Tíminn - 11.02.1941, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.02.1941, Blaðsíða 1
25. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 11. febr. 1941 Verðuppbætur á útíluttar landbúnaðaraíurðir Tillaga formaims Búnaðarfélags Islauds og hiinaðarmálastjóra. 17. blað Mynd þessi er frá flugskóla í Bretlandi. Flugmannaefnin ganga fylktu liði fram hjá nokkrum œfingaflugvélum. Annars eru flugmenn brezka lofthersins aöallega œtfíir í samveldislöndunum, einkum í Kanada. Um síöastliöna helgi komu til Bretlands nokkrar sveitir nýœfðra flugmanna frá Kanada. Eru í þeim menn frá öllum löndum Bretaveldls. Koma þessarar flugsveita hefir vakiö mikinn fögnuö í Bretlandi, því að Bretar búast nú daglega viö stórauknum lofthernaöi Þjóöverja. Bretar munu hrinda innrás artilraun Þjóðverja Úr ræðu Churchill forsætisráðherra Bjarni Ásgeirsson, formað- ur Búnaðarfélags íslands, og Steingrímur Steinþórs- son hafa lagt fram á bún- aðarþingi tillögu um verð- uppbætur á útfluttar land- búnaðarafurðir. Tillaga þessi er svohljóðandi: „Búnaðarþingið ályktar að skora á ríkisstjórnina, að gera nú þegar ráðstafanir til þess að greiddar verði verðuppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir. Verðuppbætur skulu greiddar jafnóðum og vörurnar eru fluttar úr landi og séu þær ekki lægri en svo, að neðangreint verð fáist fyrir eftirtaldar vör- ur f. o. b. Frosið dilkakjöt: Að verð á því verði ekki lægra en fyr- ir kjöt á innlendum mark- aði og sé þó verðjöfnunar- gjaldið endurgreitt. Gærur: Kr. 4,00 pr. kg. Garnir hreinsaðar: Kr. 2,00 pr. stk. Ull I. fl.: Kr. 6,50 pr. kg. Verð á öðrum ullarflokkum til- svarandi.“ Eftirfarandi greinargerð fylg- ir tillögunni: „Horfur fyrir landbúnaðinn eru nú ótryggar og ískyggilegar úr hófi fram. Fyrirsj áanlegt er,að kaupgjald við landbúnaðarvinnu hækkar stórlega á þessu ári. Jafnvel má búast við.að alls ekki verði unnt að fá verkafólk til landbúnaðar- starfa fyrir það kaup, sem bænd- ur geta greitt. Þetta eitt, ásamt fleiru ógnar landbúnaðarfram- leiðslunni nú. En fleira má nefna, sem veld- ur áhyggjum. Mikið af landbún- aðarafurðum síðasta árs liggja óseldar enn, þar sem styrjöldin hefir lokað þeim mörkuðum, sem áður voru þeim opnir. Hægt hefði verið að selja ýmsar landbúnað- arvörur, svo sem ull og gærur háu verði, ef opin væri siglinga- leið til þeirra landa, sem vörur þessar hafa verið seldar til að undanförmr. Hvaða verð endan- lega fæst fyrir landbúnaðarvör- ur síðasta árs er öllum hulið enn. Þessi óvissa um verzlunarafkomu landbúnaðarins síðastliðið ár er bændum til hins mesta tjóns. Hörmulegt bifreiðarslys Hörmulegt bifreiðarslys vildi ■ til á Hellisheiðarvegi, skammt frá Baldurshaga, á sunnudag- inn var. Voru piltar úr Svifflug- félaginu að koma frá æfingum á Sandskeiðinu. Voru þeir á vörubifreið, og stóðu sex þeirra á palli. Ofan við Baldurshaga mættu piltarnir enskri herflutninga- bifreið og ætlaði bílstjórinn að víkja fyrir henni út á vinstri vegarbrún. Lenti hjólið í holu, er var í veginum, og brotnaði við það fjöður, en bifreiðar- stjórinn missti vald á bifreið- inni og kastaðist hún út af veg- inum, sem þarna er rösklega einn metri á hæð. Bifreiðin valt þó ekki um, heldur rann áfram og komst upp á veginn aftur, áður en hún varð stöðvuð. Fimm piltanna, sem á pallin- um voru, köstuðust af. Hlutu sumir þeirra mikil meiðsli, og dó einn þeirra, Guðmundur Ei- ríksson, Hofsvallagötu 19, í Landsspítalanum um kvöldið. Magnús Guðbrandsson, Ás- (Framh. á 4. siöu.) Það er ekki glæsilegt fyrir bænd- ur að undirbyggja rekstur þessa árs og vera í svo mikilli óvissu um það, hvaða verð endanlega fæst fyrir helztu útflutningsvör- ur þeirra frá fyrra ári. Verð á útfluttum sjávarafurð- um hefir verið mjög hátt s. 1. ár og á sumum vörum, t. d. ís- fiski, geysi hátt. Óvissa sú, sem enn er um verðlag á útflutnings- vörum landbúnaðarins, veldur vonleysi og ótta meðal bænda og þó enn frekar þegar þeir sjá, hve aðrir atvinnuvegir bera stóran hlut frá borði. Almennt er búizt við að ríkis- stjórnin hafi umráð yfir ein- hverri fjárhæð, sem verja megi til þess að verðbæta þær útflutn- ingsvörur, sem harðast hafa orð- ið úti, vegna markaðstapa af völdum styrjaldarinnar. Ekki leikur það á tveim tung- um, að fyrst og fremst eru það landbúnaðarafurðir, sem þörf er að verðbæta, sumpart vegna þess að þar hafa markaðstöp af völd- um styrjaldarinnar orðið til- finnanlegust og sumpart til þess að jafna metin örlítið milli land- búnaðar og sjávarútvegs um verðhlutföll á afurðum þessara höfuðatvinnuvega þjóðarinnar. Við, sem berum fram þessa til- lögu, lítum svo á, að Búnaðar- þing geti ekki lokið störfum, án þess að taka þetta mál til með- ferðar. Þess vegna berum við f ram þingsályktunartillögu þessa, þar sem skorað er á ríkisstjórn- ina að hraða sem mest afgreiðslu þessa máls. Við teljum, að verðið megi ekki vera lægra en farið er fram á í tillögu þessari, á þeim vörutegundum, sem þar eru nefndar, svo að afkoma þeirra bænda megi teljast sæmileg. Að sjálfsögðu hefði mátt nefna fleiri útflutningsvörur, en hér er gert, og þá einkum loð- skinn. Það er til athugunar fyrir þá nefnd, sem fær mál þetta væntanlega til meðferðar, hvort (Framh. á 4. síðu.) Um ellefuleytið á sunnudagsmorgun- inn sást til þýzkrar flugvélar frá ýms- um stöðum í neðanverðri Árnessýslu. Kom hún úr suðvesturátt og flaug lágt. Klukkan rösklega 11 var hún komin yfir þorpið við Ölfusárbrú. Flaug hún einn hring á þessum slóðum, svo lágt að heita máttí, að hún væri rétt yfir húsþökunum. Brezka setuliðið í þorp- inu hóf skothríð á hana úr loftvarna- byssum sínum, en flugmennirnir svör- uðu með vélbyssuskothríð. Hermir fregn, sem blaðið hefir fengið frá Ölf- úsárbrú, að einn brezkur hermaður hafi beðið bana, en 1—2 særzt. Setu- liðsstjórnin hefir látið uppi, að hin- ar ensku skyttur hafi hæft flugvélina og laskað hana. Frá Ölfusárbrú hélt flugvélin leiðar sinnar vestur yfir Hellisheiði og hækkaði flugið, er vest- ar dró. Var brátt hafin á hana skot- hríð vestan heiðar, fyrst, að því er virtist, á Sandskeiði, síðar í Reykjavík og Hafnarfirði. Flaug hún yfir bæinn og höfnina í sem næst 2000 feta hæð, hélt síðan suður á bóginn yfir Hafn- arfjörð og Keflavík, en beygði þar út á flóann og inn til Hvalfjarðar, en sveigði loks suður á bóginn og sást síðast yfir Sandskeiðinu. Ein ensk flugvél kom á vettvang og elti hina þýzku suður fyrir Reykjanes. Sá skíðafólk, er statt var í Bláfjöllum, Skálafelli og Hengli gerla til ferða hinnar þýzku flugvélar, og eltingaleik- inn eftir að enska flugvélin var kom- in á loft. Loftvarnamerki voru gefin, Winston Churchill forsætis- ráðherra flutti ræðu, sem var útvarpað um allt Bretaveldi, síðastliðið sunnudagskvöld. Ræða þessi hefir vakið mikla athygli. Bæði var hún mjög snjöll og veitti nánari vitneskju um ýmsa atburði en almenn- ingur hafcSi áður fengið. Eftirfarandi atriði í ræðunni munu hafa vakið mesta at- hygli: Atburðirnir munu knýja Hitl- er, hvort sem hann vill eða ekki, til stórfelldrar sóknar á næst- unni. Hann verður að geta sýnt meiri árangur í styrjöldinni en Þjóðverjum hefir tekizt að ná undanfarna mánuði. Hann verður einnig að bæta upp ó- farir ítala. Hins vegar virtist Churchill ekki vilja fullyrða um það, hvaða leið Hitler myndi bæði í Hafnarfirði og Reykjavík. í Reykjavík hófust þau þó ekki fyrr en skothríðin á flugvélina var búin að standa í margar mínútur. Laust eftir hálf tólf hófust loftvarnamerki að nýju. Hafði þá verið þögn í nokkrar mínútur. Allmargt fólk leitaði í loft- varnabyrgin, en þó mun þorri fólk hafa látið sem ekkert væri. Þýzka út- varpið sagði frá þessu ferðalagí þýzku flugmannanna. Þeir hefðu komið heim heilu og höldnu og gert árás á flugvöll á íslandi. t t t Kveffaraldurinn er nú sem óðast að breiðast út á ýmsum stöðum á land- inu, t. d. austan fjalls, í Borgarfirði, á Snæfelisnesi og Vestfjörðum. Hafa samkomur verið bannaðar í sumum héruðum landsins og kaupstöðum, meðal annars í Árnessýslu, Rangár- vallasýslu, Keflavík, Ólafsvik og ísa- firði, auk Reykjavíkur. Leyfi hefir verið veitt til þess að banna sam- komur á Akureyri, Seyðisfirði, Eski- firði og Stykkishólmi, þótt enn hafi ekki þótt ástæða tU að grípa til slikra ráðstafana. Samgöngubanni hefir ver- ið lýst yfir í Dölum, Reykhólalæknis- héraði, Reykjafjarðarhéraði, Svarf- aðardal og Mjóafirði. Mun ætlunin að verja þessar sveitir og héruð fyrir faraldrinum. t r t Fréttaritari Tímans í Vestmannaeyj- um skýrði blaðinu svo frá í símtali í gærkvöldi, að þar hafi veður verið velja. Hann vakti athygli á því, að Þjóðverjar væru raunveru- lega búnir að taka Ungverja- land og Rúmeníu og allt benti til, að þeir væru einnig að taka Búlgaríu með sama hætti. Þeir væru búnir að fá þar yfirráð yfir flugvöllum og væru byrjað- ir á að búa til nýja flugvelli. Það væri aðeins tímaspursmál, hvenær þýzkur her færi inn í landið. — Þá væru Þjóðverjar að reyna að tryggja sér liðveizlu Frakka með aðstoð hins franska Quislings, Lavals. En fyrst og fremst benti Churchill á inn- rásarhættuna. Hann sagðist vilja .endurtaka þau ummæli John Dill hershöfðingja að Bretar yrðu alltaf að vera við- búnir innrás. Hefði Hitler reynt innrás síðastliðið sumar hefði (Framh. á 4. siöu.) hálfslæmt síðustu dægur, svo að tor- veldað hafi sjósókn. í gær var veður- blíða og allir bátar á sjó. Afli er tregur enn sem komið er og mörg skip, sem annast fiskflutning milli landa, bíða eftir farmi. Verðið á fiskinum er svo hagstætt, að það bætir upp rýran afla- feng. Myndi sjór ekki sóttur slíku kappi, sem gert er, ef gott verð væri' ekki fáanlegt fyrir fiskinn. t t r Fregnir, sem borizt hafa frá Raufar- höfn, herma, að tundurtufl hafi sprungið í flæðarmálinu við túnið að Harðbala á Melrakkasléttu á sunnu- dagskvöldið. Var sprenging svo mikil, að gerla heyrðist til Raufarhafnar, 12 kílómetra leið. Að Harðbala er tvíbýli. Brotnuðu flestar rúður í öðru húsinu og nokkrar í hinu, er sprengingin varð, en allt lék á reiðiskjálfi. Lampaglös, diskar og bollapör og gaslukt brotnaði, en myndir féllu af veggjum. Skrifborð, er stóð við vegg, kastaðist tvo metra fram á gólf. Grjót úr fjörunni og brot úr tundurduflinu þeyttust mörg himdr- uð metra tll lands og á sjó út. Síma- þræðir slitnuðu í grennd við staðinn og einangrunarbjöllur brotnuðu. t t r Sigurður Benediktsson póstmaður, sem verið hefir í varðhaldi að undan- fömu sökum ákæru, er fram kom á hendur honum um það, að hann hefði reynt að fá tvo Skota til þess að sprengja skip það, er þeir sigldu á, í (Framh. á 4. siðu.) Erlendar fréttir Brezki flotinn gerði stórfellda árás á Genúa, helztu hafnar- borg Norður-Ítalíu, síðastliðinn sunnudagsmorgun. í árásinni tóku þátt mörg stór herskip og var samtals skotið á borgina 300 smálestum af skotum. Tjón mun hafa orðið mjög mikið. James Sommerville aðmíráll stjórnaði árásinni. Samhliða gerðu flugvélar árásir á borg- ina. Þessi árás þykir sýna, að Bretar hafa fullkomin yfirráð á Miðjarðarhafi. Margir telja, að þessi árás sé m. a. gerð til að hughreysta Frakka, en það hef- ir þótt líklegt að Þjóðverjar myndu nota Genúa sem bæki- stöð fyrir innrás í Afríkulönd Frakka, ef Petain féllist ekki á kröfur þeirra. Laval hefir neitað tilboði frá Petain um að hann fengi sæti í Vichystjórninni, án sérstakrar stjórnardeildar. Mun Laval hafa viljað fá meiri völd og þykir sennilegt, að samningaumleitun milli Petain og Lavals sé slitið, a. m. k. fyrst um sinn. Þetta þykir sýna, að Petain ætli ekki að láta undan fyrir Þjóðverjum, nema þá að litlu leyti. Athygli hefir það vakið að Flandin hef- ir beðizt lausnar. Darlan hefir verið skipaður utanríkismála- ráðherra í stað hans, en auk þess er hann varaforsætis- og flotamálaráðherra. Darlan hef- ir einnig verið kjörinn eftir- maður Petains. Hitler hefir gefið eina miljón ríkismarka til að koma upp hermannaheimilum í Noregi. Jafnframt hefir verið hafin söfnun í þessu skyni. Þetta þykir staðfesta þær fregnir, að mjög hafi borið á óánægju meðal þýzkra hermanna í Nor- egi. Dvöl þeirra þar hafi sýnt þeim, að þeim væru veittar al- rangar upplýsingar, bæði um ástandið þar og heima fyrir. Þeim hefði verið sagt„ að þeir færu þangað til að vernda Nor- eg, en þegar þeir kæmu þangað yrðu þeir hvarvetna varir við andúð Norðmanna gegn þess- um verndurum. Þeim hefði líka verið sagt, að engin þjóð hefði það eins gott og Þjóð- verjar, en þeir þyrftu ekki að kynnast mikið ástandinu í Nor- egi til þess að komast að raun um, að norsk alþýða hefði búið við betri kjör en þýzk alþýða. í Noregi fengu þeir líka meiri fregnir annars staðar frá. Þetta þykir skýra það, að stöðugt er verið að skipta um herdeildir í Noregi. Hitler hugsi sér nú, að eyða þessari óánægju með stofnun hermannaheimilanna. Sókn Breta gengur að óskum í nýlendum ítala. Bretar hafa (Framh. á 4. síöu.) w A víðavangi LÓÐIRNAR f REYKJAVÍK. Bæjarblöðin skýrðu nýlega frá því, að háskólinn hefðu keypt smálóð í miðbænum undir vænt- anlegt kvikmyndahús. Kaup- verðið var 225 þúsund krónur. Blöðin virtust ekki hafa neitt við þetta kaupverð að athuga, enda mun shkt lóðaverð ekki vera óalgengt hér í bænum. Sé hins vegar betur aðgætt varpar þetta litla dæmi skýru ljósi yfir eina helztu orsök dýrtíðarinnar í bænum. Lóðaokrið hleypir upp húsaleigunni, verzlunarálagn- ingunni o. s. frv. Áhrif þess ná raunverulega til alls landsins, því að dýrtíðin hér skapar hið háa kaupgjald, verzlunarvið- skipti við Reykjavík verða dýr- ari o. s. frv. Lóðaokrið er sá þáttur dýrtíðarinnar, sem er vafalaust mesta sjálfskaparvítið. Ef nokkur fyrirhyggja hefði ríkt í þessum málum, hefði bærinn átt að eiga lóðirnar og geta létt útsvarsbyrðar á gjaldendum með því að innheimta hóflegt leigugjald af lóðunum. í stað þess hafa nokkrir menn verið látnir græða stórkostlegt fé á lóðabraskinu, án nokkurs til- verknaðar. Ef góður vilji rikti í þessum málum og ráðstafanir bæjar og ríkis væru meira mið- aðar við hag heildarinnar en ran'gfengin réttindi og eignir örfárra manna, myndi verða hægt að ráða mikla bót á þess- ari meinsemd. Það er eitt af stærstu verkefnum næstu ára. FJÖLRITARI FÉLAGS BERKLASJÚKLINGA. Fyrir nokkrum árum síðan var stofnaður félagsskapur berkla- sjúklinga. Tilgangur félagsskap- arins var góður og verðskuldar fullkomlega að hljóta meiri al- menna viðurkenningu. Svo slysa- lega tókst til, að kommúnisti var kjörinn formaður þessa félags- skapar. í sambandi við réttar- höldin, sem hafa orðið út af dreifibréfinu, hefir það upplýzt, að eitt verk kommúnista pessa var að kaupa fjölritara fyrir fé félagsskaparins og lána hann síðan kommúnistum. Hefir hann verið til afnota á skrifstofum kommúnista um alllangt skeið. Þetta sýnir mæta vel, hversu kommúnistar misnota aðstöðu sína í þágu flokks síns, ef þeim eru falin einhver trúnaðarstörf. KVIKSÖGUR. Það er haft eftir Bismarck, að aldrei sé logið eins mikið og í styrjöld. En það eru ekki aðeins styrjaldaraðilarnir, sem búa til ýmsar furðufréttir, heldur myndast iðulega allskonar kviksögur meðal almennings. Þessar kviksögur eru með ýms- um hætti. Sumar eru vel til þess fallnar að skapa óróa og á- hyggjur. Það hefir nokkuð borið á slíkum sögum hér, m. a. í sambandi við heimsókn þýzku flugvélarinnar á sunnudaginn. Fólk ætti að varast að leggja trúnað á slíkan fréttaflutning, nema hann styðjist við áreiðan- legar heimildir, og ætti heldur að reyna að þagga hann niöur en að ýta undir hann. LOFTVARNIR SETULIÐSINS. Heimsókn þýzku flugvélarinn- ar á sunnudaginn virðist sýna að loftvarnir Breta hér séu ekki sem öflugastar. Það er alkunna að öruggasta vörnin gegn loft- árásum eru orustuflugvélar. Ein brezk flugvél mun að vísu hafa farið til móts við hina þýzku flugvél, en hún mun ekki hafa verið af fullkomnustu gerð. Það er lágmarkskrafa, sem okkur ber að gera til hinna óbeðnu verndara, að þeir hafi ekki lak- ari loftvarnir hér en í heima- landi sínu. Við vitum að vísu, að trauðla verður hægt að af- stýra hér manntjóni og skemmd- um, ef Þjóðverjar gera alvöru úr sókn hingað, en það væri okkur þó mikið öryggi, ef við vissum, að loftvarnir setuliðsins væru í góðu lagi. Á. KROSSGÖTUM Þýzk flugvél yfir íslandi. — Kveffaraldurinn. — Aflabrögð í Eyjum. — Tund- urdufl springur. — Sigurður Benediktsson látinn laus. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.