Tíminn - 17.01.1956, Page 1

Tíminn - 17.01.1956, Page 1
Bkrílstoíur 1 Edduhúsl. Préttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusíml 2323 Auglýsingasíml 81300 Fxentsmiðjaa Edda Ritstjórl: Þórarinn Þórarinsson Ótgetandi: Framsóknarflokkurinn 40. árgangur. Reykjavík, þriðjudaginn 17. janúar 1956. 13. blað. Bifreið með heitri vél og slóð í snjó komu upp um áfengisstuldinn Tveir menn úr vegalögreglunni veittu þess- í gæzluvarðhaldi. Hins vegar munu einn eða tveir aðrir vera viðriðnir við innbrotið, en rannsókn í mál- um ummerkjum athygli og fundu felustað- in er enn ekki lokið inn í gjótu í hrauninu með 15 kössum Rannsóknarlögreglunni hefir nú tekizt að upplýsa hverjir frömdu innbrotið í birgðageymslu Áfengisverzlunar ríkisins , aðfarnótt s. 1. gamlársdags, en þá var stolið þaðan 20 kössum af áfengi, og komst innbrotið upp á heldur óvenjulegan hátt. FriSrik Óísfsson og Bent Larsen við skákborðiS. Efst á myndinni sést hið stóra sýningarborð, sem gert hefir verið vegna einvígsins. — Ljósm. Arinbj. Guðmundsson. Skákeinvígið um Norðurlanda- meistaratitilinn hefst í kvöld í kvöld hefst skákeinvígi þeirra Friðriks Ólafssonar og Bent Larsen um Norðurlandameistaratitilinn í skák. Teflt verður í Sjómannaskólanum og hefst skákin kl. 7,30. Alls munu þeir tefla átta skákir í einvíginu, en ef leikar standa þá jafnt verður teflt þar til annar hvor vinnur skák. Aðfaranótt sl. sunnudags voru tveir lögregluþjónar úr Reykjavík, þeir Jóhannes Bjarnason og Leifur Jónsson að koma frá Sandgerði, en þeir höfðu verið að starfa á vegum vegaeftirlitsins, og nokkru fyrir sunnan Straum sáu þeir vörubifreið utan vegarins. í’óru þeir og athuguðu hana, þar sem þeim flaug í hug, að bifreið- inni hefði ef til vill verið stolið. Vélin heit. Er þeir komu að henni var hún mannlaus, en greinilegt var, að hún var nýkomin á staðinn, því gangvélin var enn þá heit. Lögreglumennirnir sán spor tveggja manna frá bifreiðinni og fylgdu þeir slóðinni út í hraunið, Fljótlega varð á vegi þeirra hraungjóta og á barmi hennar stóðu tvær ginflöskur. Fannst þeim það grunsamlegt og fóru því að róta til í snjónum í gjót- unni og fundu þeir þá marga kassa af áfengi. Fundu 15 kassa af áfengi. Engir menn voru sjáanlegir þar í grend og tóku lögregluþjónarnir því það ráð, að annar, Jóhannes, skyldi halda til Reykjavíkur og gera rannsóknarlögreglunni aðvart, en Leifur beið hins vegar við kassana. Þegar Jóhannes kom til Hafnarfjarðar hringdi hann til rannsóknarlögreglunnar og fóru menn frá henni þegar á staðinn. Fundu þeir við nánari eftirgrennsl- an 15 kassa af áfengi, og kom í ljós, að þar var um sama vínið að ræða og stolið var úr birgða- geymslu Á. V. Tveir í gæzluvarðhaldi. Þótti þá sýnt, að bifreiðin stæði í einhverju sambandi við þann þjófnað, og er eigandi hennar var yfirheyrður játaði hann, að hafa staðið að áfengisþjófnaðinum. Hann hafði áður setið í gæzlu- varðhaldi, grunaður um þjófnað- inn, en þá tókst ekki að sanna neitt á hann, og var honum þá sleppt. Við yfirheyrsluna játaði hann, að annar maður hefði framið inn- brotið með sér, og hefir sá maður einnig náðst, og eru þeir nú báðir Bent Larsen kom til Reykjavík- ur aðfarnótt s. 1. sunnudags og í gær ræddi blaðamaður frá Tíman- um við hann á heimili Sigurðar Jónssonar, forseta Skáksambands íslands. Góður skákmaður. Larsen er tvítugur að aldri, og er hann því jafngamall og Friðrik. Hann lærði ungur að tefla og skömmu eftir fermingaraldur var hann kominn í fremstu röð í Dan- mörku. Það vakti mikla athygli árið 1953, er hann náði jöfnu í einvígi við Jens Enevoldsen, sem þá var kunnasti skákmaður Dana. Síðan hefir hann tekið miklum framförum, en bezta árangur sinn télur hann vera frammistöðu sína á Ólympíumótinu í Amsterdam 1954, er hann hlaut 70% á 1. borði í undanrásum og neðra flokki, og fyrir þann árangur hlaut hann titil inn alþjóðlegur meistari. Hann varð skákmeistari Dana 1954 og aftur 1955, þá með nokkrum yfir- burðum. Larsen hefir nýlega tekið þátt í tveimur skákmótum. í ung- CFramhaid á 7. síðu.) Fundur fu/Itrúaráðs Framsókn- arfélaganna í Raykjavík hefst kl. 8,30 í kvöld í fundarsalnum í Edduhúsinu. — UmrseSuefniS er sjávarútvegsmál og hefir Jó- hannes Elíasson, lögfræSingur, framsögu. ASalmenn og varamenn eru beSnir aS mæta á fundinum. Gáfu landnámi ríkisins heilan dal rækfunar og nýbýlastofnunar Landmám ríkisins hefir nú í undirMmmgi að byggja upp heil an dal, sem að mestu er kominn í eyði. Var laudnáminu gefinn dalurinn af fyrri eigendum með því skilyrði, að honum verði komið í byggð. Er hér um að ræða Svartárdal í Lýtingsstaða- hreppi, sem er gott land undir byggð, en fór í eyði mest vegna samgönguerfiðleika, enda stend- ur nú til að leggja akveg um alla sveitina, sem byggja á upp. Vildu að landnámið héldi áfram í Skagafirði. Verkefni landnámsins í Víði- mýrarlandi í Skagafirði var að verða lokið, þegar endurbygging Svartárdals komst á dagskrá. Mun landnámsstjóri hafa haft hug á Svartárdal sem næsta verk efni í Skagafirði og kom þetta rausaarleg íilboð sér því vel, og sýnir það vel, hvaða hug fólk ber til hinna stórmerku fram- kvæmda, sem landnám ríkisins hefir með höndum með bygg- ingu nýbýlahverfa. Það fólk, sem ólst upp í Svart árdal og tryggðir batt við síaa sveit, en varð að yfirgefa hana af óviðráðanlegum orsökum, hef ir nú kosið æskuhéraði sínu það hlutskipti, er það taldi vegleg- ast. Þar verða byggð átta nýbýli. Hjá nýbýlastjórn er nú í und- irbúningi áætlun um byggingu átta nýbýla í Svartárdal. Koma þau býli til með að standa á landi fiinrn eyðijarða í dalnum og liluta af landi þeirrar sjöttu, sem enn er í byggð. Vcrða þá alls 10 jarðir í dalnum. í Svartárdal eru fjórar jarðir komnar í eyði fyrir nokkru og er þar ekki um neinn húsakost að ræða. Eigendur þessara jarða Enskur togari tek- inn í landhelgi Sneinma á sunnudagsmorgun- inn var enski togarinn Robert Hevvett frá London tekinn í land- helgi, þar sem hann var 0.6 sjó- mílur innan landhelgislínunnar 12 sjómílum fyrir vestan Þrí- dranga. Varðskipið Ægir fór með togarann til Vestmannaeyja, þar sem mál haus var tekið fyr- ir. Játaði skipstjórinn brotið og var dómur kveðinn upp í gær- kveldi. Hlaut skipstjórinu 74 þús- und kr. sekt og áfrýjaði hann dóminum. Togarinn hefir ekki verið tekinn áður í Iandhelgi. voru þrír aðilar, sem gáfu ný- býlastjórninni lanaið, eins og áð- ur segir, gegn fyrirheitum um að unnið yrði að endurbyggingu dalsins eftir tillögum nýbýla- stjórnar, eða þar stofnað byggða liverfi nýbýla. Figandi fimmtu jarðarinnar, sem er nokkuð húsuð, gaf ríkinu kost á jörðinni fyrir mun lægra verð, er honum bauðst frá aðil- um, sem tæplega hefðu unnið að því að koma jörðinni aftur í á- búð. Erfiðir tímar vegna róðrarbannsins Frá fréttaritara Tímans í Stykkishólmi. Hér eru bátar tilbúnir til róðra og menn ráðnir. Er mikill kurr í sjómönnum út af róðrarbanninu. Hafa þeir skorað á verkalýðsfélag staðarins að veita þeim liðsinni. Það er nú orðin brýn nauðsyn að róðrarbanninu verði aflétt. Hér í Stykkishólmi er engin atvinna meðan bátarnir fara ekki af stað. Kemur slíkt hart niður á fólki í dýrtíðinni. Mun svo vera í fleiri verstöðvum, að þröngt gerist fyr- ir dyrum ef róðrar geta ekki haf- izt strax. i Breytingar á næt- urvöktum lyfjabtíða Nokkrar breytingar verða á næturvöktum í apótekunum hér í Reykjavík, þannig að framvegis verða aðeins afgreiddir nýir lyf- seðlar eftir kl. 24 (kl. 12 að kvöldi) frá kvöld- og næturlækni, svo og frá öðrum læknum, enda séu lyfseðlarnir sérstaklega merkt ir. Ennfremur verða afgreiddar beiðnir frá ljósmæðrum ef fæðing ber að höndum. Til kl. 24 verða afgreidd eins og verið hefir öll algeng lyf og hjúkrunargögn, svo og aðrar nauð synjar, er fólk vanhagar um. -- 1 ------------------ m, Lítið um skipakom- ur í Eyjum Um þessar mundir er heldur lítið um skipakomur í Vestmanna eyjum og dauft yfir atvinnulífi öllu, vegna róðrarbannsins. Fyrir helgina kom þangað vélskipið Odd ur með sementsfarm til Helga Benediktssonar. Viðhafnarútgáfa af Alþýðu- bókinni eftir Halldór Kiljan Jón Helgason skáld og prófessor ritar formála Nú um mánaðamótin er vænt- anleg sem félagsbók hjá Máli og menningu, Alþýðubókin, eftir nó belsverðlaunaskáldið Halldór Kiljan Laxness. Er vandað til þessarar útgáfu Alþýðubókarinn ar, sem kom fyrst út er skáldið kom lieim frá Kaliforníudvöl sinni, þar sem það meðal ann- ars ritaði uppkastið að kvik- myndahandriti, sem síðar varð bókin um Sölku Völku. Þessi útgáfa Alþýðubókarinn- ar verður prýdd um tuttugu myndum frá Nóbelshátíðinni í Stokkhólmi, þar sem íslendingur tók í fyrsta sinn á móti þessum frægu menningarverðlaunum úr hendi Svíakonungs. Vinur skáldsins, Jón Helgason, skáld og prófessor, ritar formála fyrir bókinni og er það út af fyrir sig mikill bókarauki.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.