Tíminn - 31.12.1940, Side 1

Tíminn - 31.12.1940, Side 1
\ RITSTJÓRI: < ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. ( ’ FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: < JÓNAS JÓNSSON. i i < ÚTGEFANDI: j FRAMSÓKNARFLOKKURINN. RITSTJ ÓRN ARSKRIFSTOFUR; ! EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. SÍMAR: 4373 og 2353. | AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: \ EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. \ Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. 24. árg. Reykjavík, þriðjndaginn 31. des. 1940 130. blað Víð áramótín 1940--’4lGenéiðásjónarhól Eitir Jónas Jónsson íormann Framsóknarflokksíns Eftir Skúla Guðmundsson Nokkur þýffingrarmikil afmæli. Framsóknasflokkurinn hefir haft ástæffu til að minnast á hinu liðna ári nokkurra merkra atburða í framfarasögu þjóðar- innar. í vor, sem leið, voru liðin 10 ár frá því að hin glæsilega þúsund ára hátíð Alþingis var haldin á Þingvöllum. Landsspítalinn, út- varpsstöðin, Skipaútgerð ríkis- ins, menntaskólinn á Akureyri og Síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði áttu líka tíu ára af- mæli á hinu liðna ári. Enginn atburður hér á landi hefir í tíð seinni kynslóða varpað meiri ljóma yfir land og þjóð heldur en Alþingishátíðin. Og hinar fjórar síðarnefndu stofnanir tákna hver um sig mikið átak í framfarabaráttu landsmanna. Fram að 1930 átti þjóðin engan almennan spítala og varð um verklega kennslu læknaefnanna að vera á bónbjörgun hjá út- lendri stofnun, sem bjó við fá- tækleg ytri skilyrði. Einstakir menn höfðu áður reynt að koma á stofn útvarpsstöð sem per- sónulegu gróðafyrirtæki. Það hafði algerlega misheppnazt. Framsóknarmenn beittu sér þá fyrir því, að ríkið efndi til mik- illar útvarpsstöðvar og keypti jafnframt inn öll tæki handa hlustendum. Með þessu skipu- lagi hefir tekizt að koma á út- varpsrekstri, sem ekkert heimili vill án vera, og tryggja notend- um betri og ódýrari tæki heldur en fást á almennum markaði í næstu löndum. Með löggjöfinni um menntaskólann á Akureyri var Hólaskóli endurreistur í höf- uðbæ Norðurlands. Mikill fjöldi dugandi en efnalítilla manna hefir síðan þá notið góðrar fræðslu og marghliða uppeldis- áhrifa á Akureyri. Með Skipa- útgerð ríkisins var strandferð- um og landhelgisgæzlu hér á landi komið í fast horf. Með „Esjunni" einni saman fara nú um 12 þúsund farþegar á ári undir þeim skilyrðum, sem auka almenna menningu 1 landinu. í stað þess að efnaminni stétt- ir landsins voru áður keyrðar skrans í lest, eins og eitt þjóð- skáldið komast að orði, er strandferðaskip ríkisins nú glæsilegur farkostur, og sú starfsemi hefir á liðna árinu verið rekin tekjuhallalaust. Á tímum heimsstyrjaldarinnar var 300 þúsund króna tekjuhalli á rekstri Sterlings í strandferðum, auk alls þess mismunar, sem var á líðan farþega. Um síldar- bræðslur ríkisins segja menn nú það eitt, að án þeirra hefði nú- tíma þjóðarbúskapur á íslandi stöðvazt, þegíar saltfisksmark- aðurinn tapaðist í Suðurlöndum. Framsóknarflokkurinn hafði um öll þessi málefni að mjög míklu leyti forustu við fram- iklvæmdirnar, oft gegn mikilli andstöðu annarra samþegna. Nú vill enginn missa þær stór- merkilegu nýungar, sem hér hefir verið minnzt á. Þær eru orðinn fastur þáttur í lífi þjóð- arinnar. Eftir tíu ár tekur öll þjóðin þátt 1 andlegum afmælis- fagnaði í sambandi við þá bjart- sýni og skapandi þrótt, sem kom fram við lausn allra þessara vandamála. Hiff liffna ár. Árið, sem leið, hefir að mörgu leyti verið ánægjulega viðburða- ríkt fyrir íslenzku þjóðina. Sum- artíðin var ákaflega erfið og ó- hagstæð fyrir sveitafólkið. Vorið fremúr kalt og úrfelli alveg ó- venjuleg, einkum á Suðurlandi. Heyskapartíð var óhagstæð í flestum sveitum, og hin nýbyrj- aða garðrækt, sem á að birgja þjóðina með nægilegum garð- mat, brást alveg tilfinnanlega, i sökum hins erfiða tíðarfars.! Varð að flytja inn erlendar kartöflur í haust og alltaf síðan. Veturinn hefir reynt að bæta fyrir erfiðleika sumarsins. Nú voru snjólaus jól um allt land, og mikinn hluta þessa vetrar hefir jörð verið snjólítil og stundum frostlaus 1 mörgum lágsveitum. Við sjóinn hefir afkoman ver- ið með öðrum hætti. Síldarafli varð óvenjumikill í sumar, og meira unnið úr síld í íslenzkum verksmiðjum heldur en nokkurn tíma fyrr. Markaður fyrir sildar- mjöl og síidarlýsi hefir verið mjög sæmilegur. Aftur á móti hefir enn ekki tekizt að fá fulla aðstöðu til að sélja saltsíld til Svíþjóðar, og liggur nú allmikið af þeirri vöru hér á landi, án þess að sýnilegar horfur séu um sölu á þeim birgðum í öðrum löndum. Vegna styrjaldarinnar hafa Englendingar haft mikla þörf fyrir fisk héðan frá landi, og má kalla að hver fleyta hafi verið á floti vegna þess markaðs. Fisksalan í Englandi og sala síldarafurða úr verksmiðjum landsmanna til Englands hefir gefið góðan arð. Hafa ýmsir menn, sem stunda útgerð, stór- um bætt hag sinn á hinu liðna ári. Mjög mörg af hinum skuld- ugustu fyi-irtækjum landsins eru nú annað hvort skuldlaus við íslenzka banka, eða eru að verða það. Allt öðru máli er að gegna um verðlag á landbúnaðarafurð- um. Englendingar hafa há- marksverð á innfluttu freðkjöti en ekki á nýjum fiski. Það er enn óséð, hvaða verð landbænd- ur fá fyrir afurðir sínar. Menn vona að það verði þolanlegt, en engin vissa er um þær niður- stöður. Um ull og gærur, sem ekki er unnt að senda til Norð- urlanda eins og í fyrra, er full- víst, að verðið í Bandaríkjunum verður mun lægra en það var í Evrópu 1939. Atvinna í bæjum og kaupstöð- um hefir víða og alveg sérstak- lega í Reykjavík aukizt stórlega vegna dvalarliðs Breta hér. Hafa þeir haft með höndum ýmis- konar framkvæmdir og tekið' fjölda manns i vinnu, og að öllu samtöldu borgað öllu meira kaup heldur en verkamenn eru vanir. Að öllu samtöldu hefir árið 1940 verið fremur hagstætt, að því er snertir fjárhagsafkomu manna, þó að hún sé vitaskuld mjög misjöfn. Einna erfiðust eru kjör láglaunafólks. Kaup þess hefir að vísu hækkað, en dýrtíðin í landinu hefir vaxið hröðum skrefum. Fjársýkin. Tvær pestir virðast hafa bor- izt hingað með karakúlhrútun- um þýzku. í fyrstu héldu menn að Niels Dungal læknir hefði ráð undir hverju rifi gegn þess- um vágesti. Lét hann allmikið yfir sér í þessu efni og urðu margir til að trúa leiðsögu hans í þessu efni, alveg sérstaklega af því að hann var mjög efldur með einskonar auglýsingagrein- um í sumum dagblöðum. En er til kom reyndist öll sú vitneskja, sem hann og aðrir þvílíkir menn réðu yfir, gersamlega haldlaus. Mæðiveikin hafði þá breiðzt út um vesturhluta landsins. — Bændastéttin sjálf tók nú málið í sínar hendur og reyndi að hefta útbreiðslu sýkinnar með girðingum og varðreglum. Aðalvarnarlínan móti mæði- veikinni er við Þjórsá og Héraðs- vötn að vestan. Á Austfjörðum er garnaveikin, sem virðist líka komin inn í landið með hinum þýzku hrút- um, mjög útbreidd í Múlasýslum og komin á Melrakkasléttu. — Virðist helzt tiltækilegt að stöðva framgang hennar við Jökulsá í Lóni og Jökulsá á Fjöllum. Að því er snertir mæðiveikina, virðist vera um tvenns konar úrræði að ræða. Annað hvort að treysta á það, að veikin hætti að vera stórkostlega banvæn, er hún gerist landlæg, og þegar nýr kindastofn vex upp í landinu af stofni, sem hefir lifað af veik- ina. En ef þetta gerist ekki, virðist engin leið opin, nema fjárskipti. Yrði þá að lóga fé af tilteknum veikindasvæðum og flytja þangað sauðfé úr heil- brigöum héruðum. Eitt er víst. Engin sú pest má koma í bú- stofn íslenzkra bænda, að dreif- býlið leggist í auðn og byggðin verði eingöngu á sjávarbakkan- um. Atburffirnir 10. apríl og 10 maí 1940. Atburðirnir í stórveldastyrj- öldinni úti i löndum hafa haft stórvægileg áhrif á frelsismál þjóðarinnar. Níunda apríl s. 1. réðust Þjóðverjar inn í Dan- mörku og hertóku landið. Dag- inn eftir lýsti Alþingi yfir einum rómi, að það tæki að svo stöddu í hendur íslenzku þjóðarinnar það vald yfir málefnum lands- ins, sem konungurinn í Dan- mörku og stjórn Dana hafa haft samkvæmt erfðavenjum og samningum. Alþingi fól þjóð- stjórninni allri að vera um stund handhafi konungsvaldsins, en valdi sérstaka menn til að vera erindreka hins sjálfstæða ís- lands í nokkrum þeim ríkjum, þar sem þjóðin hafði mest við- skipti og hægt var að hafa sam- band við sökum styrjaldarinnar. Ellefti apríl síðastliðinn var fyrsti dagur síðan Gamli sátt- máli var gerður á 13. öld, þegar íslenzka þýóðin naut fullkomins frelsis frá yfirráðum erlendra þjóða. Styrjöldin 1914—18 hafði borið nokkurt frelsi i fang ís- lendingum. Styrjöldin sem hófst 1939 byrjaði með að gefa þjóð- inni nokkuð af því frelsi, sem beztu menn þjóðarlnnar höfðu þráð svo lengi. Fyrir hundrað árum hafði Jónas Hallgrímsson sagt fyrir um þá tíð í skáldlegri framsýn: „Fagur er dalur og fyllist skógi og frjálsir menn, þegar aldir renna.“ Einum mánuði eftir þennan frelsisdag, kom hingað brezk flotadeild og setti allmikið her- lið hér í land. Bretar viður- kenndu sérstöðu landsins, sendu hingað sendiherra og tóku á móti sendifulltrúa frá íslandi í London. Sendiherrann gekk á fund ríkisstjórnarinnar og tilkynnti henni að Bretar myndu táka sér leyfi til að hafa hér her meðan yfirstandandi styrjöld stæði, en draga lið sitt allt héðan, þegar ófriðnum væri lokið. Sendiherr- ann kvað Breta cvkki myndu gera neina tilraun til að hafa áhrif á stjórnarskipun eða þjóð- málalif íslendinga. En þeir myndu taka sér vald yfir stöð- um á sjó og landi, sem hefðu hernaðarlega þýðingu. íslenzka ríkisstjórnin mótmælti þessari ráðabreytni Breta og lagði hins vegar áherzlu á það fyrirheit Bretastjórnar, að blanda sér ekki í íslenzk þjóðmál og hverfa héðan burt með hervald sitt eins og fram var tekið af sendimanni Englendinga. Mismunandi hertaka. Eins og vonlegt var, þótti mörgum íslendingum hið nýja þjóðfrelsi hafa verið ðerið (Framh. á 2. síðu) I. Senn er þetta ár á enda. Það hverfur, eins og öll hin fyrri, og kemur aldrei aftur. En það skilur eftir spor í lífi einstak- linga og þjóða. Minningarnar um höpp þess og tjón, ljós og skugga, gleði og sorgir, líf og dauða, vaka í hugum mann- anna. Áramótin eru reikningsskila- tími. Þá gerum við upp þá við- skiptareikninga, sem skatta- skýrslurnar byggjast á. En þá er líka ástæða til þess fyrir hvern einstakan mann og þjóð- ina í heild, að líta yfir lífs- reikninginn, virða fyrir sér at- burði liðna ársins og ástand líðandi stundar áður en haldið er áfram út í þokuna, sem iiggur yfir leiðum framtíðar- innar. II. Bændurnir hafa gengið að störfum sínum á þessu ári eins og venjulega, vetur, sumar, vor og haust. Árangurinn hefir orðið misjafnlega góður, nú eins og áður. Aöstaða bænd- anna til búrekstrar, er mjög misjöfn. Sumir hafa góðar jarðir og hægar, aðrir rýrar og erfiðar. Dugnaður bændanna og áhugi er líka mismunandi. En undanteknfngalítið vinna þeir mikið. í þeirra hópi eru margir afreksmenn. Og þrátt fyrir erfiða vinnu og fáar hvíldarstundir, eru þeir flestir glaðir og reifir. Sumarið síðastliðna var bændum fremur óhagstætt víð- ast á landinu. En tíðin hefir verið góð það sem af er vetr- inum. Þar hafa bændurnir fengið sumarauka. Enn er óvíst hvað bænd- urnir bera úr býtum fyrir störf- in á því ári, sem nú er að enda. Mikið af framleiðsluvörum landbúnaðarins liggur enn ó- selt i vöruskemmum hér á landi. Snurður hafa hlaupið á viðskiptaþræðina af völdum stríðsins. En þrátt fyrir óviss- una halda bændurnir áfram að gegna sínum störfum, fyrir sjálfa sig og þjóðina í heild. Þeim, sem vel vinna, sé þökk og virðing. „Bóndi er bústólpi •— bú er landstólpi — því skal hann virður vel.“ I III. Sjómenn og útgerðarmenn hafa haft óvenju miklar tekj- ur á þessu ári. Fiskverðið hefir verið hátt, síldveiðin mikil og verð á þeim síldarafurðum, sem tekizt hefir að selja, hærra en áður. Tekjurnar hafa komið í góðar þarfir. Bönkunum hefir tekizt að innheimta skuldir hjá einstökum útgerðarmönnum og útgerðarfélögum. íslenzkir sjómenn eru dug- legir. Þeir munu standa fylli- lega jafnfætis sjómönnum ann- ara landa um dugnað og áræði. En í félagsmálum eru fiski- mennirnir einkennilega óþrosk- aðir. Þeir hafa að vísu stofnað félög, í þeim tilgangi að bæta sín kjör. En þeir hafa talið sig þurfa að sækja kjarabæturnar í hendur annara manna. Sjó- mennirnir á togurunum og öðr- um stærri fiskiskipum eru yfir- leitt annara þjónar alla æfina. Vonandi verður sægörpunum það einhverntima ljóst, að þeir eiga ekki að hafa aðra yfirboð- ara en Drottinn á himnum. Þá losa þeir sig úr vinnumennsk- unni og gerast eigin húsbænd- ur. Þá verða þeir, sem annast afurðasöluna og reikningshald útgerðarinnar, samverkamenn sjómannanna en ekki hús- bændur. Sjómennirnir hætta þá að gera kaupgjaldskröfur á hendur öðrum, en skipta með sér arðinum af útgerðinni eftir reglum, er þeir sjálfir skapa. Margir útgerðarmennirnir eru dugandi menn, sem láta sér ant um þau íyrirtæki, er þeir stjórna. Sumum þeirra hefir tekizt að verjast áföllum á liðn- um árum, þrátt fyrir erfiðleik- ana. En í þeirri stétt eru líka til einstaklingar, sem hafa veitt forstöðu stórum útgerðarfyrir- tækjum, án þess að hafa þá kosti, sem slíkir forstöðumenn þurfa að hafa. Fyrirtæki þess- ara manna hafa tapað, ávallt þegar hægt var að tapa, en ekki grætt nema þegar árferð- ið var þannig, að ómögulegt var að komast hjá að græða. Sumir þessir menn hafa notað mikla fjármuni til persónulegr- ar eyðslu. Þeir hafa varið pen- ingum, sem þeir komust yfir, til að byggja stórar hallir yfir sig sjálfa og sitt skyldulið, en lát- ið skuldirnar i bönkunum, sem þeir áttu að borga, standa ó- hreyfðar. Það verður eitt af þýðingarmestu viðfangsefnum nýrra tíma, að koma í veg fyr- ir, að þeim fjármálarefum, sem þannig haga sér, í hvaða stétt eða stöðu, sem þeir eru, verði trúað fyrir sparifé landsmanna. Þeir verðskulda ekki að fá um- ráð almenningsf j ármuna eða mannaforráð í þjóðfélaginu. IV. Hér hefir verið getið þeirra stóru fyikinga, bænda og sjó- manna, sem sækja auðæfi í skaut náttúrunnar. Auk þeirra eru svo daglaunamenn og iðn- aðarmenn, sem einnig vinna líkamlega vinnu. Fleira þarf’ að vinna. Ríkið þarf embættismenn og ein- hverjir þurfa að annast kaup og sölu á vörum, í þeim stétt- um, sem gegna þessum störf- um, er „misjafn sauður í mörgu fé“ eins og víðar. Margir em- bættismennirnir eru góðir og samvizkusamir, og í hópi kaup- sýslumannanna eru líka marg- ir dugandi menn. En verzlunar- stéttin er of fjölmenn. Meiri hluti fólksins í kaupstöðunum hefir enn ekki komið auga á það, að hægt er að gera verzl- unina hagstæðari með því að minnka verzlunarkostnaðinn, og þess vegna heldur þetta fólk uppi óþarflega mörgum kaupmönnum og verzlunar- mönnum. Margir ungir menn eru þann- ið gerðir, að þeir vilja hliðra sér hjá líkamlegri vinnu. Þeirra fegursti draumur er atvinna við verzlun eða skrifstofustörf. En margir þeirra, sem vilja troða sér inn á það svið, eru lið- léttingar þar sem annars stað- ar. Þeir eru andlegir og líkam- legir silakeppir, sem fáu nenna og lítið vilja á sig leggja. Eina áhugamái þessara löðurmenna er að fá rólegt starf, sem krefst lítillar hugsunar og enn minni líkamlegrar áreynslu. Afköstin fara líka venjulega eftir áhug- anum. Margir þeirra geta tæp- lega lagt tvo við tvo öðru vísi en í vél. í skrifstofum stærri verzlunarfyrirtækja i höfuð- staðnum, og afgreiðslusölum bankanna, mætir aðkomu- mönnum margraddaður söng- ur samlagningarvéla, margföld- unarvéla og ritvéla, sem glamra þar á öllum borðum. Skrif- stofuvélar eru að vísu gagnleg- ar, eins og margar aðrar vélar. En þegar vélamenningin er komin á það stig, að enginn getur margfaldað tvo með tveimur öðruvísi en í vél, þá er langt gengið. Þá er mannsand- inn orðinn visinn. Eigi getur ömurlegri sjón en ungan og þreklega vaxinn mann, sem situr við skrifstofu- borð og potar með einum fingri á ritvél. Þetta fyrirbrigði sézt í öðruhverju húsi við aðalgöt- urnar í Reykjavík. f námunda við þessa menn eru svo aðrir, einni tröppu neð- ar. Það eru þeir, sem ekki einu sinni nenna að hanga á skrif- stofum. Það eru allskonar „rónar“, sem lifa á „slætti“ í smáum eða stórum stil. V. Viðfangsefni kvenfólksins eru margskonar _ og lífskjör þess misjöfn, eins og karlmanna. Sveitakonurnar afkasta flestar miklu verki. Þær munu yfirleitt* hafa lengri vinnudaga en aðr- ir landsmenn og margar þeirra verða þreyttar á unga aldri, vegna mikillar áreynslu. Marg- ar konur verkamanna og sjó- manna í kaupstöðum hafa lika mikið að gera. En í hópi þess- ara sístarfandi kvenna í sveit- um, kauptúnum og kaupstöð- um, er þó að leita þeirra ham- ingjusömustu. Þar eru flestar þær konur, sem léttast og hjartanlegast geta hlegið, þrátt fyrir allt stritið. En svo eru líka til vansælar konur. Þær, sem ógæfan hefir verst leikið, eru sumar „fínar“ frúr í kaupstöðunum, sem hafa verið dæmdar til iðjuleysis. Sumir menn eru svo óvitrir, að þeir halda, að þeir geti gert konur sínar að börnum ham- ingjunnar með því að „bera þær á höndum sér“ í bókstaf- legum skilningi. Ef slíkir menn hafa peningaráð, byggja þeir óhóflega stór íbúðarhús með allskonar nýtízku þægindum, safna þar saman miklu af ó- börfum húsgögnum og smala síðan þangað inn þjónustu- stúlkum víðsvegar að úr sveit- um og sjóþorpum. Vinnukonur eru látnar elda matinn, gera í- búðina hreina og gæta barn- anna, ef þau eru einhver. Hús- móðirin sjálf þarf ekkert og á ekkert að gera. Margar vesalings frúrnar, sem fyrir þessu verða, geta ekki staðizt öll „vélabrögðin". Þær leita gleðinnar í skemmtunum (Framh. á 4. siðu) Jón ívarsson fimmtugur Á morgun verður Jón ívarsson kaupfélagsstjóri og alþingis- maður 50 ára. Hann var fæddur á nýársdag 1891 að Snældu- beinsstöðum í Reykholtsdal, sonur hjónanna, er þar bjuggu þá, Rósu Sigurðardóttur og ívars Sigurðssonar. Jón missti föður sinn ungur. Móðir hans hélt áfram búskap á jörðinni með 6 börn sín, en lítil efni. Jón var (Framh. á 4. síðu)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.