Tíminn - 28.06.1940, Qupperneq 4

Tíminn - 28.06.1940, Qupperneq 4
264 Aðalfundur S. I. S. (Framh. af 1. siðu) Sambandsfélögin hafa aukið inneignir sínar á árinu hjá Sambandinu um kr. 1.171.000,00 og greitt af skuldum sínum við það kr. 369.000,00. Þau höfðu því bætt hag sinn gagnvart Sambandinu um 1.540.000,00. Yfirleitt var siðastliðið ár óvenju hagstætt fyrir reksturs- og fjárhagsafkomu Sambands- félaganna og eru orsakir þess aðallega þær, að Sambandsfé- lögin voru búin að fá mikinn meiri hluta erlendra vara til ársins áður en styrjöldin skall á 'óg vöruverð hækkaði og að ýmsar innlendar vörur hækkuðu allmikið í verði seinustu mán- uði ársins, þegar sala til útlanda fór aðallega fram. Útistandandi skuldir við- skiptamanna sambandsfélag- anna hafa lækkað um kr. 338,- 000,00. Auk þess hafa skuld- tryggingarsjóðir aukizt um kr. 231.000,00. Inneignir félags- manna hafa aukizt um kr. 206.- 000,00, en verzlana og annarra viðskiptamanna um kT. 308.000,- 00. 10 11 fflí, fostadagtnn 28. Jtiní 1940 sem unnt er, að landsmenn geti haft viðskipti sín við kaupfélög eða kaupmenn eftir eigin ósk. í þessu sambandi vill fundur- inn benda á, að síðan kornvörur voru settar á frflista, hafa Sam- bandsfélögin selt að meðaltali allt að helming af innflutningi þessara vara til landsins, og ættu félögin því að fá innflutt hlutfallslega svipað magn af haftavörum, eins og t. d. bygg- mgarvörum, vefnaðarvörum, skófatnaði og búsáhöldum, til þess að félagsmenn neyðist ekki til að kaupa þær vörur að nokkr- um hluta hjá kaupmönnum. í tilefni af margendurteknum árásum og ásökunum andstæð- inga samvinnufélaganna um, að félögin vilji viðhalda innflutn- ingshömlum til eiginhagnaðar í skjóli þeirra, þá lýsir fundurinn yfir því, að hann telur innflutn- ingshöftin hafa hindrað eðlileg- an vöxt kaupfélaganna, og þó að hann telji að þau hafi verið og séu, eins og enn er ástatt, óhjá- kvæmileg þjóðamauðsyn, er, hann þvi eindregið fylgjandi, að þeim verði aflétt jafnskjótt og viðskipta- og fjárhagsástæður landsins leyfa.“ ¥í§itala Samkvœmt ntreiknin^i kauplagsnefndar er vísitala frantfaerslukostnaðar í Reykjavik mánuðina apríl, maí og júni 130. Kaupuppbætur samkvæmt lögunum um gengisskráningu og ráðstafanir í þvi sambandi verða þvi: I 1. flokki 22,5% - 2. - 20,0% og — 3. — 16,0%. Víðskiptamálaráðimeytið. Tilkynnmgtíiviðskiptamanna um brunatryggingu á vörum. Heiðraðir viðskiptamenn vorir eru beðnir að athuga, að vér Á fundinum voru kosnir tveir menn í stjóm S.Í.S. til þriggja ára, þeir Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði, og Vilhjálmur Þór, aðalræðis- maður í New York. Varaformað- ur S.Í.S. til eins árs var endur- kosinn Vilhjálmur Þór. Kosnir voru þrir varamenn í stjórn S. Í.S. til eins árs. Kosningu hlutu Skúli Guðmundsson, kaupfé- lagsstjóri á Hvammstanga, Jens Figved, kaupfélagsstjóri í Reykjavík, og Jón Þorleifsson, kaupfélagsstjóri í Búðardal, allir endurkosnir. Endurskoð- endur reikninga S.Í.S. var end- urkosinn Tryggvi Ólafsson.verzl- unarmaður I Reykjavík, en vara- endurskoðandi Guðbrandur Magnússon, forstjóri i Reykja- vik. Ennfremur var kosinn mað- ur í stjórn lífeyrissjóðs S. í. S„ Skúli Guðmundsson. Varamað- ur hans til eins árs var endur- kosinn Þórður Pálmason. kaup- félagsstjóri í Borgarnesi. Fundurinn tók ýms mál til meðferðar og voru um þau gerð- ar ýmsar ályktanir. Meðal ann- ars var á fundinum rætt um innflutnings- og gj aldeyrismál. Var kosin nefnd til að athuga þau mál. Bar hún fram eftir- farandi tillögu, er samþykkt var i einu hljóði. „Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga, haldinn að Laugarvatni 24. júni 1940, skír- skotar til þeirra samþykkta í innflutnings- og gjaldeyrismál- um, sem gerðar hafa verið á undanfömum aðalfundum Sam- bandsins og beinir því til Sam- bandsstjómar að bera enn á ný fram kröfur til ríkisstjómar og gjaldeyrisnefndar um, að fram- kvæmd innflutningshaftanna verði hagað þannig, að sam- vinnufélögin fái innflutning á algengum verzlunarvörum í hlutfalli við fólksf jölda, sem fé- lagsmenn hafa á framfæri sínu, til þess að tryggja — eftir þvf Rætt var allmikið um sölu og verkun á kjöti næsta haust. Var kosin nefnd til að athuga það mál. Kom sú nefnd fram með eftirfarandi ályktun, sem sam- þykkt var í einu hljóði: „Þar sem að óbreyttu núver- andi viðskiptaástandi er aug- ljóst, að ekki fæst neinn mark- aður erlendis fyrir saltkjöt héð- an frá landi á komandi hausti, en hinsvegar útlit fyrir, að nægi- legur markaður fáist fyrir freð- kjöt, telur aðalfundur S. í. S. brýna nauðsyn á því, að gerðar séu nú þegar ráðstafanir til þess að ekki verði saltað meira kjöt heldur en innanlandsmark- aðurinn tekur á móti. Þessvegna ályktar fundurinn: a. Að skora á kjötverðlags- nefnd, að haga slátrunarleyfum á komandi hausti þannig, að þeim, sem ráð hafa á eða geta á viðunandi hátt náð til frysti- húsa, sé bannað að salta eða velja kjöt til söltunar, og gera þeim jafnframt skylt, að frysta svo mikið fyrir útlendan markað að öruggt sé, að innanlands- markaðurinn verði ekki ofhlað- inn, og að þau em byggðarlög, sem ekki ná til frystihúsa, fái leyfi til kjötsölunnar fyrir inn- lendan markað. b. Að leitast við að tryggja skipakost þann, sem fáanlegur og hæfur er til flufcninga á frosnu eða nýju kjöti milli hafna innanlands og til útlanda. c. Að skora á fiskimálanefnd, að gera sitt ítrasta til þess að hraðað verði svo útflutningi á frosnum fiski, að hann verði ekki til fyrirstöðu í frystihúsun- um, þegar slátrun hefst í haust, og ekki sé hætta á þvi, að skip- in teppist frá kjötflutningum á þeim tíma. d. Að láta athuga nú þegar möguleika fyrir leigu eða afnot- um þeirra frystihúsa, sem ekki eru eign samvinnufélaganna, en tryggjum ekki vörur þeirra í vörugeymsluhúsum vorum gegn eldsvoða né öðrum tjónum, sem þær kunna að verða fyrir, meðan þær liggja hjá oss, — nema þess sé sérstaklega óskað í hverju einstöku tilfelli. Vörur sem liggja hjá oss eru þannig á ábyrgð eigenda og er því áríðandi að þeir útvegi sér sjálfir brunatrygg- ingu á þeim, svo og aðrar tryggingar, sem þeir telja nauðsynlegar. Sama máli gegnir um vörur liggjandi hjá afgreiðslumönnum vorum um land allt. Reykjavík 25.júní 1940. H.f. Eimskipafélag íslands. Kaupgreiðendur í Reykjavík eru enn á ný beðnir að skila í bæjarskTÍfstofumar í dag skýrslum um starfsfólk sitt, þeir sem ekki hafa þegar gert það. Borgarstjórinn. M.b. Harpa hlednr til Flateyrar, Suðureyrar, Bolungar- víkur og Isaijarðar n. k. m&nudag. nota mætti til kjötfrystingar og geymslu kjöts. Felur fundurinn stjórn S. f. S. og framkvæmdastjóra útflutn- ingsdeildar að annast þessar framkvæmdir og gera hverjar þær ráðstafanir aðrar, sem telj- ast nauðsynlegar til þess að þvi marki verði náð, að ekki sé salt- að meira kjöt en telja má öruggt að seljist á innlendum markaði." »Lagarfoss« fer annað kvöld vestur og norður kring um land. Farseðlar óskast sóttir í dag. Á víðavantfi. (Framh. af 1. siðu) málleysingja og er þeim verum níðangurslegast, sem sízt íá vörnum við komið. Þetta fólk þarfnast fyrst og fremst að- halds af hálfu þeirra, sem ærukærari eru og minni skap- brestamenn. Óttinn við hegn- ingu, fjárútlát og smán heldur þvi helzt 1 skefjum. 334 Margaret Pedler: Laun þess liBna Skógræktarfél. Isiands 66. blaS OAMLA BfÓ———— Víðburða- rík nótt Afar spennandi amerísk leynilögreglumynd. með LLOYD NOLAN og GLADYS SWARTHOUT. Böm innan 16 ára fá ekkl aðgang. ■— ——NÝJA BÍÓ'— Umhverfis jörðina á flótía. Amerisk stórmynd frá Un- ited Artists, er sýnir óvenju vel gerða leynilögreglu- sögu, sem gerist víðsvegar um heiminn, og sem fyrir fjölbreytni og spennandi viðburðarrás mun veita öllum áhorfendum ánægju frá byrjun til enda. Aðalhlutverkin leika: FREDRIC MARCH og JOAN BENNETT. Auglýsing um skoðun á bifreiðum og bifhjólum í lögsaguar- umdæmi Reykjavíkur. Samkvæmfc bifreiðalögunum tilkynnist hér með bifreiða- og bifhjólaeigendum að skoðiui fer fram frá 1. fcil 23. júli þ. á. að báðum dögum meðtöldum, svo sem hér segir: Mánud. 1. júlí á bifreiðum og bif h jólum... .. B. 1—75 þriðjud. 2. — — — — — — 76—150 miðvikud. 3. — — — — — — 151—225 fimmfcud. 4. — — — — — — 226—300 fösfcud. 5. — — ‘ — — — 301—375 mánud. 8. — — — — — — 376—450 þriðjud. 9. — — — — — — 451—525 miðvikud. 10. — — — — — — 526—600 fimmtud. 11. — — — — — — 601—675 fösfcud. 12. — — — — — — 676—750 mánud. 15. — — — — — — 751—825 þriðjud. 16. — — — — — — 826—900 miðvikud. 17. — — — — — — 901—975 fimmtud. 18. — — — — — — 976—1050 föstud. 19. — — — — — — 1051—1125 mánud. 22. — — — — — — 1200—1275 þriðjud. 23. — — — — — — 1276—1300 Ber bifreiða- og bifhjólaeigendum að koma með bifreiðar sínar og bifhjól til bifreiðaeftirlitsins í Pósthússtræti 3, og verður skoð- unin framkvæmd þar daglega frá kl. 10—12 f.h. og frá 1—6 e. h. Þeir, sem eiga farþegabyrgi á vörubifreiðar, skulu koma meá þau á sama tíma, þar sem þau falla undir skoðunina jafnt og sjálf bifreiðin. Vanræki einhver að koma bifreið sinni eða bifhjóli til skoð- unar, verður hann láfcinn sæfca ábyrgð samkvæmfc bifreiðalögunum. Bifreiðaskattur, sem fellur í gjalddaga 1. júlí þ.á., skoðunar- gjald og iðgjöld fyrir vátrygging ökumanns, verður innheimt um leið og skoðunin fer fram. Sýna ber skilríkí fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í lagi. Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli, til eftirbreytni Tollstjórinn og lögreglustjórinn í Reykjavík, 25. júni 1940. lón Hermaimsson Agnar Kofoed-Hansen Lðétaki myndír um himnaríki. En ef þetta er þitt himnaTíki, þá sé ég enga ástæðu til þess að meina þér það. En þú mátt ekki ásaka mig, þó þú komist síðar að því, að ég sé kenjóttur, önugur og erfiður í umgengni.“ Hún þrýsti sér að honum í djúpri, takmarkalausri uppgjöf. „Þú mátt berja mig og sparka í mig eins og þú vilt, ef þú elskar mig að eins einstöku sinnum", sagði hún hvíslandi. Tilfinningar hennar voru svo heitar og djúpar, að þær smituðu hann. Hann tók þéttar utan um hana og ky6sti á hár hennar......Þau voru bæði reköld á hafi lífsins, og ef til vill væri réttast, að þau veittu hvort öðru þann yl og þá sárabót, sem þeim væri unnt. , Allt í einu heyrðist fótatak frammi í anddyrinu. Dyrnar opnuðust og Morris sagði, með sinni óbreytanlegu rödd: „Frú Frayne/ Poppy og Maitland höfðu bæði sprott- ið á fætur, er þau heyrðu fótatakið. Þegar Fjóla kom inn, sá hún að eins að þau stóðu bæði fyrir framan arininn, Maitland og stúlkan, sem hún vissi að vann sem fyrirmynd hjá honum. Hún lét sem hún sæi ekki stúlkuna, hinar lægri stéttir áttu engin itök í hug hennar. Poppy tók eftir þessu og horfði á hana með fjandsamlegu og grunandi augnaráðí. Hvaða erindi gat þessi skrautbúna og fremur fagra kona átt hingað? Þetta var frúin á Abbey, þar sem ungfrú Frayne átti heima, — ung- frú Frayne hans Blairs. Var hún kom- in til þess að jafna misklíðina, — til þess að segja, að ungfrú Frayne hefði snúizt hugur? Grunur Poppy varð að áköfum ótta. Hún ætlaði ekki að gefa Maitland eftir, heldur skyldi hún berj- ast fyrir honum upp á lif og dauða! Hún ætlaði ekki að láta þessa konu eyðileggja þetta fyrir sér, það var sama hvað hún var mikil hefðarfrú! Fjóla leit á hana, eins og hún undrað- ist, að hún færi ekki, en Poppy stóð kyr og var ekki á því að fara. Hún ætlaði ekki að skilja frú Frayne eftir eina hjá Blair, ef hún gæti komizt hjá þvi. Henni leizt verulega illa á hana. Maitland talaði til hennar með sama hversdagslega róm og orðalagi og hann var vanur að nota, þegar hann sagði henni að hún mætti fara, eftir að hún hafði setið fyrir hjá honum i vinnu- stof unni: „Þú skalt nú fara, Poppy. Ég tala við þig aftur í fyrramálið." Hún leit á hann biðjandi og örvænt- ingarfullu augnaráði, en sýndi ekkert fararsnið á sér. „Heyrðir þú ekki til mín?“ Hann (Framh. af 1. siðu.) að sjálfsögðu á næstunni og veldur því fyrst og fremst féleysi, að ekki hefir verið í meira ráðizt á hinum fyrsta áratugi þess en raun er á. Núverandi formaður félagsins er Árni G. Eylands og hefir gegnt því starfi hin seinustu ár. En fyrsti formaður þess var Sigurður Sigurðsson, fyrverandi búnaðarmálastjóri, en Árni Friðriksson fiskifræðingur í tvö ár. Þeir Maggi Júl. Magnúss og H. J. Hólmjárn hafa verið í stjóm félagsins alla tið frá stofnun þess. f Skógræktarfélagi íslands eru nú 400—500 meðlimir. En auk þess starfa fjögur félög í sam- bandi við það, Skógræktarfélag Skagfirðinga, Skógræktarfélag Eyfirðinga, Skógræktarfélag Borgfirðinga og Skógræktarfé- lag Vestmannaeyja. Loks verður Skógræktarfélag Ámessýslu væntanlega stofnað að Laugar- vatni nú um helgina, jafnframt þvi, sem aðalfundur Skógrækt- arfélags íslands verður háður þar að þessu sinni. Verður hann settur á morgun. Eftir kröfu SJúkrasamlags Reykjavíkur og að undangengnum úrskurði, uppkveðnum í dajf, «s með tllvísan til 88. gr. laga um alþýðu- Aryggíngar nr. 74, 31. des. 1937, sbr. 86 gr. og 42. gr. sömu laga, sbr. lög nr. 29, 16. des. 1885, verður án frekari fyrirvara lögtak látið fram fara fyrir öllum ógreiddum iðgjöldum til Sjúkrasamlagsins, þeim er féllu í gjalddaga 1. marz, 1. apr., 1. maí og 1 júnl s.l., að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi gleidd innan þess tima. Lögmaðurinn í Reykjavik 26. júní 1940. Bjoru Þórðarson. Bóndi — Kaupir þú búnaðarblaðið FREY7

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.