Tíminn - 19.12.1940, Síða 1

Tíminn - 19.12.1940, Síða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTGEFANDI: FRAMSÓKNARFLOICKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG A UGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. Símar 3948 og 3720. 24. úrg. Rcykjavík, fimmtudagiim 19. des. 1940 12T. blað ÁfengissRömmtnnin Hlutfallslega míklu fleírí áfengísbækur afhentar í R.vík en í öðrum kaupstöðnm Senn eru þrír mánuður liðnir, síðan upp voru tekn- ar hömlur þær og takmark- anir á áfengiskaupum, sem nú eru í gildi. Hefir Tíminn aflað sér nokkurrar vitn- eskju um áfengissöluna og áfengisbókakaup fólks í helztu kaupstöðunum. í Reykjavík hefir hátt á ell- efta þúsund manns orðið sér úti um áfengisbækur og fe'r þeim fjölgandi með degi hverjum, eftir því sem nær dregur hátíð- unum, sem koma á skrifstofu sakadómara í slíkum erindum. í gær fengu til dæmis 180 Reykvíkingar áfengisbækur, en 164 í fyrradag. Líður senn að því, að handhafar áfengisbóka í Reykjavík taki að byrja 12. þúsundið. Af þessu fólki munu karl- menn vera í meirahluta, en síð- ustu daga mánaðanna koma þó fleiri konur en karlar þeirra erinda. Svo er og nú, þegar dregur að jólum. Af þeim 180, er keyptu áfengisbækur í gær, voru nákvæmlega 100 konur. Gefur þetta ótvíræða bendingu um þá ágalla, sem eru á skömmtunarfyrirkomulaginu. Þegar þeir, sem mest neyta j af víni, hafa notað sinn skammt, er farið á stúfana og kunningja'rnir, sem venjulega kaupa ekki vín og hafa það má- ske aldrei um hönd sjálfir, fengnir til að ná sér í áfengis- bækur og taka út þann skammt, sem lögin heimila þeim að kaupa. Alls mun vera um 20 þúsund manns í Reykjavík, sem að lög- um mega eiga áfengisbækur. í skrifstofu bæjarfógetans í Hafnarfirði hafa alls verið sótt- ar 1130 áfengisbækur. En þar fá Hafnfirðingar og ibúar Gull- bringu- og Kjósarsýslu, utan Keflavíkur, áfengisbækur. Þar ber ekki á því, að meira sé eftir þeim sótt, þó nær líði hátíðun- um. Á ísafirði hafa um 800 áfeng- isbækur verið afhentar. Er það ekki há tala, þegaT þess er gætt, að hér eiga hlut að máli íbú- Kosníngm í Nesprestakallí Talning atkvæða, sem greidd voru við kosningar presta í nýju sóknunum i Reykjavík, hófst kl. 9 í morgun. Byrjað var á því að telja at- kvæðin úr Nessókn, og var þeirri talningu lokið kl. rösklega 11. Urslitin urðu þessi: Séra Jón Thorarensen í Hruna fékk flest atkvæði allra umsækj- enda, samtals 451, séra Halldór Kolbeins á Stað í Súgandafirði hlaut 159, Astráður Sigurstein- dórsson cand. theol. hlaut 147, Pétur Ingjaldsson cand. theol 111 atkvæöi, séra Ragnar Benedikts- son, áður að Stað á Reykjanesi, 59, séra Jón Skagan að Bergþórs- hvoli í Landeyjum 54, séra Áre- líus Níelsson að Stað á Reykja- nesi 43, séra Magnús Guðmunds- son í Olafsvik 27 og séra Gunnar Arnason á Æsustöðum í Langa- dal 12 atkvæði. Ogild atkvæöi voru 7, en 5 atkvæðaseðlar auðir. Þrátt fyrir þann atkvæðamun, er fram kom við kosninguna, hefir hún þó ekki orðið lögleg, því að nokkuð vantar á, að sá, er rnest fylgi hafði, hlyti helming greiddra atkvæða. Talning atkvæða í Hallgríms- sókn hófst upp úr hádeginu. arnir í báðum Isafj arðarsýslum, auk kaupstaðarins. Meginþorri þess fólks, er þar hefir fengið áfengisbækur, eru karlmenn. Konurnar aðeins um 100. Hjá bæjarfógetanum á Akur- eyri hefir bæjarbúum og Ey- firðingum verið afhentar 1300 áfengisbækur. Eftirsóknin mun vera um það bil að fjara út. í Vestmannaeyjum hafa um 700 rnanns fengið áfengisbækur. Er það mjög farið að tregðast, að fólk komi að sækja áfengis- bækur. Ber helzt við, að ein og ein kona komi. Skömmtunarfyrirkomulagið hefir meðal annars haft þau áhrif, að nú er mikið meira keypt af dýrum vínum heldur en áður, whiský, koníak, gin og romm. Áður var mestmegnis keypt brennivín. Þetta hefir það í för með sér, að sennilega er nú keypt áfengi fyrir hærri fjárupphæði'r heldur en áður en hömlurnar voru settar. Miðað við þann fjölda fólks, sem hefir útvegað sér áfengisbækur, væri það einnig hugsanlegt, að í Reykjavík yrði fleiri flöskur af áfengi keyptar heldur en áður var. En þar eð aldrei kemur til þess, að allir handhafar áfeng- isbóka kaupi allt það áfengi, sem þeir mega, þá fer því þó fjarri, að víst sé að sú verði út- komari. Þrátt fyrir mikil áfengis- kaup hefir þó skömmtunin orð- ið til gagns, að því leyti, að nú ber miklum mun minna á ölvun á götum úti í Reykjavík heldur en títt hefir verið'áður, en að sjálfsögðu á strangt lögreglu- eftirlit drjúgan þátt í því, að ráða bót á slíku. Einnig hefir að mestu leyti tekið fyrir ölvun hinna útlendu hermanna eftir að áfengiskaupin voru torveld- uð. Það er þó vafalaust, að leyni- sala með vín er rekin í bænum, (Framh. á 4. síðu) Aðalfundur Fram- sóknarfél. A.-Skaíta fellssýslu Helztu ályktanirnar Aðalfundur Framsóknarfélags A.-Skaftafellssýslu var hald- inn að Höfn í Hornafirði dag- ana 14.—16. nóv. síðastliðinn. Voru þar mættir fulltrúar frá ölluih deildum félagsins, 26 alls. Fundurinn gerði ýmsar sam- þykktir, bæði í landsmálum og innanhéraðsmálum. Helztu sam- þykktir hans í landsmálum voru þessar: 1. Fundurinn er þakklátur þingmönnum og ráðherrum flokksins, og öðrum þeim, sem ötullega hafa beitt sér fyrir af- urðasölulögum landbúnaðarins undanfarið, og óskar eindregið eftir að haldið verði fast á hlut landbúnaðarframleiðenda með tilliti til breyttra tíma og bréytts viðhorfs innan lands og utan. 2. Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir þeirri stefnu Fram- sóknarflokksins, sem gilt hefir undanfarið í gjaldeyris- og inn- flutningsmálum þjóðarinnar og óskar eindregið eftir, að svipuð ákvæði gildi framvegls, eftir því sem þörf breyttra tíma krefst. 3. Fundurinn skorar á þing- menn og ráðherra flokksins að beita sér fyrir því, að afnumin verði nú þegar lög þau, sem nú gilda og veitt hafa stórútgerð- inni undanþágu frá sköttum og tollum, þar sem þessi atvinnu- grein er nú sem fyrr, orðin arð- vænlegasti atvinnuvegur þjóð- arinnar. 4. Fundurinn ályktar, að þingi og stjórn beri nú þegar að vinna að því, að ísland taki í sínar hendur öll mál og fulla sjálfstjórn, þegar samningurinn við Dani er úr gildi genginn. 5. Fundurinn skorar á ráð- herra og þingmenn flokksins, að standa saman um að sam- ræmd verði laun opinberra starfsmanna og annarra ■ laun- þega í landinu. 6. Fundurinn skorar á ríkis- stjórnina að veita áfram styrki (Framh. á 4. slSu) Monroe-svæðill A víðavangi Uppdrátturinn hér að ofan birtist í ameríska blaðinu „The Christian Science Monitor" 31. október siðastliðinn undir fyrir- sögninni: „Area of Monroe Doc- trine“ (Svæðið, sem Monroe- kenningin nær til). Sú skýring var látin fylgja uppdrættinum, að hann væri gerður af Lawrence Martin, for- stöðumanni landabréfadeildar- innar í bókasafni Bandaríkja- þingsins í Washington. Martin hafði flutt^erindi í „The Ameri- can Geographical Society“ um vestri hnatthelminginn (hemi- sphere) og lýst þá þeirri skoðun sinni, að hann ætti að markast af svörtu línunum, sem sýndur er á uppdrættinum. Martin tók það fram, að hann talaði að- eins um þetta mál sem jarð- fræðingur, en ekki í embættis- nafni. — Eystri takmörk hnatthelm- ingsins, sagði Martin, er hádeg- isbaugurinn, sem liggur 20 gráð- ur vestur af Greenwich. Vestri takmörkin njóta alþjóðlegrar viðurkenningar. Jarðfræðingar láta vestri hnatthelminginn vera ögn minni en eystri hnatt- helminginn. Vestri takmörkin A KROSSQÖTXTM Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar. _— Úr Loðmundarfirði. hjón. — Frá ísafjarðardjúpi. Þrenn brúð- Fjárhagsáætlun HafnarfjarSar var rædd á fundi bæjarstjómarinnar nú í vikunni. í fjárhagsáætlun þessari er gert ráð fyrir stórauknum tekjum bæj- arins á næsta ári, meðal annars að útsvörin verði hækkuð úr 220 þúsund krónum í 880 þúsund krónur. Enda þótt þess sé vænzt, að heildarupphæð út- svaranna hækki svona gífurlega, er gert ráð fyrir því, að útsvarsstiginn haldizt hinn sami og áður, eða hækki að minnsta kosti ekki. Þessi fjárhagsáætl- un og tekjuaukning sú, sem þar er tal- in í vændum fyrir bæjarsjóðinn, er miðuð við það, að Alþingi afnemi skatt- frelsi stórútgerðarinnar, svo að útsvör verði lögð á gróða þann, er orðið hefir á togaraútgerðinni í ár. Jafnframt er einnig litið til þeirra auknu tekna, er mjög mörgum bæjarbúa hafa borizt í fang, og hafa munu áhrif til hækk- unar á heildarupphæð útsvaranna, þótt sami útsvarsstigi verði notaður og áður eða jafnvel lægri. Bæjarstjórnin ráð- gerir að verja hinum gífurlega tekju- auka, sem hún væntir sér á næsta ári, til að greiða gamlar skuldir bæjarins. Hyggst hún að greiða alls meira en 400 þúsund krónur, eða um þriðjung af öllum skuldum bæjarins. 300 þúsund krónur af þessu fé á að ganga til hafn- arsjóðsins, og er fyrirhugað því verði varið til að reisa hafnargarða næsta ár. Mega þessar horfur um fjárhags- afkomu Hafnarfjarðarbæjar á næstu missirum þykja allglæsilegar, sé fjár- hagsáætlun sú, sem bæjarstjórnin er að fjalla um, á réttum rökum reist. r t r Baldvin Trausti Stefánsson, bóndi að Sævarenda við Loðmundarfjörð, skrif- ar Tímanum með síðustu ferð Esju: Hér eystra var árferði á árinu, sem senn er liðið, í stórum dráttum eins og hér segir: Tíðarfar var mjög gott frá áramótum og framundir miðjan febrú- ar, þá gekk til sjóáttar og voru hag- leysur fram yfir miðjan aprílmánuð, en snjóa leysti fremur seint og seinkaði því öllum vorverkum. Á sauðburðar- tíma var veðurlag eindæma hagstætt og voru lambahöld yfirieitt góð, að öðru leyti en því, að tófa drap nokkur lömb. Var óvenju mikið um tófu í vor er leiö. Voru drepin 14 eða 15 dýr, bæöi við gren og utan grenja, að yrðlingum meðtöldum. — Grasspretta var með allra bezta móti, einkum á engjum, en óvenjulega kalt um heyskapartímann og oft úrfelli. Til dæmis var aðeins einn dagur í ágústmánuði, að ekkki kom skúr. Heyfengur mun víðast hafa verið í mesta lagi. Spretta í görðmn var mis- jöfn og sums staðar mun lakari en síð- astliðið ár. Fé mun hafa verið rýrara en í fyrra haust, þótt varla sé hægt að gera slíkan samanburð, því að slátrun hófst svo snemma sumars í ár, vegna hérveru setuliðsins útlenda. Hausttíðin hefir verið einstök að því leyti, hve lítið hefir snjóað, en frost hefir verið með meira móti. Yfirleitt hefir ekki snjóað í byggð, svo að teljandi sé, fyrr nú sein- ustu dagana. Þó er snjór ekki mikill, en það bleytti í hann og frysti síðan, svo að fremur er slæmt til haga. — Það má nýbreytni telja, að hreyfilbátur var fenginn í byggðina síðastliðið vor og hefir mest af þeim vörum, sem fluttar eru í sveitina eða úr, verið fluttar á honum. Það má til tíðinda teljast í litlu sveitarfélagi, þar sem aðeins búa 50 menn, að 22. nóvembermánaðar síðast- liðins voru þrenn hjón gefin saman í einu í Klyppsstaðarkirkju. Þau voru: Guðbjörg Sigurjónsdóttir frá Hvoli í Borgarfirði eystra og Baldur Einarsson á Klyppsstað, Ingibjörg Einarsdóttir frá Klyppstað og Eyjólfur Þórarins- son, bóndi á Dallandi í Húsavík eystri, og Aðalheiður Einarsdóttir frá Klypps- stað og Ottó Oddsson sjómaður á Seyð- isfirði. Voru þrjú þeirra, er giftust þennan dag, systkini. 30 manns var viðstatt giftingarathöfnina, bæði úr Loðmundarfirði og Húsavík. Séra Sveinn Víkingur gaf brúðhjónin saman. Jón H. Fjalldal, bóndi á Melgraseyri við ísafjarðardjúpi, ritar Tímaniun: Aidrei hefir færra af ungu fólki verið heima hér í sveit en í vetur. Piltamir fara í verstöðvarnar að leita eftir skips- rúmi, sem flest eru þó fullsetin, eða í vinnuleit til Reykjavíkur; þangað fara stúlkumar líka. eru jöfnuð þannig, að Grænland og ísland eru látin fylgja vestri helmingnum, en Azoreyj arnar og Cape Verde eyjarnar eru taldar til eystri helmingsins. Allir jarðfræðingar viðurkenna, að Grænland tilheyri vesturálf- unni, en norðausturhorn þess nær talsvert lengra austur en austasti tangi íslands. — „The Christian Science Moni- tor“ vekur athygli á því, að Vil- hjálmur Stefánsson landkönn- uður hafi komizt að þeirri sömu niðurstöðu og Martin, að ís- land tilheyri vesturálfunni, og vitnar í því samhandi í bók hans: „Iceland, the first Am- erican Republic“. Blaðið minn- ir ennfremur á það, að amer- íski ráðherrann, William E. Se- ward, sem átti mikinn þátt í því að Bandaríkin keyptu Al- aska af Rússum, hafi fyrir 70 árum síðan komizt að svipaðri niðurstöðu og hafi forsendur hans m. a. verið þær, „að ís- land væri 130 mílur austur af Grænlandi, en 850 milur vest ur af Noregi.“ — Það er eðlileg afleiðing af þessum ályktunum, segir „The Christian Science Monitor“, að ísland og alveg sérstaklega Grænland eru innan þeirra tak marka, sem Monroekenningin nær til. — Monroekenningin er í aðalat- riðum sú, að Bandaríkin telja sérhverja tilraun þjóða í öðrum heimsálfum til að leggja undir sig lönd á vestri hnatthelm ingnum hættulega friði og ör- yggi sínu og óvinveitta sér. Var þessu upphaflega lýst yfir 1823 af James Monroe, sem þá var forseti Bandaríkjanna. Stjórn- málamenn Bandaríkjanna hafa lagt mikla áherzlu á Monroe kenninguna í seinni tið, eink um síðan Evrópustyrj aldir hóf ust. Aðrar fréttir. SIGRAR GRIKKJA. Fátt vekur meiri eftirtekt um þessar mundir heldur en sigrar Grikkja. Stórþjóð ræðst á smá- þjóð og ætlar að svifta hana frelsi. Stórþjóðin gerir ráð fyr- ir því, að smáþjóðin gefist upp þegar í stað, eða að vörn henn- ar verði aðeins til málamynda. En smáþjóðin er ekki í þeim ham, að gefast upp. Hún metur frelsið, hið fulla frelsi meira en öll önnur gæði hér í heimi. Og með því að fórna öllu fyrir frelsið, tekst smáþjóðinni að sigra stórveldið, sem kom í landvinningahug. Sigur Grikkja í þessu stríði er einhver Dýðingarmesti atburður í sögu samtíðarinnar. Hann er sönnun iess, að hver sú þjóð, sem hefir fulla sjálfsvirðingu, og er sam- hent um að gæta frelsis og heiðurs, er sterk, jafnvel þó að hún sé fámenn. KANSLARI f HÁSKÓLA ÍSLANDS. Þriðja bindio af Komandi ár- um, eftir Jónas Jónsson, er að koma út þessa dagana, Ein af ritgerðunum er saga háskóla- byggingarinnar og um þann ekki óverulega þátt, sem Fram- sóknarflokkurinn hefir átt í því verki. Þar eru leidd rök að því, að háskólinn hafi ekki aðeins vantað hús síðan 1911, heldur hafi hann gersamlega vantar uppeldisumhyggju að því er snertir nemendur. Þar er lagt til, að fylgt sé eftir átakinu í byggingarmálunum með því að fá reyndan og stórhuga upp- eldisfræðing til að vera „kansl- ari“ háskólans. Er í bókinni bent álitlegan mann til þessa starfs. Kanslarinn myndi hafa með höndum fjárstjórn háskól- ans og forustu um þá starfsemi, sem lyti að því að gera nem- endur hrausta, reglusama og dugandi menn. FJÁRMÁL OG VERZLUN. Um mörg undanfarin ár hafa blöð Sjálfstæðisflokksins ráðizt á Framsóknarflokkinn fyrir að vilja gæta hófs um innflutn- inginn. Nú er minna deilt um þetta. Meginhluti þjóðarinnar veit, að Framsóknarflokkurinn hefir bjargað þjóðinni frá að sökkva í botnlausar eyðslu- skuldir. Þegar stríðið byrjaði var þjóðin skuldlítil á þessum vettvangi. Nú hefir svo að segja stöðvast allar húsabyggingar í landinu. Auk þess er ekki hægt að greiða af skuldum til Dan- merkur eða Þýzkalands. Við þetta safnast í bili innstæður í Englandi, þar sem meginhluti íslenzkrar framleiðslu er seld- ur. Framsóknarmenn vilja nota þessa innstæðu, auk þess sem með þarf til daglegra þarfa, til að borga ríkislán í Englandi, og til að koma þar upp gjaldeyris- sjóði, til að þurfa ekki strax eftir stríðið að koma til útlanda og biðja um viðskiptalán í byrj- un hvers árs. Brezki herinn hefir nú um kringt Bardia, eina aðalstöð ít alska hersins í Libyu. Bardia er um 20 km. frá landamærum Egiptalands. Brezku vélaher sveitirnar, sem lengst hafa far- ið inn í Libyu, eru komnar 50 km. frá landamærunum. ít. alskar hersveitir verjast enn í Bardia, enda eru þar ágæt vígi en meginhluti liðsins mun þó farinn þaðan og hafa hörfað til hafnarborgarinnar Tobruk, sem er 120 km. fyrir vestan Bardia Veðrátta hefir heldur tálmað sókn Breta undanfarna daga Bretar nefna það sem dæmi um yfirburði sína í lofti, að þeir segjast hafa eyðilagt 100 ítalsk- ar flugvélar fyrstu sjö daga sóknarinnar, en sjálfir ekki misst nema 10. Beaverbrook, sem er yfir stjórnandi brezku flugvélafram leiðslunnar, hefir nýlega haldið ræðu. Sagði hann m. a., að stjórninni væri kunnugt um, að Þjóðverjar undirbyggju innrás í Bretland af miklu kappi, eink- um legðu þeir mikla áherzlu á aukningu flugflotans. Mætti því fastlega búast við innrásar- tilraun fyrir vorið. Hann sagði, að flugvélaframleiðsla Breta færi stöðugt fram úr áætlun og ykist frá mánuði til mánaðar. Bretar hefðu af eigin ramleik miklu meira en bætt upp það flugvélatjón, sem þeir hefðu orðið fyrir, og auk þess væru svo flugvélarnar, sem þeir fengju frá Bandarík’unum. Eigi að síður þyrfti þó ei a að leggja mikla áherzlu á aukriingu flug- vélaframleiðslunnar, einkum framleiðslu orustuflugvéla, því að þeirra yrði mest not, þegar til innrásarinnar kæmi. (Framh. á 4. sUSu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.