Tíminn - 28.11.1939, Side 4
552
TÍMIM, þrigjndagiim 28. nóv. 1939
138. blaft
Ylir landamærin
1. Brynjólfur Bjarnason kommún-
istaþingmaður var til almenns athlæg-
is í efri deild á laugardaginn. Frv. for-
sætisráðherra um breytingu á lögum
um lögreglumenn var til 1. umr. og
reyndi Brynjólfur að ráðast á það með
miklu offorsi. Forsætisráðherra svaraði
m a. með því, að rifja upp, að einu'
sinni hefði kommúnistum þótt gagn-
legt að hafa góða lögreglu, þar sem
engir menn hefðu leitað oftar á náðir
lögreglunnar til að biðjast verndar
hennar gegn öfgamönnum en komm-
únistar sjálfir. Þegar nazistar hefðu
átt hér mestu fylgi að fagna, hefðu
kommúnistar hvað eftir annað beðið
um vernd lögreglunnar, en eftirminni-
legust frá þeim tímum væri þessi saga:
Á þessum árum hefðu kommúnistar
aðallega haldið til í húsi, sem frá gam-
alli tíð gekk undir nafninu „Fjalakött-
urinn“. Einu sinni þegar nokkrir kom-
múnistar voru á fundi þar inni, hefðu
nazistar neglt fyrir hurðir og glugga,
svo kommúnistarnir komust ekki út.
Kommúnistar báðu þá lögregluna að
frelsa sig úr þessum raunum og kom
hún strax á vettvang, rak nazistana
í burtu og opnaði fyrir kommúnistun-
um.
2. Skrif íhaldsblaðanna um lögreglu-
frumvarp forsætisráðherra eru næstum
því eins bjánaleg og skrif kommúnista-
blaðsins. íhaldsblöðin virðast trúa því,
sem kommúnistablaðið heldur fram,
að með þessu frv. sé tekinn upp sú
stefna í lögreglumálunum, sem íhaldið
barðist fyrir á þingi 1925. Þetta
er regin misskilningur. Sú barátta í-
haldsins var fyrst og fremst miðuð við
það, að komið yrði upp lögreglu, sem
væri nógu sterk til að skakka leikinn
í vinnudeilum. Móti þeirri stefnu börð-
ust Framsóknarmenn og gera það enn.
Það er þvi alveg ástæðulaust fyrir i-
haldsmenn að fagna yfir frumvarpinu
af þessum ástæðum. Sá fögnuður get-
ur ekki orðið þeim nema til vonbrigða.
3. Ef íhaldsblöðin ætla að reyna að
gera tilraun til að andmæla því, að
varalögreglan, sem ihaldsstjórnin 1925
beittist fyrir, hafi ekkl fyrst og fremst
átt að notast í vinnudeilum, þykir rétt
að benda þeim á eftirfarandi ummæli
núverandi fjármálaráðherra frá þeim
tíma: „En einmitt í þessum löngu um-
rœöum hafa háttvirtir þingmenn feng-
ið margendurteknar yfirlýsingar fiœstv.
forsœtisráöherra fyrir því, að aðalhlut-
verk varalögreglunnar œtti að vera, að
skerast í leik í kaupgjaldsmálum gegn
öðrum aðilanum". (Alþt. 1925, C-deild,
827).
x+y.
Dánardægur
(Framh. af 3. síðu)
kynni voru þó svo hrörleg, að
fátt ungt fólk hefði tekið í mál
að hafast þar við til lang-
frama. En svo var rík sjálfs-
bjargarhvötin og ást barnanna
á foreldrunum, að þau létu slíkt
ekki á sér finna. Á síðastliðnu
vori réðust þau í að byggja lít-
ið, snoturt íbúðarhús og gegn-
um glugga þess skein sólin inn
til gamla mannsins, síðustu
æfistundir hans.
Með Hallvarði Ketilssyni er
til moldar genginn einn af síð-
ustu fulltrúum hinnar hverf-
andi kynslóðar, traustur og
vandaður til orða og verka, sí-
vinnandi og lífsglaður, en
nægjusamur, og biást aldrei
trausti nokkurs þess er eitthvað
áttl saman við hann að sælda.
M. F.
VAKA
Á ERINDI TIL ALLRA.
Gerist kaupendur að vandað-
asta tímariti landsins.
VAKA, REYKJAVÍK.
IJT6 BÆMJM
Næsta tölublað Tímans
kemur út á föstudaginn.
Félag ungra Framsóknarmanna
í Reykjavík heldur fund í Sambands-
húsinu annað kvöld. Hefst hann kl.
8.30. Rætt verður um konuna og þjóð-
félagsaðstöðu hennar. Málshefjandi:
Rannveig Þorsteinsdóttir. Að loknum
þeim umræðum verður rætt um upp-
eldisáhrif sveita og kaupstaða. Félags-
menn eru áminntir um að fjölmenna
og mæta réttstundis, kl. 8.30. Fólk,
sem kann að æskja inntöku í félagið.
getur gengið í það á fundinum.
Hljóðfæri brenna.
Á sunnudagsnóttina kom upp eldur
í húsinu Óðinsgötu 8, útbyggingu, þar
sem var hljóðfæravinnustofa Pálmars
ísólfssonar. Slökkviliðið var kvatt á
vettvang og vann skjótlega bug á eld-
inum, en þá voru yfir tuttugu hljóð-
færi eyðilögð eða stórskemmd. Voru
það bæði píanó og orgel.
Friðarvinafélagið
heldur fund í Oddfellowhúsinu uppi
í kvöld. Fundurinn hefst klukkan 8,30.
Kar töf luuey zla.
(Framh. af 1. síðu)
smælki og allar kartöflur, sem
eru sýktar eða illa útlítandi, og
nota það til fóðurs. Vöruvöndun-
in kemur meira en ella til greina,
þegar nóg er til af vörunni. Góð-
ar kartöflur verða lengi seljan-
legar, hvað sem öðru líður.
í rauninni er það hlægilegt,
að þurfa að tala um ofmikla
kartöfluframleiðslu á þessum
tímum. En það er ærið alvarlegt
mál, að þjóðin kann ekki betur
að hagnýta þessa innlendu
framleiðslu en svo, að neyzlan
er aðeins brot af því, sem hún
ætti að vera, þarf að vera og
getur verið, öllum til hags, en
engum til skaða.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. siðu)
lenzka skipið „Spaarndom“, 9
þús. smál. Bretar vinna nú að
því að slæða tundurdufl af
miklu kappi og hafa útgerðar-
menn boðið ríkisstjórninni fleiri
togara til þeirra starfa en hún
hefir þörf fyrir. Virðast Bretar
vongóðir um, að þeim takist að
sigrast á tundurduflahætt-
unni.
Sænska stjómin hefir látið
mótmæla því í Berlín, að Þjóð-
verjar hafa lagt tundurduflum
í þriggja mílna fjarlægð frá
ströndum Svíþjóðar, en Svíar
telja sig hafa hefðbundinn rétt
til fjögra mílna landhelgi.
Krefjast Svíar m. a. skaðabóta
fyrir allt það tjón, sem þeir
verða fyrir af völdum þessara
tundurduflalagna. Þá halda
Þjóðverjar um 40 sænskum
skipum í þýzkum höfnum og eru
flest þeirra hlaðin trjáviði til
Ameríku. Vekja bæði þessi mál
mikla gremju í garð Þjóðverja
í Svíþjóð.
Nokkur ríki hafa mótmælt
þeirri ákvörðun Breta og
Frakka að taka allar útflutn-
íngsvörur Þjóðverja hernámi.
Það vekur athygli, að engin
mótmæli hafa borizt frá stjórn
Bandaríkjanna, en athygli er
vakin á því, að Bandaríkja-
Gód tíðindi
Tímanum barst á laugardag-
inn eftirfarandi tilkynning frá
stjórn Eimskipafélags íslands:
„Vér leyfum oss hérmeð að
beiðast þess að þér birtið í blaði
yðar, að skipasmíðastöð Bur-
meister & Wain í Kaupmanna-
höfn hefir nú, af ástæðum, sem
ófriðurinn hefir valdið, sagt upp
samningi þeim við oss um smíði
fyrirhugaðs farþega- og farm-
skips, sem ræðir um í tilkynn-
ing vorri til yðar, dags. 20. júní
síðastliðinn."
Tilkynningin er undirrituð af
formanni og ritara félagsins,
Eggert Claessen og Jóni Ás-
björnssyni.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
svo mikið nauðsynjamál að setja
ætti lög, þar sem mönnum væri
gert að skyldu, að fleygja ekki
fiskúrgangi. Framkvæmd máls-
ins gæti orðið með þessum
hætti: Stjórnarvöld fæli hrepp-
stjórum á hlutaðeigandi útgerð-
arstöðum að halda hið bráðasta
fund.i með sveitarstjórnum og
útgerðarmönnum um þessi mál.
Þar sem hirðingin sé ekki kom-
in í lag og útgerðarmenn vilji
ekki annast hana, taki sveitar-
stjórnirnar málið í sínar hendur
og láti gera jarðgryfjur til
bráðabirgða, þar sem ekki sé
hægt að koma upp steinþróm
að þessu sinni. Þeir, sem annist
aðgerð fiskjarins, séu síðan
skyldir til að fleygja úrgangin-
um í tilheyrandi stampa, en
sveitarstjórnin sjái um flutn-
ing og tæmingu þeirra í gryfj-
urnar. Þennan áburð láti sveit-
arstjórnirnar síðan þeim mönn-
um í té, er þörf hafa fyrir hann,
ókeypis eða gegn vægu gjaldi,
sem vegur á móti áföllnum
kostnaði. Ýmsum mun kannske
finnast hart að gengið, að skylda
útgerðarmenn til að afhenda
þannig fiskúrganginn, án end-
urgjalds, en það kemur því að-
eins til þess, að þeir vilji ekki
hirða hann sjálfir.
* * _ *
Þessar tillögur Árna eru hin-
ar athyglisverðustu og er það
vissulega stórhneyksli, að fisk-
úrganginum skuli fleygt á
mörgum útgerðarstöðum á sama
tíma og menn, bæði þar og í
nágrenninu verja stórfé til á-
burðarkaupa. Á slíku þarf að
ráða bót sem allra fyrst. Vissu-
lega væri æskilegt, að sveitar-
stjórnir, búnaðarfélög eða aðrir
slíkir aðilar hefðust handa um
þetta mál, án opinberrar íhlut-
unar, en gerist það ekki, verð-
ur hið opinbera að láta málið til
sín taka.
stjórn hafi mótmælt einni
sjóhernaðarráðstöfun B r e t a
nokkru áður en þeir gengu í lið
með þeim 1 seinustu heims-
styrjöld.
Japanski forsætisráðherrann
hefir nýlega sagt í útvarpsræðu,
að þjóðin mætti búa sig undir
það, að styrjöldin í Kína gæti
enn varað í 5—10 ár.
Guðmundur
Friðjónsson
(Framh. af 3. síðu)
ráð jafnan bezt gefast. Sigurjón
Friðjónsson, bróðir Guðmundar,
bar fram tillögu Heimastjórnar-
manna, og voru þær ætíð sam-
þykktar með yfirgnæfandi
meirahluta. En þegar Guðm.
Friðjónsson eða aðrir Valtý-
ingar komu til að boða trú sína,
kom sýslumaður Þingeyinga,
Steingrímur Jónsson, bróðir
Péturs á Gautlöndum og lagði
þunga lögfræðiþekkingar sinn-
ar á vogarskálina móti hinum
fámenna andstöðuflokki Heima-
stjórnarmanna. Að öðru leyti var
fundarsalurinn þéttskipaður
gætnum og athugulum bænd-
um, sem í eitt skipti fyrir öll
höfðu komizt að þeirri niður-
stöðu, að dr.Valtýr hefði á röngu
að standa. Þeim kom ekki til
hugar að láta lærisveina hans
telja sér hughvarf.
Eftir að sambandslagadeilun-
um lauk um sinn með fullveld-
issáttmálanum 1918, var liði
fylkt að nýju í íslenzkum lands-
málum. Mikill meirihluti Þing-
eyinga hélt þá jafnfast við
stefnu Framsóknarmanna, eins
og þeir höfðu áður veitt Heima-
stjórninni öruggt brautargengi.
En Guðmundur Friðjónsson fór
enn aðra leið, og gerðist and-
stæðingur Framsóknarmanna og
átti í þrálátum skæruhernaði um
stór og lítil baráttumál líðandi
stundar við nokkra af þeim
mönnum, sem mest rituðu í blöð
Framsóknarflokksins. Um Al-
þingishátíðina 1930 komst á
sáttagerð milli Guðmundar
Friðjónssonar og þeirra manna
í Framsóknarflokknum, sem ver-
ið höfðu aðilar í deilum frá hlið
þess flokks. Hefir sú sætt verið
vel haldin á báðar hliðar.
Hér er ekki staður eða stund
til að ræða um það, að hve
miklu leyti minnihluti eða meiri-
hluti um landsmál hefir rétt eða
rangt fyrir sér um deilumál lið-
inna tíma. Ibsen segir, að minni-
hlutinn hafi ætíð á réttu að
standa. Fræðimenn þingstjórn-
arkenninganna fullyrða, að
meirihlutinn hafi ætíð á réttu
að standa. Sú hlið máls-
ins verður ekki rædd hér.
En það sem skiptir máli í þessu
sambandi er, að Guðmundur
Friðjónsson átti ekki einungis
við þá erfiðleika að stríða í bók-
menntaiðju sinni, að vera efna-
lítill einyrki með stóra fjölskyldu
á mannfrekri jörð í afskekktri,
veglítilli sveit, heldur hafði
hann auk þess orðið fyrir harka-
legri og ósanngjarnri andstöðu
á vígvelli bókmenntanna, og að
lokum hafði hann um þrjátíu
ára skeið verið mjög einn síns
liðs um félagsmálaskoðanir í
átthögum sínum. í strjálbýli
sveitanna finnur fólkið sterka
og heilbrigða þörf til að standa
saman og styðja hver annan
innbyrðis um sem flest mál.
Fyrir skáld með heitar lífsskoð-
anir og viðkvæma lund var hin
langvinna einangrun í átthög-
unum nýtt lóð á andstæðri vog-
arskál.
IV.
Viðhorf Guðmundar Friðjóns-
sonar til sveitanna og áhuga-
mála þeirra var með sérkenni-
legum hætti. Hann var bóndi og
bóndason, og hefir alla æfi átt
heima á sömu jörðinni í sveit.
Mikið af skáldskap hans í
bundnu og óbundnu máli er um
sveitir og sveitalif. Hann hefir
auk þess þrásinnis tekið þátt í
málum, þar sem tekizt hefir ver-
ið á um gildi sveita og kaup-
staða. En þrátt fyrir þetta hefir
frá upphafi verið nokkur þver-
brestur í byggðatrú skáldsins á
Sandi. Þorgils gjallandi, Indriði
á Fjalli og Stephan G. Steph-
ansson voru bæði bændur og
skáld og undu glaðir við hlut-
skipti sitt. Þorgils gjallandi var
einyrki eins og Guðmundur
Friðjónsson. Báðir unnu að
heyskap á sumrin og gegningum
á vetrum. Báðir hafa ritað
skáldsögur úr sveitalífinu. Frh.
F i skimálaneínd
(Framh. af 1. síðu)
2 „Mias“, 30 ha. „Diesel“vélum.
Frystivélarnar voru settar í
skipið 1935 og eru taldar mjög
góðar. Var skipið það ár og 1936
notað við Grænland og frysti
um borð lúðu og flutti til Eng-
lands.
Hjálparvélin er 120 hestafla
Bolinder, úr sér gengin og verð-
ur því tekin burtu, en í hennar
r°"“‘*.""GAMLA BÍÓ’*0—0**0-1
Mannequin
Áhrifamikil og listavel
í leikin amerísk kvikmynd
gerð eftir skáldsögu
Katharine Brush.
i Aðalhlutverkin leika hinir
I vinsælu leikarar:
JOAN CRAWFORD
og
SPENCER TRACY.
Dalafólk
eltír Huldu
”~~~“NÝJA BÍÓ”——
ÖRLAGALEIÐIN
Amerísk kvikmynd frá Fox
er túlkar á fagran og
hugðnæman hátt sögu um
móðurást og móðurfórn.
Aðalhlutverkin leika:
BARBARA STANWYCK
og
HERBERT MARSHALL.
Myndin gerist i New York,
París og um borð í risa-
skipinu Normandie.
Aukamynd: Minningar
um Shakespeare, ensk
menningarmynd.
II
komið í bókabúðirnar.
32 Margaret Pedler:
búinn á svip og fátaði við stéttina á
glasi sínu, en Elizabet horfði athugul-
um augum á hann.
Þau höfðu sezt sitt á hvorn stól á
svölunum, sem snéru út að vatninu.
Sólin skein á þau milli vafningsviði-
klæddra súlnanna og sást glöggt hvað
líkt var með þeim og eins hvað ólíkt var
í svip þeirra. Andlit þeirra beggja voru
þunnleit, allt að því skarpleit og sýndu
mikið geðríki. Andlit Elizabetar var þó
mun ávalara, enda var hún svo ung.
Hár föður hennar var hrokkið og
hrafnsvart, en farið að grána ofurlítið
í vöngunum. Hár Elizabetar var alveg
eins, nema hvað tíminn hafði enn ekki
sett fingraför sín á það, og viðkvæmn-
issvipurinn um barnslegan munninn ‘
var alveg sá sami og á föður hennar.
En þar með var líka líkingunni lokið.
Hörund Candys var dökkbrúnt, en þó
að hörund Elizabetar bæri merki hinn-
ar suðrænu sólar, þá hélt það samt
fögrum, bleikum lit. Barnslegt höfuð
hennar var mjög eftirtektarvert. Hárið
hrafnsvart og hrokkið, hörundið til-
tölulega ljóst og varirnar eðlilega rauð-
ar. En eftirtektarverðust voru þó aug-
un. Augnabrúnirnar voru svartar og
beinar, nokkuð breitt á milli augnanna,
augun sjálf grá, án þess að nokkuð
blátt sæist í þeim, og augnahárin voru
Laun þess ilðna 29
skoðun í málinu, eftir var aðeins að gera
þær ráðstafanir, sem þurfti til fram-
kvæmda, og til þess treysti hún Frayne 4
vel.
Fjóla vissi að það gat vel verið að
Elizabetu félli þetta miður. En henni
fannst ómögulegt að þau hjónin fórn-
uðu sínu lífi algerlega á altari Elizabet-
ar. Henni fannst, með sjálfri sér, að til
þessa hefði verið tekið allt of mikið til-
lit til Elizabetar. Þau höfðu nú dvalið
heilt ár í Villa Ilario, að undanteknum
tveim eða þrem mánuðum, um kaldasta
tíma vetrarins, sem þau höfðu dvalið
við frönsku Riveraströndina. Elizabet
hafði jafnvel farið þangað með þeim, og
Fjólu fannst að allt þetta ár hefði far-
ið í það að þóknast Elizabet, eða til þess
að „láta hana njóta heimilislífs eftir
þessa löngu dvöl í heimavistarskólan-
um“, eins og Frayne orðaði það.
Fjólu hafði sjálfri fundizt þetta
„heimilislíf" ákaflega þreytandi. Eftir
að hún giftist, vandist hún sífelldum
ferðalögum. Hún var vön því að vera
árlega nokkurn tíma í París, eða ein-
hverri borg á suðurströnd Frakklands
og nokkrar vikur á ferðalagi um lítt
byggð lönd eða óbyggð. Henni fannst
þess vegna að þetta fábreytta líf í húsi
Fraynes við Cono-vatnið svo þreytandi,
að það lá við að hún gæti grátið yfir
Fyrra bindið læst einníg með lækkuðu verði.
Útgefandi.
Utsvör —
Lögtak.
\ú ííiis mánaðamótin falla dráttarvextir á
síðasta bluta átsvara til bæjarsjóðs Reykja-
víkur árið 1939.
Lögtök verða gerð, án frekari aðvörunar,
fyrst «g freuast bjá þeim, sem cnn hafa ekk-
ert g'reitt af átsvari ársins.
Reykjavík, 27. nóvember 1939.
II o i'gii r B‘ii si rin n.
Géðir götuskór
(með rostungsieðursólum), íyrir karl-
menn, nýkomnir.
Verksmiðjnútsalan
Gefjun — Iðunn
Aðalstræti.
THE WORLD'S GOOD NEWS
will come to your home every day through
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR
An International Daily Netvspaper
It records for you the world’s clean, constructlve doíngs. The Monitor
does not exploit crlme or sensatlon; nelther does it ignore them,
but deals correctively with them Features for busy men and all the
family, including the Weekly Magazine Section.
The Christlan Sclence Publishing Society
One, Norway Street, Boston. Massachusetts
Please enter my subscrípfion to The Christinn Science Monitor for
a period of
1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00
Wedner.day issue. ’ncluding Magazine Section: 1 year $2.00. 6 issues 25o
Name___________________________________________
Sampie Copy on Request
Til auglýsenda.
Tíminn er gefinn út í fleiri eintökum
en nokkurt annað blað á íslandi. Gildi
almennra auglýsinga er í hlutfalli við
pann fjölda manna, er les pær. Tíminn er
öruggasta boðleiðin til flestra neytend-
anna í landinu. — Þeir, sem vilja kynna
vörur sínar sem flestum, auglýsa pœr
pess vegna í Tímanum
Bókaútgáfa S. U. F.
biður umboðsmenn sína að leggja sig fram um söfnun á-
skrifenda að næsta bindi ritgerffasafns Jónasar Jónssonar.
Alla áskriftalista þarf að senda innan skamms til Jóns
Helgasonar, pósthólf 961, Reykjavík. Verð bókarinnar er
5 krónur óbundin, 7,50 í bandi.
stað keypt ný 250 ha. „Hansa“
Dieselvél.
Búizt er við að Arctic geti
flutt um 400 smál. af frystum
fiskflökum í einu eða um 450—
400 smál. af kolum eða annari
þungavöru.
Skipið ætti að geta komið
hingað heim snemma í janúar.
Umboðsmenn fiskimálanefnd-
ar við skipskaupin voru þeir Óli
Vilhjálmsson framkvæmdastjóri
S. í. S. og Dir. Emil Nielsen í
Kaupmannahöfn.