Tíminn - 11.01.1940, Page 1
24. árg.
TÍMIM, fimintudaginii 11. janúar 1940
4. blað
Fjárhagsáætlun Reykjavík-
urbæjar íyrír áríð 1940
Bæjarstjórnarmeínhlutinn leggur til, að
útsvörin hækki um nær hálfa miilj. kr.
og útgjöldin að sama skapi
Hvað er orðið af sparnaðarskrafi
íhaldsblaðanna í haust?
Fyrstu hersveitimar frá samveldislöndunum, sem komu til Englands, voru frá Nýja-Sjálandi. — Á myndinni sjást
þcer á göngu nokkru eftir aö þœr komu til Englands.
Wý. vopn
Á bæjarstjórnarfundi í
dag verður til fyrstu um-
ræðu í bæjarstjórn Reykja-
víkur frumvarp að fjár-
hagsáætlun fyrir Reykja-
víkurbæ árið 1940. Sýnir
það greinilega sleifarlagið á
öllum vinnubrögðum bæj-
arstjórnarmeirihlutans, að
ekki er byrjað að ræða fjár-
hagsáætlun í bæjarstjórn-
inni fyrr en 10 dögum eftir
áramót, enda þótt af greiðslu
hennar eigi að vera lokið
fyrir árslok.
Þar sem blöð íhaldsmanna
hafa á undanförnu ári ritað
mjög mikið um nauðsyn út-
gjaldalækkunar og skattalækk-
unar hefði mátt gera ráð fyrir
að þessarar stefnu gætti við af-
greiðslu fjárhagsáætlunarinnar,
þar sem Sjálfstæðisflokkurinn
ræður þar einn öllu — svo fram-
ai'lega sem einhver hugur fylgdi
máli. Þessi er ^jó ekki raunin,
þar sem í frumvarpinu er gert
ráð fyrir hvorutveggju, útgjalda-
hækkun og skattahækkun og
það í stórum stíl.
í frv. er gert ráð fyrir, að
tekjur bæjarins alls verði 7,527
þús. kr. og er það 570 þús. kr.
hærra en í fj árhagsáætlun síð-
asta ái's. Aðalhækkunin kemur
fram á útsvörunum, þar sem
gert er ráð fyrir að þau verði
4,952 þús. kr. en voru áætluð í
f j árhagsáætluninni 1939 4,500
þús. kr. Hin fyrirhugaða hækk-
un útsvaranna er samkvæmt
þessu 452 þús. kr.
Helztu hækkanir á útgjalda-
bálki fjárlaganna eru þessar:
Til fátækramála 192 þús. kr„
vextir 90 þús. kr„ vegna trygg-
ingarlaganna 86 þús. kr„ stjórn
bæjarins 40 þús. kr„ afborganir
30 þús. kr.
Finnlandssöfnunm
Finnlandssöfnunin heldur enn
áfram og munu nú hafa safn-
azt hér á landi nær 110 þúsund
krónur, en auk þess hefir verið
gefið talsvert af prjónlesi. Gjaf-
ir í þessu skyni berast enn j afn-
ört og áður. Hlutfallslega hefir
meira borizt af gjöfum utan af
landi heldur en héðan úr bæn-
um.
Eru íslendingar nú búnir að
gefa hlutfallslega nokkru meira
til Finnlandsmálanna heldur en
Danir, en nokkru minna held-
ur en Svíar og Norðmenn.
Þegar er búið að senda all-
mikið af vörum, aðallega prjón-
lesi og ullarfatnaði, og nokkuð
af peningum til Finnlands og
mun meira verða sent með
næstu ferðum. Vegna örðug-
leikanna á að fá allt það yfir-
fært í útlenda mynt, er safn-
azt hefir í peningum, hefir ull-
arfatnaður og prónles verið
keypt fyrir allmiklar fjárupp-
hæðir.
Milli 10 og 20 manns hafa
komið á finnsku ræðismanns-
skrifstofuna hér í því skyni að
leitast fyrir um möguleika á að
gerast sjálfboðaliðar í finnska
hernum, en mesti sægur manna
hefir leitað samskonar upplýs-
inga I síma.
Það vekur talsverða athygli,
að gert er ráð fyrir í fjárhags-
áætluninni, að úthlutun mat-
vælaseðla kosti 60 þús. kr. á ár-
inu. Hér er um sama og enga
prentun að ræða, þar sem ríkið
annast prentun seðlanna. Má
geta þess í þessu sambandi, að
Sigurður Kristjánsson gerði ráð
fyrir því í sambandi við af-
greiðslu fjárlaganna.að skömmt-
unarskrifstofa ríkisins þyrfti
ekki að kosta nema 12 þús. kr„
enda þótt á hana félli allur
kostnaður við prentun seðlanna!
Það, sem í fljótu bragði vekur
einna mesta athygli í sambandi
við þetta frv. um fjárhagsáætl-
un fyrir bæinn og stofnanir
hans, er hinn mikli kostnaður
við skrifstofuhald. Skulu hér
nefndar nokkrar tölur og er þá
áður búið að draga frá kostnað
við húsnæði, ljós, hita og síma,
svo að nær eingöngu er um
launagreiðslur að ræða:
Baejarstjóm og borgar-
stjóraskrifstofur...... kr. 347.000
Fátækrastjóm................ — 65.000
Vatns- Oe hitaveita ........ — 20.000
Ráðningar- og vinnumiðl-
unarskrifstofur.......... — 45.000
Rafmagnsveita .............. — 106.000
Hafnarsjóður ............... — 63.000
Samtals kr. 646.000
Hér er ekki meðtalinn skrif-
stofukostnaður vegna gasstöðv-
ar, sundhallar, Sogsvirkjunar,
skömmtunarskrifstofu og ýmsr-
ar, sundhallar, sogsvirkjunar,
ýmsum fleiri liðum útgjald-
anna er fólgin meiri og minni
skriffinnskukostnaður, sem ó-
ómögulegt er að skilja frá, nema
fyrir þá, sem hafa greiðan að-
(Framh. á 4. siðu.)
Verð innlendra afurða, kjöts og
mjólkur, hækkar mn þessar mimdir,
á svipaðan hátt og ákveðið hefir verið,
að kaupgjald í landinu skuli hækka.
Mun enda hafa aukizt, vegna afleið-
inga stríðsins, kostnaður við þessar
vörur, til að mynda frystingu kjöts.
Gengur verðhækkunin því meðfram
til þess að mæta þessum aukna kostn-
aði. Verð á freðkjöti hækkaði sam-
kvæmt ákvörðun kjötverðlagsnefndar,
á þriðjudaginn og nam verðhækkunin
rösklega 9%, úr kr. 1.60 í 1.75-hvert
kilógramm í smásölu og úr 1.40 1 1.53
í heildsölu. Mjólkurverðlagsnefnd hefir
haldið fundi að undanfömu, þar sem
rætt hefir verið um hina væntanlegu
verðhækkun, en ákvarðanir hafa eigi
verið teknar ennþá um það, hve miklu
hækkunin skuli nema.
r r r
Síðastliðna nótt kom togarinn Haf-
stein til Hafnarfjarðar með 63 þýzka
skipsbrotsmenn, er hann hafði bjargað
af sökkvandi skipi um 60 sjómflur
norðvestur af Látrabjargi. Hafði þýzkt
flutningaskip, Bahia Blanca, rekizt á
haíísjaka á þessum slóðum og laskazt
stórkostlega. Voru neyðarmerki send
út, en loftskeytastöðin hér í Reykjavik
náði sambandi við tvo íslenzka togara,
sem þarna voru að veiðum, Hafstein og
Egil Skallagrímsson, Hafði þýzka skip-
ið síðar beint samband við togarana,
og brá Hafstein við og hélt á slysstað-
inn. Þegar togarinn kom á vettvang,
var hið þýzka skip orðið hálffullt af
sjó og tekið að siga að framanverðu,
í flestum styrjöldum berast
út fregnir um það, að fundin
hafi verið upp ný vopn, sem
ráða muni úrslitum i styrjöld-
inni. Hefir ekki orðið bið á þess-
um fregnum nú frekar en
endranær og einkum virðist það
hafa komið fram hjá Þjóðverj-
um, að þeir hefðu ráð á alveg
nýju, mjög hættulegu vopni.
Meira að segja Hitler hefir vik-
ið óbeint að þessu í ræðum sín-
um. Þá hafa Rússar nýlega gefið
í skyn, að þeir myndu bráðlega
nota nýtt vopn í Finnlands-
styrjöldinni.
Það, sem nú er venjulega átt
við, þegar talað er um ný vopn,
er ekki fullkomnun hinna eldri
hernaðartækja, heldur alger-
lega nýjungu í hernaði eins og
t. d. geisla, sóttkveikjur og bráð-
drepandi gastegundir.
Sænskur prófessor, Hans
Pettersen, hefir nýlega gert
þetta að umtalsefni í grein í
Göteborgs Handels- och Sjö-
fartstidning. Verður efni henn-
ar lauslega rakið hér á eftir:
en björgun örðug vegna náttmyrkurs
og sjóróts. Var lýsi og olíu hellt í sjó-
inn til þess að lægja rótið. Voru skip-
verjar fluttir i togarann í fjórum bát-
um. Varðskipið Ægir er nú á þeim
slóðum, sem slysið varð á, til þess að
svipast eftir þvi. hvort skipið kunni
eim að vera ofan sjávar, er þykir ó-
líklegt.
r r r
81ysavarnafélag íslands hefir nýlega
birt áskorun til landsmanna um fjár-
hagslega aðstoð til reksturs björgunar-
skipsins Sæbjörg. Til reksturs skipsins
mun þurfa um 20 þús. krónur. Árið
sem leið veitti Sæbjörg 34 skipum og
bátum með 220 manna áhöfn hjálp og
aðstoð og var það fyrsta árið, hina
seinustu áratugi, sem enginn vélbátur
hefir farizt i verstöðvunum við Faxa-
flóa. — Árangur þessarar áskorun-
ar hefir meðal annars orðið sá, að
félaginu hafa borizt þrjár stórgjafir.
Björgunarfélag Vestmannaeyja hefir
gefið því 1000 krónur, gamall skip-
stjóri, Ellert Schram og Magdalena
kona hans 500 krónur og Einar Stef-
ánsson skipstjórl á Dettifossi og frú
500 krónur.
r r r
Undanfarna daga hefir verið tals-
vert af ufsa hér í Reykjavíkurhöfn
og hefir nokkuð verið veitt af honum.
En sökum þess, að ufsinn heldur sig
mestmegnis i skugga undir bryggj-
um og skipum, er örðugt um veiðina,
en á þessum stöðum er ufsinn í þykk-
um torfum. Þa? ber oft við að vetrar-
— Þær fréttir heyrast iðulega,
segir prófessorinn, að einn eða
annar hafi fundið upp svokall-
aða dauðageisla, en hafi orðið
svo hræddur við uppgötvun sína
eða i'éttara sagt afleiðingar
hennar, að hann eyðilagði hana
og hlaut að launum að teljast
meðal velgjörðamanna mann-
kynsins! Reynsla vísindanna er
vissulega sú, að maður ætti
aldrei að segja neitt ómögulegt,
en svo langt eru rannsóknir
hinna margvíslegu g’eislateg-
unda komnar, að til þess virð-
ist sáralítill möguleiki, að hægt
sé að láta geisla vera skaðlega,
nema í tiltölulega lítilli fjar-
lægð, eins og t. d. innanhúss.
Líkurnar fyrir þvi, að dauða-
geislar eða einhver þessháttar
tækni komi að notum í styrjöld,
eru því sannarlega mjög litlar.
Það hefir einnig kvisast, að
fundnir hafi verið upp geislar,
sem geti stöðvað mótora í flug-
vélum. Raunverulega eru þó
ekki meiri líkur fyrir slíkri upp-
götvun en dauðageislunum.
lagi, að ufsatorfur koma inn í höfn,
bæði hér i Reykjavík og Hafnarfirði,
og er hann þá oft velddur í allstórum
stfl. Að þessu sinni er ufsi sá, er veið-
ist, að mestu leyti seldur til refafóðm-s.
r r r
Samkvæmt athugun, er fram hefir
farið í sambandi við úthlutun mat-
vælaseðla í skrifstofu Reykjavíkurbæj-
ar, hafa um 2200 manns flutzt til
bæjarins frá miðjum septembermán-
uði fram til jóla. Af þessum grúa voru
330 námsmenn, verkafólk samtals um
875, þar af rösklega 400 einhleypar
stúlkur, 410 manns, er stimda ólíkam-
lega vinnu, en um starfsgrein rösklega
560 er eigi vitað.
r r r
Samband þingeyskra ungmennafé-
laga hefir átt frumkvæði að og haft
forgöngu um skíðakennslu í héraðinu
í vetur. Hefir það ráðið Jón Þorsteins-
son skíðakappa úr Siglufirði til þessa
starfs og heldur hann námskeið í
sýslunni um þessar mundir.
r r r
Á nýafstöðnu þlngi ungmennasam-
bandsins „Skarphéðinn" var eftirfar-
andi tillaga samþykkt í einu hljóði:
„Héraðsþing „Skarphéðins", haldið að
Haukadal 7.—9. janúar 1940, lýsir á-
nægju sinni yfir bókaútgáfu Mennta-
málaráðs i sambandi við Þjóðvinafé-
lagið og skorar á sambandsfélögin að
sýna fyrirtækinu góðan skilning og
stuðning."
r r r
Það virðast einnig heldur litl-
ar líkur fyrir því, að hægt verði
að finna upp öllu skaðlegri gas-
tegundir en þær, sem nú þekkj-
ast. Að vísu getur það náttúr-
lega heppnazt að framleiða
tegundir, sem eru miklu ban-
vænni, en gashernaðurinn vexð-
ur alltaf svo mikið háður veð-
urfari og öðrum staðháttum,
að hann er ólíklegur til að geta
haft nokkra úrslitaþýðingu.
Meginþýðing hans er fólgin í
þeirri hræðslu, sem hann skap-
ar, en ekki í hinum raunveru-
legu áhrifum hans. Varnir gegn
gaseitrun eru líka orðnar það
fullkomnar, að það á að vera
tiltölulega auðvelt að verjast
henni.
Þess ber að geta í þessu sam-
bandi, að til er einskonar jurta-
eitrun, sem getur reynzt þýð-
ingarmikil í varnarskyni.
Þá víkur prófessorinn að sein-
ustu að notkun sóttkveikja í
styrjöld og telur hana ólíklega
til árangurs. í fyrsta lagi gæti
slíkt reynst jafn hættulegt
fyrir báða aðila og í öðru lagi
séu til áhrifamikil varnarmeðul
gegn flestum þeim sóttkveikj-
um, sem til mála kæmi að nota.
Séu þessar upplýsingar hins
sænska prófessors réttar virð-
ast ekki mikil líkindi fyrir að
þessi nýju vopn, sem ýmsir hafa
óttast, muni verða tekin til
notkunar, a. m. k. að þessu sinni.
En hins vegar eru hin eldri
hernaðartæki að taka stöðug-
um endurbótum og styrjöldin
getur því sannarlega orðið nógu
ægileg, þótt ekki komi ný ó-
geðslegri hernaðartækni til sög-
unnar.
Aðrar fréttir.
Engin stórtíðindi hafa gerzt í
Finnlandsstyrjöldinni siðan
Finnar unnu síðari stórsigur
sinn á Suomisalmivígstöðvun-
um. Mestar orustur hafa verið
á Sallavígstöðvunum, sem eru
nokkru norðar og þar sem
Rússar reyna að brjótast til
Torneá við Botneska flóann. Er
sagt, að hersveitir þær, sem
Rússar hafa þar nú, reynist
miklu betur en aðrar hersveitir,
sem þeir hafa áður notað í styrj-
öldinni. Fregnir benda þó til, að
enn sem komið er veiti Finn-
um þarna betur. Á öðrum víg-
stöðvum virðast engar breyting-
ar hafa orðið. — Samskot til
hjálpar Finnum færast stöðugt
í aukana í flestum löndum
heims. Á þingi Bandaríkjanna
hefir komið fram frv. um að
veita þeim 60 millj. dollara lán.
Argentina hefir boðizt til að
láta þá fá 60 þús. smál. af hveiti
og geti þeir ráðið því hvenær
þeir greiði það.
Þjóðverjar hafa stöðvað her-
gagnasendingu, sem var á leið
frá Ítalíu til Finnlands.Hafaþeir
gert þetta eftir beiðni Rússa. í
w
A víðav&ngi
Fyrir nokkru síðan fól bæjar-
ráð þriggja manna nefnd að at-
huga framfærslumál Reykja-
víkur. í nefndinni eiga sæti
Helgi H. Eiríksson skólastjóri,
Jón Kjartansson ritstjóri og
Jónas Guðmundsson frá Norð-
firði. Ein af þeim tillögum, sem
nefnd þessi hefir gert, er sú, að
ráðinn verði í þjónustu bæjar-
ins sérstakur bæjarlæknir, sem
hafi yfirumsjón með öllum heil-
brigðismálum bæjarins. Skal
hann m. a. vera framfærslu-
nefnd til aðstoðar, þegar um er
að ræða þurfalinga, sem þarn-
ast læknishjálpar.
* * *
í greinargerð nefndarinnar
kemur það greinilega fram, að
hún álítur að ýmsir læknar nú
misnoti aðstöðu sina í þessum
efnum og valdi það bænum ó-
lörfum kostnaði. Segir t. d. um
óetta i nefndarálitinu á þessa
leið: „Aðalatriðið er þó hitt, að
hafa lækni, sem hefir aðstöðu
til þess að segja með fullri ein-
urð álit sitt um það, hvort
þurfalingur er óvinnufær eða
ekki, og sem ekki hefir persónu-
legan hag af því, að ráðstafa
xurfalingum til læknisaðgerða
eða sjúkrahúsvistar umfram það,
sem nauðsynlegt eða óhjá-
kvæmilegt verður að teljast.
Telur nefndin sig hafa ástæðu
til að ætla, að í þessu efni geti
verið um verulegan sparnað að
ræða, ef þessi mál væru í hönd-
um læknis, er hefði sínar aðal-
tekjur sem föst laun frá bæn-
um, því ekki er ósennilegt, að
þeir þurfalingar, sem ekki
fengju öllum sínum óskum og
kröfum fullnægt vegna tillagna
læknisins, fengju andúð á hon-
um og gæti hann því ekki vænst
mikilla tekna af læknisstörfum
fyrir einstaklinga."
* * *
Þá segir á öðrum stað í nefnd-
arálitinu: „í þessu sambandi
mun rétt að geta þess, að það
hefir komið fyrir, að sjúkling-
um sé að nauðsynjalitlu og jafn-
vel nauðsynjalausu haldið á
sjúkrahúsum á kostnað bæjar-
sjóðs. Getur að vísu stundum
verið álitamál, hvenær útskrifa
skal, en ef bærinn hefði einn
læknisfræðilegan ráðunaut um
þessi mál, ætti að nást samræmi
i meðferð þeirra.“
* * *
Má glöggt á þessum ummæl-
um marka, að fyllsta ólag hefir
ríkt í þessum málum undan-
farið eins og öðru því, sem heyrt
hefir undir stjórn fátækramál-
anna í Reykjavík. Hefir meira
að segja kveðið svo ramt að
þessu, að tveir strangtrúaðir í-
haldsmenn hafa ekki komizt
hjá því, að fella þann dóm,
sem að framan greinir. Er þó
vist að á ýmsum öðrum sviðum
fátækramálanna i Reykjavík
hefir ríkt enn meira ólag og sem
þarfnast enn frekar skjótra
endurbóta. Má 1 þvi sambandi
minna á ýmsar umbótatillögur
í þessum málum, sem Fram-
sóknarflokkurinn hefir látið
flytja í bæjarstjórninni.
Ítalíu hefir þetta vakið óánægju
og hefir ítalski sendiherrann í
Berlín krafizt þess, að sending-
in verði látin halda áfram eða
send til Ítalíu aftur. Þetta veld-
ur einnig þýzku stjórninni tals-
verðum áhyggjum, þar sem hún
vill hafa góða sambúð bæöi við
ítali og Rússa. Er álitið, að Hitl-
er ætli að reyna að koma á sátt-
um milli þessara þjóða.
Kallio Finnlandsforseti hélt í
fyrradag fund með blaðamönn-
um og skýrði þar frá eftirfar-
andi: Síðan styrjöldin hófst
hafa Rússar gert loftárásir á
nær allar borgir í Finnlandi og
alls varpað niður á 5. þúsund
sprengjum. Af völdum loftárás-
anna hefðu 243 manns beðið
bana, 217 særzt alvarlega og 210
(Framh. á 4. siðu.)
A. KIK,OSSC3-ÖTTJ3yC
Verðhækkun á innlendum afurðum. — Togari bjargar þýzkri skipshöfn. —
Slysavarnafélag íslands. — Ufsaveiði í Reykjavíkurhöfn. — Aðkomufólk í
Reykjavík. — Skíðakennsla í Þingeyjarsýslu. — Bókaútgáfa menningarsjóðs.