Morgunblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.05.1979, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR 97. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Stoltenberg hélt velli Kiel, 30. apríl. AP. GERHARD Stoltenberg, sem lagði pólitískan frama sinn að veði fyrir stuðning við smíði kjarnorkuvers í Brokdorf og starfrækslu annars vers í Kiimmel, var endurkjörinn for- sætisráðherra í Slésvík-Holstein í einhverjum tvísýnustu fylkis- kosningum sem hafa farið fram í Vestur-Þýzkalandi og Kristilegi demókrataflokkurinn hélt meiri- hluta sínum á fylkisþinginu í Kiel með eins atkvæðis mun. Sósíaldemókratar og frjálsir demókratar reyndu að fella Stoltenberg með baráttu gegn kjarnorkuverunum í kjölfar slyss- ins á Three Mile Island í Pennsyl- vaníu. Fylgi Stoltenbergs minnk- aði um 2,1% í 48,9% og hann fékk 37 þingmenn af 73. Sósíaldemókratar unnu lítið eitt á og fengu 41,69% atkvæða og 31 þingmann. Frjálsir demókratar töpuðu einum þingmanni og fengu fjóra. Danski minnihlutinn hélt þingsæti sínu og hlaut 22.275 atkvæði. Carter forseti á leið í kirkju f Washington ásamt sovézka andófsmanninum Georgi P. Vins (til vinstri), einum þeirra fimm andófsmanna sem Rússar slepptu á föstudaginn. Vins er prestur og barðist fyrir málstað baptista f Kiev. Ginzburg um sovéska ráðamenn: „Ný manntegund í sköpunarverkinu ” Hyggst búa hjá Solzhenitsyn New York, Tel Aviv, 30. aprfl. AP. Reuter. SOVÉSKI andófsmaðurinn Alexander Ginzburg hcfur í hyggju að setjast að f útlegð með rithöfundinum Solzhenitsyn ásamt fjölskvldu sinni eftir að rithöfundurinn bauð Ginzburg að koma og búa með sér á fimmtfu og einnar ekru landareign sinni f Vermont „eins og hann væri heima hjá sér“. Ginzburg, sem er kunnastur fimmmenninganna sovézku sem látnir voru í skiptum á föstudag fyrir tvo njósnara, sagði frá því í viðtali á sunnudag, að hann gerði ráð fyrir að fara til Vermont eftir mánuð. Andófsmaðurinn bar til baka sögusagnir um að eiginkona hans hefði verið mótfallin því að yfirgefa Sovétríkin. Alexander Ginzburg er fjörutíu og tveggj i ára gamall og hefur setið í fangelsi í Sovétríkjunum þrisvar sinnum fyrir afskipti sín af mannréttindamálum. Hann skýrði svo frá við komuna til Bandaríkjanna að sér hefði þótt leitt að yfirgefa föðurland sitt en játti jafnframt því að hann væri „leiður á að hímast innan fjögurra veggja". Hann sagði: „Það er land- ið mitt. Ég elska það án tillits til stjórnvalda," en bætti síðan við að starfsmenn sovésku stjórnarinnar væru „ný manntegund ... nýtt í sköpunarverkinu". „Ég vonast til að lifa þá tíð að mannréttindahreyfingin í Sovét- ríkjunum verði ekki lengur nauð- synleg," sagði Alexander Ginz- burg. Hann sagðist hlakka til að geta nú notið tjáningarfrelsis til að skrifa um uppáhalds áhugamál sitt, ballett. Tveir hinna andófsmannanna, Mark Dymshits og Eduard Kuzn- etsov, sóttu fjöldafund Gyðinga í New York á sunnudag áður en þeir flugu til ísraels þar sem þeir ætla að taka sér búsetu. Georgi Vins, prestur úr bræðrasöfnuði, fór til messu ásamt Carter forseta í höfuðborginni. Valentine Moroz, frá Ukraínu, sótti fund er haldinn var honum til heiðurs í Phila- delphiu á laugardag. Honum hefur verið boðin kennarastaða við Har- vard-háskóla. Sovézku andófsmennirnir Eduard Kuznetsov (til vinstri) og Mark Dymshits ræða við fréttamenn í New York. Þeir voru úr hópi hinna fimm sovézku andófsmanna sem var sleppt á föstudaginn. Herlög í Tyrklandi HERLÖG hafa verið hert í Tyrklandi til að koma í veg fyrir átök öfgamanna til vinstri og hægri í sambandi við 1. maí hátíðarhöld og herinn hefur uppi mikinn viðbúnað Allir opinberir fundir hafa verið raunverulega bannaðir, útgöngu- bann fyrirskipað í allt að 29 tíma og mikil spenna ríkir í landinu. Her og lögregla hafa aukið eftirlit sitt vegna áskorana frá nokkrum vinstrisinnuðum verkalýðsfélögum til verkamanna um að virða her- lögin að vettugi og halda 1. maí fundi. Þrír verkalýðsleiðtogar voru handteknir í gærkvöldi þar sem þeir höfðu hvatt til hátíðarhalda 1. maí. Sjö aðrir leiðtogar sama félags, þar á meðal formaður þess, Abdullah Bastur, voru handteknir fyrir tveimur dögum af sömu ástæðu. Herlög hafa verið i gildi í Istan- bul, Ankara og 11 héruðum síðan í desember og í síðustu viku voru þau látin ná til sex annarra héraða í austurhluta landsins. Samkvæmt herlögunum er öllum bannað að safnast saman á götum úti. • Fólk hefur verið varað við því að hermenn hafi skipanir um að skjóta ef einhver neitar að hlýða skipun um að nema staðar eða gengur nær hermanni en 30 metra án leyfis. Spénnan er mest í Istanbul þar sem öllum nema örfáum mönnum eins og læknum hefur verið bann- að að yfirgefa heimili sín frá miðnætti í kvöld til 5 f.h. á miðvikudag. Leitað verður í öllum bílum í borginni og nágrenni hennar á þessu tímabili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.