Tíminn - 05.11.1940, Qupperneq 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARPLOKKURINN.
RITSTJ ÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
24. árg.
Reykjavík, þriðjudaglnn 5. nóv. 1940
108. blað
Þýzk fliigvél flýg-
ur yfir Reykjavíb
Magnús Helgason
Einn þekktasti og vinsælasti
uppeldisfrömuður, sem ísland
hefir átt, séra Magnús Helga-
son, andaðist hér í bænum 21.
f. m.
Séra Magnús var fæddur 12.
nóv. 1857 að Birtingaholti í Ár-
nessýslu og var kominn af góð-
um og gildum bændaættum.
Hann lauk stúdentsprófi 1877
og burtfararprófi frá presta-
skólanum 1881. Tvö næstu ár
fékkst hann við kennslustörf,
en gerðist 1883 prestur að
Breiðabólsstað á Skógarströnd,
en fluttist þaðan til Torfastaða
í Biskupstungum 1885 og gegndi
þar prestskap næstu 19 ár.
Haustið 1904 gerðist hann kenn-
ari við Flensborgarskóla og
gegndi því starfi til 1908, er
hann var ráðinn forstöðumaður
Kennaraskólans, sem tók til
starfa þá um haustið. Skóla-
stjóri Kennaraskólans var hann
í 21 ár, en þá lét hann af störf-
um, sökum aldurs.
Auk óvenjulegra kennslu-
hæfileika var séra Magnús frá-
bær rithöfundur. Eru til eftir
hann þrjár bækur: Uppeldis-
mál, Kvöldræður í Kennara-
skólanum og Skólaræður.
grein um séra Magnús, þegar
hann var áttræður, eftir Jónas
Jónsson og kom hún síðar í
Merkir samtíðarmenn. í blaðinu
í dag birtist grein um séra
Magnús eftir einn af nemendum
hans, Stefán Jónsson skóla-
stjóra í Stykkishólmi.
Starisemi Framsókn
arflokksíns í Vestur-
Skaítafellssýslu
Erindreki Framsóknarflokks-
ins, Daniel Ágústínusson, hefir
undanfarið ferðast. um Vestur-
Skaftafellssýslu, haldið fundi
með Framsóknarmönnum og
stofnað fimm flokksfélög.
í Dyrhólahreppi þann 26. okt.
Stjórn þess skipa: Þorsteinn
Jónsson, Sólheimum, Einar Eyj-
ólfsson, Vatnsskarðshólum og
Stígur Guðmundsson, Steig.
í Hvammshreppi 27. okt.
Stjórn skipa: Sveinn Einarsson,
Reyni, formaður, Aðalsteinn
Jónsson, Skagnesi, ritari og
Einar Erlendsson, Vík, gjald-
keri.
í Kitkjubæjar- og Hörgs-
landshreppi var stofnað sam-
eiginlegt félag 30. okt. Stjórn
skipa: Þórarinn . Helgason,
Þykkvabæ, Guðlaugur Ólafsson,
Blómsturvöllum og Siggeir Lár-
ursson, Kirkjubæjarklaustri.
í Meðallandi 1. nóv. Stjórn
skipa: Sigurjón Pálsson, Sönd-
um, formaður, Runólfur Bjarna-
son, Bakkakoti, ritari og Magnús
Sigurðsson, Lágukotey, gjaldkeri.
Þann 2. nóv. var undirbúin
(Framh. á 4. síöu)
Um níuleytið á sunnu-
dagsmorguninn vöknuðu
Reykvíkingar við óvænta
skothríð. Heyrðust þungir
dynkir hér og þar um bæ-
inn og í grennd við hann.
Skothríð' þessi stóð aðeins
örstutta stund, tvær mín-
útur eða svo. Vissi fólk ekki
hvaðan á sig stóð veðrið og
hugðu flestir að um loft-
varnaæfingu væri að ræða,
en nokkur ótti greip suma
sem snöggvast.
Flugvél sú, sem verið var að
skjóta á, var þýzk sprengj uflug-
vél. Kom hún úr austurátt og
flaug mjög lágt yfir Sandskeið-
inu. Gátu menn, er þar voru á
ferð, gerla séð gerð og einkenni
flugvélarinnar. Var það Hein-
kel-flugvél 111. Flaug hún á-
fram leiðar sinnar yfir rafstöð-
ina við Elliðaárnar, hækkaði
þar flugið, fór yfir bæinn sunn-
anverðan og út Skerjafjörð,
stefndi út Faxaflóa og hvarf
sýnum hátt á lofti í vesturátt.
Fyrr um morguninn varð flug-
vélar vart í Vestmannaeyjum og
hefir það sjálfsagt verið hin
sama. Kom hún úr austurátt.
Svo virðist, sem hin þýzka
flugvél færi næsta kunnuglega,
og flaug til dæmis yfir hinar
þýðingarmestu stöðvar útlenda
setuliðsins hér.
Fjölda margir sáu viðureign
loftvarnastöðvanna hér við hina
ókunnu flugvél. Mátti líta skeyti
þau, er að henni var beint,
springa í loftinu umhverfis hana.
En ekkert þeirra kom svo nærri
skotmarkinu, að flugvélina sak-
aði. Reykjarslæður svifu í lofti
eftir skothríðina.
Nokkru eftir að þýzka flugvél-
in var horfin til hafs, komu fá-
einar enskar flugvélar á vett-
vang, sjálfsagt í því skyni að
svipast um eftir hinum óvænta
gesti. En það var um seinan, þvi
að hann var þá floginn leiðar
sinnar.
(Framh. á 4. síöu)
Nókn öxnlrikjanna
i austnrátt
Athyglisverð ummæli Churchills 1915
Franklin Delano Roosevelt,
sem veröur fyrsti forseti Bandaríkj-
anna, ef hann ncer kosningu nú, er
vinnur sígur í þremur forsetakosn-
ingum.
. Wendell Lewis Willkie,
veröur fyrsti forseti Bandaríkjanna, ef
hann lilfjtur kosningu, er ekki hefir
gegnt neinni pólitískri trúnaðarstöðu
áður en liann varð forseti.
Forsetakosníogarn-
ar í Bandaríkjunum
í dag
í dag fara fram forsetakosn-
ingar í Bandaríkjunum. Fram-
bjóðendur eru alls sjö, en að-
eins tveir þeirra, Roosevelt for-
seti, sem er frambjóðandi demo-
krata, og Wendell Willkie, sem
er frambjóðandi republikana,
hafa líkur tíl að verða kosnir.
(Framh. á 4. síðu)
Sókn ítala í Grikklandi hefir
ennþá ekki borið annan árang-
ur en þann, að sýna þá fyrir-'
ætlun öxulríkjanna að reyna að
brjóta sér leið um Balkanskaga
og Litlu-Asíu til hinna þýðing-
armiklu olíulinda í Iran og Irak.
Ef til vill er það Ííka ætlun
þeirra, að reyna að komast
þessa leiðina að Suezskurðinum
og eyðileggja þannig til fulln-
ustu öll yfirráð Breta við Mið-
j arðarhaf.
Það er nokkurnveginn öruggt,
að öxulríkin myndu ekki ráðast
í þetta erfiða fyrirtæki, ef
Þjóðverjar treystu sér til að
vinna skjótan sigur yfir Bret-
um með * innrás á Bretlands-
eyjar. Þá væri þessi sókn óþörf.
Mjög er um það rætt, hvort
það myndi hafa úrslitaþýðingu
í styrjöldinni, ef þessar fyrir-
ætlanir öxulríkjanna gengu að
óskum. í seinustu styrjöld áttu
Þjóðverjar þess kost, að koma
slíku áformi í framkvæmd, því
að Tyrkir voru þá bandamenn
þeirra. Falkenhayn, sem um
nokkurt skeið var yfirhershöfð-
ingi Þjóðverja, hafnaði þessu
úrræði með þeirri forsendu, að
það kæmi ekki að öðrum not-
um í sjálfri styrjöldinni en að
hnekkja áliti Breta við Miðjarð-
arhaf og í Asíu. Falkenhayn
taldi, að styrjöldin yrði ekki út-
kljáð annars staðar en á vest-
urvígstöðvunum og þess vegna
beindi hann meginliði Þjóðverja
þangað.
Þeir eru margir, sem telja
þessa skoðun Falkenhayn enn
i fullu gildi. Þeir segja, að þótt
Þj óðver j ar næðu Miðj arðar-
hafslöndunum öllum, auk Iran
og Irak, á vald sitt, gætu þeir
ekki fyrstu árin hagnýtt sér
auðæfi þeirra að neinu verulegu
leyti, sökum slæmra flutninga-
skilyrða.
í ræðu, sem Churchill forsæt-
isráðherra flutti í ágústmánuði
síðastliðnum, vék hann að þessu
og fórust honum m. a. orð á
þessa leið:
— Þótt hinar brynklæddu
A. KROSSGÖTIJM
Báts saknað. -
samgöngur.
Móvinnsla í Skagafirði. — Slátrun á Sauðárkróki. — Flug-
- Loftbelgir valda skemmdum. — Frá starfi Sumargjafar.
Slysavarnafélag íslands hefir lýst
eftir vélbát, Hegra úr Hrísey, er fór
frá Sauðárkróki síðastliðinn þriðjudag
á leið til Reykjavíkur. Hefir ekkert til
báts þessa frétzt, síðan hann lét úr
höfn á Sauðárkróki. Bátverjar munu
hálft í hvoru hafa haft í huga, að
reyna að fiska í Húnaflóa á leið sinni
vestur um. Undanfarin dægur hefir
verið símasambandslaust við norðan-
verðar Strandir, en veður vont á þeim
slóðum. Er það von manna, að báturinn
hafi leitað afdreps á einhverri víkinni
þar nyrðra, og liggi þar þangað til
óveðrinu slotar.
Ólafur Sigurðsson bóndi á Hellulandi
í Skagafirði hefir tjáð Tímanum eftir-
farandi: — Hlutafélag til móvinnslu
var stofnað á Sauðárkróki síðastliðið
vor. Pesti félag þetta kaup á danskri
móeltivél til móiðjunnar. Mótakan
hófst litlu fyi-ir Jónsmessu og var unn-
ið að móöflun fram í miðjan ágúst-
mánuð. Að jafnaði vom ellefu menn
við þessa vinnu. Alls voru teknar upp
1515 smálestir af blautum mó. Sam-
svarar það 400 smálestum af þurrum
mó. Vinnulaun námu um 10 þúsund
krónum, og um 1000 krónur voru goldn-
ar fyrir hreykingu, er mórinn var að
þorna. Nú um mánaðamótin var búið
að þurrka 300 smálestir af mónum til
fullnustu, en vegna látlausra rigninga
var hitt ekki fullþurrt enn. Þegar er
búið að selja á annað hundrað smá-
lestir mós og er söluverðið 38 krónur
fyrir hverja smálest á þurrkvelli, sem
er rétt við kauptúnið. Mórinn þykir
reynast vel til miðstöðvarhitunar með
kolum. Hjá bændum í héraðinu hefir
illa gengið að þurrka eldsneyti í sumar
vegna mikillar og stöðugrar úrkomu
lengst af. En upp á síðkastið hefir ver-
ið þurrviðrasamt, og hefir að því verið
mikil bót.
/ 1 t
Tíðindamaður Tímans hefir átt tal
við Sigurð Þórðarson kaupfélagsstjóra
á Sauðárkróki. Skýrði Sigurður svo
frá, að i haust hafi verið slátrað fleira
fé hjá kaupfélaginu heldur en nokkru
sinni hefir áður verið. Alls var 23 þús.
fjár slátrað, en áður hefir aldrei verið
slátrað fleira en 16 þús. Stafar þetta
að nokkru leyti af því, að menn auka
óvenjulega mikið viðskipti sín við fé-
lagið. Einnig var óvanalega mikið um
tvílembdar ær í Skagafirði í ár og
loks var um 1000 fullorðins fjár af
garnaveikisvæðinu slátrað á Sauðár-
króki. Mæðiveiki er í fé í vesturhérað-
inu, en ekki munu bændur þó farga
heilbrigðum kindum af ótta við sýkina.
I t t
Plugfélag íslands mun halda uppi
flugsamgöngum í vetur. Mun það hafa
tvær flugvélar til þessara nota, Haf-
örninn, er Örn Johnson mun stjórna,
og Örn, landflugvélina, er Sigurður
Jónsson stjómar. Að undanfömu hefir
nokkmm flugsamgöngum verið haldið
uppi og meðal annars verið flogið all-
mörgum sinnum til Austurlandsins og
í nokkur skipti norður í land.
t t r
Enn hefir orðið vart loftbelgja á
sveimi hér á landi. í fyrradag slitnuðu
hjá Grenjaðarstað raftaugar frá afl-
stöðinni við Laxá í Þingeyjarsýslu, og
skemmdir urðu á nokkrum stöðum í
héraðinu, meðal annars í grennd við
Grenjaðarstað, á Tunguheiði og í
Reykjadal. Sama dag sást úr Vest-
mannaeyjum til ferða loftbelgs. Kom
hann úr landátt og barst á haf út.
1 t 1
Nýtt dagheimili barna tekur til
starfa á vegum Bamavinafélagsins
Sumargjöf næstu daga. Það mun hafa
aðsetur sitt á Amtmannsstíg 1. Dag-
heimili þetta er sem næst fullskipað.
Jafnframt verður þar hafður svokall-
aður barnagarður um miðjan daginn,
klukkan 1—3,30. Er það einskonar leik-
skóli fyrir 4—5 ára gömul börn. Er slíkt
skólastarf mjög tíðkanlegt erlendis og
þykir einkar þroskandi. Þar eru börnin
látin byggja úr kubbum, teikna, hnoða
leir og látin hafa undir höndum
þroskandi leikföng, syngja og sagðar
sögur. Forstöðukona mun verða Þór-
hildur Ólafsdóttir. í fyrravetur var og
starfrækt dagheimili hér í bænum.
Vistarheimili fyrir böm rekur Sumar-
gjöf i Vesturborg í vetur, eins og var
í fyrra.
t t t
hjarðir nazista stæðu við
Svartahaf eða Kaspíahaf, og
jafnvel þótt Hitler væri kom-
inn að hliðum Indlands, myndi
það ekki veita honum neinn á-
vinning, ef þýzki hergagnaiðn-
aðuxinn, sem hin mikla vígvél
Þýzkalands byggist á, væri
meira og minna í rústum á sama
tíma. —
Churchill hafði áður í ræðu
sinni fært rök að því, að hafn-
bannið ylli verulegum skorti á
ýmsum hráefnum, sem Þjóð-
verjar þyrftu til hernaðarins,
og að árásir brezka flughersins
á hergagnaverksmiðjur í Þýzka-
landi hefðu valdið verulegu
tjóni, og myndi þó margfalt
meiri árangur nást í þessum
efnum síðar meir.
Það er í sambandi við ríkj-
andi styrjaldarhorfur fróð-
legt að rifja upp ræðu, sem
Churchill flutti í enska þing-
inu 1915, er hann lagði niður
ráðherrastörf, sökum ágreinings
í stjórninni. Þýzki herinn hafði
til þess tíma átt stöðugum sigr-
um að fagna, en Bandamenn
beðið hvern ósigurinn öðrum
meiri, því að menn voru þá ekki
farnir að meta þýðingu Marne-
orustunnar í september 1914, en
ýmsir vilja nú líkja undanhaldi
Breta frá Flandern við hana.
Churchill fórust m. a. orð á
þessa leið:
„Það er engin ástæða til að
láta hugfallast vegna þess,
hvernig styrjöldin hefir gengið
til þessa. Við eigum í höggi við
mikla erfiðleika og þeir geta
orðið ennþá meiri áður en at-
buröirnir snúast okkur í vil, en
ég efast ekki um, að þeir muni
gera það, ef við verðum nógu
þrautseigir. Fyrr meir höfðu
einstakir stóratburðir oftast
meiri áhrif á úrslit styrjaldanna
en ákveðin markmið. í þessari
styrjöld hafa markmiðin miklu
meiri þýðingu en atburðirnir.
Við getum únnið styrjöldina, án
þessa að vinna nokkra stórfellda
sigra. Hinn endanlegi sigur get-
ur fallið okkur í hlut, þótt við
eigum enn eftir að horfa upp
á marga hörmulega og uggvekj-
andí átburði. Til þess að vinna
styrjöldina er ekki nauðsynlegt
að rjúfa hina þýzku víglinu og
hrekja andstæðingana burtu af
því landi, sem þeir hafa lagt
undir sig. Þótt hinar þýzku víg-
línur séu langt utan við landa-
mæri Þýzkalands, þótt hinn
þýzki fáni blakti yfir sigruðum
höfuðborgum og undirokuðum
löndum, og þótt sigursældin
virðist fylgja vopnum andstæð-
inganna á vígvellinum, getur
hæglega svo farið, að Þýzkaland
bíði stærri ósigur á öðru eða
þriðja ári styrjaldarinnar en
þótt her Bandamanna hefði
haldið innreið sína í Berlín á
fyrsta styrjaldarárinu.
Það er vissulega ekki hug
hreystandi fyrir okkur, að sjá
(Framh. á 4. síöu)
Aðrar fréttir.
Grikk'landsstyrjöldin hefir nú
staðið í rúma viku. Grikkir
telja sig enn hafa hrundið sókn
ítala á allri víglínunni, en
jafnframt hafi þeim tekizt að
brjótast inn i Albaníu á tveimur
stöðum og hafi þeir valdið ítöl-
um verulegu tjóni á þeim slóð
um. Talið er að ítalir undirbúi
stóraukna sókn og hafi þeir
undanfarið flutt aukinn liðs
afla og hergögn til Albaníu.
ítalir hafa gert loftárásir á ýmS'
ar grískar borgir, aðallega Sal
oniki. Sagt er að synir Musso
linis og Ciano greifi hafi tekið
þátt í sumum loftárásunum.
í London hefir verið staðfest
að brezkur landher sé kominn
til Kreta, sem er talin einn
(Framh. á 4. siöu)
A víðavangi
ÖL HANDA BREZKA
SETULIÐINU.
Ríkisstjórnin hefir nýlega gef-
ið út bráðabirgðalög, sem heim-
ila framleiðslu á sterkara öli en
áður hefir verið búið til hér á
landi. Framleiðsla þessa öls er
því skilyrði bundin, að það verði
aðeins til sölu fyrir setuliðið.
Framleiðslan mun verða í hönd-
um íslenzkra fyrirtækja. Undan-
farið hefir verið flutt inn tals-
vert mikið af sterku öli handa
setuliðinu og hefir enginn tollur
verið greiddur af því, frekar en
öðrum vörum, sem setuliðið not-
ar beint til sinna þarfa. Var um
það tvennt að ræða, að láta
þennan innflutning haldast á-
fram eða að leyfa hér fram-
leiðslu á ölinu og tryggja þannig
af því gjöld til ríkissjóðs. Síðari
leiðin var valin, enda virðist hún
ólíkt hyggilegri, þar sem ríkið
hefði annars orðið af miklum
tekjum, án þess þó að það hefði
haft nokkur áhrif önnur. Með
lessari ráðstöfun hefir ríkis-
stjórnin enga afstöðu tekið til
less deilumáls, hvort leyfa skuli
framleiðslu á sterku öli handa
landsmönnum sjálfum. Bindind-
ismenn telja það yfirleitt óhyggi-
legt og færa mörg rök því til
sönnunar. Afgreiðsla ríkis-
stjórnarinnar á máli þessu mun
miðast við, að það verði tekið
til nánari athugunar á þingi í
vetur.
K AUPS AMNIN G ARNIR.
Öll helztu verkalýðsfélög
landsins eru nú búin að segja
upp samningum við atvinnurek-
endur frá næstu áramótum að
telja. í tilefni af því hefir
Vinnuveitendafélag íslands
snúið sér til Alþýðusambands
íslands með þá málaleitun, að
reynt yrði að gera einn alls-
herj arsamning, sem gilti fyrir
öll verkalýðsfélög og atvinnu-
rekendur. Stjórn Alþýðusam-
bandsins hefir svarað á þá leið,
að þing þess komi saman inn-
an skamms og muni þessi mál
iar tekin til nánari athugunar.
Það liggur í augum uppi, að það
væri æskilegast að hægt yrði
að gera slíkan samning, í stað
þess að hvert félag fari að semja
sérstaklega. Þetta fyrirkomulag
hefir yfirleitt verið tekið upp,
þar sem verkalýðsfélögin hafa
náð verulegum áhrifum og
þroska, eins og t. d. á Norður-
löndum.
ÓLÖGLEG TÓBAKSVERZLUN.
Talsverð brögð munu vera að
því, að setuliðsmennirnir selji
íslendingum vindlinga, og er
það aðallega sök hinna síðar-
nefndu. Telja kaupmenn, að
innlend tóbaksverzlun hafi
(Framh. á 4. síðu)
F. U. F. í Ausfur-
Húnavafnssýslu
Síðastliðinn laugardag var
stofnað á Blönduósi Félag ungra
Framsóknarmanna í Austur-
Húnavatnssýslu. Voru stofnend-
ur rúmlega tuttugu.
í stjórn félagsins voru kosnir:
Grímur Gíslason, Saurbæ (for-
maður), Þórður Þorsteinsson,
Grund (ritari) Jón Tryggvason,
Finnstungu (gj aldkeri), Þor-
móður Pálsson, Blönduósi og
Björn Eysteinsson, Guðrúnar-
stöðum. Endurskoðendur voru
kosnir Jónas Tryggvason,
Finnstungu og Pétur Pétursson,
Bollastöðum.
Meðal ungra Framsóknar-
manna í Austur-Húnavatns-
sýslu er ríkjandi mikill áhugi.
Það dró úr þátttöku á stofn-
fundinum, að veður var mjög ó-
hagstætt.
Formaður S. U. F. mætti á
fundinum. Samþykkt var að fé-
lagið skyldi sækja um inngöngu
í S. U. F.