Tíminn - 18.03.1941, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.03.1941, Blaðsíða 2
126 TÍMIM, frrigjjndagiim 18. marz 1941 32. blað Hálíyrði um sjálístæðísmálið Eftir Jónas Jónsson formann Framsóknarfl. ‘©ímimt Þriðjudaginn 18. marz Fískmarkaðír Ófriðurinn hefir haft mikil áhrif á viðskipti okkar við önn- ur lönd. Sumar útflutningsvör- urnar hafa hækkað mjög í verði og markaður fyrir þær aukizt. Aftur á móti hefir orðið lítil verðhækkun á öðrum tegund- um af útflutningsvörum okkar, og sala þeirra torveldast, vegna þess að viðskiptalöndin, sem áður keyptu þær vörur, hafa lokast. Mest hefir verðhækkunin orðið á ísfiskinum. Jafnframt hefir tollurinn á ísfiski í Eng- landi verið afnuminn og þær innflutningstakmarkanir, sem voru þar í landi fyrir stríðið, felldar niður. Af þessu leiðir það, að langsamlega mestur hluti þess fiskjar, sem nú afl- ast,- er fluttur ísaður á brezkan markað. Það er út af fyrir sig gott, að fá hátt verð fyrir ísfisk í Eng- landi, og eðlilegt að framleið- endur vilji nota þann markað, meðan hægt er að fá hærra verð fyrir ísfiskinn heldur en salt- aðan eða frystan fisk. En jafn- vel þótt hægt væri að koma öllum aflanum á ísfiskmarkað- inn og njóta háa verðsins þar, er ekki skynsamlegt að treysta eingöngu á þann markað í framtíðinni og hætta að flytja út öðruvísi verkaðan fisk. Á síðustu árum hefir verið unnið að því með góðum árangri að fá markað fyrir hraðfryst- an fisk erlendis. Jafnframt hafa verið reist mörg fisk- frystihús hér á landi og hrað- frystitæki keypt í mörg af þeim frystihúsum, sem fyrir voru. Verðið fyrir frysta fiskinn hefir verið gott, og margt fólk hefir haft atvinnu við flökun og frystingu á fiskinum. Nú munu vera til yfir 30 frystihús á landinu, sem geta tekið fisk til frystingar, og verðmæti út- flutts freðfiskjar nam 10—11 milj. kr. síðastliðið ár. í út- varpsræðu um atvinnumálin í vetur, lagði atvinnumálaráð- herrann áherzlu á það, að út- flutningur á hraðfrystum fiski hefði nú þegar mikla þýðingu fyrir afkomu útgerðarinnar. Útflutningur á saltfiski hefir minnkað stórkostlega frá því sem áður var. Þó var fluttur út saltfiskur árið sem leið fyrir um 20 milj. króna, og jafnvel talið, að hægt hefði verið að selja meira af þeirri vöru. Verð- ið á saltfiskinum hefir hækkað mikið, þó sú hækkun sé hlut- fallslega minni en á ísfiski. Er vafalaust hægt að selja tölu- vert af saltfiski nú í Portúgal, Ameríku og jafnvel á Spáni, fyrir viðunandi verð. En ekki er útlit fyrir, að söltun á fiski verði teljandi á þessari vertíð, ef engar sérstakar ráð- stafanir verða til þess gerðar og hægt verður að selja fiskinn ís- aðan fyrir svipað verð og feng- izt hefir undanfarna mánuði. Það liggur í augum uppi, að ef útflutningur á saltfiski og frystum fiski fellur niður, getur það haft í för með sér mikla hættu fyrir sjávarútveginn og þjóðina í heild. Einhverntíma lækkar verðið á ísfiskinum, og þá má einnig búast við sölu- takmörkunum. Getur vel svo farið, að þá reynist erfitt að vinna aftur markaði fyrir salt- fisk og frystan fisk, ef við verð- um svo skammsýnir að' glata þeim nú. Það er því þjóðar- nauðsyn, að haldið verði áfram viðskiptum við þá aðila, sem vilja kaupa af okkur saltaðan og frystan fisk fyrir viðunandi verð, og þau viðskipti aukin ef kostur er. Útvegsmönnum er það sjálf- sagt ljóst, hver hætta getur af því stafað, ef eingöngu verður litið á stundarhagnaðinn. En vel getur þó orðið nauðsynlegt, að Alþingi og ríkisstjórn geri einhverjar sérstakar ráðstaf- anir til að tryggjá það, að út- flutningur á saltfiski og fryst- um fiski verði ekki látinn nið- ur falla. Er það mál, sem ætti að taka til athugunar nú þegar. Sk. G. Nokkur skriður er* nú kom- inn á það frelsismál. Hermann Jónasson hefir ritað um það tvær greinar í Tímann og Jón Kjartansson tvær greinar i ísa- fold og Morgunblaðið. Ólafur Thors hefir skýrt sitt sjónarmið I Mbl. — Sigurður Eggerz hefir komið norðan frá Akureyri og haldið fyrirlestur í stúdentafé- laginu. Jafnvel kommúnistar eru farnir að tala um sjálfstæði þjóöarinnar og segj- ast vera með ríkisstjórninni. Er það í fyrsta skipti í æfisögu þjóðstjórnarinnar, sem Þjóð- viljinn hefir tekið í streng með núverandi ráðherrum. Alþingi hefir ekki rætt málið nema á einum fundi. En sumir kunnugir menn fullyrða, að þar sé allmikill meiri hluti úr öll- um lýðræðisflokkunum fylgj- andi þeirri stefnu, að hafast ekki neitt verulegt að sem stendur. En ekki hefir reynt á það, svo sem fyrr er getið. Allverulegur þáttur í málinu er það, að annað aðalblað Sjálfstæðisfiokksins, Vísir, hef- ir hótað að taka upp illvíga inn- byíðisbaráttu í landinu, ef reynt yrði að gera þjóðina al- gerlega sjálfstæða nú í ár. Vísir snýr sér í þessu efni til Fram- sóknarmanna, og boðar illindi og styrjöld við þá, um hvers- dagslegt innanlandsmál, ef byrjað verði að gera þjóðina frjálsa. Til að kveða ekki að svo stöddu mjög fast að orði um þessa framkomu, má segja, að hún sannár ótvírætt, að þeir, sem standa að þessum hótun- argreinum um innanlandsó- frið, hafa ekki glöggan skiln- ing á því, hvernig sú þjóð verður að koma fram, sem vill ná frelsi og vera frjáls til fram- búðar. Flokksþing Framsóknar- manna athugar leiðirnar í sjálfstæðismálinu um þessar mundir, eins og í öðrum stór- málum þjóðarinnar. En þar sem Framsóknarmenn líta á sjálfstæðismálið sem þjóðmál, hafið yfir alla flokka, þá verða þeir að miða aðgerðir sínar fyrst og fremst við ástand og orku allrar þjóðarinnar. Ég hefi ástæðu til að halda, að nokkur yfirborðspólitík hafi verið í framkomu sumra þing- manna 1928 og 1937, þegar gefin voru stórorð heit í sjálfstæðis- málinu með atkvæðum allra þingmanna. Hinn væri svefn og mikla aðgerðarieysi í málinu varðandi það, að undirbúa þjóð- ina fyrir sambandslit, benda á, Fyrir fjórum árum voru sam- in lög um húsmæðrafræðslu. Eru þau einkum miðuð við þarfir sveitanna. Allir skólarn- ir, sem þar eru taldir, eru í sveit, og ber þeim að starfa eft- ir þessum lögum. Væri þessum lögum fram- fylgt, væri óneitanlega stórt spor stigið til eflingar hús- mæðrafræðslu ungra kvenna. En umferðakennsla, sem er einkar hentug fyrir starfandi húsmæður, er hvergi nefnd. Það eina, sem gæti átt sér stað að kæmi starfandi húsmæðrum að einhverju liði, eru námskeið- in sem heimilt er að hafa við skólana. Svo að ég tilfæri ^itthvað af því, sem í .húsmæðrafræðslu- lögunum stendur, vil ég leyfa mér að taka hér upp orðrétta þriðju grein: „Ríkið viðurkennir og styrkir húsmæðraskóla á eftirtöldum stöðum: Hallormsstað í Suður- Múlasýslu, Laugum í Suður- Þingeyjarsýslu, Laugalandi í Eyjafjarðarsýslu, Blönduósi í Húnavatnssýslu, Staðarfelli í Dalasýslu, Laugarvatni í Ár- nessýslu og Reykholti í Borgar- fjarðarsýslu. Skólar þessir og aðrir, er síð- ar kunna að verða stofnaðir, skulu vera sjálfseignarstofn- anir, eða eign héraða og sýslu- félaga, til að geta öðlazt rétt- að lítill húgur hafi fylgt máli hjá sumum þeim, sem þóttust gildir menn, er þeir töluðu um sjálfstæði íslendinga. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að Framsóknarmenn séu á móti þessari alvörulitlu framkomu. Framsóknarmenn hafa enga löngun til að lokka menn í öðr- um flokkum til að lofa meiru í þessu efni heldur en þeir vilja standa við í verki, þegar á reyn- ir. Takmark Framsóknarmanna hlýtur að vera það eitt, að byggja sóknina í frelsismálinu á traustum grundvelli. Fram- koma Vísismanna er alvarleg- asti atburðurinn í sjálfstæðis- málinu nú sem stendur. Þar virðist vera veila í fylkingu þeirra manna, sem vilja að ís- land nái fullu frelsi. Þegar flokksþinginu er lokið mun ég freista að gefa lesend- um Tímans yfirlit um sjálf- stæðismálið eins og það stendur þá, og taka til meðferðar ræðu Siguröar Eggerz og greinar Jóns Kjartanssonar, Hermanns Jónassonar og Ólafs Thors. Enn er of snemmt að fullyrða, hvort forusta í þessu máli muni verða í höndum ríkisstjórnar- innar, Alþingis eða kjósenda. En svo mikið má fullyrða, að það er gott fyrir málið, að það hefir verið tekið út úr svefn- poka þeim, sem það hefir að mestu verið geymt í síðan 1918, að sáttmáli var gerður við Dani. „Af því læra börnín málið, að það er fyr- ír þeim haft“ í síðasta tölubl. Tímans skrif- ar Jón Konráðsson kennari einkar þarfa hugvekju um lest- ur barna, og hvetur til þess að bókasöfn í sveitum kaupi eitt- hvað af bókum við barna hæfi. Undanfarin ár hefir verið gefið út ógnar flóð af barna- bókum. Flestar eiga þessar bækur það sammerkt, að þær eru ritaðar á væmnu tæpi- tungumáli, líklega í því skyni, að börnin skilji þær betur. Það er nú gott og blessað, en hvenær er börnunum ætlað að læra venjulegt íslenzkt mál, ef þau eiga að lifa á þessum „tæpitungubókmenntum“ fram um fermingu? Fjöldi barna á engan kost skólagöngu eftir fermingaraldur, og má þá nærri indi og skyldur þessara laga. Skólar þessir geta verið deildir við héraðsskólana með sérstök- um fjárhag.“ í grein þessari eru taldir 7 skólar, sem beri að reka eftir þessum lögum, 5 þeirra starfa með fullum krafti, en 2 eru ekki stofnaðir enn í dag. Er þeim skólum þó vel valdir staðir, og aðstaða þeirra ætti að vera góð, að mörgu leyti. Má það furðu- legt heita, að stofnun þeirra skóla skuli hafa dregizt allt að þessum tíma. Eru þeir þó báðir á okkar ágæta Suðurlandi. Síðari hluti greinarinnar gef- ur í skyn,að stofna megi skóla víðar um landið, sem starfi samkvæmt þessum lögum, og skulu þeir þá njóta sömu rétt- inda sem hinir skólarnir. Húsmæðraskólar þeir, sem þegar er búið að stofna, hafa vissulega gert mikið gagn ís- lenzka kvenfólkinu og íslenzku þjóðinni. Konur þær, sem hafa tekið að sér forstöðu og kennslu við þá, hafa allar rækt störf sín með áhuga og dugnaði. Þess vegna hafa skólarnir ver- ið vel sóttir og starf þeirra verið mikils virt. En betur má, ef duga skal. Skólarnir þurfa að vera mikið fleiri. Aðeins lít- ill hluti þeirra kvenna, sem sækja um inntöku á þessa skóla, fær aðgang. Straumur tímans er hraðfara. Öldur þær, Jónína S. Líndal, Lækjamóti: Húsmædrafræðslulögín 1937 Bifreið Það mun flestum áhyggju- efni, hve mjög aukast nú um- ferðaslys hér á landi af völdum bifreiða. Nýlega skýrðu blöðin frá því, að vörubifreið ók til Reykjavíkur með sex ung- linga á pallinum og einn við stýrið. Bifreiðin þeyttist út af veginum á 50—60 km. hraða. Einn þeirra, sem á pallinum stóð, hlaut bana, en fjórir stórmeiðsli. Þetta eru rétt venjulegar fréttir af bifreiðaakstri á ís- landi. Landinn státar af því að hafa „beztu bifreiðastjóra í heimi“. — Björn Blöndal bif- reiðaeftirlitsmaður skrifar um þetta mál í Alþýðubl. nýverið. Eins og gefur að skilja um mann með hans reynslu og þekkingu á þessum málum, er hann næsta harðorður um bif- reiðaslysin. — Nýlega gat að lesa í dagblöðum bæjarins um þrjú bifreiðaslys. Að vísu var ekki getið um nein manndráp í þessum fregnum, en örkumlin eru oft engu betri en mann- drápin. Hvað veldur hinum tíðu bif- reiðaslysum á íslandi? Vér úyggjum, að það sé tvennt: í fyrsta lagi, að blöðin eru búin að telja almenningi trú um, að íslendingar séu „beztu bílstjórar í heimi“ — („beztu reiðmenn í heimi“, var sagt um íslendinga, áður en bifreiðarn- ar komu til sögunnar) — og í öðru lagi að refsingarnar fyrir brot gegn umferðareglum eru næsta hégómlegar. Það er vissulega rétt, að í hópi íslenzkra atvinnubifreiðastjóra eru margir ágætir menn. En alltaf eru misjafnir sauðir í mörgu fé. Auk þess verður að gæta þess, að fjölmargir aðrir en fastir bílstjórar fást við bif- reiðaakstur. Fyrir nokkrum árum kom geta um málfarið. íslendingar eru öfgamenn. Þeir sem nú eru miðaldra, eða meir, áttu lítinn kost bókmennta „við barna hæfi“, í uppvextinum. En þá lærðu menn málið um leið og þeir lærðu að lesa en ekki að- eins fáein einföldustu orð tung- unnar, eins og nú er títt um allan þorra barna. Eiga „tæpi- tungubókmenntirnar“ áreiðan- lega mestan þátt í þessu. Er þess að vænta, að barnakenn- arar taki það til íhugunar, hvort fræðarar barnanna gera sér ekki óþarflega mikið „tæpi- tungu“ við börnin í öllu upp- eldis- og fræðslustarfi sínu. O. a slysin drukkinn sjómaður á bifreiða- stöð hér i bænum og bað að lána sér bifreið. Það var strax til reiðu. Hann settist upp í bifreiðina, ók um Laugaveg. Innst á Laugavegi ók hann út af veginum og upp að húsvegg. Fyrir bílnum varð 7 ára dreng- ur, sem dó nokkrum klukku- tímum eftir að hann varð fyrir áverka hins drukkna öku- manns. Dómurinn, sem þessi maður fékk, var 6 mánuðir, en bílstöðin, sem lánaði bílinn, fékk ekki svo mikið sem áminn- ingu. Þetta er aðeins eitt dæmi af ótal mörgum. Sá, sem þetta skrifar, hefir spurzt fyrir um ökumenninguna hjá einum fróðasta manni landsins um þessi mál. Honum fórust svo orð: „Það er með öllu tilgangs- laust að kæra til lögreglunnar vegna óleyfilegs ökuhraða. Slík- um kærum er ekki sinnt, þrátt fyrir það, að það er á hvers manns vitorði, að meginhluti allra slysa stafar af of miklum ökuhraða“. Það er engum efa bundið, að allur þorri manna í þessu landi veit það, að bifreiðaslys eru hér tíðari en í nokkru öðru landi veraldarinnar, að Abessiníu ekki undanskilinni. Og slysin stafa yfirleitt af ógætilegum akstri, en ekki af vondum veg- um eins og margir telja. Því nær ekkert af bifreiðaslysum undanfarandi ára hefir gerzt á vondum vegum. Tæpast verður heldur hægt að kenna bifreiðarslysin ofmik- illi umferð, því að umferðin er hlutfallslega miklu minni hér en víðast erlendis. Björn Blöndal á þakkir skilið fyrir að hafa vakið athygli á þessu máli. Tíminn mun telja það skyldu sína að halda því vakandi. Einkum mun athygli almennings beint að tvennu: í fyrsta lagi afskiptum og dóm- um lögreglunnar vegna brota á umferðareglum. Þau afskipti eru kapituli út af fyrir sig. Virðist svo sem lögreglunni sé ekki sérlega annt um að refsa fyrir yfirtroðslur í þessum efn- um. Daglega, og tugum sinnum á dag, getur að líta ökuníðinga, sem brjóta allar umferðareglur hér í bænum, — aka með 40—- 70 km. hraða á götum bæjarins. Ef kært er, gefur lögreglan kærendum „langt nef“, og öku- níðingarnir halda ósómanum á- fram óáreittir. Undrast margir, hverju þetta kæruleysi sætir. Annað er það, að bifreiða- stjórar, sem eru í vinnu hjá bifreiðastöðvunum, eru oft látn- ir inna af hendi algerlega ófor- svaranlega vinnu, og á þetta einkum við á langleiðum. Þessir menn, — bifreiða- stjórarnir, — bera ábyrgð á lífi og limum farþeganna, og því væri ekki úr vegi, að þeir, sem veita einkaleyfi til bifreiða- aksturs á langleiðum, vildu at- huga, hvort ekki er ástæða til að setja bifreiðastöðvunum ein- hver skilyrði um það, hvað þær megi leggja á bifreiða- stjórana. Bifreiðaumferðin, bæöi við farþegaflutninga og vöruflutn- inga, er að verða mikiisverður þáttur í þjóðlífi íslendinga. Slysin, sem hljótast af bifreiða- akstri, eru allt of tíð. Og full- yrða má, að meginhluti slys- anna stafar af ógætilegum akstri, en ekki af vondum veg- um, því að næstum öll bifreiða- slysin gerast á beztu vegunum. Ég treysti því, að Tíminn geri sér far um að fylgjast með því, hvernig lögreglan gætir skyldu sinnar gagnvart almenningi, í sambandi við bifreiðaakstur. Nú er það hverjum manni vit- anlegt, að engin þörf er að brjóta ákvæðin um ökuhraða, allt kemst af þó þær reglur sé haldnar. Hér hefir aðeins verið talað um ábyrgð lögreglunnar. En lögreglan á sína húsbændur. Lögreglustjórinn hér í Reykja- vík verður að gera sér ljóst, að hann ber ábyrgð á því, að lög- unum sé hlýtt. Það er ekki ein- hlítt, — og skiptir ekki miklu máli, — hvort lögreglunni tekst að hafa hendur í hári allra þeirra aumingja, sem af stelsýki, eða nauðsyn, stela mjólkurflöskum á dyraþrepum þeirra ' höfuðstaðarbúa, sem sofa lengst fram eftir á morgn- ana. Hitt verður hinn ungi og efnilegi lögreglustjóri að gera sér ljóst, að Reykvíkingar, og íslendingar yfirleitt, telja miklu meira virði, að líf og limir borg- aranna sé virtir meir hér eftir en hingað til hefir virzt henta þeim vitru mönnum, sem hafa átt að gæta laganna. Það er hægt að telja tugi dæma af slysum og dauða af völdum bifreiða hér á landi á undanförnum árum. Hver ein- asti bifreiðastjóri þekkir þess- ar sögur. Og hver einasti heið- arlegur bifreiðastjóri fordæm- ir tómlæti og kæruleysi lög- reglu og dómstóla, sem um þessi mál fjalla. Það er freistandi að ræða um réttarfarsmálin hér á landi yf- irleitt. Því verður sleppt að þessu sinni. Greinarstúfur þessi er helgaður bifreiðaslysunum. (Framh. á 3. síðu) sem ógna heimilunum, berast hingað óðfluga úr umheimin- um. Sé ekki reynt að reisa brimbrjóta við strendurnar, eru heimilin í voða stödd. Þeir skólar, sem þegar eru starfandi, þurfa líka flestir að bæta nokkru við sig. Þeir hafa allir, það ég bezt veit, rækt vel það hlutverk sitt, að kenna matreiðslu og efnasamsetningu matar, saumaskap, hannyrðir og vefnað. Ennfremur þvott og alla umgengni á heimili. Með vefnaðinum hafa þeir aukið á- huga á smekklegum húsbúnaði og með prjónaskapnum hag- kvæman klæðnað og auðveldað notkun íslenzkrar ullar. Það er einkum þrennt, sem ég vildi vekja eftirtekt á, sem nauðsynlegt er að leggja meiri rækt við en verið hefir, 1 skól- unum víðast hvar. Það er upp- eldisfræði, garðrækt og meðferð á alifuglum og kúm — og jafn- vel svínum. Uppeldisfræðikennsla í skól- unum er nauðsynleg vegna þess, hve sú vísindagrein getur haft víðtæk áhrif. Fyrst og fremst á sjálfsaga hverrar ein- stakrar konu og til þess að vekja áhuga þeirra og skilning á uppeldi barna og umgengni við þau. Um garðræktina þarf ekki að fjölyrða. Hún er svo þekkt og viðurkennt nauðsynjamál hvers heimilis, að um það verður varla deilt. Meðferð húsdýranna mun frekar verða ágreiningsmál. Menn segja: Þetta má læra á heimilunum. Ungu stúlkurnar þurfa ekki að fara á skóla til þess að læra það, frekar en að elda graut í gamla daga. En ég vil segja: Þessum vinnubrögð- um verður að bæta við skóla- námið til þess að upphefja þau og rétta við virðingu þeirra. Ungu stúlkunum hættir annars við að lítilsvirða þessi nauð- synjaverk, og vilja ekki hjálpa til við þau, þegar heim kemur. Ungu stúlkurnar verða að skilja það, að það er metnaðar- mál hvers heimilis, að húsdýrin séu vel hirt. Og þvi aðeins geta þetta orðið máttarstoðir heim- ilisins, að þessum störfum sé fullum sómi sýndur. Húsdýrarækt og garðyrkja eru einmitt þær námsgreinar, sem efla fjárhagslegt sjálfstæði hverrar konu. Þær gefa henni tækifæri til þess að sjá af eigin reynslu, hvernig ber að afla sér lífsframfæris og fjármuna með natni og atorku. í 7. grein húsmæðrafræðslu- laganna er skýrt tekið fram, að húsmæðraskólunum beri að láta fram fara kennslu í húsdýra- meðferð, garðyrkju og uppeldis- fræði. Ég veit, að skólarnir mundu margir vilja framfylgja þessum fyrirmælum, ef þeir gætu, en allt strg,ndar á því, að kennarar eru ekki fáanlegir, allra sízt til að kenna húsdýra- meðferð. Annar kafli húsmæðra- fræðslulaganna ræðir um hús- mæðrakennaraskóla. Það mál hefir verið allmikið rætt hjá kvenfélögunum síðan 1930. Kvenfélagasamband íslands lét semja ítarlegt frumvarp og leggja fyrir þingið 1937. Það frumvarp náði þá ekki stað- festingu, heldur þetta, sem hér um ræðir. 1. gr. III. kafla hljóðar svo: „Stofna skal húsmæðrakenn- araskóla með tveim ársdeildum að Laugarvatni, þegar fé er veitt til þess í fjárlögum og sam- komulag hefir fengizt milli landbúnaðarráðherra og skóla- nefndar héraðsskólans um rekstrarstöðu húsmæðrakenn- araskólans.“ Á þessari grein má glögglega sjá, að langt muni í land með stofnun þessa kennslukvenna- skóla, einkum vegna þess, að húsmæðraskólinn á Laugar- vatni er enn ekki stofnáður. Sýndist því að mörgu leyti eðli- legt, að hann hefði komið fyrst, að minnsta kosti í síðasta lagi jafnhliða kennslukvennaskól- anum, þar sem húsmæðraskól- inn þarf að vera æfingaskóli fyrir nemendur hins skólans. Nauðsyn þess að stofna kennslukvennaskóla fer hrað- vaxandi með hverju ári. Allar þær konur, sem hafa aflað sér menntunar á þessu sviði, hafa orðið að sækja menntun sína til útlanda, aðallega til Norður- landa. Allir vita, hvernig sam- bandi okkar við þau lönd er nú háttað. Ég veit þess dæmi, að nú hefir orðið að taka fyrir kennslukonu við húsmæðra- skóla konu, sem ekki hefir feng- ið meiri skólamenntun en þá, sem eins vetrar húsmæðraskóli veitir. Erum við þá ekki lengra komnar á þessu sviði en Eyjar- skólinn um 1880, sem varð að taka nemendur sína fyrir kennslukonur, að loknu námi við skólann. Aftan við húsmæðrafræðslu-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.