Tíminn - 21.10.1939, Side 3
122. blað
TÍMIM, lawgardaginn 21. okt. 1993
487
A N N A L L
Dánardægm*.
Sigurður Jónsson bóndi á
Útnyrðingsstöðum á Völlum í
Fljótsdalshéraði lézt í Landa-
kotssjúkrahúsi í Reykjavík
þann 10. október, 65 ára að
aldri. Hann var hinn mesti at-
orkumaður, vinsæll og vel met-
inn af öllum, sem þekktu hann.
Sigurður var ekkjumaður; kona
hans var Anna Jónsdóttir, syst-
ir Þorsteins M. Jónssonar bóka-
útgefanda á Akureyri. Þau hjón
láta eftir sig þrjú börn, Þor-
stein, sem stundar nám við há-
skólann hér og Guðlaugu og Sig-
ríði heima.
Afmæli.
Árni Einarsson bóndi í Múla-
koti í Fljótshlíð átti 65 ára af-
mæli 12. októ-
ber. Hann er
fæddur i Stóru-
Mörk undir
Eyjafjöllum 12.
október 1874,
sonur Einars
bónda þar Ól-
afssonar, er bjó
á ýmsum stöð-
um í Hvol-
hreppi og vlðar,
og konu hans, Kristínar And-
résdóttur. En móðir Árna í
Múlakoti, og kona Einars, var
Katrín, dóttir Sæmundar bónda
á Sámsstöðum í Fljótshlíð, er
síðast bjó í Stóru-Mörk, Árna-
sonar bónda i Hamragörðum og
Syðstu-Mörk, en kona Árna í
Hamragörðum var Þórhildur
Björnsdóttir frá Miðbæli undir
Eyjafjöllum. Árni í Múlakoti
ólst upp í Stóru-Mörk, en þar
bjuggu foreldrarnir allan sinn
búskap frá ’70. Vorið ’03 byrjaði
Árni búskap í Múlakoti og gekk
að eiga Þórunni Ólafsdóttur, er
þar bjó ekkja með fjórum ung-
um börnum sínum. Hún and-
aðist fyrir fáum árum. Hefir
Árni því nú búið í Múlakoti í
meira en hálfan fjórða áratug.
B Æ K U R
Sögur eftir Þóri Bergsson.
236 bls. Verð kr. 10 í bandi.
Einn íslenzkur smásagnahöf-
undur, sem notið hefir mikils
álits undanfarin ár, hefir nefnt
sig Þóri Bergsson. Raunverulega
heitir hann Þorsteinn Jónsson
og er bankastarfsmaður. Sögur
hans hafa þótt sérlega vel gerð-
ar .En einnig hefir hann ort tals-
vert af vel gerðum kvæðum.
Nú í haust kom út ný bók eftir
Þóri Bergsson, smásagnasafn, er
ber hið yfirlætislausa nafn, Sög-
ur. Þessar sögur eru alls 22,
sumar mjög stuttar, og bera yfir-
leitt öll hin gömlu einkenni, er
verið hafa á sögum Þóris Bergs-
sonar. Enda hafa ýmsar þeirra
áður birzt í blöðum og tímarit-
um eða verið lesnar upp í út-
varpið. Manni eru í minni sögur
eins og Brosið og Slys í Giljareit-
um. Allir, sem áður hafa kynnzt
skáldskap Þóris Bergssonar,
fagna þessari nýju bók hans. Og
vænta nýrrar bókar að fáum ár-
um liðnum.
Til þessa hafa íslendingar
haft fáum mönnum á að skipa
sem skrifað hafa góðar og vel
gerðar smásögur, þótt margir
hafi til þess reynt, svo vert er
að halda á lofti nafni þelrra
fáu, sem vel geTa.
Almanak hlns íslenzka
Þjóðvinafélags, 96 bls.
Verð 2 krónur.
Almanak Þjóðvinafélagsins
um 1940 er komið út fyrir
nokkru. Það er með sama sniði
og fyrri almanök þess. Að þessu
sinni eru greinarnar í því um
stórmenni heimsins um Píus
páfa XII. og danska sðlisfræði-
prófessorinn Niels Bohr. Aðrar
greinar í því eru: Um vitamin
eftir Gunnlaug Claessen, Um al-
manakið eftir Þorkel Þorkelsson,
íslendingar í Vesturheimi eftir
Þorstein Þorsteinsson, Úr hag-
skýrslum íslands eftir Þorstein
Þorsteinsson og Þjóðvinafélagið
1939 eftir Þorkel Jóhannesson.
Bylftingar
(Framh. af 2. síðu)
þáttahatur, Gyðingaofsóknir og
allt þetta, sem heimurinn er nú
ráðalaus með, og því samfara
hið brjálæðisfyllsta vígbúnaðar-
kapphlaup, sem aldir og kyn-
slóðir þekkja til.
Lengra er sagan ekki komin,
Eins og nærri má geta, þykir
mörgum unglingum þessi spart-
verska einfeldni í lífsvenjum
harður kostur. Og að einhverju
litlu leyti syndga sumir þeirra í
sambandi við litla vindlinga úti
í skógi eða í afskekktum
geymsluskúrum. Að lokinni
skólavist byrja margir aftur að
drekka kaffi, nokkrir með tó-
bak og einstaka með vín. En
bíndindið í tvo vetur skilur eftir
varanlegt spor, auk þess sem
það hefir kennt unglingunum
að þekkja eiturefnalausa til-
veru um langa stund. Flestir
Laugarvatnsnemendur bera
merki um hreinlæti og bindind-
isvenjur skólans til æfiloka.
Mjög margir kennarar og
nemendur myndu hafa lagt fæð
á yfirmann sinn fyrir svo
strangt aðhald um nautnameð-
ul. En svo er ekki á Laugar-
vatni. Nemendur treysta Bjarna
skólastjóra. Þeir hlýða honum
og virða hann, en óttast hann
ekki. Þeir trúa því, að skóla-
stjóri finni, ef þeir hafi vindl-
ing falinn í vestisvasanum, er
þeir mæta honum á ganginum.
Þeir vita að hann njósnar ekki
um hag þeirra, en þeim finnst
vond samvizka vera nokkuð
opinská um innri mann þeirra,
er þeir tala við þennan hús-
bónda.
en næsti þáttur getur gerzt
skyndilega, og gagnvart honum
stendur allur heimurinn á önd-
inni af angist og kvíða. Þessi
virðist mér vera árangur hinna
ofsafengnu og blóðugu byltinga,
og er ég ekki einn um þá skoðun,
þótt fjöldinn kunni að verða
mér ósamþykkur.
er full af lífi og fjöri. Ég kom
eitt sinn í kennslustund til hans
í barnaskólanum i Hafnarfirði.
Hann kenndi reikning. Töflur
voru á nálega öllum veggjum
stofunnar, og börnin voru öll
önnum kafin við að vinna all-
an tímann. Ég herfi hlustað á
kennslu í mörgum skólum, og í
mörgurn löndum, en aldrei séð
svo lifandi og þróttmikla
kennslu í reikningi. Bjarni
Bjarnason er allt af samur við
sig. Hann hefir einfaldar og ó-
brotnar en öruggar vinnuað-
ferðir að hverju sem hann
gengur.
En dvölin í skóla Bjarna
Bjarnasonar er ekki tómt mein-
lætalíf og hörkuvinna. Gleðin
á þar líka heima. Stundum er
hinn fjölmenni æskumanna-
hópur, og skólastjóri með, á
fleygiferð á skautum, eftir
rennisléttum ís á vatninu.
Stundum eru allir i skíðabrekk-
unni. Þá er sundið, leikfimin,
söngur, ræðufundir og dans.
Vinnan, hófsemin og hin frjóa
lífsnautn haldast i hendur all-
an námstímann. Og þegar nem-
endur frá Laugarvatni eru
farnir þaðan burtu, þá segja
þeir „heim“, er þeir minnast
hinna glöðu, reglubundnu
námsdvalar á stærsta sveitabæ
landsins.
Kennaraliðið á Laugarvatni
hefir vanizt þessum einföldu
siðum og heilbrigðu vinnulagi.
Á síðari árum hefir Bjarni
skólastjóri verið alllengi á
þingi suma vetur. Nemendum
og kennurum finnst mikið tap,
þegar skólastjórinn er ekki við.
En svo fastar eru heimilis- og
kennsluvenjur á Laugarvatni,
að samkennarar Bjarna skóla-
stjóra hafa haldið öllu í skipu-
legu horfi, þó að hann hafi
verið alllengi fjarverandi um
skólatímann.
Kennsla Bjarna Bjarnasonar
V.
Bjarni Bjarnason gaf kost á
sér til þingsetu, er hann þótt-
ist sjá, að það skipti miklu
fyrir áhugamál hans, hversu
þingið yrði skipað eftir kosn-
ingarnar 1934. Sú varð líka
raunin á, að kjör háns í Árnes-
sýslu varð þýðingarmikill at-
burður fyrir byggðir landsins,
og allra mest fyrir það hérað,
sem hann er fulltrúi fyrir. Á Al-
þingi hefir áhrifa hans gætt
sérstaklega í tveim efnum, auk
vinnu fyrir flokk sinn og kjör-
dæmi. Hann hefir átt mikinn
Haltfiiknr
neyzlu íanaalands.
Garnir
*
Eftir fyrirmælum atvinnumálaráðherra höfum vér
tekið að oss að sjá svo um, að jafnan fáist góður salt-
fiskur til innanlandsneyzlu með lægsta útflutnings-
verði.
Eins og' að cmdanförmi eru vel verkaðar
garnir úr heimaslátruðu fé keyptar í Garua-
stööiimi í Reykjavík. Greiðsla við móttöku.
Fiskurinn fæst pakkaður í:
50 kg. pakka nr. 1 og kostar .............. kr. 25.00
50 kg. pakka nr. 2 og kostar ................ — 22.50
50 kg. pakka nr. 3 og kostar ................ — 20.00
25 kg. pakka nr. 1 og kostar ................ — 12.75
25 kg. pakka nr. 2 og kostar ................ — 11.50
25 kg. pakka nr. 3 og kostar ................ — 10.25
Fiskurinn verður seldur og afgreiddur til kaupmanna
og kaupfélaga frá
H.f. Kveldúlfur , Reykjavík.
Verzlun Einars Þorgilssonar, Hafnarfirði.
Sölusamband íslenzkra
MeðSerð garnanna.
Þegar görnin er rakin, er náð í báða endana (slitið frá vinstr-
inni og langanum) og gömin rakin tvöföld ofan í ílát með vatni
í. Þá cr gorið strokið úr görninni (tvöfaldri, jafnþættri) og hún
um leið gerð upp í hespum um eitt fet á lengd og brugðið utan um
(eitt bragð), með báðum endunum eða lykkjunni. Síöan er salti
nuddað inn í hverja hespu og vel undir bragðið. Þá eru garnirn-
ar lagðar niður í lagarhelt ílát og saltað vel í hvert lag. Ef ekki
myndast svo mikill pækill, að fljóti yfir lagið, þá verður að láta
vel sterkan pækil á garnirnar (24 gráðu).
Þegar garnirnar eru sendar, má taka þær úr lagarhelda ílát-
inu og senda í kassa.
Slitnar garnir.
fiskframleíðenda.
Garnirnar má helzt ekki slíta. Þær garnir, sem slitna og eru
í tvennu eða þrennu lagi, má hirða og láta spottana (2 eða 3) í
sömu hespuna. Þær garnir, sem eru slitnar meira en í þrennt, eru
þátt í að fjárveitinganefnd
væri réttlát i skiptingu ríkis-
fjár milli kjördæma. Vetur eftir
vetur hefir hann lagt mikla elju
í að halda fjárveitingum þings-
ins í hófi, og -að' réttur minna-
hlutans væri ekki fyrir borð
borinn. Auk þess hefir Bjarni
Bjarnason átt mikinn þátt í
þeirri hreyfingu i Alþingi, að
koma meiri reglu á vinnu-
brögð þingsins. Manni með
hans húsbóndagáfum þótti nóg
frelsið, þegar starfsfólk þings-
ins fyllti deildarsalina, svo að
þingmenn komust þar varla
ferða sinna, eða þegar óboðnir
gestir af götunni fylltu ganga
og lestrarsali Alþingis. Á síð-
ustu árum hefir orðið á þessu
mikil breyting, þó að eigi jafn-
ist reglusemin í þingsölum enn
við stjórn Bjarna Bjarnasonar á
Laugarvatnsskóla.
Bjarni Bjarnason er vanur
að rækja manna bezt þing-
mannsskyldur sínar við kjós-
endur um samstarf og ráða-
gerðir. En í vor sem leið sýndist
hann bregða vana sinum í þessu
efni. Hann hélt einn fulltrúa-
fund í sláttarbyrjun og sat
annars heima á Laugarvatni.
Vel máttu kjósendur hans
halda, að hann nyti þar góð-
viðrisdaga og sumarblíðu í fé-
lagi við marga ágæta gesti, sem
leituðu þangað sér til hvíldar
og hressingar.
En þeir, sem kornu í Laugar-
vatn, sáu að skólastjórinn gekk
þar ekki um i síðum tilhalds-
klæðum, með hendur í vösum
og vindling í munnvikinu.
Sveitamennskan er honum í
blóð borin. Hneigðin til búskap-
ar hafði lokkað hann til að
koma upp stórbúi í Straumi,
meðan hann var skólastjóri í
Hafnarfirði. Undanfarin ár hef-
ir Bjarni Bjarnason verið að
koma upp skólabúi á Laugar-
vatni, og myndi hafa eflt það
meir, ef fjársýkin hefði ekki
nálega gereytt ærstofninum.
En að loknu þingi og skóla-
störfum í vor, byrjaði Bjarni
skólastjóri hörkuvinnu við
húsabætur og heyskap, með elju
og sóknarvilja hins sístarfandi
bónda. Hann tók með piltum
sínum gamla bæinn á Laugar-
vatni, lækkaði þakið, ummynd-
aði gamlar stofur, þiljaði
geymsluklefa og gerði þá að
sólríkum herbergjum með
smekklegum göngum, vatns-
leiðslu og nýtízku umbúnaði.
Hann iétti ekki fyrr en hann
hafði úr bænum og gömlu efni
gert mjög prýðilegan nýjan bæ,
með 38 rúmum. Þá snéri hann
sér að peningshúsunum. Skól-
inn hafði fengið með jörðinni
frá Böðvari Magnússyni gott
fjós fyrir nálega 20 stórgripi
og myndarlega hlöðu. Bjarni
skólastjóri hefir í sumar stækk-
að fjósið og hlöðuna um helm-
ing, og gert allt umhverfið
þrifalegt og smekklegt með
grasklæddum stöllum. Með því
að vinna sjálfur dag út og dag
inn að þessu verki og með því
að beita hagsýni í hvívetna,
hafa þessar byggingar iítið
aukið skuldir skólans. Að lokn-
um þessum byggingarverkum
var kominn heyannatími.
Skólastjóri sótti fast heyskap-
inn og fyllti hinar rúmgóðu
hlöður sínar. Var bæði heyjað
heima, svo sem unnt var, og haft
í seli suður í Ölfusi. Skólastjóri
vill fá mikil hey og geta haft
margar kýr. Hann vill ekki
spara nýmjólkina, hvorki við
nemendur eða gesti. Að loknum
heyskap kom hirðing garðanna.
Kartöfluuppskeran var á fjórða
hundrað tunnur. Þá tók við
vermihúsabygging. Og þegar
henni var lokið komu um 170
ungiingar til vetrardvalar á
þessu hraðvaxandi stórbýli.
VI.
Það er sennilegt að til séu þeir
lærdómsmenn hér á landi, sem
þyki háttur þessa skólastjóra
meir í ætt við fornan stórbúskap,
heldur en andlega menningu 20.
aldarinnar. En þessi umsvifa-
mikli skólastjóri og búmaður,
á til enn fleiri hliðar heldur en
koma fram í stjórn skólans, eða
þegar hann er fremstur í sókn
í byggingarvinnu og heyskap.
Fyrir skömrnu kom að Laugar-
vatni hámenntaður og háttsettur
maður frá einni af stórborgum
álfunnar. Hann hafði í æsku
notið kennslu í beztu og dýr-
ustu skólum ættjarðar sinnar, og
siðan verið i trúnaðarerindum
landsins víða um heim. Hann
kom eina dagstund sem gestur
ríkistjórnarinnar og dvaldi mest
á Laugarvatni. Honum þótti
náttúruskilyrðin fyrir skóla og
sumargistihús alveg óvenjuleg.
Hitt þótti honum þó enn lær-
dómsríkara að tala við Bjarna
skólastjóra, og sjá og heyra
hvernig íslendingar veiti efna-
litium piltum og stúlkum náms-
(Framh. á 4. síðu)
ónýtar.
Garnastöðin. - Sími 4241.
Hilimæ ðnr:
Svo sem skýrt var frá hér í blaðinn 10. þ.
m., liafa rannsóknir leitt þaö í ljós, að
gerilsneyðing (í Stussanovél) rýrir
ekki finnanlee/a C-fjörvismayn tnjólk-
urinnar. Sýnishorn af sömu mjólk á
undan og eftir stassaniseringu sýndu
sama C-fjörvismagn eftir gerilsnegð-
ingunu og fgrir hana.
Lcikfélag Regkjavíkur JÖRÐ í nágrenni við Reykja- vík íil sölu. Epplýsing- ar í síma 2841 kl. 1—2 og eftir kl. 7 daglega.
„Brimhljóð“ Sýning á morgun kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
BRYNJÓLFUR ÞORLÁKSSON stillir og gerir við piano og or- gel. — Sími 4633.
llreinar léreftstuskur kaupir Prentsmiðjan Edda Lindargötu 1 D.
Tímaritið VAKA er ódýrasta, læsilegasta og vand- aðasta tímarit sem gefið er út hér á landi. Árgangui'inn kostar kr. 5.00. TÍMARITIÐ VAKA Aðalstræti 9. Reykjavík.
Vinnið ötullega fgrir Tímann.
304 William McLeod Raine:
Það fór hrollur um Molly. Hún leit
ekki við. Allar skýjaborgir þeirra voru
hrundar til grunna.
Webb Barnett leit við. Oakland var
svo sem 8—10 fet frá þeim og hann sá
undir eins, að ekki var mögulegt að ná
i skammbyssuna í jakkavasanum.
— Þið bíðið hér eftir mér rétt eins og
böx-n í skóginum, hélt Oakland áfram.
— Ágætt! Ágætt! Þið komizt ekki áfram
án hins gamla og góða vinar ykkar
Clem, ha? Opnið þið nú ginin og segið
hvað þið séuð glöð yfir þvi að ég skyldi
rekast á ykkur í hveitibrauðsdagahug-
leiðingum ykkar.
— Ég skal gera þér tilboð, sagð'i Bar-
nett lágt. — Taktu handjárnin af mér
og svo skulum við gera út um þetta.
Annar okkar verður kyrr, en hinn fer
burtu.
Beljakinn hló sigri hrósandi:
— Lít ég út fyrir að vera slíkur asni?
Ég hefi þegar ákveðið hvor okkar verði
eftir og hvor okkar fari burt með stúlk-
una.
— Nefndu hana ekki í sambandi við
þetta, ef þú vilt ekki verða skotinn nið-
ur eins og hundur.
— Af hverjum, spurði Oakland háðs-
lega.
— Séi-hver heiðarlegur maður í hér-
aðinu rnyndi rísa upp gegn þér, gleymdu
Flóttamaðurinn frá Texas 301
— Mér hefir alltaf þótt afar vænt um
hann, eiginlega. Ég hefi stundum hugs-
að, að ef hann vildi----------
— Og auðvitað vildi hann, greip
Barnett fram í.
— Það var ekkert „auðvitað". Stúlk-
urnar eru allar hrifnar af honum. Hann
er indæll. Hvernig gat ég látið hug
minn hvarfla tii annars, þegar hann
var svo nærri, og það sér i lagi-----
Hún þagnaði og leit á hann bros-
andi.
— Spilling mannshjartans, sagði
hann. — En það er meira en ég get
skilið' hvernig nokkur kvenmaður, með
heilum sönsum, getur litið til mín,
þegar Walsh er annars vegar.
Það skipti ekki miklu máli hvað þau
sögðu. Allt bar að sama brunni, ástinni.
Þau töluðu um eitt og annað, þeim var
hlátur í hug og dásemd augnabliksins
hafði þau á valdi sínun. Þau skildu hvort
annars hug í snöggum leiftrum, eins-
konar skammstafanir, sem ekki þurfti
að fylla út.
Molly undraðist þá blíðu, sem gagn-
tók hana. Hún hafði ætíð verið dálítið
hvöss. Hún hafði sjálf sagt.að hún væri
harð'lynd, hjúpuð hai’ðri skel nútíma-
konunnar. Mennirnir, sem höfðu laðazt
að henni, vegna þess hve hún var snot-
ur og vegna þess hvernig hún tók líf-