Ergo - 01.11.1920, Blaðsíða 1

Ergo - 01.11.1920, Blaðsíða 1
I. árg. Reykjavík i. nóvember 1920. 1. tölublað. Er ljósið dagsins dvínar. Ó, vertu hjá rajer, ljósið dagsins dvínar, minn drottinn, Guð, og legg mjer hönd á brá; mjer lreimur bregst með gæðagnóttir sínar; þú, guð, ei bregst, — æ, statt mjer veikum hjá. Og óðum líður ævistutta stundin, alt stundlegt líkist skugga’ er fyrir brá; og dagur liver er breytingunum bundinn; þú breytist eigi, drottinn — vert mjer hjá. Eg lít til þín, ó lífsins faðir góði, ó líttu til mín hástól þínum frá; jeg bið: mig leið, og ljettu þungum móði í ljósi’ og húmi, drottinn — vert mjer hjá. Ó, drottinn minn, í náðai-nálægð þinni hið napra loftið ylnar mjer um brá; ei gröf nje dauði geðró haggar minni. Ó, guð, í kulda’ og hita vert mjer hjá. Jón Jónsson. 1. nóvember. í tilefni af því að það er þessi dagur, nefnilega afmælisdagurinn minn, langar mig til að hleypa blaðsnepli þessum af stokkunum, með fullu trausti þess, að það megi verða mjer frekar til heiðurs en vansæmdar; að með opinberu málgagni takist mjer með hóg- væru, en þó heppilegu orðavali, að leiða sannleikann í Ijós, við- víkjandi því ósvífna og hatursfulla undirferli, sem jeg hefi verið rang- lega beittur undanfarandi ár, af herra bæjarfógeta og R. af Dbr. Magnúsi Torfasyni á ísafirði. Það er sá háttvirti herra sem jeg leyfi mjer að setja hjer á oddinn og gefst heiðruðum lesendum blaðs- ins hjermeð tækifæri til að sjá, að jeg er alls ekkert mjúkur í máli þótt jeg sje að tala við stórmenn- ið Magnús Torfason bæjarfógeta á ísafirði, sem fullur er af klækj- um, íjárdrætti og mannhelgis fals- vottorði í minn garð. Hann hræddi til dæmis unglingspiltinn Kristján Arinbjarnarson til að gefa á mig læknisvottorð, þannig úr garði gjört, að jeg tapaði öllum mann- rjettindum. Getur háttvirtum les- endum blaðsins skilist hvaða af- skaplega ósvífnislegu harðrjetti jeg var beittur með þessu, þar sem hundtyrkinn Mangi, ljet hnef- ann vera á lopti meðan hann var að kúska Kristján skinnið, sem hefir meðal annars að eðlisfari mjög veiklað kvenhjarta, en er að öðru leyti bezti drengur. Mjer þótti jeg þarna býsna hart leikinn af yfirvaldi ísfirðinga, og þegar jeg loks var viss um hvað fram fór — því jeg trúði því eigi strax — sneri jeg mjer umsvifa- laust til vinar míns Guðmundar Hannessonar, sem þá var yfirdóms- lögmaður okkar Isfirðinga. Jeg skal í þessu sambandi geta þess, að í eldraun þessari hafði sjálfboðaliði, sem vit hefir meira en meðalgreindur maður, herra íshússtjóri Helgi Ketilsson, sjeð ósköp vel hvað »úlfurinn«, undir rj ettardómstj óri ísafj arðarkaupstað- ar, sveigði fast og mjög svo óheiðarlega að mjer persónulega, sem skaðaði líka mjög svo heim- ilislíf mitt — konu og börn. Herra Helgi Ketilsson fylgdi mjer því mjög ákveðinn til herra Guðm. Hannessonar. Sagði hann strax að þetta væri tóm ósvífni af Magnúsi og lögleysa, en barna- skapur hr. Kristjáns, hins nýsetta læknis, og mætti hann alvarlega gá að sjer með að gefa ekki fals- vottorð þess efnis, að jeg væri ekki með öllum mjalla og yrði fyrir það sviftur öllum mannrjett- indum. M. T. hefir að líkindum sagt K. A- að þetta vottorð fengi hann að eins formsins vegna, eins og átt hefir sjer stað hjá ýmsum mannplöntum, sem hafa með þeim formála veitt ýmsa fáfræðinga í víxlaábyrgðir fyrir sig. Jeg spurði svo Guðmund hvort læknir gæti undir nokkrum kringumstæðum gefið slíkt vott- orð. — Nei, sagði lögfræðingurinn ákveðinn. Að eins með því móti að tveir læknar hefðu athugað einhvern mann og væru sammála um það að maður sá, sem athug- aður væri í þeim tilgangi að gefa Notarius Publicum vottorð þar um, væru sammála báðir tveir undir eiðstilboð að maðurinn væri svo og svo. Sagði hann þvínæst: Þórður minn! Taktu þessu með ró og stillingu, því þinn máls- staður er góður. Þú stendur á

x

Ergo

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ergo
https://timarit.is/publication/450

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.