Tíminn - 15.03.1941, Blaðsíða 1
I RITSTJÓRI:
< ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
(
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
! ÚTGEFANDI:
J FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
25. ár.
Reykjavík, laugardagiim 15. marz 1941
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindárgötu 9A.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
31. blað
Störi búnaðarþingsíns
Alls vom aigreidd 72 mál
FLOKKSÞINGIÐ
Þegar mættir á þriðja
iumdrað fnlltráar
Flokksþing Framsóknarmanna
var sett í Iðnó kl. 10 árdegis
síðastl. fimmtudag. Var fundar-
salurinn fullskipaður, því auk
fulltrúa, voru mættir nokkrir
gestir.
Formaður flokksins, Jónas
Jónsson, setti þingið og flutti
síðan ítarlega yfirlitsræðu. Að
lokinni ræðu hans var kosin
kjörbréfanefnd.
Annar fundur hófst kl. 2 e.
hád. Bjarni Bjarnason alþm.
skýrði frá störfum kjörbréfa-
nefndar og síðan flutti Eysteinn
Jónsson viðskiptamálaráðherra
itaregt erindi um viðskiptamál
og fjármál. Að loknu erindi
hans hafði Ólafur Jóhannesson
lögfræðingur framsögu um
húsbyggingarmál flokksins og
urðu um það nokkrar umræður.
Á þessum fundi voru skipaðar
^ftirtaldar nefndir: Stjórn-
málanefnd, sjálfstæðisnefnd,
fjármálanefnd, landbúnaðar-
nefnd, sjávarútvegsnefnd, iðn-
aðarnefnd, menntamálanefnd,
allshérjarnefnd, flokksskipu-
lagsnefnd, fjárhagsnefnd
flokksins og blaðnefnd.
Þriðji fundur hófst kl. 9.30
árdegis á föstudag. Hermann
Jónasson forsætisráðherra flutti
erindi um stjórnmál.
Fjórði fundur hófst kl. 2 e. h.
Steingrímur Steinþórsson alþm.
flutti erindi um landbúnaðar-
mál og Skúli Guðmundsson er-
indi um sjávarútvegsmál. Síð-
an voru stuttar framsöguræður
um nokkur einstök mál, er
síðan var vísað til nefndar.
Fimmti fundur hófst kl. 9.30
í morgun. Voru þar fluttar
framsöguræður um nokkur mál.
Enn er ekki hægt að segja til
íullnustu um hversu fjölmennt
þingið verður, því að allmargir
fulltrúar voru í morgun ókomn-
ir til þings, m. a. Austfirðingar.
Þegar eru mættir hátt á þriðja
hundrað fulltrúar.
Fundarstjóri þingsins á
fimmtudaginn var Jörundur
Brynjólfsson alþingismaður, í
gær Einar Árnason alþm. og í
dag Bjarni Bjarnason alþm.
Alþíngí minníst
sjómanna
Á fundi sameinaðs Alþingis í
fyrradag var minnzt sjómanna
þeirra, sem hafa farizt síðan
þing kom saman. Flutti forseti
sameinaðs þings ræðu og risu
þingmenn siðan úr sætum sín-
um til að votta hinum látnu
virðingu sína.
Síðan Alþingi var sett 15. f.
m. hafa 40 íslendingar farizt
í sjóslysum, en alls hafa farizt
50 menn á þessu ári. Á síðast-
liðnu ári fórust 53 íslenzkir sjó-
menn og er sú tala stórum
hærri en meðaltal undanfar-
inna ára.
Búnaðarþingi er nú fyr-
ir nokkru lokið. Sat það á
rökstólum í réttar sex vik-
ur og hafði til meðferðar
78 mál og þingsályktunar-
tillögur. Hlutu 72 þeirra
fulla afgreiðslu.
Eins og gefur að skilja var
margt merkra mála, er þingið
fjallaði um. Meðal þeirra voru
vandræði þau, er nú steðja að
íslenzkum landbúnaði vegna
sauðfjársjúkdómanna. Hafði
búnaðarþingið til umsagnar
lagabálk mikinn um varnir
gegn útbreiðslu ’ sauðfjársjúk-
dómanna og útrýmingu þeirra.
Eru þar ráð lögð á um varnirnar
og hvernig mál skal upp taka
þegar héraðsbúum og stjórn-
arvöldum þykir ráðlegast að
grípa til fjárskipta, og hversu
bæta tjón það, er af slíkum
ráðstöfunum leiðir. Annars
mjög rætt um, að fjárskipti
yrðu í ár höfð milli Blöndu og
Héraðsvatna, norðan Vatns-
skarðsgirðingar, og að reynt
yrði að útrýma garnaveikinni í
Norður-Þingeyjarsýslu og í Ár-
nessýslu, á svæðinu milli Hvít-
ár og Þjórsár. En ákveðnar til-
lögur um þetta voru ekki sam-
þykktai*
Þingið mælti með þeim breyt-
ingum á j arðræktarlögunum, að
hækkaður yrði allmikið jarð-
ræktarstyrkur til ýmissa um-
bóta, sérstaklega framræslu.
Einnig verði jarðræktarstyrk-
urinn greiddur með verðlags-
uppbótl
Um ábúðarlöggjöfina var lagt
til, að sú breyting yrði gerð, að
banna jarðareigendum að selja
jarðeignir á leigu gegn hærra
afgjaldi en 4 af hundraði af
fasteignamatsverði og meiri
hömlur settar gegn því, að hægt
sé að bola leiguliðum brott af
bújörðum.
Þá fjallaði búnaðarþingið um
frumvarp til laga um jaröa-
urjóns Kristjánssonar í Forsæti
i Flóa fyrir spunavélasmíði.
Ýmsar breytingar lagði bún-
aðarþing til að gerðar yrðu á
búfj árræktárlögunum, að því er
tekur til hrossaræktar. Gengu
þær i þá átt, að ríkið skal
stofna uppeldisstöð fyrir stóð-
hesta, og sé hún rekin undir
umsjón Búnaðarfélagsins. Jafn-
framt samþykkti þingið reglur
um hrossasýningar.
Milliþinganefnd, er búnaðar-
þing skipaði síðast, flutti
tillögur um breytingar á lögun-
um um byggingar- og land-
námssjóð. Samþykkti búnaðar-
þingið að skora á Alþingi að
hækka framlag til endurbygg-
inga á sveitabæjum og nýbýla,
veita árlega fé til húsabóta á
þjóðjörðum og bæta til mikilla
muna aðstöðu þeirra, er nýbýli
reisa, þar eð reynslan hefir
sýnt, að ungu og efnalausu
fólki er algerlega ofvaxið að
stofna nýbýli á þann hátt, sem
nú er til ætlazt.
Um þá ráðagerð, að Búnaðar-
félag íslands kaupi Hólm í
Landbroti og vélasmiðjuna þar
gerði búnaðarþing þá ályktun,
að festa skyldi kaup á eignun-
um, enda veitti Alþingi til þess
fé að nökkru.
Af öðrum tillögum, sem hér
er rúm að rekja að sinni, skal
drepa á þessar: Áskorun til rík-
isstjórnarinnar um áð hlutast
til um, að brezka herstjórnin
hagi svo vinnu íslenzkra verka-
manna hjá sér, að hún verði
sem minnst, eða helzt engin,
þann tíma árs, er atvinnuvegir
landsmanna þurfa mest á
verkafólki að halda, mánuðina
júli, ágúst og september. Á-
skorun til Alþingis um ríflegan
styrk til að greiða kostnað við
flutning áburðar til lands-
ins árin 1941 og 1942. Á-
skorun til Alþingis um að fram-
lengja lögin um happdrætti rík-
isins og að verja tekjum þess,
kaup ríkisins vegna kauptúna!a® útrunnum sérleyfistíma há-
lMkgnslia|»ii r her-
iiiiin<1 ra þjóða
Fróði komínn til
Reykjavíkur
Línuveiðaskipið Fróði kom til
hafnar í Reykjavík um hádegi 1
dag. Beið mikill mannfjöldi á
hafnarbakkanum, og höfðu sum-
ir beðið lengi morguns. En um
allan bæinn blöktu fánar í hálfa
stöng.
Lík hinna föllnu manna, þeirra
sem fyrstir íslendinga eru bein-
línis vegnir með vopnum í styrj-
öldinni, voru tekin úr skipinu
með mikilli viðhöfn. Lék lúðra-
sveit sorgarlög, en menn stóðu
berhöfðaðir og hljóðir meðan at-
höfnin fór fram.
og sjávarþorpa, um landnám
ríkisins og um heimild fyrir
kaupstaði, kauptún, sjávar- og
sveitaþorp til þess að láta vinna
að jarðrækt í almenningsþágu í
þegnskylduvinnu. Mælti það
með þessum frumvörpum öll-
um.
Var einnig mælt með breyt-
ingum á sandgræðslulögunum
og skorað á Alþingi að leggja
að mörkum meira fé til sand-
græðslu heldur en hingað til.
Frumvarp til laga um stofn-
un vísindasjóðs var lagt fyrir
þingið og mælti það með sam-
þykkt þess. Skal, samkvæmt
frumvarpinu, verja ríkistekjum
þeim, sem fást munu af brugg-
un sterkra öltegunda í sjóð
þenna. En hlutverk sjóðsins er
að bera kostnað af náttúru-
rannsóknum, einkum þeim,
sem atvinnuvegum landsmanna
mætti að haldi koma.
Búnaðarþingið ákvað að
stofna heiðursverðlaunasjóð
Búnaðarfélags íslands og skyldi
stofnfé hans vera sjóðsleifar
Búnaðarfélags Suðuramtsins.
Úr sjóðnum skal veita þeim
mönnum heiðursverðlaun, sem
innt hafa af höndum ágætis-
verk, efnisleg eða andleg, þau
er almenna þýðingu hafa og til
umbóta horfa fyrir þá, sem
búnað stunda. Stofnféð er 21
þúsund krónur.
Að þessu sinni ákvað búnað-
arþingið að veita tvenn heiðurs-
verðlaun, önnur 2000 krónur til
handa Sigurgeiri Jónssyni
bónda að Helluvaði í Mývatns-
sveit fyrir æfilangt fjárræktar-
starf með framúrskarandi ár-
angri; hin, 1000 krónur, til Sig-
skólans, til þess að leysa raf
veitumál sveitanna. Tilmæli til
Alþingis og ríkisstjórnar um að
gera nauðsynlegar ráðstafanir
til þess að framleiðsla á lopa úr
íslenzkri ull verði stóraukin,
þegar á þessu ári, ef unnt er.
Fyrirmæli til stjórnar Búnaðar-
félags að athuga möguleika á
því að koma skipulagi á sölu á
hrossum innanlands.
Fyrir nokkrum mánuðum
síðan lét Quislingstjórnin hand-
taka norska skáldið Ronald
Fangen og hefir hann verið
hafður í haldi síðan. Fangen er
nú eitt fremsta söguskáld Norð-
manna. Á síðari árum hefir
hugur hans mjög hneigzt að
trúmálum. Blað Norðmanna í
London, „Norsk Tidend“, hefir
birt eftirfarandi frásögu um
fangelsun Fangens:
— Orsökin að handtöku Fang-
ens var grein, er hann reit í
tímaritið „Kirkja og menning“,
sem Berggrav biskup veitir for-
stöðu. Greinina nefndi hann:
„Um þegnskap“, og var hún for-
ustugrein í októberhefti tíma-
ritsins. Fangen vitnaði í þýzka
sagnfræðinginn Fichte um,
hvernig þegnarnir ættu að vera
trúir þjóð sinni. Það, sem
Fichte reit um Prússland fyrir
100 árum, gæti í öllum aðal-
atriðum verð ritað um ástand
það, er nú ríkir í Noregi.
Ronald Fangen gerir fyrst
Fichte sjálfan að umræðuefni.
— Þegar styrjöldin brautzt út
milli Prússa og Napoleons 1806,
var Fichte sannfærður um sig-
ur Prússlands. Þegar friður
hafði verið saminn, fluttist
Fichte aftur til Berlínar. Óvin-
irnir réðu lögum og lofum í
borginni. Fjölmargir lands-
manna höfðu gerzt leiguþý
þeirra. í desembermánuði 1807
hóf Fichte að flytja ræður sín-
ar til þýzku þjóðarinnar í há-
skólanum í Berlín að viðstöddu
fjölmenni. Ræður þessar voru
sannnefnd hetjudáð, því að
þeirra vegna lagði Fichte líf sitt
í hættu. í þrettándu ræðu sinni
veittist hann að þeim rithöf-
undum, er gengu erinda óvin-
anna með því aö telja það fagn-
aðarefni, að Napoleon væri að
stofna nýtt heimsveldi. Hann
taldi það bábilju eina, að Prúss-
um og öðrum þýzkum þjóðum
myndi verða ætlaður heiðurs-
sess við hlið Frakka.
Fangen vitnar í ræðu Fichte,
þar sem hann mælir á þessa
leið: „Verði heimsveldi skapað
á kostnað hinna frjálsu þjóða,
þá mun drottnari þess ala upp
í þjóð sinni ruddalega yfir-
drottnunarstefnu og ránshug.
Hann mun ekki refsa henni
heldur hvetja hana til hermd-
arverka. Skömmin: sem fylgir
því að skerða rétt hins veika,
mun þá senn fyrnast. Hvaða
þjóð í Evrópu, myndi vilja lúta
slíkum yfirráðum framandi
A. ICKiOSSa-OTUM
Pólskir sjómenn og vændiskonur. — Skipum náð út.
Snjóflóð í Steingrímsfirði.
í fyrrinótt var lögreglan kvödd út í
pólskt skip, sem lá við Ægisgarð, til
þess að taka þaðan þrjár íslenzkar
stúlkur, er þar voru að svalli. Fjórir
lögregluþjónar fóru í för þessa. Er í
skipið kom, tóku pólsku sjómennlrnir
upp skammbyssur og riffla og beindu
að lögregluþjónunum og skipstjórinn
lýsti því yfir, að þeir yrðu skotnir, ef
þeir hefðu sig ekki brott. Urðu þeir
frá að hverfa við svo búið og var skotið
á eftir þeim. Lögregluvörður var hafð-
ur um nóttina á bryggjunni. Hleyptu
Pólverjar þrívegis af byssum sinum um
nóttina. Meðal annars skutu þeir bæði
á íslenzku lögregluna og ensku her-
lögregluna, þótt ekki yrði slys. í gær
fór svo sveit íslenzkra lögreglumanna
í pólska skipið, vopnuð táragasi,
skammbyssum, rifflmn og vélbyssum,
ásamt þrem yfirmönnum, lögreglu-
stjóra, fulltrúa og yfirlögregluþjóni. Var
skipstjórinn og þrír aðrir Pólverjar
handteknir og vændiskonurnar þrjár
teknar úr fletum skipverja. Einnig var
þar tekin hlaðin skammbyssa og tveir
rifflar og skotfæri. Þegar fangarnir
voru fluttir í land, safnaðist mesti
mannfjöldi saman fyrir framan lög-
reglustöðina. Stúlkurnar heita Klara
Olsen Árnadóttir, Sigríður Steinunn
Jónsdóttir og Anna Jóhanna Guð-
mundsdóttir. Vínföngunum, er til hófs-
ins voru lögð, höfðu sjómennirnir stolið
úr öðru pólsku skipi.
r r r
Þrjú af skipum þeim, sem ströúduðu
í grennd við Reykj^vík, eru komin á
flot. Vélbáturinn Þórir, sem losnaði
sjálfkrafa, hefir verið dreginn til hafn-
ar. Enski togarinn var og dreginn á
flot og fluttur til hafnar. Þá tókst
einnig að ná á flot danska skipinu
Sonja Mærsk, er rak upp í Rauðárvík
í ofviðrinu.
r r t
Fyrlr nokkru gerði asahláku á
Ströndum á mikinn snjó. Leiddu
veðrabrigði þessi til snjóflóða. Varð
mikið tjón að á Bólstað í Steingríms-
firði. Féll það þar yfir fjárhús og
hlöðu og drap 156 kindur. Áður en
brá til hlákunnar var fönn svo mikil
þar nyrðra, að hús voru kaffennt sums
staðar.
t r r
ríkis? Vor þjóð skyldi aldrei
æskja sér slíks hlutskiptis. Við
höfum beðið lægra hlut í styrj-
öldinni. — En það er undir oss
sjálfum komið, hvort við glöt-
um sæmd vorri eða eigi. Vopna-
styrinn er til lykta leiddur. Nú
hefst ný barátta á öðrum vett-
vangi. Við skulum sýna gestum
vorUm, að við séum trúir og
tryggir ættlandinu. Við skulum
sanna þeim þegnskap vorn og
skyldurækni. Við skulum um-
fram allt ekki glata virðingu
vorri í viðskiptunum við þá.
Fari svo munu þeir fyrirlíta oss
og forsmá.“
Fichte vísar þeirri hugsun á
bug með sárri gremju,að Þýzka-
land eigi að taka upp hið
franska stjórnskipulag og hta
á hernám landsins sem góðverk.
Hann hrópar til samlanda
sinna: „Við getum sjálfum
okkur einum kennt um örlög
vor. Við verðum umfram allt að
gæta þess að vekja ekki fyrir-
litningu annarra á oss. Ef við
tjáum Frökkum, að við höfum
búið við kröpp kjör og óviðun-
anlega stjórn, mun það hafa
alvarleg áhrif. Þeir munu þá
ætla, að það sé ósk vor og vilji,
að þeir skipti sér af innan-
landsmálum vorum í framtíð-
inni.“
Að loknum lestri greinarinnar
undrast enginn, þótt Fangen
væri handtekinn. Endurminn-
ingin um gagnrýnisorð Fichte
kunna að hafa komið Þjóðverj-
um illa. Þeir hafa einmitt breytt
í augljósri andstöðu við skoð-
anir hins merka sagnfræðings.
Auk þessa er það einmitt í anda
Fangens og Fichte, sem norska
þjóðin lifir og starfar í þreng-
ingum þessara tíma.
Erlendar fréttir
Brezki flugherinn gerði stór-
fellda loftárás á Berlín aðfara-
nótt fimmtudagsins. Er það
fyrsta loftárás á Berlín á þessu
ári. Einnig voru gerðar stór
felldar loftárásir á Bremen og
Hamborg. Þýzki flugherinn
gerði sömu nótt miklar loftá
rásir á Liverpool. í fyrrinótt
segjast Bretar hafa gert stærstu
loftárás styrjaldarinnar á Ham-
borg. Þjóðverjar hafa stórauk
ið næturárásirnar undanfarið
og eru Bretar nú byrjaðir að
endurgjalda á sama hátt.
í Abessiníu heldur sókn Breta
áfram á öllum vígstöðvum.
Virðast Bretar keppa að því að
sigra ítali í Abessiniu áður en
regntímabilið hefst eftir 3—4
vikur. Verður þá ófært að heyja
styrjöld þar með vélahersveit
um, því að vegir verða ófærir.
Grikkir telja sig hafa hrund
ið hörðum áhlaupum ítala á
miðvígstöðvunum undanfarna
daga og hafi ítalir orðið fyrir
miklu mannfalli. Talið er að
Mussolini hafi verið á ferð á
vígstöðvum þessum.
Bandaríkjastjórn vinnur nú
að þvi, að samkomulag verði
milli stjórnar Breta og Vichy
stjórnarinnar um tilslakanir á
hafnbanninu, sem Bretar hafa
sett á hinn óhernumda hluta
Frakklands.
Roosevelt forseti hefir lýst
yfir því, að það kæmi ekki til
mála að senda matvæli til Ev-
rópu, ef hætta væri á, að þau
lentu í höndum Þjóðverja.
Ansaldo, einn þekktasti blaða
maður ítala, hefir látið svo um-
mælt, að Spánverjar geti ekki
vænzt þess, að fá lönd eftir
stríðið, ef þeir verði hlutlausir
áfram.
Matzuoka utanríkismálaráð
herra mun bráðlega fara til
Berlínar og Rómaborgar.
Á víðavangi
HÆTTAN, SEM VOFIR
YFIR LANDBÚNAÐINUM.
í fjárlagaræðu Eysteins Jóns-
sonar var m. a. minnst á þá
hættu, sem nú vofir yfir ís-
lenzkum landbúnaði, sökum
hinnar miklu eftirspurnar eftir
vinnuafli við sjávarsíðuna.
Þessi eftirspurn stafar sum-
part af hinu háa verði, sem
Bretar gefa fyrir sjávarafurð-
irnar og eykur atvinnuna við
sjávarútveginn, og sumpart af
hinni miklu vinnu, sem er hér á
vegum setuliðsins. Eins og nú
standa sakir, taka Bretar raun-
verulega að láni hjá okkur
meginhluta þess fjár, sem þeir
greiða með sjávarafurðirnar og
Bretavinnuna svokölluðu. Þetta
lánsfé fáum við ekki endur-
greitt fyrr en eftir stríðið og
fer það vitanlega mjög eftir úr-
slitum þess, hver endurgreiðsl-
an verður. En afleiðingar þess-
arar lánastarfsemi, sem er okk-
ur að ýmsu leyti nauðug, verða
aær, ef ekkert er að gert, að
vinnuaflið sogast í stórum stíl
frá landbúnaðinum, og einstak-
ir menn safna óhemju auði eft-
ir íslenzkum mælikvarða. Eigi
þjóðin ekki að verða fyrir því
stórfellda fjárhagslega og
menningarlega tjóni, sem leiða
myndi af hnignun sveitanna, ef
þessu héldi fram, verður nú
þegar að gera tvennt: Að reyna
að tryggja landbúnaðinum
nauðsynlegt vinnuafl, og að
taka ríflegan hluta af þeim
tekjum, sem skapast vegna lán-
anna til Breta, til að tryggja
fleira fólki búsetu í sveitunum
framtíðinni. Er þetta ekki
síður til hagsbóta fyrir kaup-
staðina, því að þar mun ekki
verða of mikil atvinna eftir
styrjöldina, þótt. fólki fjölgi þar
ekki verulega á styrjaldarárun-
um. Alþingi verður að taka með
þeim myndarskap á þessum
málum, að landbúnaðinum
verði borgið.
EINKENNILEGIR
SJÁLFSTÆÐISMENN.
í grein forsætisráðherra á
öðrum stað í blaðinu er getið
þeirrar skoðunar Bjarna Bene-
diktssonar að ísland megi ekki
verða sjálfstætt, nema það hafi
fengið fyrirfram samþykki Þj óð-
verja, Breta og Bandaríkja-
manna. Gunnar Thoroddsen
hefir haldið því fram á prenti,
að íslenzka þjóðin eigi að hagá
stjórnarfari sínu að óskum
annarra þjóða. Það eru vissu-
lega skrítnir sjálfstæðismenn,
sem vilja í öllum aðalatriðum
fara að vilja erlendra þjóða.
STÆKKUN
SOGSVIRKJUNARINNAR.
Bæjarráð Reykjavíkur hefir
samþykkt að leita eftir tilboði
um stækkun Sogsvirkjunarinn-
ar. Framsóknarflokkurinn heflr
iðulega hvatt til þess að þetta
væri gert og flutt tillögu um
það í bæjarstjórninni. Mun
hljótast ' af því margvíslegur
bagi og aukinn kostnaður að
því ráði skuli ekki hafa verið
fylgt fyrr.
INNHEIMTA ÚTSVARA.
Blöö Sjálfstæðisflokksins segja
nú frá því, að innheimta útsvara
hafi gengið stórum betur á sið-
astliðnu ári en áður. Þetta er
því að þakka, að fyrir tilstuðlan
Framsóknarflokksins hefir kom-
izt bætt skipulag á þessi mál
og skilvísi aukizt. Er það sum-
part um breytingu á útsvars-
lögunum að ræða, en sumpart
er þetta að þakka því, að leynd-
in um vanskilamennina er af-
numin og hefir það hvatt þá
til aukinnar skilsemi.
Tíminn
mun bráðlega birta svar frá ræðis-
manni Svía við grein, er nýlega birtist
í blaðinu um skerðingu ritfrelsis í Sví-
Þjóð.