Tíminn - 16.07.1940, Blaðsíða 4
284
TÍMITVX, þrlgjndaginn 16. jnll 1940
71. blali
ÚB BÆIVPM
Ferðalög nokkurra stúlkna
í erlend sklp halda áfram að vera
saml svarti bletturinn á bæjarlífinu,
enda vilja bæjarvöldin ekkert gera til
að draga úr þessu. Eitt Reykjavíkur-
blaðið skýrir frá því nýlega, að fyrir
uppljóstrun enskra hermanna hafi lög-
reglan hér nýlega fundið tvær íslenzkar
stúlkur, sem voru lokaðar inni í klefa
í grísku skipi. Voru þær búnar að vera
i skipinu í nokkra daga. Þetta er ekkert
einsdæmi. Það hefir a. m. k. komið, fyrir
tvisvar sinnum í vetur, að lögreglan
hefir sótt stúlkur, sem voru faldar í
klæðaskáp í frönskum togara og höfðu
hafzt við í skipinu nokkra hrið. Þess
má geta, að hér er ekki fyrst og fremst
erlendu sjómennina um að saka, heldur
hafa stúlkurnar gefið sig fram af
frjálsum vilja og falið sig fúslega til
að láta ekki lögregluna vita um veru
sína í skipunum. Flestar þessar stúlkur
munu vera á aldrinum 15—17 ára. Það,
sem verður m. a. að gera, er að veita
lögreglunni lagaheimild til að banna
kvenfólki að fara í erlend skip og hafa
að öðru leyti strangari gæzlu við höfn-
ina. Þá þarf að koma þeim stúlkum,
sem lent hafa í slíku óláni, til einhvers
öruggs dvalarstaðar utan bæjarins.
Drykkjuskapur
á almannafæri virðist frekar fara í
vöxt hér í bænum. Nokkuð oft mun það
koma fyrir, að drukknir íslendingar
sækist eftir félagsskap við útlendu her-
mennina og vill þá stundum koma til
verri tíðinda á eftir. Mun nokkrum
sínnum hafa komið til talsverðra rysk-
inga. Það mun jafnvel hafa komið fyrir
að hermennirnir hafi beðið íslenzku
lögregluna að halda frá þeim áleitnum
bæjarmönnum, sem vildu endilega fá
þá til að drekka með sér. Er drykkju-
skapurinn hér í bænum mál, sem vald-
hafarnir þurfa að athuga betur, ekki
sízt með tilliti til dvalar hins erlenda
hers hér.
Hvað gerist
á Norðnrlöiidnm?
(Framh. af 1. síðu)
hafa komizt úr landi, vinna það
verk. En í Oslóarútvarpinu er þó
lögð á það rík áherzla, að hinir
gömlu valdamenn í Noregi, muni
ekki verða látnir koma að öðru
leyti nálægt uppbyggingu hins
nýja norska ríkis.
Um áform Þjóðverja viðvíkj-
andi Danmörku og Svíþjóð er
enn minna vitað. Rosenberg,
sem er einn höfuðpostuli naz-
ismans, hefir nýlega ritað grein
og sagt að Þjóðverjar yrðu að
taka Norðurlandaþjóðirnar und-
ir varanlega vernd sína. Vera
má, að Svíar Qg Danir sæti ekki
jafn harkalegri meðferð og
Norðmenn fyrst í stað, þar sem
Danir hafa ekki sýnt neina mót-
stöðu aðra en formleg mótmæli,
en Svíar hafa einu sinni ekki
sýnt svo mikla mótspyrnu, að
mótmæla undirokun Þjóðverja.
En það er ljóst af herflutning-
um Þjóðverja um Svíþjóð, að
þeir ráða þar nú öllu því, sem
þeir vilja. Sænsku blöðin eru
þegar háð strangri ritskoðun,
sem t. d. má marka á því, að
þau fá ekki að ræða um þessa
herflutninga Þjóðverja. í am-
erískum blöðum er litið mjög al-
varlegum augum á þetta hátta-
lag sænsku stjórnarinnar. Er
fullkomlega gefið í skyn, að
ekkert sé líklegra til að fá þjóð
til að glata virðingunni fyrir
frelsi sinu en þegar valdhafar
hennar beygja sig þegjandi og
mótmælalaust fyrir erlendu
valdi.
Aðrar fréttir.
(Framh. af 1. síðu.)
skipafloti Breta stærri nú en í
styrjaldarbyrjun.
í Bandaríkjunum eru nú
uppi háværar kröfur um aukn-
ingu kaupskipaflotans, og er
þess krafizt, að hann verði a. m.
k. nógu stór til að fullnægja al-
veg þörfum Ameríku. Farið er að
vinna að auknum framkvæmd-
um í þeim efnum.
Stórfelldar heræfingar eru nú
að byrja í Bandaríkjunum og
verður lögð sérstök áherzla á
meðferð vélknúinna hernaðar-
tækja. Ráðgert er að 900 þúsund
manns verði undir vopnum í
næsta mánuði, en 1V2 miljón
manna í október í haust.
í Tékkóslóvakíu hefir fjöldi
manna verið hnepptur í fang-
elsi nýlega fyrir mótþróa gegn
Þjóðverjum, segir í norskum
fréttum frá London.
Petain einræffisherra hefir nú
fullmyndað ríkisstjórn sína. La-
val er varaforsætisráðherra,
Weygand hershöfðingi er land-
varnarmálaráðhera, Darlan
flotaforingi er flotamálaráð-
herra, Colson hershöfðingi er
hermálaráðherra, Baudoin er
utanríkismálaráðherra og_ Mar-
quet innanríkisráðherra. Ákveð-
ið hefir verið, að Laval skuli
taka við stöðu Petains, ef hann
forfallast skyndilega.
Bretar hafa nýlega misst
einn tundurspilli og einn kaf-
bát í Miðjarðarhafi. Er það 25.
tundurspillirinn og 10. kafbátur-
inn, sem þeir missa síðan styrj-
öldin hófst. Á sama tíma hafa
Þjóðverjar misst 70—80 kafbáta
og ítalir 17 kafbáta, segja
brezkar fréttir.
Loftárásir Þjóffverja á Bret-
land hafa verið heldur strjálli
um helgina en þær voru um
miðja síðastliðna viku. Bretar
halda uppi stöðugum loftárás-
um á þýzkar hernaðarstöðvar og
telj a að oft náist mikill árangur.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu.)
útbreiðslu eldsins. Slokknaði eldurinn
síðan um nóttina, enda var nokkur úr-
koma. Allmiklar skemmdir urðu á svæð
inu, sem er um 3—4 dagsláttur að
stærð. — Mikil aðsókn er nú að Hreða-
vatni og voru t. d. um 50 tjöld sumar-
gesta þar um helgina. Sökum náttúru-
fegurðar hlýtur Hreðavatn líka að vera
einhver eftirsóttasti sumardvalarstaður
landsins. Er mjög kvartað yfir því af
þeim, sem fara með hraðferðabílum, að
þeir skuli ekki hafa viðkomu þar, en
þeir geta það vel tímans vegna.
f r t
Það slys vildi til síðastl. mlðvikudag,
að Lýður Skarphéðinsson frá Keflavík
féll út af vélbátnum Framtíðin, sem
var við dragnótaveiðar út af Snæfells-
nesi. Hafði hann lent í tógunum og
drógu þau hann útbyrðis. Tókst ekki
að ná honum aftur. Lýður var 29 ára
gamall, fæddur að Guðlaugsvik á
Ströndum, en fluttist ungur með for-
eldrum sínum að Tröð i Fróðárhreppi.
Hann var dugnaðarmaður og vinsæll.
Hann lætur eftir sig konu og tvö börn,
t t r
Sigurður Jónasson forstjóri hefir
keypt Bessastaði og búið þar af Björg-
úlfi Ólafssyni lækni.
Þökkum hjartanlega auffsýnda samúff við andlát og jarff-
arför föffur okkar, SIGURÐAR SIGURÐSSONAR fyrrver-
andi búnaffarmálastjóra.
Börn og tengdadóttir.
Viff þökkum öllum þeim, sem viff fráfall og útför ÞÓR-
ÓLFS SIGURÐSSONAR í Baldursheimi heiffruffu minn-
ingu hans, og sýndu okkur og bömum okkar margskonar
vináttu og samúff.
Eiginkona og móffir.
Hólmfríffur Hemmert. Sólveig Pétursdóttir.
Á víðavangt.
(Framh. af 1. síðu.)
stjórinn átt við kaupmennina,
hvort sé þýðingarmeira á þess-
um tímum, viðskiptamálaráðu-
neytið eða fjármálaráðuneytið.
Þá segir Vísisritstjórinn enn-
fremur: „Hinn fráfarandi fjár-
málaráffherra lýsti hins vegar
yfir því, bæffi í útvarpi og blöff-
um, aff f járhagur ríkisins væri í
kaldakoli“. Þetta eru vísvitandi
ósannindi, enda vita það allir,
sem til þekkja, að fjárhagur
ríkisins hafði aldrei verið betri
eða viðskiptajöfnuðurinn við
útlönd hagstæðari um langt
skeið en um það leyti, sem þjóð-
stjórnin var mynduð. Má bezt
sjá það á ríkisreikningunum og
verzlunarskýrslunum fyrir árið
1938. Af þeim ástæðum þurfti
sannarlega ekki á hjálp Sjálf-
stæðisflokksins að halda. En
það þurfti að losa þjóðina við
hina öfgafullu stjórnarandstöðu
og hjálpa Sjálfstæðisflokknum
til að verða ábyrgur flokkur. í
því var fólgin ein meginþýðing
stj órnarsamvinnunnar.
Samstarfiff og J. J.
Árni frá Múla heldur áfram
tilraunum sínum til að spilla
sambúð flokkanna og veitist nú
sem fyr að Jónasi Jónssyni.
Segir hann t. d. í Vísi 9. þ. m.:
„Sjálfstæffismenn eru yfirleitt
þeirrar skoffunar, aff enginn
maður hafi verið né sé Sjálf-
stæffisflokknum óþarfari en
formaður Framsóknarflokksins,
Jónas Jónsson. Og Sjálfstæffis-
menn eru ekki einir uppi meff
þá skoffun, aff þá fyrst sé von
um heilbrigffa samvinnu um
stjórn landsins, þegar áhrifa
þessa hleypidómafulla sundr-
ungarpostula hætti aff gæta á
hæstu stöðum“. Árni getur ver-
ið þess fullviss, að slík skrif hans
bera ekki meiri árangur en
Ameríkuferðin förðum. Þau rifja
það aðeins upp, að J. J. á meiri
þátt í því en nokkur maður
annar, að samstarf tókst milli
flokkanna, en að Árni hefir gert
allt, sem hann hefir getað, fyrst
til þess að koma í veg fyrir, að
samstarfið tækist og síðan til
þess að eyðileggja það.
Útbrelðið TÍMANN
354
Margaret Pedler:
Laun þess liðna
355
vegarspotti eða troðningur, minnti á
einhver sérstök, sár augnablik í liðna
tímanum. Jafnvel reglubundinn niður
hafsins við rætur bjargsins, hann þuldi
henni sín beittu minningarljóð um
þann dag, er þau Blair höfðu staðið
niðri á sillunni, og hann hafði fyrst ját-
að henni ást sína. Og ástin var numin
á brott úr lífi hennar fyrir fullt og allt.
Eftir var aðeins hin djúpa vinátta, sem
hún bar til Colins, — en vinátta er svo
óralangt frá ást —, og svo vitundin um
að hún hefði borgið hamingju Candys,
og goldið með því skuld móður sinnar.
Elizabet hafði sáð fórnum og vökvað
tárum, og upp úr þeim jarðvegi spratt
hamingja tveggja annara einstaklinga.
Jack Sutherland hafði loksins tekizt að
fá Jane til að giftast séT og nú var hinni
löngu, kyrlátu bið lokið. Læknirinn
hafði undir eins endurnýjað bónorð sitt
við Jane einu sinni enn, þegar trúlofun
þeirra Elizabetar og Colins vitnaðist.
,JÉg hét því einu sinni,“ sagði hann,
„að halda áfram að biðja þín þangað til
þú segðir já, þó ekki væri nema af tóm-
um leiðindum yfir þrákelkni minni. Nú
er sú afsökun orðin að engu, sem þú
bægðir mér ávallt á burt með. Nú get-
ur þú ekki framar sagt að Colin sé „þitt
hlutverk.“ Nú er hann „hlutverk“ Eliza-
betar og þarf ekki framar á þér að halda.
Jane,“ — djúp röddin titraði lítið eitt
af margra ára trúfastri ást, þrá og bið,
— Jane! Gætirðu ekki núna gert mig að
„þínu hlutverki?" “
Og að lokum hafði hún látið undan.
Það var alveg satt, að Colin þurfti henn-
ar ekki framar með. Og Jack, þetta
einmana og ástríka stóra barn, hann
þarfnaðist hennar ákaflega mikið. Jane
hvarf þangað, sem hennar þurfti mest
með, eins og hún hafði ávalt gert, alla
sína æfi. Giftingin hafði farið fram 1
kyrþey. Colin bjó að Brownleaves, með
umsjá Söru, og ætlaði a,ð vera þar þang-
að til hann gifti sig. Jane kom þó þang-
að öðru hvoru að líta eftir.
„Ég skal hugsa vel um þau bæði, ung-
frú, — ég meina frú, — þegar þau eru
orðin hjón,“ sagði Sara vonglöð. „Því
að það er satt, að þau eru börn ennþá,
bæði tvö.“
Allar þessar hugsanir og minningar
liðu um hug Elizabetar, er hún hallaði
sér fram á rimlagerðið, sem var um-
hverfis garðshjallann, og horfði yfir
dalinn, til þokukenndra hæðanna hin-
um megin. Hér og hvar lágu grænir,
grasigrónir stígar gegn um skóginn. Þeir
voru óljósir og dularfullir og virtust
liggja út í óvissuna, eins og leiðir lífs-
ins. Hvert myndi hin nýja braut leiða
hana, brautin sem hún legði nú út á
Jarðarför Þórólfs
í Baldursheimi.
(Framh. af 1. síðu)
Fjöllin höfðu hærzt á einni
nóttu. —
Kl. um 12 fóru að koma bilar,
fullir af fólki, heim að Baldurs-
heimi hvaðanæfa úr héraðinu.
Ennfremur fjölgaði fólki á hest-
um bæði úr Mývatnssveit og
nærliggjandi sveitum.
Fram til kl. 2 bættist stöðugt
í hópinn, sem hafði aðstöðu til
að heiðra minningu Þórólfs Sig-
urðssonar, með því að standa
yfir moldum hans.
í Baldursheimi voru saman-
komnir þenna dag milli 10 og 20
bílar, tugir .hesta og hundruð
manna. Kl. liðlega 2 hófst
kveðjuathöfnin. Sólin vermdi
mannfjöldann, sem safnaðist
saman sunnanundir reisulega
Baldursheimsbænum umhverfis
hvítu, blómskreyttu kistuna.
Karlakór Mývetninga, undir
stjórn Jónasar Helgasonar,
annaðist sönginn við þetta tæki-
færi. Fyrsta lagið, sem hann
söng, var Lýs, milda ljós. Þá
flutti Hermann Hjartarson
prestur á Skútustöðum fagra og
áhrifamikla minningarræðu. Að
henni lokinni söng karlakórinn.
Síðan las Jón Gauti Pétursson
kvæði eftir Huldu skáldkonu,
sem hún orti eftir Þórólf látinn
og flutt var, er lík hans var bor-
ið til skips í Reykjavík, og færði
honum alúðarþakkir fyrir kynni
bernskuleikanna og samstarf
fullorðinsáranna. Sigurður á
ArnaTvatni las annað kvæði eftir
Huldu, sem ort var í orðastað
Þórólfs til konu hans. Voru bæði
þessi kvæði sungin af karlakórn-
um. Kistan var síðan borin í
ættargrafreit, sem stendur í
túninu stutt frá bænum og var
Þórólfur þar lagður við hlið föð-
ur síns.
Við gröfina nefndi einstæður
gamall maður, sem vel þekkti
Baldursheimsbóndann, nafnið
hans í síðasta sinn með innileg-
asta þakklæti og fól hann guði.
Jónas Jónsson alþm. færði
hinum látna kveðjur og þakkir
samflokksmanna hans og lagði
fagran krans á gröfina frá mið-
stjórn Framsóknarflokksins. Að
endingu söng karlakórinn lagið:
„Þú bláfjallageimur" — „und
miðsumars himni er hvílan þín,
hér skalt þú ísland barni þínu
vagga.“
Að jarðarförinni lokinni var
öllum gestum gefin mjólk og
kaffi áður en þeir héldu heim til
sín.
Það bárust margir kransar
bæði frá einstökum mönnum,
stjórn nýbýlasjóðs o. s. frv.
Þegar leið að kvöldi og menn
bjuggust til heimferðar, kólnaði
aftur meira í veðri. Hljóðláti
fjallahringurinn hjúpaði ljós-
um þokuslæðum um hvíta fald-
inn sinn, en á Mývatni kvökuðu
fuglar 1 sumarkyrrðinni.
Þannig kvöddu Þingeyingar
einn sinn bezta bróður og Mý-
vatnssveit og Þingeyj arsýsla
einn sinn bezta son.
Vinur.
Söngskóli
í VnrmahlíÖ.
(Framh. af 1. síðu.)
þá unnið að því, að ungir söng-
hneigðir menn færu þangað og
kenndu söng heima í sveit sinni
að loknu námi. Frá þessum skóla
ætti að breiðast almennur list-
rænn söngur um allt land eins
og nú breiðast íþróttaiðkanir
frá íþróttaskólanum á Laugar-
vatni.
Góð og almenn söngmennt er
áreiðanlega svo mikils virði, að
fyrir hana er mikið gerandi.
■GAMLA BÍÓ*
Skuggi
fortíðarinnar
Amerísk stórmynd, gerð
af þýzka kvikmyndasnill-
ingnum Fritz Lang, sem er
frægur fyrir afburðakvik-
myndir, eins og „M“ og
„Erfðaskrá Dr. Mabuse“.
Aðalhlutv. leika:
SYLVIA SIDNEY
og
GEORGE RAFT.
Nú kemur
llotínn
(Here Comes the Navy)
Spennandi og skemmtileg
amerísk kvikmynd, frá
Wamer Bros.
Aðalhlutv. leika:
JAMES CAGNEY,
PAT O’BRIEN
og
FRANK MCHUGH.
8ma§ólnverd
á eitirtöldum tegundum af Cígarettttm
má ekkí vera h æ r r a en hér segir
Yenidejh Oval (i 50 stk. kössum) kr. 4,50 kassinn
Kings Guard (í 50 stk. kössum) — 4,50 kassinn
K.O. No. 6 Gold tipped(í 20 stk. pökkum) — 1,80 pakkinn
Do. plain (i 50 stk. kössum) — 4,50 kassinn
K.O. No. 9 Gold tipped(í 50 stk. kössum) — 4,50 kassinn
Do. plain (í 50 stk. kössum) — 4,50 kassinn
Crown de Luxe (i 10 stk. pökkum) — 1,10 pakkinn
Do. (í 20 stk. pökkum) — 2,20 pakklnn
Do. (i 100 stk. kössum) —11,00 kassinn
Rltz Gold tipped (í 25 stk. pökkum) — 1,80 pakkinn
Do. (í 25 stk. kössum) — 3,60 kassinn
Monde Elgantes (í 25 stk. pökkum) — 2,25 pakkinn
Private Seal .... kr. 0,85 10 stk. pakkinn
Do .... — 1,70 20 — —
Cavenders Gold Leaf .... — 0,85 10 — —
Do. .... — 1,70 20 — —
Myrtle Grove .... — 0,85 10 — —
Do .... — 1,70 20 — —
Greys Virginia .... — 0,85 10 — —
Do.
1,70 20
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má útsöluverðið vera
3% hærra vegna flutningskostnaðar:
Tóbakseinkasala ríkisíns.
Eftirtaldar vörur
höfum við veajulega til sölus
Frosiff kindakjöt af
dilkum - sauðum - ám.
Nýtt og frosið nautakjöt
Svinakjöt,
tJrvals saltkjöt,
Ágætt hangikjöt,
Smjör,
Ostar,
Smjörlíki,
EgJÍ,
Harðfisk,
Fjallagrös
Samband ísl. samvinnuíélaga.