Tíminn - 12.10.1939, Page 3
118. blað
TtMINJy, fiiiiiiitntlagiim 12. okt. 1939
471
ÍÞRÓTTIR
HUSMÆÐUR!
20°
30°
45°l
\ú er rétti tmilnn
Simdmeistaraniót
fslands.
Sundmeistaramót íslands
stendur yfir um þessar mundir.
Það hófst síðastliðinn sunnu-
dag. Þátttakendur sundmóts-
ins eru frá íþróttafélaginu Þór
á Akureyri, Ungmennafélagi
Reykdæla, Sundfélaginu Ægi,
Glímufélaginu Ármann og
Knattspyrnufélagi Reykjavík-
ur.
Á sunnudaginn urðu úrslit
þessi:
100 m. frjáls aðferð, karlar:
1. Jónas Halldórsson (Æ.), 1
min. 3,7 sek. Er það nýtt met.
Gamla metið,l mín. 3.8 sek., átti
hann sjálfur, sett 1938.
2. Logi Einarsson (Æ.), 1
mín. 4,7 sek.
3. Hörður Sigurjónsson (Æ.),
1 mín. 6,9 sek.
200 m. bringusund karla:
1. Ingi Sveinsson (Æ.), 3
mín. 2,3 sek.
2. Sigurður Jónsson (K.R.),
3 mín. 4,1 sek.
3. Sigurjón Guðjónsson (Á.),
3 mín. 11 sek.
4X50 m. boðsund karla:
1. A-sveit Ægis, 1 mín. 54,7
sek. og er það nýtt met. Gamla
metið, 1 mín. 57,7 sek., setti
sveit úr Ægi 1938.
2. Sveit Ármanns 2 mín. 5 sek.
3. Sveit K.R. 2 mín. 5,8 sek.
Höllin bak við hamrana.
66 bls. Verð 1 kr. heft.
Höllin bak við hamrana heitir
nýútkomið barnaæfintýri eftir
Ármann Kr. Einarsson kennara.
Áður hafa komið út eftir þenn-
an höfund, Vonir (sögur) 1934
og Margt býr í fjöllunum (æfin-
týri) 1937. Æfintýri þetta er
skemmtilegt að efni og prýtt
mörgum myndum, snoturt að
frágangi og ódýrt. Það er vandi
að skrifa læsilega fyrir börn,
þannig, að hraðinn í atbuxða-
rásinni sé nægilegur, án allra
málalenginga. Höfundinum
virðist takast þetta ágætlega og
verður bókum hans áreiðanlega
vel fagnað af hinum ungu les-
endum, því að svo virðist, að þar
sé alltaf nokkur vöntun á læsi-
legu efni, og góð æfintýri eiga
alltaf miklum vinsældum að
fagna. Þarna segir frá dreng,
sem Ingi heitir. Hann kemst í
hendur trölla og álfa. Á þar
misjafna daga. Lendir í mörgum
raunum, en á líka ýmsar á-
nægjustundir og sér merkilega
leyndardóma. Að lokum tekst
honum að komast í mannheima
aftur með frábærum dugnaði og
ráðkænsku, og hjálp góðra
vætta. Bókin lofar góðu um
þennan höfund sem æfintýra-
skáld og það, sem frá honum
hefir komið, spáir að þarna sé
höfundur, sem vert er að gefa
gaum. D. Á.
3. Randver Þorsteinsson (Á.)
6 mín. 14,5 sek.
o< j i er mjólkin kostameiri og næringar-
OjalQall ríkari en síöarl hluta sumars. Og
* i i « hefir mjólkin hér reynzt auðugri
AluiCl af c-bætiefni en einmitt nú.
Þannig hafa rannsóknir þær, sem gerffar voru í þessu skyni í
síðastliðnum septembermánuffi, sýnt,
aö ef siMÍöaö er við að neytt sé eins
lítra á dag er mjólkin þá nægilega
auðug af þessu bætiefni til þess að
menn geti fengið allri C-bætiefnaþörf
sinni fullnægt í mjólkinni einni.
Þá munu það þykja góffar fréttir, aff viff rannsóknir þær, sem
gerffar hafa verið mánaðarlega, allt frá síffastliffnum áramótum,
hefir þaff komið í ljós,
að gerilsneyðingin (í Stassanovél)
rýrir ekki finnanlega C-f jörvismagn
mjólkurinnar. Sýnishorn af sömu
mjólk á undan og eftir stassaniser-
ing’u sýndu sama C-fjörvismagn eftir
gerilsneyðinguna og fyrir hana.
Mjólkursamsalan.
Vegna vaxandi fyrirspuma um hvort endurtekiff verffi
tiiboð mitt um f jölbreytt heimilisbókasafn fyrir 10 kr., að
viffbættu einnar krónu burffargjaldi, vil ég enn gefa
25 m., frjáls affferff, telpur
innan 12 ára aldurs:
1. Halldóra Einarsdóttir (Æ.)
21,9 sek.
2. Sigrún Þorgilsdóttir (Æ.)
sjö ára, 23,3 sek.
3. Sólveig Björgvinsdóttir (K,-
R.) 24,2 sek.
50 m. bringusund, drengir
innan 14 ára aldurs:
1. Sigurgeir Guðjónsson (K,-
R.) 44,7 sek.
2. Birgir Þorgilsson (Æ.) 45,2
sek.
3. Birgir Frímannsson (K.-
R.) 49,6 sek.
Á þriðjudagskvöldið var sund-
mótinu haldið áfram og urðu
þá úrslit og afrek þessi:
400 m., frjáls affferff, karlar:
1. Jónas Halldórsson (Æ.) 5
mín. 17 sek.
2. Guðbrandur Þorkelsson (K.
R.) 5 mín. 51,2 sek.
100 m. baksund karla:
1. Jónas Halldórsson (Æ.) 1
mín 20,4 sek.
2. Guöbrandur Þorkelsson (K.
R.) 1 mín. 30,9 sek.
3. Hermann Guðjónsson (Á.)
1 mín. 34,6 sek.
50 m. bringusund stúlkna
innan .14 ára aldurs:
1. Ásdís Erlingsdóttir (Á.)
47,9 sek.
2. Sigriður Jónsdóttir (K.R.)
48,6 sek.
3. Hólmfríður Kristjánsdóttir
(K.R.) 48,8 sek.
25 m., frjáls affferð, drengir
innan 12 ára aldurs:
1. Garðar Gíslason (K.R.) 23,4
2. Trausti Thorberg (K.R.)
24,5 sek.
3. Sigmundur Guðmundsson
(K.R.) 24,6 sek.
Sundmótinu lýkur í kvöld.
mönnum kost á slíkum kjörum:
Steiiigrímur Thorsteinsson: Ljóðaþ. I. með mynd (208 bls.) og Ljóðaþ. II.
með mynd (58). Sawitri II. útg. meö mynd (64). Sagan af Kalaf og keisara-
dótturinni Tcínversku (64). Eftir Axel Thorsteinsson: Börn dalannal.—//.(198),
í leikslok, sögur úr heimstyrjöldinni 1.—2. útg. (148). / leikslok II. b. (58), Heirn
er haustar, og nokkrar smásögur aSrar (96). Hannibal og Dúna (76). Greifinn
frá Monte Christo I b. (128) II. b. (164), III. (192), IV. (176). — ítalskar smá-
sögur I. (120). ítalskar smásögur II. (80). Ævintýri og smásögur með myndum
(64). — Einstœðingur, hin ágæta saga Margaret Pedler (504 bls.) og Ástarþrá,
eftir sama höf. (354), líka falleg og skemmtileg saga. Loks: Árgangur af
Rökkri (heilir árg.) um 700 bls. — Hefir nokkur boðið yður betri kjör? Pant-
endur sendi meðf. auglýsingu og 11 kr. (ein króna má vera i frímerkjum) í
ábyrgðarbréfi (sendið ekki peninga í almennu bréfi) — eða póstávísun og
nægir að skrifa á afklippinginn: „Sendið mér bækurnar samkv. tilb. í Tím-
anum þ. 12. okt. 1939.“ Það er ódýrast að senda peninga þannig og tryggt, en
biðjið ávallt um kvittun íyrir póstávisun og ábyrgðarbréf, til þess að fá
leiðréttingu ef nokkur vanskil verða.
í stað „Dokað við í Hrunamannahreppi" sem nú er uppseld kemur „Þöglar
ástir" eftir Musæus í þýðingu Steingr. Thorsteinssonar.
Virðingarfyllst.
AXEL THORSTEINSSON.
NB. — Notið þetta óvenjulega tækifæri fyrr en seinna, því að upplög bókanna
„Börn dalanna" og „Einstæðingur" þrjóta fyrirsjáanlega á yfirstandandi ári.
Skrifstofa mín og bókaafgreiðsla er flutt í hús Félagsprentsmiðjunnar,
efstu hæð. Viðtalstími kl. 1—4.
O S T A R
irá Mjólkursamlagi Eyfirðmga
alltaf fyrirlíggjandí
í heildsölu.
Samband ísl. samvínnuíélaga
Sími 1080.
TÍMARIT HEITIR VERÐLAUNUM.
Stórt mánaðarrit, sem ráðgert er að taki að koma út í Reykjavík í haust
með undirritaðan að ritstjóra, heitir verðlaunum fyrir greinar, sem hér segir:
1. Fyrir grein um þá breytingu, sem á þessum misserum er að verða í
íslenzku þjóðlífi, 1—4 bls.......................................... kr. 25—50
2. Fyrir grein um alþýðlegan fornritalestur, 2—4 bls................... kr. 30—50
3. Fyrir grein um bók, sem komið hefir út á íslenzku nýlega, 2 bls... kr. 40
4. Fyrir skemmtigrein — mætti vera almenn ádeila í léttum, fyndnum
stíl, 2—5 bls........................................................ kr. 30—50
Blaðsíðustærð er miðuð við „Eimreiðina".
Ekki verða veitt verðlaun nema fyrir greinar, er teljast ágætar, bæði að
efni og skemmtilegri framsetningu. Vel getur komið til mála, að fleiri verð-
laun en ein verði veitt fyrir greinar um sama efni, og yrðu þau þá greidd
jafnóðum og greinarnar birtast. Fyrsta greiðsla, verði um verðlaunahæfar
greinar að ræða, fer skilyrðislaust fram fyrir jól. Hver grein, sem ritstjóri
álítur, að komi til mála, verður athuguð gaumgæfilega af þremur skynbærum
mönnum. Engin grein verður notuð, nema hún fái verðlaun. Greinarnar
sendist undirrituðum poste restante, Reykjavík, fyrir 10. nóv. n. k. undir
dulnefni með réttu nafni höfundar í umslagi, en dulnefnið sé ritað utan á
það einnig.
Höskuldsstöðum, 10. september 1939.
Björn O. Björnsson.
Timburverzlun
Sítnn.: Granfuru. Stofnnií 1824.
Carl Lundsgade — Köbenhavn.
Afgr. frú Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar
pantanir og skipsfarma frá Svíþjóð.
S. I. S. og umhoðssalar annast pantanir.
— EIK OG EFIVI í BILFAB TIL SKIPA. —
Fjallagrös.
annað en tækifærisbundin
blekking, og hverfa þá aftur til
hinnar gömlu, kommúnistisku
stefnu sinnar.
Á síðastliðnu vori áttu þessar
tvær skoðanir að standast próf
reynslunnar. Samningatilboð
Breta og Frakka veitti Rússum
glæsilegt tækifæri til að fram-
kvæma „friðarstefnu“ sína og
efla lýðræðið í baráttu þess við
fasismann. En ábyrgðaryfirlýs-
ing Breta og Frakka til handa
Póllandi og sú nýja aðstaða
Þýzkalands, að hafa þörf fyrir
samvinnu við Rússa, skapaði
þeim einnig heppileg skilyrði
til að hverfa aftur til hinnar
fyrri stefnu sinnar.
Val Sovét-Rússlands í þessum
efnum er nú orðið svo augljóst,
að engum dylst það lengur, að
það er búið að kasta friðar-
og lýðræðisgrimunni og hefir
algerlega færzt yfir á gamla
grundvöllinn aftur.
í tilefni af þessu
Hver eru f r á f a 11 i rússnesku
svikin? stjórnarinnar frá
friðarstefnunni hefir
verið farið ýmsum hörðum orð-
um um svik hennar. Ýmsir út-
sendarar hennar, eins og t. d.
Halldór Kiljan Laxness, hafa
hins vegar andmælt því, að um
nokkur svik við kommúnism-
ann sé að ræða.
Hvorirtveggju hafa rétt fyrir
sér.
Með samningnum við Þýzka-
land komu Rússar styrjöldinni
af stað. Það dylst ekki neinum
lengur. Ef Þjóðverjar hefðu
ekki átt vísan stuðning Rússa,
hefðu þeir ekki hafið styrjöld-
ina. Sennilega mun Hitler hafa
treyst því, að samningurinn við
Rússa drægi svo kjark úr vest-
urveldunum, að þau létu hend-
ur fallast. Stalin vissi hins veg-
ar af ensk-rússnesku samn-
ingaviðræðunum, að árás á Pól-
land þýddi Evrópustyrjöld
samfara múgmorðum og
hörmungum, bæði á vígvöllun-
um og meðal friðsamra borgara
bak við herlínurnar. í slíkri
styrjöld eygðu kommúnistar
þann möguleika, að neyðin og
vesaldómurinn, sem af henni
leiddi, myndi ef til vill geta
skapað frjóan jarðveg fyrir
byltingarstefnuna, og meðan
styrjöldin færi fram gætu
Rússar fengið bróðurpart sinn
af Póllandi og látið greipar
sópa um smáríkin í austur-
og norðurhluta álfunar.
Frá sjónarmiði þeirrar frið-
arstefnu, sem forráðamenn
Rússa hafa látizt fylgja sein-
ustu árin, var ekki hægt að
hugsa sér siðlausari svik og
brigðmælgi en að gerast raun-
verulegir brautryðjendur ægi-
legrar stórveldastyrjaldar.
En frá sjónarmiði kommún-
ismans, sem grundvallar starfs-
aðferðir sínar á því, að tilgang-
urinn helgi meðalið, er þessi
ráðabreytni forráðamanna Sov-
ét-Rússlands vel afsakanleg.
Stefnan byggir beinlínis á of-
beldi og enginn verknaffur effa
glæpur, hversu viffurstyggileg-
ur sem hann er, getur því tal-
izt brot á stefnunni effa svik
viff hana, svo framarlega sem
hann er unninn í þeim tilgangi
aff bæta fyrir framgangi henn-
ar.
Menn verða að gæta þess, að
kommúnisminn byggir fram-
gang sinn fyrst og fremst á því,
að beita ofbeldi og siðleysi.
Að því leyti er því sú skoðun
Halldórs Kiljans rétt, að ekki
verður séð, að forráðamenn
Sovét-Rússlands hafi svikið
kommúnismann eða hagað sér í
ósamræmi við starfsaðferðir
hans. En þeir hafa svikið þá
friðarstefnu, sem Rússland hef-
ir þótzt fylgja seinustu árin, og
það svo greinilega, að enginn
getur á því villzt.
Hér á u n d a n
Hve lengi hefir verið laus-
varir lega s t i k 1 a ð á
bandaiagið? nokkrum atriðum,
sem ásamt ýmsum
fleirum mynda aðdragandann
og undirstöðuna að bandalagi
Rússa og Þjóðverja.
Margar getgátur eru um það,
að bandalag þetta sé mjög laus-
legt og muni sundrast þá og
þegar.
Öllum er það vitanlega ljóst,
að bandalagið getur ekki varað
til'langframa. Bæði ríkin stefna
að því, að ná heimsyfirráðunum
í sinar hendur. Fyir en síðar
hljóta þessar ólíku fyrirætlan-
ir að rekast saman. En það get-
ur átt langan aðdraganda og
einu er hægt að slá föstu: Svo
lengi, sem báffir aðiljar telja
sér hag af bandalaginu, helzt
þaff.
Þjóðverjar munu alltaf telja
sér hag af því meðan stríðið
helzt.
Kommúnistar hafa ekki gert
sér þær vonir, að stríðið skapaði
þá neyð, sem yrði jarðvegur fyr-
ir kommúnismann, nema það
stæði lengi. Þess vegna er það
hagur þeirra, að hjálpa Þjóð-
verjum til langvinnrar styrj-
aldar.
Hvort óska Rússar frekar, að
Þjóðverjar eða Bretar sigri,
spyrja margir.
í því sambandi má benda á
eftirfarandi:
Brezka heimsveldið og stjórn-
skipulag þess er miklu traustara
(Framh. á 4. síðu)
Kaupendur Tímans
Tilkynniff afgr. blaffsins tafar-
laust ef vanskil verffa á blaffinu.
Mun hún gera allt, sem í hennar
valdi stendur til þess aff bæta
úr því. Blöð, sem skilvísa kaup-
endur vantar, munu verffa send
tafarlaust, séu þau ekki upp-
gengin.
AFGREIÐSLAN.
Við seljum í heildsölu ágæt, hreinsuð Sjallagrös
Samband ísl. samvínnuiélaga
Sími 1080.
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
f ÚTBREIÐID TÍMANNf
288 William McLeod Raíne:
villtu láta byssuna í jakkavasa minn?
Molly hafði aldrei séð Taylor glaðlegan
áður.Hún hafði vanizt þessum napra bit-
urleik í fari hans, en nú var hann horf-
inn. Hann var næstum barnslega glaður.
Henni datt aðeins í hug ein ástæða fyrir
þessari breytingu. Hann var ennþá
flóttamaður og hann hlaut að verða tek-
inn aftur, þar sem hann var með hand-
járnin. Dómstólarnir í Texas biðu hans
enn. Það var aðeins einn liður í aðstæð-
unum, sem hafði breytzt: Augu hennar
höfðu sagt honum að hún elskaði hann.
Var honum þetta svona þýðingarmikið?
Gat þetta eitt látið hann gleyma þeim
grimmu örlögum, sem biðu hans?
— Er engin leið til þess að ná þessu af
úlfliðunum á þér, spurði hún.
— Clem er með lykilinn og ég efast um
að hann myndi vilja taka af mér hand-
járnin, jafnvel þó hann væri viðlátinn.
— Ég sé þá ekki hvað við getum gert,
sagði hún og gretti sig. — Hver, sem sér
þig, mun þegar vita hver þú ert.
Taylor yppti öxlum.
— Líf mitt hékk á bláþræði fyrir hálfri
stund síðan, nú er ég á vissan hátt frjáls
og einn með þér hér úti í hæðunum. Ég
er ánægður.
Daufur roði færðist um kinnar henni.
— Það þarf þá ekki mikið til að gera
þig ánægðan.
Flóttamaöurinn frá Texas 285
Hann sparn fæti við stórum steini og
klemmdi að.
— Ég gefst upp, þú ert að brjóta á
mér handlegginn, stundi Mosby.
Taylor slakaði ekki á, en kallaði til
Molly: — Núna!
Molly beygði handlegginn yfir Taylor
og tók í handfang byssunnar. — Ef þú
gætir lyft honum ofurlítið, sagði hún.
Taylor lyfti Mosby og byssan losnaði úr
hylkinu.
Taylor sleppti Mosby, þegar hann hafði
gengið úr skugga um, að hann hefði ekki
fleiri vopn á sér.
Mosby reis stynjandi á fætur og þukl-
aði um allan líkama sinn.
— Þú hefðir getað drepið okkur báða,
ef við hefðum lent fram af brúninni,
sagði hann.
— Við hefðum áreiðanlega rotazt,
sagði Taylor glaðlega. — Það hefir senni-
lega bjargað okkur hvað þú hefir lifað
heiðvirðu lífi.
— Þú gerðir þetta viljandi, sagði Mos-
by ygldur.
— Nei, heyrðu nú, sagði Suðurríkjabú-
inn háðslega. — Hefði það verið sann-
gjarnt, eins og þú hefir verið mér góður?
— Clem verður verri viðureignar en
djöfullinn sjálfur, þegar hann kemur
aftur. Þú ættir að láta mig hafa byssuna
aftur, Barnett.