Tíminn - 01.10.1940, Page 4
372
TÍMINN, þrigjndaginn 1. okt. 1940
93. blalS
Lækkað verð i heilnm sekkjum.
Terðliitar i búðunum.
Ö^kaupíélaqijá
Heímilískennsla
Stúlka vön kennslu tekur að
sér heimiliskennslu utan
Reykjavíkur. Getur kennt ung-
lingum tungumál o. fl.
Gísli Guðmundsson ritstjóri
vísar á.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
lagsnefndar, fyrir ákvörðun þá,
sem nefndin tók um kjötverð-
ið í haust. Svaraði Jón Árnason
framkvæmdastjóri árásum þess
um hér í blaðinu, og virðast
bæði Alþýðublaðið og Vísir hafa
séð sér þann kost vænstan, að
láta umræðurnar um málið
niður falla. Einar Magnússon
virðist ekki hafa viljað láta sér
þetta að kenningu Verða, því að
hann laumar inn í útvarpser-
ind sitt í gærkvöldi illvígri á-
rás á kjötverðlagsnefnd fyrir á-
kvörðun hennar um kjötverðið.
Þetta kryddaði hann svo með
allskonar svívirðingum um
bændur, kallar þá ölmusulýð og
öðrum illum nöfnum, brigslaði
þeim um okur á framleiðslu-
vörum sínum, sem hann og
aðrir fátækir launamenn yrðu
að kaupa. Honum láðist reynd-
ar að geta þess um leið, að hann
er sjálfur einn af tekjuhæstu
mönnum landsins. Að erindi
þessu mun verða nánar vikið
hér í blaðinu síðar, því að það
lýsir hugsunarhætti, sem álíta
mætti að væri útdauður, nema
hjá aumasta úrkastslýð, sem
engan skilning hefir á gildi
bændastéttar landsins fyrir af-
komu og menningarlíf þjóðar-
innar, en virðist líta á bænd-
ur sem þræla launastéttanna,
sem eigi að miða alla atvinnu-
hætti sína og viðskipti við
hagsmuni þeirra. En þetta mál
fær ekki þó nægilega afgreiðslu
fyr en útvarpið er búið að
gera grein fyrir hvers vegna
slík óhæfa sem þessi er látin
koma fyrir. Má telja alveg víst,
að útvarpsráð sé sammála um
það, að slíkt erindi sem þettá
brjóti freklega í bág við reglur
útvarpsins um hlutleysi í mála-
flutningi. En með hverju getur
þú útvarpsráð afsakað sig? Lítt
þekktur og að engu merkur
maður, er látinn halda er-
indi í útvarpið. Því verður
ekki trúað fyr en umsögn
útvarpsráðs liggur fyrir að
það láti slíka menn flytja
erindi, án þess að lesa þau áð-
ur, eða fela það einhverjum
trúnaðarmönnum, sem það get-
ur treyst. Er þess vænst, að
útvarpsráð geri hreint fyrir
sínum dyrum og skýri frá því
opinberlega, hyernig stendur á
því, að slíkt hneyksli, sem hér
hefir verið lýst, hefir getað átt
sér stað.
Minnisblað
íyrír
sláturtíðina:
Rúgmjöl kr. 0.48 kgr.
Bankabyggsmjöl kr. 0.50 kgr.
Haframjöl kr. 0.90 kgr.
Fjallagrös kr. 5.50 kgr.
Salt kr. 0.25 br.
Saltpétur kr. 0.25 br.
.Laukur kr. 1.60 kgr.
Krydd allsk. kr. 0.25 br.
Edik kr. 0.80 fl.
Ediksýra kr. 1.50 fl.
Rúllupylsugarn kr. 0.80 hnota
Sláturgarn kr. 0.30 hespa.
Rúllupylsunálar kr. 0.30 stk.
Sláturnálar kr. 0.06 stk.
Leskjað kalk kr. 0.50 1/1 fl.
5% í pöntun
tehjuaff/angur
eftir árið.
Safníð
vetrarforða.
Hefi flutt lækningfastofu mína
í Laugavegsapótek, 2. hæð.
Viðtalstími kl. 2—3 nema mánudaga og fimmtudaga kl. 10—11
f. h. og á öðrum tímum eftir samkomulagi.
Sími 3933 — Heimasími 3907
Ófefgur J. Ófeigsson, læknir.
Frá og með deginum í dag
lækka forvextir vorir um l/i % p. a.,
úr 7% í 6Vz% P> a.
Reykjavík 1. október 1940.
/ /
Utvegsbanki Islands h.f.
Tílkynníng frá ríkísstjórninni
Myrkvunartíminn í sambandi við umferðartakmark-
anir á áður auglýstum svæðum, vegna hernaðaraðgerða
Breta hér á landi, verður í oktober sem hér segir:
1) Reykjavík og nágrenni frá kl. 6.05 síðd. til kl. 6.20 árd.
2) Hrútafjörður frá kl. 6.00 síðd. til kl. 6.15 árd.
3) Akureyri og nágrenni frá kl. 5.45 síðd. til kl. 6.00 árd.
4) Seyðisfjörður og nágr. frá kl. 5.30 síðd. til kl. 4.45 árd.
Skemmtikvöld
Framsóknarfélaganna
verður haldið í Oddfellowhúsinu n. k. fimmtudag. Hefst kl. 8.30.
Margt til skemmtunar.
Félagsmenn vitji aðgöngumiða fyrir sig og gesti sína á af-
greiðslu Tímans fyrir hádegi á fimmtudag eða panti þá í síma
2323. — Nánar í útvarpinu á morgun.
Stjjórnir félaganna.
Tílkynníng irá AlþýðubrauðgerðinnL
Frá og ineð sunnudeginum 29. f. m. lækk-
aði verð okkar á rúgbrauðum, sem hér segir:
Seydd rúgbrauð úr 0.95 í 0.90 stk.
Óseydd — úr 0.90 I 0.85 stk.
\ormalbra uð úr 0.90 í 0.85 stk.
»<,—0—0. GAMLA
NINOTCHKA
Amerísk úrvals skemmti-
myncf, tekin af Metro
Goldwyn Mayer undir
stjórn kvikmyndasnillngs-
ins
Ernst Lubitsch.
Aðalhlutverkin leika:
GRETA GARBO
MELVYN DOUGLAS.
Sýnd klukkan 7 og 9.
-o—o— nýja BÍÓ*~‘—°
Eldur í
Rauðuskógum.
Spennandi amerísk kvik-
mynd, gerð eftir hinni víð- j
frægu skáldsögu eftir Jack
London (Romance of the
Redwoods).
Aðalhlutverkin leika: t
JEAN PARKER
og
CHARLES BICKFORD.
Sýnd í kvöld kl. 7 og 9'.
Börn fá ekki aðgang.
Frá 1. október verða
innlánsvextir í sparisjóði 31 §
og á innlánsskírteinum 4 §
Landsbanki íslands
i
Útvegsbankí íslands h.f.
Búnadarbankí íslands
Sparisjóður Reykjavíkur og nágr.
34 Robert C. Oliver:
ir mennirnir bak við nana. Þetta getur
orðið yður dýrt! Við skjótum!
Lucy hamaðist við að reyna að kom-
ast út, en áður en það tækist höfðu
mennirnir náð henni.
— Ef þú ekki þegir skjótum við þig
niður svo að þú getir aldrei framar
hvíslað, hvað þá meira.
— Haltu henni, skipaði annar og
þrýsti byssunni að brjósti hennar.
— Sláðu hana í rot — annars finnur
hún upp á einhverjum skollanum, ráð-
lagði hinn.
— Asninn þinn! Það á nú að nota
hana betur en svo. Foringinn hefir snið-
ugar ráðagerðir með hana. En við verð-
um að fá að vinna i friði ofurlitla stund
ennþá., Hefir þú flöskuna?
Hinn lét ljósið frá vasaluktinni leika
um húsgögnin og greip svo dúk af einu
smáborðinu og helti í hann nokkrum
dropum úr lítilli flösku, sem hann tók
úr vasa sínum.
Lucy barðist um, sparkaði, sló og reif,
en þorpararnir þrýstu hinum mjúka,
fagra líjcama hennar niður í gólfið með
óbliðum tökum og báru dúkinn með
vökvanum að vitum hennar, — hún
streittist á móti, en gat engu áorkað —
hún var neydd til að anda að sér —
dauðskelkuð yfir því, hvað þessar mann-
fýlur myndu ætla að gera við hana. —
Æfintýri blaðamannsins 35
Allt byrjaði að hoppa og dansa fyrir
augunum á henni — henni fannst hún
snúast marga hringi — sá alllskonar
vitleysur og svo hvarf allt smám saman
— alit varð hljótt og dimmt.
Mennirnir stóðu á fætur. — Við bind-
um hana á meðan. Hér er mikið að
gera, hugsa ég. Og við munum ekki
verða ónáðaðir. Við megum ekki láta
verða neitt að henni. Manstu hvað for-
inginn sagði? í þetta skipti eru það að-
eins hin gömlu skjöl Sir Reginalds, sem
við erum á veiðum eftir, og hver sem
vill má finna stúlkuna hér á morgun.
Seinna náum við henni þegar hin rétta
stund er komin. Myndarlegasta stúlka,
hvað sem öllu líður!
Mennirnir stóðu stundarkorn og
horfðu á fórnardýr sitt, sem lá hreyf-
ingarlaust á gólfinu í rifnum fötum með
sundurrifin dúk bundinn um hendur og
fætur. Svo gengu þeir aftur inn í skrif-
stofu Sir Reginalds. Sá fyrri hálf æpti
upp yfir sig.
— Það er horfið!
— Hvað er horfið? stundi hinn dauð-
skelkaður.
— Skrínið úr skúffunni.
— Þú lýgur!
En það var satt. Hin uppbrotna skrif-
borðsskúffa var tóm. Þegar þeir höfðu
yfirgefið herbergið fyrir nokkrum mln-
Verkalýðsfélög
(Framh. af 1. síðu)
tíma verður uppsagnarfrestur
þrír mánuðir.“
Frá sjónarmiði Framsóknar-
flokksins ber nú að leggja á-
herzlu á það við verkalýðsfé-
lög og vinnuveitendur, að þessir
aðilar taki nú þeim tökum á
þessum málum, að afskipti Al-
þingis verði óþörf eftir næstu
áramót. Þótt framangreint á-
kvæði kaupgjaldslaganna geri
að vísu ráð fyrir þeim mögu-
leika, að núgildandi fyrirmæli
geti gilt eftir áramótin með
þriggja mánaða uppsagnar-
fresti, er það svo ótryggt og
hættulegt fyrirkomulag,að telj a
verður það óviðunandi. Annar-
hvor aðili getur þá komið
fram vinnustöðvun eða verk-
banni, þegar verst gegnir. Það
verður þvi að teljast æskileg-
ast og öruggast, að vinnuveit-
endur og verkalýðsfélögin hafi
gert með sér samninga um
næstu áramót, er gildi um á-
kveðinn tíma. En til þess að vel
takist í þeim efnum, er vafa-
laust nauðsynlegt að fljótlega
verði farið að hefjast handa í
þessum efnum og fulltrúar að-
ila byrji að ræða saman. Báð-
um aðilum ætti að vera það svo
mikið áhugamál, að hafa sjálfir
meðferð þessara mála í sínum
höndum, en eiga ekki undir náð
og ónáð þriðja aðila, að þeir
ættu að láta sér hugleikið að
hefja slíka samninga. Þeim
mun fyrr sem samningaumleit-
anir byrja, þeim mun meiri von
er um góðan árangur.
Blöð eins og Alþýðublaðið og
Vísir ættu að telja það standa
sér nær að vinna að slíku sam-
komulagi milli verkalýðsfélaga
og vinnuveitenda, heldur en að
vera að hampa rakalausum
fullyrðingum um afstöðu Fram-
sóknarflokksins í þessum mál-
um.
Á forlagi Slalins
(Framh. af 2. slðu)
frönsku þjóðinni er áður nefnd.
Kommúnistar annarra landa
telja siðferðilega rétt að taka
við rússneskum gjöfum, af því
þeir litu á sig sem þegna í riki
bolsémismans og Stalin, sem
æðsta prest þeirra trúarbragða.
Halldór Laxness gladdist í Þjóð-
viljanum fyrir ári síðan, þegar
Pólland var undirokað og kúg-
að, af því að byltingarríkið
náði þá að Weichelfljóti. AÚa
þá stund, sem Rússar herjuðu
á Finnland, stóðu allir íslend-
ingar á öndinni og væntu þess,
að Finnar gætu varið frelsi sitt,,
en Þjóðviljinn bað jafn ein-
læglega, að Rússum tækist að
hafa finnsku þjóðina undir og
svifta hana frelsi og mannrétt-
indum. Dagblað kommúnista,.
Þjóðviljinn, er álíka fullt af
rússnesku efni eins og væri það
gefið út í alrússneskum stíl. Nú
nýverið birti blaðið t. d. dag eft-
ir dag fréttir af taflsamkeppni
í Rússlandi, þar sem við eigast
eingöngu innlendir menn.
Lengra getur undirokun Þjóð-
vilj ans gagnvart valdhöfum
Rússa ekki gengið.
Framh.
Hirting
(Framh. af 3. síðu.)
mannaheillar, með öðrum orð-
um, hann sér ekkert annað en
„einstaklings framtakið“ og það
er einmitt ógagnsæja skýlan
fyrir augum hans, að hann er
allur á bandi félagsskitanna.
En fær þetta nú staðizt?
Frh.
Fulltrúaráð Framsóknar-
félaganna í Reykjavík
heldur fund í Eddu annað kvöld —
miðvikudag — klukkan 8%. Pram-
hald umræðna frá síðasta fundi um
starfsemina í vetur.