Tíminn - 15.07.1941, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.07.1941, Blaðsíða 3
74. bla» TÍMINN, þrigjMdagiim 15. júlí 1941 295 4 N N A L L Miimmgarorð. um Sólveigu Ólafsdóttir frá Mjóanesi. Á Fljótsdalshéraði sunnan Lagarfljóts, er sveit sú, sem í daglegu tali eru nefndir Skógar. Það er þó ekki sérstakur hrepp- ur, heldur hluti af Vallahreppi, en vegna landslags og vatna fráskilinn annarri byggð hreppsins. Það eru fáir bæir, og standa þeir flestir meðfram Lagarfljóti. Þessi byggð er mörgum kunn, vegna þess að þar er hinn víðáttumesti og fegursti birkiskógur, sem til er á landi hér, Hallormsstaðaskóg- ur, og þar mun sveitin draga nafn sitt. Þar er einnig bærinn Mjóanes, á nestanga, sem sker sig til norðurs í Lagarfljót. í Mjóanesi bjuggu um og eft- ir 1870 hjónin Ólafur Magnús- son og Guðbjörg Gunnlaugs- dóttir, og varð þeim 16 barna auðið, og var Sólveig ein í þeim stóra hópi, sem þau komu á legg án hjálpar annarra. Sól- veig fæddist 20. nóvember 1874, nokkrum mánuðum eftir hið ægilega gos úr Dyngjufjöllum, sem nærri lagði allt Fljótsdals- hérað í auðn á tímabili. Ólafur, faðir Sólveigar, var Magnússon, eins og fyrr getur, bónda á Glúmsstöðum í Fljóts- dal, Jónssonar, Andréssonar, bónda að Aðalbóli í Hrafnkels- dal. Jón var hinn mesti af- burðamaður að dugnaði og fræknieik og eru enn í munn- mælum sagnir um hann þar um slóðir. Afkomendur Jóns And- réssonar eru nú orðnir margir og dreifðir víðsvegar um land, og vil ég nefna, auk Sólveigar sál., Sigurð Einarsson, sem lengi bjó á Hafursá í Skógum, og er látinn fyrir mörgum ár- um, en af þeim afkomendum Jóns, sem nú eru á lífi, má nefna Björgvin Guðmundsson tónskáld á Akureyri o. fl. Móðir Sólveigar var Gunn- laugsdóttir, eins og fyrr getur, ættuð úr Breiðdal í Suður- Múlasýslu, og d.rukknaði Gunn- laugur í Lagarfljóti milli fer- tugs- og fimmtugsaldurs. Sólveig ólst upp í föðurhúsum, en fór brátt í vinnumennsku, þegar hún hafði þrek til, en kaup vinnukonu í sveit var nú ekki hátt á þeim árum, en þrátt fyrir það sá hún um uppeldi tveggja drengja, sona bræðra sinna, sem annars hefðu lent á hrakning og hjá vandalausu fólki. Ennfremur stundaði hún hjúkrunarstörf um nokkurra ára bil í sjúkrahúsinu á Brekku í Fljótsdal, en þar var þá lækn- ir Jónas Kríistjánsson, síðar læknir í Skagafirði, nú í Reykja- vík. Sólveig giftist 3. apríl 1909 eftirlifandi manni sínum, Vig- fúsi Einarssyni, fyrrum alþing- ismanns frá Höskuldsstöðum í Breiðdal, en móðir Vigfúsar var Guðrún Jónsdóttir, síðari kona Bergs Jónssonar í Vallanesi. Systkini-Vigfúsar voru Magnús sál. dýralæknir í Reykjavík, Ragnheiður, kona Björgvins fyrrum sýslumanns í Rangár- vallasýslu og Sigurður, hrepp- stjóri og smiður, nú á Keldhól- um á Völlum. Þau Sólveig og Vigfús byrj- uðu búskap að Keldhólum vor- ið 1909, og höfðu þau þá keypt jörðina og bjuggu þau þar sam- fleytt í tæp 30 ár, ekki stóru en góðu búi. Þeim varð þriggja barna auðið og komust tvö þeirra á legg, Einar, stúdent, nú við nám í landbúnaðarhá- skólanum í Kaupmannahöfn. Helga, nú við hjúkrunarnám í Reykj avík. Vorið 1938 hættu þau Sólveig og Vigfús búskap og fór Sólveig þá að læknisráði til Reykja- víkur, og fékk einhverja bót meina sinna, en það reyndist ekki til langframa, og þegar leið á sumar, ágerðist sjúkleiki hennar, sem dró hana til dauða 18. september þá um haustið. Hún andaðist á sjúkrahúsinu á Akureyri og var jarðsungin 28. sama mánaðar, í einkagrafreit að Hallormsstað, þar sem lítið barn hennar og fleiri ættingjar hvíla. Að vera húsmóðir á heimili, þar sem margan gest ber að garði, og þurfa oft og tíðum að sinna verkum utanbæ.jar, þar sem oft er örðugt með verka- fólk, er erfitt, en þessu starfi lauk Sólveig sál. með hinni mestu prýði og forsjá. Aldrei átti hún svo annríkt, að ekki væri tími tíl að sinna þeim gestum, sem að garði bar, og þeir voru margir, og veit ég, að allir þeir, sem hana heimsóttu og þau hjón, meðan þau bjuggu að Keldhólum, munu minnast hennar með þakklæti og hlýj- um hug. Einnig hafði hún tíma til, þrátt fyrir annríki sitt heima fyrir, að taka virkan þátt í félagslegri starfsemi kvenna í sinni sveit og lagði þar gott eitt til allra mála. ís- lenzka þjóðin hefir átt margar merkar og mikilvirkar húsmæð- ur í bændastétt, víðsvegar um land, fyrr og síðar, húsmæður, sem hafa slitið kröftum sín- um í þágu heimilisins og barna sinna og þar með þjóðarinnar, og fært þær fórnir, sem ekki er hægt að meta til fjár án þess að spyrja um launin. Slík- ar húsmæður eru þess verðar, að við minnumst þeirra, bæði lífs og liðinna, og sveitum þeim (Framh. á 4. síðu) fjárlaganna heimild handa rík- isstjórninni til að kaupa þetta hús, ef viðunandi samningar næðust. En þau skilyrði voru sett af fjárveitinganefnd, að ekki mætti hækka verð hússins nema um 50 þús. kr. og það þó með því skilyrði, að sú fjárhæð gengi í sjóð templara til vænt- anlegrar húsbyggingar í Reykja- vík. Var talið viðunandi að styðja byggingarfyrirtæki templara á þann hátt. Létu menn sér allvel lynda þessa lausn. Milli annarar og þriðju um- ræðu fjárlaganna, fór Hermann Jónasson að hreyfa því máli við þingmenn, að ef til vill væru Bessastaðir bezti staður fyrir væntanlegan ríkisstjóra. Um þetta varð nokkur skoðana- munur í þinginu. Voru flestir Framsóknar- og Alþýðuflokks- menn hlynntir Bessastöðum, svo og fjármálaráðherra, sem vissi, að miklir erfiðleikar voru á að fá húseignina á Fríkirkjuvegi til kaups, samkvæmt skilyrðum Alþingis. Á móti voru flestir Sjálfstæðismenn á þingi. For- sætisráðherra bar fram við þriðju umræðu fjárlaganna til- lögu, sem lagði það í vald stjórn- arinnar, hvort keypt væri hús Thor Jensen eða jörð nálægt Reykjavík, og var þar átt við Bessastaði. Tillagan var sam- þykkt með allmiklum atkvæða- mun. Litlu síðar tilkynnti for- sætisráðherra þinginu, að þá- verandi eigandi Bessastaða, Sigurður Jónasson, forstjóri tóbakseinkasölunnar, byðist til að gefa landinu frumverð Bessastaða, en það mun mega telja 100—120 þús. krónur, ef keyptar væru af honum um- bætur, sem hann hefði gert á jörðinni og bústofn sá, sem þar er. Var boðinu tekið með þökk- um. Var þar með skorið til fulls úr málinu, og það því fremur, sem Jakob Möller sagði svo frá í þinginu, að eigendur hússins á Fríkirkjuvegi myndu ekki telja það hús ofselt á hálfa miljón króna, én það var helm- ingi hærra verð heldur en fjár- veitinganefnd taldi hóflega borgun fyrir eignina. Auk þess benti fjárrnálaráðherra á, að nálega ókleyft myndi reynast að koma þeim skrifstofum, sem þar starfa, annars staðar í húsaskjól. Meðan deilt var um Bessa- staðakaupin, var því allfast haldið fram, að við Bessastaði væru bundnar sárar minning- ar frá þeim tíma, að Danir höfðu þar landstjóra sinn. Stuðningsmenn Bessastaða bentu á, að við Bessastaði væru tengd nöfn mikilla íslenzkra snillinga, svo sem Snorra Sturlusonar og Gríms Thomsen.- Þá hefði lærðiskóli verið þar á þeim tíma, þegar Fjölnismenn og margir aðrir af mestu for- vígismönnum þjóðarinnar stunduðu þar nám og urðu þar fyrir þjóðlegri vakningu. Eftir að jörðin hafði verið gefin, féllu niður opinberar deilur um gildi Bessastaða, og það því fremur sem ríkisstjórinn og frú hans voru að mörgu leyti mjög ánægð með staðinn. S A V O N de P A R I S varðveita hörund yðar — gera það mjúkt og heilbrigt og verja það öllum kvillum. SAVON de PARIS er mjúk sem rjómi og hefir yndislegan hressandi rósailm. — Notið bestu otf vönduðustu sápuna! - Notið SAVON de PARIS - Brezka herstjórnin á Islandi tilkynnir, að allar kröfnr á herstjórnina, sem stofnaðar eru fyrir 1. júní 1941, verði að sendast: HIRING OFFICE, Lauga- veg 16, Reykjavík, fyrir lok júlímán- aðar 1941. I. íl. Æðardúnn til sölu í yz kg. og I kg. umbúðum. VERSMIÐJUÚTSALAN GeSjun - Iðunn Aðalstræti Kaupum gamían kopar hæsta verði Stálsmiðjan s.f. Sími 5586 — Reykjavík. Hannes J. Magnússon: Flóttinn NIÐLTRLAG. VI. Við lifum nú mjög viðsjár- verða tíma. Alþingi og ríkis- stjórn eiga úr mörgum vanda- málum að greiða, og vafalaust ríkir þar fullur vilji að ráða svo fram úr hverju máli að til heilla horfi. En á meðan Al- þingi og ríkisstjórn greiða hin stóru vandamál, á meðan þing og stjórn búast til sóknar og varnar í hinum yztu virkjum þjóðfélagsins, fer fram mjög al- varlegt undanhald í hinum innri virkjum, heimilum lands- ins. Stofnanir, sem áður sendu frá sér úrvalslið, þjálfað og þaulæft í skóla vinnunnar, við reglusemi og aga, taka nú bæöi viljandi og óviljandi með sorg- legu þróttleysi á þessu mikla hlutverki, uppeldi æskulýðsins í landinu. Þetta undanhald verður að stöðva. Það er langt frá því, að hér eigi allir óskilið mál. Enn er fjöldi heimila, sem skilur og rækir hlutverk sitt vel. En hin eru allt of mörg, XIX, Húsið á Bessastöðum er byggt af dönskum húsgerðamönnum, eins og Viðeyjarstofa, stjórnar- ráðið og gamli landlæknisbú- staðurinn á Nesi. Byggingin er mikil og ramger, og minnir á landsetur stórhöfðingj a í öðrum löndum. Á Bessastöðum er mik- il og vegleg kirkja, sem prýðir staðinn. Auk þess má hafa þar myndarlegt bú og mikla garð- rækt. Húsakynnin á Bessastöð- um eru þess vegna hin sæmi- legustu, nægilega stór fyrir heimili ríkisstjórans og fyrir alla nauðsynlega risnu. Á Bessastöðum er ríkisstjóri eða forseti ekki í þjóðbraut, en þó nærri höfuðstaðnum. Er það mjög heppilegt meðan verið er að mypda hið æskilega við- horf til stöðunnar, að æðsti maður landsins sé ekki beinlín- is í hringiðu höfuðstaðarins. Er það og siður í flestum löndum, að sá maður, sem fer með hin æðstu völd, býr langdvölum hvert ár í sveit. í Englandi hef- ir yfirstéttin aðalheimili sín í sveit, og stundar búskap sér til aukins manndóms og ánægju. í augum slíkra manna er dvöl- in í bæjunum óhj ákvæmilegt böl, vegna starfanna. Mér þykir líklegt, að Bessastaðavera æðstu manna íslenzku þjóðarinnar geti orðið til þess að mynda for- dæmi fyrlr ýmsa aðra menn í landinu, svo að þeir kunni bet- ur en fyrr að meta gildi sveita- lífsins. Hitt er annað mál, að með tíð og tíma mun forseti lýðveldisins þurfa með einhvers (Framh. á 4. síðu) heimilinu víðsvegar um land, sem beðið hafa ósigur á þessu sviði. En hvað er hægt að gera? Það fyrsta, sem ég vií néfna, er fræðsla og leiðbeiningar. Það þarf að koma af stað alþýðlegu mánaðarriti um uppeldismál, með stuttum, vekjandi og fræð- andi greinum, sem einkum væri ætlaðar foreldrum. í rit þetta þyrfti að skrifa kennarar, upp- eldisfræðingar, læknar, prestar og hjúkrunarkonur. Rit þetta þyrfti að vera hin vakandi sam- vizka þjóðarinnar í þessum efnum, fjölbreytt og alþýðlegt, en ódýrt. Þá þyrfti að skipa einn eða fleiri heimilisráðunauta, er skipulegðu leiðbeiningarstarf- ið. Héldu uppi fyrirlestranám- skeiðum um uppeldismál, í líku sniðl og Búnaðarfélag íslands heldur uppi námskeiðum í búnaðarfræðslu. Ef til vill mætti að einhverju leyti sameina þetta starfi hinna væntanlegu námsstjóra, en þá þyrftu þeir að vera fleiri en tveir, eins og gert er ráð fyrir nú. Þá þyrfti stórum að auka húsmæðrafræðsluna og væri uppeldisfræði ein höfuð náms- grein þeirra. Kirkjan þyrfti að ná betur til heimilanna en hún gerir nú og prestar þyrftu að (Framh. á 4. síðu) Eftirtaldar vörur höfurn við venjalega til sölu: Frosið kindakjöt af DILKUM — SAUÐIJM — ÁM. NÝTT OG FROSIÐ NAUTAKJÖT, SVÍNAKJÖT, ÚRVALS SALTKJÖT, • ÁGÆTT HANGIKJÖT, SMJÖR, OSTAR, SMJÖRLÍKI, MÖR, TÓLG, SVIÐ, LIFUR, EGG, HARÐFISK, FJALLAGRÖS. Samband ísl samvínntiíélaga. Daglegar hraðferðir Revkjavík ■■ Akiirevri Afgreiðsla í Reykjavík á Skrifstofu Sameinaða. Símar 3025 og 4025. Farmiðar seldir til kl. 7 síðdegis daginn áður. — Mesti far- i þegaflutningur 10 kg. (aukagreiðsla fyrir flutning þar fram yfir). Koffort og hjólhestar ekki flutt. 108 Victor Hugo: Esmeralda 105 til neins, gerðist ég skáld. Það er þó leið, sem manni er ávallt kleif, þegar aðrar bjargarvonir bregðast, og betra var það heldur en að stela, eins og ýmsir félagar mínir réðu mér til að reyna. Dag einn hitti ég af hendingu Claude Frollo, hinn æruverðuga djákna við Frúarkirkjuna. Hann tók mig á arma sína, og það á ég honum að þakka, að ég er nú orð- inn sannur menntamaður. Það var ég, sem samdi leikinn, sem mesta aðdáun vakti í stóra salnum í ráðhúsinu í dag. Ég hefi líka skrifað bók, sem er sex hundruð síður að stærð. Hún er um halastjörnuna, sem sást 1465 og olli því, að ein kona varð brjáluð. Og mér hefir tekizt giftusamlega við fleiri viðfangs- efni. Ég hefi unnið að smíðum í þágu hersins og starfaði um hrið við stóru fallbyssuna á Karenton-brúnni, þessari — munið þér ekki eftir því? — sem hrundi niður daginn, sem hún var reynd í fyrsta skipti, og drap tuttugu og fjóra forvitna áhorfendur. Þér getið nú séð, að ég er ekki sem afleitastur föru- nautur. Ég þekki ýmsar laglegar brellur, sem ég skyldi kenna geitinni yðar. Ætli ég gæti ekki kennt henni að herma eftir erkibiskupnum í Parísarborg, þessum bölvuðum hræsnara, sem á myllu, er úð- ar á mann vatninu, ef maður fer yfir myllubrúna? Leikurinn mun líka veita Enn bar hann fram ýmsar spurningar, en hún svaraði fáu einu. — Hvað þýðir Esmeralda? spurði hann. — Ég veit það ekki, svaraði hún. — Hvaða mál er það? — Ég held, að það sé egipzkt nafn. — Það held ég líka, sagði Gringoire. Þér eruð ekki frönsk? — Ég veit það ekki. — Eigið þér foreldra? Hún byrjaði að raula lagstúf. — Hvað voruð þér gamlar, þegar þér komuð til Frakklands? juðaði Gringoire enn. — Smábarn. — Hvenær komuð þér híngað til Parísar?* *) — í fyrra. Þegar við fórum inn í borg- ina, sá ég smáfugla fljúga burt í hópum. Þá sagði ég undir eins, að nú myndi koma harður vetur. Þetta var í lok ágústmánaðar. *) Á þessum tímum komu Tatarar í stórum hópum austan að, oftast 300 saman, og var for- ingi fyrir hverjum hópi, oft nefndur hertogi eða jafnvel konungur eða keisari. Þessir Tatara- flolckar fóru borg úr borg, land úr landi, og voru víðast illa liðnir, en staðfestust hvergi. Þjóðflokk- ur þessi var á Norðurlöndum nefndur Tatarar, eins og gert er í íslenzku þýðingunni, Zigeuner í Þýzkalandi, Egyptie í Frakklandi og Gypsies I Englandi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.