Sköfnungur - 03.05.1902, Blaðsíða 1

Sköfnungur - 03.05.1902, Blaðsíða 1
Sköfnungur. I. ÁRG. í sfirðingarí Af |)vi hÍ> eina prent9miðjan, sem vorið lvefir liér á Isafirði í vetur, er algjörlega i liömlum Hpturlialdsliðsins, og þess eigi að vænta, að frjálsar umræður um málefni þjóð arinnar hafi átt þnr upp á pallborðið, þá liefi jeg ráðizt í, að flytja biugað litlu prent- vélina, sem „Þjóðv. ungi“ fyrrum var preut- aður í, og verður bún bér nú fyrst um sinn úr þessu, svo að bægt sé að gripa til henn- ar, er framsóknarflokknum bér í béraðinu þykir þörf. Vona eg, að ýmsum þyki litla prentvéún kærkominn gest ir, og að bún eigi enn eptir, að senda rnörg frjálsleg og einarðleg orð Út í heiminn, sem í gamla daga. ísafirði, 1. maí 1902. Skúli Thoroddsen. ÚR BRÉFI. (Frá ritstjóra „Sköfnungs11 til kunningja hans.) ..... „Báðir flokkar, vér, sem oss nefnum stjórnbótamenn, eða framfaraflokkinn, og hinir, landshöfðingjaflokkurinn, er sig kalla „heimastjórnarmenn“, en vér nefnum aptur- haldsliðið, látast munu fallast á stjórnbóta- frumvarp það, sem von er á frá stjórniuni, og verða á sambljóða frumvarpi síðasta alþingis, að því viðbættu, að binn væntan- legi ráðberra verðúr búsettur í Keykjavík, sem auðvitað er betra, en að hann sé í Kauptnannahöfn. Um þetta eru flokkarnir ásáttir í o r ð i, og vor flokkur hefir, með prentuðum bréfum til flokksbræðra vorra, og með bréfi til sjálfs ráðhorrans o. fl, sýnt það, að hon- um er þetta alvara, enda hefir stefna vors 1. BLAÐ. flokks i stjórnarskrármálinu jafnan verið sú, að taka það bezta, sem fáanlegt væri. En hvað skapar þá ofsann og hitann? Það er auðskilið, og stafar af þessum rökum: Þegar stjórnarskrárbreytingin kemst á, verður skipaður íslenzkur ráðherra í Reykja- vík. — Vinstristjórnin í Danmörku, sem nú situr þar að völdum, og skipar hinn vænt- anlega ráðberra vorn, litur svo á, að engan skuli ráðherra skipa, nema hann rijóti trausts meiri hluta þingsins, því að þá fari sam- vinria þings og stjórnar bezt, og verði þjóð- inni heiliavænlegust. Af þessu leiðir, að hinn væntanlegi ís- lenzki ráðhorra verður valinn svo, að hann sé í samræmi við þann flokkinn í skoðun- um, að því or til aðal-mála þjóðarinnar kemur, sem sigrar við kosningarnar, og meiru ræður á þingi. Vor flokkur lítur svo á, sem stjórn nú- vorandi landshöfðingja hafi verið þjóðinni allt annað, en happasæl, og óar því við því, ef hann, eða einhver svipaður apturhalds- fuglinn, fær æðstu völdin, enda teljum vér stjórnarskrárbreytinguna því að eins geta fengið verulega þýðingu fyrir þjóðina í bráð- ina, að hún fái þegar dugandi og framtaks- saman ráðherra, er starfar af áhuga að nauð- synjumálum honnar. Vér viljum þvi, í politiskum skilningi, brjóta hina núverandi embættis-„klíku“ í Reykjavík á bak aptur, um leið og stjórn- arskrárbreytingin kemst á. Um leið og vér því, með stjórnarskrár- breytingunni, búum í haginn fyrir komandi kynslóðir, þá viljum vér jafn framt tryggja, að núverandi kynslóðin njóti þegar góðs af henni. ísafjörður, 3. maí 1902.

x

Sköfnungur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sköfnungur
https://timarit.is/publication/210

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.