Tíminn - 13.08.1940, Síða 3

Tíminn - 13.08.1940, Síða 3
79. blaft l>rigjinlaginn 13. ágúst 1940 315 ANNÁLL Dánarmliuimg. Guðmundur Gunnarsson frá Tindum andaðist að heimili sínu í Stykkishólmi að kvöldi hins 28. júní sl., eftir stutta legu. Banamein hans var heilabólga. Guomundur var Breiðfirðingur að ætt, og ól allan aldur sinn við Breiðafjörð og á Breiðafirði. Hann var fæddur að Tindum í Skarðshreppi hinn 12. okt. 1878, og dvaldi hann þar hjá foreldr- um sínum fram undir tvítugs árin, en þá fór hann að heiman. Stundaði hann einkum sjóróðra við Breiðafjörð og víðar, en fékkst við bókband og barna- kennslu á vetrum. Engrar skóla- menntunar naut hann í æsku, en aflaði sér staðgóðrar þekk- ingar með lestri góðra bóka og var bæði víðlesinn og fróður. Snemma bar á því, að Guð- mundur var vel hagorður, þótt hann flíkaði því lítt á yngri árum, en seinna urðu margar lausavísur hans landskunnar, og síðastliðinn vetur gaf hann út ljóð sín og lausavísur og nefndi bókina Tinda. Mun bókin þegar vera komin á mörg heimili við Breiðafjörð og víðar um landið. Með Guðmundi er hniginn í val- inn einn af hinum traustbyggðu sonum íslenzkrar sveitamenn- ingar. Hann var, eins og margir bænduT við Breiðáfjörð, jafn- vígur á landi og sjó, fróðleiks- fús, með haga hönd. Hin síðústu ár æfi sinnar vann Guðmundur að bókbandi meiri hluta ársins, en 1 þeirri iðn hafði hann aðeins notið tilsagnar eins til tveggja mánaða tíma á yngri árum sín- um, en var þó mjög eftirsóttur af bókamönnum til þeirra starfa. Börn hans eru hin mann- vænlegustu og eru synir hans þrír á lífi og ein dóttir. Son sinn um tvítugt misstu þau hjón síð- astliðinn vetur, en hann var þá við smíðanám í Reykjavík, hjá frænda sínum, Gísla Skúlasyni frá Skáleyjum. Er mikill harmur kveðinn að eiginkonu og börn- um hins látna, að hafa mátt sjá á bak á sama ári ástfólgnum bróður og syni og föður og ekta,- maka. — Guðmundur var greindur maður og gjörhugull og fór ekki ætíð troðnar leiðir í skoðunum sínum. í stjórnmál- um fylgdi hann Framsóknar- flokknum að málum, en í kosn- ingastökum sínum vóg hánn til beggja handa og miðaði ekki yrkisefni sín við flokka eða flokkspólitík. — Kona Guð- mundar er Sigurborg Sturlaugs- dóttir frá Akureyjum á Gilsfirði, og er sú ætt fjölmenn og vel- þekkt við Breiðafjörð. S. J. ÍÞRÓTTIR Héraðsmót Ungmennasambands Vestur- Húnvetninga. Samband ungmennafélaga í Vestur-Húnavatnssýslu hélt sitt árlega héraðsmót að Hvamms- tanga sunnudaginn 14. júlí síðastliðinn. Skúli Guðmunds- son alþingismaður setti mótið með ræðu, frú Guðrún Ágústs- dóttir úr Reykjavík söng nokk- ur lög, með undirleik Björns G. Björnssonar á Hvammstanga, en síðan fór fram íþróttakepp li í allmörgum greinum. Vo. u þátttakendur í íþróttunum ur fimm ungmennafélögum, sem eru í sambandinu. — Beztu af- rek í íþróttunum voru þessi: 100 metra bringusund: Rögnvaldur Rögnvaldsson úr U. M. F. Grettir, 1,52 mín. Hástökk: Gunnlaugur Jónsson frá Fossi, úr U. M. F. Dagsbrún, 1,65 m. Langstökk: Bjarni Pétursson, úr U. M. F. Dagsbrún, 5,62 metra. Kúluvarp: Jón B. Rögnvaldsson, úr í- þróttafél. Hvammstanga, 10,54 mtr. Kringlukast: Bjarni Pétursson, úr U. M. F. Dagsbrún, 28,57 mtr. 100 metra hlaup: Hannes Þórðarson, úr U. M. F. Víðir, 13,5 sek. 800 metra hlaup: Þórir Daníelsson, úr U. M. F. Grettir, 2,28 mín. 4000 metra hlaup: Björn Einarsson, úr U. M. F. Dagsbrún, 13 mín. 13,9 sek. í boðhlaupi milli U. M. F. Dagsbrún og U. M. F. Fram- tíðin, sigraði Framtíðin. Knattspyrnukappleikur fór fram milli knattspyrnufélags- ins Óðinn á Blönduósi og knatt- spyrnuliðs sambands ung- mennafélaganna í Vestur- Húnavatnssýslu, og sigraði sambandsliðið með 3 mörkum gegn 2. Eftir að íþróttakeppninni lauk söng karlakórinn „Banda- menn“, undir stjórn séra Jó- hanns Kr. Briem á Melstað, nokkur lög, en síðan var stig- inn dans. Héraðsmótið var fjölsótt, enda veður svo gott sem bezt yarð á kosið. Héraðsmót Ungmennasamb. Dalamanna. Þann 28. júlímánaðar síðast- liðinn hélt Ungmennasamband Dalamanna árlegt héraðsmót sitt að Sælingsdalslaug í Hvammssveit. íþróttakeppni mótsins lauk eins og hér segir: Sund, 1000 metrar: 1. Torfi Magnússon (Stjarn- an) á 18,20,6 m. 2. Ketilbjörn Magnússon, frá sama félagi, á 20 mín. 23,2 sek. Sund, 100 metrar: 1. Torfi Magnússon (Stjarn- an) á 1 mín. 27,3 sek. 2. Ást- valdur Magnússon (Stjarnan) á 1 mín. 29,8 sek. 3. Ketilbjörn Magnússon á 1 mín. 33 sek. Langstökk: 1. Ástvaldur Magnússon (Stjarnan) 5,75 m., 2. Harald- ur Þórðarson (Stjarnan) 5,53 m., 3. Kristján Jakobsen (Unn- ur djúpúðga), 5,39. Hástökk: 1. Ástvaldur Magnússon (Stjarnan), 1.45 m., 2. Harald- ur Þórðarson, 1.43 m., 3. Krist- ján Jakobsert, 1.40 m. Hlaup, 100 metra. 1. Ástvaldur Magnússon á 12,8 sek., 2. Haraldur Þórðar- son á 13 sek. Ekki kom til úr- slita um þriðja mann í þessari keppni. Hlaup, 4000 metrar: 1. varð Haraldur Þórðarson (Stjarnan) á 13 mín. 34,8 sek., 2. Gísli Ingimundarson (Stjarn- an) 13 mín. 39,4 sek., 3. Evert Sigurvinsson(Stjarnan) 15 mín. Drengjahlaup, 200 metra: 1. Bragi Húnfjörð (17. júní) 29,3 sek., 2. Bjarni Magnússon (Unnur djúpúðga) 32,4 sek., 3. Steingrímur Benediktsson (Unn- ur djúpúðga) 36 mín. Kappsláttur (14X14 m.): 1. Magnús Sigurjónsson(Unn- ur djúpúðga) 10 mín. 45 sek. Hann hlaut nú í annað skipti 1. verðlaun í kappslætti, sem er silfurskjöldur, er vinnst til eignar í 3ja sinn. 2. Guðmundur Hjartarson (Unnur djúpúðga) 13 mín. 8 sek., 3. Gestur Sveins- son (Dögun) 14 mín. Að loknum íþróttum flutti gj aldkeri Breiðfirðingafélagsins í Reykjavík, Snæbjörn Jónsson, ávarp, en Andrés Straumland ræðu. Ólafur Benteinsson og Sveinbjörn Þorsteinsson sungu. Loks var dansað. Samkomuna sótti nokkuö á fimmta hundrað manns. Veður var milt og stillt mestan hluta dagsins. Kopar, aluminium og fleiri málmar keyptir í LANDSSMIÐJUNNI. Auglýsið í Tímamim! saka hve margar íslenzkar stúlk- ur rækju verzlun með sjálfar sig við höfnina, og kom í ljós, að þær voru ekki færri en 40, áður en hernámið kom. Öll rannsókn lögreglunnar benti á, að þessar stúlkur dreifðu kynsjúkdómum bæði um bæinn og ekki ósjaldan til aðkomumanna, sem þekktu lítt þann undirheim, sem er að myndast í þessu efni. Lögreglu- stjórinn sneri sér til Alþingis og bað um lagaheimild til að banna kvenfólki, sem var grunsamlegt í þessu efni, dvöl við höfnina. Ég tók við frv. til flutnings, og þótti gott að sjá, hve mikill væri á- hugi landlæknis að nota þetta tækifæri til manndómsaðgerða í baráttu móti kynsjúkdómum. — Var þetta eins konar próf á land- lækni á útmánuðum 1940. Hann stóðst prófið ekki sem bezt. Hann fór til nefndarmanna í báðum deildum, blekkti þá með undir- róðri sínum, og vegna hans á- hrifa var frumvarpinu breytt á þann hátt, að það var gersam- lega þýðingarlaust. Ég lét mér í það sinn nægja að gefa land- lækni tækifæri til að sýna mátt sinn og getu í baráttunni við kynsjúkdómana. Síðan hefir hættan stóraukizt í þessum efn- um, við ótölulegar skipkomur og návist margra þúsunda her- manna úr fjarlægum löndum. En ekkert hefir orðið vart við varn- arráðstafanir í þessu efni frá heilbrigðismálastj órninni, hvorki í ræðu né riti, og heldur ekki í stjórnarframkvæmdum. Þess var heldur ekki að vænta, úr þvi landlæknir sá ástæðu til að vinna á móti réttmætri viðleitni lögreglunnar, meðan aðstaðan til þess var greið og góð. Það má þess vegna fullyrða, að yfirstjórn heilbrigðismálanna sefur vært og draumlaust, í sambandi við þann háska, sem vofir yfir þjóðinni vegna kynferðissjúkdóma. XI. Landlæknir hefir útvegað sér, eða nefndum, sem hann ræður yfir, lagaheimildir til að láta, undir vissum kringumstæðum, með læknisaðgerðum, gera karla og konur óhæfar til að eiga af- kvæmi, og til að leyfa fóstureyð- ingar, þegar sérstaklega1 stendur á, en lögbanna læknum slíkar til- tektir endra nær. Bæði þessi málefni eru vandasöm og mikils- verð. Fyrir duglegan og ráð- snjallan landlækni var hægt að gera þjóðinni mjög mikið gagn með þessu. En ef ódugnaðar og hirðuleysis gætti í meðferð þess- ara heilbrigðismála, má segja, að verr væri af stað farið en heima setið. Það er eitt af mestu meinum mannkynsins, að ýmsar tegundir af fólki, sem er andlega, siðferði- lega eða líkamlega vanheilt, eigi afkvæmi, sem verða mann- félaginu til byrði og margháttaðs tjóns. Fyrir nokkrum árum kom í ljós, að ein glæpamannafjöl- skylda, hafði kostað Bandaríkin, í nokkrum ættliðum, 500 milljón- ir dollara. Jafnvel í litlu þjóðfé- lagi, eins og á íslandi, er um tölu- vert að ræða af úrkynjuðu fólki, sem sýnilega á ekki að hafa leyfi til að verða foreldrar. Þar að auki er önnur og gerólík hlið á málinu. Má þar nefna konur, er alið hafa mörg börn, og þola ekki að eiga fleiri afkvæmi. Það má telja fullvíst, að allar slíkar kon- ur óski ekki að eiga fleiri af- kvæmi, m. a. til að geta hlúð að börnum þeim, er þær hafa alið. Það er skemmst af því að segja, að landlæknir hefir látið sér að mestu nægja að fullnægja skrif- stofusýki sinni, hafa heimild til að gera gagn, en gera það ekki. Það er skylda landlæknis að fræða þjóðina um þessa gagn- legu heimild, og afla sér stuðn- ings frá borgurum landsins til að geta gert þessa löggjöf meira en pappírslöggjöf. En enginn hefir orðið var við slíka liðsbón. — Heilsulausar mæður njóta líti'llar verndar af þessari löggjöf. Og glæpamenn, sem fara stelandi um landið, og hæla sér af að hafa setið í frægustu fangelsum stór- þjóðanna, fá að framlengja stofn sinnar góðu ættar, án þess að heilbrigðisstjórnin hreyfi bandið frá augunum. Ekki hefir landlæknir staðið betur á verði í málinu um fóstur- eyðingar. Til héraðslækna og ýmsra almennra lækna koma ár- lega ekki fáar konur, bæði giftar og ógiftar og óska eftir aðgerð til eyðingar fóstri. í einu meðalstóru læknishéraði báðu tíu stúlkur um slíka aðstoð sama árið. — Læknirinn neitaði um alla hjálp í þessu efni. Þær hurfu burt úr héraðinu til staða, þar sem þeim var betur tekið með erindi sín. Það er á almennu vitorði,aðólög- legar fóstureyðingar hafa eng- an veginn horfið með lagaboði því, sem landlæknir fékk til veg- (Framh. á 4. síöu) Betamon er bezta rotvamarefnið. Betamon tryggir rabar- bara- og berjageymsluna í sykurleysinu. fHEHIBX Kirkjustræti 8B. Sími 1977 NmiOiiiii vélar fyrir siii)örs;iinlöj: með tilheyrandi áhöldum í samráði við sérfræðing í mjólkuriðnaði Vélaverkjstæðið Laugaveg 68. Sigurður Sveinbjörnsson. Sigurlinni Pétursson. 5753 sími 5753. Innheimtumenn! V innuikór Gjalddagi Tímans var 1. júlí. Nú er því kominn timi til að hefjast handa. Vinnið ötullega að innheimtu Tímans í sumar og haust, eins og að undanförnu, og sendið innheimtu blaðsins skilagrein við fyrstu hentug- leika. INNHEIMTAN. Vaínsleður með lcður- og gúmmí-sólum fyrirllggjandi. - GeSjun — Iðunn Aðalstrœtl. íþrótlafulilrúi. Nú er hagkvæmt að baka brauðín heima • * JL Hveiti........0.70 kgr. Rúgmjöl.......0.65 — Kjarnahveiti .. 0.70 — Lyftiduft.....5.00 — 5% t pðniuti lei^piajj^wuptíi ejjlui á)ii6 ^ökaupíélacjiá íþróttafulltrúastarfið, samkvæmt 3. gr. íþróttalaganna, er laust til umsóknar. Umsóknir skulu sendar kennslumálaráðuneytinu fyrir 31. ágúst næstkomandi. Árslaun kr. 5700.00, auk verðlagsuppbótar. Kennslumálaráðuneytið, 9. ágúst 1940. Vinnið ötullet/a fyrir Tímunn. Hreinar léreftstuskur kaupir Prentsmiðjan Edda Lindargötu 1 D. Símanúmer bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins, er 8909. 384 Margaret Pedler: fyrir ekki. Hún gat ekkert sagt eða gert, sem hafði hin minnstu áhrif á Poppy. Að lokum setti Poppy henni úrslitakosti. „Ég skal láta yður fá tveggja daga frest til framkvæmda. Ef þér verðið ekki búnar að játa allt á yður innan þess tíma, þá bregst ég heiti mínu við Blair og segi herra Frayne allan sannleikann sjálf. En ég ætla að gefa yður tækifæri til þess að segja honum það sjálf. Poppy þagnaði og horfði á Fjólu með spottandi meðaumkvun. Hin næma eðlisávísun blés henni allt í einu dálitlu í brjóst og hún bætti við: „Þér ættuð að segja hon- um það sjálfar, hann verður fljótari til að fyrirgefa yður með því móti.“ Síðustu orð Poppy endurómuðu í huga Fjólu, eftir að hún var orðin ein: „Hann verður fljótari til að fyrirgefa yður með því móti.“ Henni var ljós sá sannleikur, sem í þeim fólst. Hún hafði aðeins um það að velja, að segja Candy sjálf allan sannleikann, eða láta einhvern annan gera það. Það hlaut að verða henni í hag að játa sjálf, þótt seint væri. Henni var engin önnur leið opin, engin önnur hugsanleg leið. Hin heita og hlífðar- lausa ákefð Poppy hafði auk þess vakið í brjósti hennar ofurlitla, gamla og dott- andi iðrunarkennd. Hún hafði alla æfi verið svo önnum káfin við að afla sjálfri LaUn þess liðna 381 1 mállausri undrun? Svo reyndi hún að halda sjálfsvaldi sínu og ypti öxlum. „Verið þér nú ekki að neinni vitleysu. Finnst yður líklegt, að ég fari að segja honum það, ha? .... En ég vil ekki heldur að þér gerið það. Hlustið þér nú á mig: Ég skal gefa yður hvað sem þér viljið, borga yður hvað sem er, ef þér viljið aðeins halda þessu öllu leyndu.“ „Borga mér?“ Poppy lagði takmarka- lausa fyrirlitningu í þessi orð. „Ég vildi ekki einu sinni snerta hina skít- ugu peninga yðar! Þér getið ekki gefið mér nokkurn skapaðan hlut, sem ég myndi meta þess að þakka fyrir hann, hvað þá meir.“ „En ég bið yður að halda þessu leyndu, þó ekki sé nema af vorkunn- semi! Við erum svo hamingjusöm, við Candy, eins hamingjusöm og þér og yðar maður.“ „En við erum ekki hamingjusöm." Poppy sagði þetta af þunga, næstum illilega. „Það er einmitt aðalatriðið. Blair verður að verða hamingjusamur og hann skal verða það. Við getum ein- ar komið því til leiðar, þér og ég. Hann vill giftast ungfrú Frayne.“ „En hann getur það ekki!“ hrópaði Fjóla upp yfir sig. „Hann er giftur yð- ur.“ „Huh! Það eru margar leiðir til þess

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.