Heilbrigðismál - 01.12.1949, Blaðsíða 1

Heilbrigðismál - 01.12.1949, Blaðsíða 1
Fréttabréf um 7 é/Ö'i HEILBRIGÐISMÁL Nr. 1 Desember 1949 Með þessu bréfi er Krabbameinsfélag Reykjavíkur að' gera tilraun til að halda uppi heilbrigðisfræðslu meðal almennings. Ætlunin er að senda út eitt bréf mánaðarlega og munu þau ekki aðeins fjalla um krabbamein, heldúr einnig um ýmislegt úr heimi læknavísinda og læknastarfsemi, sem líklegt þykir að almenningur vilji fræðast um. Því heyrist oft íleygt, að læknar sé tómlátir um að fræða fólkið og því ber ekki að' neita, að sumir læknar virðast vera þeirrar skoð- unar, að almenningsfræðsla um læknavísindi sé aðeins til ills eins, vegna þess að hún verði, hvort sem er, aldrei nema nasasjón, og lítil þekking sé venjulega verri en engin. Vér, sem að þessu bréfi stöndum, höldum hinsvegar að lítil þekk- ing sé betri en engin og viljum ekki láta vort eftir liggja til að fræða fólkið um ýmsa hluti, sem varðað geta heilsu og hreysti þjóðarinnar, því að eins og vér erum sannfærðir um, að fáfræði og hjátrú eru van- þroskaeinkenni þjóðfélagsins, eins erum vér sannfærðir um, að þessi vanþroski er læknanlegur með góðri næringu og' að sú næring, sem til þarf, er aðgengileg og auðskilin fræðsla. Þótt þessi fréttabréf séu gefin út af Krabbameinsfélaginu, þá er tilgangurinn með þeim eklci sá, að binda sig við krabbameinið eitt, heldur fjalla um hvað eina, sem varðar heilbrigði þjóðarinnar og orðið getur henni til þrifnaðarauka, benda mönnum á ýmislegt sem skiptir máli fyrir heilsu þeirra sjálfra og barnanna o. s. frv. Ágóði, sem verða kann af þessari útgáfu, rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Ef yður líkar vel við þessi bréf væntum vér þess að þér sýnið þau öðrum og hjálpið þannig til að stuðla að útbreiðslu þeirra og styrkja Krabbameinsfélagið. VerksmiSjustarfsemi líkamans í líkama vorum eru framleidd mörg þúsund mismunandi efni úr fæðunni, sem við neytum, vatninu sem við drekkum og loftinu sem við öndum að okkur. Flest þessara efna eru svo flókin að samsetn- ingu, að færustu efnafræðingar geta ekki framleitt þau, þótt þeir hafi heimsins stærstu verksmiðjur í þjónustu sinni. Hugsið ykkur muninn 1 ÍLAbDSEÓK/- j ......

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.