Tíminn - 17.01.1956, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.01.1956, Blaðsíða 8
Hjlómsveit Baldurs Kristjánssonar og Haukur Morthens söngvari. Ungir Framsóknarmenn efna tií nýársf agnaðar næstu helgi Mörg góð skemiMíiatnði. - ÖÍIu flokksfólki heimif þátttaka meðan hósrúm leyfir Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjavik hefir akveðið aS efna til nýársfagnaSar á laugardaginn kemur, og hefst hann aS RöSli kl. 9 síSdegis. VerSa þar ýmis ágæt skemmti- atriSi, og er öllu Framsóknarfólki heimil þátttaka meSan húsrúm leyfir. Á nýársfagnaðinum verður flutt ræða, og verður ræðumaður til- Neituðe að taka Faire í sátt París, 16. jan. — Foringjar rót- tæka flokksins franska undir for- ystu Mendes-France samþykktu í dag að krefjast stjórnarmyndunar jafnaðarmanna og róttækra. Er sú yíirlýsing í samræmi við samþykkt flokksþings jafnaðarmanna í gær. Þá var felld tillaga í miðstjórn radikala flokksins um að taka Faure aftur í flokkinn. kynntur síðar, en einnig verða ýmis ágæt skemmtiatriði. Ber þar helzt að nefna frægan, erlendan fjöllistamann, sem þarna kemur fram, Paul Arland að nafni, og sýnir hann ýmis töfrabrögð með gullfiska. Frá öðrum skemmtiat- riðum verður skýrt síðar. Að lok- um verður dansað og leikur hin ágæta danshljómsveit Baldurs Kristjánssonar fyrir dansi, en söngvari með hljómsveitinni er Haukur Morthens, og ætti þá að vera vel fyrir þeim lið séð. Aðgöngumiða þyrfti að vitja sem allra fyrst í skrifstofu Fram- sóknarfélaganna í Edduhúsinu, þar sem gefnar eru allar nánari upp- lýsingar um fagnaðinn, sími 5564. Frakkar sigruðu í heimsmeist- arakeppninni í bridge í París Heimsmeistarakeppninni í bridge milli Frakka og Banda- ríkjamanna lauk í s. 1. viku i París og fóru Frakkar með auðveldan sigur af hólmi. Hlutu þeh’ 342 stig gegn 288 stig- um Bandaríkjamanna. I keppninni voru spiluð 224 spil. Spilaðar voru átta umferðir og sigraði hvor þjóð í fjórum um- ferðum, en sigur Frakka yar mun meiri í einstökum umferðum. Þetta er í fyrsta skipti, sem Frakk ar verða heimsmeistarar í bridge, og er sigurinn þeim mun eftirtekt arverðari, þar sem beztu og við- urkenndustu bridgespilarar Banda ríkjanna tóku nú þátt í keppninni eins og t. d. Stayman og Goren. Annað íapið eftir styrjöldina. Þetta er í annað skipti eftir heimsstyrjöldina síðari, sem Bandaríkjamenn tapa heimsmeist- arakeppninni í bridge. Árið 1950 unnu Bandaríkjamenn lið frá Sví- þjóð og íslandi og einnig Eng- lendinga. Árið eftir unnu þeir ítalskt lið í Napolí, 1952 sænskt lið í New York, 1953 franskt lið í Monte Carlo,.en 1954 tókst Eng- lendingum að sigra í New York, og nú hafa Frakkar afíur leikið sama bragð. Samkvæmt þeim út- reikningi, sem áður hefir verið notaður við heimsmeistarakeppni, þ. e. að leggja saman heildarupp- hæðina, hlutu Frakkar 86.890 stig, en Bandaríkjamenn 82.350 stig. Þjóðleikhúsið frumsýnir ,Mann og konu’ n.k. föstudag Leikritið „Maður og kona“ verður frumsýnt í Þjóðleik- húsinu á föstudaginn kemur og kallaði þjóðleikhússtjóri, Guðlaugur Rósinkranz, á blaðamenn í gær og skýrði þeina frá framgangi málsins. Kvaðst hann vera sannfærður um, að því myndi verða vel tekið eins og öllum þeim íslenzku leik- ritum, sem leikhúsið hefir tekið til meðferðar, eins og Skugga-Sveinn, Gullna hliðið og Piltur og stúlka. i Séra Sveinn Víking- ur, biskupsritari, sextugur Séra Sveinn Víkingur Grímsson, biskupsritari, er sextugur í dag. — Hann er fæddur í Garði í Keldu- hverfi, sonur Gríms Þórarinssonar bónda þar og konu hans Kristjönu Kristjánsdóttur frá Víkingavatni. Séra Sveinn tók prestsvígslu 1922, var fyrst aðstoðarprestur að Skinna stað, síðan settur prestur í Þór- oddsstaðapreslakaili tvö ár og 1926 skipaður prestur að Ðvergasteini við Seyðisfjörð og gegndi því kalli alllengi. Árið 1942 varð hann bisk- upsritari og hefir gegnt því em- bætti síðan. Kvæntur er Sveinn Sig-1 urveigu Gunnarsdóttur frá Skóg- um í Öxarfirði. Séra Sveinn Víkingur er þjóðkunn ur maður, bæði af prestsskap sín- um, biskupsritarastöríum, félags- störfum, ritstörfum og ræðu- mennsku. Hann er gáfaður maður og býr yfir óvenjulega þroskaðri kímnigáfu. Ræðumaður er hann með afbrigðum góður og beitir þá oft kímninni af fágætri list en þó hófsemi. Eru tækifærisræður hans alkunnar. Ritgerðir hans á víð og dreif, svo og þýðingar, bera og málsnilld hans glöggt vitni. Sem útvarpsfyrirlesari hefir hann orðið mjög vinsæll. Séra Sveinn Víkingur á miklum vinsældum og trausti að fagna meðal samferðamannanna . Varanlegan frið. Forsetinn sagði í boðskap til þingsins, að markmið Bandaríkj- anna væri að skapa grundvöll var- anlegs friðar í heiminum. Ekki kvaðst hann efa, að þjóðir þær, er lúta yfirráðum kommúnista þráðu einnig frið ekki síður en banda- ríska þjóðin. Ráðamenn þeirra hefðu ekki viljað gera neinar þær raunhæfar ráðstafanir, sem dregið gætu úr vígbúnaði og stríðshættu. Kjarnorkuknúin herskip. Eisenhower kvað Bandaríkin verða að leggja áherzlu á land- varnir sínar, svo að engin þjóð þyrði á þau að ráðast. Miklu fé yrði varið til að eíla flugher og flota. Hafin yrði smíði kjarnorku- knúins beitiskips og flugvélaskips. Þá væri einnig á fjárlögum áætl- að mikið fé til kjarnorkurannsókna Leikrit þetta er samið upp úr skáldsögu Jóns Thoroddsen og hafa þeir Emil Thoroddsen og Ind- riði Waage unnið að því. Leikritið var fyrst sýnt 1933 á jólum og hlaut þá miklar vinsældir. Aftur var það sýnt 1945 við góða aðsókn. Leikstjóri í bæði skiptin var Ind- riði Waage, sem er það einnig í þetta skipti. Þjóðleikhússtjóri kvað þessi gömlu, þjóðlegu leikrit alltaf vera vinsæl, enda væri mjög þýð- ingarmikið að leikhúsið væri eins konar tengiliður milli fortíðar og nútíðar — á milli fornrar og nýrr- ar menningar. Þetta væri ekki sízt þýðingarmikið, þar sem þjóðin er nú að vaxa frá þeim lifnaðarhátt- um og unga fólkið þekkti elcki lengur þau kjör, sem þá voru. Þetta væri menningarstarf, sem leikhúsinu væri skylt að inna af hendi. og kjarnorkuvopna. Einnig til til- rauna með vopn, einkum, raketlur. Forsetinn drap einnig á tillögu þá, sem hann lagði fyrir þingið um daginn, varðandi fjárhagslega aðstoð við erlend vinveitt ríki, sem skammt eru á veg komin tækni- lega og efnahagslega og yrði sú aðstoð miðuð við langt árabil. Hvetur forsetinn mjög til að þingið fallist á tillögur hans um þetta efni. Bílfæri erfitt | um Skagafjörð j Frá fréttaritara Tímang á Sauðárkróki 14. jan. Tíð hér í Skagafirði hefir verið mjög slæm að undanförnu og færð ill. Færðin er sérstaklega erfið í Viðvíkursveit, Hegranesi og í Hjaltadal. Einnig er erfitt frá Sauðárkrók og framundir Reyni- stað. Skefur jafnóðum í slóðirn- ar þótt verið sé að ýta af vegin- um annað slagið. | Fremur lítill snjór er í fram- héraði, framarlega í Blönduhlíð og í Lýtingsstaðahreppi. Virðist sem skipti nokkuð um með snjóþyngsl in hjá Reykjarhóli. Vegna þess- ara snjóþyngsla í úthéraði geng- ur fremur erfiðlega að koma mjólkinni hingað til Sauðárkróks. GÓ. i ---------—--------—-------« Enginn ágreiningur nm fiskverð eða samninga Frá fréttaritara Tímans í Vestmannaeyjum. í Vestmannaeyjum ríkir nú sér kennilegt ástand í útvegsmálum. Stéttarfélög sjómanna og útvges- manna hafa framlengt óbreytta alla kaup- og kjarasamninga, þar með ákvæðin um hlutaskipti og fiskverð. En þrátt fyrir það, að allir samn ingar eru í lagi og ekkért her á milli stéttarfélaga sjómanna og útgerðarmanna, er engin útgerð í gangi í Eyjum. Útgerðarmenn hafa allflestir skuldbundið sig til þess að hefja ekki róðra, fyrr en boð kemur um það frá Reykjavík, að hefja megi róðya. (Framhald á 7. síðu.> Bandaríkin leggja áherzlu á eflingu flughers og flota Eisenhower leggvir fram fjárlagafrumvarp Washington, 16. jan. — Eisenhower forseti lagði í dag fyrir þjóðþingið frumvarp til fjárlaga fyrir fjárhagsárið, sem hefst 1. júlí n. k. Samkvæmt því er gert ráð fyrir hallalaus- um fjárlögum, en niðurstöðutölur fjárlaganna eru 56.000 milljónir dollara. Tveir þriðju hlutar af útgjöldum ríkisins eru ætlaðir til landvarna og aðstoðar við erlend ríki. Egyptaland lýst lýðveldi Forsetakjör 23. júní n.k. Kairó, 16. jan. — Nasser forsætisráðherra Egyptalands lýsti í dag við hátíðlega athöfn í Kairó yfir gildistöku nýrrar stjórnarskrár fyrir landið. Samkvæmt henni verður Egypta- land lýðveldi. Tekið er fram, að ríkið sé arabiskt og hið opinbera mál sé arabiska. r , < T" Forsetakosningar í Finnlandi Helsinki, 16. jan. — í dag. og á morgun fara fram forsetakosning- ar í Finnlandi. í kvöld var sagt, að kjörsókn í dag hefði víða verið mjög mikil, enda var mikill hiti í kosningabaráttunni. Alls eru fram- bjóðendur 6 flokka í kjöri. Kekk- onen forsætisráðherra er í kiöri fyrir Bændaflokkinn, en Fager- holm þingforseti fyrir jafnaðar- menn. Ekki er talið auðvelt að segja fyrir um úrslitin. Kosnir eru kjörmenn, sem síðan kjósa forseta. Þá er einnig kveðið svo á að ríkistrú landsmanna sé múhameðs trú. Þing í einni deild. Þingið verður í einni deild og fulltrúar til hennar kosnir til 5 ára í senn. Forseti verður hins vegar kjörinn til 6 ára og er sér- staklega tekið fram, að hann megi ekki vera skyldur eða venzlaður Farúk fyrrv. konungi landsins. Þá lýsti Nasser forsætisráðherra yfir því, að forseti yr$i: í fyrsta sinn samkv. þessari stjðrnarskrá kjörinn 23. júní n. k. og þá fer einnig fram atkvæðagreiðsla um stjórnarskrána sjálfa. — 'Síðan Farúk konungur var rekinn frá völdum fyrir nálega þrem árum, hefir byltingarráðið farið með völd í landinu. Það lofaði hins vegar þegar í upphafi að landinu skyldi fengin ný stjórnarskrá innan þriggja ára og hefir nú efnt það loforð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.