Tíminn - 14.12.1939, Qupperneq 4
580
TtMllVIV, fimmtnclagiim 14» des. 1939
145. blað
YSir landamærÍQ
1. „Nýir tímar“ nefndist blað, sem
Héðinn Valdimarsson og félagar hans
gáfu út á laugardaginn. Þar virðist
koma fram sú skýring, að Olíuverzlun
íslands hafi átt drjúgan þátt í úrsögn
Héðins úr kommúnistaflokknum. Segir
beinum orðum á einum stað, að Al-
þvðuflokksmenn hafi gert ráð fyrir að
Olíuverzlunin missti umboð sitt í Eng-
landi, ef þeim tækist að stimpla Héð-
in Rússlandsvin og hafi þeir því látið
reka hann úr þingmannasambandi
Norðurlanda. Falla orð blaðsins á þá
leið, að ekki verður annað skilið en að
það álíti, að þessi fyrirætlun Alþýðu-
flokksmanna hefði heppnast, ef Héð-
inn hefði ekki séð við lekanum og sagt
skilið við kommúnista í tíma. Er það
líka mjög trúlegt, að brezkir auð-
kóngar vilji ekki hafa yfirlýsta komm-
únista fyrir umboösmenn sína. Þykir
blaðinu þessi ráðagerö Alþýðuílokks-
manna hin lubbalegasta og er auð-
sjáanlega hreykið yfir því, að Héðni
skuli hafa heppnast að bjarga olíu-
umboðinu.
2. Annars virðist skilnaður Héðins og
kommúnista grunsamlega friðsamlegur
og hefir sá orðrómur líka komizt á
kreik, að hér sé aðeins um herbragð
kommúnista að ræða. Þeim hafi verið
ljóst, að Moskvaþjónustan myndi fæla
marga fylgismenn þeirra frá þeim og
þessvegna hafi þeir sent Héðin út af
örkinni til að halda þessum mönnum
eins nálægt byltingartrúnni og frek-
ast væri unnt. Milli ilokksbrots Héöins
og flokksbrots kommúnista eigi því aö
vera fullkominn samvinna í verkalýðs-
félögunum, en leynisamvinna í stjórn-
málum. Þannig eigi að slá tvær flugur
í einu höggi. Bjarga olíuumboðinu fyr-
ir Héðinn og halda þeirn mönnum, er
annars hefðu yfirgefið sameiningar-
flokkinn, sem næst byltingarlinunni.
Reynslan mun sýna hvort þessi tilgáta
er rétt. En það mega Héðinn og kump-
ánar hans vita, að slíkur blekkinga-
leikur mun ekki koma að neinum not-
um. Sá, sem vinnur meö kommúnistum
eftir að þeir eru orðnir opinberir
fjandmenn þjóðarsjálfstæðisins, er
kommúnisti og er aðeins þaö verri en
þeir, að hann þorir ekki aö ganga
hreint til verks, heldur kemur fram í
fölsku gerfi. Héðni Valdimarssyni mun
því lítiö gagna úrsögnin úr sameining-
arílokknum, ef hann heldur áíram
eftir sem áður að vinna meö komm-
únistum.
3. Sú saga gengur einnig, að lrinn
íriðsamlegi skilnaður Héðins og komm-
únista muni eiga rætui' sínar að rekja
til þess, að gerzt hafi mjög leiðinlegur
atburöur rétt áður en úrsögn Héöins
var tilkynnt, og vilji báðir aðilar halda
honum leyndum, en óttist að hann
komi frarn í dagsljósið' ef rifrildið yröi
mikið fyrst í stað. Þessi atburöur á
aö hafa átt sér stað í sambandi við
ágreining um plögg flokksins. Mun
þetta allt skýrast áöur en langt um
líður og er því óþarft að vera með
nökkra spádóma nú.
x+y.
Aístaóa ííi kommúuista
(Framh. af 1. síðu)
menn sína til aö berjast gegn
andstæðingunum af „brennandi
ofstæki" og aö fleiru leyti myndi
ekki svífast þess aö beita sömu
aðferöum og kommúnistar, ef
þeim gæfist aöstaöa til þess.
Formaður félagsins minntist
hinnar hreystilegu baráttu
Finna fyrir þeim hugsjónum,
sem væru islenzku þjóðinni
helgastar. Um það mál sam-
þykkti fundurinn eftirfarandi
ályktun:
„Fundur í F. U. F. í Reykjavík
12. des. 1939 lýsir samúð sinni
með finnsku þjóðinni í frelsis-
stríði hennar. Fundurinn dáir
hreysti hennar og hugrekki og
hyllir hana sem útvörð frelsis-
ins.“
Báðar tillögurnar voru sam-
þykktar í einu hljóöi.
Ctr bæwum
Stækkun Sundhallarinnar.
Fyrir síðasta bæjarráðsfundi, sem
haldinn var á föstudaginn síðastliðinn,
lá bréf frá forstjóra sundhallarinnar,
þar sem gerð er grein fyrir áætlunum
og stækkun sundhallarinnar, svo að
hægt væri að koma þar fyrir gufubað-
stofum og kerlaugum.
Mjólkur- og lýsisgjafir
í barnaskólum bæjarins hófust á
mánudaginn var. Á síðasta bæjar-
stjórnarfundi bar Soffía Ingvarsdóttir
fram þá tillögu, að hefja strax mat-
gjafir í skólunum. Var tillögu vísað
til bæjarráðs, er tók þá ákvörðun á
fundi sínum á föstudaginn, sem hér
getur um.
Unglingar á refilstigum.
Starfslið lögreglunnar hefir um skeið
unnið að því að upplýsa ýmsa þjófn-
aði, sem framdir hafa verið hér í bæn-
um upp á síðkastið. Hefir þetta leitt
til þess, að um tuttugu menn, nær allt
unglingar innan tvítugsaldurs, hafa
orðið sannir að sök um hnupl og grip-
deildir. Þó munu eigi öll kurl komin til
grafar enn.
Ferðafélag íslands
heldur Finnlandskvöld að Hótel Borg
í kvöld og verður húsið opnað kl. 8.30.
Rennur ágóðinn í samskotasjóðinn
finnska. Sigurður Einarsson dósent
flytur erindi um Finnland. Dans til
kl. 1.
Blindravinafélag íslands
beinir því til þeirra bæjarbúa, sem
kynnu að vilja gleðja blint fólk nú um
jólin, að gjöfum og peningasendingum
má koma til Þorsteins Bjarnasonar í
Körfugerðinni í Bankastræti. Blint
fólk 1 Reykjavík er um 65 að tölu, en
nær 400 á öllu landinu.
Dvöl,
3. hefti, 7. árg. er nýkomið út, fjöl-
breytt og læsilegt að vanda.
Vetrarhjálpin,
er um þessar mundir að safna
gjafafé og munum til starfsemi sinnar
hér í Reykjavík. Fóru skátar um vest-
urbæinn í fyrrakvöld og söfnuöu gjöf-
um, en um austurbæinn í gærkvöldi.
í vesturbænum söfnuðust alls 2035
krónur í peningum, en það er 725
krónum meira en í fyrra. í austur-
bænum söfnuðust 3895 krónur í pen-
ingum og er það 1640 krónum meira
en í fyrra. Skátar þeir, sem unnu að
söfnuninni, voru alls um 100. Úthlutun
gjafa hefst á morgun, en alls hafa
borizt um 500 hjálparbleiðnir nú þegar.
Guðspekifélagar.
Septíma heldur fund annað kvöld
kl. 8.30. Efni: Rödd nýliðans.
Jólin nálgast.
Eins og að undanförnu tekur Mæðra-
styrksnefndin á móti gjöíum til jóla-
glaðnings handa fátækum mæðrum og
börnum þeirra. Skrifstofa nefndarinn-
ar í Þingholtsstræti 18 er opin daglega
frá kl. 4—7. Þeir, sem vilja styrkja
þessa starfsemi nefndarinnar, eru vin-
samlegast beðnir að beina gjöfum sín-
um þangað. Oft er þörf, en nú er nauð-
syn. MϚrastyrksnefndin.
Saía Rauðkuverksm.
(Framh. af 1. síðuj
rómur. Mun um 200 manns hafa
verið þarna saman komið. Þeg-
ar Þormóður hafði lokið máli
sínu, vildi Þóroddur fá að tala,
en Þormóður svaraði, að nú
fengju bæjarfulltrúar ekki að
tala, en öðrum fundarmönnum
væri það heimilt. Enginn kvaddi
sér þó hljóðs og stóð fundurinn
því ekki lengur.
Að vonum undu kommúnistar
og fylgifiskar þeirra illa þessum
endalokum og boöaði stjórn
Rauðkuverksmiðjunnar því til
almenns fundar siðastliðið
Síldveiðískíp til sölu.
LÍNUVEIÐARI, 100 smálestir, byggður 1923, raflýstur, með báta-
dekki og davíðum, síldardekki og línuspili, mjög ódýrt til
sölu. Lítil útborgun.
MÓTORBÁTUR, 36 smálestir, byggður úr eik í Frederikssund
1917, með 75 hestafla nýlegum Völund-mótor, raflýstur, með
síldardekki og línuspili. Þetta er einn af beztu bátum í ís-
lenzka fiskibátaflotanum, og er verðið afar lágt, en talsverð
útborgun, og bankatrygging fyrir eftirstöðvunum.
MÓTORBÁTUR, 34 smálestir, byggður 1917, með nýlegri 110
hestafla June Munktel-vél, raflýstur, með síldardekki og
línuspili. Burðarmagn 550 mál. Verðið lágt, og borgunarskil-
málar mjög aðgengilegir.
MÓTORBÁTUR, 11 smálestir, með nýrri 32 hestafla June
Munktelvél. Báturinn er í sérstaklega góðu standi, og selzt
mjög ódýrt.
MÓTORBÁTUR, 27 smálestir, nýumbyggður, sterkur og góður
■ bátur. Skipinu fylgir gott dragnótaspil, og dragnótaveiðar-
færi. í kaupunum getur fylgt, ef vill, reknetaútbúnaður og
þorskanetaútbúnaður.
MÓTORBÁTUR, 8 smálestir, með 25 ha. Dieselvél. Raflýstur.
Dragnótaútbúnaður fylgir. Mjög ódýr. Útborgun 4000 krónur.
MÓTORBÁTUR, 18 smálestir, byggður 1930, með nýrri Wick-
manvél, raflýstur, með síldardekki og línuspili. Söluverð 24000
krónur. Útborgun 10000 krónur.
Allar nánari upplýsingar gefur
Óskar Halldórsson.
mánudagskvöld. Töluðu þar af
hálfu Framsóknarflokksins Þor-
móður Eyjólfsson og Ragnar
Guðjónsson kennari. Fjórir bæj-
arfulltrúar, Þóroddur Guð-
mundsson, Ole Hertewig, sem er
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
H. Schiöth, sem var kosinn af
Sjálfstæðisflokknum í bæjar-
stjórnina og Gunnlaugur Sig-
urðsson, sem er fulltrúi jafnað-
armanna, báru fram svohljóð-
andi tillögu:
„Almennur borgarafundur
haldinn 11. des. í bíóhúsinu á
Siglufirði, skorar á bæjarstjórn-
ina að láta engum takast að ná
„Rauðku“ úr eign bæjarins fyr-
ir lítið verð“!
Var tillaga þessi samþykkt.
í raun og veru er tillaga þessi
ekkert annað en staðfesting á
stefnu Framsóknarfélaganna,
þar sem tillögumenn viröast
ekkert hafa aö athuga við sölu
verksmiðjunnar, ef hún verður
seld fyrir sæmilegt verð að
þeirra dómi. Hafa þeir þannig
réttilega horfið frá þeirri stefnu,
sem þeir hafa áður haft í mál-
inu og glögglega var mörkuð í
hinni furöulegu dagskrártillögu
á bæjarstjórnarfundinum 6. þ.
mánaðar.
í sambandi við meðferð þessa
máls vekur það einna mesta
furðu, hversu bæjarfulltrúar
Sjálfstæðismanna og jafnaðar-
manna láta algerlega stjórn-
ast af ráðum kommúnista. Þeir
ganga meira að segja svo langt
í þessum efnum, að þeir hjálpa
kommúnistum til að beita full-
komnu fundarofbeldi með því
að leyfa flutningsmanni ekki að
mæla fyrir tillögu sinni. Er
þetta í fullkomnu ósamræmi við
þá afstöðu, sem þingmenn og
blöð þessara flokka hér hafa
tekið til kommúnista og verður
tæpast hægt að taka þau skrif
og ummæli þeirra alvarlega, ef
þeir gera ekki ráðstafanir til að
leiðrétta framferði flokksbræðra
sinna á Siglufirði.
58
Margaret Pedler:
Laun þess liöna
59
látlaust, þótt hana verkjaði í hand-
leggina, en öldurnar hentu litla bátn-
um til og frá á milli sín, svo að hún
réði ekki við neitt. Nú var kominn
pollur í bátinn við fætur henni, ískalt
vatn, sem barst ýmist aftur eða fram
um bátinn. Eina ölduna braut á kinn-
ungnum og ný gusa bættist við vatnið
í bátnum. Elizabet beit á jaxlinn og
réri áfram af alefli. Hún hafði enga von
framar, bátinn myndi áreiðanlega fylla
löngu áður en hún næði landi, en samt
hélt hún áfram að róa sleitulaust. Hún
var dálítið sljó, eins og þetta væri
draumur, eða öllu heldur hræðileg
martröð.
En allt í einu heyrði hún rödd gegn
um vindhvininn og ölduniðinn, manns-
rödd. Einhver kallaði, kallaði til henn-
ar yfir þyrlandi öldurnar. Hún hélt á-
fram að róa en Ieit samt við, yfir öxl
sér. Hún sá vélbát, sem veltist og hoss-
aöist í áttina til hennar og við stýrið
stóð karlmaður.
„Haldið áfram! Haldið áfram!“
Elizabet heyrði ekki orðin, en hún
sá, að hann veifaði hendinni til henn-
ar og hún heyrði óminn af röddinni.
Hún mældi með augunum vegalengd-
ina milli bátanna. Vélbáturinn hentist
til og frá, en streittist samt í áttina til
hennar. Yrði hann nógu fljótur? Gæti
hún haldið Carlottu á floti þangað til
hann kæmi? Öldurnar létu eins og þær
ætluðu að hrifsa árarnar úr höndum
hennar. Hún tók á af öllum kröftum og
reyndi að koma í veg fyrir að báturinn
bærist flatur undan öldunum. Ef hún
gæti haldið áfram í nokkrar mínútur
enn, þá yrði hún hólpin. En hún var
farin að þreytast. Handleggirnir virt-
ust dofnir af þreytu og hendurnar
krepptar og stirðar. Hún missti kjark-
inn. Hjálpin var svo nálæg, en samt
fannst henni ómögulegt að hún gæti
haldið áfram baráttunni þangað til
hún kæmi.
„Öllu er óhætt! Enga veiklun! Hald-
ið áfram!“
Aftur ómaði röddin gegn um veður-
hljóðið. Nú gat hún heyrt orðin, hug-
hreystándi, skipandi. Þau virtust knýja
hana til þess að halda baráttunni á-
fram.
Hún hélt áfram og varð allt í einu
viss um, að manninum, sem var á leið-
inni til að hjálpa henni, myndi ekki
mistakast.
V. KAFLI.
Maðurinn í vélbátnum.
Elizabet dró andann léttara, svo tók
vélbáturinn stóra veltu og hún hné nið-
ur á breiðan bekkinn. Hún gat ekki al-
SKIPAUTCERÐ
Vegna ferðar e.s. GULLFOSS
til Stykkishólms og Vestfjarða
núú um helgina, fer m.s. ESJA
héðan á föstudagskvöld beint til
ísaf jarðar án viðkomu á Breiða-
firði og Vestfjörðum.
M. s. HELGI
fer frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja n. k. laugardag.
Flutningi veitt móttaka til
hádegis sama dag.
Góð
Nokkuð margir kaup-
endur Tímans munu
bákakaun figa x- ár&- Dvalar.
DOKSKaup { 2 Qg 3 árg eru
samtals 58 hefti og í þeim m. a. yfir
100 stuttar skáldsögur. Þeir sem senda
10 kr. til afgr. fá 2. og 3. árg. burðar-
gjaldsfritt til baka. Líka sendir ef ósk-
að er gegn póstkr. Adr.: Dvöl, Rvík.
Xlænsnafóður.
Reynið hina bætaefnaríku
varpblöndu
H.F. FISKUR. — Sími 5472.
ÞÚSUNDIR VITA
að gæfa fylgir trúlofunarhring-
unum frá SIGURÞÓR, Hafnar-
stræti 4, Reykjavík.
Bækur
(Framh. af 3. síðu)
lifnaöarhætti ýmissa dýra, eink-
um fíla, og lýsingar á landi og
þjóð. Lýsingar hans á lífi Ceyl-
onbúa bera ekki aðeins vott um
þekkingu hans á hinum fram-
andi þjóðflokkum heldur og
skilning á tilfinningalífi og lífs-
viðhorfum og sannsýnu mati
á manngildi þeirra, þótt vest-
rænir menn hafi yfirleitt tam-
ið sér að lita niður á þá. Bókin
er því laus við þann kynþátta-
þótta, sem því miður á sér víða
seigar rætur.
Þýðingin er lipurleg og und-
antekningarlítið vel af hendi
leyst. Á stöku stað má þó finna
útlend orð, sem að sönnu eru
tíðla notuð, bæði í ritmáli og
talmáli, en þó auðvelt að sneiða
hjá. Orð eins og „konsúlat",
„hótel“, „registur“, „fag“,
„dama“ og ef til vill fleira af
sliku tagi. í öðru lagi má nefna
orð eins og að „yfirvega“.
Bókin er prýdd mörgum á-
gætum myndum.
Skortír fosfórefna-
sambönd í fóðrið?
(Framh. af 2. síðu)
engum efa bundið, að steinefna-
sambönd þau, sem finnast í
heyinu, eru ófullnægjandi, og
þá einkum fosfórsambönd, og
það er gefið, að fleirum en bónda
þessum mun reynast happa-
drjúgt að sjá svo um, að ekki
skorti steinefni í fóður kúnna.
8. nóv. 1939
Gísli Kristjánsson
° ——~GAMLA BÍÓ**o—
Vinírnir
Tilkomumikil og hrífandi
fögur kvikmynd um sanna
vináttu og fórnfúsa ást.
Aðalhlutverkin leika fjórir
heimsfrægir leikarar:
ROBERT TAYLOR,
FRANCHOT TONE,
ROBERT YOUNG og
MARGARET SULLIVAN
Ihin glæsilega leikkona,
sem öllum mun ógleyman-
leg, er sáu myndina —
„Aðeins ein nótt“.
NÝJA BÍÓ---
Guli
Iiershöfðmgmn
Ensk kvikmynd er sýnir harð-
vítuga baráttu enskra leyni-
þjónustumanna í Kína gegn of-
beldi uppreisnarforingjans Lu
beldi uppreisnarforingjans Wu
Ling. — Aðalhlutverkin leika:
ADRIANNE RENN,
GRIFFITH JONES
og hinn heimsfrægi mongólski
„karakter“-leikari INKIJINOFF.
Aukamynd:
Hnefaleikur
um heimsmeistaratign
Joe Lois gegn Max Schmeling,
Börn fá ekki aðgang.
Finnlandssöfnunín
heldur áfraiu. Tekið á móti gjöfnm Iijá Rauða
Kross íslands, Hafnarstræti 5, þriðju hæð,
BókaverzEun Sigfúsar Eyinundssonar ©g l\or-
ræna félaginu, Ásvallagötu 58.
Sleðaíerðir barna
Eftirtaldir staðir eru leyfðir fyrir sleðaferðir
barna:
Austurbær:
1. Arnarhóll.
2. Torgið fyrir v e s t a n Rjarnahorg milli
Hverfisgötu ©g Lindargötu.
3. Grettisgata milli Rarónsstígs og Hring-
brautar.
4. Bragagata frá Laufásvegi að Sóleyjargötu.
Vesfurbær:
1. Vesturgata frá Seljavegi að ISringhraut.
2. Bráðræðistún sunnan Grandavegs.
3. VesturvalEagata milli Holtsgötu og Sel-
landsstígs.
Bifreiðaumferð um þessar götur jafn-
framt hönnuð.
Lo^re^lnstjórinn.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
TÍMINN er víðlesnasta auglýsingahlaðið!