Tíminn - 12.10.1940, Side 2
390
TÍMIIVIV, langardaginn 12. okt. 1940
'gíminn -
Laugardaginn 12. okt.
Úrræðin á
s j á var bakkanum
Nú sem stendur er góðæri við
sjóinn á íslandi. Aflabrögð eru
1 betra lagi. Engar útlendar
þjóðir senda hingað veiðiflota
sína. Sumar þjóðir ná ekki á
íslenzku miðin vegna hafn-
banns Englendinga. En sú stór-
þjóð notar nú flest veiðiskip
sín til hernaðarþarfa. íslenzki
fiskurinn er því eftirsótt vara
og vel borguð á enska markaðn-
um meðan unnt er að koma
honum þangað.
En um leið og stríðið hættir,
kemur að skuldadögum. Allur
heimurinn verður þá bláfátæk-
ur. Þá þarf að byrja að borga
skuldir af lágum tekjum. Verð-
fallið, sem þá kemur, mun verða
gífurlegt, bæði á löndum og
lausum aurum. Englendingar
munu þá senda veiðiskip sín út
á miðin að nýju og ætla sínum
eigin fiskimönnum bezta mark-
aðinn, eins og var. Ef íslend-
ingar ætla að geta notað sín
góðu fiskimið, undir þeim
kringumstæðum, verða þeir að
gera djúptækar endurbætur til
að gera íslenzka fiskframleiðslu
ódýi-ari og tryggari atvinnuveg
heldur en verið hefir á undan-
förnum árum. Ég vil í því sam-
bandi nefna þrjú atriði, sem
mestu máli skipta.
Fyrsta atriðið eru hlutaskipti
og sameign allra, sem standa að
hverju veiðitæki. Samvinnu-
menn höfðu alla forgöngu um
stofnun síldarverksmiðj anna á
Siglufirði og Raufarhöfn. Þeir
hafa frá upphafi beitt sér fyrir
því, að sjómenn og útvegsmenn
gætu fengið unnið úr afla sínum
og fengið fullvirði framleiðsl-
unnar. Nú í sumar sýndi sig að
þetta er hið rétta skipulag. Nú
fengu sjómenn og útvegsmenn
sinn hlut af hinu óvenjulega
verði. Hlutarskiptin á veiðiskip-
unum gáfu sjómönnum góðar
tekjur og meiri en þeir hafa
þekkt áður, þar sem um fast
kaup var að ræða.
Sameign sjómanna og hluta-
skipti aflans er langstærsta vel-
ferðarmál sjómannastéttarinn-
ar. Með því móti hættir stéttin
að vera rótlaus óábyrg, og óá-
nægð launastétt. í stað þess eiga
þeir skipin saman, sem nota þau
og hafa af þeim tekjur í hlut-
falli við vinnu og afkomu út-
gerðarinnar.
Annað stórmál útgerðarinnar
er sjálfur skipakosturinn. Meg-
inhluti togaraflotans eru gömul
skip. Eftir stríðið verða þessír
„ryðkláfar" minna en* engin
eign. Ef þeir verða gerðir út með
föstu kaupi yfir- og undirmanna,
munu þeir fyrst setja eigend-
urna á höfuðið og þar næst
stórskaða þá banka, sem trúa
þeim fyrir veltufé. Ég vil ekki
fullyrða.að nýir togarar geti alls
ekki borið sig eftir stríðið, en
það er ósennilegt, að menn, sem
eiga efnin til að kaupa slík skip,
leggi út í þá áhættu nema mjög
takmarkað.
í stað togaraflotans munu
koma stórir, vandaðir vélbátar,
sem byggðir eru í landinu sjálfu,
og vélarnar líka. Ég kom með
tillögu á Alþingi fyrir nokkrum
árum um að koma upp stórri
vélbátasmiðju á Svalbarðseyri
við Eyjafjörð. Skilyrði voru þar
óvenjulega góð til að geta komið
upp góðri og ódýrri bátasmiðju.
í það sinn mætti tillagan mót-
spyrnu frá mönnum, sem töldu
sig þurfa að gæta sérstakra
hagsmuna. En það þarf ekki að
fjölyrða um, hve mikils væri
vert, að geta útvegað íslenzku
sjómannastéttinni góða og
sterka báta, gerða í landinu
sjálfu, jafn ódýra og þeir verða
beztir keyptir í öðrum löndum.
Vélbátar, smíðaðir hér á landi,
verða framtíðar veiðitæki ís-
lendinga. Síðan mun þjóðin
flytja fiskinn á heimsmarkað-
inn á stærri skipum, sem til þess
verða gerð.
Þriðja stórmál útgerðarinnar
er olíuverzlun. Hún er nú mjög
óhentug útgerðinni. Ef borið
er saman útsöluverð olíufélag-
anna hér á landi, við verð á olíu
á frjálsum markaði, t. d. í Ame-
98. blað
Nauðsvnlegar aðgerðir
Eftir SígSús Halldórs frá Höfnum
Nkapar Nveilafólk-
ið dýrtíðina?
í fyrsta sumarþættinum, sem
ég flutti í útvarpið, eftir her-
námið í vor, vék ég þegar að
því, að þótt lönd hefðu ótal
sinnum verið hernumin áður,
og jafnaðarlega á ómildari
hátt, þá væri þó hernám ís-
lands um eitt algerlega ein-
stætt: Aldrei hefði það fyrr
skeð, að sá hópur vígra manna,
sem hernámið gerði, gæti á
hverri stundu orðið helmingur
á við þjóðina, sem landið byggði,
eða jafnvel tvisvar það, og
steðjaði að okkur af þeirri or-
sök einni sú hætta, að súpa á
margvíslegan hátt þann sjó,
þjóðernislega, að við yrðum
aldrei samir menn eftir, þótt
við að kalla slyppum við það,
sem við gætum þó átt á hættu,
að drukkna algerlega í að-
streymi erlendra áhrifa frá
hernámi, sem e. t. v. stæði ár-
um saman með stöðugri lands-
vist 40—100 þúsunda — eða
hver vissi hve margra — her-
manna, og það því fremur, sem
við værum um margt ekki bún-
ir að ná okkur eftir það undir-
ríku, lítur út fyrir að með betra
skipulagi ætti að mega lækka
olíuverðið til vélbátanna, sem
svarar 120 krónum smálestina.
Það þarf ekki að fjölyrða um,
að þetta verzlunarálag er þung-
ur skattur á útgerðinni, og
raunar alveg óverðskuldaður.
Ég álít, að á Alþingi í vetur
ætti að taka þetta mál til með-
ferðar. Það færi bezt á að út-
vegsmenn og sjómenn í hverri
verstöð mynduðu einskonar
pöntunardeild til að tryggja sér
olíuna með sannvirði. Síðan
mynduðu þessar deildir lands-
samband sín á milli, sem keypti
alla olíu til landsins. Það væri
með þessu móti einkasala á olíu
en ekki hjá ríkisstjórninni,
heldur væri fyrirtækið sameign
útvegsmanna og sjómanna. Það
væri eðlilegt, að olíusamlagið
hefði fyrsta veðrétt í veiði, sem
tryggingu fyrir olíuverðinu.
Sjómenn og útvegsmenn fá
hátt verð fyrir vöru sína nú
sem stendur. En öllum mönnum
mun vera ljóst, að undir eins
eftir stríðið fellur afurðaverðið
gífurlega, og þá verður útvegur
og sjómennska ekki lífvænlegar
atvinnugreinar, nema gerðar
verði margar ráðstafanir til að
gera framleiðsluna ódýra og
örugga. J. J.
öldurót, ‘sem hingað barst frá
síðustu heimsstyrjöld. Enda
væru þegar auðsæ ýmis hættu-
merki og langískyggilegust þau,
sem enn einu sinni bæru vitni
þeirri staðreynd árþúsunda, að
á engan hátt læsast erlend á-
hrif, sérstaklega af illri rót,
fljótar um þjóðir en við skefja-
litlar kynningar erlends setu-
liðs við landsmenn. Væri full-
gild ástæða fyrir þjóðina að
setja sér sem strangastar um-
ferðareglur í þessu efni, ein-
mitt með tilliti til þess, að báð-
ir aðilar hefðu látið í Ijós vilja
til þess að öll stjórnarfarsleg
viðskipti yrðu sem vinsamleg-
ust og árekstrarminnst, og því
meiri þörf væri einbeittra að-
gerða, sem framkoma of mikils
hluta þjóðarinnar, og ekki síður
kvenfólks en karlmanna, stofn-
aði okkur í hættu, bæði um það
álit, sem erlendis kynni að
skapast á rétti þessa þjóðkrílis
til sjálfstæðis, og líka um þá
fyrirlitningu frá sambýlis-
mönnum okkar, sem eftir því
sem á liði væri mjög iík-
leg til að brjóta hömlurnar
af einhverjum misjöfnum sauð
í mörgu fé, svo að eftirminni-
legt yrði og báðum aðilum til
stórvandræða. —
* * *
Ég ítrekaöi þessa hættu og
nauðsynina á ýmsum óvenju-
legum aðgerðum af hálfu hins
opinbera, á þessum alveg ó-
venjulegu tímum, í þremur út-
varpserindum samfleytt í sum-
ar, af því, að mér virtist engin
seinagangur á því, að spárnar
rættust að grun mínum, og
taldi í hvert skipti næg dæmi
af þeim fjölda, sem hér yrði of
langt að telja. Og af því að mér
virðist sífellt framhald til verra
horfs, sem lýsir sér bæði í sí-
versnandi &sókn og vastri kven-
fólks hér á öllum aldri og hjálp-
arkokka þess, utan í setuliðinu,
og líka í atferli einstakra setu-
liðsmanna — óafsakanlegu, þótt
dæmin séu mjög fá — en hvort-
tveggja er alveg óviðunandi —
þá langar mig til að ítreka hér á
prenti það, sem ég í þessum er-
indum taldi nauðsynlegt, ef
ekki ætti að lenda í fyllstu
ófæru:
1. Að'brýnt sé fyrir aðstand-
endum og þeir enda skyldaðir
til, ásamt barnaverndarnefnd
og undir eftirliti hennar, að
framfylgja til hins ýtrasta þeim
lögum, sem fyrir eru um svo
strangt eftirlit með unglingum
innan 16 ára, að fávizka þeirra
sjálfra, eða lokkun annarra,
stofni þeim ekki né framtíð
þeirra sem þjóðfélagsþegna í
voða. (Einkennisbúningur skóla-
gönguunglinga, sem mætti vera
mjög óbrotinn, gæti létt mjög
eftirlitsstarfið).
2. Bráðabirgðalög, sem heim-
ili lögmætum forráðamönnum
að ráðstafa vandræðaungling-
um, eldri en 16 ára. —
3. Einangrun vændiskvenna
og þeirra fylgifiska frá því að
smita frá sér líkamlega og and-
lega.
4. Að rætt sé um þessi og
önnur vandamál og ágreinings-
efni í sambúð setuliðs og þjóð-
ar, sem hvor aðili þykist hafa
á hendur hinum, opinberlega og
tafarlaust, til þess að koma í
veg fyrir allskonar slúðursagnir
og aukinn ágreining, enda nái
íslenzk stjórnarvöld og almenn-
ingur að fylgjast með þeim
dómum, er setuliðið kveður upp
í málum sinna manna, er af sér
hafa freklega brotið við lands-
menn og lög okkar, og er það
mikilvægt atriði til góðrar sam-
búðar.
5. Að óhjákvæmileg sé stofn-
un velferðarráðs eða nefndar,
til þess að sjá þessum málum
borgið (sbr. t. d. hinn heims-
kunna „unglingadóm" í Denver
á heimsstyrjaldarárunum og
síðar), og sé þar starfað í sam-
ráði og sambandi við lögregl-
una. En ef okkur þætti þurfa,
t. d. sökum brestandi samkomu-
lags við herstjórnina um stofn-
un eða einhverja starfrækslu
slíkrar nefndar, væri æskt eftir
samstarfi við kunnan brezkan,
eða hlutlausan, þjóðlífsfræðing
(sociolog) sem brezk stjórnar-
völd og við tækjum jafnt gildan
til ráða um þessi mál.
Og í sambandi við þetta skal
áherzla á það lögð, að jafn víst
og sambýlisríki okkar nú hefir
kröfu á hendur okkur, að við
forðumst hvers konar aðgerðir,
sem því má til ógagns verða í
hernaðaraðstöðunni hér, svo
eigum við þessa gagnkröfu á
hendur þess fulltrúum: Að fylli-
lega sé viðurkennt, að við einir,
og aleinir, séum færir að dæma
um það, hvenær við erum þjóð-
félagslega i hættu staddir, enda
ráðum við sjálfir íhlutunar-
laust hverja þá bót á, sem okk-
ur sýnist. Þetta er algert grund-
vallarskilyrði fyrir góffri sam-
búff.
Mergurinn málsins er þessi, í
sem stytztu máli og hispurs-
laust: Við erum hvorki viljugir
né heldur megnugir, ef við eig-
um að halda þjóðlegri sæmd og
lífi, að halda þá braut, sem
(Framh. á 3. síöu)
Ritstjóra Morgunbl. finnst ég
hafa ómaklega vikiff að blaði
sínu fyrir mótgang við bænda-
stéttina, að því er snertir verð-
lag á landbúnaðarvörum. Vii ég
athuga nánar þann málstað.
Mbl. ber ekki á móti því, að
blað Stalins, Alþýðublaðið og
Vísir hafi hamast á bændum nú
undanfarið út af því, að þeir fái
of mikið fyrir kjöt og mjólk. En
Mbl. finnst, að það hafi ekki
verið með í þeim leik.
Út af fyrir sig er það athuga-
vert fyrir Mbl., að samflokks-
blað þess, Vísir, er einna harð-
orðast í garð bænda, og sá, sem
skrifar dag eftir dag harmatöl-
ur út af hinum mikla gróða
bænda, er uppbótarþingmaður í
flokki Mbl. og gert ráð fyrir, að
flokkurinn bjóði hann fram við
kosningar í vor. Vísir talar
venjulega fyrir munn hérum-
bil helmingsins af þingflokki
Sjálfstæðismanna. Ef Mbl. hefði
fundizt Einar Magnússon
menntaskólakennari, Einar Ol-
geirsson og Árni Jónsson hafa
á röngu að standa í herferð
þeirra á hendur bændum, þá
hefði blaðið vafalaust mótmælt.
En Mbl. hefir ekki sagt svo
mikið sem eitt orð til að leið-
rétta misskilning þess fólks, sem
áfelldi bændur. í stað þess hefir
blaðið nú nýverið, tvo daga í
röð, tekið hvatvíslega undir og
stutt árásarlið það, sem nú
sækir að sveitamönnum.
Á fimmtudaginn var segir rit-
stjórn Mbl. í blaði sínu:
„En því fer mjög fjarri, að
málið (þ. e. verðhækkun á
mjólk og kjöti) sé svona einfalt.
í fyrsta lagi er það augljóst mál,
að ef framleiðendur, í þessu til-
felli bændur, ætla að láta af-
urðaverðið fylgja til hins ítr-
asta, eða fara fram úr hækkun
kaupgjalds í landinu, þá er
mjög hætt við að bændur sitja
aldri lengi að þeim stundar-
vinning, því að kaupgjald og
annað fylgi þá fast í kjölfarið.“
Mbl. telur í þessari ritstjórn-
argrein meir en vafasamt, að
bændur eigi að hækka verðlag
á framleiðsluvörum sínum í
hlutfalli við aðra verðhækkun,
og ef það sé gert, þá muni það
bitna harkalega á bændum
sjálfum, því að þá muni dýr-
tíðin ná til þeirra sjálfra á ann-
an hátt.
„Ef framleiðendur, í þessu til-
felli bændur", segir Mbl.
Hér er komið að kjarna máls-
ins. Allir aðrir framleiðendur
hafa hækkað verð á vöru sinni.
Ein tunna af síld hjá síldarút-
vegsnefnd kostar nú 100 krón-
ur. Fiskur hefir stórhækkað í
verði, og er stundum torfeng-
ínn handa landsmönnum sjálf-
um. Eimskipafélagið hefir
hækkað taxta sína afarmikið.
Mbl. og Vísir hafa ekki sagt eitt
orð út af þeirri hækkun og ekki
opinberlega skorað á atvinnu-
málaráðherra, Ólaf Thors, að
skerast í leikinn.
Mbl. veit, að kaupið á skipa-
flotanum var hækkað gífur-
lega, og þar að auki undanþeg-
ið skatti. Á þennan hátt fá vél-
stjórar nú um 20 þús. kr. í kaup
og hásetar geta fengið allt að
14 þús. kr. kaup fyrir sinn þátt
í framleiðslunni. Mbl. hefir
ekkert orð sagt um, að þetta
væri óhófleg byrði á framleiðsl-
una í landinu.
Á Alþingi í vetur sem leið var
samþykkt að láta dýrtíðarupp-
bót á laun opinberra starfs-
manna ná líka til hæstu launa.
Með þessu var allur Alþýðu-
flokkuxinn, næstum allur Sjálf-
stæðisflokkurinn og fáeinir
Framsóknarmenn. Mbl. hefir
ekki átalið þá þingmenn, sem
fylgdu fram þessari hækkun á
dýrtíðinni.
Einn af þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins kom þá með
hliðstæða tillögu um lögbundna
dýrtíðaruppbót til handa öllu
verzlunarfólki. Framsóknar-
mönnum fannst þetta fásinna.
Þeir vissu að í kaupfélögunum
var hækkað kaup við starfs-
fólkið eftir því, sem dýrtíðin óx.
Þeir töldu sjálfsagt, að kaup-
menn myndu unna sínu starfs-
fólki sömu sanngirni. Fram-
sóknarmönnum fannst sér í lagi
ótilhlýðilegt, að forsprakkar í
flokki hinnar frjálsu sam-
keppni skyldu vilja kalla ríkis-
valdið á vettvang í svo miklu
einkamáli kaupmanna eins og
það má teljast, hvernig þeir
greiða fólki sínu dýrtíðarupp-
bætur. Ég átti þátt í því, á sein-
ustu stundu í efri deild, að
hindra framgang þessa máls á
Alþingi. En í blöðum Sjálf-
stæðismanna hefi ég verið á-
felldur fyrir þessa framkomu
hvað eftir annað, eins og ef hér
hefði verið drýgt höfuðafbrot.
Blöð Sj álfstæðismanna haf a
heimtað, að ríkisstjórnin gæfi
út bráðabirgðalög til að knýja
fram með ríkisvaldi kauphækk-
un til fólks í búðum og skrif-
(Framh. á 3. síSuJ
Halldór Kristjánsson, Kirkjubólii
Tvær liii$>s|ónir
m.
Það hefir komið fram tillaga
um að verja tekjum happdrætt-
isins til heimavistarbarnaskóla
í sveitum. Sigurður Thorlacius
skólastjóri hefir bent á rétt-
mæti þess fyrir nokkrum miss-
irum. Það er ekki tilgangurinn
með þessari grein, aö spilla fyr-
ir þeirri hugmynd. Sambands-
þing U. M. F. í. vildi heldur
ekki fjandskapast við það mál.
Síður en svo. Þess var minnst
í framsögu og flutningsmenn-
irnir ætluðu ekki að leggja stein
í götu þess. Þeir vildu að báðar
þessar hugsjónir fengju styrk
af ágóða happdrættisins á
næstu árum eftir að timi há-
skólans er úti, enda er þetta
hvorttveggja stefnumál ung-
mennafélaga. Það er vel hægt
að skipta ágóða happdrættis-
ins milli þessa, svo að vel færi
á. Þetta eru hvorttveggja fram-
tíðarmál og þannig vaxin, að
ekki munar miklu um eitt ár
eða svo. En ég get hugsað mér,
að fljótlega álitið finnist ein-
hverjum, að með þessari tillögu
Sigurðar Thorlacius sé verið
að gera hlut sveitanna meiri en
réttmætt er. Þess vegna vil ég
fara nokkrum orðum um þau
efni.
Fræðslulögin frá 1936 gera
ekki ráð fyrir farkennslu nema
að eins til bráðabirgða. Þó er
þetta það fyrirkomulag, sem
flest sveitabörn eiga ennþá við
að búa. Sú tilhögun er höfð, að
það er ódýrara fyrir hreppana
að hafa farkennslu en annað
betra fyrirkomulag. Þar með eru
menn raunverulega verðlaun-
aðir fyrir framkvæmdaleysi. En
sennilega er þessu háttað svona
til þess, að börnum skuli þó
veitt þessi fræðsla, sem vitan-
lega er miklu betri en ekki neitt.
En margir ókostir fylgja þeirri
tilhögun. Þar eru börnin ekki
flokkuð eftir námsþroska eða
aldri, heldur því, hvar þau eiga
heima. Kennarar, sem eiga ann-
ars úrkosta, sinna yfirleitt ekki
slíkri kennslu. Það eru frekar
undantekningar, menn, sem
bundnir eru þeim tengslum við
sveit sína, að þeir vilja endilega
starfa þar. Yfirleitt hafa far-
skólahverfin menn, sem ekki fá
neitt „betra“ eða byrjendur,
sem bíða eftir því, að eitthvað
losni. En það er auðvitað lak-
ara, að stöðugt skipti um kenn*
ara, þó að hitt sé sízt betra að
sitja stöðugt uppi með galla-
grip, enda er það vonandi fá-
títt, að ástæða sé til að tala um
slíkt. En fai’kennslunni fylgir
það svo, að oft eru notuð slæm
húsakynni til kennslu, og börn-
um er stundum komið fyrir til
dvalar á heimilum, þar sem að
sumu leyti er ekki heppilegt að
hafa þau.
Heimavistarskólarnir hafa
lengi verið hugsjón ýmsra okk-
ar ágætustu manna. Einar
Hjörleifsson flutti fyrir 40 árum
prýðilegt erindi um alþýðu-
menntun. Það er prentað í
Tímariti Bókmenntafélagsins
1901 og er enn þann dag í dag
þörf og snjöll hugvekja. Þar
segir m. a.: Ekki getur með
nokkru móti hjá því farið, að
það yrði þjóð okkar til mikill-
ar blessunar að geta leyst fjölda
barna á hverjum vetri úr kota-
prísundinni, látið þau eiga að
búa við hreinlæti og aga vetur
eftir vetur, veitt þeim heilnæmt
og reglubundið líf frá morgni til
kvelds, dag og nótt. — Og þetta:
Barnafræðslan er frumskilyrð-
ið fyrir öllum vorum þjóðþrif-
um, öllu voru menningarlífi,
frumskilyrðið fyrir því, að þjóð
vor afmáist ekki úr tölu siðaðra
þjóða.
Þannig talaði þessi merkilegi
hugsjónamaður og mannvinur
fyrir 40 árum. Nú er sannar-
lega tími til kominn fyrir okk-
ur að heiðra minningu hans
með því, að koma upp Einars-
skólum, heimavistarskólum fyr-
ir öll íslenzk sveitaböm.
Ég hefi árum saman trúað
því, að heimavistarbarnaskólar
væru æskilegar stofnanir. Nú
hefi ég verið svo heppinn að
koma í 4 heimavistarskóla á
starfstíma þeirra. Síðan finnst
mér ég lifa í skoðun en ekki trú
um þessi mál. Ég hafði að vísu
ekki tækifæri til að gera neinn
samanburð á fræðilegri kunn-
áttu barnanna. Það er heldur
ekki allt, sem máli skiptir, en
þar er aðstöðumunurinn svo
mikill, að okkur finnst öllum að
fasti skólinn, sem velur sam-
stæða nemendur eftir þroska
þeirra, hljóti að ná betri á-
rangri. En gesturinn tekúr eftir
dagfari barnanna, háttum
þeirra við leiki og störf og af því
má mikið ráða um það, hvort
uppeldið er vel heppnað eða
ekki. Dagfarið sýnir fljótt
hvort barnið er gæfulegt
mannsefni. Það er margt fleira
en hið bóklega, sem hefir þýð-
ingu í uppeldi siðaðra manna.
En það er ekki ætlun mín að
rökræða hér til hlítar skóla-
fyrirkomulag, heldur að eins að
minna á fáeinar augljósar stað-
reyndir. Ef til vill segir ein-
hver, að þó að þetta sé allt gott
og blessað, þá sé því til að
svara, að sveitirnar eiga að sjá
um menntun barna sinna eins
og kaupstaðirnir sinna. Það er
auðvitað alveg rétt. En vegna
staðhátta er það erfiðara og
dýrara að sjá börnum i sveit
fyrir jafn mikilli kennslu og í
þorpum. Þann mismun á þjóð-
félagið aö bera. Það er ekki
heppilegt og ekki rétt að gera
lögboðna menntabraut fólksins
erfiðari á einum stað en öðrum.
Og hvað sem segja mætti um
verðleika okkar, sem upp erum
komin, þá er það hvorki rétt
né skynsamlegt frá mannlegu
og þjóðfélagslegu sjónarmiði,
að hefnast á börnum sveitanna
með því, að láta þau hafa lak-
ara uppeldi. Nú eru þess dæmi,
að fólk fer úr sveitum vegna
þess, að það vill láta börn sín
njóta meiri skólagöngu en far-
kennslan býður. En við verð-
um að fækka þeim ástæðum,
sem draga fólkið úr sveitunum
okkar. Allra hluta vegna þarf
þess.
Það getur ef til vill orkað
tvímælis á hvern hátt þessi
hjálp, — ágóði happdrættis-
ins, — kæmi bezt að notum.
Svo verður að búa um, að menn
njóti þessa sem jafnast og ekki
verði um neitt misrétti að ræða.
Ég held, að það væri bezt að
verja þessu fé ekki til beinna
byggingarstyrkja. Föst ákvæði
gilda um þátttöku ríkissjóðs í
skólabyggingum og hinn aukni
reksturskostnaður heimavistar-
skólanna er mönnum meiri
þyrnir í augum en stofnkostn-
aðurinn sjálfur. Það er líka
hægra að ná saman nokkru fé
með frjálsri félagsstarfsemi
heima fyrir, til að hrinda ein-
hverju í framkvæmd, heldur en
til árlegs og hversdagslegs
reksturs. Þess vegna sýnist mér,
að hentugast myndi, að nota
þennan hlut af ágóða happ-
drættisins til sjóðstofnunar og
vextir sjóðsins gengju svo til
þess, að létta rekstur heima-
vistarbarnaskólanna, svo að
sveitabörnum yrði veitt sam-
bærileg kennsla við það, sem
gerist i kaupstöðum, án þess að
þyngri byrðar yrðu lagðar á
aðstandendur þeirra. Þessi sjóð-
ur gæti jafnframt orðði til
þess, að létta ögn skuldabyrði
þjóðarinnar út á við, samhliða
því, að hann ætti þátt í því að
leysa merkilegt réttlætismál og
menningarmál. Það mun vera
algengt, þar sem heimavistar-
skólar eru í undirbúningi, að
ýmsum finnist erfitt að hugsa
til hins aukna kostnaðar við
skólahaldið. Það er líka eðlilegt
og mjög í samræmi við erfiðan
fjárhag margra sveitarfélaga.
Þessi tilhögun myndi því nema
í burtu eða að minnsta kosti
draga mjög úr erfiðustu hindr-
un á vegi hinna nýju skóla.
IV.
Þessi orð eru skrifuð til þess,