Tíminn - 25.01.1940, Side 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GTJÐMTJNDSSON (ábm.)
ÞÓRAKINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
24. árg.
Reykjavík, fimmtadagmn 25. janúar 1940
10. blað
Lögin um hlutarútgerð aríélög
Ákvæði þeirra um skyldur félagsmanna, rétt
til þátttöku, hlutaráðningn, varasjóð,
tryggingarsjóð o. fl.
Á seinasta þingi voru
samþykkt lög um hluta-
gerðarfélög. Hafa Fram-
sóknarmenn borið fram nær
því samhljóða frumvarp á
nokkrum undanförnum
þingum, en það hefir ekki
fengizt samþykkt fyrr en
nú. —
Lög þessi verða að teljast hin
merkustu. Undanfarin ár hafa
verið stofnuð nokkur samvinnu-
félög um útgerð, en fæst þeirra
hafa staðið á samvinnu- og
hlutaskiptagrundvelli, nema að
nokkru leyti. Þannig hefir iðu-
lega nokkur hluti starfsliðsins
verið á föstu kaupi og ekki ver-
ið hafðir sérstakir tryggingar-
sjóðir. Með lögum um hlutar-
útgerðarfélög er byggður traust-
ur grundvöllur til að reisa á fé-
lagsleg samtök um fiskiveiðar
og aðra starfsemi í sambandi
við þau með almennri þátttöku
þeirra, sem að því starfa. Lögin
eru grundvöllur þess skipulags,
sem áreiðanlega myndi reynast
farsælast fyrir útgerðina og þá
menn, sem að henni vinna.
Þessi mál munu verða rædd
nánar hér í blaðinu síðar, en
rétt þykir að rifja upp helztu
ákvæði laganna tii þess að menn
geti gert sér sem ljósastan til-
gang þeirra.
Markmið hlutarútgerðarfé-
laga er að reka fiskiveiðair á
hlutaskiptagrundvelli og ann-
ast í sambandi við þær innkaup
á vörum, hagnýtingu afla, sölu
hans o. fl.
Nú vilja menn stofna hlutar-
útgerðarfélag, og skulu þeir þá
Tílraun til að spílla
umhverfi Háskólans
Átökln um Tjarnar-
götn og Snðurgötn.
í gær birtist sú fregn 1 dag-
blöðunum, að ákveðið hefði
verið að breikka Tjarnargötu og
gera hana að aðalumferðargöt-
unni milli Skerjafjarðar og
miðbæjarins. Afleiðing þessa
myndi verða sú, að leggja yrði
götu um háskólalóðina og
yrði það fullkomin skemmd á
henni. Vakti frétt þessi því
mikla athygli, því að hún sýndi
alveg fádæma umhyggjuleysi
bæjarvaldanna fyrir háskólan-
um.
Nú virðist það upplýst í mál-
inu, að Valgeir Björnsson bæj-
arverkfræðingúr hafi ætlað að
gera þetta upp á sitt eindæmi,
þvert ofan í tillögur skipulags-
nefndar, og án formlegs sam-
þykkis bæjarráðs.
Skipulagsnefnd, en hana
skipa Geir Zoéga vegamála-
stjóri, Guðjón Samúelsson húsa-
meistari ríkisins og Emil Jóns-
son vitamálastjóri, hefir gert
allt aðrar tillögur um lausn
þessa máls. Er gerð grein fyrir
því í eftirfarandi bréfi, sem
skipulagsnefnd sendi blöðun-
um síðdegis í gær:
„Með skipulagslögum er á-
kveðið, að skipulagsnefnd geri
skipulagsuppdrætti, sem lagðir
eru fyrir bæjarstjórnir og
hreppsnefndir, en ráðherra síð-
an staðfestir.
Eftir að byrjað hefir verið að
vinna að skipulagi einhvers
staðar, má engar breytingar eða
framkvæmdir gera, nema að
fengnu samþykki skipulags-
nefndar og ráðherra.
Fyrir nokkru síðan voru bæj-
(Framh. á 4. siOu.)
kveðja til fundar á því svæði,
sem félaginu er ætlað að ná yfir,
og bera málið upp til umræðu og
atkvæða. Ef að minsta kosti 5
menn utan kaupstaða, en 10
menn í kaupstöðum, verða ásátt-
ir um stofnun slíks félags og
bindast samtökum um að gerast
meðlimir þess, skulu þeir, að
fengnu samþykki hlutaðeigandi
bæjar- eða sveitarstjórnar ti! fé-
lagsstofnunarinnar, setja félag-
inu samþykktir í samræmi við
íög þessi, og skal leita staðfest-
ingar ríkisstjórnarinnar á þeim.
Breytingar á samþykktum
hlutarútgerðarfélags ná því að-
eins gildi, að ríkisstjórnin stað-
festi þær.
Félagar hlutarútgerðarfélags
geta þeir einir orðið, sem ráðast
hjá félaginu, á skip þess eða í
landi. Með samþykki lögmæts
félagsfundar má auk þess taka
inn í félagið menn, sem styrkja
vilja það með þátttöku sinni,
þótt eigi séu þeir ráðnir starfs-
menn félagsins.
Óheimilt er að ráða fasta
starfsmenn hjá félaginu í landi
eða skipverja á skip þess, nema
þeir um leið gerist félagar og
undirriti yfirlýsingu um, að þeir
hlýði lögum félagsins eins og
þau eru á hverjum tíma. Und-
antekningu má þó gera frá þessu
að því er snertir ráðningu skip-
verja í forföllum annarra, ef
brýn nauðsyn krefur.
Inngangseyrir sé iO krónur
frá hverjum félagsmanni, er
renni í varasjóð.
Sérhver meðlimur hlutarút
gerðarfélags ber takmarkaða á
byrgð á skuldbindingum félags-
ins, að upphæð 300 krónur.
Félagsmaður, er fer úr félag
inu, eða bú þess, sem deyr, ber
ábyrgð samkvæmt þessari grein
á skuldbindingum félagsins, er
á því hvíldu, er hann gekk úr,
þó eigi lengur en tvö ár frá
næstu áramótum eftir úrgöngu,
nema risið hafi mál út af skuld,
(Framh. á 4. síðu.)
Enskir flugmenn koma saman til aO óska hverir öðrum gæfu og gengis áSur en þeir leggja af staS f könnunar-
flug yfir vesturvígstöðvarnar og aSra hernaSarlega þýðingarmikla staði' í Þýzkalandi.
En bak viS víglínur ÞjóSverja biða þýzkar skyttur á loftvamarstöSvum, sem eru faldar á bak viO skógarrunna
eða á öðrum ólíklegum stöðum, og eru reiOubúnar á nótt og degi að veita hinum óvelkomnu gestum varmar við-
tökur. — Hér á myndinni sést ein slik loftvamarstöð. Það er raunar óþarfi að geta þess, aö Bandamenn hafa
líka fiölda af slikum loftvarnarstöðvum á bak við viglinur sínar.
A.
Ný skólpveita á Vatneyri. — íslenzkur læknir ráðinn til starfa í Finnlandi.
— Úr Dölum. — Atvinnulíf á Eyrarbakka.
Séra Einar Sturlaugsson, prestur í
Patreksíirði, er á ferð hér í bænum.
Tíðindamaður Tímans hefir átt tal við
séra Einar og spurt hann um helztu
framkvæmdir þar vestra. Skýrði hann
blaðinu svo frá: — Skolpveita hefir
verið lögð á Vatnseyri í haust og er það
hreppsfélagið, er gengst fyrir þeim
framkvæmdum. Var unnið að því í
tæpa þrjár mánuði. Nær skolpveitan
neðan frá bryggjuhúsunum og nokkuð
upp í brekkuna. Er sá hluti skolpvelt-
unnar, sem unnið var að í haust,
fullgerður, en síðar á að færa út kví-
arnar og stækka veitukerfið. Áður var
engin sameiglnlega skolpveita í þorp-
inu, heldur aðeins skolpleiðslur frá ein-
stökum húsum, eftir því sem við var
komið. Hefir hreppsfélagið því hér ráð-
izt í allþýðingarmikla umbót á þorp-
inu. Nær sk umbót, eins og áður er
sagt, til þess hluta þorpsins á Vatns-
eyri, þar sem flest hús standa.
I t t
Eitt það, er Finna skortir í frelsis-
stríði sinu, er læknar til að sinna
særðum og sjúkum mönnum. Einn
íslenzkur læknir, Snorri Hallgrims.
son frá Dalvík, hefir, að því er frú er
skýrt í blaðinu Degi á Akureyri, ráðizt
til læknisstarfa í Finnlandi. Snorri
Hallgrímsson er ungur maður og mjög
álitlegur læknir, Hann stundaði nám
i menntaskólanum á Akureyri og lauk
háskólanámi 1 læknisfræðum á fjórum
árum. Síðan hvarf hann til framhalds-
náms í Danmörku og hefir meðal ann-
ars haft þar með höndum vísindaleg
rannsóknarstörf og getið sér hróður
fyrir. Nú hefir hann horfið frá þessari
glæsilegu framabraut til læknisþjón-
ustu í Finnlandi.
t t r
Sigurður Jóhannesson frá Giljalandi
í Haukadal skrifar Tímanum: Síðast-
liðið ár hefir, hvað veðráttu og afkomu
snertir, verið mjög happasælt. Vorið
með afbrigðum gott og fénaðarhöld
þess vegna ákjósanleg. Dilkar haust
með alvænsta móti, eftir þvi sem ger-
ist hér í Dölum. Veturinn, sem af er,
mjög blíður, þótt sumir séu uggandi
um að herða muni að, er fram á
dregur. Hinn alvarlegasti skuggi, sem
hvílir yfir afkomu bænda nú sem
stendur, er mæðiveikin. Reyndar virð-
ist hún fara miklu hægar yfir en fyrst
í Borgarfirðinum. Má vera, að nokkuð
geri þar um girðingar og ýmsar varn-
arráðstafanir. Þó er veikin að koma i
ljós á bæjum á takmörkum eða utan
hins áður sýkta svæðis. Nýl. kom i ljós
á Smirlhóli í Haukadal einkennileg og
áður óþekkt veiki I sauðfé. Lýsti hún
sér meðal annars i því, að féð virðist
verða lamað og missa sjón á öðru aug-
anu og drepst venjulega á skömmmn
tíma. Settu sumir þetta í samband við
hina svokölluðu riðuveiki, en engin
vissa var fyrir þvi fengin, og dýralækn-
ar þeir, er til var símað, gáfu ekkert
fullnaðarsvar þar um. — Áhugi manna
hér fyrir fjársöfnun til Finnlands, hef-
ir verið með einsdæmum mikill og svo
almennur, að flest heimilismanna gaf
venjulega eitthvað og margir einstak-
lingar 20—25 kr. Rausnarlegust var
gjöf írá Guðbrandi Magnússyni bónda
á Gunnarsstöðum, 100 kr., og ýms fé-
lög gáfu annað eins.
t r r
Þórður Jónsson á Eyrarbakka skýrir
svo frá atvinriulífi Eyrbekkinga: Tún
þorpsbúa ofan við þorpið, þar sem áður
voru fen og forarmýrar, eru nálægt 100
hektarar að stærð. En vegna þess, hve
erfitt er um framræsluna, er þó enn
langt i land að þessi nýræktarlönd
verði að góðu túnl. Þótt þegar sé búið
að leggja mikið fé í framræsluna,
brestur mjög á að hún sé fullnægjandi.
En annars lands eiga Eyrbekkingar
ekki völ til túnræktar, en blautra og
hallalítilla mýra. Garðræktin er mik-
ilsverð atvinnugrein á Eyrarbakka, og
fer vaxandi með ári hverju. Það, sem
helzt Virðist geta orðið hemill á vax-
andi garðrækt þorpsbúa, er skortur
á áburði. Þang og þari, sem er heppi-
legur áburður, er að verða ónógur í
grennd við þorpið, síðan garðræktin
færðist svo mjög í aukana. En útlendur
áburður of dýr og reynist misjafnlega
í hinn sendna jarðveg. — Frá Eyrar
bakka er slæmt útræði, sem kunnugt er
og brimasöm og hættuleg sund um að
fara. Nú í vetur mun sennilega engin
flfeyta sækja sjó frá Eyrarbakka. —
Ein meginstoð i lífsafkomu Bakka-
manna er vinna hjá Kaupfélagi Ár-
nesinga. Lætur kaupfélagið skipa upp
mestöllum vörum sínum á Eyrarbakka.
1 t t
Seinustu erlendar
fréttir
Á vígstöðvunum í Finnlandi
hafa engar breytingar orðið.
Rússar hafa gert mikil áhlaup
beggja megin Ladogavatns, en
þau hafa engan árangur borið
Á Sallavlgstöðvunum hafa Rúss
ar enn hörfað undan.
Loftárásir Rússa hafa aldrei
verið ákafari en síðastl. þriðju-
dag. Gerðu þeir þá loftárásir á
flesta bæi í landinu. í Helsing
fors fórust 30 manns af völdum
loftárásanna. í smábæ, Nurmis.
lenti sprengja á loftvarnarbyrgi
og fórust 19 manns. Hefir mann-
tjón Finna af völdum loftárása
aldrei orðið eins mikið á einum
degi og má geta þess til saman
burðar, að í seinustu viku vörp
uðu Rússar niður 6700 sprengj-
um en aðeins 18 manns fórust,
í gær var verra veður og voru
því litlar loftárásir. — Rússar
virðast leggja mikið kapp á að
eyðileggja sjúkrahús og hefir
tekizt að eyðileggja nokkur. —
Flugvélatjón þeirra er jafnan
mjög verulegt. Á þriðjudaginn
tókst einum finnskum flug
manni á 4y2 mínútu að skjóta
niður sex rússneskar flugvélar
af sjö, sem hann átti í höggi
við. Er þetta talið einstakt af
rek í sögu lofthernaðarins.
Finnum berast miklar gjafir
hvaðanæfa. Norðmenn hafa
d. sent finnska hernum 50 þús,
bakpoka. í Bandaríkjunum hefir
safnazt ein miljón dollara til
hjálparstarfsemi í Finnlandi.
Hoover, fyrv. forseti og einn að-
(Framh. á 4. siöu.)
w
A viðavangi
Til frekari skýringar á grein
J. J. um þjóðargrafreit á Þing-
völlum þykir rétt að taka þetta
fram: Þihgvallanefnd bauð Má
Benediktssyni, að faðir hans
yrði jarðsettur á Þingvöllum.
Tók hann boðinu. Ríkisstjórnin
hafði áður boðið að útförin færi
fram á kostnað ríkisins, og sam-
jykkti fyrir sitt leyti vilja sonar
skáldsnis. Þar til Alþingi hefir
samþykkt lög um þjóðargrafreit
á Þingvöllum er gröf Einars
Benediktssonar í heimagrafreit
á vegum Þingvallanefndar.
* * *
Tímanum hefir nýlega borizt
bréf fr& bónda, þar sem segir m.
a.: „fhaldsblöðin eru að tala um
stefnubreytingu í sambandi við
fjárlögin. Hinsvegar skýra þau
mjög óglöggt, hver þessi stefnu-
breyting sé. Þingið hvarf að því
ráði, að lækka ýms framlög til
landbúnaðarins. Þetta var gert
með tilliti til styrjaldarinnar
og álít ég það rétt ráðið. Það er
ekki rétt að hvetja menn til
verulegra framkvæmda meðan
verðlagið er jafn hátt og full-
víst má telja, að það lækki eftir
stríðið. Framsóknarflokkurinn
hefir hvað eftir annað lýst yfir
3ví, að hann álíti þetta aðeins
bráðabirgðaráðstöfun, sem ekki
eigi að gilda lengur en meðan
núv. ástand varir. Hins vegar
liggur ekki fyrir nein yfirlýsing
frá Sjálfstæðisflokknum um
jetta efni. Er það kannske skoð-
in Sjálfstæðisflokksins, að
jessi niðurskurður á framlög-
um til landbúnaðarins eigi að
vera varanlegur? Er það stefnu-
breytingin, sem íhaldsblöðin eru
að japla á, en vilja ekki skýra
nánar?“
* * *
Sami bóndi skrlfar blaðinu: „Ég
heyrði í útvarpinu, að nokkrir
jingmenn hafi lagt til að keypt
yrði land undir nýbýli austur í
Ölfusi. Þetta er áreiðanlega
framtíðarmál. Hitt dreg ég mjög
í efa, að þar sé bezti staðurinn
fyrir nýbýli. Ég gæti vel hugsað
mér, að Búðir á Snæfellsnesi og
Reykhólar, en rikið á báðar
þessar jarðir, væru betri staðir.
Það eru hlunnindi, sem seint
verða fullmetin, að bændur geti
sjálfir aflað sér sjávarfangs, og
það þarf alls ekki að verða á
kostnað búskaparins. Það á að
velja nýbýlunum stað, þar sem
afkomuskilyrðin eru einna fjöl-
breyttust. Þess vegna held ég, að
staðirnir, sem ég nefndi, séu
hinir ákjósanlegustu fyrir ný-
býli“.
* * *
Tilburðir Árna frá Múla til að
sanna „stefnubreytinguna", sem
Sjálfstæðisflokkurinn hafi á-
orkað við afgreiðslu fjárlaganna
á seinasta þingi, eru orðnir
næsta broslegir. Hann getur
ekki nefnt eitt dæmi þess, að
hinir stjórnarflokkarnir hafi
stöðvað sparnaðartillögur fyrir
Sjálfstæðisflokknum, en svo
hefir hann viljað vera láta.
Hann verður að játa með þögn-
inni, að hækkun fjárlaganna
stafi ekki nema að litlu leyti af
stríðinu og gengislækkuninni.
Þau hefðu hækkað hvort sem
var. Þar með eru fallin um
sjálft sig hin ofsafengnu skrif
íhaldsblaðanna á undanförnum
árum um óhófseyðslu, hæstu
fjárlög og að auðvelt væri að
lækka fjárlögin um 3—4 milj. kr.
* * *
Seinustu dagana heldur Árni
sig aðallega við þá fullyrðingu,
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
knúið fram stefnubreytingu á
þann hátt, að hann hafi hindr-
að hækkunartillögu frá hinum
flokkunum. Ef hann hefði ekki
verið með í ríkisstjórninni hefðu
fjárlögin því hækkað miklu
meira! Þrátt fyrri itrekaðar á-
skoranir hefir Árni þó aldrei
getað nefnt eina einustu slíka
tillögu, er Sjálfstæðisflokkur-
inn hafi stöðvað. Þessi frásögn
Árna frá Múla minnir því mjög
(Framh. á 4. síðu.)