæðið frá Berufirði og
að Lagarfljóti er meira og minna
(Framh. á 4. síOu)
Halldór Pálsson, ráðunautur
(^ariiaveikiii