Tíminn - 05.06.1941, Side 4
244
Reykjavík, fimmtudagiim 5. |úní 1941
61. blað
ÚR BÆNUM
Stjórnlagadagur Dana
er í dag og taka danski sendiherrann
og frú de Fontenay á móti gestum
klukkan 4—6, svo sem venjulega.
íslandsgliman
fer fram í íþróttahúsi Jóns Þorstems-
sonar í kvöld og hefst kl. 9. Þátttak-
endur verða 10 frá íjórum félögum.
Núverandi glímukóngur, Ingimundur
Guðmundsson, tekur ekki þátt í glím-
unni. Meðal keppendanna verða Geir-
finnur Þorláksson frá Skútustöðum í
Mývatnssveit og Kjartan Guðjónsson
glímusnillingur.
Kappreiffar
Hestamannafélagsins Fáks fóru íram
á skeiðvellinum á annan hvítasunnu-
dag. Hestarnir voru reyndir í 8 flokk-
um. Á horfendur voru taldir vera á
5. þúsund. Veðmálin námu nær 16 þús-
und krónum. Úrslit urðu þessi: 1. fl.
Skei6hestar: 1. Skjóni, eig. Jón Jóns-
son, Varmadal, 29,5 sek. Hinir hlupu
upp. Bankinn gaf 22 kr. fyrir 10. 2. fl.
SkeiShestar: 1. Þokki, eig. Friðrik
Hannesson, 2. Urban, eig. Jón Böðvars-
son. Bankinn gaf 20 kr.fyrir hverjar 10.
3. fl. Stökkhestar: 1. Brana, eig. Sigur-
geir Guðvarðsson, 25,6 sek., 2. Hrani,
eig. Haukur Nielsson, Helgafelli, 25,8.
Bankinn gaf 27 kr. fyrir 10. 4. fl. Stökk-
hestar: 1. Blakkur, eig. Þorgeir H.
Jónsson, 25,4 sek., 2. Logi, eig. Sólveig
Baldvinsdóttir, 25,4 sek. Bankinn gaf
17 kr. fyrir 10. 5. fl. Stökkhestar: 1.
Hörður, eig. Finnbogi Einarsson, 27,3
sek. Bankinn gaf 35 kr. fyrir 10. 6. fl.
Úrvalssprettur skeiShesta: 1. Þokki
24,8 sek„ 2. Skjóni, 24,8 sek. Bankinn
gaf 20 kr. fyrir hverjar 10. 7. fl. Úrvals-
sprettur stökkhesta, 300 m.: 1. Hrani,
24,8 sek., 2. Austri, 25,0 sek. Bankinn
gaf 140 kr. fyrir hverjar 10. 8. fl. Úr-
valssprettur stökkhesta, 350 vi.: 1.
Hörður 27,3 sek., 2. Þráinn 27,7 sek.
Bankinn gaf 20 kr. fyrir 10.
Færeyskúr verkamaffur
varð fyrir fólksbifreið á Suðurgötu á
sunnudagskvöldið. Hann fótbrotnaði
og handleggsbrotnaði.
Brezk bifreið
ók í gær á dreng, er stóð á gangstétt-
lnni innarlega á Hverfisgötu. Lenti
drengurinn milli bifreiðarinnar og
hússins og slasaðist allmikið.
Áfengisbúffum
rikisins hefir verið lokað. Orsökin er
sú, að áfengisbirgðir eru nú þrotnar í
iandlnu. Verða búðimar eigi opnaðar
fyr en úr því rætist.
Leiffrétting:
í neðanmálsgreininni um séra Hall-
grím Thorlacius var í formálanum talað
um „æfiferil séra Hallgríms i Glaum-
bæ“, en á að vera séra Hallgríms í
Miklagarði. í frásögninni um Þórð
meðhjálpara á Garðsstöðum og ker-
aldið hljóði þessi setning svo: „og er
skoplegt að hugsa sér Þórð í faðmlög-
um við kerald þetta, þreyta að komast
út úr eldhúsinu, inn göngin....“ Litlu
neðar í sama dálki segir: „Um Grím
Pálsson segir hann þetta eitt er gæti
talizt honum til varnar," en á að vera
,vanza".
Fyrirspurn
Vill ritstjóri Tímans vera svo
góður að koma eftirfarandi fyr-
irspurn til réttra hlutaðeig-
enda:
1. Megum við, sem ræktum
rabarbara, ekki eiga von á
auknum sykurskammti mjög
bráðlega, svo hægt sé að sulta
hann og notfæra sér á annan
hátt? '
2. Ef ekki fæst aukinn sykur-
skammtur, til hvers voru menn
þá hvattir af ráðamönnum bæj-
ar og ríkis fyrir tveim árum síð-
an, að auka sem mest rabar-
Tilraun Alþbl.
(Framh. af 1. síSu.)
sterlingspund, skuli haldast,
nema samkomulag verði um að
breyta þvi.
Snemma í marz lögðum við
ráðherrar Framsóknarflokksins
fram ákveðnar tillögur um
tekjuöflun til þeás að halda
dýrtíðinni i skefjum. Var
gert ráð fyrir útflutningsgjaldi
á afurðum, sem seldust fyrir
hátt verð. Engin ákvörðun
fékkst 1 ríkisstjórninni um mál-
ið, eins og þá stóðu sakir.
Skömmu síðar kom siglinga-
stöðvunin og varð þá nokkurt
hié á málinu um sinn, þar sem
viðhorfið var þá orðið gerbreytt.
Notaði ég það hlé til að undir-
búa nýja sókn í málinu og lagði
síðan fram í ríkisstjórninni
drög að tillögum um lausn
málsins, sem voru miðaðar við
það breytta viðhorf, sem þá
hafði skapazt.
Vegna þess, hve óvist var þá
orðið um sölu og verðlag á út-
flutningsafurðum, var nú einn-
ig rætt um, að ríkisstjórnin
fengi heimild til þess að leggja
á almennan launaskatt, ásamt
útflutningsgjaldinu. Síðar var
þessari hugmynd breytt þannig
í meðförum í ríkisstjórninni, að
lagður yrði sérstakur skattur á
allar hreinar tekjur, þó með
nokkrum undantekningum.
Það eru alger ósannindi hjá
Alþbl., að hugmyndin um launa-
skatt eða almennan skatt, ásamt
útflutningsgjaldinu, hafi ekki
verið hreyft fyrr en kosninga-
frestunin var ákveðin.
— Hvað segið þér um þau
ummæli Alþbl. að þessar ráð-
stafanir séu fyrst og fremst
fyrirhugaðar til stuðnings
bændum?
— Þau ummæli eru eins röng
og framast er hægt að hugsa
sér. Bændur þurfa ekki nein
framlög frá öðrum stéttum
þjóðfélagsins til þess að fá
sanngjarnt verð fyrir vörur
sínar á innlendum markaði.
Verðlagsnefndir landbúnaðar-
ins geta ákveðið og munu á-
kveða sanngjarnt verð þessara
afurða á hverjum tíma og það
er engin hætta á, að innlendi
markaðurinn þoli ekki þetta
verð.
Hitt er svo annað mál, hversu
heilbrigðar afleiðingar það hef-
ir fyrir gildi þeirra verðmæta,
sem menn telja sig nú vera að
afla, ef verðlag og kaupgjald
heldur áfram að elta hvort ann-
að og stöðugt eru búnar til
hærri og hærri tölur á papp-
írnum, án þess að verðmæti þau,
sem á bak við standa, aukizt
hið minnsta við þetta kapp-
hlaup.
Þær ráðstafanir, sem verið er
bararækt og berjatínslu. Það
mundi þá nær að uppræta allan
rabarbara þegar í stað og auka
að sama skapi jarðeplaræktina.
Þakka fyrirfram birtingu fyr-
irspurnarinnar og vænti svars
hið fyrsta frá réttum hlutað-
eigendum.
Garffleigjandi.
ræða um í sambandi við dýr-
tíðina, eru miðaðar við að
halda uppi verðgildi íslenzkra
peninga og að koma í veg fyrir
að grafið verði undan atvinnu-
lífi þjóðarinnar, en ekki hitt,
að safna fé handa bændum hjá
öðrum landsmönnum.
Menn verða að skilja, að það
er -ekki mál bændanna einna,
að koma í veg fyrir, að verðgildi
peninganna verði gert að litlu
eða engu með síaukinni verð-
bólgu. Það er ehgu síður mál
verkamanna og launþega — það
er sameiginlegt hagsmunamál
allra landsmanna.
Það er þess vegna bezt fyrir
menn að gera sér það ljóst í eitt
skipti fyrir öll, að ef verðbólg-
an á að stöðvast, þá verður það
að gerast með sameiginlegu á-
taki allra landsmanna og
nokkrum augnabliksfórnum,
sem þó eru raunverulega engar
fórnir, af því að menn njóta
alls þess, sem fram verður lagt
jafnóðum í hagstæðari við-
skiptakjörum en ella mundu
vera.
Þeir menn, sem halda því
fram, að þær fórnir, sem þjóðin
verður að leggja á sig til að
stöðva verðbólguna, séu færðar
fyrir einstakar stéttir — ég tala
nú ekki um, þegar bent er á
kjósendur eins stjórnmála-
flokks í því sambandi, — vinna
vissulega gegn lausn málsins.
Það getur vel verið, að það
sé vinsælt nú að þykjast verja
launamenn og aðra álögum í
sambandi við lausn dýrtíðar-
málsins, en ég efast um, að
hróður þeirra, sem það gera nú,
verði talinn jafnmikill siðar, ef
þeim tekst að koma í veg fyrir,
að nokkuð verulegt verði gert í
málinu.
Grímur bóndi
(Framh. af 1. slSu.)
enn í dag, er örgustu jarðar-
níðingar og horkóngar lands-
ins eru i hávegum hafðir og
hafa sérstaka velþóknun lýð-
snópa vorra.
í sömu grein er látið skina í,
að vegur Bessastaðaskáldsins
hafi sízt aukizt við að það sat
á Bessastöðum. Þetta er helber
misskilningur, því það er eng-
inn vafi á, að hann hefði sízt
stækkað við að hýrast í ein-
hverri kytrunni í Reykjavík.
Framámenn vorir hylltust til
að fara með aufúsugesti sína til
Bessastaða og eru þess næg
vitni, að þeim þótti mikið koma
til skáldsins einmitt í því um-
hverfi.
Fyrir mitt leyti hygg ég, að
ekkert fari ver á því, að lands-
faðirinn sæti ekki fast við sjáv-
argötu og að hvorki væri tekið
ofan eða neðan af honum þótt
hann gengi á grasi, meður þvl
að ekki munu verða gerðar
kröfur til að hann fylli flokk
listamanna vorra. . m.
KAUPUM HREINAR TUSKUR
allar tegundir.
Húsgagnavinnust. Baldursg. 30.
»4 _ Victor Hugo:
þorparar og vasaþjófar Parisarborgar
slegizt í förina. Þetta var því næsta
virðulegur hópur, þegar loks var komið
á leiðarenda.
Hertoginn af Egiptalandi fór í broddl
fylkingar á fáki sínum. Hirðmenn hans
fylgdu honum eftir fótgangandi. Hlut-
verk þeirra var að halda í taumana og
istöðin. Síðast komu ótignir Egiptar.
Konurnar báru organdi krakka á herð-
um sér. Mannþröngin var óskapleg. All-
ur bar lýður þessi tötra, alsetta hvers
konar glyngri.
Þessu næst kom hersveit flakkara.
Þeir, sem lágvaxnir voru, fóru fyrír
hinum. Flestir þeirra voru haltir. Sum-
ir voru einhentir, aðrir eineygðir. í
miðri þessari fylkingu kom höfuðsmað-
ur allra umrenninga. Hann ók í léttum
vagni, sem tveir stórir hundar drógu.
Þá komu Galíleumenn. Guillaume
Rosseau, keisari yfir Galíleu, gekk inn
á' mitt torgið, valdsmannlegur á svlp.
Hann var í purpurakápu. Hún var mjög
blettuð af víni. Á undan honum gengu
trúðar, er stigu stríðsdans. Hirðmenn
hans gengu fylktu liði.
Siðast allra kom mannskrípi, krýnt
fögrum blómum. Hljóðfærasláttur
fylgdarliðsins glumdi í eyrum, og kerta-
ljós vörpuðu fölum bjarma á mannskar-
ann.
Esmeralda U
í miðjum mannfjöldanum gengu
hinir æðstu menn í fylkingunni. Þeir
báru burðarstól á herðum sér. Þar
brunnu fleiri vaxkerti en umhverfis
helgiskrín hinnar heilögu Genovevu*),
þegar svarti dauði geisaði. í burðarstóli
þessum sat hið nýkjörna borgarfífl,
hringjarinn við Frúarkirkjuna, kropp-
inbakurinn Kvasimodo. Hann var
klæddur kórkápu og bar biskupsmitur
á höfði, en krossmark í hendi.
Hver fylking þessa skrípahóps hafði
sérstaka hljómsveit.
Egiptarnir börðu trumbur sínar og
bumbur. Flækingarnir báru fiðlur,
hornahljóðfæri og básúnur. Galileu-
mennirnir voru lítillátastir í fylkingu
þessari. Þeir gerðu sig ánægða með
munnhörpur og önnur slík hljóðfæri
frá fyrsta aldursskeiði tónlistarinnar.
Það er ómögulegt að lýsa þeirri sjálfs-
*) Genoveva, vemdardýrlingur Parísarborgar,
fæddist um 420 í grennd við París. Hún var af
fátæklingum komin, en varð fræg, er hún bjarg-
aði Parísarbúum, í innrás Attila Húnakonungs í
Gallíu, þess, er þá braut undir sig ótal þjóðir í
Norðurálfu, húnskar, slafneskar, germanskar og
rómanskar. Þar, sem nú er Pantheon, legstaður
hinna frægustu Frakka, var áður kirkja, sem bar
hennar nafn, og þar er legstaður hennar talinn
vera. Hin heilaga Genoveva hefir verið tilbeðin
síðan á 7. öld. Þegar nauð bar að höndum, til
dæmis í svarta dauða, færðl fólkið henni hlnar
dýrustu gjaflr.
Sókn Þjóðverja
(Framh. af 1. síSu.)
um að nota Sýrland eftir vild,
og segja, að þegar sé komið
þangað allmikið þýzkt lið, aðal-
lega flugmenn. Hafi það aðal-
lega komið loftleiðis, en einnig
lítilsháttar með smáskipum.
Brezkar fregnir telja, að mjög
dragi nú saman með .Þjóðverj-
um og Vichystjórninni og bjóði
Þjóðverjar henni ýms fríðindi,
ef hún vilji taka upp nánara
samkomulag. Brezku blöðin
telja t. d„ að á fundi, sem Hit-
ler og Mussolini héldu í Bren-
nerskarði á sunnudaginn, hafi
Hitler reynt að fá Mussolini til
að hætta við landakröfur á
hendur Frökkum.
Ýmsir telja, að Þjóðverjar
æski ekki eingöngu eftir vin-
fengi Frakka, sökum barátt-
unnar við Breta. Þeir vilji
einnig tryggja sér hlutleysi eða
vináttu Frakka, ef Þjóðverjar
og Rússar ættu eftir að heyja
styrjöld.
í Irak hafa Bretar nú unnið
fullnaðarsigur. Þeir hafa náð
olíulindunum og olíuleiðslunum
aftur á vald sitt og ný stjórn,
sem er vinveitt þeim, hefir ver-
ið sett á laggirnar í Bágdad.
í Libyustyrjöldinni hefir að-
staðan verið óbreytt seinustu
vikurnar.
Flestum virðist, að nú standi
stutt hlé eftir sigur Þjóð-
verja á Krít, er þeir nota til að
undirbúa næsta áfanga sóknar-
innar. Vel má vera, að hann
heppnist engu síður og sigurför
þeirra haldi áfram austur á
bóginn. Churchill hefir sagt, að
vel gæti svo .farið, að Hitler ætti
eftir að komast alla leið til
Indlands. En hann væri þó litlu
nær sigrinum meðan Bretland
væri ósigrað og ekki hefði verið
skorið á lífæðina milli þess og
Bandaríkjanna. Það, sem nú
gerist, er þetta: Þjóðverja vinna
nýja sigra í'áusturvegi, en varn-
ir Bretlands styrkjast, skipa-
tjónið á Atlantshafinu minnk-
ar og vígbúnaður Bandamanna
tekur dagvöxtum. Það er því
erfitt að fella dóm um það, hjá
hvorum styrjaldaraðilanum nið-
urstaðan hefir verið hagstæð-
ari seinustu vikurnar. '
Aðalfuiidur
(Framh. af 1. siSu.)
Auk samlagsins rekur félag-
ið nú í Borgarnesi kjötbúð,
saumastofu og frystihús, en 2
kjötbúðir í Reykjavík. Seint á
árinu, sem leið, hóf félagið að
stofnsetja brauðgerðarhús í
Borgarnesi, en þar hefir engin
slík stofnun verið undanfarið.
Tók það til starfa um miðjan
febrúar í vetur.
Greiddar voru 119 þús. krón-
ur í uppbætur á vörur innlagð-
ar 1939.
Úr stjórn félagsins átti að
ganga Davíð Þorsteinsson á Arn
bjargarlæk, og var hann endur-
kosinn. Sömuleiðis var endur-
kosinn annar endurskoðandi,
Þórir Steinþórsson í Reykholti.
Fulltrúar á aðalfund Sam-
bands ísl. samvinnufélaga voru
kosnir Sverrir Gíslason í
Hvammi og Jón Hannesson í
Deildartungu.
Félagsmenn voru um síðastlið-
in áramót 597.
Á víðavangl.
(Framh. af 1. slSu.)
Alþýðublaðið. í annan stað eru
svo Jón Pálmason og Pétur
Ottesen látnir tala í útvarpið
um nauðsyn þess, að bændur
fái fullt verð fyrir afurðir
'Sínar. Meðan tveir stjórnar-
flokkarnir láta þannig stjórnast
meira af kjósendadekri en á-
byrgðartilfinningu, er eðlilegt,
að lausn stórmála gangi erfið-
lega á Alþingi.
Boðhlaup
Ármanos
umhverfis Reykjavfk fer fram
3. júlí n. k. Keppt verffur í 15
manna sveitum um Alþýffublaffs
horniff.
Öllum félögum innan í. S. 1.
er heimil þátttaka. Keppendur
gefi sig fram við stjórn Ármanns
viku fyrir hlaupiff.
r—— ----GAMLA Bíó——---—
SO\lR
TARZANS
(Tarzan Finðs A Son).
Amerísk kvikmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Johny Weissmuller,
Maureen O. Sulllvan
og John Sheffield.
Sýnd kl. 7 og 9.
--------NÝJA BÍÓ---~
HOLLYWOOD
CAYALCADE
Amerísk stórmynd frá
Fox er gerist í kvikmynda-
borginni Hollywood frá ár-
inu 1913, er byrjað var að
taka þar fyrstu filmurnar,
til ársins 1927, er tal-
myndagerðin hófst.
Aðalhlutv. leika:
ALICE FAYE og
DON AMECHE.
Sýnd kl. 7 og 9.
Sumarið og sumar-
fataefnin frá Gefjuii
eru komin.
Klæðaverksmiffjan Gefjun hefir
nú á boðstólum fjölbreytt úrval
af allskonar sumarfata- og
kápuefnum,
af meiri gæðum en nokkuru
sinni fyrr.
Gangið í Gefjunarfötum!
KlæðaverksmiSjian
e f | n n
á Akureyri.
Xotii) beztu otf vönduðustu sápunaJ
- IXotið SÆVOIX de PARIS -
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
í Reykjavfk
er á Lindargötu 9 A
Hreinar
léreftstuskur
kaupir
PrentsmiSjan Edda