Tíminn - 19.04.1941, Side 1

Tíminn - 19.04.1941, Side 1
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. SÍMAR: 4373 og 2353. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9A. Sími 2323. PRENTSMIÐJAN EDDA hJ. Símar 3948 og 3720. 25. ár. Reykjavík, laugardaglnn 19. apríl 1941 44. blaðl Aukin iramlög til byggínga íbúðarhúsa í sveitum Georg Ólafsson bankastjórí Um undanfariö tuttugu ára skeið hafa þrír menn staðið hlið við hlið við stjórn íslenzka þjóðbankans. Þeir komu frá mismunandi störfum og með ó- líkan undirbúning. En þeir unnu saman og studdu hver annan við það vandasama verk að gera hinn niðurbælda og vanhirta Landsbanka að þjóð- banka, með meginforustu i fjármálum landsins. Þetta verk þeirra þremenninganna er eitt af þýðingarmestu átökunum í sjálfstæðisbaráttu íslendinga. Georg Ólafsson var fæddur og uppalinn í Reykjavík, og leit á höfuðbæinn með þeirri son- arlegu aðdáun, sem allir nýtir menn finna til gagnvart æsku- stöðvum sínum. Hann stundaði hagfræði í Kaupmannahöfn og lauk þar námi með lofsorði kennara sinna. Eftir heimkomu sína tii Reykjavíkur var hann um nokkurra ára skeið skrif- stofustjóri verzlunarráðsins. Þaðan fluttist hann ,í Lands- bankann mitt í erfiðleikum kreppunnar eftir fyrra heims- stríðið, og settist þar við hlið Magnúsar Sigurðssonar og Lud- vigs Kaabers. Staða bankastjóranna í Landsbankanum er eitthvert á- hyggjumesta og erfiðasta starf í landinu, ekki sízt á umróts- tímum eins og undangengnum árum. En Georg Ólafsson dró sig ekki í hlé frá erfiðum störfum. Hann var sívinnandi í bankanum, næstum að segja alla daga ársins, frá því hann tók við bankastjórastöðunni og þar til hann var orðinn sár- þjáður af banameini sínu, nokkrum vikum áður en hann andaðist. Georg Ólafsson var vel bú- inn undir starfið, bæði sökum lærdóms og margháttaðrar reynslu, er hann hafði aflað sér. En meira skipti þó hitt, að hann var gæddur óvenjulega sterkri réttlætiskennd, sem jafnan kom fram í starfi hans. Velgengni Landsbankans og velgengni þjóðarinnar voru fremstu á- hugamál hans. Nú er Landsbankinn og land- ið á háskalegum tíma svift starfsorku og manndáð þessa örugga og þrautreynda for- ustumanns. Hann var enn á miðjum aldri og vinir hans og samstarfsmenn væntu þess, að hann ætti langt líf fyrir hönd- um. Nú er hann fallinn frá, en í fjármálasögu landsins mun lengi minnst hins farsæla starfs, sem atorku- og drengskap- armenn unnu saman í stjórn íslenzka þjóðbankans á hinu ó- rólega tímabili milli tveggjá heimsstyrjalda. Hlutur Georgs (Framh. á 4. slöu.) Landbúnaðarnefnd e. d. leggnr til að eiidur- byggingarstyrkurinn verði tvöfaldaður. Landbúnaðarnefnd e. d. hefir nýlega lagt fram frv. um breytingar á lögum um byggingar- og landnáms- sjóð. Aðalbreytingar frv. eru að hækka framlög ríkisins til byggingarsjóðs og endur- bygginga sveitabæja. Helztu breytingar frv. eru þessar: Árlegt framlag ríkissjóðs til byggingarsjóðs, sem veitir lán til að byggja sveitabæi, hækkar úr 200 þús. kr. í 250 þús. kr. Árlegt framlag ríkissjóðs til að styrkja endurbyggingu sveita- bæja hækkar úr 125 þús. kr. í 250 þús. kr. Verði um eitt eða fleiri ár ekki reist það mörg í- búðarhús, að allt framlagið þ'urfi til byggingarstyrkja, skal sá hluti þess, sem afgangs verður á hverjum tíma, leggjast í sjóð og ávaxtast, þar til styrkþörfin verður meiri en svo, að hið ár- lega framlag geti fullnægt henni. Styrkurinn er óaftur- kræfur. Hámark lánsupphæðar úr byggingarsjóði og endurbygg- ingarstyrks til einstaks býlis er hækkað úr 6000 kr. í 8000 kr. Upphæð endurbyggingarstyrks var áður frá 500—1500 kr., en samkvæmt frumvarpinu ber að hækka- styrkinn með tilliti til þeirrar hækkunar, sem hefir orðið á byggingarkostnaði síðan 1939. Hámarkslán til nýbýla er hækkuð úr 3500 kr. í 4500 kr. og hámarksstyrkur til nýbýla er einnig hækkaður úr 3500 í 4500 kr. Þá er gerð nokkur breyting á skipun nýbýlastjórnar. Hér í blaðinu hefir iðulega verið vikið að því, að hækka ætti framlög ríkisins til bygg- (Framh. á 4. síðu.) Annað þing S.U.F. Það verðnr haldið dagana 22.-25. maí næstkomandi. AnnaÖ þing Sambands ungra Framsóknarmanna verður háð sunnanlands dagana 22.—25. maí næstkomandi. Félög ungra Framsóknar- manna hafa rétt til að senda á þingið einn fulltrúa fyrir fyrstu 10 félagsmennina og síðan einn fulltrúa fyrir hverja 15 félags- menn. Þar sem ekki eru félög, geta 15 menn eða fleiri, á aldr- inum 15—30 ára, með undir- skriftum sínum falið manni að mæta á þinginu. Á þinginu munu bæði verða rædd almenn landsmál og fé- lagsmál ungra Framsóknar- manna. Tíminn til þinghaldsins er sérstaklega heppilegur, þar sem tveir af fundardögunum eru helgidagar. Kostnaði við ferða- lög og dvöl á þinginu mun verða jafnað niður á fulltrúana eftir vissum reglum, og mun það draga úr kostnáði þeirra, sem lengst eiga að sækja. Fyrsta þing S. U. F. var haldið að Laugarvatni í júní 1938. Mættu þar um Í00 fulltrúar. Á undanförnum árum hafa sam- tök ungra Framsóknarmanna starfað meira en félög ungra manna í öðrum flokkum. Þessu þarf að halda áfram. Ungir Framsóknarmenn verða því að fjölmenna á þing sitt í vor og sýna þannig áhuga sinn og styrk samtaka sinna í verki. Stjórn S. U. F. beinir því þeirri ósk til stjórna félaga ungra Framsóknarmanna, að þær hefjist þegar handa um kosningu fulltrúa á þingið. Þar sem félag er ekki starfandi, beinír stjórnin þeirri ósk til áhugamanna, að þeir gangist fyrir stofnun félags eða söfnun undirskrifta í því skyni að senda fulltrúa á þingið. All- mörgum slíkum mönnum hafa þegar verið send nauðsynleg kjörgögn og er þess vænst, að (Framh. á 4. síðu.) Enski jlugherinn hefir getið sér mikinn orðstír í orustunum í Grikklandi og Líbyu undanfarna daga. Hér á myndinni sézt œðsti yfirmaður hans, Sir Arcibald Sinclair flugmálaráðherra, ásamt hélztu aðstoðarmönnum sín- um. ■ Situr hann fyrir miðju borðinu. Sir Arcibald Sinclair er formaöur frjálslynda flokksins og er talinn einn hinna efnilegustu af yngri stjárn- málamönnum Breta. Hann er um fimmtugt. Hann barðist í hevnsstyrjöld- inni og hlaut majorstitil. Eftir heimsstyrjöldina var hann um skeið einka- ritari Churchill, sem þá var ráðherra. Sinclair hefir verið þingmaöur síðan 1922. Hann er af skotzkum aðalsœttum. Styrjöldín á Baikanskaga Styrjöldinni í Júgóslavíu erj nú lokið. Þeir herflokkar, sem voru ósigraðir, báðu um vopna- hlé á fimmtudaginn, og gekk vopnahlé í gildi á hádegi í gær. Herinn gafst upp skilyrðis- laust, enda var vörn hans von- laus. Þjóðverjar telja það að von- um mikinn sigur, að hafa þannig gersigrað júgóslav- neska herinn á 12 dögum. En þess ber að gæta, að þeir höfðu ítalska, ungverska og búlgarska herinn til aðstoðar og gátu sótt Júgóslava úr öllum áttum. Út- búnaður júgóslavneska hersins var líka margfalt lakari. Þýzki flugherinn gat unnið öll þau eyðileggingarstörf, sem honum þóknaðist, og Júgóslava skorti öll helztu varnartæki gegn véla- hersveitum þeirra. Hins vegar ber að viðurkenna, að þýzka hernum hefir veizt auðveldara að yfirstíga ýmsar náttúru- hindranir en Bandamenn gerðu ráð fyrir, en mikill hluti Júgó- slavíu er mjög erfiður til sókn- ar. Erlendir blaðamenn lýsa mjög átakanlega því eyðileggingar- starfi, sem þýzki loftherinn hef- ir unnið í Júgóslavíu. Einkum virðast árásir hans á höfuð- ,A KROSSGÖTTJM Hraðfrystihúsin, Aflabrögð í marz. — Laxganga í Núpsá. ræktun. — Gjöf til bálstofu. Ætisveppa- 35 hraðfrystihús eru nú starfandi á öllu landinu, að því er Fiskimála- nefnd hefir hermt 'I'ímanum. Vegna þess, að ísfisksflutningur til Englands hefir teppzt um hríð, hafa miklar fisk- birgðir safnazt í sum þessara hrað- fyrstihúsa, ekki sízt þar sem tilfinn- anlegur hörgull hefir verið á salti til þess að salta fiskinn með. Tvö hrað- frystihúsanna eru þegar orðin full, svo að þar er eigi kostur að frysta meira af fiski. Eru það hraðfrystihúsin í Ól- afsvík og Njarðvík. Ýms önnur hrað- frystihús eru í þann veginn að verða full, svo að ekki getur á iöngu liðið, þar tíl þar verður ekki rúm fyrir meiri fisk, svo fremi sem aflabrögð haldast og sjósókn, og ekki rætist betur úr um fiskflutningana en á horfist nú. Sums staðar mun eiga að ætla flatfiski nokk- urt nim í frystihúsunum, og verða þau ekki fyllt af öðrum fiski af þeim sök- um. — t t t í Ægi, sem er nýkominn út, er yfir- lit um aflabrögðin í verstöðvunum í marzmánuði. í Hornafirði hefir aflinn orðið mestur 28 skippund á bát í róðri. Loðna veiddist þar, er leið á mánuðinn og forðaði það beitiuskorti. í Vest- mannaeyjum aflaðist lengst af vel þenna mánuð, og á þá báta, er nota botnvörpu, hefir fengizt ágætur afli. Hæstu hásetahlutir námu rösklega 6000 krónum í lok marzmánaðar. Síðari hluta mánaðarins veiddist vel á hand- færi á Landeyjasundi. Bændur úr Landeyjum sóttu sjó frá Landeyjasandi á sjö bátum síðustu viku mánaðarins og öfluðu vel. Á miðum Þorlákshafnar, báta hafa aflabrögð verið öllu tregari. Grindavíkurbátar fengu sæmilega veiði í net austur af Krísuvíkurbjargi, en lítið á heimamiðum, nema í tveim fyrstu lögnunum. Á aflahæsta bátnum höfðu hásetar fengið 2500 krónur í hlut, auk lifrarhluts og 130 skippunda af fiski, er lagður var í salt af bátnum. Sá bátur hafði farið 56 sjóróðra. í Sandgerði hafði aflahæsti báturinn fengði 800 skippund í 58 róðrum. Nam lifrin, að talið er, um 30 þús. lítrum. Aflalægsti báturinn var með 220 skip- pund úr 32 róðrum. í Keflavík var góður afli lengst af í marzmánuði. Einn bátur fór 26 róðra í mánuðinum. Mestur afli frá áramótum nam 900 skippundum, en minnst var 200 skip- pund á bát. Útilegubátar úr Reykjavík fengu góðan afla í vetur. Á Akranesi fór einn bátur 24 róðra, sá er fastast sótti sjóinn. Afli var lengst dágóður og stundum ágætur. Hæstu liásetahlutir nema 8000 krónum frá áramótum. Á þann bát höfðu aflazt nær 340 smá- lestir fiskjar. Meðalhlutur er álitinn 7000 krónur, en meðal lifrarfengur á bát 19 þúsund lítrar. Bátar frá Sandi og Ólafsvík hafa fiskað vel, en þó ekki að sama skapi og bátar syðra. Fyrstu viku marzmánaöar voru Stykkishólms- bátarnir frosnir inni, en sóttu eftir það suður fyrir jökul. Opnir bátar sóttu seinustu viku mánaðarins á Höskulds- eyjai'mið og öfluðu sæmilega. Á Vest- fjörðum hefir afli verið misjafn. Þrír þilfarsbátar frá Patreksfirðl öfluðu fremur lítið. Fjórir þilfarsbát- ar frá Bildudal fiskuðu og tregt. Frá Flateyri gengu átta bátar, einn frá Þingeyri og sjö eða frá Suður- eyri og öfluðu allir fremur lítið. Bátar frá Bolungarvík öfluðu dável siðari hluta mánaðarins. ísafjarðarbátar fiskuðu vel allan mánuðinn og var stundum góður afli á smábáta á inn- miðum. Aflahlutir voru beztir 1000 krónur í marz og voru í lok mánaðar- ins komnir yfir 4000 krónur frá ára- mótum. t r t Sú frétt hefir borizt norðan úr Mið- firði, að lax sé genginn í Miðfjarðará, og vita menn eigi til, að lax hafi áður gengið í ána svo snemma á tima. í gær sáust 18 nýrunnir laxar i Núpsá, sem er ein af þeim ám, er mynda Mið- fjarðará. t t r Fyrir nokkru síðan lét Jón Jónsson frá Laug af starfi sínu sem lögreglu- þjónn í Reykjavik og reisti nýbýli á æskustöðvum sinum, rétt við túnið á Laug í Biskupstungum. Smíðaði hann sér þar nokkur gróðurhús og hóf rækt- un ætisveppa. Hefir honum heppnazt mjög vel þessi nýjung í ræktun á ís- landi og komu fyrstu ætisveppirnir á markað hér í Reykjavík í fyrradag. — Víða um lönd eru ætisveppir hin eftir- (Framh. á 4. síðu.) borgina, Belgrad, hafa verið ægilegar, og er talið, að hún hafi verið enn ver leikin en Varsjá og Rotterdam. Megin- hluti borgarinnar er í rústum og þúsundir manna fórust í loftá rásum. Belgrad hafði verið lýst óvíggirt borg og voru þar sama og engin loftvarnarbyrgi eða loftvarnir. Það var utanríkismálaráð- herrann í stjórninni, sem var hrakinn frá völdum vegna samningsins við öxulríkin, er undirritaði vopnahléssamning- inn við Þjóðverja, ásamt einum lítt þekktum hershöfðingja. Þjóðverjar hafa tilkynnt, að haldin verði ráðstefna um framtíð Júgóslavíu. Pétur kon ungur og Simovitch forsætis- ráðherra munu vera komnir til Grikklands. Þótt vörn Júgóslava stæði ekki lengur, hefir hún haft verulega þýðingu fyrir Banda' menn. í fyrsta lagi hefir hún bundið allstóran hluta þýzka hersins, sem annars hefði get- að beitt sér í sókninni til Grikk- lands, meðan Bandamenn voru að treysta varnir sínar þar. í öðru lagi hefir hún valdið Þjóð verjum verulegu tjóni, bæði á mönnum og hergögnum. Það er t. d. talið, að Júgóslavar hafi eyðilagt 300 þýzkar flugvélar. Seinustu dagana hafa Þjóð- verjar mjög hert sókn sína í Grikklandi. Hefir hún orðið þess valdandi, að Grikkir verða (Framh. á 4. siðu.) Aðrar fréttir. Sókn þýzk-ítalska hersins v: landamæri Libyu og Egiptf lands, er stöðvuð a. m. k. í bil Árásum þess á Tobruk, þar sei er talsverður brezkur herafí hefir verið hrundið. Koryzis, forsætisráðhei Grikkja, andaðist skyndilega gær. Ókunnugt er um dánai orsökina. Mikil loftárás var gerð á Ber- lín í fyrrinótt sem svar við hinni miklu loftárás Þjóðverja á London nóttina áður. Árás þessa gerði ný tegund sprengju- flugvéla, sem Bretar gera sér miklar vonir um. Skemmdir munu hafa orðið miklar. Þjóð- verjar gerðu einnig miklar loft árásir víða á Bretlandi i fyrri- nótt. Skattar í Bandaríkjunum verða hækkaðir um þriðjung. Hefir náðst um þetta samkomu- lag milli flokkanna. Churchill hefir tilkynnt, að Bretar muni gera árás á Róma borg, ef Þjóöverjar gera árás á Kairo og Aþenu. Churchill sagði að ítalir ætluðu í blóra við Breta, að varpa enskum sprengjum á páfaborgina, ef Bretar gerðu árás á Rómaborg Hann kvað Breta myndi gæta þess, að varpa engum sprengj- um á páfaborgina. Á víðavangi SIGLINGARNAR. Siglingamálin eru nú stærsta og mikilvægasta viðfangsefni þjóðarinnar. Ef millilandaskip- in og stærri veiðiskipin bíða lengi aðgeröalaus i höfn, vofir yfir okkur þreföld hætta: 1. Atvinnuvegir landsins v stöðvast meira og minna og vöruskortur verður brátt tilfinnanlegur. 2. Erlendir menn, sem kynnu að sækja hingað vöru, myndu kaupa hana miklu lægra verði en fengist fyrir hana, ef við flyttum hana sjálfi'r. 3. Erlendir valdamenn munu telja hyggi- legra að taka skipin leigunámi en að láta þau liggja aðgerða- laus í höfn. — Öll rök hníga því í þá átt, að við megum ekki fella siglingarnar niður. Við verðum að halda áfram siglingum eins og aðrar þjóðir. En jafnframt verður að tryggja það, að sjó- mennirnir fái þá vernd, sem frekast er hægt að veita þeim. Það má heldur ekki þröngva neinum til að sigla. Menn gætu farið á skipin sem sjálfboðalið- ar og hefðu þeir þá forgangs- rétt, sem hefðu verið á þeim áður. Á þennan hátt myndi á- reiðanlega fást meira en nóg af hæfum mönnum. BRETAVINNAN. Enn halda menn áfram að hópast í Bretavinnuna. Horf- urnar fyrir framleiðsluna til lands og sjávar verða stöðugt í- skyggilegri. Hér dugir ekkert hik eða hálfvelgja lengur. Al- þingi og ríkisstjórn verða að ganga hreint til verks. Má ekki dragast lengur að gera þær ráðstafanir, sem tryggja, að framleiðslan fái nægilegt vinnuafl. En gæta verður þess, ef takmarkað verður það vinnu- afl, sem setuliðið fær í þjón- ustu sína, að það verði ekki gert á þann hátt, að það ýti undir menn að verða heimilis- fasta í kaupstöðunum. VIÐ HÖFNINA. Við höfnina ríkir enn hinn ó- trúlegasti glundroði. Skipin bíða þar afgreiðslu í svo að segja tugatali. Auk þess liggja þar skip, sem ekki aðhafast neitt, en þeim ætti að leggja inni á Sundum. Mestöll vand- ræðin við höfnina stafa af því, að þar er ekki unnið í „vökt- um“. Dagsbrún hefir nú samið við Breta um „vaktaskipti“ við vinnu hjá Reykjavík. Það er lítill vafi á, að útgerðarfélögin, hafnarstjórnin og ríkisstjórnin gætu náð samkomulagi við Dagsbrún um „vaktaskipti“, á þann hátt, að unnið væri í þrem vinnuflokkum allan sól- arhringinn. Vinnuflokkarnir skiptust svo á um að taka kvöld- og næturvinnuna. Úr- ræðaleysið við höfnina er orðið bænum og þjóðinni til áberandi ’ninnkunar, af því að úrlausn- 'n er svo nærtæk og handhæg. ÍSLENZKIR KOMMÚNISTAR OG HERGAGNAKAUP RÚSSA. Vandræðin í siglingamálun- um hafa verið hinn bezti reki á fjörur kommúnistablaðsins. Einkum hefir blaðinu verið tíð- rætt um þessi mál eftir að það bóttist sjá eygja undir þann möguleika, að þetta gæti orðið Rússum til nokkurrar bjargar. Er hugarsmíði blaðsins í stuttu máli þessi: Rússar geta selt fs- lendingum ýmsar nauðsynja- vcrur, en þeir munu hins veg- ar ekki vilja kaupa neitt a^ ís- lenzkum afurðum. Hins vegar vrntar Rússa dollara til þess að gc ta keypt hergögn og vélar í Bandaríkjunum. Til þess að við gætum skipt við Rússa, yrðu þvi íslenzku togararnir að fiska við Nýfundnaland, selja aflann í Bandaríkjunum og nota dollar- ana til þess að kaupa vörur frá Rússlandi. Þannig gætu Rúss- ar fengið nokkur þúsund doll- (Framh. á 4. síðu.)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.