Tíminn - 14.12.1939, Qupperneq 3

Tíminn - 14.12.1939, Qupperneq 3
145. blafS 5ZO IVN, fimmtndagmn 14. des. 1939 579 B Æ K U R A N N A L L Þórður Kristleifsson: Tónlístarmenn I. Út- gefandi ísafoldar- prensmiðja. Verð kr. 5.00, 120 bls. íslendingar hafa alltaf unnað orðsins list — skáldskaparlist- inni. Þeir hafa líka jafnan haft litla möguleika til að njóta ann- arra listgreina. Menningarlífi þjóðarinnar hefir lengst af ver- ið þannig háttað, að eigi hafa gefizt tækifæri til fjölbreyttra listiðkana. Á síðustu áratugum hefir orð- ið á þessu mikil breyting. ís- lendingar leggja nú stund á margar listgreinar, sem áður voru hér lítið eða ekkert þekkt- ar. Með bættum ytri skilyrðum hefir listhneigð þeirra getað notið sín við ný og margvísleg viðfangsefni. Þar hafa þeir einn- ig reynzt vel hlutgengir og sýnt ótvíræða hæfileika til afreka. Allir munu fagna því, að ís- lenzkt menningarlíf hefir þann- ig orðið fjölbreyttara. Útvarps- hlustendur eiga þess nú til dæm- is kost, að hlýða á tónverk, sem áður var ekki hægt að flytja nema í sönghöllum stórborg- anna. — Útvarpið getur án efa átt mikinn þátt í að efla hljóm- listarlíf og söngmennt þjóðar- innar. Enn mun þó tónlistar- flutningur þess ekki njóta al- mennt eins mikilla vinsælda og flest annað, sem það flytur. Til slíks liggja ýmsar orsakir. Það eru skiptar skoðanir um, hvers konar tónlist eigi einkum að flytja. Aðalástæðan mun þó vera önnur. — Margir íslendingar vita mikið um helztu innlenda og erlenda rithöfunda. Þeir hafa lesið bækur þeirra, geta rætt um þær af þekkingu og áhuga og kunna skil á helztu bók- menntastefnum. Hins vegar nær þekking þeirra á tónlistar- mönnum og tónverkum yfirleitt miklu skemmra. Þessi mismun- ur er eðlilegur. Bókmenning þjóðarinnar er gömul og þrosk- uð, en tónlistarmenning hennar er enn í bernsku. Þar er mikið kynningar- og fræðslustarf ó- unnið. ísafoldarprentsmiðj a hefir nú gefið út mjög aðgengilegt fræðslurit um 5 heimsfræga tónlistarmenn. Það er samið af Þórði Kristleifssyni, söngkenn- ara héraðsskólans á Laugar- vatni. — Fyrsti og lengsti kafli þess fjallar um þýzka tónsnill- inginn Ludvig von Beethoven. Saga hans er bæði merkileg og sérstæð. Þrátt fyrir slæmt upp- eldi tekst honum að afla sér góðrar hlj ómlistarmenntunar og tónverk hans ná brátt mikilli hylli. En saga hans er ekki að- eins um mikla og merkilega Afmæli. Vilmundur Ásmundsson verka- maður í Ánanaustum C í Ryík varð sextugur 9. desember síð- astliðinn. Vilmundur hefir bú- ið hér í bænum í um tuttugu ár, en er ættaður úr Árnessýslu og dvaldi þar fyrri hluta æfi sinnar. Hann er kvæntur Val- gerði Jónsdóttur og eiga þau hjón sex börn. frægð. Hún er líka raunasaga. Rétt þegar hann er orðinn full- þroska listamaður tekur heyrn hans að bila, og síðar verður hann alveg heyrnarlaus. Vel ætla, að æfistarfi tónskáldsins væri nú lokið. En eftir þetta minna afrek hans helzt á krafta- verk. Nú semur hann flest þau tónverk, er sigildust þykja og lengst munu halda nafni hans á lofti. — Hér segir einnig frá sjónlausa orgelsnillingnum B. Pfannstiehl. Saga hans minnir að sumu leyti á sögu Beethovens, þótt þeir væru annars ólíkir í flestu. Einn þátturinn er um Jóhann- es Brahms. Hann var allt í senn: ágætur píanoleikari, söngstjóri og tónskáld. Mikið af verkum hans hefir verið flutt í Rikisút- varpið af hijómplötum. Um það kemst höfundurinn svo að’ orði: „Sólskríkjurnar með undirleik næturgalanna syngja enn sína fögru söngva í tónverkum Brahms.“ Bókin er víða skrifuð í mjög skáldlegum stíl, enda get- ur slikt vel hæft efninu. Enn eru i bókinni frásagnir um tvo söngvara. Jenny Lind var viðfrægasta söngmær síðustu aldar. Hún hefir stundum verið kölluð sænski næturgalinn, og var einn af glæsilegustu fulltrúum nor- rænnar songlistar. — Hér er líka kafli um einn frægasta söngvara ítala, en þeir hafa löngum verið öndvegisþjóð í sönglist. Enrico Caxuso fæddist i borginni Napoli, sem þessi fal- lega setning hefir verið sögð um: „Sjá Napoli og dey síðan.“ Car- uso starfaði í söngleikahúsum um nálega 20 ára skeið og mun vera frægasti tenórsöngvari, sem uppi hefir verið. Áður en hann andaðist, hafði grammó- fónninn og hljómplatan borgið söng hans. Þess vegna er starf hans ekki aðeins tengt liðnum tíma. Um ókomin ár geta allir þeir, sem unna fögrum söng haldið áfram að njóta listar hans. — Tónlistarmenn I. er vönduð bók, bæði að frágangi og efni. í henni eru myndir af hinum 5 listamönnum. Höfundurinn skrifar um þá af mikilli vand- Tflkyniiing tíl kaupenda TÍMANS. Hér með er skorað á alla kaupendur Tím- ans, sem ekki hafa þegar greitt lelaðið fyrir yfirstandaudi ár, að borga andvirði þess fyr- ir lok þessa árs, annaðhvort beint til af- greiðslunnar í Heykjavík eða innheimtu- manna í viðkomandi héruðum. Þeir viðtak- ... . .• ramif.'' samsm endur hlaðsins, sena ekki greiða verð þess, mega gera ráð fyrir að hætt verði að senda þeina blaðið. ÚtgáSustjórn Tímans. virkni og samúð og tekst að veita ágæta fræðslu um líf þeirra og starf. Þórður Kristleifsson er mjög duglegur söngkennari og hefir sérstaklega mikinn áhuga á allri hljómlist. Hefir hann þegar sýnt það, bæði í kennslustarfi sínu og með ritstörfum um þessi mál. Þessi bók mun verða mjög kærkomin tónlistarvinum víðs vegar um land. Hún mun aðeins vera byrjun á því starfi, sem höfundurinn hyggst að vinna til að kynna hér sögu tónlistar- innar og afreksmanna í þeixri grein. Er ekki hægt annað að segja en vel sé af stað farið. Jón Emil Guðjónsson. J. Swift: Ferðir Gulli- vers I. — R. Kipling: Litli fílasmalinn. — Heimdallur. Bókaút- gáfa. Reykjavík. Báðar þessar bækur eru eftir heimsfræga brezka rithöfunda. Saga Gullivers í Putalandi hefir verið gefin út á íslenzku áður, og munu margir kannast við hana. Swift var uppi 1667—1745. Hann var fyrst og fremst ádeilu- skáld. Sumar af sögum hans eru þó sígildar barnabókmenntir. „Ferðir Gullivers“ hafa náð mik- illi frægð. Sú bók er alls í fjór- um köflum. Þessi fyrsti hluti er prýddur mörgum myndum um hið æfintýralega ferðalag til Putalands. Annar kaflinn mun verða gefinn út mjög bráðlega. Þar segir frá Gulliver í Risalandi. — í þessurn fyrra hluta bókar- innar nýtur hugmyndaflug skáldsins og gamansemi sín vel. Sérstaklega mun frásögnin grípa svo hug unglingsins, að hann vill helzt ekki hætta fyrr en lestri bókarinnar er lokið. — Kipling fékk bókmenntaverð- laun Nobels árið 1907. Bækur hans eru mjög fjölbreytilegar að efni. Hann var ljóðskáld, en og leiðtogum úr hópi gamalla nemenda mætti vænta mikils áhuga um skóla þann, er þeir höfðu dvalið í. Þetta hefix ekki reynzt svo, og skólarnir eru enn of ungir til þess, að nemendur þaðan hafi ennþá svo fasta að- stöðu um mannaforráð í átt- högum sínum, að ástæða sé til að halda því formi. Er þess vegna hér lagt til, að stofnend- ur og sýslunefndir velji eins og í upphafi skólanefndarmenn, nema formanninn. Að sjálf- sögðu koma gamlir nemendur síðar í stjórn skólanna, en þá koma þeir af því, að þeir eru áhrifamenn í héraði, en ekki elngöngu sem gamlir nemend- ur. Er hér gert ráð fyrir, að skólanefndir við alla héraðs- skólana verði endurskipaðar 1 vetur, vegna þess að skólarnir breytast að verulegu leyti með lögum þessum, auk þess sem þeir verða allir að endurskoða reglugerðir sínar fyrir næsta haust. Fram að þessu hafa héraðs- skólarnir yfirleitt ekki beinlínis gert ráð fyrir, að skólastjóri og kennarar hafi þurft að dvelja á skólaheimilinu nema vetrar- tímann, og ef til vill vorið. Sumstaðar hafa skólanefndirn- ar leigt óviðkomandi mönnum skólahúsin til gistihúshalds yfir sumarmánuðir^a. Kaupgreiðsla til starfsmanna skólanna hefir verið bundin við vetrarmánuð- ina. Reynslan hefir sýnt, að þessu má ekki svo fram fara. Það þarf að tengja skólastjóra og kenn- ara við skólana allt árið. Það er vandasamt að gera þann stað að fyrirmyndarheimili fyrir ungt fólk, sem er svo að segja lagður í eyði hálft árið. Hér er stefnt að því, að skólastjóri og kennarar hafi heimili og starfs- svið á skólaheimilinu bæði vet- ur og sumar, að fráteknu á- kveðnu sumarleyfi. Það er full- sannað, að í sveit er ekki hægt að vera iðjulaus, hvorki vetur eða sumar. Ef kennari við hér- aðsskóla fær nægilegt lifibrauð af vetrarstarfi sínu og ráfar um eins og slcuggi á sumrin, þá leiðist honum lífið, og lærisvein- ar skólans finna, að hann á ekki heima í starfslífi sveitanna. Enginn maður getur verið raun- verulega æskilegur starfsmaður við héraðsskóla, nema hann sé sívinnandi, líkamlega eða and- lega vinnu, og að hann hafi nautn af að vinna. Þessir skól- ar þurfa hrausta og lífsglaða athafnamenn í starfslið sitt, af því að tilgangurinn er að gera nemendurna að hraustum og áhugasömum mönnum. Við hvern héraðsskóla verð- ur að hafa búskap. Sumstaðar á við, að skólinn sjálfur starf- ræki stórbú. Kennarar h^fa þá víða skilyrði til garöræktar og gróðurhúsaræktar. Á öðrum stöðum eru skilyrðin á þann veg, að hver kennari hefir smá- bú fyrir sig og sinnir því á sumrin, en hefir eftirlit með því á vetrum. Þar, sem gistihús er rekið, þarf venjulega skóla- stjóra eða tiltekinn kennara til að hafa yfirumsjón með rekstr- inum. En auk þess eru fjölmörg störf í skólans þágu fyrir kenn- arana, svo sem að sinna skóg- rækt og garðyrkjumálum, starfa að byggingum og smíðum vegna skólans, eða að rita í þágu skól- ans bækur til afnota við kennsl- una. Þar sem skólastjóri og kennarar dvelja á skólastaðnum sumarlangt og vinna að því að fegra staðinn og bæta, þá verður skólinn með þeim hætti það, sem hann á að vera, ekki aðeins stærsta heimilið í hér- aðinu, heldur líka gott og heilsusamlegt heimili. Eitt af því, sem þarf að skipu- leggja í hverjum héraðsskóla, er að allir kennarar taki hönd- um saman um að sinna nem- endum, líka utan kennslustund- anna. Skólastjóri og kennarar verða að skiptast á um að sitja 2—3 til borðs með nemendum, þó að þeir hafi annars heimili fyrir sig. Ef kennarar sitja ekki til borðs með nemendum, og það fleiri en einn, kemur sjó- búðarbragur á samlíf þeirra og þeir læra ekki einu sinni venju- lega mannasiði við borðhald. Á sama hátt ber skólanefndum að leggja á hendur kennara að vera til aðstoðar og umsjónar í heimavistum nemenda og í svefnloftum, ef þau eru til. Þetta er fram tekið hér af því, að síðan kennarastéttin gerðist fjölmenn, hefir tekið að brydda á þeim hugsunarhætti, að kenn- arinn væri aðeins verkamaður fyrir ákveðið kaup í tímavinnu hjá mannfélaginu. En þar, sem sá hugsunarháttur ríkir, verður lítið um uppeldisáhrifin í skól- unum. Niðurl. næst. ekki síður snillingur í frásögn hins óbundna máls. Hann hefir m. a. lýst Indlandi og indversku lífi dásamlega vel og skrifað margar dýrasögur, sem oft hafa á sér heillandi æfintýrablæ. „Litli fílasmalinn“ er líka mjög skemmtileg saga. Toomai | er 10 ára indverskur drengur. i Stærsti draumur hans er að verða duglegur fílasmali. Hann hefir alizt upp með Kala Hag, sem er gamall svartur fíll, sem faðir hans stjórnar. Toomai lendir í miklum æfintýrum. — Hann sér fíladansinn, sem eng- inn maður hafði áður séð. Gamli fíllinn hleypur með hann gegn um myrkan frumskóginn inn í skógarþykknið, þar sem fílarn- ir stíga sinn hrikalega dans. — Þessi saga hefir verið kvikmynd- uð og er bókin prýdd ágætum myndum úr þeirri kvikmynd. Ceylon. 206 bls. Verð 8 krónur ób., 10 krón- ur 1 bandi. Indland er fjarlægur töfra- heimur í huga sérhvers íslend- ings. I þeirri veröld rúmast hin indverska dulspeki, fakírar og töframenn, og fágætt dýralíf og gróðurfar. Nýlega hefir komið út á íslenzku greinargóð bók, sem mestmegnis fjallar um eyj- una Ceylon við Indlandsstrend- ur og lífið þar. Bók þessi er rit- uð af þýzkum manni, John Hagenbeck, bróður hins fræga dýragarðseiganda í Hamborg, Carls Hagenbecks, en íslenzkað hefir Ársæll Arnason. Hann gef- ur bókina einnig út. Bókin hefst á stuttri frásögn um bernskuár höfundarins og hinn fyrsta kunningsskap hans af ýmsum villtum dýrum, sem fönguð höfðu verið í heim- kynnum sínum og flutt til Norð- urálfunnar á vegum bróður hans. Ungur að aldri fór hóf- undurinn leiðangur til Ceylon til þess að veiða þar og kaupa dýr, en síðar dvaldi hann í 25 ár í Ceylon við ýmsan atvinnu- rekstur, þar til honum var vísað úr landi í byrjun heimsstyrj- aldarinnar 1914. í bók þessari eru margar skemmtilegar frásagnir um (Framh. á 4. slðuj 20( 30° 45' O S T A R frá Mjólkursamlagi Eyfirðinga alltaf fyrirlig-gfjandi í heildsölu. Samband ísl.samvinnuíélaga Sími 1080. Koníektöskjur til jótagjaía tekjuafgangur eítir árið. C^kaupfélaqió ÚTBREIÐIÐ TÍMANN 60 Margaret Pedler: Laun þess liðna 67 mennilega gert sér grein fyrir, hvernig þetta hefði skeö allt saman. Hún mundi aðeins eftir því, að skellirnir í vélinni höfðu allt í einu orðið háir og nálægir, svo hafði verið skipað: „Inn með árarn- ar, fljótt!" Svo hrikti í þegar öldurnar lömdu þeim saman og á næsta andartaki laut einhver yfir borðstokkinn til henn- ar, hún fann sterkar hendur taka undir hendur sér og heyrði hvassa rödd skipa: „Takið utan um hálsinn á mér, — fast!“ Hún hafði ósjálfrátt hlýtt. Á næsta and- artaki skullu bátarnir aftur saman niðri í öldudal og öldufaldarnir gnæfðu beggja vegna. Elizabet skelfdíst og fannst ó- mögulegt annað en að báðir bátarnir sykkju. Þá fann hún, að hún hófst á loft og lenti í vélbátnum heilu og höldnu. Þetta hafði allt skeð á svipstundu, en samt aðeins nógu fljótt. Öldurnar, sem höfðu skellt bátunum saman, hvolfdu sér yfir litla róðrarbátinn svo að hann hvarf algerlega, um leið og Elizabet hné niður á bekkinn, og kom ekki í ljós aftur. „Þarna vorum við mátuleg,“ sagði köld rödd, sem bar keim af ofurlítilli, biturri glettni. Elizabet leit á manninn, sem hafði bjargað henni. Hann var grannur og brúnn. Hárið var brúnt og hörundið var jafn dökkbrúnt og á Candy. Augun voru góðleg og hreinblá, og sýndust vera bein vatninu nema hún. Snöggvast ætlaði Elizabet að verða úrvinda, þegar hún horfði á hvitfyssandi iðuna milli báts- ins og lands. En svo varð hún ákveðin i því að láta ekki bugast og knúði sig til þess að setjast aftur undir árar og róa í áttina til lands. Illviðrið jókst svo, að eftir fimm mín- útur var þessi viðleitni hennar greini- lega þýðingarlaus. Það lá við, að það væri ógerningur að halda bátnum upp í, vindurinn snéri honum sitt á hvað og skvetturnar lentu alltaf öðru hvoru inn yfir borðstokkana. Nú var hættan orðin alvara! Þessi fullvissa hafði skyndilega lamandi á- hrif á Elizabet. Hætta á að drukkna — lífshætta! Hún hafði aðeins farið til þess að róa um sólglitrandi vatnið dá- litla stund, eins og svo oft áður. Fyrir stundarfjórðungi síðan hafði hún setið á samanbrotnum ábreiðunum I bátnum og látið sig dreyma dagdrauma. Og nú virtist dauðinn fyrirsjáanlegur: sökkva, niður í skuggalegt, óþekkt en ógnandi djúp vatnsins. Það lá við að þetta væri hlægilegt, það var einhvernvegin svo ómögulegt. En þetta var allt í einu orð- ið mögulegt og ekki einu sinni mögu- legt, heldur hræðilega líklegt, já skelf- andi vissa. Þessar hugsanir þutu gegn um höfuð Elizabetar. Hún réri ákaft og

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.