Tíminn - 05.04.1941, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.04.1941, Blaðsíða 4
TtMlM, langardagiim 5. april 1941 40. blað 100 tn BÆNUM Loftvarnaæflng fór fram í gærmorgun í Reykjavlk. Voru aðvörunarmerki gefin klukkan rúmlega 10. Lögreglan hafði yfir all- miklu af bifreiðum að ráða og fór í þeim um göturnar. Sömuleiðis voru lögregluþjónar og eftirlitsmenn hvar- vetna á ferli á götunum og á verði við loftvarnaskýlin. Fólk, sem var á götum úti, dró sig mjög fljótt í hlé í hús inn, og þeir, sem elgi gerðu það af sjálfs- dáðum, voru þvingaðir til þess af lög- reglumönnunum. Sjö menn, er mót- þróa sýndu, voru fluttir á lögreglu- stöðina. Sex þeirra voru sektaðir, en einn slapp með áminningu. Æfingin stóð yfir í rösklega hálfa klukkustund. Jarðarför Sigurjóns Jónssonar læknanema, er bráðkvaddur varð í Sundhöllinni á dögunum, fór fram í fyrradag. Pétur Ingjaldsson cand. theol., flutti hús- kveðju, en séra Bjarni Jónsson talaði í kirkjunni. Bjöm Ólafsson lék á fiðlu. Læknanemar báru kistuna i kirkju, en bekkjarbræður hins látna úr henni. Háskólastúdentar gengu fylktu liði á undan líkfylgdinni með fána. Þorleifur Jónsson, fyrv. alþingismaður, á Hólum í Hornafirði, kom til bæjarins í morgun og mun dvelja hér nokkurn tíma. Líkan af Laugarneskirkju. Að lokinni guðsþjónustu í Laugar- nesskóla á morgun verður sýnt þar fullgert líkan (eftirmynd) af fyrirhug- aðri kirkju Laugarnessafnaðar. Stefán Rafnar, aðalbókari hjá Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, á 45 ára afmæli í dag. Pólverjarnir af skipinu Charzow, er höfðu í hót- unum við lögregluna og skutu á hana, þegar taka átti íslenzkar skækjur frá þeim úr skipinu, hafa nú verið dæmd- ir. Skipstjórinn var dæmdur í eins árs fangelsi, en tveir skipverjar til þriggja mánaða og fimm mánaða fangelsis- vistar. Sá fjórði, er ákærður var, var sýknaður. Tveir íslendingar hafa verið sektaðir fyrir að kaupa vaming af brezkum hermönnum. Lög- um samkvæmt er íslendingum óheimilt að eiga kaup við þá, þiggja af þeim gjafir eða taka hjá þeim varning til sölu. Leikfélag Reykjavíkur sýnir sjónleikinn Á útleiö annað kvöld og er það síðasta sýning fyrir fyrir páska. — Sala aðgöngumiða hefst klukkan'4 í dag. Þjóffverjinn, sem skrifaði greinina í þriðjudags- blaði Tímans heitir Harry Villemsen Schrader. Nafn hans misprentaðist. Stauníng fellst á ,nýskípun Þjóðverja* Stauning hefir haldið ræðu, þar sem hann skorar á þjóðina að aðhyllast að einhverju leyti „hið nýja skipulag"'Þjóðverja í Evrópu. Var skýrt frá þessu í danska útvarpinu frá London í gær og jafnframt látið í ljósi, að Stauning hefði með þessu unnið sér til varanlegs álits- hnekkis. Smfffa trúlofunarhringa o. fl. Jón Dalmannsson Grettisgötu 6. Rvík. Efling fiskveíðasjóðs (Framh. af 1. síðu.J í frumvarpinu er lagt til, að þessar eignir verði stofnfé sjóðsins, auk eigna skulda- skilasjóðs vélbátaeigenda, sem ekki er vissa fyrir, hversu mikl- ar muni reynast, en sennilega verða þær ekki innan við y2 millj. kr. í lögunum frá 1930 var á- kveðið, að sjóðurinn skyldi fá Va% af andvirði allra útfluttra sjávarafurða. í frv. er lagt til, að sjóðurinn fái auk þessa helming þess útflutningsgjalds, sem ríkissjóður tekur árlega af hverskonar sjávarafurðum. í lögunum frá 1930 var sjóðn- um heimilað að gefa út hand- hafavaxtabréf fyrir iy2 millj. kr. og jafnframt var ríkissjóði heimilað að taka jafnhátt lán til að kaupa vaxtabréf af sjóðn- um. í frumvarpinu er lagt til að báðar þessar heimildir verði hækkaðar upp í 4 millj. kr. Er þetta raunverulega þýðingar- mesta breyting frv., ef þessari heimild yrði fullnægt, og sú, sem mest myndi auka fjárráð sjóðsins. Samkvæmt lögum frá 1930 voru vextir af lánum sjóðsins 5%, en þeir hafa síðar verið hækkaðir upp í 5y2%. í frv. er lagt til, að vextirnir verði 4%, Þá er lagt til í frumvarpinu, að lengstur lánstími megi vera 15 ár, en hann er nú 12 ár. Frv. mælir svo fyrir, að út á ný skip með nýjum vélum megi lána allt að helmingi virðingar- verðs. Ef einnig er um auka- tryggingar að ræða, sem sjóðs- stjórnin metur gildar, má lána allt að % virðingarverðs, sé skipið smíðað hér á landi. Nú ér lánsupphæðin bundin vissu hámarki í krónutali. Fulltrúar Framsóknarflokks- ins í nefndinni, Gísli Guð- mundsson og Jón ívarsson, hafa þá sérstöðu, að þeir telja heppi- legra að hækka núv. fiskveiða- sjóðsgjald úr ya% í y2% af andvirði útfluttra sjávarafurða en að ætla honum helming af þeim gjöldum, sem ríkið kann að taka á hverjum tíma. Telja þeir að hætta sé á því, að sjóðurinn kunni að verða sviptur þessu framlagi, þegar illa árar hjá ríkissjóði, en fyrir slíku eru all- mörg fordæmi. Einnig telja þeir, að samræma eigi vexti af lánum Fiskyeiðasjóðs við hlið- stæð lán til landbúnaðarins. Á víbavangi. (Framh. af 1. síöu.) Þjóðverjum getur naumast gengið annað til en fúlmennska, ef þeir fara að gera loftárásir á Reykjavík. Ef Bretar hefðu hér nóg orustuflugvéla til varnar virðist loftárásarhættan ekki mikil. Þess vegna verffur það að vera krafa til „verndaranna", að þeir reyni ekki sízt að hafa þennan þátt verndarinnar í lagi. Framangreind ummæli ber langt frá því að skoðast svo, að verið sé að andmæla þeim varúðar- Flugher Þjóðverja og Breta (Framh. af 1. slöu.) ast fámennari, en báru jafnan sigur úr býtum, sökum yfir- burða sinna. Á síðastliðnu ári lögðu Bretar aðaláherzluna á smíði orustu- flugvéla. Það voru Spitfire og Hurricane, sem unnu hina ör- lagaríku loftsigra í ágúst og september síðastliðnum. Nú eru enn betri orustuflugvélar komn- ar til sögunnar. Þær bera nöfn- in Tornado og Whirlwind. Það er engin ástæða til að efast um að Bretar munu ekki halda áfram yfirráðum í loftinu í dagsbirtu. Hins vegar hafa enn ekki fundizt fullnægjandi úr- ræði gegn næturárásum, en miklar vonir eru bundnar við nýja tegund næturorustuflug- véla. Það er ekkert leyndarmál, að í seinni tíð leggja Bretar orðið meiri áherzlu á framleiðslu sprengjuflugvéla. Margar teg- undir hinna þýzku sprengju- flugvéla, einkum steypiflugvél- arnar, virðast orðnar úreltar og auðvelt skotmark í loftorustum. Bretar leggja mikla áherzlu á vandaðan frágang sprengju- flugvéla og eru byrjaðir á fram- leiðslu nýrra tegunda, sem hafa reynzt mjög vel. Churchill hef- ir lofað, að 1941 skuli fleiri sprengjum varpað niður yfir Þýzkaland en Bretland. Sókn- arhugur hins brezka flughers er mikill og allar líkur éru til að þetta loforð verði efnt. T. E. Wright telur, að Þjóð- verjar framleiði 2000 flugvélar á mánuði. Þjóðverjar nota bæði flugvélaverksmiðjur í Norður- Frakklandi og Tékkoslóvakíu. Verksmiðjum í Norðúr-Frakk- landi stafar mikil hætta af loftárásum. Wright telur, að Bretar framleiði 1600 flugvélar á mánuði og fer framleiðslan vaxandi, þrátt fyrir árásir Þjóðverja. Sökum þess að Bret- ar leggja meiri áherzlu á vand- aðan frágang tekur það meiri vinnu að fullgera hliðstæða brezka flugvél en þýzka. Bretar fengu tiltölulega lítið af flugvélum frá Bandaríkjun- um á síðastliðnu ári og er ekki hægt að segja að sú aðstoð hafi haft verulega þýðingu. Þó fengu þeir þaðan nokkrar allgóðar flugvélar, sem eru notaðar til strandgæzlu og árása á skip. Á þessu ári munu flugvélarnar, sem Bretar fá frá Bandaríkjun- um hins vegar hafa mikla þýð- ingu. í desember framleiddu Bandaríkin 750 flugvélar, í jan- úar 1000 flugvélar. í júlí er gert ráð fyrir að mánaðarframleiðsl- an nemi orðið 1600 flugvélum. Öll ársframleiðslan verður 18,000 flugvélar. Næsta sumar er gert ráð fyrir að mánaðar- ráðstöfunum, sem hér er verið að gera, því að þær eru sjálf- sagðar. En það má samt ekki gera meira úr hættunni en þörf krefur og auka með því skelf- ingu hjá kjarklitlu fólki. LefkfélagReykJavákiu* Á ÚTLEIÐ SÝNING ANNAÐ KVÖLD KL. 8 Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í dag. Hljómsveit undir stjórn Dr. V. Úrbantschitsch aðstoðar við sýninguna. Börn fá ekki affgang. y-------GAMLA BÍÓ— STtTLKAIV FRÁ KENTIJCKY (The Lady from Kentucky) Amerisk kvikmynd. Aðalhlutverkin leika: GEORGE RAFT, ELLEN DREW og HUGH HERBERT. Aukamynd: MERKUSTU VIÐBURÐIR ÁRSINS 1940. ———NÝJA BÍÓ--------- Tower í London! (TOWER OF LONDON) Söguleg mynd frá „Uni- versal Pictures, er bregð- ur upp myndum af Lon- don 15. aldar, og aldar- hætti þess tíma. Aðalhlutv. leika: BASIL RATHBONE, BARBARA O’NEIL, NAN GREY BORIS KARLOFF. íbúff, 1—2 herbergi, með eld- húsi eða eldhúsaðgangi, óskast 14. maí. Tvennt fullorðið í heimili. Upplýsingar í síma 2323. framleiðslan verði orðin 2500 flugvélar, en hámark hennar á að verða 3500 flugvélar. Það er þess vegna vafalaust, að Bretar munu með aðstoð Bandaríkj- anna fá alger yfirráð í loftinu. Flugið hefir mikið aðdráttar- afl á brezku æskumennina. Ný- ílega var stofnaður einskonar námshringur fyrir unglinga á aldrinum 16—18 ára, sem vildu læra undirstöðuatriði flugfræð- innar. Þegar bárust um 75,000 umsóknir, eða miklu fleiri en hægt var að sinna fyrst í stað. Auk þessa eru hinir opin- beru flugskóiar. Flugvélin er vettvangur fyrir íþróttamennsk- una og æfitýralöngunina. Hún er fyrst og fremst vopn æskunn- ar. Kvikmyndir af þeim og skopteikningar. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Börn innan 16 ára fá ekki affgang. Sýnd kl.7 og 9. 2000 békamenn úr öllum héruðum og kaupstöðum landsins eru fastir áskrif- endur að tímaritinu Dvöl. Dvöl er höfð á hávegum hvarvetna þar sem lestrarhneigt og menntafúst fólk er. Hún er ein þeirra bóka, sem oftast eru lesnar á heimilunum, enda eru sumar sögurnar, sem í henni birtast, perlur heimsbókmennt- anna. Eruð þér kaupandi Dvalar? Séuð þér það ekki, þá kynnið yður efni það, er hún flytur, og hugleiðið síðan, hvort þeim 6 krónum sé ekki vel varið, sem lagðar eru í að kaupa Dvöl. TímarlÉlð DVÖL, Lindargötu 9 A, Reykjavík. Simi 2353. Tilkynning irá ríkisstjórnínm. Erlcndar fréttlr. (Framh. af 1. síðu.) Ungverjaland í áttina til landa- mæra Júgoslaviu. Budapest, höfuðborg Ungverjalands, hefir verið myrkvuð undanfarnar nætur. Bendir þetta til að Þjóð- verjar neyði Ungverja til að hjálpa sér gegn Júgoslövum og skýrir það sjálfsmorð Teleki forsætisráðherra. Þýzkir menn fara unnvörpum frá Júgoslaviu og þýzk og ítölsk blöð halda á- fram að birta fregnir um illa meðferð þýzkra og ítalskra manna í Júgoslaviu. Júgoslavn- esk blöð mótmæla harðlega þessum fregnum. í tilkynning- um frá stjórninni segir, að hún vilji frið við öli nágrannaríkin, en mun hins vegar kappkosta að verja frelsi og sjálfstæði rík- isins. Mikill hernaðarlegur und- irbúningur er í Júgoslaviu. Borgir hafa verið myrkvaðar og búið er að taka járnbrautirnar algerlega í þágu herflutning- anna. Matchek, foringi Kroata, hef- ir tekið við störfum varaforsæt- isráðherra, en hann hafði frest- að því, unz hann hefði ráðfært sig við samherja sína. Fékk hann áður framgengt nokkrum sér- stjórnarkröfum Kroata. Þjóð- verjar reyndu eftir megni að spilla milli Kroata og Serþa meðan á þessum samningaum- leitunum stóð, en það hefir ekki tekizt. Rrezku hernaðaryfirvöldm Iiafa talið nauð- synlegt að loka mestum hluta Eiðisvíkur fyrir allri umferð, með því að þar verður framvegis rannsóknarstöð fyrir skip. Takmörk hins lokaða svœðis í Eiðisvík eru þessi: Að norifan lína, sem hugsast dregin milli nyrztu odda Yiðeyjar og Geldinganess og er lína þessi merkt með duflum. auðkenndum með hvítum og rauðum rákum. Að sunnun lína, sem hugsast dregin frá norð- urcnda hafskipahryggjjunnar í Yiðey í réttvís- andi austur og er lína þessi merkt með duflum, auðkenndum með hvítum og rauðum rákum. Samkvæmt þessu er ölluni farartækjum bönnuð umferð á framangreindu svæði. Rrezku hernaðaryfirvöldin hafa tilkynnt, að sérhvert farartæki, sem fer án leyfis flota- yfirvaldanna í Reykjavik inn á hið bannaða svæði, verði skotið í kaf. Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 4. apríl 1941. $iglingar. Vér höfum þrjú til fjögur skip í förum milli vesturstrandar Englands og íslands. Tilkynningar um vörur sendist 326 Robert C. Olicer: — Það vitum við, sagði Taylor og borgaði eklinum ríflega. En þar eð þér virðist vera hér allkunnugur getið þér ef til vill gefið okkur upplýsingar um bæinn. Er ekki sæmilegt gistihús þar? — Jo-ú, það er þar, nýtt gistihús, sem heitir Enoch. Bob hnippti í Taylor, sem spurði nú ákafari en áður. — Þekkið þér ef til vill gestgjafann? — Það ganga nú ýmsar sögur um gistihúsið, sagði ekillinn íbygginn, en þó ánægður yfir að vera þarna hinn fróði aðili málsins. — Menn segja, að strák- ur, sem fæddist og ólst upp í bænum hafi farið til Ameríku og grætt þar of fjár, og nú sýnir hann fæðingarbæ sín- um ýmsa vinsemd. Það á að vera hann, sem hefir byggt gistihúsið og reyndar fleiri hús, sem ekki koma þessu við. Annars er bærinn mesta svínastía, sem ekki verðskuldar slíkt. íbúarnir eru samsvarið glæpahyski, sem við í Kovry viljum hafa sem minnst saman við að sælda. Það er gamallt máltæki hér um slóð- ir, að maður geti spilað við Gyðing og unnið, ef maður er heppinn, en ef mað- ur spilar við mann frá Czernow tapar maður alltaf og setur auk þess líf sitt í hættu — Er það svona, sagði Taylor, sem Æfintýri blaðamannsins 327 þóttu þessar upplýsingar harla merki- legar. Én vitið þér hvað hann heitir þessi Ameríkumaður? — Nei, ég veit það ekki. Hann er víst dálítið dularfullur. En ég hefi heyrt, að móðir hans sé á lífi. Þarna í bænum er kerling, sém einu sinni var eiginlega betlari. Nú veltir hún sér í peningum og snertir aldrei á handtaki. Það er sagt, að hún sé móðir hans. — Já, en þá hljóta menn líka að þekkja soninn. — Nei, — hún hefir átt marga syni með mörgum feðrum, svo það er ekki gott að átta sig á því, hver sonanna þetta er — hún veit það víst ekki sjálf. Hún tekur bara á móti peningunum þegar þeir koma, og þá sækir hún til gestgjafans á Hótel Enoch. — Eru fleiri gistihús í bænum? — Já, það eru þar nokkur þjófabæli, hvert öðru verra. — Þetta er ágætt, hérna er skildingur fyrir upplýsingarnar, sagði Taylor og kvaddi ekilinn, sem sat undrandi og horfði á eftir þessum tveim merkilegu mönnum, sem gengu í áttina til Czer- now. Allt í einu sló ekillinn á ennið á sér. Auðvitað! Þetta er náttúrlega hann sjálfur — Ameríkumaðurinn — hann talaði einkennilegt mál. Hann hefir - Fimm tundurspillum, sem ít- alir höfðu á Rauðahafi, hefir verið sökkt, þrem af Bretum og tveim af ítölum sjálfum. Tund- urspillar þessir-höfðu aðalbæki- stöð í Massawa. CULLIFORD & CLARK Ltd. Bradleys Chambers, London Street, Fleetwood, effa GEIR H. ZOEGA Brezki herinn sækir fram frá Diredawa til Addis Abeba og hefir þegar farið um 100 mílur, en alls er þessi leið 280 mílur. Sameiginlegur her Breta og Abessiniumanna sækir einnig til Addis Abeba að norðan. Daladier og Reynaud fyrv. forsætisráðherrum Frakklands, sem Vichystjórnin lét taka fasta, hefir verið sleppt iaus- um. Vikuna, sem endaði 23. marz, var sökkt skipum, sem námu 59 þús. smál., fyrir Bretum og Bandamönnum þeirra. Vikuna, sem endaði 16. marz, var tjónið 94 þús. smál. og vikuna, sem endaði 9. marz, var tjónið 99 smál., og vikuna sem endaði 2. marz, var sökkt 148 þús. smál. Símar 1964 og 4017, er gefur frekari upplýsingar. The World’s News Seen Through The Christian Science Monitor An International Daily Newspaþer ú Truthful—Constructive—Unbiased—Free from Sensational- ism — Editorials Are Timely and Instructive and Xts Daily Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make the Monitor an Ideal Newspaper for the Home. The Christian Science Publishing Society One, Norway Street, Boston, Massachusetts Price $ 12.00 Yearly, or Jfl.00 a Month. Saturday Issue, including Magazine Section, $2.60 a Year. Introductory Offer, 6 Issues 25 Cents. Narae-------------------------------------------- Aaktrew., Kopar, aluminium og flelri málmar keyptir í LANDSSMIÐJUNNI. ♦ ÚTBREIÐIÐ TÍMANN ♦ Vinnið ötullega fgrir Tímann. ITÍMUVN er vífllesnasta anglýsingablaðið!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.