Tíminn - 28.11.1939, Síða 2
550
TÍMINN, firigjndagiim 28. nóv. 1939
138. blað
Enn um lífsvenjubreytingu
Pólitískir „galeiðuþrælar“
Svívírðingar kommúnista um Finna
^ímirm
Þrið$udayinn 28. nóv.
Fjárlögín og Fram-
sóknarflokkurinn
Þeir, sem haía athugaö fjár-
lög nágrannalanda okkar og
borið þau saman við fjárlög
okkar og landsreikninga, hafa
vafalaust veitt því meiri eða
minni athygli, að sú stefna um
fjárveitingar, sem hér hefir
verið fylgt, er talsvert öðruvísi
en í sumum þessara landa að
minnsta kosti.
Þetta kemur bezt í ljós við
athugun á því, hvernig fjár-
munum ríkissjóðanna er varið,
þegar frá eru tekin útgjöld
vegna sjálfs ríkisrekstrarins.
Hjá sumum þessara ríkja geng-
ur langmestur hluti þess fjár,
sem varið er til annars en
beinna rekstrarútgjalda ríkis-
sjóðs, til allskonar félagslegra
útgjalda, þ. e. til tryggingar-
mála, atvinnuleysisstyrkja, eða
annars þess háttar stuðnings.
Hér á landi er þessu aftur á
móti þannig háttað, að mestur
hluti af útgjöldum fjárlaganna,
sem snertir ekki beinlínis sjálf-
an ríkisreksturinn, fer til
styrktar atvinnuvegum lands-
manna. En þær fjárhæðir, sem
veittar eru hér sem beinir fram-
færslustyrkir, eru tiltölulega
miklu lægri nú en víðast ann-
arsstaðar.
Þetta sýnir, að hér hefir á-
vallt megináherzla verið lögð á
það, að styðja sjálft atvinnu-
lífið, og þá fyrst og fremst
styðja menn til að eignast ný
atvinnutæki og koma undir sig
fótum við framleiðslu. Er rétt
í þessu sambandi að minna á
styrki, sem varið hefir verið til
að koma upp mjólkurbúum,
f rystihúsum, j arðræktarstyrk-
inn, nýbýlastyrkinn, endur-
byggingarstyrk sveitabýla,
framlag til verkfærakaupa-
sjóðs og Byggingar- og land-
námssjóðs, og nú á síðustu ár-
um styrk til bátasmíða, hrað-
frystihúsa, niðursuðuverk-
smiðja og annarra nýmæla við
sjávarsíðuna, sem veittir hafa
verið af framlagi rikisins til
fiskimálasjóðs. Allan þennan
stuðning má að meira eða
minna leyti rekja til þeirrar
meginstefnu Framsóknarflokks-
ins, sem oftast hefir ráðið úr-
slitum, að fjárframlögum hins
opinbera skuli fyrst og fremst
varið til þess að hjálpa þeim,
sem vilja hjálpa sér sjálfir, og
ef verja eigi almannafé til
styrktarstarfsemi, þá eigi að
haga því svo, að sem flestir geti
haft aðstöðu til þess að stunda
framleiðslustörf. Einn hinn
mesti þrándur í götu þess, að
framleiðslustörfin aukizt hlut-
fallslega við fjölgun þjóðarinn-
ar, er sá mikli stofnkostnaður
sem fylgir ávallt slíkum rekstri.
Framsóknarflokkurinn hefir
með löggjafarstarfsemi sinni
og fjármálastefnu á Alþingi,
fyrst og fremst viljað styðja þá,
sem áhuga hafa fyrir því að
sigrast á þessum erfiðleikum.
Það er áreiðanlega ekki of
djúpt tekið i árina, þótt stað-
hæft sé, að þessi stuðning-
ur við atvinnuvegina hafi átt
meginþátt í þvi að þjóðinni
hefir tekizt að komast yfir erf-
iðleika undanfarinna ára.
Allmikið er nú ritað og rætt
um afgreiðslu fjárlaganna. Á
það hefir verið bent hér í blað-
inu, að hægt ætti að vera að
halda tekjum ríkissjóðs í svip-
uðu horfi og verið hefir undan-
farið, ef tollskrárfrumvarpið
verður samþykkt og með því
móti að taka innanlandslán á
móti afborgunum lána, með
hækkun á verðlagi munaðar-
vara, og ennfremur með því að
samþykkja frumvarp það til
laga um tekjuskatt af vaxtafé,
sem fyrir þinginu liggur. Byggj-
ast vonir um þetta þó fyrst og
fremst á gífurlegri hækkun
verðtollstekna af hverri vöru-
einingu, vegna gengislækkunar
og verðhækkunar. Þessi niður-
staða er þó því að eins væntan-
leg, að ekki keyri um þverbak
viðskipti okkar við önnur lönd.
Þrátt fyrir þetta er ljóst, að
þörf verður fyrir hinn mesta
sparnað í hvívetna, og þá fyrst
og fremst vegna þess, að útgjöld
í tveim dagblöðum hér í bæn-
um hefir verið látin í ljós óá-
nægja í sambandi við bending-
ar mínar um að sjálfbjargar-
hvöt þjóðarinnar væri í allmik-
illi hættu, af því að menn sæktu
meira en góðu hófi gegndi í
styrktarfé frá ríki og bæjarfé-
lögum, vildu vinna lítið eða
ekki neitt. Annað blaðið er eign
Alþýðuflokksins, hitt styður
Sj álfstæðisflokkinn.
Ég hygg að aðstandendur
þessara blaða muni áöur langt
um líður sjá af reynslunni bæði
að ég hefi á réttu að standa um
aðalefnið og að ég hefi fyrir
mitt leyti markað i þessu máli
glögga og heilbrigða stefnu fyr-
ir mörgum árum, en að til
beggja hliða hefir fylkingin
svignað undan sakir þunga frá
fólki, sem vildi fá mikil hlunn-
indi, með lítilli eða engri vinnu.
Framsóknarflokkurinn trúir á
frumkvæði og starfsgetu ein-
staklingsins, en vill beita sam-
hjálp við stærstu átökin. í sex-
tíu ár hafa samvinnumenn með
eigin orku reist hina margþættu
byggingu kaupfélaganna og
Sambandsins, þar með talin
iðnaðarfyrirtæki.
Þegar ég beitti mér fyrir
Byggingar- og landnámssjóði,
sem síðan fæddi af sér verka-
mannabústaðina og fyrir bygg-
FRAMHALD
Ungur maður í Aðaldal hafði
ráðið burtflutning til Ameríku
aldamótaárið. Þá orti Guð-
mundur Friðjónsson til hans
kraftakvæði með heitri áskor-
un um að flytja ekki af landi
burt. Kvæðið hafði þau áhrif,
að maðurinn hætti við að fara
og gerðist gildur bóndi í Aðal-
dal. Ein vísan i þessu kvæði er
sem hér segir:
Æskuvinur! ertu’ að fara,
yfirgefa vora móður,
þú, sem enn ert æskurjóður,
alla vini og frænda skara?
Og þú kippir, ungi vinur!
upp með rótum nýtum gróðri.
Brýtur sundur björk í rjóðri.
Brumið deyr.ef stofninn hrynur.
Þessi fáu dæmi gefa hugmynd
um myndauðgina í æskukvæð-
um Guðmundar Friðjónssonar.
Eftirmælin um gamlan sveitar-
höfðingja og frænda skáldsins
byrja með grafarblæ, í stuttum
hljómmiklum setningum. Lönd-
in eru að blása upp. Eldurinn
grandar fjöllunum. Aldarkylj-
an er nöpur yfir rústum lífsins.
Nýlegir atburðir í þjóðlífinu eru
óumtalað í baksýn. Undanfarin
ár hafði burtflutningur úr
landinu verið rökstuddur með
því, að ísland væri að blása upp.
Jarðskjálftinn mikli á Suður-
ingu héraðsskólanna, var að
vísu gert ráð fyrir styrk frá
þjóöfélaginu. En það var styrk-
ur til sjálfshjálpar. Efnalitlar
sýslur eins og Borgarfjarðar-
og Mýrasýslur lögðu til samans
60 þús. kr. í Reykholtsskóla.
Ungmennafélögin í héraðinu
gáfu 20 þús. Vigfús Guðmunds-
son gaf 4 þús. kr. og margir
aðrir einstakir menn gáfu
myndarlegar upphæðir. Ríkið
lagði fram fé á móti þessum
ríflegu gjöfum héraða og ein-
staklinga. í héraðskólunum
borgar hver nemandi 40—50 kr.
í húsaleigu og 60 kr. fyrir
kennslu. í hinum eldri heima-
vistarskólum, eins og Akur-
eyrarskólanum, Eiðum, Hólum
og Hvanneyri, hefir ríkið reist
byggingarnar og lætur nemend-
ur hvorki greiða húsaleigu né
kennslugjald. Sú skipun mun
vera að skapi Alþýðublaðsins.
Þar eru hlunnindin eingöngu
veitt frá ríkinu, án mótfram-
lags frá þiggjanda. En ég hygg
að það skipulag, sem ég átti þátt
í að móta, að því er snertir hér-
aðsskólana sé betra og þjóðholl-
ara. Þar veitir ríkið, eins og
Byggingar- og landnámssjóður,
hjálp þeim, sem vilja hjálpa
sér sjálfir.
Blað Sjálfstæðisflokksins virð-
ist vera búið að gleyma því, að
landi með gífurlegri eyðilegg-
ingu og manntjóni var nýaf-
staðinn. Og um allan heim voru
þessi ár merkileg tímamót.
Sumir töluðu um aldamóta-
þreytu í menningarlöndunum.
í huga Guðmundar Friðjóns-
sonar verður náþyturinn í ætt-
argarðinum að aldarkylju. Hinn
látni vinur hafði verið óvenju-
legur gestahöfðingi. Hér kem-
ur fram líkingin að hafa skála
yfir þveran þjóðveg og opið hús
fyrir öllum vegfarendum. Þá
þegar hefir Guðmundur Frið-
jónsson þá lífsreynslu, að kann-
ast við stundarvini, sem fylkja
sér um auðveld afkomuskilyrði.
í næstu vísu verður hver hug-
mynd að snjallri líkingu. Neyðin
er nakin persóna og biður líkn-
ina ásjár. Og líknin breiðir
gjafmildan faðminn móti ör-
birgðinni og vefur hana að
hjarta sér. Biblíulíkingar og
myndir úr suðrænum bók-
menntum fara vel í þessu kvæði.
Vonin ber, í brotnu keri, blys í
grafhvelfingu dáins vinar. Eng-
in sannari og einfaldari lýsing
er til á norðlenzkri tunglsskins-
nótt, heldur en upphafið á
erfiljóðunum um Jón Jónsson
frá Arnarnesi. Máninn leggur
látúnslitaðar geislaglæður yfir
landið. Stjörnurnar eru vitar
sem lýsa jarðbúum, en bera
hingað daufa birtu. Landið sef-
stefna okkar Framsóknar-
manna er að veita hjálp til
sjálfshjálpar. Sá maður, sem rit-
aði í Vísi um þetta mál, mun
hafa verið búinn að gleyma því,
að hér í bænum er hinn stærsti
her, sem nokkurn tíma hefir
verið stofnsettur á íslandi.
Hann er miklu stærri en sá her
sem Kolbeinn ungi og Gissui
Þorvaldsson stýrðu á Örlygs-
stöðum. Hér í Reykjavík er her
þeirra, sem eru á almanna
framfæri í bænum 5—6 þúsund
auk þeirra, sem taldir eru at-
vinnulausir. Um mörg undan-
farin ár hafa fulltrúar Fram-
sóknarmanna í bæjarstjórn
bent á leiðir til að hjálpa styxk-
þegum til að verða meira sjálfs-
bjarga. En því hefir ekki verið
sinnt fyrr en ef það verður nú.
Fjárveitinganefnd Alþingis
hefir nú í undirbúningi tillögu
um allmörg skipulagsatriði
sem leiða til aukinnar sjálfs-
bjargar í landinu. Enn er óvíst
að hve miklu leyti þær ná sam-
þykki í þinginu. Það má telja
víst að kommúnistar verði yfir-
leitt á móti öllu, sem stefnir að
aukinni ráðdeild og sjálfbjarg-
arviðleitni. Að hve miklu leyti
menn úr öðrum flokkum kunna
að slást í för með Einari Ol-
geirssyni og félögum hans, er
ekkert hægt að segja að svo
stöddu. En það er trú mín, að
meðan stendur á styrjöld þeirri,
sem nú geysar muni íslenzka
þjóðin taka upp lífsvenju-
breytingu til hins betra. Það
má vænta þess, að menn spari
kaup á óþörfum varningi frá út-
löndum, að vínnautn á al-
mannafæri hætti gersamlega,
að þjóðin læri að lifa meira en
áður af afurðum landsins, að
menn, sem ekki geta unnið
fyrir sér á einum stað, en geta
fengið starf og lifibrauð ann-
arsstaðar á landinu verði flutt-
ir þangað. Þess má ennfremur
vænta, að sú þjóð, sem elur upp
með miklum kostnaði af al-
manna fé sérfróða menn með
læknismenntun, geti fengið
lækna, sem vinna fyrir almenn-
ing og að engum detti lengur í
hug að heimta með lögum fleiri
starfsmenn á skip og báta, held-
ur en þörf er á og framleiðslan
getur borið. Persónulega vildi
ég líka vona, að það yrði hætt
að banna ungum mönnum að
læra algenga nauðsynjavinnu
eins og að smíða úr tré og járni,
leiða rafmagn eða mála hús.
Mér fyndist ennfremur mjög á-
nægjulegt, ef réttlætið og frels-
ið gæti aukizt svo hér á landi,
að smiðir í Hafnarfirði mættu,
án þess að setja líf og limi í
hættu, flytja smíðisgripi sína til
Reykjavíkur og selja þá hér.
Ég veit að mörgum mönnum
muni finnast óviðkunnanlegt,
að minnsta kosti í byrjun, ef
margir menn úr Alþingi, sem
styðja samstarf lýðræðisflokk-
ur i náttserk fannanna. Nóttin
sjálf vakir sorgbitin yfir æsku-
manninum, sem er að drukkna
í Hörgá. Og þessi á verður um
stund lifandi með nokkrum
hætti. Hún er straumkvik, ljós-
græn, eins og jökulár verða oft.
Hún leikur sér að líkinu. Ómur
hennar nær að eyrum skáldsins.
Þá koma hugsanir úr fornbók-
menntunum. Helja er persóna.
Hún sækir á mannlífið. Hún
bætir engan með manngjöldum.
Guðmundi Friðjónssyni kemur
nú hið sama í hug og Agli
Skallagrímssyni að hefnast á
náttúruöflunum og fá þannig
manngjöld. Hér vildi skáldið
þurka Hörgá, en finnur að það
væri raunar engin hefnd. En
mælska hans og orðgnótt kem-
ur ljóslega fram í lýsingunni um
herskáan norðanvind, hlákuþey
og sólareld, sem gætu brennt
gróður dalsins. — Vísurnar um
ritstjóra Kringsjár bera vott um
þróttmikinn vorhug. Hinn víð-
sýni ritstjóri situr í hásæti og
horfir um lönd öll. Hann horfir
móti birtu og hann leitar að yl.
Með lykli andargiftar sinnar
opnar hann dyr huldra heima.
Þar logar lampi Aladíns. Bergið
varð að glæsilegri höll. Allar
lokur eru dregnar frá. Andi
fossins og sál fjallsins bregða
á leik. Hér dregur skáldið með
fáum dráttum skýra líkinga-
mynd af víðsýnum andlegum
vakningamanni
„Úr heimhögum" varð vinsæl
og víðlesin bók víða um land.
Mynd skáldsins á fremstu síðu
sýndi, að þar var á ferð fjör-
mikill ungur maður, sem trúði
Danski blaðamaðurinn, Peder
Tabor, sem var á ferð hér síð-
astliðið sumar, hefir nýlega lýst
dönskum kommúnistum á þá
leið, að þeir væru „hlekkjaðir
þrælar á galeiðu, sem sigldi
undir erlendu flaggi.“
Öllu betur er tæpast hægt að
lýsa hlutskipti kommúnistafor-
ingjanna utan Rússlands.
Ungur hagfræðingur, Benja-
mín Eiríksson, sem fylgir kom-
múnistum að málum, en vill
hins vegar ekki sætta sig við
nýju „línuna“ frá Moskva, hef-
ir fyrir skömmu gefið út smárit,
þar sem veitt er skýring á
þessum galeiðuþrældómi ís-
lenzku kommúnistaforingjanna.
Hann segir óbeint í seinasta
kafla ritsins, að þeir taki „trú-
arlega afstöðu", en ekki „skoð-
anna, koma nú með gamalt
efni í nýjum umbúðum, og biðja
um lögfestingu til að bjarga
þjóðinni frá fjárhagslegri eyði-
leggingu og frelsismissi. Það er
nýjung, sem þjóðin hefir þekkt
í þúsund ár, en vikið meir en
skyldi frá síðan 1914, en það er
að vinna og spara, nota gæði
landsins, og forðast eyðslu, glys
og eiturlyf. Þjóðfélagið þarf að
vísu víða að hjálpa. En sú hjálp
þarf fyrst og fremst að vera til
sjálfshjálpar. Hjálp til þeirra,
sem ekki vilja vinna og ekki
spara, verður að vera miðað við
að auka manndóm þeirra, sem
þannig er ástatt fyrir.
Á árinu 1940 verður ekki auð-
velt fyrir Reykjavík að hafa
5000 menn iðjulausa á fram-
færi, og mikinn fjölda atvinnu-
lausra manna í ofanálag. Þá
verður heldur ekki hentugt fyrir
þjóðarbúskapinn að hafa 4 véla-
meistara á Gullfossi, úr því að
hann hefir getað komizt leið-
ar sinnar með þrem kunnáttu-
mönnum í þessari grein í und-
angenginn aldarfjórðung. Sann-
lega hefir þjóðin ekki efni á að
gleðja matsveinafélag landsins
með því að hafa fjölda af aló-
þörfu þjónustufólki á farþega-
lausum skipum Eimskipafélags-
ins og Súðinni í utanlandssigl-
ingum, aðeins til að veita þeim
atvinnu, því að stríðstrygging-
in nemur mö'rg hundruð krón-
um á hvern skipverja.
Lífsvenjubreytingin í landinu
hefir lengi verið nauðsynleg. Nú
er hún orðin óhjákvæmileg.
Innan skamms munu menn úr
öllum lýðræðisflokkunum byrja
sókn í þessu máli á Alþingi og
síðan í hverri byggð og bæ á
landinu. Hinar nýju framfarir
komast þá á gamla og trausta
undirstöðu. J. J.
á mátt sinn og hugði gott til
lífsstarfs á komandi árum. En
nú kom í Ijós að hann átti harö-
snúna andstæðinga og óvildar-
menn í höfuðstaðnum. Það voru
menn, sem höfðu setið lengur á
skólabekk en Guðmundur Frið-
jónsson, og hugðu að skapandi
list væ'ri bundin við langdvalir
í höfuðstöðum íslands og Dan-
merkur. í augum þessara manna
hafði þessi bóndi norður í Að-
aldal, með sína skammvinnu
skólagöngu á Möðruvöllum, orð-
ið brotlegur við stöðulög and-
legt lífs í landinu með því að
vilja setjast á bekk með skáld-
um landsins.
Nokkru eftir að ljóðmælin
komu út, birtist um þessa
kvæðabók langur ritdómur í
einu vikublaðinu í Reykjavík
undir dulnefninu Kolskeggur.
Talið var að nokkrir jafnaldrar
skáldsins á Sandi hafi unnið
saman að þessu ritverki, en sá
sem þar hafði forustuna, var
gamall skólabróðir frá Möðru-
völlum, sem síðar hafði haldið
áfram námi í Latínuskólanum.
Vinnubrögð Kolskeggs voru á
þá leið, að hann gerði skopstæl-
ingu úr ástarljóðum Guðmund-
ar Friðjónssonar, og sagði, að
sá leirburður væri eftir tiltekna
flækinga og landshornamenn.
Taldi Kolskeggur, að Guðmund-
ur Friðjónsson hefði þekkt,
orðið hrifinn af og tekið til fyr-
irmyndar þessar vísur og stælt
þær í ljóðagerð sinni. Nú ber
að vísu ekki að neita því, að í
ástarljóðum Guðmundar Frið-
jónssonar voru ýmsar fremur
óheppilegar líkingar og að sá
analega afstöðu“ til atburðanna.
Þegar þeir sjái rússnesku vald-
hafana brjóta í bága við grund-
vallaratriði sósíalismans, álykti
þeir, að þetta hljóti að vera
rétt, þótt þeim finnist það ekki
sjálfum, því að húsbændunum
í Moskva geti ekki skjátlast. Af-
stöðu þeirra til valdhafanna í
Moskva megi lýsa með orðun-
um: „Vegir þínir eru órann-
sakanlegir“ eða „allt var gott,
sem gerði hann.“
Undirgefni íslenzku kommún-
istaforingjanna við Moskva-
valdið verður vissulega ekki
skýrð með öðrum móti. Annars
gætu þeir ekki talið það allt
tómar vitleysur, sem þeir sögðu
um heimspólitíkina í fyrra, eða
lýst blessun sinni yfir banda-
lagi Rússa og þýzku nazistanna,
sem þeir töldu erkióvini mann-
kynsins fyrir nokkrum mánuð-
um, og allir ættu því að vinna á
móti af alefli. Framkoma þeirra
verður ekki skýrð öðru vísi en
að þeir trúi á forsjá og forystu
húsbændanna í Moskva, líkt
og blámenn í Afríku trúa í
blindni á dulda forsjá stokka
og steina. Þeir sleppa því alveg
að mynda sér sjálfir skoðanir
um málin, heldur haga sér líkt
og galeiðuþrælarnir í gamla
daga, sem aldrei vissu neitt um
stefnu skipsins, heldur unnu í
einu og öllu eins og fyrirmæli
og hnútasvipuT húsbændanna
sögöu þeim að gera. Sá er að-
eins munurinn, að íslenzku
kommúnistaforingj arnir hafa
gengið sjálfviljugir í þessa
furðulegu þjónustu, og eru því
enn fylgispakari og trúverðugri
en gömlu galeiðuþrælarnir
voru.
Það má t. d. sjá glögg merki
þessa galeiðuþrældóms á grein,
sein einn þingmaður kommún-
ista, ísleifur Högnason, skrifaði
í kommúnistablaðið fyrra
sunnudag. Hann ræðir þar um
málefni Finna á þann hátt, að
auðséð er, að hann hefir engra
upplýsinga aflað sér um málin
og ekki reynt’ að mynda sér um
þau neina sjálfstæða skoðun. f
þess stað tyggur hann upp á-
lygar Rússa á hendur Finnum
og fer hinum verstu svívirðing-
arorðum um þessa merkilegu
vinaþjóð íslendinga.
ísleifur segir t. d. „að finnsk
yfirvöld hafi gert allt, sem þau
hafi getað, til að særa og sví-
virða hið volduga grannríki
sitt“. En hann nefnir engin rök
þessu til stuðnings. Þau eru líka
engin, því þetta er tilbúningur
Rússa til réttlætingar framferði
þeirra við Finna. Ef rekja ætti
viðskipti Rússa og Finna, myndi
(Framh. á 3. síðu)
hluti ljóðanna þoldi engan
samanburð við eftirmæli og
hetjukvæði skáldsins. En í rit-
dómi Kolskeggs gætti engrar
sanngirni eða bófsemi. Ritdóm-
urinn var allur með þeim blæ,
sem einkennir ritgerðir kesk-
inna drengja í neðri bekkjum
skóla, sem er miðlungi vel
stjórnað. Guðmundi Friðjóns-
syni var fundið allt til foráttu
sem skáldi og rithöfundi. Til-
gangur hinna þóttafullu við-
vaninga var að ganga svo ör-
ugglega frá þessum sveitabónda,
að hann reyndi ekki aftur að
koma við sögu sem rithöfundur.
Það var hægt að svara árás
Kolskeggs með ýmsu móti. Það
var hægt að sanna, að ritdóm-
urinn var byggður á vísvitandi
falsi, þar sem höfundarnir
höfðu sjálfir ort þær vísur, sem
skáldið átti að hafa tekið til
fyrirmyndar. Það var auk þess
hægt að sanna, að í ljóðabók
Guðmundar Friðjónssonar, fyrir
utan mörg mjög snjöll kvæði, er
eitt ljóð, „Ekkjan við ána“, sem
er svo fullkomið listaverk, að
það mun verða tekið í hvert úr-
val íslenzkra ljóða, meðan málið
heldur gildi sínu. Það mátti enn-
fremur sanna, að enginn af þeim
mönnum, sem stóðu að laun-
sátri Kolskeggs höfðu neitt til
brunns að bera sem bók-
menntamenn. Enginn þeirra
hefir síðar á æfinni gert neitt,
sem gat gefið nokkrum þeirra
siðferðislegan rétt til að setjast
í dómarasæti um listræn efni.
Guðmundur Friðjónsson tók
ekki þann kost, að verja sig með
blaðagreinum og það var vel
fjárlaganna hljóta að hækka
vegna gengislækkunarinnar,
sem orðið hefir, og vegna þess
að ófriðurinn hefir haft i för
með sér margvísleg ný útgjöld.
Þótt það sé að sjálfsögðu rétt,
að spara eftir föngum allan
beinan rekstrarkostnað ríkis-
sjóðs, þá -er það nú að verða
öllum augljóst, að með því eina
móti verður ekki langt komizt
í niðurfærslu fjárlaganna á
móti óhjákvæmilegum hækk-
unum, og ef komast á hjá hækk-
un fjárlaga þarf að færa niður
ýmsa útgjaldaliði, sem mönnum
er mjög sárt um.
Hér er þó sú mikla bót í máli,
að ófriðarástandið skapar mögu-
leika fyrir niðurskurði eða lækk-
un nokkurra stórra útgjaldaliða,
sem undir venjulegum kringum-
stæðum hefði ekki verið talið
fært að lækka verulega eða fella
niður. Er hér einkum átt við
framlög til landhelgisgæzlu, sem
ætti að mega minka vegna þess,
að ásókn togara í landhelgi verð-
ur væntanlega mun minni en
áður, meðan ófriðurinn stendur.
Ennfremur framlög til bygginga
ýmiskonar og tækjakaupa, t. d.
byggingar- og landnámssj óðs,
verkfærakaupasjóðs, framlag til
fiskimálasjóðs, sem notað hefir
verið til nýrra frystihúsa og til
bátabygginga. Hefir ríkisstjórn-
in gert tillögur um lækkun á
þessum greiðslum. Fyri-r þessum
niðurskurði hafa skapast mögu-
leikar, þvi að ókleift verður að
leggja út í nýbyggingar að
nokkru ráði meðan verðlag er
eins hátt og nú er, og verða mun
um skeið.
Framsóknarflokkurinn mun
fylgja þessari niðurfærslu ein-
dregið eins og nú horfir og með
tilliti til þess sérstaka ástands,
sem skapazt hefir af völdum ó-
friðarins. En jafnframt er rétt,
að það komi skýrt fram, að þetta
ber á engan hátt að skilja þann-
ig, að Framsóknarflokkurinn
álíti óhætt til frambúðar að
hætta stuðningi við framleiðsl-
una, sem falizt hefir í þeim fjár-
veitingum, sem nú hafa verið
taldar. Flokkurinn álítur nauð-
synlegt að styðja menn til þess
að eignast báta, byggja frysti-
hús, styðja starfsemi byggingar-
og landnámssjóðs og verkfæra-
kaupasjóðs, enda þótt hann álíti
rétt, eins og nú standa sakir, að
fella þessar greiðslur niður í
bili, bæði sökum þess að þörf er
fyrir þetta fé annarsstaðar
vegna afleiðinga ófriðarins, og
hins, sem áður hefir verið tekið
fram, að ekki er rétt að hvetja
menn til nýrra framkvæmda,
sem kosta erlent efni, á þeim
tímum, sem nú fara í hönd.
**
J6MS JÓNSSON:
Guðmundur Fríðjónsson