Tíminn - 09.01.1941, Page 4
12
TÍMITVIV, fimmtwdaginn 9. jamiar 1941
3. blað
Kaldar kveðjur
(Framh. af 1. síSu.)
er eftir J. M. skáld, sem íburð-
armest kvað einu sinni til
Vestur-íslendinga. Sr. Jakob
hefir einmitt í allmörg undan-
farin ár starfað meðal íslend-
inga í Vesturheimi og notið þar
vinsælda og virðingar. Þegar
hann kemur aftur til ættlands-
ins, þá eru þetta kveðjurnar,
sem J. M. o. fl. velja honum og
þeim, sem vilja greiða götu
hans, hér heima. Þó að J. M. og
aðrir, er skammast yfir veit-
ingu sr. Jakobs hafi borið hon-
um sjálfum persónulega vel
söguna, þá heggur það nærri
honum og Vestur-íslendingum
að amast mikið við að hann fái
prestsstarfið hér, og þar með
tækifæri til þess að vinna á
ættjörðinni og m. a. þá að auk-
inni vináttu og þekkingu milli
frændanna beggja megin hafs-
ins.
Þetta tal J. M. og annara um
lýðræðisbrot, er alveg út í loft-
ið. Sr. Jón og sr. Jakob fengu
aðeins hvor fyrir sig dálítið
minnihluta brot atkvæða þeirra,
er rétt höfðu til þess að velja
prest i Hallgrímssókn. Jón að-
eins örlítið stærra brot heldur
en Jakob. En hvaða líkur, hvað
þá sannanir, hefir J. M., Mbl.,
Vísir og öll sú hersing, fyrir því
að sr. Jón Auðuns hefði fengið
fleiri atkv. en Jakob, Sigurjón
eða Þorsteinn Lúther, hefði
verið kosið á milli aðeins
tveggja? Það álíta a. m. k. mjög
margir, að Jón hefði þá orðið
lægri heldur en hver hinna
þriggja. Og það er nú engin
frágangssök fyrir J. M. og aðra
aðdáendur Jóns Auðuns, að
skreppa einstaka sinnum í
næsta þorp til þess að hlusta á
hann eða fá hann til Reykja-
víkur, til þess að lesa yfir sér.
En það væri erfiðara að ná til
sr. Jakobs, hefði J. M. og öðrum
slíkum tekizt að hrekja hann
til Vesturheims, eins og virðist
hafa verið ósk þeirra, eftir
þeirra köldu kveðjum að dæma.
Annars er það dálítið spaugi-
legur hugsunarháttur, að vilja
hrekja sem flesta ágæta menn
í burtu af ættlandinu og síðan
að syngja þeim lof og dýrð í
fjarlægðinni, fyrir að þeir reyn-
ast þar þeir sömu menn, sem
þeim var varnað að sýna á fóst-
urjörðinni, að þeir væru. Og
,,vinarþelið“ til Vestur-íslend-
inga og þeirra, er vilja bera
bróðurorð milli frændanna
beggja megin Atlanzála, virðist
koma fram í ónotalegri nekt í
viðtökunum, sem sr. Jakob
verður fyrir af ýmsum hér
heima.
Vestur-fslendingur.
Aukið landnám
(Framh. af 3. síðu)
lýst. Framkvæmdir ættu svo að
Taefjast á næsta ári. Myndar-
legt átak í þessu stórmáli
myndi áreiðanlega skapa merki-
leg tímamót í sögu þjóðarinn-
ar.
tJR BÆNUM
Framsóknarfélögin í Reykjavík
halda fund annað kvöld í kaupþings-
salnum. Verða þar teknir til fram-
haldsumræðna mál þau, er ekki vannst
tími til að ljúka á tveim síðustu fund-
um, sjálfstæðismálið og aðstaða Fram-
sóknarmanna í Reykjavík. Á fyrri
fundum urðu mjög fjörugar umræður
um þessi mál og töluðu 10 ræðumenn
á hvorum fundi. Má erm búast við
miklum umræðum og eru menn hvattir
til að fjölsækja fundinn. Jónas Jóns-
son verður frummælandi um fyrra
málið.
Faust-sýning Stúdentafélagsins
Faust-leikur Stúdentafélags Reykja-
víkur var sýndur fyrir fullu húsi áhorf-
enda á sunnudagskvöldið. Var þetta
síðasta sýningin, því að félagið á þess
ekki kost að fá hátíðasal háskólans,
þar sem útbúnaði til þessara sýninga
var komið fyrir, til afnota oftar um
sinn. Er það miður farið, að eigi skuli
vera hægt að sýna leikinn oftar en
gert var, því að áreiðanlegt er, að mjög
marga hefir fýst að sjá hann, þá er
ekki áttu þess kost að njóta þeirra
fjögurra sýninga er fram fóru.
Aðrar fréttfr.
(Framh. af 1. síðu.)
ann, sem fór á fund Ribbentrop
til Vínarborgar, er nú kominn
heimleiðis. Heimsblöðin ræða
mikið um þetta ferðalag. Sum
telja, að Þjóðverjar fyrirhugi
innrás í Búlgaríu. Önnur telja,
að þeir muni fresta frekari að-
gerðum þar til vorar. Einnig er
sagt, að þeir muni tæplega
senda þangað meira lið, ef þeir
ætli að gera innrás í Bretland.
Þjóffverjar munu bráðlega
láta víkja Stauning og Hedtoft-
Hansen, aðalforingjum jafnað-
armanna, úr dönsku stjórninni,
segir i fregn frá fréttaritara
„Times“ í Stokkhólmi. Þessir
menn eru taldir hafa staðið
fastast gegn kröfum Þjóðverja
um, að Danmörk yrði þeim
meira háð. Hafa Þjóðverjar í
hyggju, að endurskipuleggj a
stjórnina þannig, að hún láti í
öllu að óskum þeirra.
Seinustu þrjár vikur desem-
ber var skipatjón Breta langt
undir meðaltjóni ársins 1940.
Þykir þetta benda til, að Bret-
ar séu að sigrast á kafbáta-
hættunni.
Ronald Fangen, eitt þekkt-
asta skáld Norðmanna, hefir
verið tekinn fastur af Quisling-
stjórninni fyrir að hafa látið í
ijós vanþóknun á stjórnarfar-
inu. í sænskum blöðum hefir
fangelsun Fangens hlotið harða
dóma.
Raden-Powell, stofnandi
skátareglunnar, er nýlega lát-
inn.
í Vinarborg hefir orðið vart
vaxandi óánægju gegn Þjóð-
verjum. Hefir almenningur m.
a. látið í ljós andúð sína, þegar
leiðtogar Þýzkalands hafa ver-
ið viðstaddir hátíðleg tækifæri.
M.a. hafi Baldur von Schirach,
sem er umdæmisstjóri í Aust-
urríki, og kona Görings, orðiö
fyrir slíkum móðgunum.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
Skipun
prestsembættaima
(Framh. af 1. siðu.)
ast undantekningarlítið allar
embættaveitingar og hefir
frjálsar hendur að öðru leyti
en því, að henni ber vitanlega
að reyna að velja sem hæfasta
menn, er hafa tilskilda mennt-
un.
Þannig er hin lýðræðislega
framkvæmd embættaveitinga
hjá nær öllum lýðræðisþjóðum.
Áhrif almennings á embætta-
veitingar eru fólgin í því, að
hann getur ráðið því, hverjir
fara með ríkisvaldið. Það hefir
yfirleitt ekki þótt heppilegt fyr-
ir lýðræðið að kjósendur hefðu
frekari afskipti af embættaveit-
ingum. Bæði hafa þeir flestir
verri aðstöðu til að dæma um
umsækjendurna en hlutaðeig-
andi ráðherra og auk þess geta
slíkar kosningar skapað hættu-
legar deilur og viðsjár, einkum
í fámennu þjóðfélagi.
Prestskosningalögin eru eig-
inlega eina undantekningin frá
framangreindri reglu. Þau gefa
söfnuði aðstöðu til að velja sér
prest, ef vilji hans er nægjan-
lega eindreginn, og getur ríkis-
valdið þá ekki breytt þeirri á-
kvörðun,
Þegar löggjafinn setti prests-
kosningalögin áleit hann samt
rétt, að takmarka vald safn-
aðarins í þessum efnum, Þess
vegna setti hann þau ákvæði,
að til þess að kosning væri lög-
leg, þyrfti helmingur kjósenda
að taka þátt í kosningu og einn
umsækjandinn að hljóta helm-
ing greiddra atkvæða. Ef þess-
um ákvæðum er ekki fullnægt
missir söfnuðurinn vaid til að
ráða prestinn og fellur það þá
til ríkisstjórnarinnar.
Þessi ákvæði í prestskosn-
ingalögunum eru auðsjáanlega
sett til þess, að lítill minnihluti
kjósendanna ráffi ekki vali
prestanna. Löggjafinn telur þá
betur farið, að valdið falli til
ríkisstjórnarinnar. Þessi fyrir-
mæli hans geta ekki haft ann-
an tilgang.
Þegar málið er komið á þenn-
an rekspöl verða að gilda sömu
reglur um veitingu prestsem-
bætta og annarra embætta, er
heyra undir hina föstu lýð-
ræðisvenju, að ríkisstjórnin
ráðstafi embættum í umboði
þjóðarinnar. Þetta ætti að vera
öllum augljóst, þar sem prest-
kosningalögin beinlínis taka
það fram, að lítill minnihluti
kjósenda bindi ekki hendur
ríkisstjórnarinnar. Sú skylda
hvílir þá á ríkisstjórninni, að
velja menn í þessi embætti
eins og önnur embætti, eftir
þeim reglum, sem hún telur
heppilegastar. Þaff er hin eina
kvöð, sem lýffræðiff leggur á
herðar veitingavaldinu í slík-
um tilfellum.
Veitingin í Hallgrímssókn.
Samkvæmt framansögðu, er
það því ljóst, að lýðræðisregl-
an, sem gildir í þessum efnum,
lagði ekki aðra kvöð á kirkju-
málaráðherrann, þegar hann
186 Robert C. Olíver:
úr því á venjulegan hátt. Ef til vill er
nú kominn tími til að segja stúlkukind-
unum sannleikann.
Mody stóð á fætur.
— Álíturðu það?
— Þú skalt þó bíða þangað til það er
alveg nauðsynlegt. Bezt væri að draga
það, þangað til ég kem aftur.
Cabera yfirgaf nú gistihúsið, til þess
að ræða málið við „foringjann", þýð-
ingarmesta og sterkasta lið „Keðj-
unnar.“ Hann hraðaði sér eftir göt-
unni, sem lá út að fögru skemmtigarð'a-
hverfi, þar sem glæsileg hvít hús, eins
konar smáhallir, stóðu næstum huldar
í pálmunum.
Cabera opnaði eitt garðhliðið og til-
kynnti komu sína við aðaldyrnar.
Honum var samstundis hleypt inn, og
fylgt inn í skrautlegan viðhafnarsal í
arabiskum stíl. Alls staðar voru dýr-
indis teppi, mjúkir legubekkir, útskorin
húsgögn, greypt fágætum steinum —
allt bar þess greinilegan vott, að hér
bjó auðugur maður, sem verið hafði
langdvölum erlendis, en var nú kominn
heim með hið aflaða fé, til þess að
njóta þess í ró og friði.
Cabera gekk út að einum hinna háu
glugga á salnum og naut útsýnisins út
á blátt Miðj axðarhafið, meðan hann
beið eftir „foringjanum.“
Æfintfjri blaðamannsíns 187
Eftir skamma stund kom hann —
maðurinn, sem enginn mátti nefna með
nafni. Auðæfi hans voru orðin efni
margra tröllasagná. En enginn vissi, að
þessi samvizkulausi verzlunarmaður
græddi fé sitt fyrst og fremst á lifandi
vöru. — Grabenhorst, sem hafði verið
nógu slyngur og samvizkulaus til að
afla sér auðæfa eftir hinum svívirðileg-
ustu leiðum og með hinum djöfullegustu
brögðum, — Grabenhorst, sem hafði á
að skipa heilum her glæpamanna,
keðju af samstarfsmönnum, sem unnu
öruggt og ákveðið eins og gangverk í
úri.
Hverrar þjóðar var Grabenhorst?
Vissi hann það sjálfur? Hraust, bogið
nefið og þykkar, rauðar varirnar, bentu
á að hann væri Austurlandamaður —
en nafnið var evrópiskt. Þegar hann
fyrst mundi eftir sér, hafði hann átt
heima í fátækrahverfi í Galiziu, þar sem
hann lék sér á götunni innan um
hunda, svín og óhrein börn — öll hans
æskuár höfðu liðið í sóðaskap, sulti og
umkomuleysi.
Loks tók hann þá ákvörðun að rífa
sig upp úr þessu svaði, fátækt og eymd,
— berjast af öllum kröftuni — komast
inn í heim munaðarins, eignast gull,
gimsteina, verða ríkur — hvað það
kostaði skipti engu. Og nú var hann
veitti prestsembættin í Reykja-
vík en að velja þá menn, sem
hann taldi heppilegasta fyrir
kirkjuna.
Þaff hefffi veriff beint brot
gegn þessari aðalskyldu, sem
lýffræffið leggur á herffar veit-
ingavaldinu, ef aff það hefffi
einskorað sig viff hinar ólög-
mætu atkvæffatölur, en ekkert
litiff á hæfni umsækjendanna
og þarfir kírkjunnar.
Það hefði jafnframt veriff
beint brot á prestskosninga-
lögunum, ef ráffherrann hefði
farið einhliffa eftir atkvæffatöl-
unum, þar sem lögin leggja
hömlur á, aff lítill minnihluti
kjósenda geti ráffið úrslitum.
Báða þessa menn, sem um er
deilt, vantaði talsvert mikið til
að ná lögmætri kosningu. Mun-
urinn milli þeirra nam um 3%
af kjósendum á kjörskrá eða
um 230 atkv. af 6400 á kjörskrá.
Það kom því ekki til mála
að láta hann einan ráða úrslit-
um og það því frekar, sem vit-
að var, að mikið af fylgi sr. Jóns
var fengið með pólitískum á-
róðri en byggðist ekki á kirkju-
legum áhuga. Ennfremur var
vitað, að reynt var að vinna
gegn séra Jakobi vegna þess, að
hann var bróðir viðskiptamála-
ráðherra.
Kirkjumálaráðherra gat ekki
og mátti ekki stjórnast af öðru
í þessu máli en því, sem hann
áleit að væri kirkjunni fyrir
beztu. Það eitt réði líka ákvörð-
un hans.
í skrifum íhaldsblaðanna er
það líka viðurkennt, að séra
Jakob sé mjög vel hæfur mað-
ur. Það er ekki reynt að deila
á veitinguna með þeim rökum,
að hæfari manni hafi verið
hafnað, en það eitt gæti gefið
réttlætanlegt tilefni til ádeilna
eins og málin standa.
Til þess ber líka að taka til-
lit, að sr. Jakob lætur af starfi í
annarri heimsálfu og kemur
heim til að ganga í þjónustu
íslenzku kirkjunnar. Er vitað
að biskup var þessa mjög hvetj-
andi og fyrir atbeina hans var
séra Jakobi heitið því, sam-
kvæmt eigin ósk, er hann hik-
aði við heimíörina, að hann
gæti fengið setningu í eitt ár
í eitthvert af hinum nýju
prestaköllum Reykjavíkur, ef
hann sjálfur áliti það æskilegt,
að athuguðu máli við heim-
komuna. Þetta taldi séra Jakob
ekki rétt að notfæra sér, þegar
til kom, þar sem það hefði gef-
ið sérstakt tilefni til að halda
því fram, er til kosninga kom,
að honum hefði verið veitt betri
aðstaða en öðrum umsækjend-
um. Hins vegar sýnir þetta
glöggt hvert álit kirkjustjórn-
in hefir haft á starfhæfni séra
Jakobs.
Þá ber að taka tillit til þess,
að prestarnir í Reykjavík þurfa
iðulega að prédika í útvarp.
Loks er svo þess að gæta, að
sr. Jakob. hefir starfað sex ár í
þjónustu þjóðkirkjunnar og
önnur sex ár í þjónustu ís-
lenzku kirkjunnar í Kanada.
Hins vegar hefir Jón Auðuns
aldrei verið í þjónustu þjóð-
kirkjunnar.
Fram hjá öllum þessum stað-
reyndum er gengið 1 ihalds-
blöðunum.
Bróffir Eysteins.
Árni frá Múla reynir að læða
inn þeirri dylgju í Vísisgrein
sinni, að sr. Jakob hafi hlotið
skipunina vegna þess að hann
sé bróðir Eysteins viðskipta-
málaráðherra. Með sömu rök-
semdum mætti segja, að Thor
Thors hafi verið skipaður
sendimaður í Ameitíku vegna
þess að hann var bróðir Ólafs
atvinnumálaráðherra. Ef Árni
óskar eftir umræðum á slíkum
grundvelli mun ekki verða skor-
ast undan því.
Verkföllin
(Framh. af 1. síðu.)
kauphækkun, auk fullrar dýr-
tíðar og nokkurra nýrra frið-
inda.
Bifreiðavirkjar hafa einnig
gert kaupsamninga og verða þeir
að aðnjótandi fullrar dýrtíðar-
uppbótar og bættra kjara aö
öðru leyti.
Togarasjómenn hófu verkfall
klukkan 12 í fyrrinótt og hafa
enn engar sættir tekizt.
Verkfall verksmiðjufólks stend-
ur enn við hið sama.
fc aÁMLA BÍÓ*
Juarez
Söguleg stórmynd frá
Warner Bros, er sýnir
mikilfenglega þætti úr
æfisögu Benito Juarez,
frelsishetju Mexico.
Aðalhlutverkin leika:
PAUL MUNI
og
BETTE DAVIS
Sýnd klukkan 6.30 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
“***-*—~ NÝJA BÍÓ
KOMDU,
EF ÞÚ ÞORIR
(STAND UP AND FIGHT)
Amerísk stórmynd, tekin
af Metro Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
WALLACE BEERY
og
ROBERT TAYLOR.
Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan
14 ára.
Innilegar þakkir fyrir auösýnda vináttu á |
| fimtugsafmœli mínu 1. janúar. \\
| Jón ívarsson. ||
tfflttttffltttttttttttfflttffltttttfflttttttttttttfflttfflttttttttttttttfflttttttfflttttttfflttttttttm:
Framsóknaríélögín í R.vík
0
SAMEIGINLEGUR FtNDUR
í Kaupþingssalnum annað kvöld (föstudag) kl. 8.30.
Til framhaldsumræðu verða mál þau, er frestað var á tveim
síðustu fundum:
1. Sjálfstæðismáliff og
2. Affstaffa Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Fjölmennið stundvíslega.
STJÓRNIR FÉLAGANNA.
i: Enda þótt
menn greini á um gildi og tilverurétt einstakra greina J J
i> hins innlenda iðnaðar, hljóta allir að vera á einu máli ((
* * um aff sú iff justarfsemi, sem notar innlend hráefni til *1
(( framleiffslu sinnar, sé ÞJÓÐÞRIFA FYRIRTÆKI. < >
H <>
u Verksmiðjur vorar á Akureyri
J| Gefjtm og Iðmm, \\
eru einna stærsta skrefið, sem stigið hefir verið í þá J |
(> • átt, að gera framleiðsluvörur landsmanna nothæfar < i
* * fyrir almenning,
;; Geíjun ö
H O
(, vinnur úr ull f jölmargar tegundir af bandi og dúkum < <
<> til fata á karla, konur og börn og starfrækir sauma- * *
(( stofu á Akureyri og í Reykjavik. ,,,
<» < b
!! Iðunn <C
11 er skinnaverksmiðja. Hún framleiðir úr húðum, skinn-
O
, ( um og gærum margskonar leðurvörur, s. s. leður til (»
Ískógerðar, fataskinn, hanskaskinn, töskuskinn, loð- <1
sútaðar gærur o. m. fl. | \
Starfrækir fjölbreytta skógerff og hanskagerff. *1
!! f Reykjavík hafa verksmíðjurn- ;;
;; ar verzlun og saumastofu við ;;
Aðalstræti.
<< <<
O < f
I °
Z Samband ísl. samvinnufélaga.!!:
Fundarboð.
Aðalfundur Flóaáveitufélagsins verður haldinn
að Tryggvaskála, laugardaginn 1. febrúar n. k., og
hefst kl. 1 e. h. Dagskrá samkvæmt félagslögunum..
Ftóaáveitustjórnín.
Berklavarnarstöð Líknar
er flutt í Kirkjustræti 12 (áðyr Rannsóknarstofa Hásk.ólans).
Stöðin verður hér eftir opin á eftirgreindum tímum:
Fyrir fullorffna:
Þriffjudaga
Miðvikudaga
Föstudaga
Fyrir börn:
Mánudaga
1 Fimmtudaga
kl. 1%—3
kl. iy2—3
kl. 5—6
kl. 10—11 f. h.
kl. 1— 2 e. h.
Þess er fastlega vænst, að börn komi AÐEINS til rann-
sóknar á hinum tilgreindu barnatímum.