Tíminn - 02.11.1939, Blaðsíða 4
508
TÍMPJIV, flmmtwdaglnn 2. nóv. 1939
127. blað
IJR
BÆNUM
Vílhjálmur Stefánsson
Leikfélag: Reykjavíkur
hefir i kvöld frumsýningu á leikrit-
inu Á heimleið, eftir Lárus Sigurbjörns-
son. Leikrit þetta er samið eftir sam-
nefndri sögu eftir Guðrúnu Lárusdótt-
ur, er kom út fyrir 26 árum. Nokkrum
árum síðar var sagan gefin út í danskri
þýðingu. Lárus byrjaði fyrir tveimur
árum, í samráði við höfund bókarinnar,
móður sína, að snúa henni i leikrit. Til
fullnustu gekk Lárus frá leikritinu eftir
lát móður sinnar. Aðalleikendur eru
Þóra Borg og Gestur Pálsson, en meðal
annarra Gunnþórunn Halldórsdóttir,
Ævar Kvaran, Valur Gíslason, Ingi-
björg Steinsdóttir og Friðfinnur Guð-
jónsson. Lárus Sigurbjörnsson er
leikstjóri. — Leikritið er nýkomið út
prentað, og gefur Guðmundur Gamal-
íelsson það út.
Kvikmyndahúsin.
Gamla Bíó sýnir nú ameríska gam-
anmynd, og hafa tveir af allra vin-
sælustu leikurum Ameríkumanna, Ka-
therine Hepburn og Gary Grant, aðal-
hlutverkin á hendi. Einnig leikur í
henni gamanleikarinn Charlie Ruggles.
Nýja Bíó sýnir mjög athyglisverða
ameriska mynd, sem fjallar um upp-
eldismál. Aðalhlutverkið leikur 15 ára
gömul stúlka, sem getið hefir sér mikla
frægð. Heitir hún Bonita Granville.
Stúdentafélag Reykjavíkur
hélt fund á mánudagskvöldið í Odd-
fellowhúsinu. Jónas Jónsson, formaður
Framsóknarflokksins, flutti þar ítar-
legt erindi um sambandsmálið oe fán-
ann, en skoðanir hans í þeim málum
eru svo kunnar af greinum hér í blað-
inu, að ekki þarf að rekja þær. Erindi
hans var mjög vel tekið. Að því loknu
urðu nokkrar umræður. Aðeins einn
maður, Guðbrandur Jónsson, hélt því
fram, að réttast væri að' fresta umræð-
um um sambandsmálið meðan styrjöld-
in stæði yfir, og bar fram tillögu þess
efnis. Var hún felld með samhljóða at-
kvæðum, því Guðbrandur sat hjá við
atkvæðagreiðsluna. Þetta er fjölmenn-
asti fundur, sem haldinn hefir verið í
félaginu, síðan það var endurreist, og
bar hann þess glögg merki, að áhugi
fer vaxandi fyrir þessu máli, því það
var einnig til umræðu á fundi í félag-
inu í fyrra og var hann mun fásóttari.
íslenzkir námsmenn erlendis.
í sambandi við auglýsingu frá Upp-
lýsingaskrifstofu Stúdentaráðs, hér 1
blaðinu, skal vakin athygli á því að
það, sem fram er tekið í auglýsingunni
gildir ekki aðeins um stúdenta, heldur
einnig um kandidata og námsmenn
sem ekki eru stúdentar. Aðstandendur
og umboðsmenn stúdenta, sem dvelja
erlendis, ættu að veita þessari auglýs-
ingu athygli.
M. A.-kvartettinn
heldur aðra söngskemmtun sína í
Gamla Bíó í kvöld. Hefst hún kl. 7.
Getraun Hljóðfærahússins,
um innlendan og erlendan leður-
töskuiðnað, er nú lokið, og fékk hinn
innlendi iðnaður þar mjög glæsilegan
dóm. Dregið var um verðlaunin í gær,
og komu upp eftirtalin númer: 1. nr.
972, Páll J. Jónsson, Klapparstíg 5 A.
2. nr. 253, Elly Guðjohnsen, Vesturgötu
19. 3. nr. 1165, Guðm. Júlíusson, Eiríks-
götu 27. Verðlaunanna sé vitjað í
Hljóðfærahúsið. Hinar íslenzku töskur
voru frá Leðuriðjunni, Vatnsstíg 3. Sjá
að öðru leyti auglýsingu í blaðinu í dag.
Stjórn íþróttasambandsins
hefir ritað bæjarráði bréf, þar sem
hún ber fram þau tilmæli, að nokkur
(Fravih. af 3. síðu)
Þegar lokið var þessum ferð-
um hætti Vilhjálmur Stefáns-
son að mestu beinni þátttöku
í rannsóknarleiðangrum í norð-
urhöfum. Hann var þá rúmlega
fertugur að aldri. Æfisaga
hans fram að þeim tíma var
æfintýrakennd og full af ó-
venjulegum andstæðum. Hann
var af kynstofni minnstu þjóð-
arinnar, sem sendi landnema
til Vesturheims. Hann var
fæddur í bjálkakofa í lítt byggðu
skóglendi. Hungurvofan og
bólusóttin höfðu svo að segja
haldið vörð við vöggu hans. En
við þessi feröalok var hann
orðinn hámenntaður maður, og
kunnur um allan heim fyrir
afrek í landkönnunarmálum,
vísindalegar rannsóknir og
mikla rithöfundarhæfileika.
Niðurl. næst. J. J.
Samningar
Rússa og Finna
(Framh. af 3. síðu)
þá heim og senda nýtt svar eða
svara kröfunum engu. Það var
þó afráðið, að láta þá halda
ferðinni áfram. Eru þeir Paasi-
kivi og Tanner væntanlegir til
Moskva í dag.
Dómar erlendra blaða eru yf-
irleitt á þá leið, að ógerlegt sé
fyrir Finna, að fallast á kröfu
Rússa um hernaðarbandalag,
flotastöð við innsiglingu finnska
flóans og afhendingu Kyrjála-
ness. Ef þeir geri það, séu þeir
ekki sjálfstæð þjóð lengur og
algerlega slitnir úr tengslum við
hinax Norðurlandaþjóðirnar.
Það vekur athygli, að Molo-
toff tók sérstaklega fram í ræðu
sinni, að Rússar myndu ekki
gera neinar kröfur á hendur
Svíum og Norðmönnum. Ýms-
um þykir þetta benda til, að
samkomulag sé um það milli
Þjóðverja og Rússa, að Finnland
teljist hagsmunasvið Rússa, en
hin Norðurlöndin hagsmunasvið
Þjóðverja.
Finnar hraða nú hernaðar-
viðbúnaði sínum af enn meira
kappi en fyrr.
hluti af tekjum íþróttavallarins í
Reykjavík veröi framvegis látinn renna
til starfsemi í. S. í. Málið er enn óaf-
greitt.
Sorp og úrgangur til áburðar.
Landbúnaðarráðherra hefir nýlega
ritað bæjarráði bréf, þar sem þess er
óskað, að safnað verði hér í bænum í
vetur öllu sorpi og öllum úrgangi, sem
hægt er að nota til áburðar að vori.
Bréf landbúnaðarráðherra var rætt á
síðasta bæjaráðsfundi og samþykkt að
óska eftir umsögn heilbrigðisfulltrúans.
Yfir landamænn
1. íhaldsblöðin halda áfram siirifum
sínum um nauðsyn þess, að útgjöld hjá
því opinbera séu lækkuð. Hins vegar
hefir enginn orðið var neinnar slíkrar
viðleitni hjá Reykjavíkurbæ, enda þótt
laun séu þar hærri en hjá ríkinu, bent
hafi verið á hagkvæm úrræði til sparn-
aðar á fátækraframfærinu og lausa-
skuldir séu að vaxa bænum yfir höfuð.
Það virðist eins og að íhaldsforkólfarnir
vilji sýna það með verkum sínum, að
sparnaðarhjal þeirra eigi ekki að taka
alvarlega.
2. Mbl. skammast yfir þvi, að gjald-
eyrisnefnd skuli ekki hafa látið flytja
inn ársbirgðir af vefnaðarvöru. Hins
vegar minnist það ekkert á það, að hér
hafa verið tiltölulega litlar birgðir af
„frílistavörum", sem flestir munu telja
meiri þörf fyrir. Af hverju stafar þessi
tvískinnungur blaðsins? Er það farið
að dreyma um, að það sé aftur komið
í ábyrgðarlausa stjórnarandstöðu og
geti því eins og í gamla daga skammað
andstæðingana fyrir ástand, sem ekki
hefir verið á neins manns færi að af-
stýra og er óhjákvæmileg afleiðing af
rás viðskiptamálanna í heiminum?
3. íhaldsblöðin hafa undanfarið verið
að skammast yfir hlutdrægni í starfs-
mannavali hjá því opinbera. Vilja þau
ekki sanna sakleysi Sjálfstæðisflokks-
ins í þessum efnum með því að birta
lista yfir nöfn hinna mörgu starfs-
manna hjá skömmtunarskrifstofu bæj-
arins og sýna þannig svart á hvítu,
hversu óhlutdrœg starfsmannaráðning-
in hefir verið?
x+y.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
Allmikil stund var lögð á handavinnu
í skólanum og smíðuðu piltar marg-
víslega húsmuni, ferðatöskur og fleira,
en stúlkur prjónuðu, hekluðu, saumuðu,
ófu og fengust við leðuriðju. Á síðast-
liðnu hausti, í nóvembermánuði, flutti
gagnfræðaskólinn í ný húsakynni, sem
bættu að mun alla aðstöðu hans, en
áður hafði hann verið starfræktur í
húsnæði Kaupfélags ísfirðinga. Hið
nýja skólahús er tvær hæðir, byggt úr
steinsteypu, með sex kennslustofum.
Tvær stofurnar eru aðskildar með
vængjahurð, svo að hægt er að gera
þær að einum sal. Húsið stendur sunn-
anvert við Austurveg, á svokölluðu
Riis-túni. Byggingarkostnaður var 75
—80 þúsund krónur.
íslandsdeild
heimssýníngariimar
(Framh. af 3. síðu)
að búa út sýningu, sem allir
dást að.“
Radio Broadcast, segir á þessa
leið:
„Menn eru farnir að taka bet-
ur og betur eftir fegurð þessa
litla lands, og ég vona, að sýn-
ing þessi fari ekki fram hjá
mönnum, því að hún er eitthvað
það undraverðasta af öllu því,
sem hér er að sjá. Landið er dá-
samlega fagurt og vel sýnt, og
menn munu á sýningunni kynn-
ast mörgu skemmtilegu fyrir ut-
an íslendingana sjálfa, sem
eru mjög elskulegt og geðugt
fólk.“
Pocatelli State Journal, segir:
„Einna athyglisverðust af öll-
um deildum heimssýningarinn-
ar er sýning lands með 120 þús-
und ibúa. Landið er ísland.“
Sýna þessi ummæli glögglega,
að sýningin hefir orðið til mik-
illar kynningarauka fyrir landi
og þjóð og orðið hvorutveggja
til sóma. Verður það aldrei mælt
í tölum, hver árangur getur af
því hlotist, en það er víst að
góð kynning er einhver mesti
styrkur smáþjóðanna.
V AK A
Á ERINDI TIL ALLRA.
Flytur frumsamdar og þýdd-
ar greinar um margvíslegt efni,
sögur og kvæði og er prýtt
fjölda mynda.
KAUPIÐ VÖKU!
322
William McLeod Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
323
Urslít getraunar
Hljóðiærahússíns
Af 1454 svöruin
voru aðeins 173 með töl-
unni 5, en þaö var númer
útlendu töskunnar.
1281
hafa því álitið
ATSOIVT - töskurnar
frá Leðuriðjan Vatnsst. 3
vera útlendar.
1. verðlaun hlaut get-
raunamiði nr. 973. 2. verð-
laun nr. 253. 3. verðlaun
nr. 1165.
Vinninganna sé vitjað í
illjóðfæraliusið.
Ný bók:
Svalt og bjart
Sögur eftir
Jakob Thorarensen
er komin á bókamarkaðinn og
fæst hjá bóksölum um allt land.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
Hreinar
léreftstuskur
kaupir
Prentsmiðjan Edda
Lindargötu 1D.
BRYNJÓLFUR ÞORLÁKSSON
stillir og gerir við piano og or-
gel. — Simi 4633.
• * 1 Það eru nokkur lestr-
arfélög ennþá, er ekki
eiga Dvöl alla frá byrj-
un. Tæplega getur þó eitt lestrarfélag
haft vinsælli bækur i safni sínu, heldur
en Dvöl.
Sambandsmálið
(Framh. af 1. síðu)
í ræðu sinni lagði Eysteinn
Jónsson höfuðáherzlu á, að
þjóðin gætti vel fjárhagslegs
frelsis síns, því það væri undir-
staða stjórnarfarslegs sjálf-
stæðis.
Síðara málinu á dagskrá
fundarins, bæjar- og sveita-
stjórnarmál, sem forsættsráð-
herra ætlaði að reifa, var frest-
að og verður það tekið fyrir á
fundi, sem haldinn verður bráð-
lega.
Skemmtun verður haldin á
vegum Framsóknarfélaganna í
næstu viku.
Fylgifé og
fasteignamat.
En brátt sá hún að Webb var kominn
á heljarþröm. Hún var viss um að hon-
um veittist verr núna. Það blæddi úr
vörum hans. Oakland hafði rifið skyrt-
una hans á brjóstinu, einu sinni þegar
hann reyndi að grípa hann, og á hold-
inu sáust rauð, ljót för. Oakland sótti
á hann, bæði ótt og ákaft og virt-
ist vera að buga mótstöðu hans. Þetta
virtist Molly að minnsta kosti. Hún gat
ekkert gert til hjálpar. Clem hafði tæmt
skammbyssurnar til þess að fyrirbyggja
hjálp.
Molly sá aðeins ofsa árásarinnar.
Hún sá ekki hvað fótaburður Barnetts
var fullkominn og hversu honum veitt-
ist auðvelt að forðast þannig aðalhætt-
una. Hún tók heldur ekki eftir því, að
flest hinna geysistóru högga Oaklands
lentu ýmist á handleggjum eða oln-
bogum. Hún gat sízt getiö sér þess til,
að Oakland væri lafmóður og stóru
handleggirnir og fæturnir væru orðnir
þungir af þreytu.
En Webb vissi þetta. Höfuð hans náði
sér betur og betur með hverri sekúnd-
unni. Hann þurfti aðeins að verjast því
að högg mótstöðumannsins gerðu mik-
inn skaða, þá myndi hann sigra sig
sjálfur. Hann gat ekki haldið lengi á-
fram enn.
Annað auga Oaklands var sokkið,
hitt bólgið og hann dró fæturna. Það
var aldrei neinum vandkvæðum bundið
að koma á hann höggi, hann sótti alltaf
svo ákaft. Webb sætti færis, sló snögg
og hrein högg, sem komu hinum til
þess að grípa andann á lofti.
Webb gerði sér upp þreytu til þess að
hvetja mótstöðumann sinn. Oakland
hélt líka áfram sinni áköfu sókn, þó
hann riðaði orðið á fótunum. Einn —
tveir. Webb barði báðum hnefunum í
síðu Oaklands og var svo kominn úr
höggfæri. Clem fylgdi á eftir. Hann
vissi sig sigraðan nema honum tækist
að komast í návígi við óvin sinn og
koma honum undir með kröftunum
einum saman. Hnén skulfu undir hon-
um, þegar hann reyndi að grípa Bax-
nett. Hægri hnefi Webbs skall á höku-
barð Oaklands og hann féll til jarðar.
Webb stóð kyrr og horfði á hann. Oak-
land kipptist við, reis upp við dogg til
hálfs, en féll svo út af aftur.
— Þú hefir sigrað, hrópaði Molly og
þaut til elskhuga síns.
Brosið á anditi hans líktist ógeðslegu
glotti, því að Oakland hafði veitt hon-
um mörg slæm högg.
— Hann var of ákafur.
— Þú ert meiddur, sagði Molly og
þrýsti sér að honum. Hvað get ég gert
fyrir þig?
(Framh. af 2. síðu)
aðila, og samkomulag um laga-
breytingar, sem viðstöðulaust
náðu samþykki Alþingis. Og ég
er þess viss, að ef nokkur von
er um sameiginlega leið út úr
deilum þeim, sem staðið hafa um
annan kafla laganna, þá er þess
helzt að vænta, að fulltrúar
bændanna sjálfra finni hana
bezt, eins og í fyrra skiptið. Og
takist þeim það, er miklum á-
hýg8'jum og erfiði létt af stjórn-
málablöðum. Skyldi það hins
vegar mistakast, þá ætti ekki að
vera of seint að taka málið upp
að nýju, og skrifa nokkra vitur-
lega leiðara um jarðræktar- og
byggingarstyrki, er koma bænd-
um þeim á vonarvöl, er hljóta þá.
En nú munu það ýmsir mæla,
að ríkisstjórn og Alþing hafi
verkefni nokkur um sinn, þó að
búnaðarþingi sé í bili eftirlátin
deilan um það, undir hvaða
formi skuli skrá styrki, sem eng-
inn veit nú nema að ríkinu verði
um megn að greiða áður en varir
— og ættu því ekki að geta unnið
bændum verulegt tjón á meðan.
31. október 1939.
Bjarni Ásgeirsson.
—"«GAMLA. BÍÓ“°—
„Hann, hún
og leopardtim“.
Bráðskemmtileg og mein-
fyndin amerísk gaman-
mynd tekin af RKO-Radio
Pictures. — Aðalhlutverk-
in leika hinir góðkunnu
leikarar:
KATHERINE HEPBURN
GARY GRANT og
gamanleikarinn frægi
CHARLIE RUGGLES.
I VANDRÆÐA- |
! BARNIÐ
| !
IAmerísk kvikmynd frá I
Warner Bros, er vakið hef- )
ir heimsathygli fyrir hina |
miklu þýðingu er hún flyt- j
ur um uppeldismál.
Aðalhlutverkið leikur hin j
15 ára gamla
BONITA GRANVILLE.
. Aukamynd: j
MUSIKCABARET. í
Leihfélafi Retihjjuvíhur.
Á taeimleið
Sjónleikur í 4 þáttum eftir Lárus Sigurbjörnsson (eftir samnefndri
sögu frú Guðrúnar Lárusdóttir).
Fruinsýning I ltvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir klukkan 1 í dag.
Málaílutníngsskrífstofa.
Undirritaðir höfum opnað málaflutningsskrifstofu í Sam-
bandshúsinu við Sölvhólsgötu. Við tökum að okkur málflutn-
ing, samningagerðir, innheimtur og öll önnúr venjuleg mála-
flutningsstörf.
Viðtalstími okkar er frá kl. 1—3 e. h. — Sími 1080.
Ragnar Ólafsson. Ólafur Jóhannesson
lögfræðingar.
2O°|0 3O°|0 45°|0
O S T A R
firá Mjólkursamlagi Eyfirdinga
alltafi fiyrirligfgjandi
í heildsölu.
Samband ísLsamvínnufélaga
Síani 1080.
Tilkynnin
Samkvæmt bráðabirgðalögum um stríðstrygginga-
félag íslenzkra skipshafna, dags. 27. október 1939, er gert
ráð fyrir að eigendur skipa, sem tryggja skipshafnir sín-
ar frá byrjun hjá félaginu, taki þátt í félagsstofnuninni
og leggja fram að sínum hluta 10% af áhættufénu eða
samtals kr. 60.000,00.
Skipaeigendur, sem þátt taka í áðurnefndri félags-
stofnun, hafa rétt til að kjósa af sinni hálfu 1 mann í
stjórn félagsins, 1 mann tilnefna tryggingafélögin, en
ríkisstjórnin skipar formann.
Skipaeigendur, sem taka vilja þátt í stofnun félags-
ins og kosningu í stjórn þess eru hér með beönir að mæta
eða senda umboðsmenn á fund, sem haldinn verður í
Kaupþingssalnum laugardaginn 4. nóvember kl. 2 e. h.
eða tilkynna þátttöku sína símleiðis til undirritaðs, sem
skipaður hefir verið formaður félagsins af ríkisstjórninni.
Reykjavík, 31. október 1939.
BKYAJÓLFOI STEFÁIVSSOA.