Tíminn - 30.09.1939, Blaðsíða 4
452
TÍMDÍN, laiigardaginn 30. sept. 1939
113. blað
Yfiír landamœrin
1. Hættulegri verknað fyrir hlutleysi
landsins er tæpast hægt að hugsa sér
en þau skrif kommúnistablaðsins í
morgun, þar sem reyiit er að koma
þeirri skoðun á framfæri, að ríkis-
stjórnin hafi af undirlægjuhætti við
Breta sýnt vítaverða glópsku við kyrr-
setningu ensku flugvélarinnar. „Er rík-
isstjórnin svo húbundin af brezkum
hagsmunum, að hún vilji ekki fylgja
fram aiþjóðalögum og rétti á hendur
Bretum?" segir blaðið. Meðan ekkert
eftirlit er haft með slíkum skrifum,
verður naumast annað sagt en að hlut-
leysisins sé ekki eins vel gætt og skyldi.
2. Vísir reynir að halda því fram, að
Tíminn sé á móti öllum útgjaldalækk-
unum á ríkinu, sökum þess, að hann
vill ekki styðja hinar fáránlegu hug-
myndir íhaldsblaðanna um niðurlagn-
ingu Skipaútgerðarinnar og fleiri stofn-
ana, sem eru til hagnaðar fyrir ríkið,
miðað við aðra tilhögun. Ef Árni frá
Múla vildi orða þessa afstöðu Tímans
rétt, ætti hann að segja að Tíminn
væri á móti útgjaldahækkunum hjá
ríkinu og því á öndverðum meið við
íhaldsblöðin.
3. íhaldsblöðin eru enn að krefjast
frjálsari innflutningsverzlunar. Miklir
dæmalausir aular hljóta að vera við
völd í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og
fleiri hlutlausum löndum, þar sem
bannaður hefir verið innflutningur á
ýmsum vörum og aðrar háðar takmörk-
unum síðan styrjöldin hófst.
4. íhaldsblöðin látast vera mikið
fylgjandi launasparnaði um þessar
mundir. Það væri því ekki úr vegi að
spyrja: Hvað finnst þeim að mætti
lækka mikið laun framkvæmdastjór-
ans hjá Eimskipafélaginu og forstjór-
anna við Fisksölusamlagið?
5. Það væri heldur ekki úr vegi að
spyrja íhaldsblöðin: Hvað líður sparn-
aði á útgjöldum Reykjavíkurbæjar?
Hefir ekki enn verið komið þeirri stjórn
á fátækramálin, sem Mbl. sagði fyrlr
1% ári síðan að myndi draga mikið úr
fátækrakostnaðinum?
x+y.
Stefna Rússlands.
(Framh. af 1. si3u)
hægt væri að geta í löngu máli,
hina algeru breytingu, sem orðið
hefir á rússneskri utanríkis-
málastefnu síðan 10. marz í vet-
ur. Þá töldu Stalin og Molotoff
sig helztu verndara smáríkjanna
og forvígismenn í baráttunni
gegn ágengninni. Nú hafa þeir
ekki aðeins lagt blessun sína yf-
ir ágengnina, heldur gerzt stór-
felldir þátttakendur í henni og
koma nú fram í einu og öllu sem
öruggustu bandamenn þýzka
nazismans.
Stjórnir Englands og Frakk-
lands hafa ekkert látið hina nýju
yfirlýsingu Rússa og Þjóðverja
á sig fá. Frakkar og Bretar segja
að þetta viðhorf, samvinna Þjóð-
verja og Rússa, hafi þegar ver-
ið orðið ljóst, er þeir sögðu Þjóð-
verjum stríð á hendur og hefðu
þeir því alltaf reiknað með því,
að Þjóðverjar fengju öll þau
hráefni frá Rússum, sem þeir
gætu af hendi látið. Veiti Rúss-
ar Þjóðverjum hins vegar hern-
aðarlega hjálp, myndi það að-
eins hafa þau áhrif, að styrjöld-
in breyttist úr Evrópustyrjöld í
heimsstyrjöld. Er hér vafalaust
átt við Bandaríkin.
Mörg blöð þessara landa taka
líka yfirlýsingu Molotoffs og
Ribbentrops ekki sérlega hátíð-
lega. Þau benda á þá staðreynd,
að Rússar séu ekki öruggir
bandamenn og erfitt sé að
treysta á neina festu í utanrík-
Í R BÆNOi
Frumsýning
á fyrsta leikritinu, sem Leikfélagið
sýnir á þessu hausti, verður í Iðnó á
sunnudaginn. Er það, eins og áður hefir
verið sagt frá, eftir Loft Guðmundsson
kennara í Vestmannaeyjum og heitir
Brimhljóð. Tíminn mun síðar segja
nánar frá leikriti þessu og höfundi
þess.
Klukkunni
verður ekki seinkað í kvöld eins og
ákveðið hafði verið að gera. Gildir
sumartíminn þess vegna áfram.
Fargjöld með strætisvögnunum.
Ákveðið hefir verið af bæjarráði að
hækka fargjöldin með strætisvögnun-
um frá og með næsta sunnudegi. Inn-
an Hringbrautar nemur þessi hækkun
50%.
Framsóknarfélögin í Reykjavík
halda fyrstu skemmtun sina í haust
seinni hluta næstu viku. Nánar auglýst
siðar.
Stórkostiegur þjófnaður.
Nýlega hefir lögreglan fest greipar
á fjórum mönnum, sem í bandalagi
hafa framið margvisleg innbrot og
stuldi hér í bænum undanfarin misseri.
Hafa þeir þegar játað á sig 24 inn-
brot. Mennirnir eru 25—44 ára gamlir
og hafa ekki áður orðið uppvísir að
þjófnaði. Þeir heita Sigmundur Ey-
vindsson Óðinsgötu 26, Sigurjón Sig-
urðsson Bergstaðastræti 50A, Skarp-
héðinn Jónsson Njálsgötu 29B og Jó-
hannes Hannesson Skeggjagötu 19.
Mikið af þýfinu hefir fundizt í fórum
þessara manna og nemur verðmæti
þess búsundum króna. Þjófarnir höfðu
38 lykla og 3 þjófalykla í fórum sínum.
Úthlutun
nýrra matvælaseðla hófst í gær.
Glímufélagið Ármann
heldur aðalfund sinn í Oddfellow-
húsinu á mánudagskvöldið kemur.
Hefst klukkan hálf níu.
Bruni.
Eldur kom upp í vöruskemmu kaupfé-
lagsins í Bankastræti síðdegis í gær.
Varð eldurinn fljótlega slökktur, en
skemmdir urðu allmiklar á ýmsum vör-
um.
ismálastefnu þeirra eins og líka
má marka á þeim hringsnúningi
þeirra, sem rakinn er hér að
framan. Yfirlýsingin geti því al-
veg eins verið orðaleikur, sem
engin alvara sé á bak við, en eigi
að skjóta Bandamönnum skelk
i bringu.
Aðrar fréttir.
Engar fregnir hafa enn bor-
izt af samningaviðræðum tyrk-
neska utanríkismálaráðherrans
í Moskva, en heyrst hefir, að
Tyrkir ætli framvegis að halda
allar skuldbindingar sínaT við
Breta.
Nýr forsætisráðherra hefir
verið skipaður í Rúmeniu og er
hann kunnur fyrir vináttu við
Breta.
Mikinn ugg hefir það vakið i
Rúmeníu, að Rússar auka stöð-
ugt herlið sitt við landamæri
Bessarabíu.
Tveimur norskum skipum, sem
voru að flytja trjávöxur til Eng-
lands, hefir verið sökkt af kaf-
bátum.
Samkvæmt hinum nýja landa-
mærasamningi Rússa og Þjóð-
verja fá Þjóðverjar talsvert
meira af Póllandi en áður hafði
verið tilkynnt.
Molotoff hefir skrifað Ribben-
Athugrasemd
Út af „Athugasemd“ Trausta
Ólafssonar í 110. tbl. Tímans 23.
þ. m., þar sem hann segir að ég
og Guðmundur Hlíðdal, í síldar-
verksmiðjunefndinni 1934, hafi
lagst á móti síldarbræðslu á
Raufarhöfn, en hann (Trausti
Ólafsson), Sveinn Benediktsson
og Loftur Bjarnason hafi verið
málinu meðmæltir, þá vildi ég
biðja yðuT, herra ritstjóri, að
birta eftirfarandi tillögur meira-
og minnahluta síldarverk-
smiðjunefndarinnar, því að þar
sést bezt afstaða nefndarmanna
til málsins. Nefndarálitin munu
liggja í Stjórnarráðinu.
Tillögur minna hluta nefnd-
arinnar:
Að þessu athuguðu leyfi ég
mér að leggja til við háttvirta
ríkisstjórn:
1. Að væntanleg síldarbræðsla
verði byggð á Eyri við Ingólfs-
fjörð og verði hafizt handa nú
þegar að undirbúningi undir
byggingu verksmiðjunnar.
2. Að verði afgangur af fé því,
sem veitt er til verksmiðju þess-
arar, þegar fullnaðar kostnaðar-
áætlun hefir verið gerð, legg ég
það ennfremur til, að því sé var-
ið til að kaupa og endurbæta
síldarbræðslu þá, sem nú er á
Raufarhöfn, ef vissa er fyrir
því, að hún verði ekki starfrækfc
án þess.
Reykjavík 12. maí 1034.
Kr. Bergsson.
(sign).
Tillögur meira hluta nefnd-
arinnar:
Með skírskotun til framanrit-
aðrar greinargerðar ásamt til-
heyrandi fylgiskjölum og til til-
boða þeirra, sem Siglufjarðar-
kaupstaður hefir gjört ríkis-
stjórninni 2., 3. og 4. þ. m. og að
því tilskildu, að þeim verði full-
nægt, leggur meiri hluti nefnd-
arinnar til:
1. Að 2000 mála viðbót verði
gerð við síldarverksmiðju ríkis-
ins á Siglufirði fyrir síldarver-
tíð 1935 og
2. Að afganginum af þeirri 1
miljón króna upphæð, sem nú
er heimiluð til síldarverksmiðju-
byggingar verði varið til að
byggja að minnsta kosti 2000
mála síldarbræðslustöð á Ing-
ólfsfirði og að ríkisstjórnin afli
heimildar til aukins nauðsyn-
legs fjárframlags til að fullgera
þá verksmiðju, enda verði strax
á þessu sumri byrjað á undir-
búningi þeirraT verksmiðju,
þannig að hún geti geti tekið til
starfa eigi síðar en í byrjun
síldarvertíðar 1936.
Ennfremur leggur meirihluti
nefndarinnar til:
3. Að ríkisstjórnin í framan-
greindum tilgangi tryggi sér nú
þegar kauprétt á eign og lóðar-
réttindum dánarbús Kristiönu
Thorsteinsson á Eyri við Ing-
trop eftir brottför hans frá
Moskva, en hann fór þaðan í
gær, og lýst yfir því, að Rússar
séu fúsir að auka viðskipti sín
til Þýzkalands og selja þaðan
meira af hráefnum en áður.
266 William McLeod Raine:
skýra fyrir okkur áðan. Sami grautur
í sömu skál, Barnett.
Augu Taylors hvikuðu ekki.
— Þú stendur þá með honum í þessu
fyrírtæki?
— Ef þú átt við það, hvað herra
Barnett snertir, þá kemur mér það ekki
við. Ég hefi ekkert á móti þér og fyrir
mér mættir þú verða jafn gamall Metú-
salem. Ég er ekki við það riðinn. Það
er Clem, því miður fyrir þig, sem hefir
með þetta að gera, en ekki ég, og ég
vona að þú skiljir mig rétt.
— Þú getur ekki beðið þig út úr
þessu, lagsmaður, sagði Oakland valds-
mannslega. — Það er ég, sem hefi tögl-
ín og hagldirnar.
Taylor leit ekki við honum. Hann hélt
áfram að tala við Dean jafn rólegur eins
og hann hefði verið að ræða þýðingar-
lítil viðskipti, þó hann vissi að uppá-
stunga sín gæti koscað kúlu gegn um
höfuðið.
— Eitt vildi ég taka fram ennþá og
það er um þessi þrjú þúsund, sem greidd
eru fyrir að handsama mig. Þeim
myndi auðvelt að deila í þrennt.
— í þrennt, spurði Dean.
— Já, ég reikna Oakland ekki með.
Hann kemur ekki til greina, þar sem
hann tók mig úr höndum löggæzlu-
mannanna, en ég á við ykkur, hina
Flóttamaöurinn frá, Texas 267
þrjá. Hvers vegna farið þið ekki með
mig til Tincup og krefjizt launanna?
Ég skal styðja ykkar framburð, þetta
er öruggt fyrirtæki.
— Og hvernig ættum við að jafna *
þetta við Clem, spurði Dean um leið og
hann blés frá sér þykkum reykjarstrók.
Clem horfði á þá til skiptis, og var ó-
viss um hvaða áhrif þessi uppástunga
kynni að hafa á samstarfsmennina.
— Skiptið ykkur ekkert af honum,
sagði Taylor. — Þið stuggið honum frá
ef hann fer að gera athugasemdir,
nema Flannigan sé svo hlýtt til hans að
hann þoli ekki að honum sé gert neitt
á móti?
— Þetta er meira en nóg, lagsmaður,
hvæsti Oakland reiður. — Ef þú segir
orði meira, þá tala ég til þín með byss-
unni minni. Taktu eftir: Þú ert í klíp-
unni en ekki ég, og piltarnir taka ekki
við neinum skipunum frá þér. Ég þurrka
þig út, þegar minn tími kemur, það
skalt þú vera viss um. En fyrst átt þú
að gera svolítið fyrir mig, þegar orðið
er nógu dimmt.
— Hvað er það? spurði Taylor.
— Þú átt að sprengja Featherhead-
stífluna.
Það var þá þetta, sem Oakland ætlaði
honum!
— Aldrei, sagði fanginn.
Leikfélati Reyhjjavíkur
„Brimhljóð“
sjónleikur í 4 þáttum eftir
Loft Guðmundsson.
Friimsýnfng á morgun
klukkan 8
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
SMIPAUTGERO
Vélskípíð Helgí
hloður tíl Vestmanna-
eyja á mánudag n.k.
ólfsfjörð og afhendi ekki lóðar-
réttindi þau við IngólfsfjöTð,
sem Ólafur A. Guðmundsson
hefir falazt eftir.
4. Að hafizt verði handa nú
þegar um að gera fullkomnar
teikningar, lýsingar og kostnað-
aráætlanir að síldarbræðslustöð
á Siglufirði og á Eyri við Ing-
ólfsfjörð og verði lokið við þær
svo fljótt sem unnt er.
Reykjavík, 7. maí 1934.
Sign. G. Hlíðdal
(formaður).
Trausti Ólafsson.
Loftur Bjarnason.
Það er því ekki annað sjáan-
legt en að Trausti Ólafsson hafi
verið búinn að kistuleggja á-
huga sinn fyrir málinu, þegar
hann gerir tillögur sínar til rík-
isstjórnarinnar 7. maí.
Kr. Bergsson.
Sildariðnaðurmn.
(Framh. af 1. si3u)
þess að rétta við hag þjóðar-
innar í viðskiptum við aðrar
þjóðir, er að auka þá starfsemi,
sem leiðir til framleiðslu á verð-
mætum sem flutt verða úr landi.
En jafnframt skilur ríkisstjórn-
in, að framkvæmdir þessar verða
að koma þar niður, sem öll
reynsla bendir til, að þær verði
að mestu gagni, og jafnframt til
þeirra stofnað með ítrustu hag-
sýni. En um það er ekki deilt,
að ný síldarverksmiðja sé bezt
komin á Raufarhöfn. Þá liggur
hitt skjallega fyrir, að þriðjungi
ódýrara var að auka bræðsluaf-
köst ríkisverksmiðju á Siglu-
firði, heldur en að reisa nýja.
Er þessum málum öllum nú
stýrt svo hagkvæmlega, að
Rauðkulýðinn mætti sitja rjóð-
an út af framkomu sinni, fyrir-
hyggjuleysi og offorsi í sambandi
við aukningu sildariðnaðarins.
—GAML BÍÓ~,“,““
Eld-
flugan
Efnisrík og hrífandi mynd
frá Metro-Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika og
syngja:
JEANETTE MCDONALD
og
ALLAN JONES.
Myndin bönnuff fyrir börn.
NÝJA BÍÓ—
Hertur
til lietjudáða
Amerísk kvikmynd frá
Columbia Film, sem er tví-
mælalaust langhlægileg- •
asta skemmtimynd, er sést [
hefir hér í mörg ár,
Aðalhlutv. leikur hinn ó-
viðjafnanlegi skopleikari
JOE E. BROWN,
ásamt June Travis og Man
Mountain Dean (heims-
meistara í frjálsri glimu). [
Aukamynd: ■
Þegar skyldan kallar.
Amer. skopmynd, leikin af
Andy Clyde.
Frá og með 1. október hækka fiar-
gfjöld með vögntim vorum um
5 anra
hver fiarmiði fiullorðms.
Fargjöld barna og unglinga innan
14 ára aldurs haldast óbreytt.
Sfrætísvagnar Reykjavíkur h.S.
Auglýsing
um framkvæmd á 10. gr. reglugerðar frá
9.sept. 1939 um sölu og úthlutun á nokkr-
um matvörutegundum
Ráðnneytið hefir ákveðið að rúgmjöl, sem
selja má í slátur utan venjulegra skömmtun-
arseðla skuli vera svo sem hér segir:
f dilkslátur 2 kg.
f slátur af fullorðnu fé 3 kg.
í stórgripaslátur, sem matbúið er, 16 kg.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Viðskiptamálaráðuneytið, 30. sept. 1939.
Eysteinn Jónsson.
Torfi Jóhannsson.
A víðavangi.
(Framh. af 1. siðu)
og dragnót! Og — við skulum
þora að treysta þvi, að aðgerðin
og árangurinn leiði til þess, að
Faxaflói verði um alla framtíð
ekki aðeins friðaður, heldur
verði hann jafnframt sú mikla
líftryggingarstofnun allra þeirra,
sem reisa lífsafkomu sína á auði
nytjafiska umhverfis þetta, enn-
þá sem komið er, svo fiskisæla
land!
Hjólkurvinnslustöð
K. E. A.
(Framh. af 1. síðu)
til hér á landi, vel úr garði gerð,
þá er þetta hið fullkomnasta
þeirra allra og mjólkuriðnaður
þar fjölbreyttastur, mælti Sig-
urður. Húsakynnin eru afbragðs-
góð.
— Hvað teljið þér athyglis-
verðasta nýbreytni í vélakosti
mj ólkurstöðvarinnar ?
— Merkasta nýlundan hvað
áhöld og vélar snertir, tel ég að
séu áhöld þau, sem fjallað er
um neyzlumjólkina með. Þau
eru öll úr ryðvörðu stáli og kem-
ur mjólkin hvergi við annan
málm. Akureyrarstöðin er fyrsta
mjólkurstöðin hér á landi, sem
hefir yfir slíkum tækjum að
ráða.
THE WORLD'S GOOD NEWS
will come to your home every day through
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR
An Intemational Daily Newspaper
It records for you the vorld’s clean, constructive doings. The Monltor
does not explolt crime or sensatlon; neither does it lgnore them,
but deals correctively with them Features for busy men and all th#
family, lncluding the Weekly Magazine Section.
The Chrlstian Science Publlshlng Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Please enter my subscrlpMon to The Christlan Sclence Monitor for
a period of
1 year $i2 00 8 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00
Wednesday issue, including Magazlne Section: 1 year $2.60. 6 lssues 25o
Address -
SanipÍe £oþy on Requeft
SÓLRÍKT HERBERGI til leigu
á Bergstaðastræti 82.
STÚLKA óskast 1 vist til
Guðmundar Kr. Guðmundssonar
skrifstofustj óra, Bergstaðastræti
82. —
Sígurður Olason &
Egíll Sigurgeírsson
Málflutningsskriístofa
Austurstræti 3. Sími 1712.
Útbreiðið TÍMANN