Heilbrigðismál - 01.12.1949, Blaðsíða 7

Heilbrigðismál - 01.12.1949, Blaðsíða 7
að binda bækur, smíða, búa til módel-flugvélar, framleiða ýmislegt úr plastik, teikna, mála og móta í leir og gibs, allt undir handleiðslu kunnáttumanna. Margt af þessu unga lolki þekkir ekki sjálft sig, veit ekki á hvaða sviði hæfileikar þess eru. En hamingjan er fólgin í því að njóta hæfi- leika sinna, sagði Aristoteles og það er jafnsatt enn í dag og á hans tímum. Unga fólkið þarf að fá tækifæri til að þekkja hæfleika sína og síðan að hafa tækifæri til að njóta þeirra. I Ameríku er mikið farið að gera að því að prófa hæfileika manna og hefur það yfirleitt gefizt vel. Ég hef komið í slíka stofnun í New York og fylgzt með •slíkum prófum. Þangað kom mikið af ungu fólki til að fá sig prófað og engum gat dulizt að flestir urðu miklu fróðari um sjálfa sig við þau próf. Við þurfum að gera meira en að banna unga fólkinu að skemmta sér lengur en til klukkan tvö á nóttunni. Við þurfum að' gefa því tæki- færi til að njóta hæfileika sinna og sannfæra það um, að það getur gert ótalmargt sem er miklu skemmtilegra en að drekka áfengi. Og þegar unga fólkið hefur lært að dunda við hugðarefni sín, fer það að hugsa öðru vísi um þá sem sitja yfir drykkju. Það' vorkennir þeim og þá skapast það almenningsálit sem þarf til að hefja sig upp úr því ófremdarástandi, sem nú er ríkjandi. Skrásetning krabbameinssjúklinga Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur skrifað öllum læknum lands- ins og beðið þá um upplýsingar um alla krabbameinssjúklinga, sem þeir hafa undir hendi. Iíingað til hafa engar skýrslur fengizt um fjölda krabbameinssjúklinga hér á landi, heldur aðeins um tölu þeirra sem deyja árlega úr sjúkdómnum. En hitt er ekki síður vert að vita, hve margir læknast af sjúkdómnum og lifa hann af. Þórarinn læknir Sveins- son hefur tekið að sér að halda sjúklingaskrána og er ætlunin, að fyigjast með hverjum sjúklingi unz sýnt er hver afdrif hans verða. Til þess að geta náð árangri í viðureigninni við þennan skæða óvin er fyrsta skilyrðið að þekkja hann, fá ljósa hugmynd um ástandið eins og það er hér á landi nú, svo að samanburður verði mögulegur seinna meir. Nákvæm skrá yfir alla krabbameinssjúklinga er nauðsyn- legur grundvöllur undir þeirri starfsemi sem félagið beitir sér fyrir. Fullorönar frumbyrjur Það hefur lengi verið sagt og því almennt trúað, að hættulegt geti verið' fyrir konur að byrja seint að eiga börnin. Þegar konan nálgaðist fertugsaldurinn átti fæðingin að verða bæði henni og barninu mun 7

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.