Tíminn - 02.11.1940, Page 4
428
TÍMIM, laiigardagiim 2. nóv. 1940
107. blað
Á Röntgendeild Landsspítalans
losnar kandidatsstaða, sem veitist til 1 árs frá 1.
janúar n. k.
Umsóknir sendist til skrifstofu ríkisspítalanna
fyrir 20. þ. m.
1. nóvember 1940.
STJÓRNARNEFND RÍKISSPÍTALANNA.
tin BÆIVUM
Háskólafyrirlestrar
fyrir almenning.
í vetur verður sú nýbreytni tekin
upp við háskólann, að nokkrir há-
skólakennarar mimu flytja fyrirlestra
fyrir almenning um vísindaleg efni.
Fyrirlestramir verða í vetur alls 6,
og verða þeir fluttir í hátíðasal skólans
á sunnudögum. Fyrsta fyrirlesturinn
flytur próf. dr. Ágúst H. Bjarnason á
sunnudaginn kemur, 3. nóv., um verð-
mœti mannlegs llfs. Öllum er heimiH
aðgangur. ,
Messað
verður í bamaskólanum á Sklldinga-
nesi, Baugsveg 7, á morgun kl. 2. Séra
Ragnar Benediktsson prédikar.
Af vangá
hefir nafn Halldórs Pálssonar sauð-
fjárræktarráðunauts, fallið niður, er
upp vom taldir, í síðasta blaði, þeir
menn, er sæti eiga í tilraunaráði bú-
f j árræktarinnar.
Menntaskólinn
var settur í gær og flutti Pálmi
Hannesson rektor ræðu, en karlakór
söng. Lærdómsdeild skólans mun hafa
aðsetur sitt í háskólabyggingunni í vet-
ur, en gagnfræðadeildin í þinghúsinu.
í næsta blaði
kemur athugasemd frá Fr. de Fon-
tenay, sendiherra Dana, út af niður-
lagsorðum í grein M. T., „Grimur á
gráum frakka.“
Fundurínn um
mjólkurmálið
(Framh. af 1. síðu)
Á fundinum komu fram radd-
ir um það, sem oft hefir verið
hreyft áður, að vegna erfiðra
framleiðsluskilyrða ættu báend-
ur hér í nágrenni Reykjavíkur
að fá hærra verð en hinir. Þessu
var andmælt sem fyr, með þeim
rökum, að það myndi ófram-
kvæmanlegt. Bændur, sem fjær
búa, eiga einnig við misjafna
aðstöðu að búa, bæði í Borgar-
firði og austan fjalls. Ef greiða
ætti mismunandi verð, eft-
ir aðstöðumun við búrekstur-
urinn, myndi allt lenda í hinum
mestu ógöngum. Þá hefir því
verið haldið fram, að þeir, sem
næst búa Reykjavík, gætu flutt
þangað mjólk, þó að samgöngur
tepptust við aðra staði, og að
í því væri fólgið öryggi fyrir
mj ólkurney tendur í bænum.
Þessu er að minnsta kosti ekki
til að dreifa þá mánuði, sem
bílfært er um allar nálægar
sveitir Suðurlandsundirlendis-
ins.
Fundarmenn komust að þeirri
niðurstöðu, að til þess að lag-
færa þá stefnu, sem mjólkur-
framleiðslan hefir tekið (þ. e.
mikil framleiðsla vor- og sum-
armánuði, en lítil haust- og
vetrarmánuði), væri rétt að á-
kveða, að neyzlumjólkin skyldi
greidd til allra framleiðenda 4
aurum hærra verði frá 1. okt.
til áramóta, og 2 aurum hærra
verði þrjá fyrstu mánuðina eft-
ir áramót. Gildir þetta jafnt
fyrir framleiðendur í fjarsveit-
um sem nágrenni Reykjavíkur,
sem selja neyzlumjólk á þessu
tímabili.
Með þessu mætti breyta
þannig til, þegar fram líða
stundir, að aðalframleiðslan hér
úr nágrenni bæjarins kæmi á
markaðinn haust og vetrarmán-
uðina, því að það yrði að telj-
ast óeðlilegt, að mjólkurbúin í
Borgarfirði og austanfjalls væri
að yfirborga mjólk á þessum
tíma, til þess að geta fullnægt
neyzlumjólkurþörf Reykjavíkur,
þegar oft væri erfiðast um
flutninga þangað. Auk . þess
hefðu bændurnir þar góð lönd
til haustbeitar fyrir kýr, en um
þau væri lítið hér í nágrenninu,
og bændum hér því minni
kostnaðarauki að taka kýrnar
fyr á gjöf.
Með þessu fyrirkomulagi ætti
öllum að vera gert hagræði, og
þróun mjólkurframleiðslunnar
stefnt í réttan farveg. Með þetta
fyrir augum voru samþykktar
þrjár tillögur:
Hin fyrsta var um útborgun-
arverð mjólkurinnar, er skýrt
hefir verið frá hér á undan.
Önnur var sú, að láta fara
fram athugun og útreikning á
flutningskostnaði mj ólkurinnar
til Reykjavíkur.
Hin þriðja, að Stefán Björns-
son, sem er nýkominn frá út-
löndum eftir 5 ára sérnám í
mjólkurfræði, verði látinn
halda áfram störfum þeim og
rannsóknum, er fimm manna
nefndin, sem áður er getið,
byrjaði á. Geri hann síðan þær
tillögur til endurbóta á skipu-
laginu, er hann telur nauðsyn-
legar.
Allir fulltrúarnir á fundinum
voru sammála um það, að mæla
með þessum tillögum við full-
trúaráð mjólkurbúanna. En þær
öðlast þá fyrst samþykki, er öll
fulltrúaráð mjólkurbúanna hafa
fallizt á þær. Verða fundir í
mjólkurbúunum um þessar til-
lögur innan skamms, og á þeim
fundum taka bændurnir endan-
legar ákvarðanir i málinu.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. slðu)
ar af heyi, að Grímsstöðum í Lýtings-
staðahreppi hjá Bjarna Kristmunds-
syni bónda þar.
t t t
Með mesta mótí hefir verið selt af
hrossum í Skagafirði í haust. Hefir Jó-
hann Magnússon bóndi 4 Mælifellsá
selt um 200 hross til Akureyrar. — Á
uppboði, sem haldið var í Vallanesi hjá
Valdimar Guðmundssyni bónda, var
folald selt á 190 krónur. Mun slíkt verð
vera einsdæmi, enda er hrossakyn
Valdimars frægt að gæðum.
ttbreiðið Tímann!
Á víðavaugl.
(Framh. af 1. síðu)
ekki á óvart, að Burstarfellsbær
var talinn heppilegur til vatð-
veizlu....Hann er algerlega
í fornum stíl með mesta mynd-
arbrag, sex burstir fram á hlað-
ið með óvenju fallegri baðstofu,
sem nú fer að nálgast 100 árin,
þar að auki stofa með svefnlofti,
sem þótti viðbrigðafalleg í tíð
afa míns, en nú er komin að
htuni, enda yfir 100 ára. Rúm-
flötur bæjarins í heild er 800—
900 álnir.“ í niðurlagi greinar
sinnar víkur Halldóra að bæj-
arhúsunum. á prestsetrunum
þrem á Norðurlandi, sem varð-
veita á í sinni gömlu mynd, og
drepur á garhla skálann á
Keldum á Rangárvöllum og
nauðsyn .þess að eiga fallegan
bæ í fornum stíl í Reykjavík.
FYRR OG NÚ.
Kristinn Andrésson skrifaði
eitt sinn í víðlesnasta blað
landsins um • sína núverandi
vini, eftir að vera búinn
að kynnast framferði þeirra í
Tyrol: „Kúgunin er bæði fjár-
hagsleg og andleg, á öllum svið-
um. Fótum hefir verið kippt
undan velmegun atvinnuveg-
anna, fyrirtæki hafa hrunið í
rústir og landsmönnum þar að
auki íþyngt með margskonar
sköttum. Iðulega hafa menn
verið rændir eignum sínum. Fá-
tækt og örbirgð er mikil. En öll
samtök eru þeim bönnuð------“.
„Kennararnir eru ekki valdir af
betri endanum. Heima geta
börnin enga tilsögn fengið í
móðurmálinu. Bækurnar hafa
verið gripnar af mæðrunum,
þegar þær hafa stolizt til að
kenna þeim að lesa.“ Sé þessi
lýsing Kr. A. rétt, er einkenni-
legt, að hann og aðrir kom-
múnistar skuli nú skrifa og
hegða sér eins og þeir Jcjósi
fremur svona meðferð til handa
íslenzku þjóðinni, heldur en
fj'amkomu Breta.
Skrifstofa
Framsókuarflokksins
er á Lindargötu 1 D
Framsóknarmenn utan aí
landi, sem koma til Reykja-
víkur, ættu alltaf að koma
á skrifstofuna, þegar þeir
geta komið þvi við. Það er
nauðsynlegt fyrir flokks-
starfsemina, og skrifstof-
unni er mjög mikils virði
að hafa samband við sem
flesta flokksmenn utan af
landi.
Leikf élag Bpykjavíknr
„LOGINN HELGI“
eftir W. Somerset Maugham.
SÝNING ANNAÐ KVÖLD KL. 8
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag.
Frá
Haiist-
markaði
KRO.N
10. nóvember
verður haustmarkaði Kron
lokað. Það eru því vin-
samleg tilmæli til þeirra,
sem ennþá eiga eftir að
kaupa sér matarforða að
þeir geri það sem fyrst til
að komist verði hjá óþarfa
ös síðustu dagana.
Ennþá er á
boðstólum:
Saltfiskur
frá 65 aurum til 1.10 kgr.
Síld,
reykt, söltuð og krydduð.
Harðfiskur,
óbarinn í
5 kgr. pökkum 1.60 kgr.
50 — — 1.45 —
Hákarl
á 2.00 kgr.
Folalda og
tryppakjöt
Á mánudaginn kom síðasti
hrossareksturinn að norð-
an og voru það um 150
tryppi á bezta aldri. Þeim
verður slátrað jafnóðum
og kjötið selst.
Nýtt kjöt verður því senni-
lega til fram til 10. nóv-
ember, og ennfremur ódýr
mör. Auk þess er lítið eitt
eftir af reyktu kjöti.
(Haustmarkaður)
90 Röbert C. Oliver:
slíkum ferðalögum, sem þessu.
Þegar Bob Hollman var orðinn með-
vitundarlaus, losuðu mennirnir hand-
járnin af honum og löguðu hann til í
sætinu, svo það leit út eins og hann
svæfi. Þá tók hinn dulbúni lögreglu-
þjónn af sér húfuna og borðana og
stakk því undir baksætið. Svo skoðuðu
þeir það sem Bob hafði í vösum sínum.
Mestu af því stungu þeir aftur í vas-
ana, en héldu þó glottandi eftir nokkr-
um bréfum og vasabókinni. Þegar
þetta var búið, drógu þeir upp renni-
tjöldin.
Bob Hollman hafði nú verið svæfður
svo rækilega, að öruggt var að hann
myndi ekki geta hreyft legg né lið
næstu klukkustundirnar, og það var
aðeins hálfrar stundar ferð til ákvörð-
unarstaðarins. Málið var leyst — og það
hafði gengið framar öllum vonum.
VIII.
Þegar Bob Hollman vaknaði aftur til
meðvitundar, var hann í svárta myrkri
og með ægilegan höfuðverk Hann lá
á dýnu, sem var klædd með leðri.
Herbergið var kalt og loftið daun-
illt. Og svo þetta bölvað myrkur!
Bob stóð á fætur og byrjaði að fálma
sig áfram um herbergið, í þeirri von,
að finna einhverja húsmuni, dyr eða
Æfintýri blaðamannsins 91
birgðan glugga. En þar var ekkert að
finna, nema kalda, nakta veggina.
Hann barði saman hnefunum í
vonzku, bölvaði og hrópaði. Enginn
svaraði. Ef til vill hefir enginn heyrt til
hans. Hann vissi heldur ekki hvort
hann var hæst uppi í skýjakljúfi eða
djúpt niðri í jörðinni, þótt hið síðara
væri trúlegra. En veggirnir hlutu að
vera þykkir, svo að ekkert hljóð heyrð-
ist gegnum þá.
Það var laglega komið fyrir honum
eða hitt þó heldur.
Bob settist aftur á dýnuna, hvíldi
höfuðið í höndum sér og fór að hugsa
um ástandið. Að hann var hér í gildru,
var enginn vafi. Að hann hafði verið
ginntur út í skuggahverfið í Westend,
aðeins til að fá þessa meðferð, var líka
augljóst.
Engan þeirra kannaðist hann við, á-
rásarmanninn, „lögregluþj óninn“ eða
bílstjórann. En ekki höfðu þeir farið að
ræna honum að gamni sínu. Hér lá
eitthvað á bak við, og sjálfsagt ekkert
gott. Bob Hollman átti nokkra vini en
marga óvini í undirdjúpunum. Sjálf-
sagt voru það einhverjir hinna síðar-
nefndu, sem stóðu að þessu tiltæki. En
þetta var eitthvað dularfullt. Ef þeir
hefðu viljað losna við hann, þá hefðu
þeir án efa sparað sér alla þessa fyrir-
o^gamba bíó-»”—
MAÐIJRIM MEÐ
MÖRGF MDLITIN
THE
MAGNIFICENT fraud
Amerísk kvikmynd frá
Paramount.
Aðalhlutverkin leika:
AKIM TAMIROFF,
LLOYD NOLAN,
PATRICIA MORISON.
Sýnd kl. 7. og 9
“°~°~‘~-NÝJA Bíó—°——““
Síðasta aðvorun |
Mr. Moto \
(Mr. Motos Last Warning). .
Spennandi og viðburðarrík
amerísk leynilögreglumynd i
Aðalhlutverkið leikur:
PETER LORRE.
Aukamynd:
Æfintýri stórfurstans. j
Amerísk skopmynd, leikin |
af ANDY CLYDE.
Börn fá ekki aðgang.
Sýnd kl. 7. og 9
Læknattliiim.
Þeir samlagsmenn, sem réttinda njóta og óska að
skipta um lækna frá næstu áramótum, snúi sér til
skrifstofu samlagsins fyrir 15. nóvember.
Þessir læknar koma til greina sem samlagslæknar:
Heimilislœknar:
1. Alfreð Gislason.
2. Árni Pétursson.
3. Bergsveinn Ólafsson.
4. Bjarni Bjarnason.
5. Björgvin Finnsson.
6. Björn Gunnlaugsson.
7. Blöndal, Axel.
8. Cortes, Gunnar.
9. Eyþór Gunnarsson.
10. Fjeldsted, Daníel.
11. Friðrik Björnsson.
12. Gísli Pálsson.
13. Grímur Magnússon.
14. Gunnlaugur Einarsson.
15. Halldór Stefánsson.
16. Hannes Guðmundsson.
17. Hansen, Halldór.
18. Hjaltested, Óli.
19. Jóhannes Björnsson.
20. Jón G. Nikulásson.
21. Jónas Kristjánsson.
22. Jónas Sveinsson.
23. Karl S. Jónasson.
24. Karl Jónsson.
25. Kjartan Guðmundsson.
26. Kjartan Ólafsson.
Háls-, nef- og eyrnalœknar:
1. Eyþór Gunnarsson.
2. Friðrik Björnsson.
3. Gunnlaugur Einarsson.
4. Jens Á. Jóhannesson.
5. Ólafur Þorsteinsson.
27. Kristbjorn Tryggvason.
28. Kristín Ólafsdóttir.
29. Kristinn Björnsson.
30. Kristján Hannesson.
31. Kristján Sveinsson.
32. M. Júl. Magnús.
33. María Hallgrímsdóttir.
34. Matthías Einarsson.
35. Ófeigur Ófeigsson.
36. Ólafur Helgason.
37. Ólafur Jóhannsson.
38. Ólafur Þorsteinsson.
39. Ólafur Þ. Þorsteinsson.
40. Óskar Þórðarson.
41. Páll Sigurðsson.
42. Petersen, Gísli Fr.
43. Pétur Jakobsson.
44. Sveinn Gunnarsson.
45. Sveinn Pétursson.
46. Theodór Skúlason.
47. Thoroddsen, Katrín.
48. Úlfar Þórðarson.
49. Valtýr Albertsson.
50. Þórarinn Sveinsson.
51. Þórður Þórðarson.
Augnlœknar:
1. Bergsveinn Ólafsson.
2. Kjartan Ólafsson.
3. Kristján Sveinsson.
4. Sveinn Pétursson.
5. Úlfar Þórðarson.
ÍSAMLAG REYKJAVÍKUR.
Bóndi - Kaupir |>ú búnaðarblaðið FREY?