Dagur - 15.04.1998, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 1S. APRÍL 1998 - 27
LÍFIÐ t LANDINU
íslend-
ingasög-
urá
geisla-
diski
koma sér
vel jyrir
marga,
grúskara,
fræði-
menn og
almenn-
ing.
SPJALL
Eiríkur Rögnvaldsson er einn ritstjóra orðstöðulykils íslendingasagna á geisladiski sem nýkominn er út hjá Máli
og menningu.
íslendingasögur á
geisladisfö
Bókaútgáfan Mál og menning
hefur gefið út geisladisk sem
inniheldur orðstöðulykil fyrir Is-
lendingasögur, ásamt textum
allra þeirra íslendingasagna sem
Svart á hvítu gaf út fyrir tíu
árum. Þetta er rúmlega 2.000
bls. af texta og hægt er að leita
að orðum og orðasamböndum í
öllum textanum, bera saman
endurtekið orðfæri, leita uppi
persónur og sögustaði og sækja
tilvitnanir í söguna.
Eiríkur Rögnvaldsson lektor er
einn ritstjóra orðstöðulykilsins.
„Þessi lykill er byggður upp á
þann hátt að maður getur skoð-
að öil orð í samhengi," segir
Eiríkur. „Orðið birtist í miðju
línunnar og um það bil 40 stafir
hvoru megin við. Hvert orð fær
eina línu í hvert sinn sem það er
notað og í byrjun Iínunnar er
skammstöfun á sögunni sem
orðið er tekið úr og blaðsíðutal í
prentuðu útgáfunni.1'
Tólf þúsitnd orð
I orðstöðulyklinum má finna öll
Orðstöðulykillinn er
ákaflega handhægur
fyrirþá sem vilja fletta
upp einstökum orðum
eða orðasamböndum.
orð sem koma fyrir í sögunum
að frátöldum sérnöfnum. Þau
hafa verið greind í orðflokka og
allar beygingarmyndir hvers orðs
færðar undir eina uppfletti-
mynd. Að auki hafa öll nafnorð
verið flokkuð í merkingarflokka í
sérstakri skrá sem er ómetanlegt
hjálpartæki þeirra sem vilja huga
að afmörkuðum þáttum í sögun-
um: uppeldi, vígum eða húsa-
kosti svo eitthvað sé nefnt.
„Allt í allt eru þetta eitthvað
um 7-800 þúsund orðmyndir, en
um 12 þúsund mismunandi
orð,“ segir Eiríkur. „Sumt var
hægt að vinna í tölvu, en flokk-
unin varð öll að vera handvirk,
því myndirnar eru kannski
dreifðar um allt stafrófið þó
annars staðar væru þær hver á
eftir annarri. Þetta er ákaflega
handhægt fyrir þá sem vilja
fletta upp einstökum orðum,
hvort heldur sem er í einni bók
eða öllum í einu. Eins tilvitnanir
og það hversu oft orð eða orða-
sambönd koma fyrir í hverri
sögu fyrir sig."
Með þessum diski opnast al-
menningi og fræðimönnum ný
og aðgengileg leið til að upp-
götva eða enduruppgötva Islend-
ingasögurnar, þessa fornu texta
sem teljast meðal merkustu
menningardýrgripa mannkyns-
ins. Þessi útgáfa er einstaldings-
útgáfa af diski sem Mál og
menning gaf út árið 1996 og var
einkum ætluð bókasöfnum og
fræðimönnum. Geisladiskurinn
er aðeins til fyrir PC vélar enn
sem komið er og helgast það af
því að mun meira er um PC í
menntakerfinu. -VS
NÝJAR ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR
Af Óskari rika
Óskar Sigurðsson, skipstjóri og
vörubílstjóri í Jaðri á Stokkseyri,
var sagður með ríkustu mönn-
um á Suðurlandi og þótti hann
um margt verðskulda slíkt. Ósk-
ar, sem var af aldamótakynslóð-
inni, var með afbrigðum kapp-
samur maður til allra starfa;
hvort heldur það var í útgerð-
inni á Hásteini ÁR eða í vöru-
bílaútgerðinni á X-24. Eftirtekja
langs vinnudags varð Iíka drjúg
þegar upp var staðið.
Svo er stundum sagt um hina
efnuðu menn að það séu þeir
sem fastheldnastir séu á aurinn,
og það sé ástæðan fyrir ríkidæmi
þeirra. Þannig segir þjóðsagan til
dæmis frá því að Óskar hafi ein-
hverju sinni verið á ferð úti á
þjóðvegi þar sem vörubíll hans
bilaði. Hann veifaði á næsta bíl,
en tók ekki eftir því að þetta var
leigubíll. Óskar bað bílstjórann
um að skulta sér á tiltekinn stað
- sem var og gert. Þegar þangað
var komið tilgreindi Ieigubílstjór-
inn tiltekna upphæð; að þetta
kostaði farið. Þá setti Óskar í
brýrnar og hafði yfir hin fleygu
orð: „Ja, oft hef ég nú skutlað
manni bæjarleið - og aldrei hef
ég tekið neitt fyrir það.“
Hin sögubúturinn um Óskar
er sá að hann kom inn í sölu-
skála Shell á Stokkseyri og náði
sér þar í eintak af blaðinu Dag-
skránni, sem dreift er án endur-
gjalds á Suðurlandi. „Já, það er
gott blað - þessi Dagskrá," sagði
Óskar ríki, „enda er það eina
blaðið sem ég hef efni á því að
kaupa."
SMÁTT OG STÓRT
Björn
Þorláksson
skrifar
Ákall Hallbjöms
Hallbjörn Hjartarson kántrí-
kóngur á Skagaströnd hefur
sent út gíróseðla til landsmanna
þar sem hann falast eftir stuðn-
ingi við uppbyggingu nýs Kán-
trýbæjar. Stofnað hefur verið
eignarhaldsfélag sem ber nafn
Villta vestursins og gerir Hall-
björn í rituðu máli á gíróseðlin-
um grein fyrir mikilvægi máls-
ins. Orðalag ákallsins hefur vak-
ið nokkra athygli en Hallbjörn
er mjög persónulegur eins og
hann á vanda til. Þannig byijar
bréfið: „Kæri viðtakandi. Eins og þér mun kunnugt varð Kántrí-
bærinn minn eldi að bráð 21. október sl. Þá varð ég fyrir áfalli
sem ég hélt að yrði mitt síðasta. Eg sá hugsjón mína og ævistarf
bókstaflega hverfa fyrir augunum á mér og á þeirri stundu var
mér eiginlega skapi næst að ganga inn í logana. En ég gleymi
aldrei þeim viðbrögðum almennings sem komu fram strax þarna
um nóttina og næstu daga."
Gleymi þér ekki — ef þú fjárfestir
Og Hallbjörn heldur áfram og segir að loforðið sem hann hafi
gefið, að gefast ekki upp og reisa nýjan bæ, hafi verið erfitt að
uppfylla. „Eg þarf á stuðningi þínum að halda. Þess vegna sendi
ég þér þetta bréf og meðfylgjandi gíróseðil í þeirri von og trú, að
hugur hafi fylgt þeirri hvatningu sem ég fékk. Þessi gíróseðill
hljóðar upp á kr. 1000 og við greiðslu hans verður þú hluthafi í
Villta vestrinu ehf., stuðningsfélagi og fjárfestingarfélagi í nýum
Kántríbæ. Þar með ertu orðinn þátttakandi í stórátaki fyrir ís-
lenka kántrímenningu, og hefur sýnt mér velvild sem ég mun
aldrei gleyma. ...Guð blessi þig vinur minn.“
Samhugur í laxi
Oft hefur gustað um Fjalar Sig-
urðsson, stjórnanda Þjóðarsálar-
innar, í vetur. Hefur Fjalari
meira að segja verið hótað lík-
amsmeiðingum í beinni og
minna taktarnir svolítið á
ónefndan stjórnanda fyrrum.
Fjalar hefur skoðanir á hlutun-
um og er ekki hræddur við að
viðra þær. Húmor hans er jafn-
framt beittur eins og sýndi sig
þegar hann kynnti Þjóðarsálina
einn daginn sem laxveiðiumræð-
an reið röftum: „Góðir hlust-
endur. Þetta er þátturinn Þjóðarsálin sem jafnframt verður til-
einkaður söfnunarátakinu Samhugur f Iaxi.“ Eins og nærri má
geta reyndist Fjalar sannspár. Enginn vildi ræða neitt annað en
Laxbankann og stjórnendur hans þann daginn.
Ekki af ætt
flugvéla
Stutt og sjaldgæf nöfn
eru í tísku núna skv.
upplýsingum sóknar-
prestsins í Hrísey og
rennir frétt Dags um
Sól og Mána eyjarinnar
þar stoðum undir.
Prestum er oft vandi á
höndum þegar skírnir
eru annars vegar og of-
anritaður heyrði nýlega
að ónefndur séra hefði
hlaupið á sig á dögun-
um þegar hann var beðinn um að skíra stúlku Konkordíu. Hinn
vígði maður hélt sem sagt að nafnið væri sótt í flugvélaheiminn
og fannst harla vafasamt, en hið rétta var að nafnið er fornvest-
firskt og er mörgum öldum eldra en flugvélar Concorde sem
rjúfa hljóðmúrinn milli New York og Parísar. Þetta er ekki alltaf
einfalt Iíf.
Netfang: bjorn@ dagur.is
(Skemtilegar sögur og kveðskapur er vel þeginn)
Umsjón: Sigurður Bogi
Sævarsson.