Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979 13 margir þeir sem nú þykjast til kallaðir mættu gjarna hafa meira af. Helgi Hallgrímsson átti líka metnað vegna sinna nánustu og hann gladdist við hvern áfanga sem ættingjar hans og vandamenn lögðu að baki, hvort sem var í vísindum, listum eða viðskiptum. Hann fylgdist náið með hvar hver var í lífsbaíattunni og gladdist einlæglega að sjá þá, sem hug hans áttu í stöðugum fararbroddi. Helgi var glaður maður, hann lifði lífinu lifandi og ánægja hans af mannlegum samskiptum var eink- ar vel til fallin að létta skap annarra ef svo bar undir. Nú, þegar hann er allur og litið er til baka, er vinar saknað í stað, sem jafnan var reiðubúinn að ræða viðburði samtíðarinnar í Ijósi reynslu, þekkingar og skilnings en kunni jafnframt að draga fram broslegu hliðar mannlífsins, sem full oft vilja gleymast. Ættingjum og vandamönnum Helga Hallgrímssonar sendi ég hugheilar samúðaróskir með minningunni um góðan mann, sem kveður nú sáttur við Guð og menn. Pétur Kjartansson. Kynni okkar Helga Hallgríms- sonar hófust í frumbernsku minni, eða frá því hann hóf kennslustörf á Eyrarbakka árið 1913, ásamt eiginkonu sinni, frú Ólöfu sálugu Sigurjónsdóttur, og hafa staðið fram á seinustu ár. Er mér og fjölskyldu minni því æði mikill sjónarsviptir að burtför hans héðan úr heimi, þótt aldinn væri hann orðinn að árum, eða nýlega 88 ára gamall. Hann var fæddur hinn 14. apríl 1891 að Grímsstöðum í Álftanes- hreppi í Mýrasýslu, sonur hjón- anna Hallgríms hreppstjóra Níelssonar og konu hans, Sigríðar Steinunnar Helgadóttur frá Vogi á Mýrum. Voru þeir bræður Hall- grímur faðir Helga og Haraldur prófessor Níelsson, en systur Sig- ríður móðir Helga og Ragnheiður vinkona mín Helgadóttir frá Vogi, móðir Bjarna Ásgeirssonar sendi- herra og þeirra systkina. Er ætt- bogi sá allur hinn merkasti og margt mikilhæfra manna og kvenna innan þess frændgarðs, sem of langt yrði að minnast hér. Helgi lauk kennaraprófi árið 1912 og voru þeir bekkjarnautar og herbergisfélagar hann og Bjarni sál. Bjarnason á Laugar- vatni og entist vinátta þeirra til æviloka Bjarna. Helgi var síðan kennari í Keflavík í eitt ár, en fluttist þá til Eyrarbakka ásamt konu sinni, ólöfu Sigurjónsdóttur kennara og höfðu þau verið gefin saman 2. okt. 1913. Voru þau búsett á Eyrarbakka til ársins 1917 og þar fæddist frumburður þeirra, dr. Hallgrímur, hinn 3. nóv. 1914. Frá Eyrarbakka flutt- ust þau til Reykjavíkur, þar sem Helgi hóf störf á Hafnarskrifstofu Reykjavíkur 1918. Á skólaárum sínum hafði Helgi numið hljóð- færaslátt hjá Brynjólfi Þorláks- syni og Sigfúsi Einarssyni. Kom brátt að því að hann hóf að spila við guðsþjónustur hjá frænda sínum próf. Haraldi Níelssyni, og í dómkirkjunni í forföllum Sigfúsar Einarssonar. Árið 1923 setti hann á stofn Nótnaverzlun Helga Hallgríms- sonar í Lækjargötu. Voru þá erfiðir tímar og listin ekki hátt skrifuð, en Helgi greiðvikinn að eðlisfari og mun ekki hafa auðgast á verzluninni og hætti eftir fáein ár að reka hana. Snemma gerðist hann þátttak- andi í félagsmálum opinberra starfsmanna og var löngum í stjórn Starfsmannafélags Reykja- víkur og um árabil forseti á þingum B.S.R.B. Þeim hjónum varð alls fjögurra barna auðið auk Hallgríms, sem áður er getið. Þau eru: Ástríður sendiherrafrú, Sigurður, forstjóri Flugleiða, Gunnar lögfræðingur og Jón Halldór fiskiðnfræðingur, búsettur í Bandaríkjunum og stýr- ir þar stóru fiskiðnaðarfyrirtæki. Aðalhugðarefni Helga Hall- grímssonar var tónlistin og að bæta úr sáru menntunarleysi þjóðar sinnar í þeim efnum. Hann var sískrifandi í blöðin og flutti mörg eggjunarerindi í útvarpið eftir að það tók til starfa. Hann var einn helsti frumkvöðull að stofnun þess visis að hljómsveit, sem nú er orðin að Sinfóníuhljóm- sveit íslands. Um skeið fannst mér hann vera hrópandinn í eyðimörk- inni, en smátt og smátt bættist honum liðsauki og menntuðum tónlistarmönnum fjölgaði en grát- lega seint fannst honum róðurinn sækjast á stundum. Mér gleymist seint, er hann lýsti fyrir mér þjóðhátíðardegi Norðmanna, þeg- ar lúðrasveitir allra skóla komu leikandi á lúðra hver frá sínum skóla og börnin í skrúðgöngu á eftir með blaktandi fána í hönd. Hann fékk oft fræga listamenn til að koma hingað til hljómleika- halds og til að kynna okkur ís- lendingum hvað fyrir honum vakti með áróðri sínum. Hann sá í anda þjóð sína þroskast til jafns við það, er hann best vissi með frændþjóðum okkar. Þótt Helgi berðist stundum af mikilli hörku fyrir hugðarefnum sínum og ætti til að beita mælsku sinni svo undan sviði, var það jafnan gert af þeirri háttvísi og nærfærni, sem var svo einkennandi fyrir Helga, að flestir urðu vinir hans við nánari kynni. Snyrtimennskan var honum í blóð borin og hvar sem hann kom, hvort sem var á mannamót eða í heimahús, varð hann jafnan hrók- ur alls fagnaðar, með viðræðu- snilli sinni og forsöng. Aldrei gleymi ég rauða húsinu hans í Gróðrarstöðinni, þar sem frú ólöf réð ríkjum og mannvænleg börn þeirra uxu úr grasi. Aldrei var svo gestkvæmt við matborð þeirra að ekki væri rúm fyrir einn í viðbót. Undrast ég hvers þau voru megn- ug á þeim árum kreppu og fátækt- ar. Mun þar ráðdeild og hagsýni húsfreyjunnar hafa átt sinn drjúga þátt. Guð blessi hana fyrir öll gæðin við lítinn dreng. Nú að leiðarlokum minnist ég Helga Hallgrímssonar með þakk- læti fyrir liðnar samverustundir, samvinnuna við stóra borðið í skrifstofu Kreppulánasjóðs, þann tíma sem hann vann þar, allar gleðistundirnar, sem við áttum saman á góðra vina fundum og síðast en ekki síst, það sem ég lærði af honum í umgengni við annað fólk, að ganga þannig um, að ekki sæjust óhrein spor á gólfi né snurða á þræði. Og þess er ég viss, að þegar Helgi kemur fyrir skapara sinn þá mun hann segja, eins og Staðarhóls-Páll, er hann gekk á konungsfund að leita rétt- ingar mála sinna og hirðsiða- meistarinn spurði hann hverju það sætti að hann krypi ekki á bæði kné eins og hirðsiðir mæltu fyrir. Er mælt að Páll hafi svarað: „Ég lýt hátigninni en stend á rétti mínum", en út af þessum orðum lagði Helgi, er hann hafði orð fyrir þingfulltrúum B.S.R.B. í boði forseta íslands að Bessastöðum. Ástvinum Helga biðjum við hjónin allrar guðs blessunar og honum fararheilla til nýrra landa. í guðs friði. Tryggvl Pétursson. umemtio Besti mótleikunnn gegn hækkandi bensínveröi. HABEitG hf Ræða um félagsleg- ar rannsóknir og friðhelgi einkalifsins Fimintudaginn 31. maí kl. 20.00 gengst Félag þjóðfélagsfræðinga fyrir almennum fundi í Æfinga- skóla Kennaraháskólans við Bólstaðarhlíð. Fundar- efni er: Félagslegar rann- sóknir, friðhelgi einkalífs. Flutt verða tvö stutt framsöguerindi og að þeim loknum verða almennar umræður. Frummælendur verða: Ragn- hildur Helgadóttir, alþingis- maður, og Þorbjörn Broddason, dósent. Fundur þessi er öllum opinn. Félag þjóðfélagsfræðinga hef- ur starfað um nokkurra ára skeið. Fyrir tveimur árum var það sameinað Félagsvísindafé- lagi íslands, en það var stofnað með tilkomu námsbrautar í þjóðfélagsfræðum við Háskóla Islands. Félag þjóðfélagsfræðinga á aðild að tveimur norrænum samböndum, Norræna félags- fræðingasambandinu og Nor- ræna stjórnmálafræðingasam- bandinu. Sambömd þessi gefa hvort um sig út tímarit um málefni sinna fræðigreina. Félagsmenn í Félagi þjóðfé- lagsfræðinga eru nú 63 talsins. AUGI.VSINGASÍMINN ER: 22480 J JlUrgunbla&ib allar af Philips og Philco kæliskápum 270 Lítrar n ——55 H Frystir 40 Lítrar Kælir 200 Lítrar Frystir 38 Lítrar Kælir 187 Lítrar 49-----1 220 Lítrar |-----55-------, Frystir 85 Lítrar Kælir 265 Lítrar •60 heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 - 2Ö455 - SÆTÚN 8 - 15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.