Tíminn - 19.11.1940, Page 4

Tíminn - 19.11.1940, Page 4
TlMIMV. hriðjiidasiim 19. nóv. 1940 114. blað 156 <j R BÆNUM F. U. F. í Reykjavík heldur fund í Sambands- húsinu á föstudaginn. Verða tvö mál til umræðu: Vetrarstarfsemi félagsins og Framsóknarflokkurinn og Reykjavík. Fundurinn hefst ki. 8.30. Félagsfólk er áminnt um að sækja fundinn og koma stundvíslega. Framsóknarmenn! Munið skemmtunina í Oddfellow- húsinu í kvöld Hefst með Framsóknar- vist kl. 8,30. Mætið stundvíslega. Operettusýning í vetur. Ákveðið hefir verið að sýna hér í vetur franska óperettu, „Fröken Ni- touche“. Óperetta þessi er mjög fyndin og skemmtileg. Tónlistarfélagið og Leikfélag Reykjavíkur gangast fyrir sýningunni. Aðalhlutverkin leika Lárus Pálsson og Sigrún Magnúsdóttir. Lárus hefir undanfarin ár stundað leiknám í Kaupmannahöfn og leikið í ýmsum leikhúsum þar og hlotið góða dóma. Aðrar fréttir. (Framh. af 1. síðu) Tunis, en þeir hafa krafizt þess- ara staða á undanförnum árum. í Portúgal óttast menn að Spánverjar muni ganga í lið með öxulríkjunum. Eru Portú- galar þá erfiðlega staddir, því að lengi hefir verið mikil vin- átta með þeim og Bretum og sambúðin við Spánverja hefir líka oftast verið góð. Ef Spánn færi í styrjöldina myndu báðir stríðsaðilar telja það miklu skipta að hafa fylgi Portúgala. Það vekur athygli, að Samuel Hoare sendiherra Breta á Spáni og Lothian markgreifi, sendi- herra Breta í Bandaríkjunum, eru nú báðir í Lissabon og ræða við helztu stjórnarleiðtoga Portúgala. Þjóðverjar gerðu stórfelldustu loftárásina á London aðfara- nótt síðastl. laugardags. Urðu skemmdir miklar á íbúðarhús- um og verzlunarhverfum. Sömu nótt gerðu Bretar stærstu loft- árásina, sem þeir hafa enn gert, á Hamborg og olli hún miklu tjóni. Var sú árás gerð til hefnd- ar fyrir árás Þjóðverja á Coven- try. Einnig gerðu Bretar miklar árásir á borgir við Ermarsund þessa sömu nótt. S.einustu næt- ur hefir verið minna um loftá- rásir sökum óhagstæðs veðurs. Kirkjuvígslan (Framh. af 1. síðu) sinn kaflann hvor af vígslu- blessuninni. Síðan söng kant- ötukórinn „Faðir vor“ eftir Björgvin Guðmundsson. Loks flutti séra Friðrik Rafn- ar vígslubiskup prédikun. Að lokinni messugerð las séra Ing- ólfur Þorvaldsson í Ólafsfirði bæn í kórdyrum. Auk þeirra presta, sem þegar hafa verið nefndir, voru við- staddir séra Friðrik Friðriksson á Húsavík, séra Þorvarður Þor- mar í Laufási, séra Þormóður Sigurðsson á Vatnsenda og séra Þorgrímur Sigurðsson á Grenj- aðarstað. Ýmsar gjafir hlaut hin nýja kirkja á þessum degi, meðal annars rafmagnsorgel frá Vil- hjálmi og Rannveigu Þór, altari frá Ólafi húsgagnasmið Ágústs- Sólon Islandus (Framh. af 3. síðu) góðra og göfugra kvenna í öll- um löndum. Tötrar Ingiríðar fara henni ekki illa og draga úr mannslund hennar. Hún er fögur í tárum, þegar hún reiðir tvö svöng börn yfir illfæran læk heim að koti sínu. Hún er fög- ur sem húsfreyja, þegar hún tekur kotið, allt sem í því var, og hinn fátæklega búsmala undir vernd sína og umsjón meðan hinn lati og lærði ætt- fræðingur, sem er faðir barna hennar, sefur svefni hins iðju- lausa inn í hreysi því, sem þau kalla heimili. Og hún er íslenzk kvenhetja, þegar Helgi bóndi hennar er burtu á tilefnislitlu flakki, og hún er ein í bænum með börnin, hlúir að þeim, kúnni í fjósinu, kindum í fjár- húsinu og lítur glöðum vonar- augum út yfir fannbreiður, milli hríðaréljanna, til að vita hvort lífsfélagi hennar sé þó ekki loksins á leiðinni heim. En Helgi, maður Ingiríðar, er latur og þrjózkur í lund. Hann þráir það, sem hann kallar and- legt líf, bækur, ættfræði, um- gengni við menn, sem sýsla við slíka hluti. En hann er fátækur einyrki, tregur og stirður við flest dagleg vinnubrögð. Helgi er ekki neitt nýtt fyrirbrigði. Wergeland og Matthías sögðu um skáldið í litlu landi: Hann er kirkjuklukka vafin köldu, blautu duluraski; hann er rósargreinin grafin, gömlum undir mæliaski. Sínum væng að vilja lyfti, vera hár og fleygur andi, eins og sá sem guðleg gifta gerir skáld I stóru landi; það er eins og ætla að fljúga, alla heima gegnum smjúga, tjóðraður í tunnubandi. Helgi trúði því, að hann væri kominn af stórhöfðingjum og ætti að búa við þessháttar lífs- kjör. Ættartala hans hefir ef til vill verið óviss, og rökleiðslan enn óvissari. En hitt er full- víst, að leynd trúarvissa um á- gæti upprunans hefir á löngum öldum bæði kvalið þjóðina og þó verið ljós á vegum hennar. Margur bóndi á íslandi hefir á liðnum öldum unnið að dagleg- um framleiðslustörfum, en unnið og hugsað í kyrrþey um andleg efni. Margir slíkir menn hafa, eins og Helgi, ásak- að tilveruna fyrir að gera þeim ekki nógu hátt undir höfði. En jafnframt sársaukanum yfir erfiðum kjörum, hefir þráin eftir andlegu lífi og leitin eftir andlegum verðmætum gert ís- lendinga að Gyðingum nor- rænna landa, smáþjóð, sem hef- ir fengið mun meiri þýðingu í andlegri auðlegð heimsins, heldur en búast mætti við eftir stærð þjóðarinnar og ytri kringumstæðum. Sölvi er sonur þessara ó- samstæðu hjóna. Hann líkist föður sínum um flest eða allt. Skáldið lýsir vel og eðli- lega þroskaferli hans 1 foreldra- syni og Rannveigu konu hans og silfurbergskross frá Gunnari Guðlaugssyni. húsum. Móðirin ein ræður yfir þessum baldna, óstýriláta dreng með valdi kærleikans. Hann gerir uppreist móti öllum öðr- um. Hann þjáist af fátæktinni og auðnuleysinu. Við kirkju safnast drengir úr sveitinni að Sölva, þar sem hann stendur á leiði föður síns og spotta hann fyrir að éta hrossakjöt. Þannig eru börn ’ við jafnaldra sína: Blíð og grimm, englar eða vond- ar verur, eftir því hver geðblær- inn verður ofan á í það sinn. Eftir lát Helga takast kynni með Ingiríði og Jóni, sem síðar gift- ist henni. Sölvi logar af heipt og afbrýðisemi gagnvart þessum væntanlega stjúpföður. Öll sú lýsing er eðlileg og um leið skáldleg. Aðdragandinn að raunum og auðnuleysi Sölva er augljós í sögunni. Uppistaðan er úr eðli Helga, ívafið stafar frá raunalegu uppeldi. Að öllu samtöldu tekst Davíð Stefánsyni mun betur að lýsa konum heldur en karlmönnum, og mun svo vera um mörg önn- ur skáld. Vala gamla, sem hjálpar Sölva til að strjúka heim til móður sinnar, er ekki keypt í búð. Hún er öldruð, slitin, með hönd, sem er hrjúf af langvarandi og margháttuðu erfiði. En sálin, sem býr í þessu hulstri, er ekki hrjúf. Þar er lýst einni af þessum ótölulegu kvenhetjum, sem hafa farið fram hjá fegurð lífsins í vöku, eins og Guttormur skáld kemst að orði,og koma hvarvetna fram með mestum drengskap, þegar mest á reynir. Málið á þessari skáldsögu er yfirleitt mjög vandað, stundum eins og höfundurinn hafi lengi legið yfir setningunum til að fága þær sem mest. Að vísu er viðsjárvert að halla á nokkurn mann fyrir að vanda verk sín. En vel mega skáld og rithöf- undar gæta þess, að oft er það bezt og ferskast, sem mönnum kemur fyrst í hug. Skáldinu hættir nokkuð til að tala sjálf- ur, þar sem samtöl söguhetj- anna og atburðir lýsa betur heldur en unnt er fyrir aðra, jafnvel sjálfan höfundinn. Davíð Stefánsson hefir til að bera einn mikilvægan, kost, til að lýsa sveitalífi. Hann er al- inn upp í sveit, hefir að öllum líkindum verið smali og setið yfir ám. Hann lýsir betuT en önnur skáld ýmsum verkum í áveit, svo sem mjöltum og því, hversu mjaltakonan auðkennir ærnar, um leið og hún vinnur verk sitt. Aftur á móti er í lýs- ing hans af lífi selstúlkunnar fylgt norskum en ekki íslenzk- um fyrirmyndum. Ég hygg, að sá fjölmenni hl.uti þjóðarinnar, sem telur Da- við Stefánsson mikið ljóðskáld, muni vænta þess, eftir að hafa lesið bók hans um Sölva Helga- son, að hann muni líka verða snjall söguritari, um líf og háttu samtíðarmanna sinna. Það er mikils um vert, að í þeirri bók, sem hér hefir verið minnst á, eru þei'r kaflar beztir, sem mest reynir á frjóa og skapandi gáfu skáldsins sjálfs. J. J. Hugleiðingar um sjálfstæðismál (Framh. af 2. síðu) hefði samúð með Finnum. Þeir, sem trúðu á Stalin, voru fyrst fátalaðir og niðurdregnir. Þeir vissu ekki, hvað þeir áttu að segja. Dæmi veit ég til þess, að fróm sál úr söfnuði Moskva- manna játaði trú sina á Stalin og kvaðst vita það, að hann stjórnaði með vísdómi og gæzku öllu, sem við bæri í hinum bless- uðu Sovétríkjum, og allt, sem fram við oss kæmi að hans vilja hlyti á einhvern hátt að styðja sigur hins góða, (þ. e. socialismans), þó að við skamm- sýnir menn fengjum ef til vill ekki skilið, á hvern hátt það mætti verða. En það er sagt, að tíminn lækni öll mein og söfnuðurinn hresstist, þegar frá leið. Fleiri ömurlegir atburðir gerðust. Sku^gar styrjaldarinnar færðust nær og nær. Hernám annnarra Norðúrlanda olli því, að hugir íslendinga dreifðust frá Finn- landi. Og þá kveður hirðprest- ur kommúnista sér hljóðs með nýrri bók. Hún heitir Sóknin mikla. Hún er skrifuð til að sanna það, að Rússland átti að ráðast á Finnland og taka sneið af því. Það varð að gerast. Ann- að hefði verið vítavert andvara- leysi, svik við sócialismann og glæpur við gjörvalt mannkyn. Og réttlæting þessara landa- rána er sú, að Rússland þurfti þessa með; því var rétt að taka það. Tvennt er merkilegt við þetta. Annað er falslaus undirgefni og takmarkalaus þjónslund trú- mannsins við stjórnarvöld Rússa. Þetta árið er skrifuð bók til að skýra og réttlæta það, sem í fyrra var skrifað að væri óhugsandi af því, að það væri glæpur og Sovétríkin drýgðu ekki glæp. Hitt er þó ef til vill merkilegra. Það er sú staðreynd, að gáfaður og menntaður maður og að sögn hversdagsgæfur og dagfarsgóður maður, gerist til að verja þá sambýlishætti, sem eru allri menningu eldri og frumstæðari. Við getum hugsað okkur hvernig færi, ef við tækjum upp þá venju, að hver sem væri gæti sagt: Þetta þarf ég og því tek ég það. Þar með væri horfið til óbundins hnefaréttar og kastað frá sér öllu því, sem okkur finnst ástæða til að kenna við mann. Það yrði horfið aftur á blóðuga slóð villidýrsins. Það væru þá ekki til neinir sáttmálar né samningar, — ekkert réttlæti né öryggi. Engir ættu að skilja betur en þeir smæstu og varn- arlausustu hvílíkt siðleysi og villimennska það er, að flytja svona mál. Það geta þeir einir, sem eru blindir á báðum augum af trúarofstæki. Við lifum milli vonar og ótta og vitum ekki, hvort við fáum framvegis að vera sjálfstæð þjóð og lausir við áreitni fram- andi þjóða. Við vitum, að land okkar hefir mikla þýðingu hernaðarlega. Við skiljum hætt- una, sem í því liggur. Okkur finnst, að hver góður íslending- ur hljóti að mótmæla því, að aðrar þjóðir hafi rétt til að taka land okkar í sína eign og setja okkur lög. Og því finnst okkur það ganga mannvonzku næst, þegar íslenzkir menn fara að verja slík ofbeldisverk unnin á öðrum þjóðum. Okkur finnst, að til þess þurfi sálsýki. Þessi sálsýki er trúarofstæki þess, sem finnst allt rétt, sem þjónar hans málstað. og er haldinn miskunnarleysi og grimmd hins ,,frelsaða“ strangtrúarmanns. Þess er skemmst að minnast, að strangtrúaðir kirkjumenn þoldu rólegir að heyra og hugsa um helvítispíslir meðbræðra sinna. Hitt er þó nær, að sr. Gunnar Benediktsson hendir gaman að raunum finnsku þjóðarinnar, sem varð að færa þungar fórnir á altari rússneskra stórvelda- drauma. Ég hefi orðið svona margorð- ur um þetta af því, að mér finnst það einskonar sýnishorn, sem hefir almennt gildi. Þetta eru menn í álögum. Hugarfar þeirra er eitt af því, sem við verðum að varast. Sjálfstæði okkar byggist á vakandi gagn- rýni, en ekki blindri trú. En við skulum vona, að þess- ir tímar verði okkur til góðs. Þeir verða það, ef kvíði þeirra .-™«-GAMLA bjó°—<—í Vcrið þér sælír, herra Chíps Heimsfræg Metro Gold- wyn Mayer stórmynd, gerð eftir skáldsögu James Hil- ton. Aðalhlutv. leika: ROBERT DONAT og GREER GARSON. JA BÍÓ Gæfustjarnan | (MY LUCKY STAR.) Amerísk skemmtimynd, fyndin og fjörug frá byrj- un til enda. Aðalhlutverkið leikur i skautadrottningin heims- fræga SONJA HENIE og kvennagullið j RICHARD GREEN. Aukamynd: Fiskveiðar á ófriðartímum Sýnd kl. 7 og 9. j 118 Robert C. Oliver: — Þér gleymið einu, sagði Bob. — Hverju? — Algeru samvizkuleysi. — Það er rétt, við gleymdum því. Eða réttara sagt, við reiknuðum ekki með svo erfiðu hugtaki. En ef þér eruð að burðast með mikið af samvizku, þá vil ég ráðleggja yður að losa yður við hana, sem allra fyrst. Bob hló lágt. — Við erum algerlega sammála í að- alatriðum. Ég tek tilboði yðar og bíð frekari fyrirskipana. — Ágætt, sagði Cabera og kveikti í sígarettu. — Þar sem ég má víst hér með skoða mig sem einn lið í keðjunni, vildi ég koma með eina spurningu. Ég þykist vita, að ef ég hefði neitað að taka til- boði yðar, hefði ég ekki farið lifandi út úr þessu herbergi? — Þér hafið getið yður rétt til, svaraði Cabera. — Gott og vel, sagði Bob, og ekkert annað. Mody stóð á fætur. —• Fyrsta hlutverk yðar, Bob Holl- man, er að komast í kunningsskap við unga stúlku, sem í seinni tíð hefir hald- ið sig á kvöldin hjá China-Charley, sem hefir veitingahús í East End. Við getum notað hana. Ef hún verður löguð svo- lítið til og þvegin af hsnni farðinn Æfintýri blaðamannsins 119 býst ég við að hún sé snotur. Að minnsta kosti viljum við athuga hana nánar. — Ég bjóst við almennilegu starfi, — Ég bjóst við almennlegu starfi, sagði Bob. — Ég er svo vanur að fylgja kvenfólki heim, að ég kalla það ekki starf. — Ef þér ættuð að fá hana heim með yður yrði það sjálfsagt ekki erfitt. En þér eigið að koma með hana á sam- komustaðinn, sem þér komuð á í kvöld. En munið eitt: Enginn má vita, hvert þið farið, og hún má ekki fá tækifæri til þess að tala við neinn, eftir að þér hafið fengið hana til þess að koma með yður. — Þetta er mjög auðvelt. Ég legg ekki til að við förum á samkomustaðinn fyrr en við erum þar rétt hjá. Verið þið bara rólegir. Svo framarlega sem hún kemur í veitingahúsið á morgun, skal ég koma með hana. En hversvegna á hún nauðsynlega að koma þarna og syngja sálma? — Það komizt þér að raun um á morgun. Bob stóð upp. — Mitt hlutverk er þá aðeins, að koma með stúlkunni í sam- komuhúsið. Hvað skeður eftir það, kem- ur mér ekki við. — Alveg rétt. Bob Hollman kvaddi og ætlaði að Sýnd klukkan 7 og 9 ! Kjörskrá til prestskosningar í Nesprestakalli liggur frammi í Verzlunarútibúi Péturs Kristjánssonar, Víðimel 35, hvern virkan dag á tímanum kl. 1—5 e. h. frá og með 19. nóv. til 26. nóv. að þeim degi meðtöldum. Kærufrestur er til 3. des. n.k. Skriflegar kærur sendist oddvita sóknarnefndar. SÓKN ARNEFND. kjörikrá til prestskosninga í Hallgrímsprestakalli í Reykja- vík, við prestskosningar, sem fram eiga að fara í desember n.k., liggur frammi kjósendum safnað- arins til sýnis í Barnaskóla Austurbæjar (gengið inn í suðurálmu) frá þriðjudegi 19. til mánudags 25. þ. m. að báðum dögum meðtöldum, kl. 10—12 og 1—5 e. h. — Kærur út af kjörskránni skulu sendar oddvita sóknarnefndar, Sigurbirni Þorkels- syni, Fjölnisveg 2, fyrir 3. des. n. k. kjörikrá til prestskosningar í Laugarnesprestakalli liggur frammi safnaðarmönnum til sýnis í Barnaskólan- um við Reykjaveg (Laugarnesskóla) frá 19.—25. þ. m., að báðum dögum meðtöldum,-kl. 10—12 og 13—17. — Kærur um að einhver sé vantalinn eða oftalinn á skránni, sendist til oddvita sóknar- nefndar, Jóns Ólafssonar, Laugarnesveg 61, fyrir 3. des. n. k. 18. nóvember 1940. S ÓKN ARNEFNDIN. Xýjar bæknr w Jóhann Bárðarson; A 1* Si S k 1 p Lýsing á sjómennsku á opnutn bátum á VesturlancLi. Ólafur Lárusson prófessor skrifar formála fyrir bókinni og segir þar m. a.: „Jóhann Bárðarson lýsir hér fiskveiðum í einni af merkustu veiðistöðvum landsins, Bolungarvík, eins og þeim var hagað síðasta áratuginn, sem þær héldust í hinu gamla horfi,. áður en mótorbátarnir komu til sögunnar og sú mikla breyting, sem þeim fylgdi. Jóhann er fæddur í Bolungarvík og ættaður þaðan. Hann ólst þar upp meðan útvegurinn enn var með sínu gamla sniði og var sjálfur formaður á áraskipi um skeið. Hann hefir því hin beztu skilyrði til að kunna góð skil á því efni, sem hann ritar hér um og ég hefi haft þau kynni af vinnubrögðum hans, er hann samdi ritið, að ég veit að hann hefir lagt mikla stund á að afla sér sem áreiðanlegastra heimilda og engan veginn látið sér nægja að styðjast, að óprófuðu máli, við minni sjálfs sln eingöngu. Ég tel mig því hafa fyllstu ástæðu til að ætla, að þetta rit hans sé mjög áreiðanlegt, og að lýsing hans á áraskipaútgerð- inni í Bolungarvlk sé nákvæm og trú og ritið verði því míkils- verður skerfur til þekkingar síðari tíma á þessum merkilega at- vinnuvegi." í bókinni eru fjörutíu og fimm myndir, af formönnum, skips- höfnum, bátum, fiskimiðum og fleiru. GustaS af Geijerstam: Bókin Um lítla brÓður Gunnar Árnason frá Skútustöðum þýddi. í bókinni eru nokkrar teikningar eftir frú Barböru Ámason. Geijerstam er einn af frægustu rithöfundum Svía og Bókin um litla bróður er eitt af beztu verkum hans og vakti óhemju athygli, er hún kom fyrst út. Bókaverzlun Isafoldarprentsmíðju. og óvissa kennir okkur að meta betur þau lögmál, sem siðað mannfélag byggist á, og knýr okkur til að verða þeim trúrri en við höfum verið. Hættan er okkur holl, ef hún eyðir and- varaleysi og vekur til þjóðlegr- ar einingar og staðfastra'r hylli við það, sem mestu skiptir fyrir þá, sem eru fáliðaðir, smáir og varnarlitlir. Þá munum við mæta betri tímum, frjálsir og starfsamir menn, hollir lýðræði og jafnrétti. Halldór Kristjánsson. Leidrétting* í frásögn blaðsins um hina nýju kartöflugeymslu, er Grænmetisverzlun ríkisins hefir látið gera inni við Elliða- ár, hefir ínisprentazt kostnaður sá, er þessi framkvæmd hafði í för með sér. Geymslan kostaði 6000 en ekki 600 kr.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.