Dagur - 15.04.1998, Blaðsíða 1
i
Hvað
firmst
þérum
Sigurður Marelsson, kennari:
„Mér finnst síðustu atburðir
réttir, loksins. Það er ótrúlegt
hvað bankaráðsmenn hafa lítið
fylgst með.“
Margrét Björnsdóttir, heima-
vinnandi: „Slæmt að þetta skuli
hafa gerst. Það er allt í lagi að
laxveiðiferðir eigi sér stað innan
hóflegra marka en ég er hlynnt
afsögn bankastjóranna."
Edda Friðfinnsdóttir, bóksali:
„Þeir gerðu það eina rétta í
stöðunni. Hinsvegar held ég að
Halldór Guðbjarnarson verði
endurráðinn."
Ásta Samúelsdóttir, bókari:
„Mér finnst algjör skandall
hvernig bankastjórarnir hafa
komist upp með þessar laxveiðar
og gott að þeir skuli segja af sér.“
Kári Gunnlaugsson, er í hjálp-
arstarfi: „Þetta er óttalegt sukk
og svínarí. Er ekki eina rétta í
stöðunni að segja af sér? Það
mættu eflaust fleiri gera í þjóð-
félaginu.“
Sigurður Marteinsson, fv.
bóndi: „Þeir áttu ekki annarra
kosta völ. Verst var fyrir Lands-
bankastjórana að senda frá sér
rangar upplýsingar og það kem-
ur í bakið á þeim.“
Guðlaug Sveinsdóttir, ellilíf-
eyrisþegi: „Það er skömm hvað
bankastjórarnir hafa bruðlað
með fé sem þeir eiga ekki. Eg
fagna afsögn."
Hörður Torfason, tónlistar-
maður: „Afsögn er of ódýr
lausn. Það þarf að láta þessa
menn gera betur grein fyrir sín-
um málum.“
Magnús Sigurbjörnsson, veit-
ingamaður: „Það hefði verið
rangt hjá bankastjórunum að
sitja lengur - Ríkisendurskoðun
mun ef til vill sýna að enn meiri
fjármunum var eytt.“
Ragnheiður H. Oladóttir, vin-
nur hjá Reykjavíkurborg: „Mér
finnst leiðinlegt að ekki sé hægt
að treysta fólki. Það er gott að
bankastjórarnir hafa sagt af sér.“
Elsa Svavarsdóttir, húsmóðir:
„Bankastjórarnir gerðu það
rétta í stöðunni með því að segja
af sér. Ég held að víða annars-
staðar sé pottur brotinn í með-
ferð opinberra fjármuna."
í Brekkuskóla á Akureyri: „Jú,
ætli það hafi ekki verið rétt hjá
bankastjórunum að segja af sér.
Þeir eru ekki þeir englar sem
margir vilja láta.“
Sigurður Tómasson, ellilífeyr-
isþegi: „Þetta er spaugilegt. Þeir
hafa ekki fengið ámæli fyrir 40-
50 milljarða útlánatap en urðu að
segja af sér núna og ég styð það.“
Elísabet Hallgrímsdóttir, bók-
sali: „Það var rétt hjá banka-
stjórunum að segja af sér, en
helst hefði mér fundist að reka
hefði átt Sverri.“
Haraldur Ingi Haraldsson,
forstöðumaður: „Ha, sögðu
þeir af sér? Ég hef alveg misst af
því, því ég var að vinna. Þetta
var rétt hjá þeim, þessir tappar
hafa fín eftirlaun og nú nægan
tíma í veiði.“