Tíminn - 15.07.1941, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARPLOKKURINN.
| RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Í< RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Simar 3948 og 3720.
25. ár.
Reykjavxk, þriðjudaginn 15. júlí 1941
74. blað
oi grasspretta og ágætt útlit nm
uppskeru úr göriuni
Frásögn Steíngríms Steinpórssonar
bánaðarmálastjóra
Nú á dögum þykir það sjálfsagt, að iðnaðarfólk, skrifstofufólk og verzlunar-
menn njóti sumarleyfis. Flestir nota þau til þess að komast burt úr bœjun-
um, þar sem þeir annars lifa tiðast kyrrsetulífi árið um kring og hafa mikl-
ar innisetur. Sólskinið og hið frjálsa líf, víðs fjarri bœjarþysnum, freistar
þeirra. Tíminn birtir hér mynd af ungu fólki í fögru umhverfi undir beru lofti.
„Sorgarsaga vor og glæp-
ur yðar“
Tíminn hefir snúið sér til
Steingríms Steinþórssonar
búnaðarmálastjóra og beðið
hann að skýra sér frá
ástandi og horfum í land-
búnaðarmálum í ár.
— Yfirleitt er grasspretta góð,
segir Steingrímur, einkum á
túnum. Aftur á móti spruttu
mýrar og hálfdeigjur fremur
seint vegna þess, hve þær voru
þurrar lengi fram eftir. Sláttur
er allsstaðar byrjaður og mun
almennt hafa byrjað um siðustu
mánaðamót. Bændur sunnan-
lands náðu mest öllu af því heyi
upp, sem þeir höfðu losað, í
þurrkakaflanum nú um helgina.
Annars er fremur óþurrkasamt
um allt land og hafa bændur
þess vegna farið hægar af stað
með heyskap en þeir annars
hefðu gert. Nú eru iún víðast-
hvar orðin svo sprottin, að
nauðsynlegt er að slá þau hið
fyrsta. Víða er það mjög til
baga, að bændur hafa ekki vot-
heysgryfjur. Það er einhver al-
varlegasta búskaparsynd bænda
að ekki skuli vera votheysgryfj -
ur á hverju býli, sem rúmað
gætu um þriðja hluta alls hey-
aflans.
Verkafólksekla er mikil í
sveitum. Að vísu hefir nokkuð
áunnizt með starfi ráðningar-
stofu landbúnaðarins, en þó
vantar ennþá töluvert á, að
nægilegt vinnuafl sé fengið til
heyskaparvinnu í sumar.
Það hefir reynzt auðveldara
að fá karlmenn en kaupakonur
og er vafalaust að kaupakonu-
eklan veldur margskonar erfið-
leikum við heyskapinn í sumar.
Þrátt fyrir góða grassprettu, og
þó að sæmileg nýting fáist á
heyjum, má gera ráð fyrir minna
fóðri í haust en venjulega,
þrátt fyrir það, þótt bændur
beiti öllum kröftum sínum til
hins ítrasta. Kaupgjald í sveit-
um mun nú vera tvöfalt við það,
sem það var síðastliðið ár. Er
allmikill ótti ríkjandi hjá
bændum um, að afurðaverðið
leyfi þeim ekki að greiða svo
hátt kaupgjald.
Uppskera garðávaxta síðast-
liðið ár olli bændum miklum
vonbrigðum, enda var hún með
afbrigðum rýr. Þrátt fyrir það,
var sett mikið niður af kartföl-
um í vor, ef til vill þó lítið eitt
minna en árin 1939 og 1940. Út-
lit með uppskeru er mjög gott
í ár. Veit ég dæmi til þess, að
fyrstu daga júlímánaðar var
farið að taka upp kartöflur af
útsæðisstærð úr kaldri jörð.
Slíkt er alveg einsdæmi og gef-
ur góðar vonir um mikla upp-
skeru í haust.
Jarðræktarframkvæmdir verða
með langminnsta móti í ár, svo
að þær munu aldrei hafa verið
svo litlar áður síðan jarðrækt-
arlögin voru sett. Veldur því
aðallega vinnuaflsleysi í sveit-
Uppbótin
á mjólkurverðið
Tveir aðilar, forstjóri mjólk-
ursamsölunnar og formaður
mjólkurverðlagsnefndar, hafa
beðið Tímann fyrir viðbót
og leiðréttingu á frásögn
blaðsins, um uppbót þá, sem á-
kveðið var að greiða á mjólkur-
(Framh. á 4. síðu)
unum. Bændur hafa ekki fólk
nema til þess að sinna nauð-
synlegustu bústörfum. Þá veld-
ur það og miklu um, að bygg-
ingarefni allt er svo að segja
ófáanlegt og mjög erfitt að afla
erlends áburðar og sáðvara. Þar
við bætist, að þótt þessar vörur
til húsabygginga og jarðabóta
fengjust, þá eru þær svo dýrar,
að bændur hika mjög við að
kaupa þær/
í Ölfusforum hefir stöðugt
verið unnið að framræslu tvö
síðastliðin sumur. Ríkið á um
helming af því landi en bænd-
ur í nágrenninu um það bil jafn
stórt svæði. Upphaflega var
stofnað félag um þessar fram-
kvæmdir. Er unnið á þessu
svæði í sumar eins og að undan-
förnu og hefir Búnaðarfélag ís-
lands umsjón með starfinu.
Húsabætur verða sama og eng-
ar. Þó eru einstöku bændur að
endurbyggja bæi sína vegna þess
að þeir eiga ekki annars úr-
kosti, þar sem húsin voru kom-
in að falli.
Um 550 bændur hafa fengið
endurbyggingarstýrki frá rík-
inu s. 1. 4 ár og eru þessir styrkir
til þess að létta undir með
bændum svo að þeir geti
reist varanleg íbúðarhús á jörð-
um sínum. Vegna þess hve erf-
iðleikar eru miklir á að fá bygg-
ingarefni, hafa fáir ráðizt í
að reisa sér nýbýli í ár. Þó munu
nokkrir hafa byrjað í vor á
myndun nýbýla. Einkum er
unnið að því að fullgera eldri
býli eftir því sem auðið er. Alls
hefir nýbýlásjóður veitt fbam-
lag til um 260 nýbýla og eru
þau flest að mestu leyti full-
gerð.
Landbúnaðurinn á við ýmsa
erfiðleika að etja, og þó er sá
mestur, hversu erfitt er að fá
fólk til þess að vinna að hinum
nauðsynlegu störfum. Þó hefir
aldrei verið meiri nauðsyn en
nú, fyrir þjóðina alla, að fram-
leiðsla landbúnaðarafurða drag-
ist ekki saman, heldur verði efld
og aukin.
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis
hefir ákveðið að færa enn út kvíarnar
og mun um næstu mánaðamót opna
bókaverzlun í húsnæði þvi, er það hefir
haft til umráða í Alþýðuhúsinu, þar
sem áður var vefnaðarvörubúðin. Á að
selja þar innlendar bækur og útlendar,
ritföng og annað það, sem á boðstólum
er í slíkum verzlunum. Þessi nýja
bókaverzlun hefir gerzt aðili í Bóksala-
félaginu.
t t r
Varmahlíðarfélagið efndi til sund-
námskeiðs í Varmahlíð dagana 26. maí
til 6. júlí. Alls sóttu 192 nemendur nám-
skeiðið. Þar af voru 88 stúlkur og 104
piltar. Flestir nemendumir voru tvær
til þrjár vikur, en sumir nokkru lengur.
Aldur nemenda var allt frá fimm ára
til fimmtugs. Kennt var bringusund og
baksund, og .einnig fengu nokkrir til-
sögn í skriðsundi og björgunarsundi. Þá
voru og kenndir ýmsir sundleikir. Dag-
lega var kennt 8—9 stundir og voru
nemendur sjaldán undir 40 dag hvern.
Hver nemandi fékk til jafnaðar 2—3
stunda kennslu á dag. í lok námskeiðs-
ins fór fram próf í þeim greinum, er
kenndar voru. Tuttugu og átta nem-
endur uppfylltu tilsett skilyrði og voru
Atvínnumálaráð-
herra afnemur eínka-
sölu á matjessíld
Formaður síldarút-
vegsneSndar segir ai
sér
Mörg undanfarin ár hefir
síldarútvegsnefnd haft meö
höndum einkasölu á matjessíld,
svo sem kunnugt er, samkvæmt
reglugerð, er Haraldur Guð-
mundssoh fyrrverandi atvinnu-
málaráðherra gaf út á sínum
tíma, að heimild í lögum.
Á laugardaginn gerðust þau
tíðindi, að atvinnumálaráð-
herrann, Ólafur Thors, hafnaði
margítrekuðum tilmælum
nefndarinnar um einkasölu-
réttindi árið >.1941, og var bréf
hans þessu aðlútandi birt í
Morgunblaðinu á sunnudaginn.
Síldarútvegsnefnd sjálf hafði
í gær ekki fengið aðra tilkynn-
ingu um þessa ráðstöfun held-
ur en Morgunblaðsbréf ráð-
herrans.
í bréfi þessu eru þær ástæð-
ur færðar fram þessari ákvörð-
un til afsökunar, að menn þeir,
sem líklegt sé, að eignazt muni
rnest af þeirri síld, sem sé um
að ræða,séu þess mjög hvetjandi
að afnema einkasöluna og ráð-
herrann sé þeirrar skoðunar,
að verzlunin eigi að vera sem
minnstum* hömlum háð. Hafi
þess vegna sú ákvörðun verið
gerð, að verða við óskunum um
frjálsa sölu á matjessíld í ár.
Þá segir ennfremur, að ráðu-
neytinu hafi borizt vitneskja
um, að ýmsir kaupendur síldar
hafi snúið sér til aðalræðis-
manns íslendinga í New York,
Thor Thors, og óskað tilboða um
síld og hafi ráðuneytið símað
honum, að salan verði frjáls og
beðið hann að veita sérhverjar
upplýsingar, sem æskt verður
eftir.
í gær sagði svo formaður
síldarútvegsnefndar, Finnur
Jónsson, af sér störfum í mót-
mælaskyni við ákvarðanir at-
vinnumálaráðherrans, með svo-
látandi símskeyti:
„Ég undirritaður, sem hefi
eftir munnlegri skipan yðar
(Framh. á 4. síðu)
brautskráðir eftir reb'lum sem gefnar
eru út af fræðslumálaskrifstofunni um
sundpróf barna. Skal inna af höndum:
1. Bringusund, 200 m. 2. Baksund með
höndum og fótum, 40 m. 3. Kafsund, 8
—10 metra. 4. Troða marvaða og kafa
eftir hlut á 1,5—2,5 metra dýpi. 5.
Stinga sér frá bakka. 6. Bjarga jafn-
aldra, 20 m. 7. Flot (kann flotstöðu). 8.
Helztu grip við björgun og lífgun. —
Kennari var Guðjón Inglmundarson 1-
þróttakennari frá Svanshóli í Stranda-
sýslu, en prófdómari var Halldór Bene-
diktsson frá Fjalíi, en hann er nú bú-
stjórl 1 Varmahlíð.
t t r
Stórstúka íslands hefir beitt sér fyrir
almennri fjársöfnun til drykkjumanna-
hælis, sem fyrirhugað er að reisa þegar
nægilegt fjármagn er til þess. í Reykja-
vík einni saman hafa safnazt 17.894,17
kr. í öðrum kaupstöðum hafa safnazt
alls kr. 2569,90, en i kauptúnum
og sveitum hafa safnazt samtals kr.
2961,94. Alls hafa safnazt í landinu kr.
23.425,01.
t t t
Ásmundur Helgason á Bjargi við
Reyðarfjörð var á ferð hér syðra fyrir
nokkru siðan. Rómaði hann, hversu
í ameríska blaðinu Christi-
an Science Monitor, sem gefið
er út í Boston, birtist nýlega
grein eftir J. Emlyn Williams,
er áður var fréttaritari blaðsins
í Berlín. Fjallar hún um siða-
kenningar nazistanna þýzku,
stríðsmarkmiðið og friðinn að
styrjöldinni lokinni. Fer hér á
eftir nokkur útdráttur úr grein
þessari:
í þorpinu Röken í grennd
við Leipzig fæddist Nietzsche.
Hver, sem þangað hefir komið,
hlýtur að veita því athygli,
hversu umhyggjan, sem minnis-
merki þessa heimspekings er
sýnd, stingur í stúf við þá nið-
urlægingu, sem kirkjan sú, sem
þar er á næstu grösum, er í.
Það minnir mann á afstöðuna,
sem þjóðernisjafnaðarmenn
hafa til ofurmenniskenninga
Nietzsche annars vegar, eins og
þær eru túlkaðar þeim, og krist-
indómsins hins vegar.
í stað kristindómsins hefir i
Þýzkalandi verið þroskuð trú,
sem skipar þróttinum og þjóð-
armetnaðinum í öndvegi, þeim
vortíðin hefði verið góð austur þar.en ef
til vill fremur köld framan af og helzt
þurr, ef nokkuð var að. Voru tún farln
að byrja að skemmast, en náðu sér
aftur. Sláttur byrjaði sums staðar í
júnílok. Á Sellátrum var til dæmis
byrjað að slá laugardaginn 21. júni.
Sauðburður gekk sérstaklega vel á
Austurlandl og fénaðarhöldin voru
ágæt í vor, enda gekk fé vel undan.
Snjór var allmikill í vetur seinni hluta
þorra og góu, I Reyðarfirði með þvl
mesta, er hann verður. Frost voru í
meira lagi og ekki hægt að fást við
jarðabætur'frá miðjum nóvembermán-
uði til vors. Byrjað var að róa um sum-
armál á smábátum, en var fiskitregt.
Mánuð af sumri leit sæmilega út um
afla, en þá komu dragnótabátar til sög-
unnar, og var þá úti um aflabrögð.
Veðrið var gott,. en fiskafli svo lítill,
að ekki hefði verið róið, ef þurft hefði
að salta fiskinn. Hörgull er á vinnu-
fólki eystra, en afkoman allgóð.
r t r
Sáttasemjari hefir að undanförnu átt
hlut að þvi að miðla málum milli sjó-
manna á togurunum og togaraeigenda
um aukna áhættuþóknun sjómönnum
(Framh. á 4. síðu)
einkennum, sem skýrust eru
talin í fari Adolfs Hitlers. Hans
Kerrl, kirkjumálaráðherrann
hefir sagt: „Leiðtoginn er okk-
ur ný opinberun. Adolf Hitler
er hinn sanni heilagi andi. Sú
mesta gjöf, sem almáttugur guð
hefir gefið okkur er að vera
Þjóðverjar.“ -
Annar leiðtogi þýzkra þjóð-
ernisjafnaðarmanna, dr. Hans
Frank, landstjóri í hinum her-
numda hluta Frakklands, hef-
ir látið i ljós þá skoðun, að
Hitler „væri kallaður til þess að
vera leiðtogi heimsins.“
Baldur von Schirach, æsku-
lýðsleiðtoginn þýzki, sagði: „Að
þjóna Þýzkalandi er að þjóna
guði, að þjóna guði er að þjóna
Þýzkalandi."
í raun og veru hafa þjóðern-
isj afnaðarmennirnir þýzku með
þessu verið að skapa siðferði-
legan og heimspekilegan grund-
völi til réttlætingar stjórnarfari
sínu. Og Þjóðverjar hafa þar
haldið á þá braut, sem margir
af stjórnmálamönnum þeirra
og menningarfrömuðum hafa
gengið i heila öld.
Sá hrikaleikur, sem Þjóðverj-
ar hafa efnt til, hefir leitt það
af sér, að meginhluti heimsins,
(Framh. á 4. síðu)
Aðrar fréttir.
Hernaðarbandalagi hefir nú
verið komið á milli Rússa og
Breta, á formlegan hátt. Var
sáttmáli þeirra undirritaður í
Moskva á laugardag, að því er
gert hefir verið heyrum kunn-
ugt í Moskva og Lundúnum.
Skrifuðu Molotov og sir Stafford
Cripps undir hann. Tvö eru
veigamest atriði í sáttmálanum:
Ríkin heita hvort öðru öllum
þeim hernaðarstuðningi, er þau
megi veita og skuldbinda aig til
þess að gera ekki sérsamninga
við Þjóðverja um yopnahlé né
frið, nema samþykkis hins að-
ilans komi til. í Lundúnum er
lát-ið vel af samningi þessum.
í Sýrlandi var vopnahlé gert
á laugardagsnóttina var. Féllst
landstjóri Frakka þá á það, að
ganga að skilmálum Breta.
Vichystjórnin viðurkenndi á
laugardag, að vopnahlésamning-
ar við Breta væru hafnir, en
lýsti jafnframt yfir þvi, að ekki
yrði samið við svikara. Var
með því átt við, að Frakkar þeir,
sem gengið höfðu í lið með Bret-
um, kæmu ekki til greina, sem
Á víðavangi
ÍSLENZK GREIN í ERLENDU
STÓRBLAÐI.
Grein sú, er Jónas Jónsson,
alþingismaður skrifaði í Tim-
ann þann 16. maí 1940 um
brezka hernámið, birtist í stór-
blaðinu Winnipeg Free Press
10. maí s^ðastliðinn i enskri
þýðingu eftir S. J. Sommerville.
Greinin er birt með stórletraðri
fyrirsögn yfir þvera síðu. —
Ritstjóri blaðsins gerir grein
fyrir höfundinum á þessa leið:
„Jónas Jónsson er fremsti
maður þjóðar sinnar á tuttug-
ustu öldinni. Hann hefir haft
afskipti af uppeldismálum, fjár-
málum og stjórnmálum, ásamt
ritstörfum sínum, en föður-
landsvinur er hann þó fyrst og
fremst.
Hann er framúrskarandi elju-
og athafnamaður og hefir átt
meiri þátt í framförum lands
síns og stjórnmálasögu þess en
nokkur annar samtíðarmaður.
Jónas Jónsson stundaði fyrst
nám heima á íslandi, en siðar
erlendis, þar á meðal í Englandi
og Frakklandi, og er hann mjög
fær tungumálamaður.
Hann á sæ’ti á Alþingi (elzta
löggjafarþingi, sem til er), en .
hefir og haft forustu í tveimur
hreyfingum, er mjög eru út-
breiddar á íslandi, ungmenna-
félagshreyfingunni og sam-
vinnuhreyfingunni.
í þau tíu ár, sem flokkur
hans, Framsóknarflokkurinn,
hefir farið með völd, hefir hann
verið formaður hans og fyrsti
starfskraftur, en í flokki þess-
um eru aðallega samvinnu-
menn og frjálslyndir. Forsætis-
ráðherrastöðu hefir hann jafn-
an sniðgengið, enda mun hann
telja sig hafa frjálsari hendur
til starfa á þann hátt.
Jónas Jónsson hefir verið
dómsmálaráðherra eitt tíma-
bil, hefir stofnað samvinnuskóla
í Reykjavík og stýrt honum síð-
an, skrifað þrjár bækur og fleiri
í prentun og er fremsti ræðu-
maður og rithöfundur þjóðar
sinnar um samtíðarmál. Upp-
eldismál æskunnar í landinu
munu þó standa honum hjarta
næst. — — — “
Greininni fylgir mynd af Jón-
asi Jónssyni og tvær myndir frá
herstöðvum Breta hér á landi.
HEYSKAPURINN.
í stórum landshlutum hefir
tíð verið fremur votviðrasöm og
íhagstæð til heyskapar,það sem
liðið er af slætti. Hins vegar eru
tún viða óvenjulega vel sprottin,
3vo að grasið liggur í legum og
sprettur úr sér til mikils skaða
með hverri viku, sem líður, ef
ekki er slegið. En mörgum hrýs
hugur við því, að rífa niður tún-
in í sláttarbyrjun í óþurkatíð,
ekki sízt, þar eð nú er mjög
víða færra heyskaparfólki á að
skipa, en tíðkazt hefir. í vot-
/iðratið er það erfitt fyrir fátt
fólk, að hafa veruleg not af
kammvinnum flæsum, og sér-
:taklega er það hæpið, ef mikið
or undir. Þeir, sem á fyrri árum
hafa búið sig undir það, að
mæta rosanum og gert sér vot-
heyshlöður eða gryfjur, eru bet-
ur settir en hinir, sem hafa látið
bað hjá líða, vegna getuleysis
:;ða skeytingarleysis. Þeir standa
öðrum betur að vígi til þess að
afla skepnum nægilegs af kjarn-
góðu og heilnæmu fóðri, þótt
þeir séu ef til vill helzt til van-
búnir að mannafla til heyskap-
arins og tíðarfarið kunni að
erða rysjusamt annað veifið í
sumar.
samningsaðilar. Þó er sagt, að
Cartroux, hershöfðingi frakk-
neska sóknarliðsins austur þar,
hafi átt hlut að samningunum.
Með samningunum, fá Bretar
full umráð yfir Sýrlandi, til
styrjaldarloka.
Svartfjallaland var lýst sjálf-
(Framh. á 4. síðu)
Á. KROSSGÖTXTM
Ný bókabúð. — Sundnámskeið. — Drykkjumannahæli. — Úr Reyðarfirði. —
Sjómannasamningarnar. — Vísitalan. — Skipstrand. —