Tíminn - 19.04.1941, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.04.1941, Blaðsíða 3
44. blað XÍMIM, laagardagmm 19. apríl 1941 179 A N N Á L L Dánardægnr. Júlíana Jónsdóttir, húsfreyja á Búrfelli í Miðfirði, andaðist að heimili sínu 15. febr. s. 1. Hún var fædd að Almenningi á Vatnsnesi 10. júlí 1867, dóttir hjónanna Jóns Stefánssonar og Helgu Guðmundsdóttur, er þar bjuggu lengi. Árið 1892 giftist Júlíana sál. eftirlifandi manni sínum, Jóni Jónssyni, og hófu þau búskap á Kollafossi í Mið- firði sama ár. Bjuggu þau þar í þrjú ár og síðan á tveim stöð- um öðrum í Miðfirði, en flutt- ust að Búrfelli árið 1900 og bjuggu þar alla tíð síðan. Þau hjón, Jón og Júlíana á Búrfelli, byrjuðu búskap við lítil efni, en dugnað og hag- sýni höfðu þau í ríkum mæli. Pór fjárhagur þeirra batn- andi, þrátt fyrir mikla ó- megð, og hefir heimili þeirra um langt skeið verið eitt af bezt stæðu heimilunum í sveit- inni. Þau eignuðust sjö börn, sem öll eru á lífi og hafa átt mikinn þátt í að gera Búrfell að fyrirmyndarheimili. Þrjú af börnum þeirra hjóna, Pétur, Guðjón og Elinbjörg, eru heima. Hin fjögur eru í Reykjavík, systurnar Helga og Margrét og tveir bræður, Tryggvi, hús- gagnabólstrari og Sigfús, eig- andi trésmiðjunnar Fjölnis. Júlíana sál. var vel skynsöm kona, skemmtileg í viðræðum, gestrisin og hjálpsöm. Hún var góð móðir og húsmóðir, sem veitti forstöðu stóru heimili með hinni mestu prýði. Þar hafa barnabörn hennar úr Reykjavík átt sumardvöl síð- ustu árin og notið ástríkis hennar og umhyggju. Mann- kostir húsfreyjunnar á Búrfelli sköpuðu henni vinsældir sveit- unganna og annara kunningja, og þeir geyma góðar minningar um þessa látnu konu. Sk. G. ir og æskilegir hlutir, en bættu á engan hátt framtíðarhag verkamannanna. Þar við bætt- ist svo, að vegna örðugrar vínnuaðstöðu, urðu afköstin við störfin oft lítil og léleg. Mun þetta hafa skapað nokkra lítils- virðingu á vinnunni, bæði hjá þeim, er hennar nutu, og öðr- um, er utan við hana stóðu. Verðmætin, sem á þennan hátt mynduðust, gáfu yfirleitt ekk- ert af sér, og allra sízt færðu þau verkamönnunum nokkra framtíðarlausn á atvinnuleys- ismálum þeirra. Verkalaunin, sem vinnan gaf í vasann, var hinn eini ábati verkamannsins. Og ábati þjóðfélagsins, a. m. k. i bili, var einkum sá, að vinna þessi hjálpaði til að fleyta verkamönnunum styrklaust eða styrklítið yfir örðuga atvinnu- tíma. Viðfangsefnið, sem barizt var við — atvinnuleysið sjálft, — var í raun og veru jafn ósigrað eftir sem áður. , Það skal þó viðurkennt, að fjárveiting ríkisins til atvinnu- bóta, hefir reynzt þeim stöð- um, er fjárins nutu, nokkra hjálp til þess að komast yfir undanfarin kreppuár, enda hafa sumír þessara staða notað hluta af fénu til árlegra rekstrarút- gjalda við götur sínar, vegi o. fl. Þó er mér ekki með öllu grun- láust um, að vitneskjan og orð- rómurinn um atvinnubóta- vinnuna hafa sumá staðar átt nokkurn þátt í því, að auka að- streymi manna á mölina og gera suma kaupstaðarbúana fjTir- hyggjulausari um sjálfstæð at- vinnubjargráð. Ef þessi grunur Saga íslendinga í Vesturheimi NHDURLAG. Það voru töluverð harðindi sjöunda áratug aldarinnar; er sennilegt, að það hafi aukið þennan vesturfarahug, sem bú- ið var að kveikja upp. Árið 1868 var hafísaár mikið, er ,ís var landfastur fyrir Norður- landi, til þess 18 vikur voru af sumri; en siglingar tepptust svo að segja alveg til Norðurlands. Var þá mikill og almennur skortur á öllu Norðurlandi. Er mér þetta töluvert minnisstætt þó ég væri ungur, því brauð fengum við börnin ekki á mínu heimili, nema af skornum skammti. Pellir var ekki þetta vor, því vetur mun hafa verið fremur mildur. Áttundi áratug- ur aldarinnar var betri, þó ekki væri talið góðæri. Þá hófust vesturferðirnar til Canada úr Þingeyj arsýslu Á þessum áratug komu hin skæðu eldgos úr Dyngjufjöll- um, og úr Sveinagjá á Austur- fjöllum árið 1875. Urðu eldgos þessi ein hin skæðustu er sögur fara af. En ekki veit ég til, að þau hafi rekið neina menn úr Þingeyjarsýslu til Ameríku. eru inn á miðjum öræfageymi landsins. Það var því engin hætta á, að eldur þaðan næði til byggða. En aska og vikur barst langar leiðir. Askan féll yfir Austurland. Lagði I eyði nokkra bæi á Jökuldal og gerði yfirleitt mikinn skaða á Aust- urlandi, þótt nú sé löngu yfir það gróið. Á austurfjöllum var hráungos, sem gerði ekki neinn skaða í byggð. Hraunið rann yf- ir nokkurt svæði úr afrétt Mývetninga, er Reykjahlíð á. Þar er nú svo mikið landrými, að til stórskaða gat þetta ekki talizt. En Mývetningar og fleiri fengu að sjá og heyra þau und- ur, sem munu ekki hafa liðið þeim úr minni. En nú eru fáir af þeim lifandi, sem þá voru komnir á legg. Þann ægilega trölladans fá tiltölulega fáir nokkurn tíma að sjá eða heyra, er stór björg eins og heil hús, þeytast glóandi upp í loftið, skella þar saman, svo jörðin skelfur langar leiðir í burtu. Gosin eða gígarnir, er upp úr vall, voru stundum allt að 20. Þeir lágu því nær í beinni línu og fremur stutt á milli, svo eld- bjarmann lagði saman, og langt upp á himin, svo bjart var yfir allri Mývatnssveit um hánótt. En sveitin var sem næst í 15—20 km. fjarlægð. — Þó ég ungur væri — aðeins 14 ára, er þetta skeði, þá þori ég að full- yrða, að enginn varanlegur ótti, eða flóttahugur greip menn. Margir Mývetningar búa Vegna jarðaríarar Georgs Ólafssonar banka- sfjóra verdur bönkunum lok- að kl. 11 f. h. laugardaginn 19. apríl. . / Utvegsbankí Islands h.i. Búnaðarbankí Islands. Sendisveinar óskast 1. maí næstkomandi. MJÓLKURSAMSALAN. við gömul eldsumbrot eða al- veg á gömlum gígbarmi, — og ekki liðin nema rúm öld frá því er annað hraun rann niður í Mývatn að norðan, rétt hjá Reykjahlíð og kring um kirkj- una, þar sem hún stendur nú. — Það er ekki til lengdar hægt að hræða menn á eldinum, eða fá menn til að flýja eld, sem einhverntíma kunni að gjósa upp, og standa voði af. Það er í rauninni ekki nema nábýlið við eldfjöllin, Heklu og Kötlu, sem orðið hafa fyrir ógnum eldsins, er lagt hefir í eyði heil- ar sveitir. Nokkrum sinnum hefir öskufall dreifst yfir land- ið, en þá aðallega um óbyggð- ir, og ekki valdið stórmiklu tjóni nema það sem nefnt er hér að framan. Meginhluti hins byggða lands hefir verið laus við elds- umbrot og beinar afleiðingar þess. Þessar ógnir eldsins, sem á að gera nær óbyggilegt hér á landi, og höf. gerir svo mikið með, er raunar smáræði hjá öðru, sem yfir mönnum grúfir nú. En jarðhitinn að öðru leyti, sem fundizt hefir nothæfur í flestum byggðum landsins, - hann er eitt af miklum verð- mætum þess. Nú eru liðin svo 50 ár, að við höfum ekki af verulegu harð- æri að segja. Það eru ekki nema elztu menn, sem muna íslenzk- an vetur í almætti sínu, eða vor, sem eru mörgum vetri Ef þvo skal rúmteppi, föt úr ull, flónelsflíkur, silkitau, gluggatjöld og annan slíkan þvott, er hið úthrærða Perlu-duft látið í vatn, §em er nýmjólk- urvolgt (ekki kalt). Þvotturinn hreyf- ist rösklega með höndunum í 7—10 mín- útur, skolist vel úr hreinu vatni, tvisvar sinnum. Mislitur fatnaður, sem hætt er við að míssi lit, skal þveginn á sama hátt. Fatnaður, sem þarf að sýna sérstaka nærgætni, svo sem barnaföt, silkiblúsur, silkinærföt, skinn og tauhanzkar, vaskaskinn, slæður allskonar. o. s. frv., skal þveginn sem hér segir: 1 matskeið af Perlu-dufti hrærist vel út í köldu, tárhreinu vatni og heliist í 1 lítra af volgu vatni. Það, er þvo skal, gegnbleyt- ist vel í leginum og þvælist í 5—10 mín- útur. Skolist vandlega tvisvar sinnum í hreinu, köldu vatni. PERL4 SJÁLFVIRKT DVOTTAEFM er á rökum reistur, má segja, að tilgangurinn með atvinnu- bótavinnunni hafi að verulegu leyti misst marks. Erfitt er að gera sér rétta grein fyrir, hve mikið at- vinnuleysið hefir verið á und- anförnum árum. Samkvæmt skýrslum hagstofunnar, sem ár- lega eru unnar úr hinni lög- boðnu atvinnuleysisskráningu, er fram á að fara í öllum kaup- stöðum landsins, hefir árlegt at- vinnuleysi síðastliðin 10 ár ver- ið sem hér segir, miðað við 1. nóv. ár hvert Árið 1931 .... 1526 — 1932 .... 731 — 1933 .... 831 — 1934 .... 719 — 1935 .... 510 — 1936 .... 609 — 1937 .... 617 — 1938 .... 804 — 1939 .... 792 — 1940 .... 100 Síðustu 6 árin ná leysistölurnar aðeins yfir Reykjavík, þar eð hagstofunni hafa ekki borizt skráningartöl- ur frá hinum kaupstöðunum. Þessar atvinnuleysistölur, sem munu vera allt of lágar, sýna samt sem áður, að atvinnuleysið hefir verið landlægt hjá okkur síðasta áratuginn. Meginorsak- anna er áreiðanlega að leita í þeirri gjörbyltingu í atvinnu- háttum, sem hrun saltfisks- markaðsins, samfara margra ára aflaleysi, leiddi yfir þjóðina. Það er atvinnumissir, sem um munar og eftir segir, þegar ár- leg saltfiskverkun í frekar litl- um kaupstað hrapar á einu ári úr 25 þús. skp. fiskjar, niður í 3 þús. skp. og er hér sagt frá staðreyndum, sem munu eiga sér margar hliðstæður. Þegar slíkir atburðir gerast, er eigi annars að vænta en að atvinnu- leysi láti á sér bæra, meðan nauðsynlegar breytingar á at- vinnuháttum eru að komast i kring. Hins vegar má fullyrða, að atvinnuleysið hér hjá okkur er langt frá því að vera ósigrandi þjóðfélagsástand. ísland er enn- þá land hinna ónumdu — og mér liggur við að segja — hinna takmarkalitlu möguleika. Hér er óendanleg víðátta af órækt- uðu landi, nálæg og að jafnaði fengsæl fiskimið, óþrotlegt fossaafl, jarðhlti, óendanlegir fiskiræktarmöguleikar í ám og vötnum, og er þá aðeins það helzta talið. Búfróðir menn álíta, að eigi sé búið að rækta meira en 2—3% af ræktunar- hæfu landi. Þótt fiskimiðin við strendur landsins séu stundum brigðul, má þó staðhæfa, að víðátta þeirra og aflasæld er þó langt frá því fullnotuð ennþá. Þessar tvær lífslindir — fiski- miðin og moldin — eru, einkum í samhliða notkun, öruggur at- vinnugrundvöllur fyrir marg- falt fleira fólk en hér er nú. Til þess að hagnýta fiskimiðin, þarf hæfilega marga fiskibáta af viðunandi stærðum, og til þess að handsama frjómagn moldarinnar, þarf að rækta landið. Ef fólkið hefir skip til að sækja á sjóinn og samhliða þvl aðstöðu og viðleitni til þess (Framh. á 4. stðu.) verri. — Margir álíta, að nú sé um þær tíðarfarsbreytingar að ræða, sem áður séu óþekktar í sögu landsins. Sennilega eru fá, eða máske engin, þessu lik. En þetta er órannsakað enn. Það er ætíð rétt, að búast við því lakara, þegar lengi hef- ir gott gengið. En ástæðulaust finnst mér að gera sér grýlu úr ógnum elds og ísa, eins og margar eldri sagnir gera, og nú að síðustu þessi saga Vestur- íslendinga. Enda vænti ég, að hin yngri kynslóð hugsi á ann- an veg: að enn sé hér „vonar- land hins unga sterka manns“, að hún trúi því: að ísland eigi að vera fyrir íslendinga. Jón Jónsson frá Gautlöndum. Eftirtaldar vörur höfum við venjulcga til sölu: Frosið kindakjöt af DILKUM — SAUÐUM — ÁM. NÝTT OG FROSIÐ NAUTAKJÖT, SVÍNAKJÖT, ÚRVALS SALTKJÖT, ÁGÆTT HANGIKJÖT, SMJÖR, OSTAR, SMJÖRLÍKI, MÖR, TÓLG, SVIÐ, LIFUR, EGG, HARÐFISK, FJALLAGRÖS. Samband ísL samvínnuíélaga. ODYBT! Ærkjöt i heilum og' hálfum skrokkum selst enn í nokkra daga fyrir kr. 1.80 kilóið. Notið yður þessi kostakjör! Þau standa ekki lengi að ]iessu siiíni! ÍSHÚSIÐ HERÐUBREIÐ Fríkirkjuvej* 7. — Sími 3678. 344 Robert C. Oliver: Æflntúrt blaðamannsins 341 Andlitið var magurt og nornarlegt. Hálsinn grannur og æðaber og nefið stórt. Við birtuna af ljósinu sást mjög glöggt hve Grabenhorst var líkur henni. Hún lokaði dyrunum aftur, en lét ljósið loga fyrir innan. Taylor og Bob biðu fullir eftirvænt- ingar. Nú voru þeir nær takmarki sinu en nokkru sinni fyrri. Vafalaust kæmi hann innan stundar, algjörlega grun- laus og gengi beint í gildruna. Það eina, sem kynni að vekja grun- semd hjá honum var, ef hann hefði frétt um tvo ferðamenn, er komið höfðu til bæjarins. XXV. Enoch Grabenhorst var 1 raun og veru i gistihúsinu. Sá eini, sem hann hafði nú eftir af sínum fyrri þjónum, var gestgjafinn á „Hótel Enoch“. Hann vissi ekkert um atvinnurekstur Enochs, en áleit að hann hefði aðeins haft lánið með sér erlendis og grætt of fjár. En nú var gistihússeigandinn sjálfur kominn, og kvaðst ætla að setj- ast að í bænum fyrir fullt og allt. Til þessa hafði Grabenhorst krafizt þess, að hann þegði vandlega yfir því, að hann væri í bænum. Nú ætlaði hann að lifa hér í fæðing- arbæ sínum, að vísu ekki eins rikmann- en biðu þó stöðugt eftir tækifæri til þess að ráðast á þá Bob og Taylor, sem stöðugt áminntu hvor annan um að fara varlega. — Varaðu þig á því að fara fram fyrir þá — — Haltu þig í hæfilegri fjarlægð . — Við megum ekki skjóta hér, þótt í odda skerist. Við skulum nota Jui- Jutsitakið — þú kannt það, Bob. — Nei, en ég get barið frá mér ef þörf krefur. Brátt komu þeir út í útjaðar bæjar- ins. Stór og dimm slétta blasti við aug- um þeirra. Ekki eitt einasta ljós sást þar í myrkfinu. Hér var þögult og dimmt. Tilvalinn staður til þess að láta tvo ókunnuga menn hverfa. — Þetta er kofinn, sagði annar mað- urinn i því þeir námu staðar fyrir framan litið hús, sem stóð uppi í brekku. Ekkert ljós sást í húsinu. — Já, hér býr Soffía gamla, sagði hinn, eins og til frekari áréttingar. Taylor steig eitt skref aftur á bak og Bob fór að dæmi hans. — Þökk fyrir hjálpina, sagði lög- reglumaðurinn. Hér eru fylgdarlaunin. Um leið og hann sagði þetta, réðust mennirnir á þá, eins og orðin hefðu ver- ið fyrirfram ákveðin árásarmerki. Bófarnir höfðu búizt við auðunnum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.