Heilbrigðismál - 01.12.1949, Blaðsíða 5

Heilbrigðismál - 01.12.1949, Blaðsíða 5
Það er ekki eitrað og engra slæmra aukaverkana varð vart þótt menn tækju 400 mg. á sólarhring. (Bull. Johns Hopkins Hospital, maí 1949) Para-aminosalisylsýra gegn berklaveiki Þetta lyf er farið að nota töluvert gegn berklaveiki og er enginn efi á því, að það hefur skað'leg áhrif á berklasýklana. Tveir enskir læknar, Nagley og Logg, birtu skýrslu um reynslu sína af þessu lyfi ekki alls fyrir löngu og sýnir hún, að þetta lyf hefur mest áhrif á fyrstu stigum sjúkdómsins, einkum þegar sjúklingurinn er með sótt- hita vegna eituráhrifa berklasýklanna. Hitinn lækkar, blóðsökk minnk- ar og sjúklingnum fer að líða betur löngu áður en batamerki sjást á röntgenmynd. Með því að nota þetta meðal er oft hægt að flýta fyrir hjöðnunarmeðferð' á lunganu. Sumir halda að lyf þetta verki á lungna- vefinn, þannig að liann styrkist í viðureigninni við berklasýkilinn. Aberandi er hve góð áhrif meðalið hefur á sjúklinginn í þá átt að bæta líðan hans. Þetta lyf er mjög lítið eitrað og berldasýklarnir virðast ekki öðl- ast aukna mótstöð'u gegn því; auk þess er það tiltölulega ódýrt. Þetta eru allt kostir samanborið við streptomycin. Ekki ætti samt að spara streptomycin við bráðaberkla, einkum eftir skurðaðgerðir, en nota má para-aminosalisylsýru með því eða á eftir. Áfengi íslendingar og áfengi virðist ekki eiga vel saman. Yegna þess hve slæm sambúðin var slitnaði upp úr samvistum 1914, en þá þótti ekki taka betra við, þegar menn fóru að' brugga, smygla, drekka óþverra og ólyfjan, og þótti ástandið svo bágborið, að loks var tekið saman aftur. Og nú eru flestir orðnir óánægðir með ástandið, þykir það aldrei hafa verið verra en nú. Við megum segja við áfengið eins og Fransmað'urinn við konuna: „Hvorki með þér né án þín get ég lifað“. Nýlega bað kona mig fyrir son sinn, livort ekki væri unnt að gera eitthvað fyrir hann, svo að' hann yrði ekki Bakkusi gersamlega að bráð. Pilturinn kom til mín og ég fór að yfirheyra hann Hann er 26 ára og hefur drukkið meira og minna síðan hann var 18 ára. Nú er það orðið svo, að þegar hann fær kaup sitt greitt á föstudögum, 500—600 kr., fer hann upp í Áfengisverzlun ríkisins og kaupir sér vín, venju- lega 3 flöskur af brennivíni: eina fyrir föstudagskvöldið' og hinar fyrir helgina. Svo er byrjað að drekka með félögunum og ekki staðnæmst við eina flösku heldur drukkið upp úr öllum þremur og oft keypt ein í viðbót fyrir 100 kr. á svörtum markaði. A laugardagsmorguninn

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.