Dagur - 15.04.1998, Blaðsíða 10
26 - MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1998
LÍFIÐ í LANDINU
HESTAR
Unghiyssur í
Stangarholti
Starri frá Hvitanesi. Knapi Gísli Gíslason.
Kári
Arnórsson
skrifar
í Stangarholti er nóg
að gera og allar stíur
fullar. Það er einkum
um að ræða ungar
hryssur sem ætlað er
að fara í dóm í vor.
Hitasóttin er ekki enn
komin vestur á Mýrar
og því hafa menn
óhindrað getað sinnt
hrossunum. En ekki
hefur þó verið hægt að taka hross frá
öðrum svæðum til þjálfunar vega um-
ferðarbanns. Þó veikin hafi ekki enn
náð fótfestu á Vesturlandi nema á Akra-
nesi þá hefur þetta ástand óbein áhrif,
segir Gísli og menn eru í óvissu um
sýningarhald. En það verði að halda
vinnunni áfram og koma þeim hrossum
til þroska sem á staðnum séu.
Það eru aðeins tveir stóðhestar í
þjálfun hjá Gísla að þessu sinni. Starri
frá Hvítanesi sem Gísli sýndi í fyrra lítið
taminn þá er nú kominn á fullan skrið.
Starri er undan Orra frá Þúfu og móðir-
in er Dýrmunda frá Hvítanesi, dóttir
Byls frá Kolkuósi. Gísli segist vera mjög
ánægður með hvernig þessi hestur hef-
ur þróast.
Hinn folinn er frá Hoftúnum á Snæ-
fellsnesi og er á 4. vetur. Hann er und-
an Geysi frá Gerðum en móðir hans er
undan Ófeigi frá Hvanneyri. Þetta er
mikill ganghestur, segir Gísli og stefnir
með hann í dóm í vor.
Mjög spennaudi hryssa frá Lundum
Af hryssum á 6. vetur nefndi Gísli Bliku
frá Spágilsstöðum í Dölum. Hún er
dóttir Kolgríms frá Kjarnholtum og af
heimahrossum í móðurætt. Þetta er
fljúgandi gott reiðhross sem er í mikilli
framför. Hún fékk fyrir hæfileika í fyrra
lítið tamin 7,80 skeiðlaus.
Af hryssum á 5. vetri var auðheyrt á
Gísla að Sina frá Lundum heillaði hann
mikið. Þessi hryssa er moldótt að lit
eins og nafnið bendir til. Hún er undan
Viðari frá Viðvík en móðirin er moldótt
hryssa frá Skarði í Landssveit undan
Kolbaki frá Egilsstöðum en hann var
um tíma í eigu þeirra Skarðsmanna.
Þetta er hágeng hryssa með langan og
fínan háls sem kemur vel úr herðum.
Hún er nokkuð glæsileg í reið. I fyrra
var Sóley frá Lundum efst á íjórðungs-
mótinu eins og menn muna.
Þá er hryssa dóttir Dags frá Kjarn-
holtum, myndarhross frá Hundastapa á
Mýrum. Móðir hennar er undan Rauð
618 frá Kolkuósi. Gísli gerir sér vonir
um að þessi hryssa skili þó nokkru þeg-
ar tímar líða.
Um 4ra vetra hryssurnar var Gfsli
ekki margorður. Hann sagðist vera með
nokkuð margar á þeim aldri og tíminn
myndi Ieiða í ljós hverju þær skiluðu.
Þær væru ekki undan neinum frægum
stóðhestum en byggju margar yfir tals-
verðri getu. Þó fékkst hann til að minn-
ast á eina hryssu sem væri frá Vatns-
leysu. Hágeng klárhryssa sem örugglega
færi í dóm í vor. Þessi hryssa, sem er í
eigu Per Kolnes í Noregi, væri ekki með
nafnkennda foreldra á bak við sig.
Nýr stóðhestur
Aðspurður um hest sem faðir hans Gísli
Höskuldsson á Hofstöðum væri með,
en systir Gísla Gíslasonar á, sagðist
hann búast við því að hann færi í dóm í
vor. Þetta er grár foli sonur Gáska frá
Hofsstöðum og móðirin er Rjúpa frá
Hofsstöðum undan Gusti frá Sauðár-
króki. Þessi foli heitir Kapall. Gísli segir
að hann hafi verið frekar smár en hafi
nú náð ágætum þroska og sé verulega
góður. Enn er því að vænta stóðhests
frá Hofsstöðum með gráa litinn sem
hefur verið aðall þeirra Hofsstaðafeðga.
Vorsýningu í Gunnarsholti frestað
Nú hefur hitasóttin heimsótt Stóð-
hestastöðina í Gunnarsholti. Stjórn
stöðvarinnar hefur tekið þá ákvörðun
að vorsýningunni sem vera átti f Gunn-
arsholti 2. maí verði frestað um hálfan
mánuð ogverði 16. maí.
Undirbúimigi haldið áfram
Á fundi sem haldinn var á Akureyri síð-
astliðinn þriðjudag lýsti yfirdýralæknir
því yfir að menn skyldu halda áfram
með allan undirbúning fyrir landsmót.
Þó svo að énn yrði haldið þeim tak-
mörkunum sem nú væru í gildi og með
þeim hætti reynt af hefta útbreiðslu
hitasóttarinnar. Þá yrði búið að Iétta
þeim takmörkunum af það tímanlega að
Iandsmót ætti að geta farið fram á aug-
lýstum tíma. Það væri hins vegar
ábyrgðarleysi að reyna ekki að draga það
fram á sumar að sóttin bærist til þeirra
landshluta sem möguleiki væri á að
halda ósýktum.
Undanfamar vikur hafa hér á Hesta-
síðunni birst viðtöl við hestamenn og
ræktendur. Allir þessir viðmælendur
hafa haldið sínu striki þrátt fyrir veikina
og verið fullvissir um að mótið hlyti að
fara fram. Allt annað væri uppgjöf. En
yfirlýsing yfirdýralæknis var hins vegar
mjög kærkomin ekki síst fyrir mótshald-
arana sem búnir eru að kosta til bæði
miklum fjármunum og mikilli vinnu.
Nauðsynlegt er að koma yfirlýsingu yfir-
djhalæknis til erlendra hestatímarita
sem fyrst.
Á Reykjavíkursvæðinu virðist allt
vera komið í fullan gang og svæðin iða
orðið af umferð ríðandi manna. Frést
hefur að Sunnlendingar og Fákur séu
farnir að gæla við sameiginlega vorsýn-
ingu. Gott er ef satt er.
Setjið sítrónu í örbylgjuofn og
hitið á lágri stillingu í eina mín-
útu. Þetta gerir að verkum að mun auð-
veldara er að ná safanum úr sítrónunni.
Einnig má hnoða sítrónur á milli hand-
anna nokkrum sinnum áður en þær eru
kreistar. Þannig losnar um safann og
meira næst af honum.
Kaupið sítrónur þegar þær eru á góðu
verði, kreistið úr þeim safann og frystið
í ísmolaboxum. Geymið molana frysta í
plastpoka.
Þegar Kiwi ávextir eru orðnir linir og
erfitt að skera þá, er hægt að skera ofan
af þeim lok og borða þá með skeið, Iíkt
og egg.
Litlir og fremur grannir púrrlaukar
bragðast betur en stórir og þykkir.
Frosni humarinn verður mun betri ef á
hann er stráð smávegis af salti, svörtum
pipar og sítrónusafa á meðan hann
þiðnar.
• Notið ísskeiðar til að ná steinun-
um úr melónum.
Látið pappír af eldhúsrúllu yfir skálar
með mat sem mikil fita eða vökvi fruss-
ast úr á meðan verið er að hita hann í
örbylgjuofninum.
Gott er að nota plastþynnu sem lok yfir
skálar sem verið er að nota í örbylgju-
ofni. Þannig sést í gegn og hægt er að
íylgjast með matnum.
Olífuolía endist lengur ef í hana er
settur smá sykur og hún geymd í ís-
skáp.
Setjið örlítið sódavatn í eggjakökuna,
þannig verður hún mun léttari.
Góð leið til að geyma hálfan lauk er að
setja smjör á skorna hlutann. Látið
laukinn á disk og smurða hlutann snúa
niður.
Það er mun auðveldara að raspa hýðið
á appelsínu ef hún hefur verið fryst í 2
ldst. áður.
HVAÐ Á É G A Ð GERA
AUtaf upptekiim
Mig langar til að fá ráð hjá þér. Ég er
fimmtán ára, verð reyndar sextán í sumar,
en fyrir nokkrum vikum kynntist ég strák
sem er 6 árum eldri en ég og er í Háskól-
anum. Hann er mjög upptekinn, því með
skólanum stundar hann íþróttir. Hann
segist vera hrifinn af mér en ég hringi
alltaf í hann, hann hringir aldrei þegar
hann segist ætla að gera það. Myndi
hann ekki hringja oftar ef hann væri í
raun og veru hrifinn af mér?
Ég myndi ætla það að hann íyndi smá-
tíma til að hringja í þig ef hann hefði
áhuga. Þú ættir að leita fyrir þér ann-
ars staðar varðandi ástamálin, því gerð-
ir hans sýna svo ekki sé um villst að
áhuginn er ekki mikill.
Ég veit að það er gömul klisja að
segja að það sé nægur fiskur í sjónum,
en þannig er það nú samt og sjálfsagt
margir piltar til sem lita þig hýru auga.
Vigdls svarar í síniami!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símann kl. 9-12.
Siminn er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Merkisdaguriim 15. apríl
•1452 fæddist
Leonardo da
Vinci, málari,
vísindamaður
og mynd-
höggvari.
•1684 fæddist
Katrín I, keis-
araynja í Rúss-
landi.
•Þann 15.
apríl 1783
lauk amerísku
byltingingunni
opinberlega
þegar samið
var um frið á milli Frakklands, Bret-
lands og hins nýja ríkis, Bandaríkja
Ameríku.
• 1784 var fyrsti loftbelgurinn settur á
loft í írlandi.
• 1785 var Skálholtsskóli Iagður niður
og ákveðið var að flytja biskupssetur
til Reykjavíkur.
• 1800 uppgötvaði James Ross norður-
segulpólinn.
• 1803 var Reykjavík gerð að sérstöku
lögsagnarumdæmi og Rasmus
Frydensberg skipaður bæjarfógeti.
• 1865 lést Abraham Lincoln forseti
Bandaríkjanna.
• 1889 fæddist Thomas Hart Benton í
Missouri, en hann var listmálari.
• 1900 var heimssýningin mikla opnuð
í París.
• 1912 sökk hið fræga skip Titanic.
• 1930 fæddist Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrum forseti Islands.
• 1940 fæddist rithöfundurinn Jeffrey
Archer, sem skrifaði m.a. Matter of
Honor og First among equals.
• 1966 fæddist Samantha Fox, söngv-
ari.
• 1980 lést Jean-Paul Sartre í París.
• 1990 lést
Gréta Garbo,
hin fræga
leikkona.
• 1990 var
Yrkja, afmæl-
isrit til heið-
ur Vigdísi
Finnboga-
dóttur, for-
seta íslands
gefið út á
sextugsaf-
mæli hennar. Vigdís Finnbogadóttir.
Lincoln.